Heimskringla - 28.06.1917, Side 1

Heimskringla - 28.06.1917, Side 1
t---------------------------------- Royal Optical Co. Elztu Opticians i Winnipeg. Við höfum reynst vinum þinum vel, —* gefðu okkur Uekifseri til að reyn- ast þér vel. Stofnselt 1905. W. R. Fowler, Opt. V.________________________________ XXXI. AR. WINNIPEG, MANITOBA, 28. JONI 1917 NR. 40 Styrjöldin Frá Frakklandi. Bandamenn 'háðu marga snarpa liildarleiki á Frakklandi síðustu viku. í byrjun vikunnar gerðu ibrezku hersveitirnar áhlaup á svœðinu fyrir suðaustan Leverag- nier og tóku þar af Þjóðverjum fremstu skotgrafir og marga fán'ga. A öllu þessu svæði var svo hvíld- arlaust barist alla vikuna, því Ljóðverjar vildu ólmir taka skot- grafir sínar aftur. En svo sterk var vTörn Breta, að óihlaup óvinanna nrðu að engu. Um miðja vikuna neyddust Þjóðverjar til að hopa á öllum svæðum frá ánni Lys, nærri Warneton og óralángt suður. Bretar eru nú óðum að ná á sitt vald þeim stöðum Ljóðverja, sem svo örðugir voru sóknar, að sumir töldu þá ósigrandi. Hæðirnar við Messines hafa kostað Breta marga menn, og eins hæðirnar við Yimy, Somme og víðar. En nú eru Þjóð- verjar hraktir úr öllum þessum stöðum og mannfall því að verða minna í liði Breta en áður. Þannig er afstaða öll smátt og smátt að breytast á Frakklandi. Ljóðverjar hafa nú ekki yfirhöndina lengur; þeir eru nú að verjast og að hopa. -Og þó hver vika færi ekki banda- mönnum stórsigra, eru þeir þó alt af að koma ár sinni betur og bet- ur fyrir borð og áður mörg ár líða verða Þjóðverjar reknir úr Belgíu og Frakklandi og inn í sitt eigið land. Ef til vill verður saminn frið- ur áður þetta skeður, en engin vissa er þó fyrir því enn þá. í byrjun þessarar viku hófu Bretar og Canada menn öfluga sókn gegn borginni Lens. Aðallega munu það þó vera Canadamenn, sem sækja borg þesssa, og eru nú tierdeildir þeirra komnar inn í út- jaðra borgarinnar og Þjóðverjum áreiðanlega að verða þarna illa vært. Alt virðist benda til þess, að Canadamenn og Bretar taki borg þessa áður langt um líður. Einnig hafa Þjóðverjar verið hrakt- ir á stórum svæðum þarna nærri. Hersveitir Frakka stóðu í mörg ’um stórorastum síðústu viku. En víðast virðast það vera Þjóðverjar, sem eru að sækja. Frakkar hafa náð mörgurn öflugum vígjum þeirra á Champagne svæðunum og eru Þjóðverjar einlægt að reyna að ná þeim aftur. En þaT> kemur mjög sjaldan fyrir að Frakkar verði að hopa á því svæði, sem þeir hafa einu sinni hrakið Þjóðverja af. í lok síðustu viku gerðu Þjóðverjar stórkostlegt álilaup á Aisne svæð- inu. Hófst á því svæði grimmasta orusta, sem endaði þannig, að Trakkar hrintu óvinunum af hönd- um sér og tóku af þeim mörg hundruð fanga. Haldið er, að Þjóðverjar muni bráðlega gera aðra tilraun þarna, ef til vill en þá stórkostlegri. En ekki óttast Frakk- ar slíkt hið minsta. Annað hvort er að koma tauga- óstyrkur á Þjóðverjana, eða að renna á þá berserksgangur, því þeir eru einlægt að gera smá á- hlaup hér og þar. Séu þeir í víga- móði að “þreifa fyrir sér”1 með þessu, má búast við stórkostlegri sókn frá þeim gegn Frökkum áð- ur langt líður. En þetta mun ein- mitt vera það, sem