Heimskringla - 16.03.1916, Síða 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. MARJ? 1916.
Fréitir ur Bænum. Til sölu eða leigu.
¥> Scction unigirt gott heyland,
... * , . | góður sk-ógur, með byiggingum, %
, .i. . osi p i i oor.von, ogma ui cr mjju fr,-, fiskivatni, 6 mílur frá járn-
, borgiinm, cr m, gcng.nn . 223, Bat-! braut( . u, lei eða sölu eða leigu.
láhon (skandinav.sku hcrde.ld.na), ] sk.gfía fasteignaskifta j ve8tur.
og fer ut til Morden og Brown P.().. t ,
. . ... . , Dænuni.
á fimtudaginn cða föstudaginn .
þess-ari viku, til þess að safna liðs-
mönnitn. fyrir þcssa herdeild.
1642
25-27.
E. EGILSSON,
Ariington St., Winnipeg.
Phone: St. John 953.
Um þessar mundir leggur af stað |
héðan úr bænum Pt. Stefán Fr. Sam- \
sonson. Hann gekk í herinn i haust!
er leið. Hann hefir húið i Winnipegj
píðan í fyrra. Fer nú áleiðis til vig-
vallarins. Fjölskylda hans verður j
hér í bœnum. Stefán er uppalinn i
N. Dakota, sonur Friðbjörns Samson
bónda og eitt sinn við verziluji á Ed-
inborg. Hann er úr N.-Þingeyjar-
sýslu. — St. Sativ>on biður Heims-
kringlu að bera foreldrum sínum og
írændfólki beztu kveðju, og vonast
til að eiga eftir að sja frændfólk sitt
þá slríðinu er lokið.
Dr. ólafur Stephensen hér i borg
er nýgenginn í 197. Battalion (Fon-
seca deildina), sem herlæknir fyrirj Voru þeir orðlagðir fyrir háttprýði
jþá Battalion. Qg snyrtimensku. Lieutenant-Golonel
Liðsdráttar fundurinn.
Hann var háldinn, sem til stóð í
Goodtemplara salnum á Sargent Av.
Var húsið troðfult af fólki og hart
að fá sa>ti niðri. Söngurinn og hiljóð-
færaspilið var ágætt, og voru allir
kailaðir tvisvar fram. — Ræðurnar
fluttu þessir, sem auglýstir voru, og
fór það vel fram. Hon. Th. H. John-
son stýrði fundinum, og var einnig
einn af ræðumönnum. Var mönnum
nýnæmi að heyra Dani tala á opin-
berum fundum, því að vér höfum
litið samfélag átt með þeim hér
vestra. En heima þektum vér þá og
Um daginn var hér á ferð Skúli
Ooodman, frá Wynyard P. 0. Fór til
Dakota. Með honum kom til borgar-
Innar Wilii Steverison, frá Wynyard.
l.étu þeir vel af öllu syðra og biðja
ifkr. að bera kveSju sína til kunn-
ingjanna þar.
Þeir bræður B. B. Johnson og J.
II. Johnson, Gimli, voru á ferð ný-
skeð í bænum. Þeir hafa stundað
fiskifang í vetur að vanda. B. B.
Johnson var á Mouse Island, an J.
B. Johnson á Dog Head. Þeir töldu
afla sinn tæplega meðal vetrarafla,
og eru þeir þó vanir og duglegir við
aflastörf.
Alhrechtsen er maður gjörvilegur og
góðlegur að sjá. Allir fóru ánægðir
af fundimim og var góður rómur
gjörður að tölum manna.
Nýlega var Kristján kaupm. Thoin-
as, Hecla P. 0., á ferð hér. Hann lét
veJ af aflabrögðum þeirra bræðr-
anna í vetur. Krisrtján og Gunnar eru
'kaupmenn í Mikley, og afla og
kaupa fisk.
Glej-mið ekki að koma á opinn
skemtifund, sem haldinn verður á
Árborg, mánudaginn 20. þ. m. ki. 8
e. m., undir umsjón Goodtemplara.
