Heimskringla - 16.03.1916, Qupperneq 1
XXX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 16. MARZ 1916
Nr. 25
Vínbannsmenn Vinna
legan Sigur um
Storkost-
alt Manitoba.
Wionipeg þur með miklum meirí hluta. Aðeins 2 kjördæmi hafa
lítinn meiri hluta meÖ vínsölunum og er annað franskt en hitt
er af þýzku bergi (Gallar), ekki ein einasta sveit eÖa bær út
um landiS með vínsölumönnum. Vínsala dæmd fyrir langa,
langa tíma. Enginn núlifandi maSur þarf aÖ hugsa sér aÖ
koma henni á aftur.
Stríðs =f réttir
Af stríðinu er lítið sérlegt að
frétta, nema að Vilhjálmur er búinn
að segja Portúgal stríð á hendur, fá
portúgalska sendiherranum í Berlin
ferðapassann og hann lagður af stað
Sigurinn fyrir vínbann er unninn svo stórkostlega að fáir eða heimleiðis. Sama er að segja um
engir höfðu hugmynd um að hann mundi verða svo algjörður og jafn sendiherra Þjóðverja i Portúgal.
yfir allt fylkið. Það er margt sem að pessu hefur stutt. ryrst og
fremst hafa bindmdisfélögm árum saman stutt að þessu. Þau hafa
unnið stöðugt og komið hugmyndinm inn hjá fólkmu. Vissulega
eiga þau miklar þakkir skilið og geta með ánægju litið yfir starfa
sinn. Verk þeirra hafa borið ávöxt.
Svo er Social Service Council það hefur óefað haft mikil áhrif
einkum hér í Winnipeg.
Þá má segja að stríðið sem nu stendur yfir eigi mikmn þátt í
því hvernig málin fóru. Það er kominn í almennmg sú alvara að
menn sjá óhæfuna í því að eyða eigum sínum og veikja líkama sinn
og spilla mannorði sínu þegar annað ems er á ferð í heiminum og nú
er, þegar jafnmikill voði er á ferðum. Menn finna að æðn sem
lægri þurfa nú á öllu sínu að halda, öllum sínum þrótt og hugrekki,
á iífi sínu og fjármunum til þess að forða oss við voðanum sem er svo
mikill að fáir hafa fulla hugmynd um.
Og hermennirmr hafa ekki lítið stuðlað að sigrinum, því að hvar
sem þeir greiddu atkvæði til muna, þá voru þeir kjörstaðir þurrir, og
er það mikill heiður fyrir þá.
Pólitík hefur ekki haft hin minstu áhrif á kosningar þessar
hvorki til né frá. Liberalar og Konservativar hafa nú gengið saman
til atkvæðanna sem sannir bræður.
Þessi úrslit eru mjög ánægjuleg, ekki einungis fyrir oss sem
búum í Manitoba, heldur fyrir það hvaða áhrif þau hafa á fylkin í
kring. Hér er alda vakin sem veltur út fyrir Mamtoba, og hin fylkin
geta ekki lengi staðið aðgjörðalaus, enda er þegar farið að bera á
því í næstu fylkjum, bæði fyrir austan og vestan. Og það mun
varla langur tími áður en vér sjáum merki þess að þar fara að koma
hreifingar í þá áttina.
Ensku blöðin (Telegram) geta þess að hvar sem íslendingar
hafa verið, þá hafi þeir kjörstaðir verið þurnr þrátt fyrir það að
menn hefðu óttast að Bakkus næði þar yfirhöndinni.
Hér fylgir úrslitalistinn:
Mefí Móti Vinb. Vin
Vinbanni Vinb. fleirt. fleirt.
