Heimskringla - 20.04.1916, Blaðsíða 1
XXX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 20. APRÍL 1916
NR. 30
Stríðs =f réttir
Hálfan annan mánuð eða meira
hafa Þýzkir verið að reyna að brjót-
ast í gegn hjá Verdun, en ekki kom-
ist. Þeir hafa náð tveggja til þriggja
mílna breiðu svæði á eitthvað tutt-
ugu milum; en þeir faafa látið fjölda
nianna, og veit enginn hvað marga,
nema þeir sjálfir. En Frakkar standa
fastara fyrir nú en nokkru sinni
áður.
Þeir fóru þá að reyna annarsstað-
ar, að bjarga heiðri krónprinsins ög
frægðarljóma Þjóðverja, og var þá
auðvitað, að þeir myndu leita á þar,
sem þjóðin var, sem þeir hata mest
af öllum, Bretarnir. Þeir leituðu til
Eloi, hálfa þriðju milu suður af Yp-
res og hafa þar verið skothríðar
feykilegar dag og nótt. Þar voru
Canadamenn fyrir og voru nýlega
húnir að hrekja Þýzka úr skotgröf-
um nokkrum. Voru þar ólæti mikil
og sprengingar úr loifti ofan og af
námum í jörðu gröfnuin; voru gryfj-
urnar sumar ákaflega djúpar eftir
sprengingarnar, þegar göng höfðu
verið grafin af öðrum hvorum til að
sprengja hina upp. Sumar grafirnar
voru 50 til 100 feta djúpar og víða
þverbrattur veggurinn. Var þar ekki
farandi um i myrkri, því enginn
vissi, nema hann kynni að hrapa
niður, en þarna var krökt af þessu.
Cr sumum þessum gryfjum höfðu
Canadamennirnir hrakið Þjóðverja.
En nú var þarna dregið að lið mikið
af Þjóðverjum og byrjuðu þeir skot-
hriðar miklar. Það var á þriðjudag-
inn, sem aðalskothríðarnar byrjuðu
og héldu áfram allan miðvikudaginn
og fimtudaginn. Stunduim hættu
Þýzkir litla stund og létu hermenn
sina renna fram, en þá komu hrið-
arnar á þá frá Bretum og Canada-
mönnum og sópuðu burtu öllum
þeim, sem á stað höfðu farið. Þár
höfðu Þýzkir hinar stærstu og beztu
fallbyssur sínar, 12 Þml., 15 ,þml. ogf
17 þml. Skoda-byssur. En Canada-
mennirnir og Bretar höfðu nýjar fall
byssur og svöruðu svo rösklega, að
fyrir hverjar 2 sprengikúlur frá
Þjóðverjum sendu Bretar og Canada
menn þeim 3 eða 4. Sögðg jiýzkir
fangar, sem Canada mennirnir náðu,
að það væri sem að koma í himna-
riki og friðinn að koma til Breta,
hjá hríðinni sem Þjóðverjar urðu
að mæta frá Bretum og Canadamönn
urn. Brakið og brestirnir, ólætin og
hin látlausa hrið sprengikúlnanna
©kki einungis brytu og brömluðu alt,
heldur gjörðu menn ærða og vit-
stola, þá, sem ekki féllu dauðir til
jarðar.
Þegar þetta var nú faúið að ganga
lengi, gjörðu Þýzkir áhlaup mikið a
miðgryfjuna þarna. Þeir stukkj
fram sem óðir væru i þéttum skör-
um, og þó að einlægt hryndu rnenn-
irnir niður, þá komu aðrir í þeirra
stað. En þeir komust þó í suniar
gryfjurnar og varð þar allstaðar
blóðugur bardagi, og lágu mennirnir
dauðir og særðir í hrúgum og liaug-
um. Fregnirnar eru nokkuð óljósar,
en sagt er að Þýzkir hafi haft þarna
500 eða 600 þúsund manna. En Can-
adamennirnir létu sig ekki og stukku
á þá aftur og aftur, ef að þeir mistu
skurð eða skotgröf og stundum tóku
beir meira, en þeir höfðu aður hald-
ið, en mannfallið var feykimikið af
báðum. Sagt er að yfirhershöfðingi
(General) einn brezkur, sem kom
nieð hjálparlið til þeirra, sem fremst
ir voru, hafi þrisvar sinnum verið
dysjaður undir aur og grjóti, þegar
sprengikúlur féllu nærri honum. En
einlægt hélt hann áfram, þegar búið
var að draga hann undan hrúgunni,
og var víst orðinn skapstyggur. —
Þetta gekk í þrjá daga. Og voru
Þýzkir jafn nærri, þegar þeir hættu
og þegar þeir byrjuðu. Kom þeim
það mjög á óvart, því þeir héldu, að
barna myndu þeir léttilega brjótast
i gegn með liðsafla þeim og skot-
báknum, sem þeir höfðu.
