Heimskringla


Heimskringla - 16.03.1916, Qupperneq 2

Heimskringla - 16.03.1916, Qupperneq 2
BLS. 2 HEIMSKRINGLA. WINNIPEG, 16. MARZ 1916. Um Ræktað Gras. Þegar um það ©r að ræða, að sá grasfræi, verða menn að athuga það frá ýmsum hliðum, áður en menn komast að niðurstöðu um, hverju skuli sá. Jarðvegurinn er mjög breytilegur á hinum ýmsu mismun- andi stöðum, sem byggist á misinun- andi landslagi, rekju og jarðefnum. Það er þar afleiðandi ekki hægt að ákveða með vissu, hvort ein grasteg- und myndi vaxa og þroskast betur en önnur i vissum jarðvegi. Skyn- samlegasta aðferðin er því sú, að leita sannleikans í þessu efni á þann hátt að velja þær tegundir, sem mestar líkur eru til, að múni þrifast vel á vissu svæði, og sá hverri um sig í litla, samhliða blétti. Það er eini einhlýti vegurinn til að ganga úr skugga um það, hver tegund muni bezta og mesta uppskeru gefa. Engi og bithagi. Áformi maður að nota land til bit- haga eða engis um að eins stutt tíma- bil, þarf að velja þær grastegundir, sem þroskast á skömmum tíma. Það væri t. d. ópraktiskt að sá Kentucky blue-grass, meadoiv fescue eða mea- dotv foxtail í blett, sem ætti að hafa undir grasi uin fárra ára tíina, sök- um þess, að það tekur 3 ár fyrir þessar tegundir að ná fullri þrosk- un. Útsæði sumra tegunda er einnig of dýrt til þess að rækta þær að eins um stuttan tíina eins og t. d. alfalfu. Aftur er ' red clover, alsike clover, timothy, red top, orchard grass, weslern rye grass og brome grass heppilegt, þar sem grasið þarf að ná fullum þroska og gefa mikla upp- skeru stuttu eftir að því hefir verið sáð. Þessar síðasttöldu tegundir gefa góða uppskeru á næsta sumri eftir sáning, og sumar sama sumarið. Skepnum likar bezt timothy hey; þá western rye, þá brome og svo red top. Þegar grasið er notað til beitar, líkar þeim bezt brome; svo timothy, western rye og red top. WESTEHN RYE GRASS (íolium perenne), er betur fallið til að sá því i engi heldur en haga. Samt sem áður er því oft sáð með öðru í haga og reynist þá vel. Það gefur. góða uppskeru. Nauðsynlegt er að sl'i það áður en það móðnar, annars fölnar það og trénar á örstuttum tíma. Western rye er mjög víða ræktað í Vesturfylkjunum og líkar það af- bragðsvel til fóðurs. Það þrifst vel í mismunandi jarðvegi og ruéktun þess er tryggari á “alkali” landi, heldur en nokkurrar annarar gras- tegundar. Bezt þrífst það í rökum, sendnum jarðvegi. Það þrífst ekki i blautum jarðvegi, þar sem vatn sit- ur á því fram á sumar; en aftur þrífst það betur í þurkum og i þur- um jarðvegi, heldur en timothy eða red clover. Rétti tíminn til að sá því í Mani- toba er vanalega frá 15. mai til 15. júní. AWNLESS BROME GRASS (bro- mus inermis) er eitt af þróftmestu grastegundum, og stendur þar af leiðandi vel, þótt ræktunar skilyrði séu fremur andstæð, og sem stafa af hita, kulda, þurkum eða illgresi. Brome grasið er betur fallið til beitar en annað gras, vegna þess að það vex fyrri á vorin og helzt grænt lengur fram eftir haustinu. Það þrífst á mjög mismunandi jarðvegi og þar á meðal á söltum jarðvegi (alkali) betur en flestar aðrar teg- undir. Varast skyldi, að sá þvi i blautan og