Heimskringla - 30.03.1916, Page 3
WINNIPEG, 30. MARZ 1916.
HEIMSKRINGLA
BLS. 3
BLUE R/BBON
KAFF/
OG
BAK/NG POWDER
Er kaffibollinn þinn á morgnanna
verulega bragðgóður gómsætur og
ilmandi ? Ef það er ekki þá biddu
um Blue Ribbon kaffi næst þegar
þú kemur í búðina og muntu skjótt
finna muninn. Þú verður þægil-
lega forviða. Blue .Ribbon te,
kaffi, Baking Powder, Spices og
Extracts er alt af sömu tegund—
hinni bestu.
Sitt af hverju frá Grand
Prairie.
Gamli kunningi M. J. Skaptason!
Þá ræðst eg nú í að senda þér linu
og bið þig lagfæra og lesa í málið,
því eg hefi lítinn tima til skrifta
og svo ekiki sérlega pennafær.
Hinn 16. ágúst síðastliðinn vor-
um við búin að vera hér í 4 ár; við
náðum hingað og tjölduðum á land-
areign okkar 16. ágúst 1911, kl. 5
um kveldið. Við vorum búin að vera
á leiðinni síðan 6. júli, eða liðlega
ö vikur, frá Winnipeg. Við stönsuð-
um nökkra daga í Edmonton, og
svo vorum við um kyrt eina viku,
í Grouard, sem er við vesturenda |
Þrælavatns (Slave Lake). Það mátti
heita, að það rigndi meira og minnaj
á hverjum degi frá því við fórum fráj
Edmionton og þar til við komum
hingað, og seinkaði það ferð okkar
ekki lítið; en samt gekk alt slysa-^
laust, þó við værum með 3 börn og
eitt þeirra kjöltubarn. Vegalengdin
frá Edmonton hingað er um 500
mílur, af því var farið um 200 á
bátum; hitt á vögnum, sem tjaldað
var yfir. Tveir vegir voru að kom-
ast hingað, annar frá Edson, alt
landveg *g talsvert styttra; en hinn
sá, er við tókum, nefnilega Atha-
baska, Slave Lake og Peace River
Crossing vegurinn. Hvorugur vegur-
inn var góður, og kunna báðir frá
mörgum hörmungum innflytjenda:
að segja. En Edson vegurinn nrá
heita eða að minsta kosti var þá
bráðófær að sumri til. Á þeirri leið
eru svo miklar hæðir, að fullerfitt
er fyrir hvort heldur menn 'eða
skepnur að ganga upp þær lausir og
liðugir. Eg var búinn að fara laus
og liðugur hér í gegn áður og Skoða
landið og vegina, og vissi þvi, hvor:
leiðin var betri og hvað þurfti að j
hafa til þess að komast í gegn. Og!
sé eg aldrei eftir því, því sá auka- j
kostnaður marg-borgaði sig. Margur i
lagði upp með búslóð sína áleiðisj
hingað, án þess að vita neitt um, j
hvað var fyrir framan, og hafði það j
oft illar afleiðingar. Við þektum
báðir vegina i Nýja íslandi í gamla
daga og voru þeir gull hjá Edson!
brautinni.
Við höfum verið eina íslenzka
fjölskyldan hér, þar til í vetur fyr-
ir Jól, að Jón Einarsson frá Glen-
horo, Man., flutti fjölskyldu sína
hingað. Hann kom hingað sjálfur
sumarið 1914, ásamt Helga Helga-
syni frá Glenboro; þeir tóku báðir
lönd og bygðu á þeim. Seinna kom
svo Kristján, bróðir Helga, og Egill
Jóhannsson. Þeir tóku einnig lönd
og hafa hygt og unnið á þeim; en
áður en við komum hingað var hér
einn einhleypur íslendingur, Jörgen
Renediktsson, og þá eru nú Islend-
ingar hér taldir, og munu höfuðin
vera 17; fáment en góðment.
í þrjá vetur fór eg sem aðrir hér
út til Edson, eftir nauðsynjum ökk-
ar fyrir árið; þó kostnaður væri við
Fáðu það núna-
P Lager
Það er eitthvað við og í þessum
Bjór sem gerir hann að mat.
