Heimskringla - 06.12.1917, Side 1

Heimskringla - 06.12.1917, Side 1
f J ............. ' ■ 1 Royal Optical Co. Elztu Opticians i Winaipeg. ViS höfmn reynst vinum þímim vel, —• gefðu okkur tækifæri til að reyst- ast þér vel. Stofnseit 1905. W. R. l'owler. Opt. -__________________________________ XXXII. AR. WINNIPEG, MANITOBA, 6. DESEMBER 1917 NÚMER 11 Styrjöldin Stórkostlegar orustur í grend viS borgina CambraL Frá seinustu sókn Breta á Frakk- landi var skýrt 1 síðasta blaði, hvernig þeir bmtust áfram á svæð- inu norður af St. Quentin og alla leið að Scarpe ánni. Yoru þeir þá komnir fast að borginni Cambrai og búnir að taka þar á sitt vald Bourlon þorpið og “Bounlon skóg- inn”. Eftir þetta hófust stórkost- legar orustur f þessum stað, sem staðið hafa yfir stöðugt síðan. Rupprecht prinz, krónprinz Bavar- íuríkis, er við æðstu herstjórn Þjóðverja á þessu svæði og hefir hann snúist þarna gegn Bretuim með öllum þeim krafti, er hann á völ á. Uan tuttugu hersveitir (divisions) heíir hann baft þarna til varnar — eða um 375,000 menn, og hefir þessum mikla mannafla ekiki verið ihlíft hið minsta. Her- deildunum þýzku hefir verið sigað fram á orustuvöllinn án minstu miskunar og hefir þetta haft þær áfleiðingar, að öllum fréttunum ber saman um, að aldrei áður hafi verið stórkostlegra mannfall 1 liði Þjóðverja en við þetta tækifæri. Hér og þar fengu Þjóðverjar hrakið Breta lítið eitt til baka og tekið frá þeim hervígi, sem þeir höfðu náð á sitt vald, en af síðustu fréttum að dæma hafa Bretar náð flestum þessum stöðum aftur og fengið algerlega yfinhöndina. Bæ inn Masnieres tóku Þjóðverjar þó og halda honum þegar þetta er skrifað, en ólíklegt er að þeir fái haldið honum lengi, þar sem Bret- ar láta nú stöðugt istórskotahríð dynja á honum, uppihaldslaust nótt og dag. ið að gera áhlaup en verið hrundið til batoa. Fréttir í byrjun þessarar viku segja Þjóðverja hafa stórkostlega sókn í undirbúningi á austari her- svæðum sínum á Frakklandi. Tii þessarar sóknar munu þeir Ihafa í hyggju að viðhafa stórbyssur þær, sem þeir hafa tekið af ftöium og herafla þann, sem þeir hafa nú fengið lausan á hersvæðunum gegn Rússum. En Þjóðverjar hafa við- haft mikinn mannafla fyrri — t.d. við Yerdun—og þeirra stórkostlegu áhlaup þó Sborið sáralítinn árang ur sem kunnugt er. ------o-------- Frá ftölum. Norðanvert á ítalíu gengur við það sama Þjóðverjar og Austur- ríkismenn halda sókninni áfram, en vinst lítið á. Vígi ítala í fjötll- unum eru örðug sóknar og við hverja atrennu hafa óvinirnir orð- ið frá að snúa við mesta mannfall. Herstöðvarnar í grend við Pertioa- fjaUið /hafa þeir margitekið og mist þær jafnharðan aftur. — Hersveitir Frakka og Englendinga eru nú vafafaust teknair að berjast með ft- ölum á einhverjum af svæðum þeirra, þó ekki hafi enn þá verið um það getið í fréttunum. -------o-------- Mörgum kafbátum grandaS. Um miðja síðustu viku barst sú frétt, að fiá 1. ti! 15. nóv. s.l. liefðu bandamenn eyðilagt 39 kafbáta fyrir Þjóðverjuim. Haldi l>ýzku kafbátarnir þannig áfram að týna tölunni, verður þess ekki lengi að bíða, að fótum verði kipt undan síðustu sigurvonum óvináþjóðanna. Nýr vistastjóri. Frá Frökkum. Frakkar hafa etoki iagt út f nein- ar stórorustur í seinni tíð. Hér og þar á vestur-svæðinu hafa þó verið háðar smáorustur og virðast Frakkar hafa borið sigur úr býtum í ölJum þeim viðskiftum. Á Aisne svæðinu hafa einnig staðið yfir orustur, en af þeim hafa að svo komnu ekki borist ljósar fregnir. í grend við St. Quentin og norður af “Fossé’s skógi” ihafa Þjóðverjar ver- Nýr vistastjóri hefir verið skipað- ur fyrir vesturfyltoin og verður hann undirmaður W. J. Hanna, sem