Heimskringla - 25.06.1914, Síða 1
I SIFTINOALEYFIS- I VEL GBRÐUR
BRLF SELD ILETUR GRÖFTUR
Th. Johnson
Watchmaker, Jeweler& Optician
Allar viðpierdir tij6tt og vel af hendi
loystar
248 IWain Street
Phonð IVlatn 6606 WiNNlPEQ, MAN
Fáið Dpplýsingar um f
PEACE RIVER HÉRAÐIÐ OG
DUNVEGAN
framtídar höfaðból héraðsin®
HALLDORSON REALTY CO.
710 iHrlntyre Kloek
Phone Main 2844 WINNIPEÖ MAN
---------------------------
XXVIII. AR
WINNIPEG, MANITOBA FIMTUDAGINN, 25. JÚNÍ 1914
Nr. 30
Útnefningar í Winnipeg.
l>á cr búið að útnefna öll þingmanna efni Oonservatíva hér í
bænum.
1 Mið Winnipeg eru útnefndir í einu hljóði Alfred J. Andrews
lögmaður, og F. J. G. McArthur, bæjairáðsmaður. Ctnefningar
fundurinn var haldinn á briðjudagskveldið var og var afar
fjölmennur. Báðir liessir menn eru alkunnii' öllum bæjar-
búum, ekki síst Alfred Andrews, sem er einhver vinsælasti
opinber maður bessa' bæjar. Andrews var hér fyrir nokkrum
árum borgar.stjóri og þótti einhver sá besti sem bærinn hefir
nokkru sinni haft. Er hann íslendingum vel kunnugur enda
á þeirra á meðal marga styrktannenn og vini.
1 Suður Winnipeg er útnefndur núverandi þingmaður þar
Mr. Lendrum McMeans, lögmaður, og Mr. Harry \\ hitla, lög-
maður. Eru báðir alþektir hæfileika og dugnaðarmenn og
hafa búið hér langann aldur. Mr. McMeans var um tfma hér
í bæjarstjórn og þótti þar bæði hyggin og atkvæðadrúgur.
Við síðustu kosningar sótti hann sem þingmannsefni Conserva-
tíva í Suður Winnipeg og vann þar með allgóðum atkvæða
mun.
Mr. Whitla hefir eingöngu stundað hér lögmensku, var fyrst
í félagi með Macdonald og Haggart, er nú skipa báðir dómara-
sæti liér í borg. Fyrir fáum árum var félag þetta leyst upp
og hefir Wliitla síðan verið formaður lögmannafélags er liann
stofnaði, og heitir Whitla, Hoskin og Hyman. Báðum þessum
inönnum er talinn sigurinn vfs.
ÍNorður Winnipeg eru tilnefndir Daniel McLean bæjaráðs-
maður og J. P. Foley, einn með efnilegri fjársýslu mönnum hér
í bæ. Voru þeir báðir útvaldir á mjög fjölmennum og einróma
fundi sem haldin var norður í bænum á mánudagskveldið var.
Ekki hefir enn heyrst hverjir sækja á móti þeim.
Alfred J. Andrews, K. C.
Controller F. J. G. McArthur
H---------------------
Sir Robert L. Borden.
Þann 21. júni er gefin út í Lund-
únum skrá yfir þá sem hafa verið
sæmdir nafnbótum nú á afmælis-
hátíð konungs. Hefir ýmsum Can-
ada mönnum hlotnast sú virðing
nú sem endrarnær. Þegar þessu
mannvirðinga-brauði er útbýtt,
hrökkva smámolar út til nýlend-
unna, er meðtaka það með lofi og
þakkargjörð.
1 þetta sinn hefir heiðurinn kom-
ið niður á helztu stjórnmálaleiðtog-
um hér i Canada. Ráðherra Can-
ada, Right Hon. R. L. Borden,
hlaut hæstu orðuna, sem hingað
var veitt, og er það ailra mál, að
virðingarvottur sá hafi maklega
komið niður þar sem hann er.
Hann er mikilhæfur maður, fram-
úrskarandi gætinn og þjóðhollur i
öllum sínum tillögum, og nú sem
stendur æðstur valdsmaður hér í
landi. Er hann nú gjörður riddari
af St. George og St. Michael orð-
unni. Verður titill hans framvegis:
fíiffht Honorable Sir ltobert L. Bor-
den, G.C.M.G. Er þetta sama tign
og Sir Wilfrid I.aurier hefir.
