Heimskringla - 28.10.1915, Blaðsíða 2
BLS. 2
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 28. OKT. 1915.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI.
Samsæti var Matth. Jochums-
syni
lialdið í heiðurssskyni af stúdenta-
félaginu sunnudagskveldið 12. sept,
og frú hans, sem dvalið hafa í-Rvik
um tíma, en fara norður á Akureyri.
Voru bekkir fullskipaðir og urðu
margir frá að hverfa, sakir rúm-
skorts, þeir er með návist sinni
vildu heiðrað hafa skáldjöfur.
Var honum flutt kvaeði það, er hér
fer á eftir, og ort hafði Guðm. góð-
skáld Guðmundsson; en aðalræðuna
fyrir minni skáldsins, orðsnjalt er-
indi, flutti Árni bókavörður Pálsson
og síðar mintist Hannes Hafsteinn
Matthíasar og hafði yfir gamalt
kvæði, er Matthías hafði sent hon-
um fyrir rúmum 30 árum, en hvergi
hefir birzt. Átti að vera nokkurs-
konar tileinkunarljóð framan við
kvæðabók hans. Indriði Einarsson
mælti fyrir minni frú Guðrúnar
konu Matthiasar og hélt aðra ræðu
fyrir “lárviðarskáldinu”; en síðar
um kveldið bað ólafur Björnsson
samkomuna minnast Steingríms sál.
Thorsteinssonar. er svo lengi hafði
verið bundinn vináttu og skáldbróð-
urböndum við heiðursgestinn. ,
Síra Matthías hélt margar ræður,
og er sem hann fram á fjörelliár sín
hafi varðveitt sama ótæmandi fjár-
sjóð andrikis, orðsnildar og gaman-
semi.
Þá er borð voru upp tekin, sátu
sátu menn all-lengi saman við söng
og annan gleðskap.
Kvæði G. G.:
IJeill ])ér, sem brennir hjörtun eldi
.. Ijóða,
heill þér, sem kennir trií á mátt hins
. .góða,
þökk skal þér alla þjóðarævi gjalla,
þjóðskáldið snjalla.
Heilagur andi hárrar, bjartrar tri'iar
hjörtnn i landi tengir, lithöf bniar,-
eilifa þrenning: elskn, speki, menn-
ing,
ójnar þin kenning.
Enn hefir elli ekki glöpum valdið,—
vel hefir velli víkingurinn haldið,—
enn skin und hvarmi œskulogans
bjarmi,
ólgar i barmi.
Gult er mcð góðum gleði-kvöld að
að sitja,
Ijós þin í Ijóðum löngum dróttar ..
vitja,
liða’ yfir arni, Igsa hverju barni
leið ofar hjarni.
Sit þú með briiði sœmdar-ríkri lengi,
söngvarinn priiði, enn í frægð og
gengil
Hástilta knúði hagar með oss engi
hörpunnar slrengi.
BifreiíSaslys
vildi til í Reykjavík með þeim hætti,
að drengur einn, Sigurður Sigurðs-
cn frá Njálsgötu 49 B, hengdi sig
aftan í bifreið, en féll niður og lá i
öngviti. Slasaðist hann töluvert.
Síldveiðiskipin
að norðan eru nú sem óðast að koma
til Rvíkur. 17. sept. lágu 4 botnvörp-
ungar á höfninni nýkomnir. Hæstur
allra um síldarafla hefir orðið Maí
(skipstjóri Björn ólafsson), sem afl-
aði 9000 tunnur.
Það vakti athygli, að eigi sást nýji
fáninn íslenzki, nema á einum botn-
vörpunganna. Til hvers höfum vér
cignast löggiltan fána, ef vér eigi
notum hann svo vítt sein vér getum,
— segir ísafold.
íslenzki fáninn.
