Heimskringla - 30.07.1914, Side 6
Bls. 6
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 30. JÚLÍ 1914.
Ljósakveikjarinn
EÐA
Gerti og Truman Flint.
Eftir
MARIA SUSANNA CUMMINGS.
FYRSTl KAPiTULI.
Ljós í myrkri.
Það var komið undir kveld í bænum. Úti á landinu
myndi vera nokkurnveginn bjart svo sem hálfa kl.-
stund, en í götunum var orðið dimt.
A dyraþröskuldi Iélegs kofa sat lítið stúlkubarn og
starði eftirvæntandi augum upp eftir götunni. Þröskuld-
urinn, sem hún sat á, var svo lágur og svo nálægt
gangstéttinni, að beru fæturnar hennar hvíldu á köldu
steinunum. Það var nóvember-kveld og lítilfjörlegt
snjófall hafði gjört göturnar ennþá óþokkalegri en
þær áður voru.
I jöldi fólks gekk framhjá, en enginn veitti litlu
stulkunni eftirtekt, því engin manneskja í heiminum
skeytti neitt um hana. Hún var i lélegum og Ijótum
fötum og útlit hennar veiklulegt. Augu hennar voru
f*8 fogur’ en svo stór í samanburði við horaða
andlitið hennar, að þau óprýddu hana fremur en
pryddu. Ef móðir hennar hefði lifað, þá hefði henni
þótt vænt um þessi augu. Að minsta kosti tíu sinnum
á hyerjum degi var vesalings stúlkunni sagt, að hún
væri Ijotasta og óskikkanlegasta barnið í heiminum.
Enginn elskaði hana og hún elskaði engan. Enginn
reyndi að gleðja hana eða skifta sér af þvi, hvernig
henni leið.
Hún hafði ánægju af þvi, að bíða gamla manns-
ins, sem kveikti á strætis-ljóskerinu fyrir framan hús-
íð, er hun atti heima í, — svo glöð yfir þvi, að sjá hið
geislaruh ljós blakta fyrir vindinum, og þegar hann
gekk hart upp stigann og kveikti Ijósið, þá varð alt
svo fallegt í kringum hana, og þá var líka sem birti í
huga þessa einmana barns. Og enda þótt Ijósakveik-
arinn virtist ekki veita henni eftirtekt, né tala við
nana, fanst henni samt að hann vseri vinur sinn.
Gerti , hrópaði hranaleg rödd inni í húsinu,
“ertu búin að sækja mjólkina?”
Barnið svaraði engu, en stóð upp og hljóp yfir
fyrir húshornið í felur. “Nú, hvað er orðið af stelp-
unni?” sagði konan, sem talað hafði um leið og hún
kom út í dyrnar.
Drengur, sem gekk framhjá og áleit Gertie vera
vondan anda, hló hátt og benti á hornið; gekk svo
leiðar sinnar, leit við og sagði við sjálfan sig: “Já,
nú fær hún það”.
Gerti var dregin út úr felustað sínum og fékk
snoppyng fyrir hið ljóta útlit sitt, og annan fyrir ó-
þægð sína, því hún gretti sig framan í Nan Grant; og
svo var hún rekin af síað eftir mjólkinni.
Hún flýtti sér eftir megni, því hún var hrædd um
að ljósakveikjarinn yrði kominn og farinn, þegar hún
kæmi aftur. Þegar hún kom aftur, var ljósakveikjar-
inn að ganga upp stigann til að kveikja, og var henni
það mikið ánægjuefni. Hún nam staðar við neðri
enda stigans og var svo glöð yfir að sjá ljósið, að hún
veitti því ekki eftirtekt að hann kom ofan, og þar af
leiðandi rak hann sig á hana, svo hún datt. “Heyrðu,
barnið mitt, hvernig orsakaðist þetta?” sagði hann og
laut niður um leið til að hjálpa henni á fætur. Hún
var staðin upp á einu augnabliki. Hún var vön við
hrindingar og högg, svo að lítilfjörlegar skeinur stóð
henni á sama um. En — mjólkin var eyðilögð. “Nei,
þetta er slæmt. Hvað ætli mamma segi?” Þegar hann
leit í andlit hennar, varð honum að orði: “Nei, þetta
er undarlegt andlit; alveg einsog á svartálfi”. En þeg-
ar hann sá, hve hnuggin hún starði á mjólkina, sem
helst hafði niður, sagði hann vingjarnlega: “Hertu
upp hugann, litla trippið mitt. Vertu ekki hrædd, þó
hún rífist dálítið. Eg skal gefa þér nokkuð á morgun,
sem eg veit þér líkar, þú ert svo einmanaleg. Ef kerl-
ingin ilskast út af þessu, segðu henni þá, að eg hafi
hrint þér. — Hefirðu ekki meitt þig? Hvað varstu að
gjöra við stigann minn?”