Þetta er sagðu langinestur slagur
barna i marga mánuði. En allir
ijúka loifsorði á Canda mennina og
segja, að enn á ný hafi þeir unnið
ser frægðar, sem aldrei muni fyrn-
ast og Bretar aldrei gleyma.
Hin frábæra hreysti Frakka.
1 50 daga hafa Þýzkir nú verið að
l,erja á Verdun, með þeim feikna
trölldómi, að ekkert þvílíkt hefir áð-
wr heyrst í sögu inannkynsins. Má til
dæmis taka, að á hæð eina -eða hól,
sem Frakkar héldu, hafa þeir gjört
svo harðar stórskotahríðar, að hóll-
hin hefir lækað um 30 fet. Þetta sýn-
ir, hve ótrúlega mikið þeir hafa enn
af skotfærum, einkum þó sprengikúl-
um.
En vörn Frakka er svo frábær, að
enginn skáldsöguhöfundur getur í-
myndað sér, að nokkrir menskir
menn myndu geta sýnt jafn mikið
hugrekki, þölgæði, úthald og stað-
fastan vilja til að leggja alt, sem dýr-
mætast var í sölurnar fyrir föður-
landið. Aldrei nokkurntíma hefir
ástin til föðurlandsins komist í aðra
eins eldraim og þessa. öll hreysti
hinna fyrri tima verður sem hjóm
eitt i samanburði við þetta.
Og foringjar Frakka eru svo kald-
ir og rólegir. Þeir eru þarna að tefla
tafl eitt. Aldrei leggja þeir svo peð
eða mann eða sveit í hættu, að þeir
fái ekki margfalt fyrir. Fyrir hvert
peðið taka þeir hrók eða biskup eða
riddara. Og kastalaborgirnar þarna
i kringum Verdunl Menn hafa mis-
skilið það alt hér sem svo margt
annað, því að eiginlega botnar al-
þýða manna oft lítið í þessu oglheld-
ur að blöðin séu alt af að ljúga, þó
að það sé mjög sjaldan. En það kem-
ur af því, að menn skilja ekki og
þekkja ekki striðsaðferð þessa, sem
er algjörlega ný, eða landslag og
háttu á stöðum þeim, þar sem barist
er. Og oft er blöðum og fréttaritur-
um bannað að segja frá sem þeir
gætu, til þess að óvinirnir græði
ekki á fréttunum, ef þær kæmust í
liendur þeirra.
En þess megum vér geta, að kast-
alarnir gömlu við Verdun eru eigin-
lega engir kastalar lengur. Moldar-
gröfin er nú betri kastali en grjót-
veggir, þó að þykkir séu, eða steyp-
ur úr stáli og járni. Áður en þessi
slagur við Verdun byrjaði, voru
kastalar þessir rúnir af öllum vepn-
um og vcrjum. Allar fallbyssur tekn-
ar burtu, og ekkert varnarlið skilið
eftir í köstulunum. Veggirnir eða
múrarnir standa reyndar, og þeir
eru eins og gildra eða gildrur, sem
egndar cru fyrir úlfa, refi eða birni.
En að vera í þessum köstulum, þeg-
ar stórskotahríðin dynur á þá, er
talin mikla meiri maniihætta, en nð
standa hlífðarlaus á bersvæði fyrir
kúlnaregninu, og þá ennþá meiri
háski en að vera i skotgröfunum.