Það bar til fyrir skömmu, að vélbát-
ur, sem var á leið frá Noregi til ís-
lands, var höndlaður af brezku her-
.skipi skamt frá Shetlandseyjum og
hafður inn til Lerwick. Slíkt skeð-
ur að vísu oft á sæ á þessum ófrið-
artímum. En hitt hefir ekki hent
fyrr, að lagt hafi verið hald á ís-
lenzkt skip fyrir þá sök, sem að
þessu sinni var uppi látin. En hún
var sú, að skipið sigldi undir fölsku
flaggi. Hafði vélbáturinn uppi Dana-
fána, en það þótti Bretanum osvinna
þar sem hann væri frá íslandi og
kunnugt orðið, að vér höfðum feng-
ið sérstakan fána löggiltan.
íslenzkt smjör
er nú selt í Reykjavík fyrir 1 krónu
15 au. pundið.
Fálkinn
kom að norðan tii Rvíkur um miðj-
an september. Ekki hefir heyrst,
að hann hafi sjálfur handsamað nein
skip þar nyrðra fyrir ólöglega veiði,
en rannsakað hafði hann kærur, er
strandvarnarbátur þeirra Eyfirð-
inga bar. á ein 9 útlend skip, og
reyndust þær allar réttar. — óeirð-
ir miklar höfðu verið á Siglufirði
um tima meðan Fálkinn var þar, og
setti hann menn á land til að hjálpa
til að halda uppi reglu.
Gísli Jónsson málari
er nýlega kominn til Reykjavíkur úr
ferðalagi um Norðurland; hefir
hann málað myhdir af ýmsum stöð-
um við Eyjafjörð, Fnjóskadal, öxna-
dal (þar á rneðal frá Hrauni, þar
sem Jónas Hallgrímsson var fæddur
og af Hraundröngum), Norðurárdal
í Skagafirði, Langadal, Vatnsdals-
hólum, Hörgárdal, úr Borgarfirði
og úr Botnsdal.
Þokusamt þótti Gísla fyrir norð-
an á meðan hann var i þessari ferð
og spilti það svo fyrir, að hann gat
oft ekki málað myndir frá þeim stöð
um„ er hann hafði kosið sér; þó
hefir hann víða náð góðri fjallsýn.
fögru og einkennilegu landslagi á
myndir sínar. Er vonandi, að hann
gefi almenningi kost á, að sjá mál-
verk þessi og önnur, er hann hefir
málað í sumar, með því að halda
'sýningu á þeim í haust.—(Visir).
Peningaflutningur.
'Það hefir frézt að norðan af Akur-
teyri, að báðir bankarnir hér hafi
! nú í endalok síldarvertíðar sent
menn með peninga landveg til úti-
búanna á Akureyri. Er sagt að Val-
týr Stefánsson (skólameistara) hafi
farið með frá Islendsbanka og reitt
70,000 krónur; en Guðm. Loftsson
fyrir Landsbankann með 100,000
I krónur.
Druknun.
I Maður úr Reykjavik, Bjarni Guð-
mundsson að nafni, ökumaður af
Baronsstíg, ætlaði í Hafravatnsrétt-
ir 20. sept.; hafði hann verið all-
drukkinn og riðið út í vatnið. Dag-
inn eftir fanst hestur hans og hund-
j ur dauðir í vatninu; voru beizlis-
taumarnir flæktir um fætur hests-
i ins. Líkið ekki fundist, þegar síðast
fréttist.
2000 króna nýr hlutur
var þegar 15. sept. tekinn i Eim-
skipafélaginu af einni verzlun R.-
vikur (L. G. Lúðvígssonar skóverzl-
un).
Verð á íslenzkum sjávarafurÖ-
um erlendis.
I Saltfiskur. Þurfiskur afhentur i
Kaupmannahöfn; hnakkakýldur stór
fiskur 135—140 kr. Afhnakkaður
! i.iillifiskur 105 kr.; ýsa 95 kr.; La-
j brador 93—95 kr.; langa 110—120
kr.; upsi 85 kr.; keila 85 kr. Óverk-
aður stórfiskur 80 kr.; óverkaður
smáfiskur 70—72 kr.