“Eg var að horfa á þig kveikja”, sagði Gerti, “og
eg hefi ekki meitt mig minstu ögn; en mér þykir
slæmt, að hafa helt niður mjólkinni”.
Á þessu augnabliki kom Nan Grant út í dyrnar og
sá, hvað skeð hafði. Hún tók barnið, barði það og
skahimaði og dró það það inn i húsið. Ljósakveikj-
arinn reyndi að stilla til friðar, en hún skelti hurðinni
aftur rétt við andlit hans. Gerti var hegnt voðalega
hart og neitað um vanalegu brauðmolana sína. Svo
var hún lokuð inni í þakherberginu til að dvelja þar
um nóttina.
Vesalings litla stúlkan. Móðir hennar var dáin
fyrir fimm árum, og eftir það hafði hún verið liðin
þarna, ekki af því að Ben Grant hafði beðið konu sina
um það við burtför sína — hann var búinn að vera svo
lengi burtu, að enginn bjóst við að hann kæmi aftur —
heldur af því, að Nan hafði sínar eigin ástæður; og
enda þótt hún skoðaði Gerti, sem stórkostlega þján-
ingu, vildi hún ekki reyna að koma henni fyrir hjá
öðrum.
Þegar Gerti vissi, að hún var lokuð inni í þessu
dimma herbergi — hún var bæði hrædd og hataði
myrkrið — stappaði hún á gólfið og orgaði af öllu
megni; reyndi að brjóta hurðina og kallaði: “Eg
hata þig, Nan Grant; ganíla Nan Grant, eg hata þig”.
Þegar enginn kom til hennar, varð hún rólegri, lagð-
ist niður á harða bólið og faldi andlitið í höndum sín-
um og grét, — grét ensog hjarta hennar ætlaði að
springa,— grét þangað til hún gat ekki meira. Smátt
og smátt kyrðist hún, tók hendurnar frá andlitinu og
nuggaði þeim saman af ákafa og leit upp í litla glugg-
ann. Ekkert tungl sá hún; en hún sá bjarta stjörnu,
sem stráði geislum sínum svo vingjarnlega til hennar.
Henni fanst hún aldrei hafa séð neitt svo inndælt.
Hún hafði oft verið úti og séð stjörnubjartan himin og
veitt stjörnum þeim nákvæma eftirtekt; en þessi ein-
mana, bjarta stjarna virtist segja við hana: “Gerti,
Gerti, vesalings litla Gertie”. — Henni virtist hún eins
og vingjarnlegt andlit, sem hún hefði einhverntíma séð
eða dreymt um. Alt í einu spurði hún sjálfa sig:
“Hver hefir kveikt á henni? Einhver hefir gjört það.
Einhver góður maður hefir gjört það. En hvernig gat
hann komist svona hátt upp?” — Meðan hún var að
furða sig á hver hefði kveikt á stjörnunni, sofnaði hún.
Vesalings litla, óupplýsta, myrkri hulda sál. Hver
á að fræða þig? Þú ert guðs barn, litla stúlka. Krist-
ur dó fyrir þig. Vill hann ekki senda einhvern mann
eða engil til að kveikja ljósið, sem aldrei sloknar, sem
lýsir um alla eilífð?