Frakkar eru að bíða eftir; því áreiðanlegt er, að þeir kjósa heldur að það séu Þjóð- verjar, sem sæki. -----o---- Frá öðrum Bandaþjóðum. ítölum gengur vel í seinni tíð. Þeir hafa hrakið Austurríkismenn liér og þar og hefir í sumum orust- unum verið mikið mannfall í liði óvinanna. Einna harðastar hafa orusturnar verið á Trentino svæð- inu. öflugt vfgi tóku Italir 19. þ. m. af Austurríkismönnum ú svæð- inu við Oritigora fjallið. Tóku þeir þar af óvinunum marga fanga og allar skotfærabirgðir þeirra, sem þar voru. ítalir voru hvergi hrakt- ir síðustu viku. Alt virð.ist nú vera að lifna við á hersvæðum Rússa. Þjóðverjar létu nýiega loftbáta sína svífa yfir skotgröfum Rússanna, og hrundu þá út loftinu skeyti frá Þjóðverj- um til Rússa þess efnis, “að Þjóð- vorjar segðu stríðshié nú lokið og myndu nú hefja sóknina á ný með meiri krafti en áður. Væri þeir Rússum mjög þakklátir fyrir hvíld- ina,” Eftir þessa einkennilegu til- kynningu, ihefir þó samt ekki enn bólað neitt á þessari miklu sókn. Vafalaust hefir tilgangurinn með þessu verið sá, að slá Rússum skelk í brjóst.—-Á Roumaníu svæð- inu og víðar átt sér hér og þar aliiharðar orustur stað í síðustu viku og sóttu Rússar þar fram kappsamlega. Rússneska (stjórnin hvetur her- inn nú áfram af öllum kröftum. -----o----- Seinustu fréttir. Canadamenn taka borgina Le Coulette án þess að missa einn einasta mann. Borgim Lens er nú þvi nær umkringd á alla vegu af brezkum og canadiskum hersveit- um. Bretar eru að sækja hér og þar á öllu svæðinu sem þeir halda á Frakklandi. Italir vinna nýja sigra og taka af óvinunum öflug fjalla vígi og fleiri hundruð fanga. Venizelos hefir verið til þess sett- ur af hinum nýja Grikklands kon- ungi að mynda nýtt ráðuneyti. Franskar ' herdeildir hafa verið sendar til Athens til þess að við- halda þar skipulagi. Má nú bráð- lega búast við breytingum. til hins betra á Grikklandi því Venizelos hofir ætíð verið bandaþjóðunum iilyntur. Ekki er þó haldið, að þetta leiði til þátttöku Grikklands í stríðinu í nálægri framtíð. Ekki föðurbetrungur. Hinn nýi Grikklands konungur virðist ekk ætia að reynast banda- mönnum neitt hollari en faðir hans var. 1 sínu fyrsta ávarpi til grísku þjóðarinnar, iagði hann einna sterkasta óherzlu á það, að hann myndi nákvæmlega fylgja “hinni afargóðu stefnu” tföður síns. Gera l>essi orð hans hann all- ískyggilegan í augum bandaþjóð- anna og er haldið, að ekki líði á löngu áður honum verði vikið frá völdum og Venizelos verði falið að stjórna Grikklandi á meðan strlð- ið stendur yfir. -------O------- Beðið um liÖstyrk. Forsætisráðherra Canada fékk ný- lega eftirfylgjandi skeyti frá Sir Arthur Currie, sem nú er yfirhers- höfðingi Canada liðsins á Frakk- landi. Skeyti þetta er svar hans upp á árn'aðaróskir, sem Sir Robert Borden sendi honum, þegar hann var nýlega tekinn við æðstu her- stjórn Canada hersins: “Eg get einlæglega metið og er yður innilega þakklátur fyrir hið alúðiegai skeyti yðar og hugheilu árnaðaróskir. Eg tel mér stóra sæmd, að stjórna nú hinum hug- prúðu Canada herdeildum, og vilji minn er, að stjórna þeim þannig, að sá ágæti orðstír, sem þær