Þar verður fluttur fróðlegur fyrir-
lestur með myndum (Lantern Slid-
cs). H. F. Danielsson talar um Æsku-
lýðsfélög. Aðrar skemtanir: Upp-
lestrar, söng.ir og Árborg Orcliestra.
Ko-.iið ni’ ' mtglingnna. Þaft kostar
\ öur ekkeri.
Fögnum þessum degi!
Það er 1. dag júnímánaðar 1916
sem hann skal í gröfina lagður kon
ungurinn Bakkus, sem hér hefir svo
lengi ríkjusn ráðið.
196 vínsölustofum í hótelum verð-
ur lokað þenna dag i Manitoba. Þar
af 67 í Winnipeg borg einni.
1,975 staupadrengir (Bartenders)
tapa þá vinnu hér í fylkinu.
7 klifbbar tapa vinsöluleyfi.
40 heildsölu vínsölubúðum verður
lokað.
7 “Breweries” verður lokað.
En þessi dagur, hinn 1. júní 1916
verður upphaf nýrrar aldar fyrir
fylki þetta, — hreinni, fegurri og
betri, þegar menn elta færri villu
ljósin og hafa fyllri og jafnari not
hæfileika sinna til sálar og likama.
Vér ættum allir að fagna þeirn
degi!
Bjarmi, Bandaiag Skjaldborgar-
safnaðnr, er að undirbúa samkomu,
sem er ákveðið að verði haldin 4.
apríl næstkomandi.
Mr. S. G. Magnússon i Keewatin,
Ont., óskar að komast í bréfasam-
band við einhvern liðlegan mann,
sem þarf atvinnu fyrir sumarið
(segjum i 5 mánuði), og er vanurj
#iskiveiðum. Hvcr, sem vill sinnaj
þessu, snúi sér til hans sem allra!
#yrst.
Box 73, Keewatin, Ont., Can.
Systurnar bjóða aHa íslenzka Good-
lcmplara á Skuldarfund í næstu
viku, 22. marz. En sérstaklega er
óskað eftir öllum þeim bindindis-
hræðrum, sem hafa innskrifað sig
til herferðar, og eru nú staddir í
Winnipeg. Ættu þeir að koma á
fimdinn stundvíslega kl. 9. — Sam
gteðjisl allir, stór signr er nnninn!
Tímaritið Íðunn’.
Það, sem rnér var sent af ‘Iðunni
tii útsölu er nú þegar uppgengið.að
heita nrá, og get eg því ekki afgreitt
nema fáeinar smærri pantanir fyrri
cn nrér verður sent nieira af ritinu
að heiman, og auglýsi eg það á sin
um tíina. Þá utanbæjarnrenn, sem
hafa fengið ritið frá mér, en ekki
borgað fyrirfram, bið eg að senda
andvirðið sem fvrst ($1.00). Og út
sölumenn mína bið eg svo vel gjöra
að senda inér sem fyrst óseld eintök
sem þeir ekki búast við að geta selt
Stefán Pétnrsson,
696 Banning St., Winnipeg.
Munið eftir Tombólunni og dans
inum, sein djáknanefnd Tjaldbúðar
safnaðar ætlar að hafa fimtudaginn
23. marz í Goodtemplarahúsinu. Þ«r
verður góður hljóðfærasláttur og
dansað vel og lengi, og aðgöngumið
ar með einum drætti fyrir að eins
25 cents.
BIBLÍVF YRIRLES TUR
verður haidinn i 804 Vá Sargent Ave.
(miiii Arlington og Alverstone St.)
firnttidaginn 16 .marz kl 8 síðdegis.
Efni: Biblitrú og vantrú, synd og
náð. Verður sérhver hólpinn í sinni
trú? — Sunnudaginn 11 marz kl. 4
e. h. verður umræðueínið: Merki-
legur spádómur ra-tist auðsýnilega.
Engillinn Gahriel skýrir sjálfur spá-
dóminn í Daníel 8. kap. Er spádóm-
ur þessi um vora tíma? Myndir sýnd
ar þessum fvrirlestri til skýringar.
— inngangur ókeypis. — Allir vel-
komnir.