Um morguninn vaknaði Gerti ekki einsog þau
börn, sem vakin eru með glaðri raust eða móðurkossi,
sem hafa liprar og vingjarnlegar hendur til að klæða
þau í fötin, og vita, að góður morgunverður bíður
þeirra. Gerti heyrði ruddalegar raddir niðri. Sonur
húsmóðurinnar og tveir aðrir menn, sem áttu þar
heima, voru komnir til að neyta morgunverðar og eina
tækifærið fyrir Gerti til að fá nokkuð að borða, var
að vera til staðar, þegar þeir höfðu lokið máltíð sinni
og ná í eitthvað af leifunum, ef Nan var svo góðviljuð
að fleygja þeim til hennar. Hún læddíst ofan stigann,
beið þangað til þeir voru farnir og þaut svo inn.
Hún var ekki boðin velkomin. Nan sagði henni
að leggja niður þenna ólundarsvip, borða morgun-
verð, — ef hún vildi— vera ekki á vegi fyrir sér og
koma ekki of nálægt eldinum, þar sem hún væri að
vinna annars skyldi hún fá harðari hegningu en þá,
sem hún hafði fengið i gærkveldi. Gerti bjóst ekki
við betri viðtökum og var mjög glöð yfir þvi, að fá
ofurlítið af þessum lélega mat; gleypti hann með mik-
illi græðgi, tók svo húfu sína og fór í rifna yfirhöfn,
sem móðir hennar hafði gefið henni, og hljóp út.
Bak við hús Nan Grants var stórt opið svæði, sem
notað var til að geyma i kola- og viðarforða. Hins
vegar við það var bryggjan og höfnin með óhreinu
vatni. Gerti gat fundið marga leikfélaga á þessum
stað, og stundum gjörði hún það líka, þvi öll börnin,
piltar og stúlkur, voru jafn óhrein og illa búin eins
og hún sjálf; en ekki oft, því þau höfðu komið sér
saman um, að vera á móti henni. Fátæk og voluð
einsog þau voru, vissu þau að Gerti var enn meira
vanrækt og misþyrmt. Þau höfðu oft séð henni
hegnt og daglega heyrt hana sneypta fyrir það, hve
ljót og óskikkanleg hún væri og að hún hefði enga
heimild til að vera á nokkurs manns heimili. Þar af
leiðandi álitu þau sig æðri verur en hana, og fyrir-
litu hina litlu og yfirgefnu veru. Þetta hefði nú má-
ske ekki átt sér stað, ef Gerti hefði oftar verið með
þeim og verið vingjarnleg við þau; en meðan móðir
hennar lifði, hafði hún forðast að láta Gerti uingang-
ast þess konar börn; og svo var eitthvað í eðli henn-
ar, sem gjörði það að verkum, að hún hafði viðbjóð
á hinum dýrslegu leikjum þeirra. Hún umgekst þau
þvi sjaldan, og það var að eins með háðsyrðum sín-
um, sem þau særðu tilfinningar hennar. Enginn
einn þorði að reyna afl sitt við hana; bráðlynd, ill-
virk og hrekkvís einsog hún var, hafði hún bakað sér
fyrirlitningu og hatur. Einu sinni hafði heill hópur
komið sér saman um, að móðga hana, en Nan Grant
kom til þeirra í sömu svifum og ein af stúlkunum
kastaði skónum hennar Gerti út í höfnina. Ljtla
stúlkan fékk vel útilátna snoppunga og hinir krakk
arnir voru reknir á flótta. Eftir þetta hafði Gerti
aldrei samstæða skó. 1 eitt skifti að minsta kosti
hafði Nan þó gjört henni greiða, og börnin létu hana
í friði.
Það var á sólbjörtum en köldum degi, sem Gerti
leitaði skjóls í borðahlaða nálægt bryggjunni. Hún
hafði oft leitað þangað áður og það var eini staðurinn
þar sem hún gat verið ótrufluð. Þarna sat þetta
einmanalega barn og hugsaði um sorgir sínar, þján-
ingar og ljóta útlit. Stundum grét hún timunum
saman. Við og við lá betur á henni og þótti þá gam
an að horfa á sjómennina, sem unnu á skipum sín
um eða réru litlum bátum fram og aftur. Sólskinið
var hlýtt og yndislegt og raddir mannanna svo glað
legar, að Gerti litla gleymdi alveg sorgum sinum.
