Heimskringla - 30.07.1914, Qupperneq 2
Bla. 2
HEIM8KRINQLA
WINNIPEG, 30. JÚLÍ 1914.
™l DOMINION BANK
Hornl Notre Dame og Sherbrooke Str.
Höfuðstóll uppb. $4,700,000.00
Varasjöður - - $5,700,000.00
Allar eignir - - $70,000,000.00
Vér óskum eftir viðskiftumverz-
luuar manna og ébyrgumst ati gefa
þeim fullnægju. Sparisjóðsdeild vor
er sú stærsta sem nokkur banki
befír i borginni.
Ibúendur þegsa hluta borgarinn-
ar óska að skifta við stofnun sem
þeir vita að er algerlega trygg.
Nafn vort er fuiltrygging óhult-
leika, Byrjið spari innlegg fyrir
sjálfa yður, konu yðarog bðrn.
W. M. HAMILT0N, Ráðsmaður
Phone (íarry 84 5 0
CRESCENT
MJÓLK 0G RJÓMI
er sro gott fyrir börnin, að
mæðurnarjgerðu vel í að nota
meira af því.
ENGIN BAKTERIA
liflr f mjólkinni eftir að við
höfum sótthreinsað hana.
Þér fúið éreiðanlega hreina
vöru hjá os8.
TALSIMI MAIN 1400
ÍSLENZKA LYFJABÚÐIN
Vér leggjum kost, á að hafa
og lata af hendi eftir læknisá-
visan hin bcztu og hreinustu
lyf og lytja efni sem til eru.
Sendið læknisávisan irnar
yðar til egils
E. J. SKJÖLD
Lyfjasérfræðinís (Prescription Spec-
ialist á horninu á Wellincton oc Simcoe
Warry 4368-85
PERFECT
eða
Standard
Reiðhjól
eru gripir sem allir þurfa að fá eér fyrir
•umarið. Því þá meiga menn vera visair
um að verða á undan þeim sem eru á
ðCrum hjólum.
Einnig seljum við hjó! sem við höfum
breytt svo á vísindalegan hátt að þau
eru eins góð '5g ný enn eru þó ódýrari.
Gerum við reiðhjól, bíla, motorhjól og
hitt og þetta.
CEYTIíAir IÍICYCLE
WORKS
666 NOTRE DAME AVENUE
PHONE GARRY 121
S. .Vlatthews, Eigandi
FURNITURE
on Ra«v Payments
OVERLAND
MAIN & ALEXANDER
r 1 ,^6 1
im i i-t lllll + l 1111111»»
:: SHERWIN - WILLIAMS
fegurra en nokkurt annað hús • •
mál sem búið er til. — Komið l",
inn og skoðið litarspjaldið.— ••
|; CAMER0N & CARSCADDEN $
QUALITY HARDWARB
J: Wynyard, - Sask. T
i *
»»1 '1' 111-1 I-I-I-H-H-H-1 I' P
Islenzkar sagnir.
Endurminningar úr Hjaltastaða-
þinghá frá 1S51 til 1876.
Eftir þorl. (fóakimsson) Jackson
(Framhald).
Hjútrú.