Spánar- og /taliufiskur, fob. ís-
iand, matinn af hinum lögskipuðu
fiskimatsmönnum: Stórfiskur 135
kr.; Smáfiskur 110 kr.; ýsa 95 kr.;
Labrador fiskur 93—95 kr.
Lýsi. Bezta ljóst þorskalýsi, hver
105 kíló, alt að 140 kr., og brúnt 130
kr.
Sild. Sem stendur er verðið 38—
40 aura kiló nettó.
Selskinn, 7—8 kr. hvert.
Sundmagar. Engin eftirspurn, á-
ætlað verð 1.25 kílóið.
Sumarafli þilskipa við Faxaflóa.
Reykjavíkurskipin:
Ása................ 38,000
Björgvin ...........22,000
Sigurfari.......... 22,000
Hafsteinn ......... 21,000
Keflavik .......... 21,000
Milli ............. 18,000
Seagull ............21,000
Sæborg........... 21,000
Valtýr ............ 26,000
Hákon ............. 26,000
Sigríður........... 35,000
Ester.............. 28,000
Skarphéðinn.........13,500
Hafnarfjarðarskipin:
Surprice........... 27,500
Acorn ............. 24,000
Guðrún............. 23,000
Reaper............. 16,000
Mannalát.
Mánudaginn 30. ágúst síðastliðinn
lézt að heimili sínu, Gvendareyjum
á Breiðafirði, Salbjörg Jónsdóttir,
kona Guðmundar Guðmundssonar,
óðalsbónda í Gvendareyjum, fædd 7.
agúst 1852.
V erzlunarskólinn.
Skólastjóri við hann er orðinn Jón
Sívertsen kaupm., í stað Ó. G. Eyj-
ólfssonar, er sagði starfinu lausu í
vor.
Fiskkaup og bæjarstjórnin.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir gjört
samning við útgjörðarmenn botn-
vörpungsins Marz að kaupa afla
hans fyrst um sinn til að selja bæj-
arbúum. Búist er við, að verðið á
fiskinum verði frá 8 og upp í 15 au.
(stór lúða). Þetta ætti að verða góð
matarhjálp fyrir bæinn, ef veiðin
gengur ba-rilega.
Skip landföst í Reykjavík.
Snemma í september var fyrsta haf-
skipabryggja hinnar nýju hafnar-
gjörðar fullbúin — sú, sem ætluð er
kolaskipum eftirleiðis — við Batt-
erís-garðinn.
Prófastsréttur.
Verður skipaður að tilhlutun stjórn-
arráðsins til að rannsaka og dæma
kærurnar á sira Jónmund Halldórs-
son. Sýslumaður Sunnmýlinga mun
fá rannsóknina í sinar hendur.
Guðmundi Finnbogasyni,
dr. phil., hefir verið boðin staða við
Jóns Bjarnasonar skólann í Winni-
peg, í símskeyti er hingað barst 11.
sept., segir Isafold.
Nýr vélbátur,
30 smálestir að stærð, smíðaður í
Svíþjóð fyrir eigendur hér, er ný-
kominn, og er skipstjórinn Ingólfur
Jónsson. Hann fór frá Lysekil í Sví-
þjóð á tæpum 10 dögum. Báturinn
heitir ‘Svea’.
Vegleg gjöf til Heilsuhælisins—
200 krónur — hefir Guðm. Björnsyni
landlæknir borist frá Jóhanni Jóns-
syni á Geithellum i Suður-Múla-
sýslu.