Davið Guðbrandsson.
Kvenfélag Únítara ætlar að halda
skemti'samkomu 22. þ. m. i sam-
konuisal safnaðarins. Munið eftir
því, tapið ekki af því, ungir sveinar
og stúlkur. Þar verður margt
ferðum : Sala á bögglum með alls-
konar varningi og góðgæti, sem
gleður augað og hressir og lifgar
iíkama og sál, og getum vér ekki lýst
því nákvæmar, — en sá veit gjörst
sem reynir. Þar verða ræðuhöld,
söngvar, hljóðfæraspil og upplestur,
og svo talar hver við annan á eftir
og kaupir bögglana og selur þá, eða
býttar iþeim á eftir, eða gefur þá vin-
um sínum, sem honum eru kærastir.
Komið og vitið, hvort það verður
ekki gaman!
Bréf á Heimskringlu.
S. Hlíðdal (2).
S. T. Hördal.
Mrs. Victor Anderson.
Guðmundur Kr. Jónatansson.
G. J. Goodmundsson.
S. Johnson.
I )agbj ar.t ur G uðm u n d sso n.
Sigurður Guðmundsson.
Þrjú hin seinustu cru frá íslandi.
Eru að gjörast örlög köld
öldnum þjóðaböðli:
Bakkus með sín vélavöld
valt úr gyltum söðli.
S. J. Jóþannesson.
Nýútkomin IjóðmæJi eftir Guð-
mund ólafsson, prests á Hjalta-
bakka í Húnavatnssýslu. Gefin út á
kostnað ættmanna lians. Síra Rögn-
valdur Pétursson annaðist útgáfuna.
Birkinesið. Bréf tif Heimskringlu.
TIL SÖLU land á vesturströnd
Winnipegvatns, rétt fyrir norðan
Spanish Fork, 7. mar2 1916.
Til ritstjóra Heimskringlu.
Háttvirti herra! — Mér finst eg
Gimli (Birkinesið); xk rnílu sund- ekki geta látið það vera að senda þér
fjara; Ijómandi fallegt fyrir sumar- línu og láta þig vita, að eg er þér
bústaði. Upplýsingar fást hjá Gísla j mikið þakklátur fyrir blaðið Heims-
Srveinsson eða Stepben Thorson, j kringlu, þykir það svo skemtilegt.
Gimli, og hjá Joscph T. Thorson, c.o.
Campbell and Pitblado, Winnipeg.
Einnig þakka eg þér fyrir Jólablað-
ið. Allur frágangur svo snotur og
myndarlegur og á svo vel við mín-
ar hugmyndir. Að sönnu er eg ekki
kaupandi blaðsins; en nábúi minn
hefir það, en eg Lögberg, svo að við
lesum bæði blöðin. Og satt að segja
vil eg beldur Heimskringlu einu
sinni i mánuði, lieldur en Lögbcrg
vikulega.
Það eru fáein spursmál, sem eg
hefði svo mikið gaman af, ef þú
vildir svo vel gjöra að svara í þinu
heiSraða blaði.
Fyrst.—Hvað meina þessar skrípa
myndir, sem stundum hafa sést á 1.
bls. Lögbergs, rneð þenna stóra
þursahaus, og allur bolurinn visn-
andi niður á við? Þetta eru þó menn,
sem sýnist að Lögberg sé að hrósa
og flytur langa Jónsbókarlestra um
hæfileika þeirra og æfisögur?
2. Hvað meinar í sama blaði “nræl-
irar” hveitis? Eru það mældar tunn-
ur, hálftunnur, skeffur cða bushel?