FátSu hann hjá verzlunarmönnum
eöa rakleitt frá
E. L. Drewry, Ltd., Winnipeg.
þær ferðir, þá var það ekkert í
samanburði við, að kaupa vörur hér.
Þegar við komum hingað, var syk-
ursekkurinn $25.00 hundrað pund-
in, hveitisekkurinn $12.00 og alt
annað eftir j)ví. Vegalengd til Ed-
son héðan er um 250 mílur aðra
leiðina, og þó það sé skárri vegur
að vetri en sumri, þá er það samt
törsótt vegna.hæðanna. En nú er
þetta alt á enda, því nú er járn-
brautin bráðum komin. “Dompur-
inn” kominn alla leið hingað og
stálið komið til Spirit River, og
verið að leggja það i óða önn hing-
að. Væri það ekki fyrir þetta fjár-
ans strið, þá mundu vera fleiri járn-
brautir á leið hingað, því þær sjá
sinn hag í því: Landflæmið svo
mikið, fólkið svo margt og fram-
leiðslan mikil. Það er álitið, að um
2 milíónir bushela af korni hafi
verið þreSktar hér í haust; það er
býsna mikið fyrir bygð, sem hefir
verið jafn langt frá járnbraut. Þetta
meinar auðvitað alt Peace River
hérað, að undanskildu Fort Ver-
million. Hveiti uppskeran varð hér
frá 35 til 45 bushel af ekru, og hafr-
ar frá 60 upp í hundrað bushel. Eg
hefi heyrt, að sumir hafi fengið 55
bushel af hveiti, en um sönnur veit
eg ekki. — Þú fyrirgefur, þó eg noti
ekki þetta nýja islenzka orð “mæla”,
sumir af oss vita varla við hvaða
mæla er átt; eg hefi það bara bush-
el. Uppskera hefir aldrei brugðist
hér algjörlega enn.
Tíðarfar líkar mér heldur betur
en austurfrá, finst vetrar vera held-
ur mildari. Samt var hart kulda-
kast frá 26. des. i vetur til 12. febrú-
úar, að undanskildum 3 döguin um
miðjan janúar. En 12. febrúar skifti
um og kom þíða og helzt hún enn,
og er sleðafæri rétt á förum.
Oft tek eg eftir þvi, hvað þið
blaðamenn og “business” menn
hvetjið fólk að fara út á land. Eg
hefi alt aif haldið þvi fram, að betra
væri að mörgu leyti að vera úti á
landi, sérstaklega fyrir börn; þar
er loftið hreint og óblandað og feg-
urð náttúrunnar í allri sinni dýrð.
En hvert á fólkið að fara? Annað-
hvort verður það að fara fleiri
hundruð milur út i óbygðir, til að
ná í almennilegan landblctt, cða þá
að taka bráðónýtt land, sem er ekk-
ert nema sandur, skógur eða fen.
En heldur vildi eg fara 1000 mílur
og ná í gott land með þvi móti samt
að það sé meira en nokkrar fer-
hyrningsmílur af því, eins og til
dæmis hér, þvi þá koma járnbrautir
vanalega fljótlega eftir að fólk er
komið á svona stórt landflæmi og
farið að yrkja það, — heldur enn
að sætta sig við land, sem er fen
eða tómur skógur. En þvi er þetta
svona? Nóg er af góðu óyrktu landi
enn í Canada, og það rétt meðfram
járnbrautum. Þú talar um Canada,
sem landið, er hafi lagt alt upp i
hendurnar á okkur, í einni her-
hvatar-jgrein þinni. Ekki hefir það
lagt neitt upp í hendur bændanna
fyrirhafnarlaust; en það eru þessar
kanadisku pólitisku blóðsugur, sem
mata krókinn fyrirhafnarlaust. —
Landið sjálft var gefið i hendur
auðfélaga, ásamt timbri, námum,
fiskivötnum og öðrum auðsupp-
sprettum. Ef menn svo vilja fara út
á land og byrja búskap, þá er um
þrent að gjöra: taka ónýt lönd, því
að félögin hafa það bezta, eða kaupa
dýrum dómum af þessum auðfélög-
um, — eða í þriðja lagi fara út í ó-
bygðir. Svo þegar á landið er kom-
ið, þá er alt, sem þarf til búskapar
með uppsprengdu verði, svo sem
akuryrkju verkfæri, vír til girðinga,
bindaratvinni og margt fleira. Þvi
alt er tollað. Svo þegar bóndinn sýn-
ir, að enginn ágóði sé í búskapnum,
þiá er honum sagt, að hann kunni
ekki að búa.