En hvað vörnina snertir á Verdun,
þá voru fyrst einar 60 þúsundir
Frakka þar fyrir þegar Þýzkir byrj-
uðu slaginn. Og þessar 60 þúsundir
tóku á móti þeim í 4 daga. — Þeir
Joffre og síðar Petien höfðu nóga
menn að senda þeim til hjálpar,
höfðu þá á næstu grösum. Þessar
60 þúsundir tóku jiví á móti þessum
4 eða 5 hundruð þúsundum, sem ó-
vinirnir byrjuðu áhlaupið með. En
þeir héldu undan, Frakkar, létu síga
dálítið undan, til þess að hinir
kæmu á eftir, svo þeir gætu haft þá
í skotmáli. Það var hernaðaraðferð
þeirra Joffre og Petiens. Og þá féllu
Þjóðverjarnir. Og núna seinast í
þessu hroða-áhlaupi Þjóðverja, er
sagt að fallið hafi einar 30 þúsundir
manna. Áhlaupið var á 13 mílna
svæði, en samt unnu Þjóðverjar ekk-
ert á neinstaðar.
Austur f Asfu liafa nú verið harð-
ir slagir. Tyrkir hafa verið að búa
sig undir að taka á móti Rússum og
hnekkja þeim, ef að hægt væri nú í
eina 2 mánuði, eða einlægt síðan
þeir töpuðu Erzerum. Nú voru þeir
búnir að safna liði miklu og sendu
það austur í Aimeníufjöllin til liðs
við þá Tyrki, sem stóðu fyrir líúss-
um f skörðum öllum og á fjalla-
hryggjuin. Þeir ætluðu sér að hrekja
þá og ná nú Erzerum aftur. — En
Rússinn varð þungur fyrir.
í sex daga börðust þeir á allri lín-
unni frá ströndinni við Svartahafið,
rétt austan við Trebizond og suður
nokkuð krókótta leið yfir fjöllin,
um Erzingan og l»á suðaustur yfir
Eufrat og suður undir Biflis, sem
Rúsar halda í Van héraðinu. Eru
það þrjú hundruð mílur eða þar
um. Þar hömuðust Tyrkir og börð-
ust víða nótt og dag, en Rússar
tóku svo á móti þeim, að þeir unnu
hvergi á, en töpuðu mönnum, svo
að menn vita ekki hve mörgum, og
að lokuin urðu Tyrkir að hrökkva
undan á allri þessari línu. Var bar-
daginn einna harðastur við Trebi-
zond og þar söfnuðu Tyrkir raestu
liðinu. En þar fóru þeir verst, því
að Rússar höfðu þar bæði strönd-
ina og sjóinn; en til lands er fjall-
garður mikill og mjótt undirlendi.
En aftur era þar fossandi smáár og
gljúfur mikil og ilt að sækja. Undir
þessum bardaga er komið líf og til-
vera Tyrkja sem þjóð. En svona fór
nú, og tapi þeir Trebizond, þá ná
Rússar fljótlega öllum austurhluta
Litlu-Asíu. Og þó að þeir fari seint,
þá síga þeir áfram. En vogir eru þar
fáir og vondir og gengur þelm því
seinna en ella myndi.
Við Kut-el-Amara sitja Bretar enn
og ekki er styrktarliðið komið alveg
til þeirra. Bretar sitja þar á tanga
einum mjóum við Tigrisfljótið; en
hjálparliðið átti lengi vel að eins 20
mílur til þeirra á austurhakka fljóts
ins. En nú eru flóð þar og fen aust-
ur af bakkanum. Er þar nú svo
blautt, að víða er ekki meira en svo
sem mílubreidd, eða ekki jiað, upp
af bakkanum, og þar hafa Tyrkir
einlægt setið fyrir þeim. Skamt er
síðan Bretar að neðan ráku Tyrki
upp úr gröfum sínum, einar 9—10
mílur vegar. En þar höfðu Tyrkir
grafir aðrar, sem þeir gátu haldið.
