Heimskringla - 16.03.1916, Side 4

Heimskringla - 16.03.1916, Side 4
BIJS 4. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 16. MARZ 1916. HEIMSKKINGLA (StofnntS 1886) Kemur út á hverjum Fimtudegi. Títgefendur og eigendur: THU VIKING PBESS, LTD. VertS blatSsins í Canada og Bandaríkjun- nm $2.00 um áriti (fyrirfram borgaí). Sent til fslands $2.00 (fyrirfram borgatS). Allar borganir sendist rát5smanni blatS- sins. Póst etSa banka ávísanir stýlist til The Viking Press, Ltd. M. J. SKAPTASON, Ritstjóri H. B. SKAPTASON, RátSsmatSur Skrifstofa: 72» SHKRIIIIOOKK STRKKT., WINNIPKG. P.O. Box 3171 Tnlslml Garry 4110 Manitoba þinginu slitið. Þ-á er það á enda hið fyrsta þing undir stjórn Liberal flokksins um langa hríð i Mani- toba. Og það má segja um það, að það heflr verið eitthvert mikilvirkasta þing i fylki þessu. Þvi var slitið hinn 10. marz með vanalegum athöfnum. Mörg hin nýju lagafrumvörp, sem að kigum hafa orðið, eru ákaflega mikilsvarð- andi. Og þó að vér séum ekki af flokki Lib- erala, þá er oss ómögulegt annað en viður- kenna aðgjörðir þessarar nýju stjórnar. Mestu málin í vorum augum eru kvcnfrels- ismálin, bilingualmálin og vínbannsmálin. — Þetta eru svo yfirgnæfandi velferðarmál fylkis- búa, að þó að stjórn og þing hefði ekkert ann- » að gjört, en að korna þessum málum í það horf, sem nú er, þá hefði hún gjört vel og átt þakk- læti fylkisbúa skilið, af hvaða flokki sem er. Það eru náttúrlega hakar og snagar á öllum þessum málum, og hvað sum þeirra snertir hefir stjórnin æst upp á móti sér sína eigin flokksmenn. En hún hefir um leið unnið sér virðingu mikils fjölda af andstæðingum sin- um, sem eitthvað líta fram í veginn og ant er um heill fylkisins og velferð eftirkomandi kyn- slóða 1 kvenréttindamálunum á hún heiður skilið, fyrir það, að vera fyrsta fylkisstjórnin i Can- ada veldi, sem vei'tir kvenfólkinu þann marg- þráða rétt, og nú er það kvennanna hlutverk, að nota hann og nota hann réttilega. Tíminn verður að sýna, hvernig það gengur. Með vínbannslögunum, ef þau komast á, hefir stjórnin hrundið frá sér þeim hóp eða hópum manna, sem stundum hafa með róttu eða röngu verið sakaðir um, að vera greiðast- ir að 'leggja fram fé til þess, að kaupa atkvæði handa hvaða stjórn sem er; því að Bakkusi er alveg sama um það, hvað stjórnin kallar sig; hann er æfinlega með hundinum, sem ofan á liggur, æfinlega með valdinu og hnefanum. En nú segir stjómin við hann: “Farðu burtu, kunningi, eg ætla ekkert að nota þig framar’’. 1 báðum þessum málum er allur þorri ís- lendinga einhuga með stjórninni, — náttúrlega með einstöku undantekningum. — Þegar þetta er skrifað er “referendum” eða vínbannsmálið ekki útkljáð; en menn geta ekki sagt annað, en að stjórnin hafi heiðarlega uppfylt loforð sín, þó að vér hefðum gjarnan kosið, að konurnar hefðu fengið að greiða atkvæði. 