“Bifröst”
heitir vélbátur, sem ísfirðingar létu
smíða i Haugasundi í Noregi í sum-
ar og kom hann til Revkjavíkur um
miðjan september á leið frá Noregi
til Isafjarðar, en hafði verið nálega
mánuð á leiðinni. Hann var tekinn
af ensku herskipi í hafi og fluttur til
I.erwick og tafðist þar ferð hans í
11 daga. Og aftur var hann stöðvað-
ur af ensku herskipi sunnan við
landið, en þó látinn fara ferða
sinna. Báturinn er 30 smálestir og
sagður vel vandaður.
Prestvígsla
fór fram a Hólum í Hjaltadal sunnu-
dcginn 12. septeniber, og var Her-
rnann Hjartarson vigður aðstoðar-
prestur til sira Jóns Halldórssonar á
Sauðanesi af Geir Sæmundssyni
vigslubiskupi. 8 prestar voru við-
staddir og 500 manns alls. Prest-
’ ígsla hefir eku. farið fram á Hól-
im síðan 1795 fyr en þetta. En Geir
vígslubiskup var vigður þar fyrir 5
árum.
Loftskeytastöð í Reykjavík.
Stjórninni er nú veitt heimild til,
að reisa loftskeytastöð i Reykjavík,
sem næg yrði fyrir skip kringum
landið.
Síldafli íslenzku skipeuina.
Hér fer á eftir skrá yfir sildarafla
þann, sem íslenzku skipin hafa feng-
ið Norðanlands i sumar. Höfum vér
hana eftir mjög ábyggilegum manni,
sem dvalið hefir við úrgjörð á Norð-
urlandi i sumar:
Mai ..................... 8800 tn.
Ingólfur Árnason ........ 6700 —
Skallagrímur ............ 6500
Snorri Goði.............. 5800 —
Njörður.................. 5600 —
Earl Hereford............ 5500 —
Apríl ................... 5800 —
Baldur....................5100 —
Rragi ................... 5100 —
Snorri Sturiuson ........ 5000 —
Víðir ................... 4700 —
Jarlinn.................. 4300 —
Rán ..................... 4100
Jón forseti ............. 4000 —
íslendingurinn........... 3800 —
Alfa..................... 3800 —
Eggert olafsson ......... 3200 —
Alls 87800 tn.
Þá hafa alls 3 islenzkir vélbátar
'tundað sildveiðar á Siglufiéði eða
F.yjafirði og hafa þeir að líkindum
aflað tiltölulega bezt allra skijianna.
Hrólfur og Leifur unnu sarnan og
íengu samtals 4500 tunnur og Freyja
fckk 2700 tunnur.
Brezkur konsúll
á Akureyri er nýlega skipaður Ragn
i r kaupmaður ólafsson.
Embættaveitingar.
Annað yfirdómaraembættið er veitt
Eggerti Briem skrifstofustjóra, frá
1. október.
Aftur er skrifstofustjóraembættið,
sein Eggert Briem gengdi, veitt Guð-
mundi Sveinbjörnsson aðstoðarm.,
frá sama degi.
Loks er Björn Þórðarson, cand.
jur., skipaður aðstoðarmaður á 1.
skrifstofu í stað G. Svbj.
1 Lagaprófessorsembættið er sett-
ur ólafur Lárusson, cand juris, frá
Selárdal.
Settur læknir í Miðfjarðarhéraði
er ólafur Gunnarsson, cand. med. &
chir.
MinnisvarÖi Kristjáns 9.
Danakonungs verður afhjúpaður 2f.
september á afmæli núverandi kon-
ungs Dana. Einar Jónsson mynd-
höggvari hefir gjört myndina. Stend-
ur konungur með útrétla hönd og á
að tákna það augnalilik, er hann get-
ur íslendingum stjórnarskrá. Mynda-
styttan stendur á siorðurhehningi
stjórnarráðsblettsins og er hliðstæð
við minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Óeigingjamt starf.