þéttan jarðveg, sökum þess, að mjög ilt er að uppræta það í þannig löguðum jarðvegi. Til þess að uppræta það ætti að plægja 4 þuml. djúpt strax eftir slátt og pressa niður strenginn. Plægja síð- an dýpra að haustinu. í sendnum eða lausum og nokkuð þurrum jarðvegi er auðvelt að upp- ræta brome-gresi. Það gefur mikla uppskeru af góðu heyji, sem þó er nokkuð erfitt að þurka. Fóðurgildi þess er sama og timothy heys. Það ætti að sá brome á tímabilinu frá 15. maí til 15. júní. TIMOTHY (phleum pratense) hef ir fengið viðurkenningu fyrir að vera bezta hey á markaðnum og selst vanalega fyrir nofkkuð hærra verð en annað hey. Sérstaklega er það holt hey fyrir hross. Timothy þrífst í mismunandi jarð vegi, en þó bezt í rökum og leir- blöndnum. þéttum jarðvcgi. í magra og þurra mold ætti að sá því ásamt einhverju öðru grasfræi. Það ætti að sá til þess á sama tíma og western rye. ..ENGLISH BLUE GRASS, öðru nafni meadow fescue (festuca ela- tior) hefir ekki verið mikið notað í Vesturfylkjunum. Það er mjög vel faUið til beitar og þrifst vel í rökum og meðallagi þéttum jarðvegi. Það er afbragð að sá þvi ásaint öðrum tegundum til beitar. KENTUCKY BLUE GRASS (poa pratensis) og CANADIAN BLUE GRASS (poa compressa) hafa ekki reynst vel í Vesturlandinu; þeim hættir við kali. Aftur er aítítt að nota þessar tegundir ásamt öðrum grastegundum í grasfleti umliverfis heimili. RED TOP (agrastis stolinifera) er vel fallið til ræktunar á láglendi og þrifst það í rakari jarðvegi en flestar aðrar tegundir. Það jafnvel deyr ekki út, þótt vatn standi á því um tíma að vorinu, ennfremur þrífst það betur í súrum jarðvegi, heldur en aðrar grastegundir. Sökum þess, að rcd top er ekki mjög lystugt gras, ætti ekki að sá til þess nema í blautlendi, sem annað þrífst ekki vcl i. Svoleiðis jörð ætti að plægja þegar hún er orðin nægi- lega þurr til þess, sem er vanalega i júlí eða ágúst, og plægja fjögra þml. djúpt; gjöra síðan moldina fíha með diska- eða gadda-herfi, og sá í hana áður en hún þornar óf mikið. Bezt reynist að sá þá ekki korni með fræ- inu, en sá 10 pundum í ekruna. Smáraættin. Þótt gras sé ræktað á ökrum um tíma, þá gjörir það ekki meira gott að verkum, en að eyðileggja illgresi og auka jurtaleifar í moldinni með rótuni sínum; l>að bætir ekki magr- an jarðveg með því að auka jurta- fæðuna í moldinni. Plöntur af smára ættum eru þær einu, sem draga jurtafæðu i moldina og auka þannig frjómagn hennar. Á rótum smárans (clover) eru hnúðar (nodules), scni rótarhnúðar eru kaillaðir. GerLl-tegund ein er í jörðunni, og getur hún unnið hold- gjafann úr loftinu og safnað honum i þessa rótarhnúða. Holdgjafi eða köfnunarefni, sem gerlarnir safna þannig í moldina, nemur frá 100 til 200 pund á hverri ekru, og jafngild- ir það köfnunarefni, sem felst í 5 til 10 tons af mykju. Menn geta þvi skil- ið, hversu gagnlegt það er, að sá sniára eða alfalfa, einkanlega þegar þess er gætt, að köfnunarefnið er eitt af allra dýrmætustu frjó-efnum i moldinni. RED CLOVER (trifolium pra- tense, 1.) er bezt að rækta í nokkuð ríkum, mildum og þurrum jarðvegi. Þessi tegund sniára gefur mesta uppskeru af öllum smárategundum, og