3. Eru Liberalar samslags og
Repúblikanar hér? Eru Konserva-
tívar sama sem Demókratar hér? —
Skyldu LrberaLar þar norður í Oan-
ada vera sama slags pólitrskur flokk-
ur, eins og Liberalar sálugu voru
um tíma hér í Utaih? Eg veit ekki
það; en hitt veit eg og sé, að þeir
brúka sama tóninn, nefnilega, að
uppnefna þá, sem ekki eru af saina
sauðahúsi í pólitíkinni eða stjórn-
málunum, kalla þá afturhaldsmenn
og fleira; en sjálfa sig kalla þeir
framsóknarmenn. Hér áttu þeir það
nafn með réttu. Þeir voru hér reglu-
legir framsóknarmenn í orðsins blá-
snauðustu merkingu. Þeir sóttust
eftir að vera kosnir í embætti; helzt
til þess, að komast i fjárhirzlur bæja
og héraða og geta bruðlað fjármun-
um almennings, hækkað útgjöldin á
fólki og margt fleira. Hér reyndust
þeir alt annað en heppilegur stjórn-
málaflokkur. En nú er sú luklca feng-
in, að það er búið að blása þeim
burtu úr héraðinu.
Eg sá einu sinni í Heimskringlu,
að þú fékst ávítur fyrir þá Þýzku,
og þótti mér það meilkilegt, sérstak-
lega, að þú skyldir láta það í blað-
ið. Og fyrir það er eg þér mjög
þakklátur. Mér fanst þú sýna með
þéi svo mikla einurð og hreinskilni,
að annað eins álít eg að uppörfi
virðingu allra hugsandi manna, sem
unma frjálsum hugsunarhætti. Og
það get eg borið vitni um, sem les
fréttablöð a fleiri tumgumálum,
að Heimskringla hefir ekki ncfnt
nema lítið eitt af níðingsverkum
þeirra Þýzku. Enda væri það of-
langt mál. En samt hefir hún sýnt
lesenduin sínum skýrt og greinilega,
hvað þeir eru.
Hvað er kíló? Hvað er kílómetr-
ar? Hvað eru metrar? Hvað eru
býlar? Hvað eru bifreiðar? Gand-
reiðir hefir maður heyrt nefndar í
afgömlum lygaþvættingi, en aldrei
bifreiðir.
Þinn þénustu reiðubúinn,
Gísli E. Bjarnason.
!{.>(. Sf.
Svar. Kiló, af gríska orðinu
khilioi, sem þýðir þúsund. Kíló-
gram, sem órðið kíló vanalega stend-
ur fyrir, cr því þúsund gröm, eða
sem næst 2 pd. og einn fimti (2.205)
En kilómetrar eru 1000 rnetrar, eða
3280.89 fet., Einn meter er rúmir
39 þumlungar (39.37).
Býtl eða bíll er seinasta atkvæðið
í gríska orðinu automobil. Landar
heima hafa tekið seinasta atkvæðið
úr nafni þessu til þess að tákna
sjálfhreyfivagninn automobile. Þyk-
ir þeim það fallegt, en oss hér vestra
þykir það ákaflega ljótt og aldrei
heyrist það af vörum nokkurs
manns.
Bifreið er eiginlega kerra sem
hristist. Bifreið ætti að vera sama og
bilvagn. Sjaldan eða aldrei heyrast
þessi orð hér.
Gandreið er orrnsreið, því gandur
þýðir ormur (fornt).
Ritstj.
stjóra við Livcrpools-verzlun hér í
bænum og þeirra systkina_____Nýlega
er dáin í Ráðagerði á Seltjarnarnesi
Guðríðiir Þórðardóttir kona Odds
Jónssonar hafnsögumanns, en dóttir
Þórðar Jónssonar, sem lengi var í
Ráðagerði. — 2. þ. m. andaðist hér
í bænum Sigríður Jónsdóttir móðir
Jóh. Ögm. Oddssonar kaupm. — Ný-
lega cr diáinn Sigurður á Kristjáns-
son úrsiniður í StykkishóJini, áður
kaum. á ísafirði. — 16. f. m. andað-
ist á Tröð i Álftafirði vestra Jón
Jónsson, tengdafaðir Jóns Hjartar-
sonar kaupm. hér í bænurn. — 27. f.
m. lézt á ísafirði Oluf Andreasen
skipstjóri, norskur maður, er verið
hafði þar í bænum 20 ár og var um
tima skipstjóri á “Ásgeiri litla”. -
Nýl. er dáinn í Stykkishólmi Jón
Hildberg bókhaldari, úr lungna-
bólgu. — 3. febr. andaðist úr lungna
bólgu merkisbóndinn Stefán í Möðru
dal á Hólsfjölliun. — 11. febr. and-
aðist hér í bænum Jón Jónsson kaup
maður, er áður var í Borgarnesi.