hafa unnið sér í stríðinu, geti haldist. Eg er yður ]>akklátur fyrir l)á fullvissu yðar. um, að herdeildun- um sé óhætt að reiða Sig á, «ð Can- adamenn sendi þeim alla aðstoð, í mönnum og öðru, sem þær þarfn- ast. Þær liafa úthelt blóði sínu til þess að halda uppi heiðri þjóðar- innar og vona nú öruggar að á- vextirnir af fórn þeirra verði ekki eyðilagðir. Nauðsynin er brýn og ákveðin, að nægilegur liðsstyrkur, bæði í fyrirliðum og hermönnum, sé sendur frá Canada til þess að halda herdeildunum við fullan liðskraft.” Af þessu skeyti geta menn séð, að Sir Robert Borden er ekki að búa þessa manna, þörf til, eins og sumir halda, og að herskyldu- frumvarpið er annað alvarlegi'a, en “stjórniarfarsleg brella”. — Geta menn lóð núverandi stjórn, þó hún vilji grípa til herskyldurmar, þegar þörfin fyrir liðsauka er svona brýn. -----<—o------- Meiri innflutningur. Þrátt fyrir það, þó Bandaríkin sé nú komin inn í ófriðinn mikla, ber ekki á að það hafi enn nein veruleg éhriif á flutning Banda- ríkja ma,nna hingað til Canada. Fjöldinn, sem kemur þetta ár, heldur áfram að vera töluvert meiri, en um isama leyti árið, sem leið. Flestir karlmenn, sem koma, eru yfir herskyldu aldur, en eru samt sem áður menn á bezta aildri, eftir því, sem innflytjendastjórar segja. Vikuna, sem endaði 12. júní, komu meira en helmingi fleiri en sömu viku árið, sem leið. Þessa viku (til 19. júní) komu 684 manns og höfðu meðferðis $135,864 í pen- ingum. Af þessum hópi voru 236 vinnumenn bænda, og 553 skrifuðu sig Banda,ríkja menn. Til Ontario fóru 27, til Manitoba 105, til Sas- katehewan 227, til Alberta 269 og til British Columbia 236. Þessa sömu viku rituðu menn sig fyrir 186 heimilisréttarlöndum. -------o------- Kosningarnar í Saskatchewan. Kosningarnar í Saskatchewan eru nú um garð gengnar og end- uðu þannig, að liberalar unnu með miklum meiri hluta. Saskat- chewanbúar hafa þannig viljað gefa stjórninni tækifæri til þess að bæta sjálf fyrir yfirsjónir sínar í liðinni tíð, og er nú undir næstu fjórum árum komið, hvort hún gerir það. — Enn eru ekki nákvæm- ar fréttir fengnar um kosninga- úrslitin. Vissa er þó fyrir því feng- in, að 34 liberalar hafa verið kosn- ir og 4 conservatívar; enn ekki fullvíst um 17 kjördæmi, en liber- alar þó á undan í flestum þeirra. 1 Wynyard kjördæmi var W. H. Paulson kosinn með miklum meiri hluta. Málinu frávísað. Eins og losendur sjálfsagt muna. voru þeir Sir Itodmond Roblin, fyrverandi forsætisráðherra fylk- sins; Geo. R. Coldweli, fyrverandi mení'amálaróðherra, og James H. Howden, fyrverandi dómsmálaráð- iierra, allir sakaðir um svik og fjárdrótt í sambandi við þinghúss- bygginguna nafntoguðu. Haustíð 1915 fóru þeir ■allir sjálfviljuglega á lögreglustöðina hér í Winnipe0' ojf gáfu sig á vnld lögreglunna.: Var þeim þá slept gegn ábyrgðar- fé þeirra sjólfra óg annara, og síð- an hefir mál þeirra staðið yfir og kærurnar um, að þeir hefðu stolið undir sig fé fylkisins, hafa legið yfir höfði þeirra eins og svartur skuggi. íin nú hefir máli þeirra verið frávísað af Prendergast dómara. Astæðan fyrir þessu er sú, að Sir Rodmond Roblin er nú svo heilsu- tæpur, að