Heimskringla


Heimskringla - 27.07.1916, Qupperneq 8

Heimskringla - 27.07.1916, Qupperneq 8
BLS. 8. m HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 27. JÚLÍ 1916. Auction Sale Every Second and Fourth Saturday monthly will be held at Clarkleigh this year from 2 to 6 p. m. B. RAFNKELSSON. Ef eitthvað gengur að úrinu þínu, þá er þér lang-bezt að senda það til hans G. Thomas. Hann er í Bardals byggingunni og bú mátt trúa því, að úrin kasta ellibelgnum í hönd- unum á honum. Fréttir úr Bænum. ----•--- Þeir Mr. Bergthór Thórdarson, bæjarstjóri á Gimli, og síra J. P. Sól- mundsson, forseti íslendingadagsins á Gimli, komu á mánudaginn vestan frá Camp Hughes, og höfðu farið ]>angað í þeim erindum, að fá farar- leyfi fyrir islenzka hermenn úr ný- lendunni á íslendingadaginn. Þeim gekk ferðin ágætlega og fengu alt, sem þeir óskuðu eftir. ( Allir islenzkir hermenn úr Gimli kjördæmi fá burtfararleyfi til að fara þangað á íslendingadaginn, og tekur leyfi það yfir 214 dag. Mega því allir vinir og aðstandendur vænta þeirra, að forfallalausu, og geta þeir notað tækifærið til að sjá þar alla í einum hóp. Þá má geta þess, að þetta verður i seinasta sinni, sein menn fá tæki- færi til að sjá síra Bjarna Þórarins- son og heyra hann tala. Á hann að flytja þar eina ræðu. Fóik er beðið að athuga, að þó að engir söngvar hafi verið auglýstir á prógrammi Gimli-lslendingadagsins, ]>á verur þar eins mikið eða meira um islenzka söngva, en nokkru sinni hefir verið áður. Mr. Gísli Jónsson, frá Winnipeg, ætlar að vera þar og sýngja fjölda íslenzkra söngva milli ræðuhaldanna. — Þvi ættu þeir ekki að gleyma, sem langar til að heyra vel sungið á islenzku. Eftir þessu lítur út fyrir, að þeir ætli að hafa mikla hátíð á Gimli þenna dag. Undirbúningur er mikill og góður, ef aðsókn verður eins. Eitt orð enn til landa vorra allra, sem sækja fslendingadagshátíðina hér í borg 2. ágúst: Gangið ekki framhjá JÓN SIGURÐSSON, LO.D.E. nema að þér iítið inn til þeirra. Þér hressið og styrkið bæði sál og lík- ama, ef að þér standið við hjá þeim, og þó að nokkur cent villist úr vös- um yðar, þá eru þau hvergi betur komin en hjá þeim félagskonunum. Þær verja þeiin til að hjálpa særð- um mönnum og gleðja þá, sem heim koma úr stríðinu,— gleðja menn þá, sem barist hafa eða eiga eftir að berjast fyrir yður alla, sem þarna eruð að skemta yður. Munið það nú, að láta félagskonurnar fara ánægð- ar heim og sjálfa yður ánægðá iíka fyrirtækis. ALLIR ÆTTU AÐ EIGA ÞENNA HNAPP Þá hefir íslendingadagsnefndin einnig til sölu hnapp með mynd merkasta landans í álfu þessari, — þess sem nú er kunnur öllum heimi. Það er myndin af Vilhjálmi Stef- ánssyni, landkönnunarmanni, heim- skautafara og fræðimanni. Myndin er góð og glögg. en maðurinn hefir kanske aukið frægð íslands meira en nokkur annar fslendingur í seinni tíð. Vér höfum séð mynd hans og greinir um hann í merkustu fræðiritum Breta, áður en hann fór ferð þessa, og er hann þar talinn með hinum frægustu heimskautaför- um. Hnappurinn kostar að eins lOc. Herra M. Christianson, frá Kam- sack, Sask., var á ferð í borginni um síðustu helgi. Hann er umsjónarmað- ur Indiána (Indian Agent) þar norð ur frá og var hér að kaupa gripi fyr- ir þá. Christianson er einn af þeim fáu íslendingum sem talar Indíána- inál reiprennandi, og er sérlega vel vaxinn þeirri stöðu sem hann nú héfir. Hann er gamali góðkunningi ráðsmanns Heimskringlu, og var kátur og fjörugur að vanda. Upp- skeruhorfur ágætar í hans bygðar- iagi. Hvergi verður skemtilegra að vera 2. ágúst en á fslendingadeg- . um í Winnipeg. Og svo eru lögin, sem leikin verða á