Arthur . . C8G 239 449 —
Assinibow .. 1128 643 485 —
BeautifuJ Plains . 1214 156 1058 —
Birtle . . 801 155 646 —
Brandoii .. 1548 1220 328 —
Garillon*) — — 281 —
Churchill and Nelson — — , —
Cypress . . 845 198 637 —
Dauphin .. 1036 378 658 —
192 812 —
Dufferin .. 1197 420 777 —
ElmwooiJ' .. 1595 1373 222 —
Emerson *) . . 571 325 246 —
Gilbert Plains*) . . 993 361 632 —
Gimli*) . . 506 277 329 —
Gladstone*) . . 816 236 580 —
Glenwood *) 892 236 656 —
Grand Rapids — — —
Hamiota .. 1146 214 932 —
IberviUe*) . . 368 265 103 —
Kildonan and St. Andrews.. ... 1467 1088 379 —
Killarney . . 782 181 601 —
I.akeside . . 643 250 393 —
Lansdowne .. 1244 205 1039 —
La Verandrve*) . . 284 160 124 —
Manitou . 1152 402 750 —
373 778 —
Morden and Rhineland . . 822 519 303 —
Morris . . 728 426 302 —
Mountain . 1280 243 1037 '—
Norfolk . . 854 267 587 —
Portage la Prairie . . 971 404 567 —
RobJin . . 552 143 409 —
Roökwood *) . . 932 522 422 —
Russell . . 900 405 495 —
St. CJements*) . . 455 314 141 —
St. George*) . . 264 212 52 —
St. Boniface . . 971 1020 — 49
St. Rose*) — — 215 —
Swan River*) . . 534 224 310 —
52 139 —
Turtle Mountain . . 598 198 400 .
Virden . . 996 353 643 —
Winnipeg South .. 5328 2623 2705 —
Winnipeg North .. 2728 2767 — 39
Winipeg Centre .. 5998 4252 1746 —
Samtals . 48769 24491 24366 88
’) Stjarnan aftan við nafn kjördæmiisins þýðir, að frá þcim stöð-
'ini cru skýrslur ckki alveg fuilkoinnar. En hvergi inunar svo að nokk-
uru nerni.
ið af stað til Spánar og flestir Þjóð-
verjar i stærri borgunum í Portúgal
eru að búa sig burtu. Eins og allir
vita orsakaðist þetta af því, að Port-
úgal lagði hald á öll þýzku skipin í
höfnum landsins; en það orsakað-
ist aftur af þvi, er Þjóðverjar hót-
uðu að sökkkva ölliun farskipum á
sjónum, sem líkleg væru til að flytja
menn eða vörur til Bandamanna, og
svo voru óbætt nokkur skip,
Þjóðverjar voru búnir að sökkva
fyrir Portúgals-mönnum á sjó úti.—
Þetta virðist nú kanske lítil hjálp
fyrii' Bandamenn, en það styrkir.
Á vigvöllum Evrópu er nú ekki
um annað talað en slaginn á Frakk-
landi og sérstaklega uin Verdun. —
Hann byrjaði 21. febrúar, sem menn
muna, og hefir eiginlega einlægt
haldið áfram, þó að hann væri nokk
uð Jinari 1. og 2. marz; en svo
harðnaði hann aftur. f fyrstunni
koin áhlaupið Þjóðverja aðallega að
norðan, og þar unnu þeir dálítið á,
á sléttunni og láglendinu neðan
undir hæðunum. En þegar upp á
hálsinn kom, þá komust þeir ekki
lengra. En svo sóttu þeir að austan
og gjörðu ákafar hriðar, en unnu
ekki á. Þá fóru þeir að sækja á enn
austar, nokkrum niílum austan við
Verdun, í sveit þeirri, sem Voevre
heitir, og á öðrum stað vestan við
Verdun og Meuse ána. Þeir náðu þar
skógartopp litlum, en voru hraktir
að iniklu leyti þaðan næsta dag. Ein-
lægt gekk fyrst skothríðin þétt og
hörð, einn eða háJfan dag, og svo
runnu þeir á i þéttum fylkingum.