En það var áliðið sumars og sjómennirnir sigldu
skipum sínum til annara hafna. Um nokkra daga
hafði verið kalt og hvast, svo Gerti hafði haldið sig
inni, en nú leitaði hún í skjól sitt, og sér til ánægju
fann hún, að sólskinið hafði þurkað borðin, svo vel,
að þau verndu fætur hennar. Hugsanir hennar þutu
til og frá, unz þær að síðustu dvöldu við hið vin-
gjarnlega augntillit og rödd ljósakveikjarans. Nú
fyrst kom henni til hugar, að hann hafði lofað, að
færa henni eitthvað, þegar hann kæmi næst. Hún
gat varla ímyndað sér, að hann myndi eftir þessu
loforði sínu, og þó — hann var svo hryggur, þegar
hún datt.
HvaS ætlaði hann að gefa henni? ó, að það yrði
skór. — Hann hefir máske ekki séð, að hún var ber-
fætt. Gerti ásetti sér, að sækja mjólkina nógu tím-
anlega, til þess að hún gæti verið til staðar, þegar
hann kæmi að kveikja ljósið. Dagurinn var langur,
en loks kom kveldið og með því Truman Flint. Það
var nafn ljósakveikjarans. Gerti var til staðar og
gætti þess vel, að Nan Grant sæi hana ekki. Tru var
seint á ferð þetta kveld, og þurfti að flýta sér. Hann
hafði að eins tima til að tala nokkur orð við Gerti,
en það voru orð, sem lýstu góðum og tryggum hugs-
unarhætti. Hann lagi stóru, sótugu hendina sína á
höfuð hennar og sagði það hryggja sig, að hún varð
fyrir baga, og bætti svo við: “Það var veruleg
skömm; hún verðskuldaði ekki hegningu. Ogaltþetta
af því, að ofurlítið af mjólk heltist niður, sem var
óhapp, en ekki illvirki. En”, sagði hann ennfremur
um leið og hann stakk hendinni niður í einn stóra
vasann, “hér er lítil skepna, sem eg lofaði þér. —
Gættu hennar vel. Vertu ekki slæm við hana, og ef
hún líkist mömmu sinni, verðið þið góðir vinir áður
langt líður. Vertu sæl, litla stúlkan mín”. Svo lagði
hann stigann á bak sér og staulaðist af stað, en Gerti
stóð eftir með litinn kattarunga í höndunum.
Gerti varð svo hissa á því, að hafa lifandi ketling
milli handa sinna, svo ólíkt því, sem hún hafði búist
við, að hún vissi ekki, hvað hún átti að gjöra við
hann. Þar í nágrenninu voru margir kettir, en þeir
voru allir einsog hún, — hræddir og illa með þá far-
ið. Hún hafði oft kent í brjósti um þá, en aldrei
dirfst að bera neinn heim, þar eð hún vissi, að sér
sjálfri var ekki unnað fæðis og skjóls og þá liklega
ekki heldur eftirlætisgoðum sínum. Fyrsta hugsun
hennar var, að fleygja ketlingnum og lofa honum að
fara hvert sem hann vildi. En meðan hún stóð þann-
ig efandi, fór hann að biðja fyrir sig á sinn hátt.
Hann var utan við sig eftir hina löngu ferð í vasa
Trus og skreið nú eftir handlegg hennar upp að
hálsinum; þar settist hann og virtist biðja hana að
annast sig. Gerti gleymdi alveg ilsku Nan Grants,
tók ketlinginn og þrýsti honum að hjarta sínu, og
ásetti sér að elska hann og fæða hann, án þess Nan
Grant fengi að sjá hann.