Það er talað og skrifað margt i
þessum bæ, bæði satt og logið, bæði
þarft og óþarft, en sjaldan eða ald-
rei hefi eg orðið þess áskynja. að
menn gæfu gaum eða mintust á í
ræðu eða riti, þjóðnýtt starf eins af
borgurum þessa bæjar. Eg á hér við
mikilsvert uppeldisstarf, sem fyrv.
sýslumaður A. V. Tulinius hefir af
sjálfsdáðum tekist á hendur að fram-
kvæma. Mönnum þykir starfið ef til
vill ekki eins eftirtektavert af þvi,
að Tulinius hefir aldrei sótt um
stvrk til alþingis til þess að koma í
verk hugsjón sinni. Tulinius hefir
smalað saman stórum hóp af ung-
lingum og leitt þá frá götunni og
glaumi bæjarins, — kent þeim “vit
og strit” úti á víða vangi — úti í
hreinu lofti.
Mig bar einhverju sinni að, þar
sem Tulinius var að æfingum með
sinn fríða hóp, undir berum himni.
Þá sannfærðist eg um gagnsemi
starfsins.
Drengirnir læra hjá honum alls-
konar æfingar, sem stæla vilja og
vit og styrkja líkamann; þeir læra að
bjarga sér eins og skynsemi gæddar
verur ættu að gjöra; þeir læra reglu-
semi, háttprýði og hlýðni; þeir læra
að láta líkama sinn hlýða sálinni og
bera sig eins og “æðstu skepnu”
jarðarinnar er samboðið. Hann hef-
ir komið á eins konar þegnskyldu
meðal lærisveina sinna, þar sem þeir
allir eru sjálfboðaliðar og landssjóð-
urinn hefir verið látinn í friði.
Drengirnir hafa fengið verkefni
að glíma við, og náhugi.þeirra og
kapp hefir verið vakið; þeir sleppa
þvi fremur við að spillast af óknytt-
um í solli bæjarlífsins.
Fyrir starfa sinn hefir Tulinius
ekkert úr býtum borið, annað en á-
nægjuna yfir árangrinum, sem er að
þakka hans sjaldgæfa áhuga. Ef eg
ætti stálpaða drengi, mundi eg skilja
gagnsemi starfs hans ennþá betur,
og eg mundi vera honum þakklátari
en flestum öðrum, og væri eg ráð-
herra, sem eg vona að eg aldrei
verði, þá mundi eg vilja gjöra alt
fyrir Tulinius, alt nema gjöra hann
að etatsráði, þvi að til þess “passa”
ekki nema vissir menn. ,L. I.
— (Vísir).
Þessar fréttir eru teknar úr Isa-
fold, Lögréttu og Vísir, er út komu
frá 8. til 25. september.
Kr. 0. Þorgrímsson
látinn.
Hann lézt á laugardagsmorguninn
18. sept. — Banamein hans var gall-
blöðrubólga.
Kristján heitinn var fæddur að
Staðarbakka í Helgafellssveit í Snæ-
fellsnessýslu þ. 8. febr. 1857. Voru
foreldrar hans Þorgrímur hreppstj.
Víglundsson og kona hans Kristín
Jónsdóttir.
Átján vetra gamall kom Kristján
til Rvikur og hof bókbandsnám hjá
Agli Jónssyni og lauk þvi á 4 árum.
Hann hvarf samt frá því ráði, að
gjöra bókband að lífsstarfi sínu, en
stofnaði verzlun 1880 og hafði jafn-
an síðan einhverja verzlun.
Tuttugu og tveggja ára réðist Kr.
Ó. Þ. í að kaupa dýra lóð í miðjum
bænum og reisa á henni myndarlegt
hús. Þótti sumum mönnum djarft í
ráðist það fyrirtæki af svo ungum
og efnalausuin manni; en þar sem
í mörgu öðru, kendi hagsýni Kr. ó.
Þ. og góðs hyggjuvits, því að með
þessu hófst uppgangur hans.
Næstu ár lagði hann margt á gerva
hönd. Hann var ritstjóri og útgef-
andi Þjóðólfs frá 1880—1882 og út-
gefandi Suðra, blaði því, sem Gestur
Pálsson stýrði, var hann ásamt Ein-
ari gamla Þórðarsyni.