Seinna leituðu Bretar á, en komust
ekki áfram, og biðu mannfall nokk-
urt. En í vikunni sem leið gjörðu
þeir Tyrkjum aðra sennu og hröktu
þá einar 2—3 mílur; eru nú ekki
nema einar 6—7 mílur til Breta á
tanganum, og eru það flóðin, ein,
em liamla Bretum frá að komast
lengra. Með Tyrkjuin eru jtarna hóp-
ar af þýzkum foringjum og stór-
skotaliði.
Á öllum hergarði Rússa eru flóðin
enn og getur þar hvorugur fireyft
sig nokkuð til inuna, l»ó að einlægt
hnippi þeir hvor í annan. Margir
ætla að Hindenburg fari nú að
reyma alt hvað hann getur að kom-
ast yfir ána Dvina og ná Dvinsk og
Riga, því hann veit það, að hvenær
sem þornar, þá koma Rússar upp
úr flóunum og verða skapstyggir og
nú liafa þeir skotfærin.
Rússar taka Trebizond.
Trebizond er nú tekin. — Rússar
hafa tekið Trebizond á hlaupum,
eins og Erzerum og Bitlis, og bjóst
enginn við, að þeir myndu geta það.
nema með löngu umsátri, eftir 3—6
vikur. Er þetta engu minni sigur en
þá er þoir tóku Erzerum og hefir
stórmikW óhrif á Evrópu og eigin-
lega allan heim.
Hvernig Svissland slapp
Sú saga gengur nú um og fer blað
úr blaði og land úr landi um það,
hvernig það atvikaðist, að Þýzkir
tóku leiðina um Belgíu, þegar þeir
réðust á Frakkland, i staðinn fyrir
að brjótast í gegnum Svissaraland.
Það var ári eða tveimur fyrir
stríðið, að Vilhjálmur keisari lét í
ljósi löngun sína að fara til Sviss-
aralands og varð það hljóðbært. óð-
ara senda Svisslendingar honuin
heimboð að vera við hersýningar
þeirra. Keisari keinur og dáist að
framkomu hermannanna og sérstak-
lega að skothæfni þeirra.
Eftir hersýninguna gengur keisari
að einum hermanninum og segir:
“Þið eruð rösklegir hermenn; en
þið eruð ekki nema 400,(100 talsins.
Hvernig mynduð þið nú fara að, ef
að eg sendi heila milíón af hermönn-
um minum til að fara yfir landið?”
“Það er ofur einfait”, mælti her-
maðurinn. “Hver okkar Svisslend-
inga yrði að skjóta tvisvar. Það er
alt”.
Þegar stríðið var að byrja, kom
til tals hjá þýzku herforingjunum,
hvora leiðina skyldi fara inn á
Frakkland: yfir Belgíu eða yfir
Svissaraland. Þegar atkvæðin voru
greidd, munaði að eins tveimur, og
var Belgía kosin. En herforingjarn-
ir, sem voru á móti því, að fara yfir
Svissaraland, höfðu aUir verið með
konungi, þegar hann fór til hérsýn-
inganna, sem um var getið.
Þetta hjargaði þeim.
Vatnsdal gerir stórsölu
Einhver hin stærsta sala, sem
nokkurntíma hefir fram farið i Wa-
dena, Sask., var sú, er Mr. Thórður
Vatnsdal seldi timburforða sinn og
Wadena Lumber Co. En kaupendur
voru: The North American Lumber
and Supply Co. og Prince Rupert
Lumber Co. Ilafa bæði þessi félög
skrifstofur sínar í Winnipeg. Hið
fyrra félagið keypti einnig “lumber
yard” Mr. Vatnsdals í Elfros, Sask.
Mr. Th. Vatnsdal liefir verið i
Wadena síðan bærinn bygðist, og
hefir jafnan verið framarlega i bæj-
arstjórn og fyrirtækjum ýiusum. ó-
ráðið er sem stondur hvað hann tek-
ur sér fyrir hendur, en um tima
nokkurn verður hann þarna i Wad-
ena að Ijúka viðskiftum sinum áður
en hann leitar annara stöðva.
Ur bænum.
Niðurlag gretoarinnar “Gandreið-
in” kemur í næsta blaði.
l'tanáskrift til Iljalta ögmunds-
sonar er nú: No. 311884, 3rd Sec.,
3rd Div. Amm. Col., C. E. F„ Army
Post'Office, London, England.