Það er ekki unt að lýsa því með orðum, hve vænt
henni þótti um ketlinginn. Bráðlyndi hennar hafði
hingað til komið í Ijós i ljótum orðum, þrjózku og
hatri. En í sál hennar var lind ástar og viðkvæmni,
sem að eins beið eftir tækifæri til að geta runnið.
Persaland.
(Niðurlag)
En Shahinn fór stöðugt hnign-
andi að heilsu og var krónprinsinn
Muhamad Ali Mirza kallaður frá
Tabriz, og það var hann, sem skrif-
aði undir stjórnarskrána 30. des.
1906, og 19. janúar 1907 tók hann
við völdum, því að þá var Shahinn
dáinn, og hafði þó áður skrifað
undir stjórnarskrána.
Meðan hinn nýi Shah var krón-
prins hafði hann stutt hreyfingu
stjórnbótarmanna, en nú, þegar
hann var shah eður keisari orðinn,
þá var honum meinilla við stjórn-
arbótina og alla þá, sem hana
studdu.
Frelsisvinir og umbótamenn kall-
ast þar “Majlis”, og nú vildi hinn
nýi keisari helzt ekki sjá þá.
Endurbætur þær, sem þeir héldu
fram, voru þessar:
1. Að forðast að taka ný lán hjá
Englandi og Rússlandi.
2. Að ákveða tekjur keisarans, til
þess að koma í veg fyrir óþarfa
eyðslu og takmarkalausan aust-
ur á þessuin litlu tekjum rikisins.
3. Að koma á fót þjóðbanka, sem
væri alveg óháður enskum og
rússneskum bönkum.
4. Að afnema ósið þann, að leigja
út hin ýmsu fylki til hæstbjóð-
anda, einsog áður hafði gjört
verið. En meðan það var gjört,
var landið pínt og rúið svo að
fádæmum sætti.
5. Að losna við hina útlendu toll-
embættismenn, — einkuin þó
Mr. Naus, sein öllum var illa við.
Þeir fengu leyfið til þess að setja
bankann á stofn 1. febr. 1907, og 10.
febr. sama ár var keisari neyddur
til þess, að láta Naus fara, og smátt
og smátt fengu þeir komið fram öll-
um sínuin kröfum. En þjóðbankinn
féll af framangreindum ástæðum;
keisari vildi seilast í budduna, og
ríkir menn vildu ekki styðja bank-
ann.
Nú fór fregnin um þessa nýju
stjórn sem hvalsaga um landið. En
svo fór það að kvisast um borgir
og bæi og hjá hjarðmannaflokkum
og fjallabúum, að eiginlega væri nú
enginn keisari lengur, og þá fóru
fjallabúarnir að halda, að hver og
einn mætti lifa sem hann lysti, og
ræningjarnir og þjófarnir fóru að
hafa sig á kreik um alt landið, og nú
voru menn rændir í hópatali á al-
faravegum á hverjum einasta degi
ársins. Það þóttist hver og einn
vera keisari þá. Fylkisstjórarnir áttu
reyndar að hefta þetta hver í sinu
fylki, en þeir höfðu enga hermenn
og enga peninga til að borga þeim,
eða kaupa vopn fyrir, og svo varð
þá þetta yndislega og góða land
paradis þjófanna og ræningjanna,
eitt af beztu löndum heimsins, sem
hefir kannske verið ein af hinum
fyrstu vöggum mannkynsins. Og
vissulega voru þar ríki stofnuð,
borgir bygðar, lög samin, skólar
stofnaðir — löngu fyrir daga Nóo
gamla. Konungatal þeirra nær langt
aftur fyrir Adam. — Og nú, þegar
þeir í fyrsta sinni fóru að berjast
fyrir borgaralegum réttindum og
borgaralegu frelsi og umbótum á
stjórnarfari, — þá varð landið um
tíma að minsta kosti, — að sann-
kölluðu ræningjabæli.