En þá risu Frakkar upp og JíJóðu
“eldvegg” framan við þá, sem fáir
eða enginn gat lifandi komist í gegn
um. f álilaupum þessum töpuðu
Þýzkir þúsundum manna, og þó að
margir Frakkar féllu i skotliríðun-
um á undan áhlaupunum, þá stóðu
hinir sem bjarg fyrir, ogþegar Þýzk
ir svo komu, þá snöri mannfallinu á
þá og varð voðalegt. Á stöku stað
náðu þeir fremstu skotgröfum
Frakka, en svo komust þeir ekki
lengra. f næstu gröfunum voru
Frakkar hálfu fastari fyrir. En
mannfallið í liði Þjóðverja var svo
itiikið, að það margltorgaði sig fyrir
Frakka, að lofa þeim að koniast
svona langt. l'að var náttúrlega ekki
ætið, en það var oft, að Frakkar
hopuðu undan til þess að teygja
Þýzka á eftir sér. Alt þangað til
þetta er skrifað, að kveldi liins 11.,
stendur sami bardaginn uin Verdun,
þó að dálitið sé á millí liriðanna;
en Verdun stendur ennþá, og ein-
lægt verða líkurnar minni og minni
að Þýkir vinni borgina. Og jió að
þeir hofðu unnið liana, þá voru þeir
litlu nær að ná París, því að her-
garðar Frakka eru margfaldir þar
rétt fyrir vestan. Og Joffre er svo |
sem ekkert, eða alténd mjög lítið,
farinn að taka á hinu mikla varaliði,
sem hann var búinn að draga að sér.
Allir eru að spá þvi, að þá og þeg-
ar muni Þýzkir ráðast á annarsstað-
ar, og þá helzt á garðinn sem Bretar
halda. En ekki ber á þvi til muna
ennþá; það eru smá-yrringar þar
einlægt, en engir stórir slagir.
Hið sama er á allri austurlínunni.
Þeir biða þar vonsins. Eru þar nú
viða bleytur miklar, því að víða fer
jörð nú að þiðna, og þá komast
hvorugir áfram. Og Rússar safna ein
lægt liði meiru og meiru.
En það er Nikulás hertogi, sem
kemst áfram. Hann er nú búinn að
taka hafnarborg skamt fyrir austrn
Trebizond, sem Riza heitir, og ein-
lægt sigla rússnesku herskipin með
ströndum fram og banna Tyrkjum
alla umferð með ströndinni. Þéir
eru að reyna að senda liði sínu vopn
og matvæli á vegunum með strönd-
inni, en Riissar skjóta af sjónum á
þá og brjóta allar brýr, svo að Tyrkj
um er því nær ómögulegt að komast
áfrain, því að fjallgarðurinn er ann-
ars vegar. En þarna sigur nú lið
Nikulásar áfrain. Hann verður að
fara hægt nú og nokkuð jafnt yfir og
er einla»gt að sópa fjölJin og dalina
og skörðin á 10 milna svæði. og sjá
fyrir vistuin og flutningi ölluin, svo
að aJdrei sé skortur á neinu.
Suðursveitin, sem Nikulás sendi
suður á eftir flóttamönnunum frá
Erzerum, heldur einlægt áfram og
hefir enginn hnekkir komið. Þeir
tóku Bitlis við Vansjóinn með á-
hlanpi í hríðarbyl að nóttu til. Var
þar mikið Jið Tyrkja sainankomið,
sem flúið hafði úr Van-héraðinu, en
slátrað áður tuguni þúsunda af varn-
arlausum Armeníu-inönnum. En
Rússar fengu vopn öllum Arnieniu-
mönnum, sem eftir lifðu eða til
þeirra komust, og urðu það góðar
50 þúsundir. Þessir Armeníu-menn
voru ódeigir, og vildu gjalda Tyrkj-
um morð feðra sinna og bræðra, eða
sem svivirðingár systra sinna og kvenna,
og er sagt, að fáum Tyrkjuin í Bitlis
lrafi verið grið gefin.