haldið var hann myndi ekki þola langt réttarhaid og líf hans yrði þannig sett í voða. Tveir læknar skoðuðu hann nýlega og sögðu-vafasamt að hann gæti staðist þetta. Þegar R. A. Bonnar, iögmaður krúnunnar, lagði þetta fyrir Prendergast dómara, afréð dómarinnar að vísa málinu frá dómstólunum fyrir fuit og alt. Ráðherrar fyrverandi fylkisstjórn- ar liér eru því frjálsir menn f ann- að sinn og þótt þeir hafi ekki í varðhaldi verið, munu þeir samt anda léttara. Blaðið “Free Press” flutti þessa frétt á þriðjudaginn.'og sagði satt og rétt og hlutdrægnislaust frá öllu. -------o------- Horfur hjá óvinaþjóÖunum. Flugufregnir eru einlægt að ber- ast um það, hve uppskeruhorfur séu dauflegar á Þýzkalandi. Segja fréttir þessar stöðuga þurka hafa verið þar lengi og akrar þess vegna alveg að eyðileggjast á stórum svæðum. Einnig seg’ja þær akra þar víða í mesta ólagi sökum þess, að nú sé á Þýzkalandi ekki völ á öðrum vinnumönnum fyrir bænd- ur en þeim, sem lítið eða ekkert til akuryrkju kunni. — Ef til vill er eitthvað satt í fréttum þessum, en enginn skyldi þó byggja á þeim um of. En um miðja síðustu viku barst frétt frá Amsterdam á Holiandi, sem að líkindum er takandi mark á. Segir hún fregnrita eins BandaL ríkjablaðsins nýlega kominn til Amsterdam, eftir ferðalag i gegn um Þýzkaland, Austurríki og alla leið suður til herstöðva Austurrík- ismanna við Trieste. Eftir ferðalag þetta kvað hiann vera þeirrar skoð- unar, að óvinaþjóðirnar verði ekki sigraðar í stríði þessu með matiar- skorti heima fyrir. Segir hann að skortur ýmsra fæðutegunda sé þar nú ekki eins tilfinnianlegur og hafi verið fyrir skömmu síðan, og nú sé nægar birgðir af kálmat í löndum þessum. Fregnriti þessi segist hafa verið með hersveitum Austurríkismanna á Isonzo svæðinu. Skorti hersveit- ir þessar engiar fæðutegundir. 1 Vínarborg kvaðst hann hafa talað við fólkið á sölutorgunum og í kjötmörkuðunum. Kvarbanir sagð- ist hann hafa lveyrt um skort á sykri, sápu og eins því hve brauð- skamturinn væri orðinn lítill, en ekki sagðist hann haía orðið var við það, að þar ríkti neinn alvar- legur miatarskortur. Um stríðið hafði margt og mikið verið talað, en engan kvaðst fregn- ritinn hafa reyrt nefna að sérfrið- ur á milli usturríkis og bandaþjóð- anna væri æskilegur. Sagðist iiann hafa leitt þetta í tal bið allar stétt- ir í Vínrborg, herforingja, her- menn, stjórnmálamenn, verkamenn og konur, og hefðu allir verið sömu skoðunar. Allir gerðu gys að þeirri hugmynd, að saminn væri sérfrið- ur. Og alt þettia fólk bar mesta ó- vináttuhug gagnvart ítalíu, og var það eindregin skoðun flestra, að ítalska þjóðin verðskuldaði þunga hegningu. Á Þýzkalandi eru menn daufari í bragði. Þjóðin þar hefir sýnilega orðið fyrir vonbrigðum hvað af- rek kafbátanna snertir, en all- ir eru þar jafn-ákveðnir 1 að bezta stefnan sé að halda stríðinu áfram, úr því friðurinn var ekki fáanleg- ur, þegar bandaþjóðunum var boð- inn hann. Engir vílja, að Alsaee- Lorraine gefist Frökkum aftur. Borgin Berlin er nú kyrrlátari en áður var. 1 Hanover, þar sem feykilega mikill flutningur á sér stað til vestur herstöðvanna og einlægur