Varla verður sagt, að mikil hjá-
j trú hafi átt heima í Hjaltastaðaþing-
há; þó ekki alveg laust við það. —
Sumir, þó þeir væru reyndar ekki
hjátrúarfullir, spurðu aðra, einkum
gesti, hvort þeir hefðu ekki orðið
varir við neitt; t. d., hvort þeir
j héldu, að huldufóik væri til, og
hvort þeir hefðu séð það, og þá var
vanalega svarað: Ekki hefi eg séð
það; en eg veit það, að ef það hefir
verið til, þá er það enn til. — Mað-
ur, sem var næturgestur hjá foreldr-
um mínum, var spurður, hvort hann
hefði orðið var við nokkuð, og
kvað hann svo hafa verið. Hann
kvaðst hafa gengið fram í fjós á
vöku, og þegar hann hafði dvalið
þar um stund, heyrði hann að sagt
var: “Hver verndar þig hér?” —
Hann kvaðst hafa áttað sig bráðlega
og svarað: “Það gjörir guð”. Hann
sagðist hafa orðið hræddur og ekki
kent sig mann til að fara strax inn;
svo þegar hann jafnaði sig, flýtti
hann sér inn, og þá var verið að
lesa. Húsbóndinn hafði orð á því
við hann að loknum lestri, að hon-
um hefði dvalist frammi. Svo þegar
komið var í fjósið og farið að
I mjólka, sáust vegsummerki: búið
var að henda niður úr vatnsskjólum
I og eitthvað fleira úr lagi fært. Svo
j gat þetta alt verið náttúrlegt; mað-
I urinn þurfti ekkert að ýkja. Senni-
| legt er, að einhver hafi leynst í fjós-
| inu við dyrnar, þaðan sem honum
heyrðist orðin töluð, og hrætt mann
inn, og svo hann sjálfur bilt um
vatnsskjólunum í hræðslu-æðinu,
sem á hann kom. Hann sagði, að
kunningi sinn hefði orðið úti þá-
sömu nótt, og imyndaði sér, að vera
honum tilheyrandi hefði hrætt sig.
Karl nokkur sagðist hafa verið á
ferð í Reyðarfjarðardölum og bor-
ist fyrir náttlangt í ferðamanna-
kofa, sem kallaður var sæluhús;
Þegar hann hafði litla hríð sofið,
vaknaði hann við það, að brotist
var á hurðina úti fyrir. Hann sagð-
ist hafa stokkið upp og spurt: “Er
djöflinum alvara?” Og við það
hætti ágangurinn.
Trúað var af sumum, að fylgiver-
ur fylgdu ýmsum í sveitinni. Talað
var um Gissur halta og Þorgeirs-
bola, sem átti að draga á eftir sér
húðina. En frægastur af þessum
fylgiverum var Hólsmóri, sem öðru
nafni var kallaður Eyjaselsmóri;
hann fylgdi ættkvisl, sem kend var
við Eyjasel í Jökulsárhlíð og Hól í
Hjaltastaðaþinghá. Margir í ættinni
voru geðveikir og af og til brjálað-
ir, og sennilegt er, að það hafi kom-
ið til af því, að þeir hafi trúað, að
þessi óvættur fylgdi þeim og ásækti
j þá. Sumir menn, sem skygnir þótt-
ust vera, sögðu frá því, að þegar
þeir sáu tvo menn á ferð, sem til-
heyrðu ættinni, þá hefðu þeir séð
I með þeim mórauðan eða móklædd-
an strák, og ef þeir voru ríðandi,
þá hefði strákurinn til skiftis setið
fyrir aftan þá á hestbaki; stokkið
ofan við og við frá einum, og svo
upp á hestbakið hjá hinum.
Hálfdán hét maður og var Hjör-
leifsson. Hann bjó á Hóli um alda-
| mótin 1800, og mun hafa búið þar
1820. Jón hét bróðir hans og bjó í
Eyjaseli. Hann átti margt barna,
einkum syni. En Hálfdán á Hóli ekki
svo eg vissi til fleiri börn, sem upp
komust, en son sem Einar hét, og
j dóttur, sem Sigríður hét. Svo Eyja-
j sels-ættin var mikið fjölmennari en
Hóls-ættin. Móri byrjaði að fylgja
þeim bræðrum-Jóni og Hálfdáni og
I systur þeirra, sem Ingibjörg hét. —
j Um uppruna Eyjasels- og Hólsmóra
jhefir rilað í Huld greinilega Jón
j Jónsson frá Sleðbrjót. Sveinn Jóns-
son á Steinboga, móðurbróðir minn,
j fæddur 1815, og mundi vel Hálfdán
Hjörleifsson á Hóli, sagði mér ým-
slegt um Hólsmóra; ekki fyrir það
Jónsson, móðurbróðir minn, og líka
bjó þar Jón Þórarinsson, sem átti
Kristinu, dóttur Björns. Jón var á
beitarhúsi, og kom Hálfdán þar til
hans, og reyndi Jón að fá hann til
að snúa til baka til Víðastaða, af því
gengið var i dimmveður. En Hálf-
dán vildi ekki/og fanst svo frosinn
til dauðs daginn eftir skamt frá Lag-
arfljóti. Sagt var, að spark og
troðningar hefðu sést þar sem likið
fanst, og sumir þóttust vissir um,
að Móri hefði verið valdur að
dauða beggja feðganna. Um kveld-
ið, þegar Hálfdán varð úti um nótt-
ina, þóttist fólk á Viðastöðum sjá
snjó kastað á gluggana og áleit það
ónáttúrlegt og mundi hafa verið í
sambandi við afgang Háldáns.