Nú eru Rússar á Jeiðinni frá Bitlis
til Diarbekr; menn vita ekki hvar;
en þegar þar kemur eru snjóar búnir
og fjöll að mestu, og er þar blíðara
loftsiag. 1 Persíu tóku þeir nýlega
Bidyar, 80 milum norðvestur af
Hamadan. Er það um 130 mílur
norður af Kermanshali. En þaðan
eru þeir að liahla áleiðis til Bagdad,
en verða að hreinsa fjöllin á leið-
inni og smala afréttina. Nýlega tóku
þeir borgina Kerind, 30 mílur vest-
ur af Kermanshah i Persiu, á leið-
inni til Bagdad.
1 Miklagarði eru róstur og upp-
Iilaup og viðar um Tyrkjaveldi. Al-
þýðan er að rísa upp; en í Mikla-
garði ráða Þýzkir enn og láta skjóta
niður alnnigann. Frétt hefir komið
um það, að Enver pasha, fóstri og
vinur Vilhjálms, hafi drepinn verið
í einu upphlaupinu, sumir segja í
Jerúsalem. Er ekki gott að henda
reiður á þvi. En það eitt er vist, að
þvi Jengra,- sem Rúsar halda inn i
landið, í Litlu-Asíu, í Persiu og i
Mesópótamíu, því ver líður Tyrkjuin
og því fleiri verða upphlaupin.
Wood Alcohol í stað
Gasoline.
Frá Madison, Wis., keniur fregn
sú 13. marz, að nú verði menn að
fara að nota Wood Alcohol í stað-
inn fyrir Gasolin, sem sökum hinn-
ar miklu eftirspurnar er komið í
geypiverð. Þetta er haft eftir Mr.
Howard F. Weiss, Director of the
Forest Product Laboratory í Madi-
son, Wis. Hefir stjórnin verið í þrjú
ár að gjöra tilraunir í þessa átt. Nú
er Gasolin i háu verði þar syðra, 27
til 30 cent gallónið í New York; en
Alcohol af korntegundum má búa til
fyrir 10 til 15 oent gallonið, og þó ef
til vill billegar af kartöflum og trjá-
við. Á-verkstæði sinu fékk Mr. Weiss
25 gaJlons af Alcohol úr einu tonni
af sagi. Alt þetta Alcohol er svo de-
natured, eða blandað eitri, að hver
liggur dauður, sem á því bragðar.
Canada-menn í stríðinu
Eftirköst Verdun
bardagans.
Verdun bardaginn er þegar farinn
að hafa mikil áhrif hér og hvar. í
Miklagarði gjöra Tyrkir upphlaup,
og er það meðfi-am fyrir framgang
Nikulásar. En borgirnar i Litlu-
Asíu eru farnar að senda nefndir á
fund ríkiserfingja Tyrkja til að biðja
hann að fá soldán til að reka ráð-
gjafana, en taka aðra og reyna að fá
frið.
En Búlgörum er farið að lítast
mjög illa á blikuna, og einhver helzti
maður þeirra, Malinoff, sér ekki
annað en ófarir í vændum. Og svo
kemur Búlgöruin i _víggröfunum
norður af Salonichi illa saman við
Þjóðverja, sem þar eru foringjar
þeirra og hafa nokkurt þýzkt lið
þar, að allir Búlgarar eru nú teknir
úr fremstu skotgröfunum, en her-
menii frá Saxen (þýzkir) settir í
þær.
f Budapest, höfuðborg Ungverja,
er mönnum farið að litast illa á
fréttirnar frá Verdun.. Menn höfðu
einlægt trúað þvi, að hvar sem
Þýzkir réðust á, þá mundu þeir
ryðja öllu úr vegi og brjótast í gegn-
um hvaða hergarð sem væri. En
hinn 4. marz (fréttin er svo göniul)
vissu þeir að Þýzkir höfðu ekkert á
unnið, og þó höfðu þeir otað þar
fram bezta liðinu, sem þeir höfðu
til; þeir höfðu dregið þangað allar
slóru fallbyssurnar frá ítalíu og
Serbíu og mikið frá Rússlandi; þeir
höfðu tekið hersveitir af ölluin hin-
um vígvöllunum, en ekkert dugði.