lestagangur er til og frá; í þessari borg er varla hægt að verða þess var, að þjóðin sé í stríði. Mesta líf og fjör er í borg- inni. Matvara öll er þar í afar háu verði, en af því hve verkalaun fólksins eru nú há, er þetta ekki mjög tilfinnanlegt. Uppskeru horfur á Þýzkalandi eru ailgóðar yfir það heila tekið. Bezta útlit með hveiti og maiskorn og hafrar eru í meðallagi. En illa lítur út með bygg og kartöflur. Nautpeningur er nú í betra útliti en áður, sökum þess hve mikið hefir verið ræktað af grænu fóðri. Mikill skortur er á smjöri heima fyrir og öll olía er þar nær með öllu ófáanleg. — En yfir heila tekið er ástandið ekki líkt því eins ískyggi- legt á Þýzkalandi og rnargir virð- ast halda. Þýzkaland verður ekki sigrað með öðru en vopnum og herafla. Þess vegna er þörfin brýn á fleiri mönnum. -----o----- Ársfundur conservatíva í Manitoba. Conservatívar í Manitoba héldu ársfund sinn þann 21. þ.m. hér í bænum. Mættu á fundi þessum um þrjú hundruð fulltrúar frá öll- um pörtum Manitoba fylkis. Það sem aðallega einkendi fund þenna var, hve friðsamlega hann fór fram og kom hér í ljós, hve sam- liuga conservatívar eru í þvf að leggja fram alla sína krafta 1 þarf- ir stríðsins. Sú ákvörðun var sam- þykt í einu hljóði, að cónservatíva flokkurinn í Manitoba fylgdi þvf eindregið, að herskylda yrði lög- leidd í Canada. Fylkis flokksmál voru ekki tek- in mikið til umræðu á fundinum, en aðallega hallað sér að helztu málum rfkisins, sem nú eru á dag- skrá—og sem öll eru eitthvað í sambandi við þátttöku þjóðarinn- ar f stríðinu. Herskyldu frumvarpið. Margir hafa tekið til máls á þingi síðan herskyldu frumvarpið var tekið til umræðu í annað sinn. Málið hefir verið rætt af á- huga og kappi á báðar hliðar. Fljótt kom í ljós, að með afstöðu sinni hefir Sir Wilfrid Laurier sundrað liberal flokknum. Dag- lega hefir tala þeirra liberala auk- ist, sem ijá hersjkyldunni öragt fylgi. Ekki er þó talið líklegt, að herskyldu frumvarpið leiði til kosninga, því þótt liberalar vséu of- urhugar, munu þeir kynoka sér við að koma fram fyrir þjóðina með tvær stefnur, sem andstæðar eru hvor annari! Hver úrslitin í máli þessu verða, verður tíminn að leiða f ljós. Góð samvinna. Hon. W. J. Hanna, sem nýlega var skipaður matvælastjóri í Can- ada, er nú tekinn til starfa af mesta kappi. Síðustu viku fór hann snöggva ferð til Bandaríkj- anna til þess að ráðgast við mat- vælastjóra stjórnarinnar þar og stofna til samvinnu á milli þeirra. Má búast við bezta árangri af samvinnu þessari, enda er mikið undir því komið, að Canada og Bandaríkin geti nú verið samhuga og unnið saman. Mr. Hanna hefir aðalstöð sfna í Ottawa og er nú kominn þangað. Yið komu sína frá Bandaríkjunum vildi hann ekki gefa neitt ákveðið út um hvernig verkum yrði hagað, en kvað það myndi koma í ljós áður langt liði. -------O------- Bæjarfréttir. Sæsímaskeyti kom á þriðjudaginn var á skrifstofu Árna Eggertsson- ar, fasteignasala, frá Eimskipafé- lagi íslands f Reykjavík. Á því stóð einungis: “Gullfoss farinn. Eimskipafélag.” Ekkert stendur nánara um, hvert Gullfoss er far- inn, en líklega er það til New York. Þessa