Sumt af eldra fólki hafði sögur
að segja af ýmsum mönnum, sem
það mundi eftir, og haldið var að
hefðu kunnað galdur; svo sem
voru: Guðmundur i Húsey, sem eg
hefi áður nefnt, og Guttormur í
Fagradal, Guðmundssonar prests í
Hofteigi og Elisabetar, dóttur Jóns
Víums sýslumanns; kona Guttorms
var Guðrún, dóttir Einars prests á
Skinnastað Jónssonar, prests sama
staðar, er kallaður var greipaglenn-
ir, Einarssonar prests sama staðar
Nikulássonar. Þeir Skinnastaðafeðg-
ar voru galdramenn, og þau hjón
bæði, Guttormur og Guðrún, og þótti
hún þó magnaðri. Eitt sinn komu
þau að Dölum í Hjaltastaðaþinghá;
þar bjó þá Kolbeinn Guðmundsson,
bróðir Jóns á Viðastöðum afa míns.
Þau Guttormur og Guðrún beiddust
gistingar, og var það nú velkomið.
Um kveldið sinnaðist Guðrúnu eitt-
hvað við Kolbein. Um nóttina varð
Kolbeinn þess var, að Guðrún sté
úr rúmi og fór ofan undir pall. Kol-
beinn fór á eftir henni, og kom þá
að því, að kerling var sezt undir
beztu kúna og farin að mæla fram
særingarþulur; áleit Kolbeinn að
hún mundi ætla að bana kúnni, og
rak hana burt með harðri hendi.
Bróðir Guttorms var Erlendur
prestur í Hofteigi, faðir síra Guð-
mundar á Klippstað og ólafs hins
holdsveika, hagyrðings. — Þessa
vísu kvað Guttorinur um síra Guð-
mund bróður sinn:
Starkaður mesti Stórvirksson,
strúkur versii á ginarkvon,
níðingsverk þrjú vann,
sem skriftin skýra kann.
Skömm er að vera verri en
hann. *)
Sonur Guttorms og Guðrúnar var
Guttormur, sem bjó í Klúku í Fljóts-
dal; kona hans var þorbjörg Þor-
steinsdóttir, bónda á Melum í Fljóts-
dal, og var sá Þorsteinn í beinan
karllegg kominn frá Þorsteini jökti,
sem bjó á Brú á Jökuldal, þegar
plágan seinni gekk 1495. Synir
Guttorms í Klúku voru Páll á Árna-
stöðum í Loðmundarfirði, og Eirik-
ur, sem eg hefi áður getið, og sem
bjó á Hrollaugsstöðum og víðar í
Hjaltastaðaþinghá, Páll átti önnu
dóttur Jóns, sem bjó á Bárðarstöð-
um og Hólalandi í Borgarfirði, Árna-
sonar á Brennistöðum, bróður Her-
manns i Firði. Af sonum þeirra er
vestan hafs Pétur Pálsson í Vestur-
Selkirk; var lengi formaður á há-
karlaveiðaskipum við ísland; fór til
Ameríku 1876 og var einn af frum-
byggjum Nýja íslands. Kona Eiriks
Guttormssonar var Jóhanna dóttir
Jóhannesar Jónssonar á Hrollaugs-
stöðum og konu hans Þorbjargar
Jónsdóttir frá Viðastöðum, móður-
systur minnar. Móðir Jóhannesar
hét Margrét dóttir Jakobs Sigurðs-
sonar hins nafnfræga skrifara sem
áður er getið. Móðir Jakobs var
Guðrún dóttir Jakobs prests á Kalfa-
felli Bjarna sonar prests í þingmúla
baðstofuvegginn, og það skoraði
svo leiðinlega í einni kúnni undir
pallinum. Sagt var af einhverjum:
“Það hlýtur einhver að koma hér á
morgun, og það ekki af betri sort-
inni”. “Tæplega í nótt í þessu
veðri”, var svarað. ögmundur Jóns-
son hét bóndi, sem bjó á hálfri jörð-
inni; Sigríður hét kona hans. Sig-
mundur hét sá, sem bjó á hinum
helmingi Bárðarstaða; hjá honum
var fjárgeymslupiltur, sem Sigurður
liét; svo var þar húsmaður, er Gísli
hét. Ein af vinnukonum, sem Ragn-
heiður hét, sat á rúmi með barn
gagnvart einum glugganum. Aftur
heyrðist eitthvað úti fyrir, og jafn-
framt var skotið með afli miklu
broddstaf innum gluggann rétt við
vanga Ragnheiðar, en meiddi hana
þó ekki; var síðan steinum kastað
inn um gluggana, og eitt skifti. sem
oftar, var all-vænum steini kastað
ofan um reykháfinn á eldhúsinu.