íslendingadaginn hér í borg. Hornleikaraflokkur 108. herdeildar- innar kemur frá Camp Hughes og spilar allan daginn, og má nefna eft- irfylgjandi lög, sem leikin verða auk annara: ó, Guð vors lands. Blessuð sértu sveitin mín! Þú álfu vorrar yngsta land. Við hafið. Hvað er svo glatt. Svo verða þar horn blásin, trumb- ur slegnar, bumbur barðar, symfón sungin og saltari, — og dansinn til að klykkja út með. Þetta verðið þér alt að heyra! Næsta sunnudagskveld, 30i júli, verður messað í Únítara kyrkjunni á venjulegum tima, kl. 7. í listanum í síðasta blaði yfir nöfn þeirra, sem skrifuðu undir á- varpið til Kristins skálds Stefáns- sonar, féllu af vangá burt þessi nöfn Mr. og Mrs. Bárður Sigurðsson. Mrs. Margrét Björnsson, Miss Anna ólafsson. Einnig misprentaðist þar eitt nafn, stóð Sigríður, í stað Sigurður J. Jó- hannesson. Mr. Jóhannes Gottskálksson kom að sjá oss með syni sínum ungum og gjörvilegum, óskar Gottskálksson, nýkomnum i kynnisferð frá Edmon- ton, Alta. Óskar er nú í 138. herdeild inni, gékk i hana þar vestra; og er nú í Sarcee Camp nálægt Calgary. fyrir aö hafa lagt eitthvað til g<>ðs- Herdeild .þessi er fullmönnuð og býst hann við að fara bráðlega til vígvallanna. Beztu óskir vorar fylgja honum sem öðrum. Málverk. Allskonar litmyndir (“Pastel” og olíu- málverk) fást keyptar hjá I*or- ntelni 1». l>orMtelnMMyniv 732 Metiee St., —TaÍMfml O. 4tt»7.— Ljósmyndum, bréf- spjaldamyndum o. s. frv. breytt í stór- ar litmyndir fyrir mjögr sanngrjarnt veró. Efalaust eiga allir einhverja mynd svo kæra, ab þelr vilja geyma hana meí lífi því, sem höndin og: litirnir skapa, til minja í stofunni sinni. ÓSKAR H. HILLMAN. Bugler. Fæddur i Winnipeg 18. júlí 1896. Gekk í 197. herdeildina í marz síðastl. Foreldrar hans eru Mr. og Mrs. C. H. Hillman. Allir göðir íslendingar vilja eiga fána íslands. lslendingadagsnefndin hefir mikið af fánum fslands til sölu, hvern fyrir 25 cents. Það væri ágætur gripur fyrir unga sem eldri, að hafa með sér af Deginum til minningar um hann og gamla landið. Þeir, sem landið elska, ættu þó að hafa fána þess, — minna má það varla vera. Allskonar handmálaðar myndir, smáar og stórar, hefir Þ. Þ. Þor- steinsson sett til sýnis og sölu, nú nýlega, í búðargluggana að 674 Sar- ■gent Ave. Eru þar á meðal “sketch- es” af stöðum umhverfis Winnipeg, málaðar í vor, en flestar eru mynd- irnar frá fslandi. Þorsteinn býst við, að dvelja nokk- urn tíma niður í Nýja fslandi í sum- ar og mála þar frumdrátts-myndir (sketches) af nokkrum stöðum þar. Mr. Pétur Thorfinnsson, frá Mun- ich, N. Dak., kom i autó norður hingao nýlega til að sjá bróður sinn Thorlák Thorfinnsson. Sagði hann vegi alla góða og ástand alt hið bezta. hafa JÓN sölu Góður matur og drykkur fyrir sanngjarna borgun. íslendingar eru beðnir að það hugfast, að kvenfélagið SIGURÐSSON, I.O.D.E., hefir á öllum veitingum í sýningargarðin- um á íslendingardaginn 2. ágúst næstkomandi. Það hefir ágætar heitar máltíðir til sölu frá kl. 12—2 og kveldverð frá kl. 5 til 7. Eftirmiðdagskaffi með brauði verður á boðstólum, eða skyr og rjómi og berjaskyr, eftir því sem hver óskar. Kaldir drykkir og aldini til sölu allan daginn. Sanngjarnt verð á öllu, og verðhr ekkert til sparað, að reyna að gjöra alla ánægða; bæði hvað veitingarnar sjálfar snertir og fljóta afgreiðslu. — Allar félagskonur, sem mögu- lega geta því við kmnið, eru beðnar að koma út í sýningargarðinn næst- komandi ]>riðjudag, 1. ágúst, til að hjálpa til að undirbúa fyrir hátiðina næsta dag, og svo auðvitað að koma hátíðisdaginn sjálfan, því þá verður nóg að starfa. KAÐALDRATTUR. Þeir reyna hann á