má slá hana tvisvar á sumrinuv En sá ókostur fylgir honum, að hann endist ekki nema í tvö til þrjú ár. Það er þvi vanalegt, að sá með hon- um einhverju, sem endist lengur. Vánalega er timothy sáð með smára þessum, því það þroskast vel í sama jarðvegi. Smára ætti að sá á sama tíma og höfrum er sáð. ALSIKE CLOVER (trifolium hy- bridum, 1.) er betur fallinn til beit- ar en red clover; ennfremur þrífst hann betur á raklendi og í þéttum, blautum jarðvegi. ALFALFA (medicago sativa, 1.) er afbragð, hvort heldur er til beit- ar eða slægna. Það er kraftmeira fóður en nokkurt gras, sem ræktað er, og er afbragð til eldis fyrir allar skepnur. Það dregur köfnunarefni úr loftinu í jarðveginn, eins og smár- inn; en sumstaðar er ekki geril- tegundin í moldinni. Sé hún það ekki, verður lítil uppskera, hvort heldur er af smára eða alfalfa. Viss- asti vegurinn er sá, að fá gerlana að og setja þá i akurinn. Þénar sú tegund þeirra hvoru um sig, smára og alfalfa, og dugar að dreifa hundr- að pundum af mold, sem tekin er úr akri, þar sem þessar plöntur hafa vaxið, á hverja ekru akursins, eða annars kostar, að skrifa eftir rækt- uðum gerlum til I.andbúnaðarskóla fylkisins, ásamt upplýsingum um notkun þeirra. Það þarf að vera góð framræsla, þar sem alfalfa er sáð, og má ekki vatn sitja í moldinni ofar en 4—5 fet frá yfirborði. Annars þrífst al- falfa vel í vanalegum jarðvegi. Því ætti að sá í hreinan blett og moldin ætti að vera fíngjörð. I Manitoba hepnast langbezt Baltic og Grimm tegundirnar. Alfalfa ætti æfinlega að sá einu saman, og sá því á þann hátt, að blanda tveim pörtum af kurluðu korni saman við fræið og sá nieð vanalegri korn-sáðvél. Sáðvélin er sett til að sá (4—% bush. af hveiti i ekruna. Fyrsta sumarið ætti svo að slá alfalfa ásamt illgresinu áður en það (illgresið) verður mjög hátt (5 til 6 þml.), og láta ljána liggja til þess að fyrirbyggja uppgufun og drepa iligresið. Nægilegt er að sá 10—12 pundum í ekruna. Frá 15. maí til 15. júní er rétti tíminn til að sá. Alfalfa má slá tvisvar í Manitoba, Það verður að gefa því tækifæri til að vaxa upp nokkuð hátt að haust- inu, til þess að halda snjó á akrin- um og þannig fyrirbyggja kal. Al- falfa ætti ekki að beita fyrsta sum- arið. HvaíS miklu skal sá. Það, hvað miklu skal sá í ekru hverja, er að miklu leyti koinið undir frjósemi jarðvegsins og rekju. í sumum tilfellum má sá meira en í öðrum. og blandi maður tegundun- um, má æfinlega sá tiltöluleg.. meiru af hverri, þvi fleiri plöntur geta vaxið á hverju ferfeti. Ástæðan fyrir því er sú, að rætur sumra teg- unda liggja neðar en annara, og ná sér í næringu, sem hinar plönturnar mundu ekki nota, hvort sem væri. Vanalegt er, að sá, sem fylgir, þegar einni tegund er sáð í stað: Brome, 14 pund í ekruna; timothy, 8 pund; western rye, 12 pund og red top, 8—10 pund. Það, hvort maður sáir korni með grasfræi, er komið undir atvikum og ásigkomulagi akursins. Eins og gefur að skilja tekur kornið bæði til sín næringu og vökvun frá gras- plöntunum, sem eru litlar og veik- bygðar. Hins vegar hlífir það þeim fyrir sterkju sólarinnar. Sé jörðin rik af jurtafæðu og sæmilega föst í sér eða