Stór pottur var yfir hlóðunum með
sjóðandi graut. Steinninn braút
pottinn og spilti niður grautnum;
en Sigríði húsfreyju sakaði ekki,
sem við grautarsuðuna var. — Á
svona brellum og brögðum gekk í
tvær til þrjár vikor. Haldið var. að
þetta hlyti að vera afturganga, eða
draugur, sem sendur væri til höfuðs
einhverjum eða öllum á heimilinu;
við þetta yrði ekki lengur vært. —
Þessi draugagangur fréttist um all-
ar nærliggjandi sveitir, og var ög-
mundur bóndi að því kominn að
flytja burt af heimili sínu með alt
sitt. Eitt sinn gekk hann yfir að
Árnastöðum, sem stendur hinu meg-
in árinnar, kölluð Fjarðará. Hann
hitti að máli Pál Guttormsson,1 sem
þar bjó þá, og skýrði honum frá
vandræðum sínum. Páll sagði, að
það hlyti að vera maður á heimil-
inu, sem ylli þessum óspektum.
Ögmundur sagði, að það væri ó-
mögulegt, af þvi tröllaukin voða-
•spor hefðu sézt liggja frá Fljóts-
dalshéraði út Bárðarstaðadalinn og
stefna heim að bænum. “Það mun
þó tilfellið”, sagði Páll, “að það er
maður á heimilinu, sem þetta gjör-
ir”. “Kom þú þá yfir um og sann-
aðu það”, sagði ögmundur. Svo Páll
tók byssu sína, sem var ramgjör,
hlóð hana vænu skdti, tók sting-
kerða langan, sem brúkaður var við
hákarlaveiðar. Þannig búinn gekk
hann yfir að Bárðarstöðum; hann
fyrirbauð öllum, að ganga fram úr
baðstofunni, þegar að myrkur væri
komið, og út um hvern þann glugga,
sem skugga kynni að bregða fyrir
að utan, kvaðst hann skjóta. Hann
dvaldi þar þrjár nætur, og bar ekk-
ert á draugagangi. Að því búnu fór
hann heim, og sagði þá, að það væri
Gísli húsmenskumaður og Sigtirður
fjárgeymslupiltur, sem væru draug-
arnir. Þeir voru svo teknir og flutt-
ir til Ketilsstaða á Völlum og af-
hentir Pétri Hafstein sýslurríanni,
seinna amtmanni, föður Hannesar
Hafsteins ráðherra. Hafsteinn var
gott yfirvald og vinsæll af alþýðu.