íslendinga segja ensku blöðin særða á vígvellinum: G. B. Hjörleifsson, Icel. River. Hermann Jónsson, frá íslandi. A. Thompson, Shoal Lake, Man. Fyrsta upplagið af mynd Yil- hjálms Stefánssonar gekk fljótt til þurðar. Varð Þorsteinn þá að “efna f annan bát” og hefir hann nú lokið við að mála mynd af Vil- hjálmi í annað sinn. Aðra ljós- mynd af hinum fræga norðurfara hafði hann til íyrirmyndar í þetta sinn, skýrari og betri. Smámynda- ramminn utan um myndina er sá sami, en með öðrum lit en áður —samræmi ócfað betra. Eins og Þorsteinn hefir auglýst áðUr, geta þeir, sem keypt hafa fyrri mynd- ina og eru óánægðir með hana, skift henni sér að kostnaðarlausu fyrir þessa seinni mynd. Heimiii Þ.Þ.Þ. er að 7ý2 McGee str., Winni- peg. Verkfall í Winnipeg. Nærri þúsund verkamenn, sem við byggingavinnu eru í Winni- peg, gerðu verkfall á þriðjudaginn. Biðja þeir um 40c. á klukkutím- •ann, sem er lOc. meira en þeir fengu áður. Réttlæta þeir verkfallið með því, að verkgefendur hafi verið ófáanlegir til þess að veita þeim kauphækkun þessa. ^ökum verkfalls þessa er nú vinnan á þinghúss byggingunni því nær lögð niður. Sumir af verkveitend- um í Winnipeg hafa þegar orðið við kröfum verkamannanna til þess að halda þeim við vinnuna. Aðrir segjast muni afla sér verka- manna utan frá. Ekki er verk- mönnum láandi, þó þeir vilji hafa hærra kaup, þegar önnur eins dýr- tíð er komin í landið, en vafasamt er þó, hvort verkfall þetta hefir góðar afleiðingar. -------o------ Alvarleg fólksfækkun á Þýzkalandi. Eftir J. W. Mason. Ef stríðið endist eitt og liálft eða tvö ár lengur, munu börn hverfa nærri með öllu á Þýzkalandi, utan stjórnin þar geri einhverjar ráð- stafanir og finni einhvern veg til þess, að komia í veg fyrir barna- fækkun þá, sem átt hefir sér stað síðan stríðið brjaði. Þýzka þjóðin stendur nú í þessu tilliti ver að vígi en nokkur önnur núlifandi þjóð og getur þetta haft hörmulegar afleiðingar. Stórkost- leg barna fækkun heima fyrir, jafn- framt því að ungir og efnilegir menn hniga í hundraða tali á víg- vellinum daglega, er ekki glæsi- legt fyrir neina þjóð. Eyðilegging hins þýzka kyn- Stofns, sökum þessarar áframhald- andi fólksfækkunar, er ekki öfga- þrunginn draumur stríðsþjóðanna gegn Þýztoalandi, heldur óyggjandi möguleiki, som hlýtur að hvila eins og svartur skuggi yfir þjóðinni, og hafa þýzkir vísindamenn verið settir til þess af stjórninni að rannsaka mél þetta. Árið 1915 fækkuðu fæðingar á Þýzkalandi um 20 prct. niður fyrir skýrslurnar, 1914 er stríðið hófst, og samkvæmt manntali,. sem þar hefir nýega verið tekið, var barna- fækkunin árið 1916 um 40 prct fyrir neðan skýrslurnar árið 1914. Ef barma' fætokunin eykst í landinu hlutfallslega eftir þessum skýrsl- um, verða börn nærri því með öllu horfin á Þýzkalandi 1 lok ársins 1919. Ef til vill er þó ekki hægt að fara alveg eftir þessum skýrslum, þar sem við manntalið nýafstaðna var þessi barn'afækkun ekki mið- uð við sveitaþorpin, heldur borg- irnar, sem höfðu 15,000 íbúa eða fleiri. Það er mögulegt, að barniafækk- unin hafi ekki verið í jafn stórum stýl úti á landsbygðinni. En ef svo er, þá orsakast þetta