þétt, svo að hún haldi í sér rekju til Jengdar, er óhætt að sá i hana korni með grasfræinu. Vana- Icga er sáð þriðjungi minna af korni með þvi, heldur en þegar korni' er sáð einu. Kornið ætti að slá svo snemnia, að grasið sái ekki til sin fyrsta sumarið; gjöri það það, þá spillir það fyrir þroska þess á síðari árum. Af því, sem að framan er sagt, geta men fengið hugmynd um, hvaða tegundum þeir skuli sá í vissan blett af landi. Yfirleitt er betra að blanda tegundunum á slægjuland, en þó sérstaklega á beitiland. Eftir- fylgjandi eru töflur yfir blöndun á grasfræi, sem hefir reynst vel í Manitoba og hinum Vesturfylkjun- um: — Engi á vel þurrum akri — Alfalfa, 8 pund. Western Rye, 8 pund. Engi á raklendari akri — Red Clover, 6 pund. Western Rye, 8 pund. Timothy, 4 pund. Engi eða haga á þéttum jarðvegi— Timothy, 3 pund. Western Rye, 4 pund. Red Glover, 6 pund Timothy, 5 pund. Alsike Clover, 4 pund. Red Clover, 3 pund. Timothy, 7 pund. Brome, 4 pund Red Glover, 6 pund Western Rye, 6 pund. Timothy, 3 pund. Red Clover, 6 pund. Brome, 4 pund. Timothy, 2 pund. Meadow Fescue, 2 pd. Western Rye, 5 pund. Kentucky Blue, 3 pd. Alsike Clover, 2 pund. Til beitar á hálendi — Brome, 8 pund. Western Rye, 4 pund. Alfalfa, 4 pund. English Blue Grass, 8 pd. Red Clover, 6 pund. Timothy, 4 pund. 1 uppþurkuð flóalönd myndi vera einna heppilegast, að sá Brome Grass, Western Ilye Grass eða Red Top, og ætti að hafa eftir því meira af Red Top, eftir því sem blautlend- ara er. Western Rye má sumstaðar fá með mjög sanngjörnu verði, svo mikið er ræktað af því i Vesturland- inu. Til dæmis má nú fá um 14 tons af þvi hjá Mr. Alex Murray, Jr., og Mr. Joseph Murray, Graysville, Man., fyrir 8 cents pundið, og er það góð tegund, sem þeir hafa. Eg verð að játa, að þetta er að eins ágrip af þvi, som eg hefði vilj- að skrifa, ef tími og rúm í blaðinu hefði leyft; en svo er bændum vel- komið, að spyrja um sitthvað í sam- bandi við þetta, sem eg hefi ekki skýrt nægilega, eða slept úr, og skal því svarað siðar. II. F. D. Tímabærar bend- ingar. ---•-- Bændur ættu aS skrifa til Ex- perimental Farm, Ottwa, eftir bæklingnum “Seasonable Hints”. Þetta rit fjallar um búnatSar starf- semi fyrir vor-mánuðina (marz, apríl, maí og júní). Hér eru aSal- atriSin: 1. “ArSsöm framleiSsla”, eftir J. H. Grisdale, yfirmann. 2. “AS kaupa fóSurbætir”, eftir F. T.Shutt, efnafræSing. 3. “KvikfénaSur (hestar, mjólk- urkýr, sláturgripir, kindur og svín), eftir E. S. Archibald, sérfræSing í kvikfjárrækt. 4. “FóSur plöntur” (Forage Plants), eftir M. O. Malté, sér- fræSing. 5. “Akuryrkja og komrækt”. 6. “Plöntu sjúkdómar”, eftir H. T. Gussow, sérfræSing í grasa- fræSi. 7. “GarSrækt, aldinarækt” o. s. frv., eftir W. T. Macoun, sér- fræSing í Horticulture. 8. “Bíflugur”, eftir F. W. L. Sla- den, bíflugna sérfræSing. 9. “Hænsnarækt”, eftir F. C. El- ford, sérfræSing. ÞaS kostar ekki svo mikiS sem frímerki, aS eignast þetta rit. — SkrifiS til Central Experimental Farm, Ottawa, og setjiS: ‘‘O.H.M. S.” á horniS á umslaginu, í staS frímerkis. Næsta eintak verSur gefiS út í júlí, og ræSir þaS um starfsemi bænda yfir júlí, ágúst, september og október. —B.