1 bilingual-málunum hefir stjórnin skilið hina miklu nauðsyn, að halda saman og gjöra að einni heild þessi ótal mörgu þjóðabrot, sem hér eru samankomin og sem mundu magna þann eilífðar eld og ófrið innbyrðis, ef að hver þjóð hefði tekið þann kost, að halda uppi sinni eigin tungu, að hér hefði lostið upp sama bálinu, sem í Evrópu hefir haldið hatrinu si- vakandi, bæði i heimahúsum og sveitum, á þingum milli flokkanna og mUli hinna mörgu smáu þjóðflokka, sem hver vill ríða annan niður og hatar hver annan til dauðans. Og með því myndi fylgja afturför svo mikil i allri menn ingu, að meginþorri fólksins yrði að skril ein- um, alveg eins og vér sjáum i hinum lökustu og lélegustu pörtum Evrópu. Allar framfarir myndu hætta, og eftir 100 eða 200 ár myndu eftirkomendur vorir standa menningarlega litlu framar, og að öllum líkindum aftar og neð- ar í stiga menningarinnar en nú. Menn hafa horft á þessi dæmi í sögu mannkynsins. Og þetta er svo mikið nauðsynjamál, að þó að eitthvað af sveitum stjórnarinnar snörist á móti henni, þá ættu aðrar nýjar að koma i staðinn Mörg önnur góð lagafrumvörp hafa að lög- irm orðið, og verða sum ekki með sanngirni dæmd, fyrri en að búið er að reyna þau, hvaða árangur þau hafa. Þá hefir og stjórnin nýja, að minsta kosti sumir ráðgjafarnir, svo sem landi vor Hon. Th. H. Johnson, staðið með Bretum að málum, og teljum vér það mikilsvirði, og því meira því betra, þvi að þeirra hagur er vor hagur, og þeirra velferð er vor eigin velferð og alls þessa lands. Þá eru fjárhagsmálin eftir, en þau förum vér ekkert út í; þar verður timinn að sýn^ hvernig meðferðin hefir verið. Hermennirnir, sem heim koma. —o--- Þeir eru tveir komnir heim, að eins tveir, báðir særðir, báðir með heiðri og sóma; báðir hafa þeir verið i þessum hrikaleik, sem er svo stórkostlegur, að aldrei hefir neitt slíkt fyrir komið á jörðu þessari, — svo stórkostlegur, að hans mun minst verða meðan heimur verð- ur bygður, og um hann ritaðar sögur um allan heim, á öllum tungumálum þjóða þeirra, sem nú eru mentaðar og hér eftir mentast; því að vér vonum, að þetta verði hinn siðasti slagur þjóðanna. Og víst er um það, að eftirkomend- ur vorir munu spyrja eftir þeim forfeðrum sin- um, sem i hriðum þessum voru, i marga liðu, spyrja um, hverjir féllu og hverjir særðust og hverjir heim komu og hverjir sýndu hugrekk- ið mest. Og þeir munu spyrja, hvernig þeim hafi liðið eftir heimkomuna; hvaða heiður þeim hafi verið sýndur af þeim, sem heima sátu; hvaða hjúkrun iþeir hafi fengið, sem heim komu; hvernig móttakan hafi verið, þeg- ar heim kom. — Það verða eftirkomendur þeirra, að 50 eða 100 árum liðnum, sem vilja vita þetta. Þeir vilja vita um þetta, eins og það hrífur huga þeirra, að heyra, hvað ódeig- ir þeir hafi lagt alt í sölurnar og gengið dauð- anum móti í öllum sínum voðalegustu mynd- um, fyrir landið, fyrir frelsið, fyrir réttlætið, fyrir mannkynið og komandi velferð þess, — fyrir alla þá, sem heima sitja. Tveir eru þeir nú komnir heim. Um hinn fyrra, Mr. Sigurð Goodman, gátum vér þegar hann kom. Hann var einn i hinum fámenna hóp, er stöðvaði Þjóðverja við Ypres eða Langemarck, þegar þeir spúðu eitrinu i fyrsta sinni. Særður var hann, en enginn landi og ekkert félag var til að taka á móti honum, þeg- ar hann kom hér á járnbrautarstöðvarnar. Enda vissi enginn um hann fyrri, en hann var kominn. Nú kemur annar, Mr. Gunnlaugur Hávarðsson, frá Siglunesi, særður, og hefir mist aðra