Hafði liann lengi átt við vanheilsu
að stríða. — 14. þ. m. andaðist Björn
Pálsson ljósmyndari á ísafirði.
— Snjóflóð í Hnífsdal. — Vestri
frá 8. þ. m. segir svo frá: "í dag um
dádegisbilið féll snjóflóð í Hnífsdal,
rétt utan við svo nefnt Bræðrahús
(eign Halldórs Pálssonar og db. Jóa-
kims Pálssonar). Tók það fjárhús,
hlöðu og fjós, er stóð ofanvert við
húsið og færði langt úr stað. Höfðu
þegar fundist 16 kindur dauðar og
ein kýr. — Einnig tók snjóflóð þetta
vélabyrgi og smiðju, er vélaverk-
stæði Hnífsdælinga á, og flutti
smiðjuna fram á sjó. Varð þar fyrir
snjóflóðinu gamall maður, Jóhannes
Elíasson, járnsmiður, en talið að
hann muni lifa. — Ennfremur tók
snjóflóðið hjall, er Halldór Pálsson
átti. Auk þess urðu nokkrar aðrar
skemdir”.
. — Stestminn er ekki kominn í lag
enn og því engar nýjungar frá út-
löndum síðastl. viku.
— Samskot til Belga, sem efnt var
til hér i fyrra, vonr aflient konsúl
þeirra, hr. L. Kaaber, er hann fór
héðan áleiðis til útlanda með “fsl.”,
og höfðu þau orðið 5510.60.
— Tveir menn drukna. 12. þ. m.
fórst vélbátur herra Lofts Lofts-
sonar, er flutt hefir hingað til bæj-
arins fisk frá Sandgerði, og var bát-
urinn á leið héðan í einni af þeim
ferðum, en fórst undir Kyrkjuböls-
hverfi á Garðsskaga og er haldið að
hann hafi lent þar upp á sker. Tveir
menn fórust þarna, og var annar
þeirra Markús Magnússon fná Litla-
seli hér í bænum, formaður bátsins,
en hinn hót Kristján Einarsson.
— Mikill snjór er nú hér á Suður-
landi. Honum hlóð niður í síðastlið-
inni viku í logni og litlu frosti. Af
fsafirði var sagt í gær, að þar væri
stöðug snjokoma. f morgun var hér
8 stiga frost C.
—i- Bögglapósturinn. Með skipum
Eimskipafélagsins er gjört ráð fyrir,
að ekki verði teknar til scndingar
héðan í bögglapásti sendingar til
Þýzkalands eða bandaríkja þess og
engir bögglar, sein er í bannvarn-
ingur Með skipum Sameinaða fé-
lagsins verða fluttir allir bögglar,
sem ekki er í uil eða gærur. Hafa fé-
lögin sjálf sett skilyrðin og fá vott-
orð póstmeistara þar að lútandi. En
allar sendingar eru á ábyrgð send-
anda.
— Styrkurinn til skálda og lista-
mannu hefir nú verið þannig veitt-
ur fyrir arið 1916;
Ásgrímur Jónsson málari . . 500 kr.
Brynjólfur Þórðarson . . . . 400 —
Einar Hjörleifsson skáld ..1200 —
Einar Jónsson inyndhöggv. 1500 —
Guðm. F’riðjónsson skáld
600
Guðm. Guðmundsson skáld 1000 —
Islands-fréttir.
Framhald frá 7. bls.
en það er nú. 1 síðara skiftið all-
iöngu fyrir landnámstíð og hefðu þá
skógarnir náð hér mestum blóma.