Mr. Árni Eggertsson fór til Mozart,
Elfros og Hólar P. O., Sask., samkv.
loforði við Eimskipafélags nefnd-
ina. Var hann þar að ferðast um
meðal bænda í 8 daga og kom heim
hingað á miðvikudaginn hinn 5.
apríi. Árni er alþektur fyrir lipurð
sína, dugnað og cinbeitta framkomu,
og seldi hann þar Eimskipafélags-
hlutf fyrir 6,675 kr., til 78 lslend-
inga. Hann hrósar mjög viðtökum
manha þar, enda eru menn þar fyrir
taks myndarlegir og gestrisnir, og
hvílir yfir konum og körlurn ein-
hver djarfmensku svipur. Vellíðun
manna telur Árni þar góða og bygð-
ina hina skeintilegustu.
Mr. B. J. Líndal, sem stýrði North
American Luinber and Supply Co. i
Elfros, tekur við stjórninni á Northj
American Lumber and Supply Co.
“yard” i Wadena. Hann fékst áður
við timbursölu i Winnipeg.
♦♦ ♦<
X
♦
♦
♦
♦
i
♦
♦
!
♦
♦
1
í
♦
♦
i
4-
♦
♦
♦
♦-
♦-
♦
♦
♦
223. OVERSEAS
Canadian Scandinavian Battalion
Ladies Auxiliary
Fundur verður haldinn af konum og ungum stúlkum allra
Skandinava, sem er ant um 223. herdeildina og vilja að
henni hlynna, í Goodtemplarahúsinu, horni Sargent Ave. og
McGee St.
LAUGARDAG 29. APRIL
Klukkan 8 e. hád.
Komið {rangað með alla vini yðar.
Þangað eru allir velkomnir.
♦
♦-
♦-
f til þess að mynda félag kvenna, er starfi með og fyrir þessa
þ ofannefndu herdeild.
♦
♦
♦
♦
♦
♦-
♦
♦
t
♦-
t
-f
♦-
-f
-f
♦-
♦-
♦-
í
-f
t
♦-
Tuttugu og fimm ára afmælishá-
tíð Fyrsta Unitara safnaðar-
ins í Winnipeg.
Messa byrjar kl. 2 e. m. á Sumar-
daginn fyrsta (fimtudaginn í þess-
ari viku). Fundur kl. 4. Kveldverð-
ur kl. 6.30. Fundur að kveldinu kl.
8, þar fluttar ræður af gestum og
áðkomuinönnum, kvæði og söngvar.
ÖUum boðið að vera viðstaddir.
Samkoma eða “reception” hins
nýn - ndaða félags “Jón Sigurðsson”
(Dætur Bretaveldis), sém haldin
var i samkomusal Tjaldbúðarkyrkju
á mánudagskveldið var fjölsótt og
fór prýðisvel fram. Prógrammið var
gott og fjölbreytt. Ilæður fluttu:
Licut. H. M. Hannesson lögmaður,
Hon. Th. H. Johnson, ráðgjafi opin-
berra verka og Mrs. Wright, og voru
allar tölurnar góðar. Eins var um
söng og hljóðfæraslátt. Skein ánægj-
an út úr faverju andliti og svo kom
hjartastyrkingin á eftir, blcssað
kaffið og kökurnar. Ef að nokkuð
væri út á að setja er það, að gestirn-
ir komu seint, svo að hóparnir, sem
fyrst komu, urðu að biða hálfan og
heilan tima. Þetta er ákaflega leið-
inlegt, en það er ekki forstöðukon-
unum að kenna, heldur þessuin leiða
sið, að koma ekki á ákveðnum, til-
teknum tíiúa. Ef að allur þorri
manna tæki sig saman um, að ráða
bót á þessu, þá má breyta þvI7 og
myndu allir, konur og karlar verða
þvi fegnir.
Ladies’ Auxiliary 223. Battalion.