hendina; og eins og hinn fyrri á hann ekkert skyldfólk hér í borginni, og landar yfirleitt vissu ekki, að hann var á ferðinni, og enginn var til að taka á móti honum af löndum hans, nema einn ungur maður er hann hafði kynst hér. Það er, sem allir vita, félag hér til að taka á móti heimkomnum hermönnum, — Canadian Relief Association for Returned Soldiers. En það er enskt en eikki íslenzkt. Hermennirnir eru allslausir, þegar þeir koma; kanske sjúkir, illa klæddir og peninga- lausir. Allir þeir, sem fatlaðir eru, fá náttúr- lega lifeyri hjá stjórninni, — eitthvað $20.00 á mánuði. Þeir vita ekki, hvert þeir eiga að snúa sér, og það líður oft nokkur tími, þangað til það er alt komið í kring. Að menn hafa ekki gjört ráð fyrir þessu, kemur ekki af þvi, að yngri eða eldri, konur sem karlar, taki ekki þátt í ölum þessum þrautum, heldur af því að þetta befir komið flatt upp á menn. En eftirleiðis fer það að lagast; því að vér höfum frétt að íslenzkar konur séu að mynda félag tii þess að takn á móti öllum íslending- um, sem heim koma úr stríðinu; leiðbeina þeim og hjálpa þeim á einn eður anium hátt, þangað til þeir komast til skyldmenna sinna, eða fá lífeyririnn frá stjórnmn1. Enda verður þess enn þá meiri þörf eftirleiðis, þar sem ís- lendingar eru nú að ganga í herinn hundruð- um saman, í staðinn fyrir nokkra tugi, sem áð- ur var. Sem stendur getum vér ekki auglýst nafn félagsins, en vonum að geta það i næsta blaði. Vér sáum ekki Mr. Gunnlaug Hávarðsson og getum því ekki flutt lesendum blaðsins neinar sagnir um hann; en hann misti hægri hönd- ina fyrir ofan úlflið, og var sprengikúla orsök í því, eins og frá var skýrt i síðasta blaði. En litið hefir maðurinn dignað við það, því vér heyrum sagt, að hann myndi fús til að fara í herinn aftur, og kveðst margt geta gjört á víg- völlunum, þó að önnur höndin sé farin. Af þeim Sigurðsson-drengjum tveimur og hálfbróður þeirra Davis (Sigurðsson-drengirn- ir eru synir Sigvalda pósts, er var í N.-lslandi, en er nú i Winnipeg) höfum vér heyrt. Þeir eru á vígvöllunum. Enskur maður hér úr Winni- peg kom særður heim og þekti þá og hafði séð þá á Frakklandi. Var hann spurður um þá og hvort þeir væru lifandi. En hann hafði brosað og sagði að þeir væru óragir og kynnu ekki að hræðast, og slíkum mönnum fleyttist lengur en flestum öðrum. Það væri eins og ekkert gæti grandað þeim. Verdun-slagurinn. —o— Orustan við Verdun er að verða hin mesta og grimmasta orusta heimsins. Hún byrjaði 21. febrúar og nú er 13. marz, þegar þetta er ritað. Alt, sem Þýzkir hafa upp úr henni haft, er mílu til tveggja mílna spilda, á tveimur til þreinur stöðum, af urð einni, þar sem hverjum íerhyrndum faðmi er upp rótað, átta og tíu fet niður; en fyrir það hafa þeir látið tvö eða á þriðja hundrað þúsund manna Þeir hafa enga vitundarögn haft upp úr þessu, því að hergarð- ur Frakka er óbrotinn, og væri jafn-óbrotinn, þó að þeir næðu öllum virkjunum í kringum Verdun. Og það er ekki fyrir það, að þeir eru nú enn að berjast þarna, heldur til að sýna, hvor er betri hermaðurinn, Þjóðverjinn eða Frakk- hvaða maður óragur myndi fara að hlaupa suður til Bahama eyjia, eins