Það skal játað, að þó maður búi í
hundrað ár, þá er alt af eitthvað að
læra í sambandi við búskap. En all-
ur þorri bænda kann svo að búskap
Members of the Commercial Educators’ Association
E. J. O’Sullivan,
M- A. Pres.
1
ESTABL/SHED /882.
Stærsti verzlunarskóli í Canada. Býr fólk
undir einkaskrifara stöðu, kennir bókhald, hrað-
ritun, vélritun og að selja vörur
Fékk hæstu verðlaun á heimssýningunni.
Einstaklingskensla. Gestir velkomnir, eink-
um kennarar. öllum nemendum sem það eiga
skilið, hjálpað til að fá atvinnu. Skrifið, komið
eða fónið Main 45 eftir ókeypis verðlista með
myndum.
THE WINNIPEG BUSINESS COLLEGE
222 Portage Ave...Cor. Fort Street.
Enginn kandídat atvinnulaus.
ÞAÐ VANTAR MENN TIL
Að iæra
Automobile, Gas Tractor ITJn 1
bezta Gas-véla skóla í Canada.
Þ»aö tekur ekki nema fáar vikur
aö læra. Okkar nemendum er
fullkcmlega kent aT5 höndla og
grjöra vÍT5, Automoblle, — Auto
Trucks, Gas Tractors, Statlonary
og Marine vélar. Okkar ókeypis
verk veitandi skrlfstofa hjálpar
þér aT5 fá atvinnu fyrir frá $50
til $125 á mánu?5i sem Chauffeur
Jitney Driver, Tractor Engrineer
eT5a mechanic. KomiT5 et5a skrif-
iö eftir ókeypis Catalogue.
Hinn nt'/ji Gas Engine Skóli vor
er nú tekinn til starfa i Regina.
Hemphills Motor School
«43 Muln St. Wlunlpee
A6 iæra rakara iðn
Gott kaup borgaB yfir allan ken-
slu tímann. Ahöld ókeypis, aö-
eins fáar vikur nauösynlegrar til
aö læra. Atvinna útveguð þegar
nemandi útskrifast á $15 upp í
$30 á viku eT5a viT5 hjálpum þér
aT5 byrja rakara stofu sjálfum
og gefum þér tækifœrl til aT5
borga fyrir áhöld og þess háttar
fyrir lítiT5 eitt á mánuT5i. í»aT5
eru svo hundruT5um skiftir af
plássum þar sem þörf er fyrir
rakara. Komdu og sjáT5u elsta
og stæT5sta rakara skóla í Can-
ada. VaraT5u þig fölsurum.----
SkrÍfaTSu eftir ljómandi fallegri
ókeypis skrá.
Hemphills Barber College
Cor. KlngSt. nnd l’iuiflc Avenue
WINNIPEG.
| útibú í Regina Saskatchewan.
og lærir alt af með ári hverju, að
hanii getur þrifist þess vegna. Iin
það eru ólögin, sem hindra hann.
Þegar C. P. R. var bygð, þá gaf
Sir John A. Macdonald stjórnin fé-
laginu stórlandfláka, og fékk svo
ríflega fúlgu í kosningarsjóð sinn í
staðinn, eftir því sem sagt er í æfi-
sögu Donald Smith (siðar Strath-
cona lávarður), ritaðri af McPrest-
on, sem var annar frumkvöðull að
C. P. R.. Svo þegar G. T. P. var bygð,
í Lauriers tíð, þá er sóað 40 milíón-
um þar af fólksins fé, og er það að
eins eitt dæmi af mörgum ófögrum
á hans stjórnartið. C. N. R. fer i fjár-
hirzlu ríkisins þegar þeim sýnist. —
Helzt var þó ástæða, að C. P. R.
fengi styrk, sem var fyrsta brautin,
er bygð var í gegnum landið.