Vinir góðir, lítið eftir auglýsing-
unni frá konunum og ungu stúlkun-
um, sem eru að mynda Ladies’ Aux-
iliary fyrir 223. hersveitina. Þær
eru að vinna sinn skerf, stúlkurnar
og konurnar, vinna sinn skerf fyrir
hina ungu og hugrökku drengi, sem
í stríðið fara til að berjast fyrir yð-
ur. Þetta er sveitin frænda vorra
Skandinavanna, og þarna er og
verður mikill fjöldi íslendinga, bæði
sem hermenn og foringjar. Hvar
sem landar vorir koma fram, í hvaða
sveitum sem þeir eru, þá verðum
vér að f.vlgja þeim i huganum og
styðja og styrkja þá i verki. Þeir
eru allir hraustir og hugaðir; þeir
leggja allir í sölurnar æsku sína og
lífsvonir; þeir eru allir til heiðurs
og sóma fyrir hina íslenzku þjóð;
þeirra verður allra minst á komandi
timum af eftirkomendum vorum, og
þá verður þeirra einnig minst, sein
hafa stutt þá og hjálpað þeim á einn
eða annan hátt.
Konur hér í Manitoba fengu fyrir
nokkrum vikum kvenréttindi, og
hver einasti maður verður að játa,
að aldrei í sögu mannkynsins hafi
bctur og heillavænlegar verið við
brugðið en nú. Þær sýna það, kon-
urnar, að þær áttu heimtingu á rétt-
indunum, sem þær fengu. Það er
eins og eldstraumur atorku, hygg-
inda, mannástar og föðurlandsástar
hafi hrifið þær og knúið þær fram
að vinna. Og málefnið cr svo göf-
ugt, að hér ætti enginn eftir að
verða. Verum allir samtaka, karlar
og konur, yngri sein eldri, og vinn-
um fyrir drengina, sem ganga í strið-
ið, alt sem vér getum, í hvaða deild,
sem þeir eru. Látum blóðið renna
oss til skyldunnar, og verum með
þeim í hug og hjarta í ráði og dáð.
Kseri ritstjóri!
Eg vona þú verðir svo góður að
ljá rúm i hinu mikilsvirða blaði
þínu línum þessum, er vinur 23.
herdeildarinnar bað mig að koma á
framfæri. En herdeild þessi er nú
við æfingar á Englandi.
Private Thord(ur) Johnson hiður
mig að flytja ritstjóra Heimskringlu
og þeim öðrum, sem að blaðinu
vinna, hjartanlegar hamingjuóskir
sinar. Ennfremur sendir hann inni-
legustu kveðju og hamingjuóskir sin-
ar til Guðrúnar og Sarah Olsen og
að þær fái lengi að lifa í farsælu
hjónabandi. Einnig sendir hann
hjartfólgið þakklæti til fósturfor-
eldra sinna, Mr. og Mrs. .1. Kr. Ein-
arsson, Hensel P.O., N. I>ak., fyrir
alla þá ást og umhyggju, sem þau
hafa sýnt honum.
Yðar skuldbundinn
B. Gíslason.
Suite 7, 626 EUice Ave., Winnipeg.
Dœtur Bretaveldis.
Á siðasta fundi “Jón Sigurðsson
Chapter, I.O.D.E.”, gengu þessar
konur og ungar stúlkur í félagið, er
nú skal greina:
Miss Thuríður Árnason.
Mrs. Guðný Baldwin.
Miss Emma Strang.
Mrs I). J. Mooney.
Mrs. P. S. Pálsson.
Miss Emma Jóhannesson.
Miss Helga Johnson.
• Miss Louise Ottenson.
Miss Sigriður Pétursson.
Mrs. ,1. Thorp.
Mrs. Clara Miller
Mrs. Thordur Johnson.
Miss Elin Johnson.
Miss Einma Johnson,
Miss Kristín. Johnson
Mrs. Gísli ölafsson.
Mrs. Sigfús Anderson.
Og eru þá félagskonurnar alls að
tölu 62.
Framvegis verða fundir félagsins
haldnir i fundarsal John M. King
School, nema öðruvisi verði aug-
lýst, og verður næsti fundur hald-
inn þar á þriðjudagskveld 2. mai
1916, kl. 8 e.m. Allar félagskonur eru
beðnar að vera þar viðstaddar þeg-
ar klukkan slær átta, samkvæmt á-
l.vktun þeirrri, er gjörð var á sein-
asta fundi, að allir fundir félagsins
skyldu byrja ú mínútunni kl. 8 e.m.
og vera slitið þegar kl. væri 10 e.m.