Þá er Hon. G. E. Foster veitt
slétt riddaratign, og Hon. Charles
E. Boucher, senator og fyrverandi
ráðherra Quebec fylkis. J. A. M. Aik-
ens, Þingmanni, frá Winnipeg er
veitt riddaratign; svo er W. Kirk-
patrick McNaught, frá Toronto;
Dr. T. G. Roddick, lækni i Montreal
og W. W. Sullivan, dómara á Prince
Edward Island.
EMPRESS SL7SIÐ
Nú er þegar farið að hitna fyrir
rannsóknarréttinum, sem settur var
að prófa Empress slysið. Málaflutn-
ingsmaður “Storstad” eigendanna
hefir borið það fram og nefnt vitni
til að sanna það, að stýrisumbún-
aður allur á Empress hafi verið í
ólagi, þeir hafa ekki getað stýrt
skipinu slyndrulaust ofan fljótið.
Heitir lögmaður liessi Haight og er
frá New York.
Brá mönnum svo við þetta. að
jafnvel formaður rannsóknarréttar-
ins Mersey lávarður hitnaði. Hann
varð heimsfrægur sem formaður
rannsóknarréttarins er fjallaði um
Titanic slysið og va r því viðbrugð-
ið hvað rólegur hann var þegar
aðrir voru uppvægir.
Hann hét Galway maðurinn og
hafði verið einn af lægri yfirmönn-
um skipsins (quartermaster). Bar
hann það fram á leiðinni upp fljótið
til Quebec. Sagði hann að þegar
hann hefði verið við stýri í strengj-
unum á fljótinu rétt fyrir neðan
Quebcc ]>á hefði skipið ekki látið
að stýri og hefði látið nærri að þeir
liefðu rekist á annað skip. Aftur
var hann við stýri á Empress seinna
og segir að þá liafi hið sama komið
fyrir. Reyndar var þessu öllu sam-
an neitað af öðrum, en ]iað sýnir
hvað skoðanir eru skiftar og hvað
ilt og erfitt verður að greina hið
sanna frá hinu logna. Ekki ólík-
legt að ]>að þurfi nokkur 10 punda
lóð að vigta hana, — lýgina.
Slysið í Hillcrest, Alta.
Það var voðalegt slysið lietta.
Allir karlmenn að heita má í náma-
bæ þessuin grafnir tólf hundruð
fetum í jörð niður, nærri 200 manns.
200 heimili liafa mist annaðhvort
föður eða eigin mann eða son eða
bróðir.
Þenna morgun foru 225 verka-
menn ofan í námuna en einum 20
hefir verið bjargað lifandi, aðrir
segja eitthvað 30. Það var kl. 7.30
um morguninn, sem þeir foru niður.
En kl. 9.30 heyrðist voðalegur þung-
ur hvellur og fylgdu lengi drunur
miklar og skruðningar djúpt í jörð-
unni. En ofanjarðar sprakk i
loft upp vélahúsið á No. 1 námunni.
Þegar það kom niður aftur var
dynkur mikill, en kafþykkur, svart-
ur reykurinn gaus upp og veltist úr
námuopninu, og sáu þeir þá sem
úti voru hvílíkur voði var þarna á
ferðum.
Tiu mínútum seinna fóru þessir
fáu, sem lifðu að ryðjast út úr nám-
unni vanalega tveir og tveir saman.
Þeir voru eitthvað 30, og sögðu að
einhverjir myndu enn þá lifandi.
Menn foru undireins að reyna að
bjarga ef hægt væri og foru í hópum
ofan. Náðu þeir þá fáeinum, en sáu
þá að allur þorrinn hafði þar lífi
týnt 195 til 200 manns. Þarna voru
konur þeirra og börn, mæður og
systur grátandi að hvetja mennina
til að leita og fara niður og það var
gjört. Menn með oxygen hjálmum
tróðust í gegnum þvöguna og fóru
niður einn á eftir öðrum og tveir og
þrír 1 hóp. Langt niður foru þeir
og komu svo upp með einn eða eða
annan dauðan og hver fór að líta
eftir sínum. Þegar þetta var skrif-
að höfðu eitthvað rúmir 20 fundist
dánir en vonlaust um hina.
Ætla er að allir hafi kafnað af
eitruðu lofti, en sumir hafi látist er
klettar og bjálltar hrundu á þá.
Yfirmaður námanna Mr. Quigley er
ófundinn ennþá og ætla menn að
hann liafi farist.
Ekki vita menn orsök að slysinu,
eða af liverju sprengingLu hefir íom
ið. En djúft er þar niður og loft
skemt, og það vond vist að þræla
fyrir lífi sfnu 1,200 fet í jörðu niðri
stöðugum lífshásk'a, langt frá dags-
birtu og lireinu lofti. Og má cngin
vita, sem niður fer hvert hann kem-
ur lifandi upp aftur. Menn venjast
að vísu við það sem annað, en ekki
er það hressilegt.