íslendingadag- inn núna, hér í borginni, hermenn og borgarar. Má búast við, að þar verði skemtun mikil, og höfum vér ekki séð karlmannlegri leik en þann, þcgar vel er á tekið. Vér horfðum á kaðaldrátt hér fyrir mörgum árum og höfum ekki gdeymt þvi enn. Allir tala um kafbátinn þýzka sem fór yfir Atlantshaf. Hann sat í Balti- more á mánudaginn, og voru Þýzkir tregir til að leggja heim aftur. Þeir vissu, að Bandamenn, bæði Bretar og Frakkar biðu þeirra utan við strandhelgi og myndu taka þá, ef kostur væri. Svo bætti það ekki um, að neðansjávarbáturinn “Brehmen” var hvergi kominn fram og átti þó að vera kominn fyrir viku eða meira til Ameriku. En einlægt voru þeir að fá ljótari og ljótari fréttir af viðbún- áði Breta að taka á inóti þeim. Ilve lengi þeir bíða þarna veit enginn. Guðmundur Kamban. Hann er einn af ræðumönnunum hér 2. ágúst, og i kveld (27. júlí) ætlar hann að skemta mönnum með framsagnar-list sinni. Ómurinn af verkum hans hefir borist hingað vestur. Hann er leik- ritaskáld. I.eikrit hans hafa verið sýnd í Danmörku. Hann tók hertaki borgina Kaupmannahöfn, og er það einhver listfengasta borg Evrópu. Hinir merkustu rithöfundar, svo j sem Georg Brandes rituðu um leik- ritið “Hadda Padda”, og telur Bran- des það snildarverk. Hið saina segja blöðin: Rerlingskc Tidende, Köben- havn, Politiken, Xatioiud Tidende, \ Illustreret Tidende o. fl. — Síðan fór hann um borgir Danaríkis, og urðu I menn hrifnir af honum, hvar sem hann kom. Dr. Guðmundur Finnbogason seg- ir um hann, að hann sé listamaður í grein, sem lítið hafi verið stunduð á íslandi, og enginn lært til hlítar. Hann hafi fagra og auðuga rödd, næman smekk og leikara hæfileika, og hafi fullkomnað sig í framsagn- arlist undir handleiðslu snlliingsins P. Jerndorf. Getur Dr. Finnbogason um framkomu hans i Reykjavík 24. júlí 1915 meðal annars á þessa leið: “Efnisskráin var þessi: Gunnarshólmi. Upphafið á Kát- um pilti (þýðing Jóns Ól.). Ákvœia- skáldið (þýðing Matth. Joch.). Dóra (sögukafli eftir Ilickens). Kafarinn (þýðing Stgr. Th.).£n hvað það var skrítið, eftir Pál Jónsson. Skifærden (úr Arnljót Gelline eftir Björnson). Faxi (sögukafli úr Skírni eftir Guð- mund Kamban). Eins og menn sjá slær efnið á | marga strengi og ólíka. En Kamban j kunni tök á þeim öllum og skeikaði J örsjaldan. Yfir meðferðinni var{ frjáls og persónulegur blær. Orðin fengu ekki að eins rödd, heldur hold j og blóð. Þau urðu að lifandi athöfn.j Slíku eru menn óvanir hér, og sumir j halda jafnvel að það sé óeðli, efj framsegjandinn sýnir Jífsmörk á sér. j En mér var skemt. Og þegar hlé varð á, þótti mér sem ótal íslenzk kvæði og sögur væru kongsdætur í j álögum, er biðu þess að kongssonur úr ríki listarinnar kæmi og leysti j þær, til að leiða þær fram í fullri j fegurð. Eg óska þess, að Guðm.j Kamban mætti enn oft lesa fyrir | okkur, og eg hlakka til að hann næst”. heyra j Íslenzk glíma. Sökum þess, að of fáir hafa nú þegar gefið sig frain til að glíma á Islendingadaginn, þá auglýsist hér með, að öllum, sem gefa sig fram fyrir kl. 1 «. h. annan ágúst, verður gefið tækifæri. Góð verðlaun í boði. S. I). B. STEPHANSON, ritari iþróttanefndarinnar. GUÐMUNDUR KAMBAN hefir FRAMSÖGN í Good-Templarhúsinu fimtudag 27. júlí kl. 8 síðdegis. Islenzkar skuggamyndir, með og án lita, verða sýndar. Aðgangur 50c “ISLENDINGAR VILJUM VER ALLIR VERA” Islendinga= Dagurínn idvikud. 