og Walter Scott hefir gjört, einmitt sama daginn og uppljóstra átti fyrir rannsöknarréttinum sökunum um Æskuminningar. Eftir Önnu Torlacius. (Eimreiðin). inn, þegar maður mætir manni. Það er stoltið og stærilætið Þjóðverja, sero ekki þolir það, aö múturnar á hendur sjö stuðnings- Veizlusiðir, dönskuslettur, þjónustu- mönnum hans, og það daginn eftir brögð o. fl. nokkur maður í heimi sé þeirn jafn snjallur. Þeir þóttust geta rutt Frökkum frá sér sem sveinstauhim litlum. En nú haía sveinstaularn- ir frönsku mætt hinum stórvöxnu berserkjuni Þjóðverja, og hrundið þeim af höndum sér i látlausum þriggja vikna slag. Þeir hamast Þjóðverjarnir; þeir nota aillan sinn lærdóm, alla sín herkunnáttu; öll sin voðalegu fail- byssu-bákn, 12 þumlunga, 15 þumlunga o*g 17 þumlunga víðu Skoda-faHbyssur; loftið verður sem eldhaf eitt; öll jörðin rótast um sem þús- undir hvera gjósi upp, brjóti björgin og spúi aur og grjóti. Brynjaðir, hjálmvarðir renna Þýzkir á í þéttum röðum og margföldum. En sveinstaularnir frönsku rísa upp og renna . móti þeim, og snúa þeim aftur, sem eftir lifa. Þetta þola þeir ekki hinir þýzku; virðing þeirra er á förum; ægishjálmurinn ógnar nú hvorki Frökkum né Bretum, eða Rússum eða Belgum eða Canada mönnum_____En heirna fyr- ir gráta konur og systur og dætur hinna föllnu manna og sjá nú, að siigurvonin er að hverfa, en hungur, sultur og harmur legst yfir alla hina þýzku þjóð. ------o------ Scott-Calder stjórnin verður ad fara! —o— Áskorum til Saskatchewan búa frá mikils- metnum manni í Liberal-flokknum. (Tekið úr Evening Province, Regina). “Eg skora nú á alla dugandi drengi i Sas- katchewan. En liðleskjur þurfa ekki að gefa sig fram, því að verkin krefjast einarðra manna með siðferðislegu þreki og áræði. Þeir, sem gefa sig fram til bardagans, mega búast við • ofsóknum frá stjórninni, sem nú ræður yfir fylki þessu, sem ofsótt hefir hvern einasta mann, sem orð hefir mælt á móti Scott-Calder klíkunni. Það er alveg hið sama, hvort þú ert Liberail, Konservatíve, óháður, Sósialisti eða í flokki verkamanna. Ef að nokkur dugur er i þér, þá mátt þú ekki daufheyrast við áskorun þessari. Teningunum er kastað; baráttan er hafin, og málin, sem um er að ræða, eru ákaf- lega mikilsvarðandi. “Of lengi höfum vér aðgjörðalausir setið og gengið að þvi sem sjálfsögðu, að stjórnmál fylk- isins væru i góðum höndum. Of lengi hafa menn látið sér nægja, að sinna sinum eigin störfum, og látið sig engu skifta, hvernig menn þeir voru, sem héldu stjórnartaumunum í þessu fríða fylki. Vér erum erlendis í stríði. Er þá ekki tími til kominn, að vér hreinsuðum til heima fyrir? Ef að vér látum svívirðingu þessa heima hjá oss halda lengur áfram, þá verður það til eilífrar smánar óg ósóma fyrir hvern einasta karl og konu í fylki þessu. Synir vorir og bræður eru að berjast á vig- völlum Evrópu fyrir fylki þetta. En að hverju gagni kemur öll þeirra barátta, ef að rænd og sópuð er fjárhirzlan heima fyrir, og konur her- mannanna og börn þeirra, ásamt öllum öðrum borgurum landsins, þurfa að líða og bera auknar byrðar fyrir illa meðferð fylkisstjórn- arinnar hér á opinberu fé. “Hvaða