Þetta kom mönnum i Ungarn alveg á
óvart, og fóru undir eins að renna á
inenn tvær grimur. Berserkirnir
voru stöðvaðir þcir mættu þarna að
minsta kosti jafningjum sinum.
En alt fyrir það búast engir við,
að áhlaupin réni mikið hjá Þjóð-
verjum. Þeir mega til að halda þessu
áfram, eða allir sjá að öðrum kosti,
að byrjun Jokanna er komin. Það
er því mjög líklegt, að þeir Jeiti víð-
ar á þarna, af þeirri ástæðu, að þeir
þola ekki biðina.
Og það er mjög liktegt, að þeir
fari að láta herskipin þýzku mæta
Englendingum. Þeir hafa verið að
skjótaist út með þau. En þeir hafa
lítið farið frá landi, heldur meðfram
ströndum Norður-Hollands. En þar
er grunt og hafa þeir sjó allan þar
sáðan sprengivéJum. Ennþá hafa
þeir ekki hætt sér lengra út ,— þeir
eru eins og að venja sig við að koma
út á sjóinn, sem drengir á flekum
eða brunntrogum fara út á tjarnir,—
halda sér með landi fyrst lengi vel,
áður en þeir hætta sér út á djúpið.
En þar að kemur, að þeir fara út,
og er sagt að þeir ætli heldur að
sökkva í sjó, en gefast upp. Má bú-
ast við þvi, að þeir berjist vel, og
eiiginn veit, hvað þeir hafa undir-
búið. Er sagt þeir hafi byssur stór-
ar, 22 þumlunga. En vanséð er, að
þær komi þeim að fullum notum, þó
að þeir eflaust muni sökkva ein-
hverju af skipum Breta. En það er
vist, að Breta langar til að finna þá
á sjónum úti.
1 þeirra eigin her Þjóðverjanna er
farin að koma óánajgja, og er það til
marks, að herlið Þjóðverja í Shavli
gjörði upphlaup um daginn út af
vondu viðurværi. En Shavli er borg
i rússneska fylkinu Kovno, norður
undir Kúrlandi. Þýzkir brutu niður
upphlaupið og skutu forsprakkana,
og nokkuð af hermönnunum.
Mexíkó.
F'Jestir landar munu vera búnir að
heyra um innrás Villa gamla úr
Mexikó imn i Bandarikin. Hélt hana
með 500 manna norður yfir linuna
til Columbus í New Mexico, sem er
eitt af hinum nýrri rikjum Banda-
rikjanna. Þar brendi hann eignir og
lét skjóta bæði hermenn o,g borgara
Bandaríkjanna. Áður var hann ár
eftir ár búinn að skjóta eða láta
skjóta og ræna bæði borgara Banda-
rikjanna og Breta, og fleiri rikja í
Norðurálfunni, og gátu Bandaríkin
ekki að gjört. Mennirnir lágu ó-
bættir.
En nú reis skörin upp í bekkinn,
og gekk svo fram af mönnum, að
Wilson forseti bað Carranza um
Jeyfi til að senda her manns inn í
Mexico til að elta ViIIa uppi og taka
hann lifandi eða dauðan. Carranza
svarar WiJson og gefur honum kost
á þessu, með þvi móti, að hann megi
eins senda her inn i Bandarikin, ef
að hann þurfi að ná i sökudólga
sína. Þetta leyfir Wilson, og er nú
farið að búast til ferðar og á að
senda 5000 hermenn, eftir því sem
blöðin segja, til að elta ViJla; en
menn ætla, að hann sé nú kominn
langt suður í fjöllin i Chihuahua og
Sonora, en hafi að eins farið með
fáeina menn. En þar á hann all-
staðar vini.