— Skólastjórar og barnakennarar. •------ Lesið greinarnar, sem era að birtast í “Æskulýðsdálkinum”. — Greinin (“Skólagarðar”) er íhugun- arverð. Hvað viljið þér vinna i þarf- ir unglinganna, sem þér hafið undir hendi? Ekkert barn verður góður borgari með því að eins að Jæra að lesa, skrifa og reikna. Þau þurfa iíka að læra að hugsa og starfa. Hér er að opnast nýr farvegur,, til full- komnari þroska fyrir yngri kyn- slóðina. —B.— Æskulýðurinn. — ^ Skólagarðar. (School Gardens). --•--— Hér fylgir dálitil skýrsla, sem sýn- ir. hversu iniki) framför hefir átt sér stað víðsvegar í Canada. Nú við- urkenna alJir, að “school-gardening” I sé einhver hcppilegasta aðferðin til ] að þroska skilning og fegurðar- smekk barna og unglinga. Jafnframt læra þau að vinna og njóta siðar á- 1 nægjunnar, sem góð uppskera vek- ur ætíð hjá ráðvöndum starfsmanni. Þau læra einnig að sameina krafta sína og vinna í sameiningu að þvi að ná vissu takmarki. Og skólalær- dómurinn sjálfur verður auðveld- ari, börnin verða áhugameiri og kappsamari, þegar þeim veitist tæki- færi til að neina á skólaárum þær námsgreinar, sem grípa inn í dag- lega starfsemi þeirra utau skólans. Þessi skýrsla er stutt ágrip af þeim, sem hvert fylki hefir gefið, á síðastliðnu ári. Stjórnin í hverju fylki launar að minsta kosti einn mann, til þess að sjá um og yfirlíta skólagarðana. 1 Nova Scotia gefur hún hverjum þeim kennara auka- laun, sem kann að stjórna garðrækl í sambandi við skólana. í sannleika ætti enginn karl eða kona að fa kennaraleyfi nokkursstaðar i Can ada (utan stórbæjanna), sem ekki hefir lært undirstöðuatriði akur- yrkju og garðræktar. Skýrsla Manitoba 1915. Alt af aukast áhugi og starfseini, bæði hjá kennurum, skólastjórum og börnum. Nærri því hver cinasti nýr skóli, sem byggður er, hefir um- girt leiksvið. Á Jeiksviðinu er vana- lega plægt, og skrauttré, skýlisbúsk- ar, garðávextir og blóm sett þar nið- ur. Margir gömlu skólarnir eru líka farnir að taka sig til. Langinesta framför er að finna í sameinuðu skólunum (ConsoJidated Schools). Skólastjórnirnar eru nú farnar að sjá það, að æskiiegt er að liafa skól- ana og skólavellina (playgrounds) eins vel prýdd og mögulegt er. Slæm veðrátta. — Þó að frostið i fyrra sumar skemdi allmikið, og þó að flestir skólar hafi fri yfir júlí og ágúst, þá voru þó skólagarðárnir fult eins góðir og heimagarðarnir í hverju héraði fyrir sig. Plestir kennarar eru nú hættir að “leika sér að garðrækt”, og stunda með al- úð þessa grein, sem héfir svo mikið mentalegt gildi, og sem flytur heimil- ið og skólana svo mikið nær hvort öðru. Skift niður eftir aldri. — Garð- yrkjan eins og bókalærdómurinn, skiftist e&lilega i deildir (grades). Barnið byrjar á einföldum atriðum, og Jærir þau til hlýtar. Svo bætir það við sig ár frá ári, unz það hefir lært meðhöndlun á mismunandi garðávöxtum, trjám og blómum. Eft- irfylgjandi skrá sýnir nokkurnveg- inn, hvernig deildaskipunin er: — I. Deild (Grade 1 til Grade 3). Garðávextir. Blóm: Radish. Nasturtium. Beans. Poppy. Peas. Candytuft. Beets (á eftir radish). Turnips. II. Deild (Grades 4, 5 og 