þýðingu hefir það, að kalla þetta iand frelsisins, þar sem annað eins framferði eða athæfi er liðið, og það, sem öllu þinginu var til svívirðingar á fimtudaginn 2. marz? — Eiga menn óhindrað að hafa leyfi til, að sví- virða undirstöðu réttlætisins og frelsisins, sem synir vorir og bræður eru að berjast fyrir á vig- völlunum í Flandern og á Frakklandi? Á mönn- um óátalið áð líðast þessar svívirðingar i þing- sölum fylkisins? Eiga svívirðingar við karla og konur í Saskatchewan að vera óátaldar? “Á Það að þolast, að borgarar fylkisins séu rændir æru og sóma á ræðupöllum þingmann- anna? Ef menn láta það viðgangast, hvað þá um grundvöll laganna og réttarfarsins? Hvað líður þá tryggingunni fyrir lífi og eignum manna? Þú eða eg, eða hvaða borgari sem er, kann að verða hinn næsti, sem fyrir þessu verður, — enginn veit hver. Getum vér virki- lega þagað lengur og verið þessu samþykkir? Mannorð hvers ærlegs og neiðarlegs manns er honum helgara og meira virði, ein líf hans; en alt fyrir það, kemur stjórnarformaður fylk- isins fram á ræðupalli þingsins, og undir vernd forréttindanna sem þinginaður og leggur út í hina svívirðilegustu árás á mann þann, sem ekki var einn af þingmönnunum,— út i árás þá, sem aldrei hefir verið gjörð önnur eins á þingi þjóðanna í nokkurri af hinum víðlendu eign- um Breta. Ef að Mr. Scott fanst hann hafa sök á hendur Rev. Murdoch McKinnon, — hví gat hann þá ekki skriðið fram unadn verndar- væng þingsins, og hafið opinbera árás, svo að mögulegt hefði verið, að kalla hann fyrir lög og dóm, og Iáta hann sanna áburð sinn eða þola sektir fyrir? Hann stærði sig af hugrekki sínu — en framkoma hans lýsir bleyðuskap. Eða að hann hóf persónulega árás á einn hinn fremsta borgara fylkisins? —■ Og hefði sú árás ekki verið gjörð undir vernd þinglaganna, þá hefði hann verið brotsekur fyrir æru- og mannorðsþjófnað. Er þessi fram- koma hæfileg hugrökkum manni? Eg tek það aftur fram, — hvað þýðir það, að berjast fyrir að vernda föðurlandið, ef að menn eru svo ómerkilegir, að láta aðra eins rnenn stjórna sér, með öðrum eins ráðgjöfum og stuðningsmönnum þeirra, sem sátu í hvyrfing um hann á þingbekkjunum og voru hon- um meðsekir, með því að gjöra góð- an róm að máli hans? Og óvirðing er það fyrir allan Liberal flokk fylkisins, að enginn þingmannanna skyldi hafa inann- skap i sér til að mæla með einu orði á móti því, er hann sagði. Og menn þeir, sem á þinginu sátu og studdu árásina á síra M. McKinnon, hafa fyrirgjört rétti sínum að sitja á þingmannabekkjunum í augum allra ærlegra karla og kvenna. Þeir hefðu eins vel mátt binda mann á höndum og fótum og berja hann svo til ó- bóta eins og að gjöra sig seka í þannig löguðu framferði. En hví eru menn að stæra sig af sanngirni og réttlæti Breta, og við- hafa svo þessa aðferð, að hlaða ó- sóma og ákærum á síra M. McKin- non, — á mann þann, sem varð fyrir því, að fellibylur braut og eyði- lagði hús hans í borginni; en þrátt fyrir það hirti hann ekkert um eig- in hagsmuni, en starfaði i þess stað nótt og dag að því að hjálpa rnönn- um, sem skaða höfðu beðið, eða sjúkir og meiddir eða hungraðir ir voru; — hlaða ákærum á