Flóðið.
í Bandarikjunum eða eiginlega
Rauðárdalnum voru svo mikil flóð
um lielgina og fyrri hluta þessarar
viku, að líklega hafa önnur eins eigi
komið i tíð þeirra manna, sem nii
eru þar. Vér höfum ekki séð blöð
frá Bandaríkjunum cftir helgi, en
frétt höfum vér, eftir ferðamönnum,
að smærri árnar, að vestan, norðan
við Grand Forks, F'orest River, Park
Iliver, Tongue Iliver og Pembina
River, hafi allar flóð yfir bakka
sina, og Rauðá hefir flóað yfir alt
Iáglendið. Viða flóði vatnið hátt yfir
brautarteinana, og runnu lestirnar
á lægra landinu í vatiíl tómu, sein í
stokk væri, og i smærri bæjunum
tók vatnið upp á le^fpallana; all-
ar gangstéltir voru i kafi, og náði
vatnið viða upp að gluggum á búð-
uin og ibúðarhúsum.
Hér norðan Hnunnar tók vatnið
brýr af Iækjuin og skurðum, og varð
að hætta að láta lestirnar ganga liér
suður og suðvestur.
1 Winnipeg flóði vatnið, í St. Jain-
es og Weston, yfir stræti og lyfti upp
gangstéttum, þegar á sunudaginn. f
St. Boniface eru kjallarar hálffullir
og nær fuliir á sumum stöðum. í
Norðurbænum er einn sjór yfir
landið á stóru svæði. f St. James
voru 12 familíur hneptar í húsuin
sinum; enginn vegur að fara þar
um nema á bátum. Af þakinu á eld-
stöðvunum i Weston sýndist allur
norðurhhiti hæjarins vera eitt haf, á
að gizka tiu milur á hvern veg.
Bæjarráðsmaður Skaletar sagði á
mánudaginn, að á Selkirk Ave., Mc-
Philipps St. og alt til Mountain Ave.
væri ómögulegt fyrir ibúana að
komast úr húsum sínum.
Rauðáin veltur frain kolmórauð
og langt til bakkafull, og niður í
bænum var vatnið farið að ganga
upp í kjallarana snemma dags á
mánudaginn. En einlægt hækkaði og
héldu menn að kjallarar myndu fylÞ
ast um meiri hluta bæjarins.
Á þriðjudaginn fór flóðið að
lækka. Lestir farnar að ganga.
— Á miðvikudagsmorgunirm var
flóðið verra í St. Boniface en nokkru
sinni áður. Gangstéttirnar á floti,
kjallaaar fullir, svo að vatnið spýtt-
ist út um kjallaragluggana. Alla
nóttina voru pólití, hermenn og aðr-
ir að bjarga fólkinu úr húsunum,
sem vatnið var að fylla.
Smávegis að sunnan.
Yon Papen, þýzki kapteinninn í
Washingbon, sakaður um landráð
og amsæri gegn Canada.
— Villa sagður daaður og grafinn
upp eftir að hafa legið í gröf sinni i
tvær vikur. Aftur ætla margir, að
hann ®é laus og frjáls suður í fjöll-
unum i Mexico og hlægja að öllu
saman. Áreiðanlegar sannanii vanta
cnn fyrir því, að þetta sé lík .íans,
sem upp var grafið. — En Mexieo-
menn vilja hafa Bandaríkjamenn
burtu úr Mexico, og sjálfir vilja þeir
helzt komast burtu sem fyrst.
— Wilson skrifar Vilhjálmi “blóð”
seinasta bréfið.
Gjöf til Red Cross Fund
Frá íslenzka stúdentafélaginu
ágóði af “Oration Contcst”.... $40.00
VANTAR BARNFÓSTRU. — Tele-
phone Ft. Rouge 2867, 191 Kings-
way.
VANTAR VINNUKONU. Verður a*
kunna matreiðslu. Telephone Ft.
Rouge 2867, 191 Kingsway.