6). Garöávextir. Blóm. Onions. Marigold. Carrots. Calliopsis. Parsnips. Eschscholtzia. Potatoes. Mignonette. Corn. Perennial blóm. Hveiti. Korntegundir. Hafrar. Bygg. Hver nemandi ætti að rækta tvær eða þrjár tegundir af hverju, og læra að gjöra það vel. ur fer á hverri viku, upprætir ill- grcsi, og gjiirir hvað annað, sem þarf til þess, að plönturnar dafni. Það sannaist þar, að margar hendur vinna létt verk, því hvert barn þarf kanske ekki að fara neina einu sinni, ef hóparnir eru nógu margir. Stundum lítur skólapössunarmaður- inn (caretaker) eftir görðuntun, og stundum borgar skólastjórnin di- litla uphæð þeim, sem vinna starfið. Stjómmál og garðrækt. Stundum er garðurinn kallaður “fylki” og hver reitur er kallaður “kjördæmi”. I hverju kjördæmi eru svo sveitir og aðrar smærri skift- ingar. Eigendur reitanna eru svo þingmenn, oddvitar, sveitarstjórnir, illgresis eftirlitsmenn, vegagjörðar- menn o. fl. Svo er byrjað að stjórna — og alt gengur eins og i sðgu. Börnin læra þarna að stjórna sér sjálf; læra að hugsa og venjast við fundarsköp, og op.nbera starfsemi, strax á unga aldri. — Þau verða meiri og betri borgarar fyrir bragðið. Uppskeran. Garðávextina má nota fyrir mið- dagsverðinn á skólanum. 1 þorpum og bæjum setja börnin upp markað, og selja vörur sinar. Peningunum er varið til að bæta skólann, og kaupa ýms nauðsynleg áhöld; eða þeim er varið i þarfir “Patriotic Fund” eða “Red Cross”. # * # Næst kernur skýrslan frá Saskat- chewan og þar næst frá Alberta. — Skólabörnin ættu að lesa þes»ar skýrslur vandlega, og færa sér þær i nyt. —B.— Til Stórtemplars. I Lögbergi 2. marz er kvæði eftir Sig. Júl. Jóhannesson með fyrir- sögninni: “Ekkjan og drengurínn hennar”. Ein visan er sem fylgir: “Ilann freistaðist, féll um siðir. fhin fékk það í Jólagjöf, að hagræða liðnu liki. Hann liggur í kaldri gröf, — hann liggur i kaldri gröf”. Var höfundurinii, ritstjóri láig- bergs, að hugsa um ekkjuna og barnið hennar, þegar hann var að hjálpa til að verpa Jólablaði Lög- bergs með brennivínsaugtýsing- unni stóru, sem kaupendur Lög- bergs fcngu í Jólagjöf? Var höfundurinn, ritstjórinn og stórtemplarinn, sem er einn og sami maðurinn, að hugsa um ckkjuna og barnið hennar, þegar hann var að hjálpa til þess að koma út og senda til ikaupenda Lögbergs, brennivins- bæklingnum, sem Liigberg hefir ver- ið að gefa út og senda út nú í sið- astliðna viku? III. Deild (Grades 7, 8 og 9 . Garðávextir. Korntegundir. Cucumber. Cabbage. Tomatoes. Corn (mismun- andi tegundir). Potatoes (mismun- andi ræktunar að- ferðir). Blóm. Hveiti. Hafrar. Bygg Grastegundir. Alfalfa. Timothy. Rye Grass. Millet. Clovers. Sweet Peas. Morning Glory Gaillardia. Aslers. Stocks. Húsblóm. Bulbs. Perennial blóm. Tré og Búskar Maple. Ash. EJm. Lilac. Honeysuckle. Caragana. Snowball. í sambandi við ræktun garðá- vaxta og korntegunda ætti að gjöra tilraunir og halda nákvæmlegar skýrslur. Mismunandi tegundir ætti að rækta til samanburðar. Hver nem andi ætti að í^ækta að eins fáar teg- undir, því hver lærir af því að sjá tilraunir, sem sá næsti gjörir. Mentamáladcildin hjálpar. Deildin gefur fræ, nýgræðinga og rætur, og einnig ýms áhöld til skól- anna. 