Það er riddaralið, sctn á að senda;
en nú, þegar á þarf að h<‘rða, vantar
æði margt til þess, að þeir verði
skjótlega búnir. ()g sagði Mr. Cham-
berlain, formaður hermálanefndar
Bandarikjanna, Senatinu i Washing-
ton, að það væri sitt álit, að Banda-
ríkin hefðu hvorki hermenn né út-
búnað til þess að fara för þessa, og
sig skyldi ekki uindra, þó að Mexico
búar snerust allir með Villa, þegar
Bandarikin kæmu þar suður með
her manns til að leita eftir honum.
Aðrir halda, að það niuni taka
marga mánuði að ná honum.
Doukhoborar ganga í
herinn.
Merkilegt má það þykja. að 9*
Doukhoborar hafa gengið í herinn.
Var það þó ekki ætlun þeirra, er
þeir komu hingað, þvi að þeir fóru
frá Rússlandi til þess að forðast
herskylduna. Félagsskapur þeirra er
saineignarfélag (Communismus), og
enginn þeirra vildi ensku læra og
enginn þeirra var eiginlega fjár síns
ráðandi. En nú er eins og þá sé farið
að Janga til að eiga árangur vinnu
sinnar, og þegar þeir fara af frjáls-
um vilja að ganga i herinn, þá fer að
fara út um þúfur sameignarhug-
myndin og sérstaka málið. Þetta
eru mennirnir, sem mest varð út af
uppistandið uin árið í Yorkton. Þeir
sáu Krist og voru að elta hann, og
gengu sumir hálfberir eða vel það.
og endaði sú pilagrimsför með því
að þeir voru settir inn.
Þeim Bretunum þóttu Canada-
mennirnir fyrst vera nokkuð niiklir
á velli og sláttur á þeim stundum í
London, þegar þeir voru að koma
þangað i byrjun strjðsins. En undir
eins og þcir komu á vígvellina síáu
þeir að Canada-menn voru ekki að
eins miklir á velli og hvatlegir, Jield-
ur hinir hugprúðustu, þolnustu og
áreiðanlegustu. Og cinlægt hefir
vegur þeirra vaxandi farið, svo að
nú eru þeir taldir með hinum aUra
hraustustu inönnum í liði Randa-
manna; og það eru ekki eingöngu
Bretar, sem hæla framgöngu þeirra,
heldiir Frakkar og jafnvel Þjóðverj-
ar sjálfir.
Hvað eftir annað hafa æðri sem
Jægri hermenn frá Canada fengið
viðurkenningu og heiðursmerki fyr-
ir hreysti sina, og einlægt meira eft-
ir þvi, sem á hefir liðið, og nú má
heita, að sæmdunum rigni yfir þá,
þvi að rétt núna kemur fregn um,
að 88 Canada-menn hafi verið sæmd-
ir heiðursmerkjum. — Þetta er vel
farið, ag sýnir í hvaða áliti þeir eru.
223. Canadian
Scandinavian Overseas Battalion
»
Borgaranefnd Skandinafa, sem kosin var á fundi í Winni-
peg, 9. marz, 1916, óskar þess að hver einasti þjóðhollur
Skandinafi í Canada styðji og styrki hinn 223. Battalion.
Það þarf að hafa upp að minsta kosti þrjú þúsund dollars
($3000.00) til að safna liði og annars kostnaðar og sfðar
til þess að útvega þægindi hermönnunum, sem í hana ganga.
Smá tillög verða jafnvel þegin sem stór og verður kvilt-
að fyrir þau séu þau send blaði þessu.
Fyrir hönd nefndarinnar,
T. E. Thorsteinsson.
Manager, Northern Crown Bank
William Ave.,Branch, Winnipeg.