2, Agust, 1916 Yerður haldinn í Sýningargarðinum í Winnipeg Forseti hátíðarinnar: Dr. B. J. Brandson Allur undirbúningur er nú fullgjörður eftir beztu vitund nefndarinnar. Að eins eitt er nauðsynlegt til að gjöra daginn þetta ár þann bezta íslendingadag, sem nokkurntíma hefir haldinn verið hér í Winnipeg, — það, að sem flestir Islendingar sæki daginn. Sjálfsagt sækja liann allir Islendingar, sem eiga heima í Winnipeg, og er von á, að sem flestir úr íslenzku bygöunum komi einnig og taki þátt í skemtan- inni Tilraun hefir verið gjörð til að gjöra daginn skemtilegan. — Col. H. N. Ruttan, D. C. M. D. No. 10, hefir gefið öllum íslenzkum hermönnum leyfi til að fara á hátíð ina. Þeir veiða þar því svo hundrnöum skiftir, og ættu sem flestir að nota tækifær- ið til að sjá þar vini sfna og kunningja, —ef til vill í síðasta skiftið áður en þeir fara. — Nefndin er að gjöra ráðstafanir fyrir sérstaka (Speciai) lest frá Camp Hughes þenna dag, til hægðarauka fyrir íslenzku hermennina. sem koma vilja á hátíðina. Klukkan 8.30 að morgni leggja af stað frá horninu á Portage og^ Arlington og horninu á Portage og Sherbrooke strætum — strætisvagnar, er flytja alla, sem viija, ■ ókeypis. Þessir vagnar fara norður eftir Arlington og Sherbrooke strætum. Sem flestir ættu að nota þetta tækifæri fyrir frítt far út f garðinn. Klukkan 9 byrja hlaupin fyrir börn frá 6 til 16 ára, og þar eftir hlaup fyrir full- orðið fólk, menn og konur, gift og ógift, ungt og gamalt. Þeir, sem voru ánægðir með verðlaunin í fyrra, verða ennþá ánægðari í ár, því nefndinni hefir hepnast á- gætlega, að fá góða og þarfa inuni, en ekkert glingur. BREYTING Á FYRIRKOMULAGI ÍÞRÓTTA. I síðustu tvö ár hafa íþróttafélög kept um verðlaun þannig, að félagið, sem hæsta vinninga fékk, hefir tekið Oddson-skjöldinn það árið, og meðlimir jjeirra, sem unnu, fengið medalíur. — Nú eru þessi félög tvístruð vegna þess, að svo margir eru gengnir í herinn. — I ár verða því allar íþróttir opnar fyrir einstaklinga, og verða gefnar betri og fallegri medalíur en áður. — Einnig fær sá, sem hæstu marki nær, Hansson-bikarinn, eins og áður Máltíðir verða veittar alian daginn af kvenfélaginu JÓN SIGURÐSSON, I.O.D.E., og er það nægileg trygging fyrir því, að góður matur fæst þar keyptur með sann- gjörnu verði. En þeir, sem vilja hafa mat með sér, geta fengið heitt vatn ókeypis. Frá klukkan 3 til 5 verða fluttar ræður 0g kvæði og sungnir ættjarðarsöngvar. Skemtiskrá: MINNI ISLANDS. Ræða—Guðmundur Kamban Kvæði—Síra Jónas A. Sigurðsson MINNI BRETAVELDIS. Ræða—Dr. B. J. Brandson Kvæði—Síra Hjörtur J. Leó MINNI VESTUR-ÍSLENDINGA. Ræða—Síra Friðrik Hallgrímsson. Kvæði—Þorsteinn Þ. Þorsteinsson MINNl' MANITOBA. Ræða—Miss Steina J. Stefánsson. Kvæði—Mrs. Margrét J. Benedictsson Islenzk glíma. Barnasýning. Hornleikaraflokkur spilar tslenzk lög. Allskonar íþróttir. Knattleikir: 1. Milli síúlkna (Ladies’ Base Ball); 2. milli 223rd Battalioit Base Ball Team og borgara. Aflraun á Kaðli milli hermanna og borgara. .............................Dans............................ Klukkan 1 byrja íþróttir fyrir íslenzka leikfimismenn undir umsjón Manitoba deildarinnar í leikfimisfélagi Canada. f Klukkan 8 byrjar dansinn og spiiar fyrir hann Thorsteinn Johnston’s Orchestra — Verðlaun verða gefin þeim, sem bezt dansa. Enginn fær að fara út úr garðinum og koma inn í hann aftur ókeypis, án þess að hafa sérstakt leyfi. I forstöðunefnd dagsins eru: Dr. B. J. Brandson, forseti. J. J. Swanson, skrifari. Á. P. Jóhannsson, féhirðir. Bardal. H. Methusalems. Th. Borgfjörð. A. S. Bardal. J. J. Vopni. S. D. B. Stephanson. J. Pálmason. Sig. Björnson. H. Alex Johnson. Sig. Júl. Jóhannesson. M. J. Skaptason. INNGANGUR I GARÐINN: 25 cents fyrir fullorðna. 15 cents fyrir börn innan 12 ára fl

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.