Einnig fékst hann talsvert við
bókaútgáfu og bókaverzlun. Gaf út
svo merkar bækur m. a. sein Ijóð-
mæli Matthíasar og Steingríms, For-
málabókina eldri o. s. frv. Hann
var og einn af útgefendum Iðunnar
öásamt Birni Jónssyni, Jóni ólafs-
syni og Steingrimi Thorsteinsson).
Bæjarmál og safnaðarmál lét Kr.
Ó. Þ. sig jafnan alliniklu skifta. Sat
hann i niðurjöfnunarnefnd um 11
ár; í sóknarnefnd hefir hann verið
síðustu 22 árin og lengi umsjónar-
maður dómkyrkjunnar. Bæjarfull-
trúi var hann 1885—-1887, og svo aft-
ur frá 1903—1914. Loks var hann
brunamálastjóri 4 ár..
Eins og menn sjá, er það eigi lítið
af almennum störfum, sem komið
hafa til kasta Kristjáns. Áttu þau vel
við hann, og mörg þeirra voru í
mjög góðum höndum, þar sem hann
var.
Leiklist fékst Kr. ó. Þ. við lengur
en nokkur annar maður hefir gjört
með oss, eða um 34 ár. Þóttu hon-
um takast inætavel flest hlutverk,
en frægastur varð hann fyrir Kranz
birkidómara , “Æfintýri á göngu-
för”. ótrauður starfsmaður Leikfé-
lagsins var hann jafnan, gjaldkeri
þess um mörg ár og síðast formaður.
Kristján var starfandi maður i
mörgum ^iagsskap höfuðstaðarins
<; oft á hann dembt vandasömustu
störfunum, ekki sízt féhirðisstörf-
um, og bendir það a traust mann;
á honum í því efni. Enda mun það
rammæli kunnugra, að reglusamari
mann um öll þess konar störf geti
eigi margan hér í bæ, né hagsýnni.
Til marks um þess konar dugnað
Kr. ó. Þ. má telja umsjónarmensku
hans með baðhúsi Reykjavíkur, sem
hann hafði siðustu árin og rækti svo
vel, að fjárhagur þess hefir stórum
batnað.
BLUE R/BBON
KAFF/
OG
3AK/NG POWDER
Hvenær svo sem þú kaupir Blue Ribbon
vörur, þá sparar þú peninga. Þær end-
ast lengur og kosta því minna en nokkr-
ar aðrar vörur. Táðu þér könnu af Blue
Ribbon kaffi og Baking Powder næst er
þú kemur í búðina. Þér líkar það áreið-
anlega.
Selt með peningatryggingu
Við skuldheimtu fékst Kr. Ó. Þ.
um mörg ár. Svo lítt vinsælt starf,
sem það er talið, þá tókst þó Krist-
jáni, að eignast eigi marga óvildar-
menn út af því. Kom það vafalaust
af því, hve góðlátlega hann kom
fram með það starf, þótt fastur væri
fyrir og gengi eftir, að gefin loforð
um greiðslu væru ekki rofin.
Sænskur vísikonsúll varð Kristján
1907 og gengdi þeim störfum til
dauðadags. Lét sér mjög ant um, að
greiða götu Svia þeirra, er að garði
báru, svo að þeir rómuðu mjög, er
heim komu. Má þar til nefna t. d.
Albert Engström, hinn nafnkunna
ritstjóra kýmniblaðsinst Strix. Hélzt
góð vinátta með honum og Krist-
jáni eftir dvöl Albert Engström hér
á landi.
Kristján var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Guðrún Nikulásdóttir
frá Norðurkoti í Vogum (d. 1908).
Eignuðust þau 5 börn og lifa 3:
Guðrún kona Hans Hoffmanns verzl-
unarmanns; Þorgrímur, cand. phil.
og Kristinn (við verzlunarnám).