mann þann, sem með kurteisi og góðum verkum hefir áunnið sér ást og virð- ingu allra flokka mannfélagsins, — þó að hann sýndi hugrekki sitt með þvi, að reisa andmæli móti rangind- um þeim, sem fólkið í fylki þessu varð undir að búa? Hve mikið lengur eigum vér að þola stjórn þá, sem hefir svo sljófg- aða siðferðistilfinningu, að þetta og annað eins fer fram undir verndar- væng hennar? Nú eru undirtyllurs- ar á ferð og flugi inn í holur sinar, eins og rottur unadan brennandi strástakk. Eigum vér nú að fara að elta uppi og hegna undirtyllunum, en láta stjórnina sleppa undan hin- um logandi eldi alinennings álits- ins, sem fyrst núna er farið að rumskast? Eigum vér að láta for- sprakkana sleppa i sólskinið og lysti garða sumarbústaðanna. Eiga konur og karlar fylkis þessa, með rauðu blóði í æðum sínum, að liggja undir svívirðingunni, sem ekki einungis snertir sira M. McKinnon, heldur hvern einasta karl og konu í fylki þessu? Eg er Liberal, æfilangur Liberal, borinn og barnfæddur í South Ox- ford, kjördæmi Sir Richards Cart- wrights. Enn þá er eg Liberal; en eg vil ekki, að neinn bendli nafni því við stjórn þá, sem kend er við Scott í fylki þessu. Þeir hafa brotið af sér réttinn til þess að kallast Lib- eralar, — brotið móti hinum fyrstu grundvallarsetningum Liberala. Scott-Calder klíkan verður að faral Hreinsunartiminn er fyrir hendil G. //. RARR. * * * Eins og að framan er sagt, er höf- undur greinar þessarar einn með hinum fremstu Liberölum i Saskat- chewan. Þessi grcin var rituð áður en aðalkærurnar á Scott stjórnina voru bornar fram í þinginu, og mun honum og öðrum rétthugsandi Lib- erölum finnast enn meiri ástæða nú en í marzbyrjun til að steypa þess- ari stjórn af stóli, sem svo gjörsam- lega hefir brugðist trausti lamenn- ings eins og allar líkur benda til, sem þegar eru fram komnar.—Ritstj. 1 veizlum var ætið sunginn borð- sálmur á undan máltið, þegar búið var að bera inn fyrsta réttinH, sem oftast var kjötsúpa með kjötsnúðum. eða þá hrísgrjónagrautur og smjör ofan i og með kanelsykri og rjóma út á. Þarna varð maður að mæna a blessaðan matinn, svona góðan, með an söngurinn hljómaði i eyrunum. Man eg að í þann tið var mér nóg boðið með slíkum heilagleik. Svo kom steik eftir grautinn, með gul- rófustöppu og smjöridýfu. Eg var X ára, þegar mér var boðið i fyrstu veizluna, og var hún haldin i Krossa nesi, þvi þar áttu brúðhjónin heima, hjá sýslumannsekkjunni, ömmu Stefáns læknis í Aars. Siðast var höfð “toppkaka”, og var þar “butter- deig” með “syltu” (sætkvoðu á milli. Ekki féll almenningi vel þessar þunnu soðsúpur (‘klár’ súpa) með snúðum í, svo að bæði maddaman í Krossanesi og móðir mín voru farn- ar að hafa grauta eða sætsúpu og það rann út. Þá voru ekki leifar á ‘talerkunum’. Menn nefndu diska oftast ‘talerka’ þá, af þvi að prests- konan á Setbergi gjörði það; en hún hafði alist upp í Rvik. Einnig nefndi hún matbaunir aldrei annað en ‘ert- uF, og þess vegna urðu aðrir að gjöra það, úr þvi að prófastskonan á Setbergi gjörði það. Þá var og sagt að ‘dröja af’ i staðinn fyrir að tvi- læsa. Mér var ætið lofað einu sinni á vetri fram að Setbergi, til að leika