Innanrikis vandræðin fóru ein-
Iægt vaxandi. Rússar höfðu styrkt
keisara með peningum i baráttu
hans við uinbótamennina, og þeir
gátu ekki þolað, að það gengi svona
til þar. Það eyðilagði verzlun rúss-
neskra kaupmanna í landinu og lífi
Þeirra var sí og æ hætta búin, og
sögðust þeir neyðast til þess að sker
ast í leikinn, ef ekki væri bráðlega
að gjört. Tyrkir sendu herlið til
norðvesturhéraðanna í fjöllunum
Urmiya og sveitanna þar i kring,
og tóku jafnvel sum af héruðum
þessum og slógu eign sinni á. Ein-
lægt varð peningaskorturinn meiri
og meiri, og enginn var herinn, og
þessir fáu hermenn, sem til voru,
höfðu ekki fengið neina borgun í
marga mánuði, og skattarnir voru
ekki greiddir. Þjóðbankinn var
fallilnn, og lánið, sem þeir fengu lof-
orð um hjá Þjóðverjum, fór alveg
út um þúfur. Eina vonin um, að
geta fengið peninga, var sú, að fá
nú enn lán frá Rússlandi, og það
reyndi hinn nýi ráðgjafi keisarans
og var vel á veg kominn með það,
er hann var skotinn af gömlum
kunningja, en seinna fjandmanni
sínum, Abbas Aga.
Tók þá Rússa-vinur einn að sér,
að mynda nýtt ráðaneyti, og voru í
því hirðinenn keisara og leigutó}.
Þegar keisarinn kom til ríkis hafði
hann svarið það á kóraninum, að
halda uppi stjórnarskránni; en það
er sitt hvað að sverja eiða og halda
þá. Þann 15. desember sauð upp úr
pottinum. Ráðgjafarnir voru búnir
að segja af sér, en keisari kallaði þá
alla á fund í höll sinni. Og þar lét
hann taka fastan forsætisráðherr-
ann, Nazir id Mulk, og hefði víst
iila farið fyrir honum, ef ekki hefði
brezki sendiherrann komið til sög-
unnar, gengið í milli og fengið
hann lausan látinn. Fór hann svo
þegar úr landi til Norðurálfunnar.
Nú hófst opinber styrjöld á móti
umbótainönnunum, er nefnast þar
Majlis, einsog áður er sagt. Alt var
í uppnámi i borginni Teheran, og
voru þar herlög látin gilda. En
þetta stóð ekki nema nokkra daga.
Fólkið varði þinghúsið. Hermenn
keisarans voru ekki annað en ill-
þýði og ruslaralýður. Þinghúsinu
gátu þeir ekki náð, en þeir óðu yfir
Gyðinga-bæinn og rændu hann og
rupluðu. Loks var þó keisarinn til
þess neyddur, að láta undan, og
reka frá sér ráðgjafa sina, sem
mestu Lokaráðin höfðu ráðið hon-
um.
Flótti keisara.
Árið 1908 vissu menn ekki fyrri
en keisari var flúinn burtu úr höfuð
borg sinni, og varð mönnum bilt
við. Hann safnaði þá að sér öllum
hermönnum og kósökkum sem
hann gat, og lét handtaka fjölda af
hinum helztu mönnuin og hélt þeiin
í járnum og vildi ekki lausa láta.
Var rússneskur maður, ofursti Liak-
hoff, gjörður yfirhöfðingi her-
mannanna.
Var honum svo skipað, að láta
alþýðu alla leggja niður vopn sín,
og honum fól keisari að finna um-
bótamennina, sem með 10,000
manns héldu þinghúsinu og muster-
inu, og skyldi hann hóta þeim öllu
illu, og að skotið myndi á þá með
fallbyssum, ef þeir skildust ekki að
og létu af hendi hús þessi.
En nú þutu allir upp til handa
og fóta, og vopnuðust menn öllum
þeim vopnum, sem til voru. Búðun-
um og gistihöllunuin var lokað; upp-
hlaup voru hafin um alla borgina
og fóru nú sakir að verða skugga-
legar fyrir keisara. En frá Tabriz
kom þá riddarasveit, undir for-
ustu Rashid ul Mulk og Sattar Khan,
til þess að hjálpa umbótamönnun-
um, sem vildu halda uppi stjórnar-
skránni.