Þegar Borden stjórnin kom til
valda, héldu margir, að breytast
myndi til batnaðar. Hann hafði lof-
að ýmsum umbótum, til dæmis Ter-
minal Elevators i Vesturfylkjunum,
og efndi hann það; annar er i Sas-
katoon, en hinn, ef eg man rétt, í
Moose Jaw. Tollur var líka færður
niður á akuryrkju verkfærum; en
samt eru þau eins dýr og áður, eða
jafnvel dýrari. Og eftir því, sem einn
verkfærasali i Winnipeg segir, þá.
er það ástæðan, að yfirtollheimtu-
menn (custom officials) virða veúk-
færin þeim mun hærra, svo alt kem-
ur í sama stað niður, og verður
tollurinn því jafn mikill og áður. —
Einnig finst mörgum, að stjórnin
ætti að geta séð um, að annað eins
ránsverð væri ekki sett fyrir að
flytja hveitið yfir hafið; i staðinn
fyrir 8 cents áður en stríðið byrj-
aði, eða þar í kring, þá er það nú
frá 38 til 42 cents á bushelið; og er
sagt, að skipaeigendur borgi verð
skipanna á einni eða tveimur ferð-
um. Auðvitað varð flutningsgjald
að hækka á þessari vöru sem ann-
ari, en þetta er óhæfilega milkill
munur. Og svo kemur nú alt, sem til
hernaðar var keypt: meira og minna
svikið; hestar haltir, 20 ára gamlir
og þar yfir; sviknir sjónaúkar, skór
og annað fleira. Ef til vill hefir
stjórnin ekkert vitað um þetta i
fyrstunni; en þegar þetta er nú alt
sannað, íþá er það skylda hennar,
að hegna þessum föðurlandssvikur-
um, sein eru verri óvinir, heldur en
óvinirnir, sem barist er við á víg-
vellinum. Maður getur ekki hugsað
um þessa pólitisku garpa, nema með
fyrirlitningu; en þeir kunna ekki
að skammast sin, til dæmis eins og
De vet. Foster, fyrrum M.P., og fleiri.
Þeir ættu að vera reknir út á víg-
völlinn eða í tukthúsið.
Og hvað er með öldungaráðið
(The Senate)? Flestir bjuggust við,
að Borden stjórnin myndi semja
lög, sem losuðu þiá ellihrumu, gná-
hærðu öldunga við stöður sinar, —
eftir að þeir höfðu cyðilagt 2 helstu
og beztu frumvörp stjórnarinnar,
nefnilega flotamálafrumvarpið (The
Navy Bill) og góðra vega frumvarp-
ið (The Good Roads Bill). En þeir
sitja þar enn við sín háu laun, þess-
ir náungar, sem skipaðir eru í sæti
sín til dauðadags, ekki af fólkinu,
heldur af stjórninni, eftir að þeir
geta ekkert annað gjört. Þvi þar
gjöra þeir lítið, en jiegar það er eitt-
hvað, þá er það til ills eins.
Já, herra ritstjóri, þú talar um i
Heimskringlu, i sambandi við að
Dr. Simpson var tekinn fastur, að
fólk se orðið þreytt á þessari dulu,
sem veifað sé bæði suður í Banda-
ríkjum og í Evrópu. Þú hefðir held-
ur átt að segja, að fólk væri orðið
þreytt á þessum pólitisku blóðsug-
um, sem stela og ræna í þúsunda-
tali af fólkinu fé, sem þeim er trúað
fyrir. — Þó að Roblin hneykslið sé
eitt það versta, sem sannast hefir,
þá er litill efi, að gruggugt sé undir
hjá hinum stjórnunuin ,nema ef
vera kynni þeim allra nýjustu. En
ekki finst mér sanngjarnt, að ásaka
alla jiingmenn, sem greiddu atkvæði
á móti rannsókn í þinghússmálinu.
Sumir þeirra, til dæmis eins og
Sveinn Thorvaldsson, sem var að
eins búinn að vera stuttan tíma á
þingi, vissu ekki, að neitt væri rangt
og þar af leiðandi voru á móti rann-
sókn, sem alt af hefir mikinn kostn-
að i för með sér. Og ekki álít eg
það neinn heiður fyrir ritstjóra
Lögbergs, eða neinn annan íslend-
ing, að fara að vinna á móti Sveini,
til að koma að þessum Galla eða
Þýzkara, eða hvað annað sem hann
er. —
Til hvers er að tala um, að halda
við íslenzkunni, og svo þegar okkar
beztu menn sækja um opinberar
istöður, og oft á móti lélegri mönn-
um en þeir eru, — þá koma landar
fram i stórhópum og vinna á móti
landanum og það af miklu kappi. —
Eg man alt af, að mér sárnaði í
fyrsta skifti, sem Baldwinson sótti
á móti Colclough heitnum, livað
landarnir unnu á móti Baldwin-
son. Eg var þá lítill drengur i Nýja
íslandi, eins og þú veizt. Að líkind-
um hefir kosningasjóðurinn verið
þyngri Colcloughs megin, enda
vann hann.