En hvort loftslagið nú væri heldur
að hlýna eða kólna, kvað hann óút-
kljáð miál. Menjar þessara tveggja
hlýviðristímabiia sagði hann að
fyndust í fornum sæmyndunum og
mómýrum, er hann hefir rannsakað
við Húnaflóa og víðar. Tvisvar sagði
hann að sjórinn hefði liækkað
hér við land síðan á ísöld; í fyrra
skiftið i lok ísaldar, og voru þá öll
helztu láglendi landsins, sem nú
eru bygð, i mararbotni. Síðari hækk
unin varð löngu siðar, en þó all-
löngu á undan landnámstíð, og var
sjórinn þá, t. d. við Húnaflóa 5
metrum hærri en hann er nú. En á
milli þessara sjávarhækkana lækk-
aði sjórinn niður fyrir núverandi
fjörumál. — Var erindið hið fróð-
legasta og vel og áheyrilega flutt,
enda var gjörður að því góður róm-
ur.
— Mannalát. Dáinn er hér nýlega
Tómas Eyvindsson, í Skothúsinu,
faðir Magnúsar Tómassonar deildar-
Guðm. Magnússon skáld . . . .1200 —
Hannes S. Blöndal skáld. . . . 400 —
Jóhannes Kjarval málari . . 500 —
Jóhann Sigurjónsson skáld . . 600 —
Kristín Jónsdóttir málari . . 500 —
Ríkarður Jónsson..........1600 —
(1000 til Rómferðar).
Torfhildur Hólm skáldkona 300 —
Valdimar Briem............ 800 —
— Dr. Jón Stefánsson (Daníels-
sonar frá Grundarfirði) hefir ritað
“Sögu Danmerkur og Sviþjóðar” á
ensku, mikið ritverk, um 400 bls. í
stóru broti, sem gefið er út ^f hinu
inikla bókaforlagi Fischer Unwin &
Co. í London. Dr. J. St. er nú dócent
í íslenzku og íslenzkum bókmentum
við háskóla í London.
—• Verzlunarhúsið C. llöepfner
hefir keypt Thomsenshúsin tvö, nr.
19 og 21, við Hafnarstræti.
— Ishús Miliónafélagsins við
Tjörnina hér í bænum er nú selt
þcim Geir skipstj. Sigurðssyni og
ólafi Benjamínssyni. Einnig hafa
5 þeir keypt síldveiðaskipið “Noru”,
sem áður var eign félagsins og Geir
skipstjóri stýrði.
— Frá Norðfirði segir “íslending-
ur” að sumir vélbátaútgjörðarmenn
þar hafi síðastliðið sunrar haft í
hreinan ágóða af hverjum bátum sin
um 12 til 15 bús. kr. En blaðið seg-
ir, að beir verði að sækja aflann 8
til 10 tíma ferð beint til hafs frá
yztu töngum.
Miðvikudaginn og Fimtudaginn
Valeska Suratt in THE IMMIGRANT
--------- Paramount Travellogue and Comedy --------
Föstudaginn og Laugardaginn 3. vika af leiknum “GRAFT”
Robert Edison in THE CAVE MAN and a fine Comedy
BE EARLY---------------------------------BE EARLY
Misskilningur, sem ekki ætti að eiga sér stað.
Það er einhver misskilningur út um sveitir, hvað snertir hina skan-
dinavisku “platoons”, og vissar Rattalions bera fyrir, að þær séu skandi-
naviskar, þegar þær eru að safna Jiðsmönnum, og mun það vafalaust
vera án vitundar foringja þeirra.
Mikill fjöldi Skandinava hefir þannig gengið í enskumælandi Bat-
taiions, og vilja nú gjarnan komaLst í 223. Battailion. En með því ai
þetta er torvelt, er það ráðlegast íyrir alla vini 223. Battalion, að gjöra
þetta sem víðast kunnugt, að þegar liðsöfnunarmenn koma til Skandin-
ava, til þess að fá þá í herinn og segja þeirn að þeir séu að safna fyrir
skandinaviska Battalion eða “platoon”, þá eru þeir oft með þessu aí
iokka þá til að ganga í ótal aðrar sveitir.
En hin eina Battailion í Canada, sem hefir skandinaviska foringja,
skandinaviska hermenn og er styrkt og mynduð af Skandinövum, er 223.