Pólitíin hóta verkfallL
Laun lögregluþjóna í DanrnOrku
orsökin.
Það er bæði merkilegt og ein-
kennilegt þetta verkfall í Kaup-
mannahöfn. Það kemur alt af því,
að þar er farið að gjöra konur að
lögregluþjóniim og borga þeim
hærra kaup en karlmönnunum fyrir
þann starfa.
Konur voru gjörðar að lögreglu-
þjónum i fyrstunni til þess að láta
þær eiga við konur, sem brytu lög—
in eða væri eitthvað að, og börn öll,
j og segir fréttaritarinn að þær fái
300 krónum meira kaup yfir árið,
er þær byrja, heldur en nýjir karl-
ar.
Ef nokkuð verður af þessu verk-
falli, sem lögreglumennirnir hóta,
eru líkur til, að formönnum lög-
reglunnar verði ekki bylt við. Þeir
snúa sér þá til kvenfólksins og setja
eintómar konur sem lögregluþjóna.
SKEMTIFERD.
Ungmennafélag Únítara hefir
skemtiferð til St. Andrews Locks
laugardaginn 4. júli næstk. Farið
verður með skemtiferðabátnum
Lockport, setn er stærsti og fegursti
báturinn, sem nú er í förum á ánni.
Báturinn leggur af stað frá Lusted
Street bryggjunni kl. 2 e.h.; kemur
aftur til Winnipeg kl. 7. — Þeir, sem
vilja, geta farið af bátnum íHyland
Rark í bakaleiðinni og beðið þar
síðari ferðar bátsins. — Fargjald
er einn dollar fyrir fullorðna og
limtíu cents fyrir börn. — Þetta
verður óefað bezta skemtiferðin,
sem íslendingar eiga kost á að fara
á þesu sumri. — Gleymið ekki að
skemta ykkur vel fjórða jiili.
Árekstur.
Þeir ætla að fara að ganga eins
og landfarsótt þessir árekstrar stór-
skipanna. Eitthvað viku eftir að
Empress sökk var Allanlínu skip
eitt á leiðinni upp Thames fljótið
til Lundúna. En þá rakst það á
nokkuð minna gufuskip, mölvaði
inn siðuna á þvi og sökti því á 10
mínútum. Annað skip var rétt á
eftir þvi og endilega þurfti það að
rekast á það líka, svo sem 2 rnínút-
um á eftir hinu og steypa því í
kaf. Skipshöfn var 21 *maður og 3
farþegar, og björguðust allir.
Þá rakst hið mikla þýzka fólks-
flutningaskip Vilhjálmur keisari
annar, á gufuskipið Incemere og
brotnuðu bæði skipin svo að þau
gátu að oins komist á haínir inn og
þannig bjargað farþegunum. Það
var í þoku mikilli þetta í Ermar-
sundi milii Englands og Frakk-
lands. Árekstur þenna bar mjög
líkt að og Empress-slysið, og verð-
ur úr því stórinál.
Gufuskipið Buelow, með 300 far-
þega, festi nefið á milli skerja
tveggja, og reyndu 3 gufuskip að ná
þvi þaðan, en gátu ekki, og varð að
taka alla farþega af þvi.
Ef þau ekki rekast hvort á ann-
að skipin, þá renna þau sér föstum
á grynningar.
Eitt stórt gufuskip rakst nýlega á
sker við Skotlands strendur og sat
þar fast, svo að menn örvæntu um,
að geta náð því á flot aftur. Það
var fast að framan og brotið og
reri þar á skerinu, en dýrar, nýjar
vélar voru í afturhluta þess, sem
laus var, og var þá tekið það ráð,
að sprengja það i sundur nálægt
miðju, rétt framan við vélarnar.
Þetta tókst vel; dynamitið tók það
alveg i sundur og þá tóku gufuskip
það og drógu í land afturhlutann,
en framparturinn sat á skerinu. —
Átti svo að smiða framhluta í það í
stað þess, sem á skerinu sat.
Þau eru orðin eitthvað 10—20
stórskipin, sem farist hafa á stutt-
um tíma, annaðhvort sokkið eða
stórlaskast, eða strandað á skerj-
um eða grynningum, eða rekið á
sand upp.
KYRKJUÞINGSFRÉTTIR.
Kyrkjuþing hins Únitariska
Kyrkjufélags Vestur-lslendinga var
haldið að lundar, Man., 19.—22.