En tit hvers þarf þessa kosninga-
sjóði? Eg sé ekki, að þeirra ætti að
þurfa með. Kjósendur ættu að kenna
þessum pólitisku snápum, að þeir
kjósi eftir sannfæringu, en ekki eft-
ir þvi, hvar sé mest af peningum,
brennivíni sigars eða vinnuloforð-
um.
Og að endingu vil eg minna ís-
lenzka bændur á, að styrkja alla
ærlega óháða menn, sem sækja,
hvort heldur til ríkis- eða fylkis-
þings. Og eins að styrkja Bændafé-
lögin (Grain Growers og United
Farmers); þau hafa gjört meira gott
fyrir bændastéttina, en allar stjórn-
irnar til samans.
Samt á Sifton stjórnin í Alberta,
Norris stjórnin í Manitoba og Scott
stjórnin í Saskatchewan þakkir skil-
ið fyrir að hafa gefið fólki tækifæri
til að reka Bakkus burtu með sann-
gjarnri atkvæðagreiðslu, nefnilega
með að eins rneiri hluta atkvæða;
en ek'ki með þeirri algjörlega röngu
aðferð, sem áður var, nefnilega, að
bindindismenn þyrftu að fá tvo
þriðju atkvæða. Eins eiga þessar
stjórnir þakkir skilið fyrir, að gefa
konum jafnrétti við karlmenn.
Ef nú ríkisstjórnin og fylkis-
stjrnirnar taka sig saman um, að
hlynna að bændastéttinni, sem er
undirstaðan að allri velferð lands-
ins! Það er svo ofurhægt að bæta
kjör þeirra (bændanna) með eftir-
farandi laga-umbótum:
. l.Að útvega bændum billegri pen-
inga (cheaper money), svipað
eins og gjörist í ýmsum Evrópu-
löndum, til dæmis New Zealand.
Peningamennirnir hafa sinn veg
hér og bændur verða að borga
þá rentu, sem þeir heimta.
2. Að afnema algjiirlega ailan toll
af akuryrkju verkfærum. Þessi
verkfæri, búin til hér, eru sehl
billegar á Englandi, heldur en
þau eru hér. Það sýnist skrítið.
3. Afnema toll á hveiti suður yfir
línuna. Borden stjórnin mun tapa
fylgi Vesturfylkjanna fyrir alla
frammistöðu hennar í því máli.
4. Að koma á lægri flutningsgjöld-
um bæði á sjó og landi (freight
rates and express rates).
5. Að vinna að því, að koma á betri
vegum út um sveitir.
Sú stjórn, sem kæmi þessum og
öðrum smærri umbótum í fram-
kvæmd, myndi fá að sitja við völd
með sóma og heiðri, en ekki fara
frá völdum með smán og skömm,
eins og Roblin stjórnin. Auðvitað
með þvi móti Iíka, að brúka almenn-
ingsfé réttilega. — Hefði Roblin
stjórnin gefið fólki tækifæri, að reka
Bakkus burtu og gefið konum jafn-
rétti og ekki sóað almenningsfé að
óþörfu, þá myndi hún enn sitja við
völd með sóma miiklum, — en þetta
gat hiin ekki séð, eða vildi ekki sjá
það.
Magnús G. Guðlangsson.
Æfiminning.
Þann 31. janúar síðastliðinn lézt
að heimili sínu við Belmont póst-
hús í Argylebygð konan Eyhildur
Guðrún Einarsdóttir. Síra Friörik
Hallgrímsson jarðsöng hina látnu
3. febrúar.
Guðrún heitin var fædd 27. ágúst
1862 í þorpinu við Steingrímsfjörð.