við Siggu og Mettu. Og þá kunni eg ýms orð og var hreykin af. En það minkaði, er faðir minn heyrði þau. Því hann bannaði mér stranglega þessar dönskuslettur. Varð eg þá sneypt og þorði aldrei að taka mér dönsk nöfn i mwnn framar. Er mér ckki þakkandi, þó eg haifi lagt mig nokkuð eftir móðurmálinu, þvi sann arlega innprentaði hann pabbi okk- ur það, eins og annað gott og fagurt. Ekki er mér Ijóst, hvernig orðið ‘jirjór’ hefir koniist inn i málið, né heldur af hvaða stofni það er runn- ið. En mjög var það viðhaft i ung- dæmi mínu, og lengur fram eftir æf inni. En nú er það löngu dottið úr sögunni og heyrist aidrei. Það var fremur játandi en neitandi, mitt á milii já og nei. T. d. var eitt sinn komið á glugga yfir rúmi síra Jóns Hjaltalíns á Breiðabólslað og guðað. Hann spyr, hver sé úti. Sá kvaðst heita Guðbrandur og biður prest að ljá sér kvenmann. Afi spyr, hvort honum sé sama, hver það sé. — Nei, ekki alveg, því hún eigi að sitja yfir konunni sinni, og vill þvi helzt að það sé inaddaman. Hún sat yfir öll- uin konum á Skógarströnd. Amma fór að búa sig og rauk af stað. Svo fæddist barnið og gekk það vel að vanda. Kveiimann hafði sængur- konan við niðriverk, og var það systir bónda. Um kveldið kemur hún upp á skörina og spyr húsfreyju hvað hún eigi að kasta mörgum hnefum út á pottinn. “Æ, eg veit ekki”, segir hún, “annaðhvort ein- um eða tevimur. Hin segir: “Hvort á það heldur að vera einn eða tveir?” Þá svarar sængurkonan : “Og jirjór, heldur ertu ýtin með þetta; vertu nú ekki að ‘djels djell- anum’ þeim arna, og láttu það þá vera einn”. Fór þá matsedja ofan og amma á eftir og segir að hún megi ekki tala neitt við húsfreyju, sem henni mislíki; og spyr, hvort hún sé naum á matnum. “Og jirjór”, segir hin, “fremur finst mér hún nápinu- leg í öllu”. Og svo bætir hún við: “Þetta er ekki matur að bjóða mad- dömu, mjölmjólkin sú arna; þvl að það er jafnt í pottinum af mjólk og vatni, og út á þetta eiga að koma tveir hnefar af rúgmjöli”. — Þá var ekki bankabygg haft um hönd, nema einstöku sinnum, því lítið fluttist inn af þvi og það var dýrL Amma mín varð vist fegin, er vikan var bú- in, þvi það var vani hennar, að fara ekki heim fyr en hún var liðin. — Hjón þessi voru ekki fátæk, og þó varð amma mín að senda föt utan um barnið. En væri mikil fátækt á þessum barnaheimilum. tók hún börnin heim með sér, og lét þau vera í viku, unz konan var komin á föt. Þegar fólk kom til að verzla, var það vani, að gefa öllum kaffi. Og þá hrækti fólkið beint á gólfið. En cr það tók eftir svipbrigðum á and- liti föður mins, þá setti það tán i of- an á hrákann, og jóðlaði svo til og frá, svo að ekki sæist lirákinn, Þá man eg að pabbi sagði: “Nú, ætlið þið að fara að mála, á fóturinn að gilda sem pensill? Þið ættuð heldur að láta hrákann liggja kyrran”. — Þetta hreif og þeir hættu þvi. Þá sagði hann frá hrákadalli, og að all- ir ættu að hafa ilát til a^S spýta í. Enginn aðhyltist þó þetta, nema ein- ir tveir; þeir sögðust seinna vera búnir að ' smíða spýfabakka, en hæddust þó að því um leið. Ekki var siður neinstaðar að berja

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.