þ.m. Flestir söfnuðir i félaginu
sendu fulltrúa á þingið, en sökum
sérstaks annríkis á ýmsum stöðum,
var þingið ineð fámennasta móti.
Erindi var flutt á þinginu af síra
Guðm. Árnasyni um W. E. Channing
og Thedore Parker, og trúmálafund-
ur var haldinn; var umræðuefni á
honum Framtíðarkgrkjan, og hóf
hr. Skapti B. Brynjólfsson umræður
um það efni. Trúmálafundur pessi
var mjög vel sóttur og urðu allmikl-
ar úmræður á honum. Einnig var
sunnudags guðsþjónustan vel 'sótt.
Mary Hill og Grunnavatnsbygðar
söfnuðir tóku mjög myndarlega á
móti erindsrekum og gestum; og
héldu ölluin viðstöddum myndar-
legt samsæti að þinginu afstöðnu.
Forseti félagsins fyrir komandi
ár var endurkosinn hr. Skapti B.
Brynjólfsson, skrifari sira Rögnv.
Pétursson og gjaldkeri Hannes Pét-
ursson.
Þing þetta var, eftir aðsókn að
hinum opnu fundum þess að dæma,
Únitarasöfnuðunum í Álptavatns-
og Grunnavatns-bygðum mjög til
uppörfunar og stuðnings. Og dvölin
þar úti var öllum aðkomumönnum
sérlega ánægjuleg, vegna gestrisn-
innar og alúðarinnar, sem allstað-
ar mætti þeim.
G. A.
KALT 1 EVRÓPU
Paris, 8. júní: Þenna dag kom
þar snjór og hagl, svo að fádæm-
um sætti, 2% þumlungur á þykt í
einum hluta Parisar um kveldið.
Það var rétt einsog kominn væri
hávetur. Hestarnir voru flatjárnað-
ir og gátu því ekki fengið fótfestu
og ultu um eða köfuðu skaflana fyr-
ir skrautkerrunum. Fór mælirinn
ofan í 40 stig á Fahrenheit. Varð
]>á hinum fínu stúlkum svo kalt, að
þær skulfu og nötruðu, en karl-
mennirnir börðu sér til þess að
reyna að halda á sér hita, og voru
þvi þó óvanir.
Úr Bænura
Á mánudaginn komu sunnan frá
Dakota hr. Guðm. ólafsson og dæt-
ur hans tvær, Miss Ólöf Good-
mundsson og Nurse Fannie Síver-
son. Sezt Guðmundur að hjá dóttur
sinni og tengdasyni Mr. og Mrs. G.
Goodmundsson á Simcoe St. Er
hann alfluttur hingað til bæjar.
Næsta sunnudagskveld verður
umræðuefni í Únítara kyrkjunni:—
Srnáir hlutir, sem hafa stórt gildi.
— Allir velkomnir.
Á miðvikudagsmorguninn þann
24. þ. m. lagði hr. Arinbjörn S. Bar-
dal útfararstjóri af stað héðan úr
bænum austur til Montreal. Verður
hann þar fram á næsta þriðjudag
og mætir á hástúkuþingi Good-
templara fyrir hönd stórstúk. hér
í Manitoba. Að loknu þvi þingi er
ferðinni heitið til Kristjaniu i Nor-
egi, á allsherjarþing Goodtemplara,
er haldið verður þar dagana frá 24.
júlí til 4. ágúst. Býst hann við, að
bregða sér þá upp til Islands, áður
en hann kemur til baka aftur.
Hr. B. B. Olson frá Gimli kom að
vestan frá Lundar i fyrradag og
hélt heimleiðis sama dag. Fór
hann vestur þangað til þess að vera
viðstaddur -kyrkjuþing Únítara
kyrkjufélagsins, er haldíð var þar
vestra.
Síðustu fréttir frá Islandi (3.
júní) segja, að ráðherra lslands
Hannes Hafsteinn hafi beðist lausn-
ar frá embætti, og sagt af sér ráð-
herrastöðunni. Bað konungur hann
að halda embætti áfram til næsta
þings, að minsta kosti.
Hver verður nú ráðherra lands-
ins? Annars má það liku gilda, þvi
fullsannað er það, að þjóðin unnir
engum manni þeirrar sæmdar til
lengdar. hvað mikið, sem hann fyr-
ir hana gjörir. Það á að heita sjálf-
stæði, — en hamingjan veit, hvað
>að er.
Vér viljum beina athygli lesenda
vorra, að auglýsingu íslenzka raf-
áhalda félagsins, sem birtist nú i
blaðinu. Félag þetta er nýmyndað.