Forolrdrar hennar voru Einar Gísla-
son ættaður úr Hrútafirði, og kona
hans Þuríður Jónsdóttir, bónda á
Ketseyri. Fimta október 1887 giftist
hún eftirlifandi manni sínum Stef-
áni Guðmundssyni. Næsta vor
birjuðu þau búskap í Bæ á Bæjar-
nesi í Múlasveit í Barðarstrandar-
sýslu, og bjuggu þar uns þau 1892
fluttu til Kanada, komu til Winni-
peg 20. júlf, en fóru svo hingað vest-
ur í Argylebygð og hafa verið hér
síðan. Þau hjón eignuðust þrjú
börn heima á íslandi, önnur þrjú
börn hér. Börnin eru öll einkar
mannvænleg, þau heita:
1. Þórdís, hún er gift Sam West-
brook, kornkaupmanni í Belmont.
2. Sturlaugur Einar.
3. Þuríður Anna.
4. Snæbjörn Sigurður.
5. María Magðalena
6. Guðmunda Kamilla.
Strax og Guðrún heitin veiktist
var læknir sóttur, og rétt á eftir var
fengin hjúkrunarkona frá Winni-
peg. Læknirinn kom næstum á
liverjum dogi að vitja um hana, það
var því gert alt seiri hægt var til
þess að hún næði hcilsu aftur, en
alt var árangurslaust.
Guðrún heitin var myndar kona
í sjón, fyrirmyndar húsmóðir og góð
eiginkona og móðir.
Algóður guð huggi og styrki hina
eftirlifandi ástvini sein hafa mist
svo mikið.
Blessuð sé minning hennar.
Vinur.
Leiðrétting.
1 tilefni af umgetningu um dauðs-
fall Eggerts sáluga Vatnsdals, sem
kom út i siðasta tölpblaði Heims-
kringlu, 23. marz, skal þessa getið:
Af vangá hefir fallið úr að geta
fimta sonar Eggerts heitins, sem hét
Magnús Ágúst Eggertsson, er drukn-
aði 7. janúar 1905 frá Bolungarvík.
Ilann var mesti sjósóknari og var
búinn að vera 11 ár formaður á
skipum við fsafjarðardjúp, þegar
hann druknaði. Hann eftirlét ekkju
með fjórum börnum. Var kona Petr-
ína Sigrún Stefánsdótlir, ættuð af
Breiðafirði. Flutti hún svo 1906, eða
ári siðar, til Ameríku og hefir sið-
an dvalið hér i Winipeg ineð börn-
um sínum, sem nú eru orðin upp-
koinin og öll mannvænleg. Börnin
eru þessi: Guðrún Andria, Eggert,
Elín Stefania og Magnúsina Soffia.
Vér biðjum afsökunar á þessu. —
Það kom ekki af vangá eða kæru-
leysi, heldur af þekkingarleysi. Vér
þektum sonu Eggerts og dóttur i Dak
ota og síðar i Roseau, Minnesota, en
vissum ekki um þenna son hans, er
druknaði eða ekkju hans og börn
hér í Winnipeg. Oss þótti vænt um
að fá leiðréttingu þessa.—Ritstj.
Rúmenar taka Búlgara fasta.
Þegar friður var saminn i seinasta
Balkan striðinu, fengu Rúmenar
sneiðina frá Búlgörum sunnan við
Bónárósa. Er þar kastalinn og borg-
in Silistria. Þar var eftir allmikið af
Búlgörum, en nú þótti Rúmenum
Biilgarar heldur hávaðamiklir og
ráðríkir, og vera að reyna að vinna
menn undan Rúmeniu. Þetta þoldu
þeir ekki lengur, og nú um daginn
tóku þeir a'Ila helztu Búlgara þar og
hneptu í fangelsi og sökuðu um
landráð. Tóku þeir meiri hlutann af
embættismönnum og lögregluliði
borgarinnar. Þeir bönnuðu og allan
útflutning á gripum. Og einlægt eru
þeir nú að styrkja og auka her sinn,
þangað til tíminn konii, er þeir fara
af stað.
223rd Canadian
Scandinavian
Overseas Battalion
Lieut.-Col. Albrechtsen O.C.
HEADQUARTERS: 1004 Union Trust 8ldg., Winnipeg
Æðri og lægri foringjar og hermenn verða Scandinavar.
Sveitina vantar hermenn. Skrifið yður í hana.