Sökudólgarnir meðgengu strax, að
þeir hefðu verið draugar og valdið
ósköpunum. En Gísli bar það fram,
að Guðbrandur bóndi á Ormsstöð-
um í Eiðaþinghá hefði komið sér
til þess, að verða draugur. En allir
vissu, að það var ekki satt, því það
fór ekkert misjafnt orð af Guð-
brandi. Hann var sonur Þorláks
prests, eitt sinn á Skinnastað og
Svalbarði, Hallgrímssonar á ósi Ein-
arssonar. Móðir Þorláks prests var
Sigríður, dóttir Þorláks prófasts
Þórarinssonar, skáklsins. En Sigurð-
ur bar það, að Gísli hefði fengið sig,
í fjarveru hans, að halda uppi
prakkaraskapnuni, og gefið sér rós-
rauðan leirdisk fyrir, sem þó var
brotinn, og lofað sér meiru af því-
Gissurssonar. Synir Eiríks Gutt- Hku tagi.
ormssonar og Jóhönnu eru þeir al- !
kunnu bræður hér vestan hafs j Þorpararnir voru í haldi hjá
Stefán , ólafur við Dog Creek Man. j sýslumanni um tíma, og stóð Gísli
Kristján líka í Manitoba og Jóhann- j ávalt á hinu sama, að Guðbrandur
es skólakennari og Sveinn að Foam hefði verið driffjöðrin í öllu sam-
Lake, Sask. allilr eru þeir bræður an- — Svo bar Það t*1 eitt sinn> ÞeS-
gáfaðir. ólafur hét einn, sem er Iar sýslumaður var að yfirheyra
látinn. Hann og Kristján bróðir strákana, að hann vindur sér snögg-
hans voru fyrrum taldir með fær- j ie8a að stofuglugganum, og segir
ustu íslenzku glímumönnum vestan- í n°kkuð hastur um leið og hann leit
hafs. út: “Nú er Guðbrandur kominn og
er býsna brúnaþungur”. Þá segir
Eg hef áður minst á söguna sem
lengi var uppi, um Hjaltastaða
I;
P , að hann tryði þvi„ því hann var
A T f 11 :: ekki hjátrúarfullur. Einar Hálfdán-
I J J •• arson bjó á Hóli eftir föður sinn;
fyrir alskonar * * isfirði> i á> sem kölluð er Lamba
húsmálningu. I! daisá; vaðið á ánni lá fyrir ofan
foss, sem er i ánni, og botninn er .
* D ... „ /t , stórgrýttur; svo þegar áin er i | in„nJ J?« " so™r_“““Í!ess „sem
“ ml D wur •• vexti> er hún ill yfirferðar. Það var
>• DálftiB af bherwin-Wilhama .. sagt> að það hefði ]itið út einsog
• • ht58”ftl1 «eíllr Pr-nt hú8lð y.ð- :: ! Einari hefði verið kipt aftur af hest-
” ar lltan °ginnan.-B rúkið .. inum> þegar hann fé]1 j ána> og svo
t ekkerannað mál en þetta. - ;• tók straumurinn hann óðara ofan
b.-VW húsmáhð málar mest, V fyrir fossinn
endist lengur, og er áferðar- .. ... . TI
Tl Halfdan son Einars bjo a Holi;
hann var karlmenni og fjörmaður,
fen vinhneigður og var oft i drykkju-
túrum. Hann varð úti á milli Víða-
staða og Hóls 1861, og að migminn-
ir skömmu eftir nýár; hann kom
innan af bæjum og var drukkinn
Hann stansaði lítið eitt á
Gísli: “Og er það ekki von, þar sem
, _____. , _ j ea hefi logið þessu öllu upp á mann-
drauginn, og i sambandi þar við f , „ __vT «,
, skepnuna . — En enginn Guðbrand-
ur var kominn.
Svsluniaður dæmdi
j mintist ég á draugagang sem skeði
á Bárðarstöðum í Loðmundarfirði
nær miðri næstliðinni öld. — En Sýslumaður dæmdi Gisla undir
hann druknaði á heimleið af Seyð- Þ.ar var ehkl alvegLrétt farið með tíu vandarhögg og Sigurð undir
soguna. En siðan hefur mér verið fimm. Þannig lauk draugamálinu.
sögð hún greinilega af gömlum
merkum manni sem man viðburð- j Svona lagað hrekkjabragð, sem
þessir óþokkapiltar léku, og sem
uppgötvaði hver falsdraugurinn níerri hafði eyðilagt velferð eins
var. heimilis, sýndi, hvað hræðillega
,, . j spiltur hugsunarháttur einstöku
Sagan um Barðarstaða drauginn. | manna gat verið.