Hefir það tekið út stofnskrá og er
heimilaður höfuðstóll $100’000. —-
Fyrir stofnuninni gangast hr. Páll
Johnson og hr. Jón A. Blöndal. Og
kaupir þetta nýja félag einkaleyfi
Mr. Johnsons á raf-eldavélum þeim,
sem hann fann upp og sem hafa
verið til sölu hér i bæ.
Sunnudagaskóli Únitara ki/rkj-
urinar hefir skemtiferð sína til City
Park næstkomandi laugardag, þann
27. júní. Lagt verður af stað frá
kyrkjunni kl. 2 e. h. — Er öllum,
ungum og gömlum, vinsandcga boð-
Besta Canada
Hveiti
Ogílvie’s
Royal Household
Hveiti
FRÁ HAFI TIL HAFS OG UM
ALLA VERÖLD, FÆR ÞAÐ
ÞENNAN VlTNlSBURÐ O G
HELDUR HONUM.
Th*
Ogilvie Flour Mills Co. Ltd.
WINNIPEG, FORT WILLUM.
MEDICINE HAT, MONTREAL,
Stærstu hveitimölunarmenn í
brezka ríkinu. Mala dag-
lega 18,000 tunnur.
Ivonungleglr mnlarar.
Þann 18. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband, af síra Guðm. Árna-
syni herra Bjarni .1. ólafsson, frá
Dafoe, Sask., og ungfrú Olga J.
Kjarval, héðan úr Winnipeg. Brúð-
hjónin fóru samdægurs til Dafoe,,
þár sem þau setjast að.
AFL MEÐ LOFTSKEYTUM
Nýlega flutti A. A. Campbell Sev-
inton rafmagnsfræðingur fyrirlestur
f Lundúnum fyrir félagi loftskeyta-
manna og talaði hann þá um að
senda afl í gegnum loftið án nokk-
urra rafþráða. Gat hann fyrst um
traust það, er þeir Nicola Tesla og
Pedersen danski hafði á frámtíð
aflsendinganna og beindi svo at-
hygli manna eftirfylgjandi atriði,
sem sannað væri, en það er það að
á heiðríkum sólskinsdegi tekur
jörðin við 4,500,000 hestafla á hverja
ferliyrningsmílu af yfirborði hennar
ið að vera með.
VANTAR VINNUKONU
Stúlka vön hússtörfum getur feng-
ið vist ið vist á góðu íslenzku heim-
ili. Ráðsmaður Hkr. vísar á.
sem við sólu snyr. Þetta kemur til
jarðarinnar í electro-magnetiskum
öldum og fer réttúrlega í gegnum
loftið. Þessvegna, segir hann, er
enginn efi á því, að mögulegt er að
senda feykileg ósköp af afli gegnum
loftið án nokkurra þráða.
Sameiginlegir þingmál-
afundir í Gimli kjörd.
Fundir á eftirgreindum stöðum og tíma verða haldnir i
Gimli kjördæmi til þess að skýra fyrir kjósendum stefnu og
skoðanir stjórnmála flokkanna í fylkismálum. Á fundum
þessum mæta bæði Islenzku þingmanna efnin, hr. Sveinn
Thorvaldson og hr. Einar S. Jonsson. Var það að samningum
gjört milli þeirra til þess að spara fólki ómök og tíma.
Krcuzberg skóla. laugardag 27. júní kl. 10 f.h.
Melev skóla, mánudag, 29. júní, kl. 10 f.h.
Árborg skóla, þriðjudag, 30. júní, kl. 2 e.h.
Framnes Hall, miðvikudag, 1. júli, kl. 2 e.h.
Víðir skóla, fimtudag, 2. júlí, kl. 2 e.h.
Húsavíkur skóla, föstudag, 3. júlí, kl. 3 e.h.
Gimli, föstudag 3. júlí, kl. 8 e.h.
Hnausa skóla, laugardag, 4. júlí, kl. 2 e.h.
Arnes skóla, laugardag, 4. júlí, kl. 8 e.h.
Geysir skóla, mánudag, 6. júlí, kl. 10 f.h.
Icelandic River, mánudag, 6. júlf, kl. 8 e.h.
_______ Hekla, miðvikudag, 8. júlí, kl. 4 e.h. _________
Á fundum þessum mæta ræðumenn frá beggja hálfu, auk
umsækjenda, verða því umræður fjörugar og mál sem fyrir
kjósendum liggja rækilega rædd. öllum er boðið að sækja
fundina og allir eru velkomnir.
S. THORVALDSON
E. S. JONASSON
Lendrum McMeans