1 fyrra gaf hún fylkisskólun- um sem hér segir: Germinations Testers, 960. Egg Testers, 250. Hveiti, hafra, bygg og maís, 7,500 smápakka. Kartöflur (3 tegundir) 1,800 böggla. Álfalfa (í smáskömtum), 2 bush. Tré og runna, 4,950 plöntur. Rætur af Perenniai blómuni, 600. Bulbs, 7,000. Einnig fræ af garðávöxtum og blómum, 8,000 pakka (á heildsölu- verði). Pössun á görðunum. Stærstu vandræðin eru vanalega þau, að fá garðana vel hirta yfir skólafríið. Ef ekki er litið eftir þeim þá fyllast þeir af illgresi, eða skepn- ur eyðileggja þá. En vanalega má bæta úr þessu Iif kennarinn er fjar- verandi, þá iná skifta börnunum i smáhópa, og takast þau á hendur að passa garðar.a, þannig, að einn hv/p- Eru allar þessar auglýsingar og bæklingar brennivínsmanna, sem Lögberg er að prenta nú upp á »íð- kastið, og gefa út, sendar til fólks- ins með því augnamiði, að fjölga ekkjum og munaðarlausum börnum? Eða álítur ritstjörinn, að Lögberg sé svo illa kynt orðið hjá fólki, sið- an hann varð aftur ritstjóri þess, að það hjálpi einu málefni, að Lögberg vinni á móti þvi? Gaman væri, að ritstjórinn og stórtemplarinn skýrði þetta fyrir fólki, þó ótrúlegt sé, að honum sé trúað framar. Goodtcmplari. ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ um heimilisréttarlönd í Canada og Norðvesturlandinu. Hver, sem hefir fyrir fjölskyldu aí já etSur karlmaöur eldri en 18 ára, get- ur tekiö heimilisrétt á fjóröung úr section af óteknu stjórnarlandi í Mani- toba, Saskatchewan og Alberta. Um- sækjandi eröur sjálfur aö koma á landskrifstofu stjórnarinnar, eöa und- irskrifstofu hennar í því héraöi. i um- botfi annars má taka land á öllum landskrifstofum stjórnarinnar (en ekki á undlr skrifstofum) meö vissum skil- yröum. SKYL.IMJR:—Sex mánaöa ábúö og ræktun landsins á hverju af þremur árum. Landnemi má búa me? vissum skllyröum innan 9 mílna frá heimilis- réttarlandi sínu, á landi sem ekki er minna en 80 ekrur. Sæmilegt íveru- hús veröur aö bygrgja, aö undanteknu þegar ábúöarskyldurnar eru fullnægrtí- ar innan 9 mílna fjarlægÖ á ööru landi. eins o& fyr er frá greint. í vissum héruöum getur góöur og efnilegur landnemi fengiö forkaups- rétt, á fjóröungi sectionar meöfram landi sínu. VerÖ $3.00 fyrir ekru hverja SKYLiDUR:—Sex mánaía ábúö á hverju hinna næstu þriggja ára eftir að hann hefir unniö sér inn eignar- bréf fyrir heimilisréttarlandl sínu, og auk þess ræktaö 50 ekrur á hinu seinna landi. Forkaupsréttarbréf getur land- nemi fengiö um leiö og hann tekur heimilisréttarbréfiö, en þó meö vissum skilyröum. Landnemi sem eytt hefur heimilis- rétti sínum, getur fengriö heimilisrétt- arland keypt í vissum héruöum. Ver® $3.00 fyrir hverja ekru. SKYLDURs-- VerÖur aö sitja á landinu 6 mánuöi af hverju af þremur næstu árum, rækta 50 ekrur og: reisa hús á landinu, sem «r $300.00 viröi. Bera má niöur ekrutal, er ræktast skal, sé landiö óslétt, skóg;i vaxitS etia grýtt. Búpening má hafa á landfnu 1 staö ræktunar undir vissum skilyró*'11- AV. W. CORY, Deputy Minister of the Interior- Blöö, sem flytja þessa auglýslngu leyfislaust fá enga borgua fyrir.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.