af þvf, hve mörg óskilgetin börn fæðast nú á meðal bændafólksins. Rúss- neskir fanga'r hafa verið nobaðir til bændavinnunnar, og er sagt, hverjar sem sönnur eru fyrir, að í mörgum tilfellum séu óskilgetin börn eignuð þeim. En ekki verður slík fólksfjölgun glæsileg í augum þeirra manna, sem nú standa á bak við stjórnina þýzku. Og einhvern veg verður stjórnin iað finna til þess að ráða bót á þessu, ef þýzka þjóðin á f framtíðinni að teljast framarlega í röð stórþjóðanna. Þegar þetta er ritað, liafa Þjóð- verja'r mist 1,200,000 menn fallna í stríðinu. Um hálfa miljón fatlaðra hermanna hefir hún nú á höndum sér, sem ómögulegir verða til neinn- ar þungrar vinnu. En um 800,000 unglingar koma á lögskyldualdur til hernaðar árlega á Þýzkalandi. Þessi aivarlega fólksfækkun, sem nú vofir yfir Þýzkalandi, er þriðja hreyfingin, sem nú verkar til þess að kollvarpa hervaldinu prúss- neska—hinair hreyifingarnar eru: vaknandi lýðfrelsisandi þjóðar- innar irmlendis og stríðið, sem stendur yfir gegn þjóðinni utan að frá. Þýzkir þjóðfélagsfræðingar og prófessorar tilnefndir af stjórninni halda nú ráöstefnur um ialt land- ið til þess að reyna að finna eitt- hvert meðal gegn þessari miklu fóltosfækkun — en að svo komnu hafa ráðstefnur þessar engan á- rangur borið.----- Síðain fransk-prússneska stríðið stóð hefir fæðingum, kynslóð eftir kynslóð, farið fækkandi á Þýzka- landi. Fólksfjölgunin í landinu liefir orsakast af því, að stjórnin á þessu tímabili endurbætti að stór- um mun heilbrigðis ástand þjóðar- innar og dróg þannig úr dauðs- föllum. En samfara barnafækkun- inni í dag er stríðið—og öll dauðs- föllin, sem það orsakar. Þegar hermennirnir þýzku koma heim úr skotgröfunum, fæst bót við þessu. En þetba' á ef til vill langt í land enn þá og þörfin á mönnum til vígvallar liefir aldrei verið meiri hjá Þjóðverjum en nú. ög hver sá hermaður, sem nú er að velli lagður, þýðir skarð í hóp þýzkra feðra í framtlðinni, og er þetta svartaisti skugginn, sem nú hvílir yfir þýzka þjóðstofninum. Eina vonin fyrir Þjóðverja er sú, að stríðið endi sein fyrst. Þetta sér stjórnin þýzka, og er þetta or- sökin að friðar tilraunum hennar. ------------------o------ Spellvirki þýzkra loítbáta. Loftbátaflotar Þjóðverja eru farnir að mega sín lítils á stríðs- svæðunum, því 1 seinni tíð eru bandamenn sýnilega að verða Þjóðverjum snjailari í þeim viður- eignum. Bretar hafa nú margfalt fleiri loftbáta en áður og bæta ein- lægt við töluna. Frakkar standa einnig vel að vígi hvað þenna hernað í loftinu snertir, því þeir hafa loftbáta mairga og stóra, sem þcir fullkomna einlægt meir og meir. En þegar Þjóðverjar eru farnir að lúta í lægra haldi í þessum sök- um, grípa þeir til síns “mikla mann- vits og menningiair.”. Til þess að jafna reikninginn senda þeir loft- báta sína yfir Lundúnaborg og láta þar rigna sprengikúluan yfir konur og börn. — Um miðja vik- una fyrri svifu 15 þýzkir loftbátar yfir Lundúnaborg og orsökuðu þar eignatjón og manntjón töluvert. Ein kúla þeirra hitti skólahús og varð 10 börnum að bana og særði 50 börn meira og minna.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.