Það var seinni part vetrar vind-
hvinur mikiil í fjöllunum kringuin
Loðmundarfjörðinn. Þykk snjó-
dyngja lág yfir alt. Frost var tals-
vert og snjórenningur til muna, svo
menn og skepnur hnipruðu sig í
húsum inni. Það ýldi og vældi eitt-
hvað ömurlega i skjágluggunum áibezta auglýsing til allra.
Bárðarstöðum, sem er
(Meira).
mjog.
Víðastöðum, og var þá að tala um,
hver það mundi hafa verið,, sem
hefði verið með sér frá Dratthala-
*) Allir, er hafa lesið Fornoldar-
sögur Xorðurlanda, kannast við
stöðum. Þá bjó á Víðastöðum Björn I Starkað Minn gamla.
DUGNAÐUR OG VANDVIRKNI er
AUir
insti bær í j óska eftir góðri undirstöðu undir
Loðmundarfirði vestan megin. Það|hús sín og góðri plastringu. Það
heyrðist þrusk eitthvert fyrir utan | fái8 þið> ef þið ka]li8 á
Bjarna Sveinsson
— Gjörsamlega fullnægjandi ábyrgst —
Reyndu BLUE RIBBON TE. Vér vitum aB þér
muni líka þaS ágætlega. Vissulega selur kaup-
maBurinn þinn það, og ábyrgist aB sé af bestu
tegund.
BLUE DIBBON
selst alstaðar.
Sendið auglýsingu þessa með 25 centum til BLUE RIBBON LTD.
Winnipeg, og yður verður send matreiðslubók. Er þaö bezta matreiðslu
bókin í Vestur Canada.
tSkriíið nafn og utanáskrift greinilega.
Enginn Organgur
ÞAÐ HEYRIST EKKI NEFNT
ÞAR SEN N0TUÐ ER
“MAGNET”
Cream Seperator
því a6 hún “MAGNET” hefur svo marg-
sinnis sýnt yfirburði sína yfir allar aörar
vélar á mjólkurbúum, hvaö snertir aö ná
rjómanum, hvaö hún er stööug og áreiö-
anleg hvaö svo sem fyrir kann aö koma.
“THE SQUARE GEAR” er svo frá-
brugöiö hinum japlandi gormi, aö þaö
eitt er nóg til þess aö fá meömæli allra
hinna beztu maskínu manna. Og hún er
smíöuö í Canada af mönnum, sem hafa
variö allri æfi sinni til þess aö smíöa tól
á mjólkurbú og kollur og kyrnur og hún
Magnet heldur prísnum enn fyrir góöa
þjónustu og mikinn ágóöa.
Heróp vort er “að fullnægja” og það skulum vér gera
hvað sem það kostar.
Vér getum sannaö hvert einasta atriöi yfirburöi “Magnet” skil-
vindunnar yflr aörar vindur í búi þínu, upp á vorn
eigin reikning.
The Petrie Mfg. Co., Ltd.
Verksmiöja og aöalskrifstofa Hamilton, Ont.
Vancouver, Calgary, Regina, Winnipeg, Hamilton, Montreal, St. John
Byrjaðu búskapar reikn-
ing og borgaðu skuldir
þinar með ávísunum.
Það er mikill bagur að
leggja búskapar peninga
þína'inn á Union Banka
Canada, or gefa svo ávísanir
fyrir því sem eytt er. Þú sleppur pá við áhættuna að hafa mikla
peninga á heimili þínu, eða bera pá á pór pegar þú ferð í búðir-
nar, og pegar hver ávísum er dregin út úr bankanum, pá er hún
sama cem kvittun.
L0GAN AVE. 0G SARGENT AVE., ÚTIB0
A. A. WALCOT, Bankastjóri
Undirskrifaður annast um flutn-
ing á þungum og léttum munum
hvar helst sem er í bænum. Með-
höndlun á húsmunum sérstakur
gaumur gefinn. öll verk fljótt og
vel af hendi leyst og verð sanngjarnt
Reynið þetta landar góðir, þá mun-
uð þið sannfærast-
929 Sherbm-ne
Garry 3923.
St., eða
reynið:
4t
Phone 1694
46
JÓN AUSTMANN
512 Toronto St.