Þann 23. júni kom Liakhoff of-
ursti með hersveit manna og skip-
aði þeim utan um þinghúsið ' með
fallbyssum, og fóru þeir brátt að
skjóta á þinghúsið og musterið, er
þar var rétt við.
Alt til þessa höfðu þjóðvalds-
sinnar ekki hleypt úr byssu, því að
þeir vonuðu einlægt, að málin
semdust með friði. En nú tóku þeir
að skjóta á móti og þögnuðu þá
margar fallbyssur keisarasinna. En
svo fóru þeir að skjóta á þá járna-
rusli úr fallbyssunum og gjörðu
þeim harðar hriðir kúlna, sem
þinghúsið vörðu. Féll þá fjöldi
þeirra, þvi að þeir stóðu í þéttum
hnöppum, og i 6 klukkustundir
stóð hún látlaust þessi hríð. Var þá
þinghúsið og musterið alt brotið
og í rústum. Og aldrei hafa menn
orðið þess vísari, hvað margir
menn féllu i slag þessum. En fjöldi
var tekinn og í járn settur og mjög
margir af formönnum þjóðveldis-
sinna voru af lifi teknir, — flestir
þeirra kyrktir.
(Framhald á 7. síSu)
EINA ÍSLENZKA HOÐABOÐIN I WINNIPEG
Kaupa og verzla meS húðir, geerur, og allar tegundir af dýraskinnum, mark
aðs gengum. Líka með ull og Se«eca Roots, m.fl. Borgar hæðsta verð.
fljót afgreiðsla.
J. Henderson & Co... Phone Garry 2590..236 King St., Winnipeg
KOMIÐ OG VERZLIÐ VIÐ OSS
ÞEGAR ÞÉR ÞURFIÐ
Builders Harðvöru
Finishing Harðvöru
Mál
Olía
Construction Harðvöru
Smíðatól og Handyðnar
Verkfœrum
Varnish
Sýnis herbergi vor eru hin best búin í allri borginni
svo þér eigið sem hægaet með að velja.
Aikenhead Clark Hardware Co.Ltd.
Wholesale and Retail Hardware Merchants
BOYD BUILDING c^d“n PHONES MAIN 7150-1
MANITOBA.
Mjög vaxandi athygli er
þessu íylki nú veitt al ný-
komendum, sem fiytja til bú-
festu í Vestur-Canada.
þ#tta sýna skýrslur akuri
yrkju og innflutninga deildar
fylkisins og skýrslur innan-f
ríkisdeildar ríkisins.
Skýrslur frá járnbrautaféi
lögunum sýna einnig,- aö
margir flytja nú á áður 6-»
tekin lönd með fram braut-
um þeirra.
Sannleikurinn er, að yfir-
burðir Manitoba eru einlægt
að ná víBtækari viöurkenn*
ingu.
Hin ágætu lönd lylkisins,
óviöjafnanlegar járnbrauta<
samgöngur, nálægö þess vi8
beztu markaöi, þess ágsetu
mentaskilyröi og lækkandi
flutningskostnaöur — eru hin
eölilegu aödráttaröfl, *em ár,
lega hvetja mikinn fjölda
fólks til aÖ setjast aö hér I
fylkinu ; og þegar fólkiö sezt
aö á búlöndum, þá aukast
og þroskast aÖrir atvinnui
vegir í tilsvarandi hlutföllum
SkrifiÖ kunningjum yÖar — segiö þeim aö taka sér bóllestn I
Happasæln Manitoba.
Skrifiö eftir frekari upplýsingum til a
JOS. BXJRKE, Industrial Bureau, Winnipeg, Manitoba.
JAS. IIARTNE Y, 77 York Slreet, Toronto, Ontario.
J. F. TENNANT. Qretna, Manitoba.
W. W. UNSWORTII, Emerson, Manitoba;
S. A. BEDFORD,
Deputy Minnister of Agriculiare,
Winnipeg, Mcmitoba,
I