Battalion, með skrifstofu í 1004 Union Trust Building, Winnipeg, og er
hún studd og stofnuð af borgaranefnd þeirri, sem kosin var á opinber-
um fundi Skandinava, sem haldinn var í Winnipeg fimtudagskveldiJI
9. marz 1916.
BORGARANEFNDIN.
1 nefndinni, sem kosin var tiil að vinna að liðsnrannasöfnun í 223.
Battalion, eru bessir:
Hon. Th. H. Johnson, forseti. Th. Thorsteinsson, féhirðir.
Ingvar Olsen og P. M. Dahl, Norðmenn.
N. S. Brunn, A. Hallonqnist og J. Gustafson, Svíar.
J. J. Vopni H. B. Skaptason.
Indiand gleðst yfir
sigrum Rússa.
Löggjafarþing Indverja hefir ver-
ið að fást við nýjar skattálögur, og
hafa allir ræðumenn lýst ánægju
sinni yfir stefnu Breta og fúsum
vilja til að bera nýjar byrðar til að
hjálpa þeinr í striði þessu. Verk-
smiðjur Inda eru önnurn kafnar dag
og nótt, að smíða nýjar sprengikúl-
ur og búa nú til hálfu fleiri en
nok'kru sinni áður.
Indur fylgja stríðinu vel og gleðj-
ast stórlega yfir framgangi Rússa i
Asíu og vöm Frakka við Verdun.
Starir nú allur heimur á orrahrið þá
og fréttirnar fara daglega um borg
og bygðir. Inni í höllum auðmann-
anna og furstanna og í hreysum kot-
unganna er nú ekki um annað tatað.
Og einlægt vex áhugi Indverja, a3
styrkja Breta með inönnum og fé.
Einlægt safnast gjafirnar til þeirra:
Flugdrekar, autós, lorries, spitala-
úthúnaðar, gufubátar. Og einlægt
Streyma inn peningar frá ríkum sem
fátækmn. — Það er þvi ekíki að sjá,
að Indur ætli sér að fara að risa upi»
á móti Bretum, sem sumir vinir
Þjóðverja voru að halda fram.
Einlægar hríðar og fannkomur.—
Það er sem náttúruöflin séu nú ai
fylgja tröllinu Bakkusi til grafae
ineð harðneskju fönnum óg gaddi.
Tombolu og Dans
heldur djáknanefnd Tjaldbúðarkirkju
Fimtudagskveldið, 23. Marz, 1916
klukkan 8 e.h.
í Efri Good Templara Salnum
Aðgangur og einn ágætis dráttur aðeins 25c. Dans á eftir
hérumbil eins og hver vill hafa. Fyrirtaks hljóðfærasláttur.
Skemtisamkoma
Bögglasala
Kaffiveitingar
Næstkomandi miðvikudagskveld, þann 22. þ. m., held-
ur kvenfélag Únítara skemtisamkomu í fundarsal kyrkjunn-
ar. Fer þar frám uppboð á bögglum, og er í þeim ýmis-
konar verSmæti eSa sælgæti. Auk þess verSur kaffi veitt
ókeypis öllum, er þangaS koma. — Til skemtana verSur
ennfremur: —
1. Violin Solo—Lúðvik Eiríksson.
2. Upplestur—Bergþór E. Johnson.
3. Upplestur—-Hjálmar Gíslason
4. Piano Solo—Miss Ottenson.
5. Ræða—B. L. Raldwinson.
6. Upptestur.—Þorst. Þ. Þorsteinsson.
7. Söngur.
8. Bögglasala og kaffiveitingar,
eins og áður er sagt.
Samkoman byrjar kl. 8 e. h. Inngangur I5c. ASgöngu-
miSar til sölu víSsvegar um bæinn; en á þeim hefir mis-
prentast samkomudagurinn. Samkoman fer fram miSviku-
daginn 22. þ. m., í staS þriSjudags þess 21. þ. m., eins og
á þeim stendur. Þetta er fólk beSiS aS athuga.