Siðari kona Kristjáns var Magnea
ckkja M. Johannessens kaupm., er
lifir mann sinn ásamt börnum af
fyrra hjónabandi sínu, sem Kr. ó.
Þ. reyndist hið bezta.
* * *
Kristján var einn þeirra manna,
sem synd er um, að eigi skuli lengri
lifdaga njóta. Það var fjarri þvi, að
hann væri þreyttur orðinn á lífinu,
enda stór heilsugóður fram til hins
siðasta.
Mjög munu kunningjar Kristjáns
sakna hans, og voru þeir harla marg-
ir, bæði innan bæjar og utan. Það
var jafnan kátt kringum Kristján í
kunningjahópi, — og fáa hefi eg
þekt, er jafnvel kunnu með kýmis-
sögur að fara og græzkulaust skop,
eins og hann; kunni hann öll ósköp
i.f gamansögum, mest úr Reykjavik-
urlifinu 1880—1890. Er illa farið,
ef Kristján hefir engar þeirra skrá-
sett.
Oss hinum yngri mönnum, sem
alist höfum upp hér í bæ, finst vafa-
laust talsvert vanta í svip bæjarins,
liegar Kristján Þorgrímsson er horf-
inn braut. Hann var orðinn svo sam-
gróinn Reykjavík. (ísafold).
Sérstök kostaboö & lnnanhúss
munura. Komlö tll okkar fyrst, þlö
muniö ekkl þurfa aö fara lengra.
Starlight New and Second Hand
Furniture Co.
393—.->»•■; NOTRR DASIB AVKA'UR.
Talslml Garry 3884.
Grunsamt.
A. : Því í ósköpunum slitnaði upp
úr á milli ykkar Guðrúnar?
B. : Það skal eg segja þér. Altaf,
þegar eg kysti hana, hrópaði páfa-
gaukurinn hennar: — Hættu þessu,
Gunnar
A. : Mér finst þetta engin ástæða.
Ykkur var frjálst að hittast.
B. : Já, en eg heiti ekki Gunnar.
™E DOMINION BANK
Hornl Notre Dome og Sherbrooke
Street.
HöfuðMtöll uppb.......... $6,000,000
Varamjöbur .............. $7,000,000
Allar elRnir.............$78,000,000
Vér óskum eftir vit5skiftum verz-
lunarmanna ogr ábyrgjumst at5 gefa
þeim fullnœgju. Sparisjót5sdeild vor
er sú stœrsta sem nokkur banki hef-
ir í borginni.
íbúendur þessa hluta borgarinnar
óska at5 skifta vit5 stofnum sem þeir
vita at5 er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygging óhlutleika.
Byrjit5 spari innlegg fyrir sjálfa
yt5ur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, RáSsmaíur
PHOXE GARIiV 3450
CARBON PAPER
for
TYPEWRITER—PENCIL—PEN
Typewriter Ribbon for every
make of Typewriter.
G. R. Bradley
1 & Co.
304 CANADA BLDG.
Phone Garry 2899. Winnipeg
THE CANADA
STANDARD LOAN CO.
At5al Skrifatofa, Wlnnlpig.
$100 SKULDABRÉF SELD
Til þæginda þeim sem hafa smá upp
hætiir til þess at5 kaupa, sér í hag.
Upplýsingar og vaxtahlutfall fst á
skrifstofunni.
J. C. KYLB, ráVsmaVur
428 Maln Street. WINNIPBG
Þegar þú þarfnast bygginga efni eía eldivið
D. D. Wood & Sons.
------------------Limited--------------------
Verzla með sand, möl, mulin stein, kalk,
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eidaðar pípur,
sand steypu steinar, “Gips” rennusfokkar,
“Drain tile,” harð og lin kol, eldivið og fl.
Talsími: Garry 2620 eða 3842
Skrifstofa: Horni Ross og Arlington St.