er vistastjóri fyrir alt Canada. Vistastjórinn nýi er J. D. McGregor, veiþektur og málismetandi bóndi í gremd við Brandon. Hefir hann þegar tekið til starfa, en ekki þó tilkynt enn þá hvernig hann muni haga visöastjórn sinni. Vonandi reynist hann duglegur og atkvæða mikill, enda er ekki heigluin hent að skipa slíka stöðu. Sigur nú eða ævarandi Hervald Alt vort frjálsræði — alt vort frelsi — velferð heimila vorra — framtíð barna vorra er alt undir því komið, að sigur fáist í stríðinu. Við ósigur vorn eða jafntefli, verður veröldin öll að vopnabúri Hervaldið verður þá rótfest hér í Canada. Að eins við sigur — með því að færa her- boðsval (selective draft) til afnota í dag — getum vér komist hjá þessu. Hinn hugprúði her sýnir oss veginn. Hann þekkir ekki ósigur. En sjálffram- boðs aðferðin hefir mishepnast og þörf brýn á meiri liðstyrk. — Sameinaða stjórnin skuldbindur sig til að safna nægilegu liði, án þess að hnekkja landbún- aði eða öðrum iðnaði landsins. Þörf fyrir bændasyni á Iandinu. Mowbum, hcrmálaráð- herra, sagði nýloga í sam- bandi við þörfina á ibændason.um hér heima fyrir:— “Eg skal sjá um það, að bændasynir þeir, sem einlæglega vilja vinna á bújörðum sinum að vöru framleiðslu í landinu, fái þó þeir þeir séu nú her- skyldir, lausn úr Oanada hernum, ef þeir fara til baka á bújarðir sínar.” Ábyrgð Sir Roberts Borden. Sir Robert Borden sagði þetta:— “Hve bændur snertir, þá er stjórn- inni augljós nauðsyn þess, að vöru- birgðir i landinu renni ekki til þurðar. Hermálaráðherrann hefir tekið þetta mál vandlega til fhuig- unar með þvf augnamiði að senda fleiri fyrirskipanir til undanþágu- og áfríunar-dómstólamna, til þess að tryggja velferð þjóðarinnar hve þetta snertir svo framleiðsla allrar vöru haldist við, sem er eitt af að- alskilyrðuim þess að þátttaka þjóð- arinnar í stríðinu geti haldið áfram með fullum krafti.” — Sir Robert Borden, í Oshawa, Ont. Greiðið atkvœði með “Union Govemment” og vísum sigri Auðsætt ætti það að vera hverj- um hugsandi mianni, að ástandið yfirleitt í heimiuum er nú sem stendur ihið ískyggilegasta. Aldrei hafa hinar ýmsu þjóðir, sem nú standa í stríði gegn hinu ægiloga þýzka hervaldi, séð betur en nú, hve mikið verður að leggja í söl urnar áður en sá voða óvinur verð ur að velli lagður. Menn sjá nú al ment, ef þeir að eins vilja sjá það að þetta stríð var áformað og und irbúið um langan tíma af hinum þýzku yfirvöldum, með því eina augnamiði að gjöra hið þýzka ríki að slíku aliheims drotnandi stór- veldi, sem rómverska keisararíkið var á sinni tíð. Eftir því sem tím- inn líður, koma í ljós fleiri og fleiri sainnanir, sem sýna ótvírætt til- gang ihinna þýzku yfirvalda. Með það eitt fyrir augum, að setja hæ! á háls nágranna sinna, hrundu þeir heiminum út í þetta ógurlegasta stríð, sem heimurinn hefir séð. öll önnur stríð íyrri tíma eru smámunir í samanburði við það,v sem nú stendur yfir. Undir úrelitum þessa sfcríðs er það komið, hvort ávextir frelsisbaráttu mannanna á öllum umJiðnum öld- um, eiga að verða að enigu eða ekki. Því ef hið þýzka hervald sigrar f þessari baráttu, þá verður kúgun- arvald hins þýzka hervalds það afl, sern ræður lögum og lofum um langan ótoomi'nn aldur. Hjá hinum ýmsu bandaþjóðum þroskust sfcöðugt sú hugmynd, að nú sé aö eins um eitt mál eiginlega að ræða, nefnilega: hvernig þetia yfirstandandi stríð megi verða léitt til happasælla lykta, og það sem fyrst. öll önnur mál verða að sitja á hakanum og bíða úrlausnar ! }iar til þetfca mál, sem alt yfirgnæf- ir og nú gagntekur hugi manna, er útkljáð. Ti! þess að 'hrinda þessu aðalmáli í betra horf, finna menn til iþess, að nauðsynlegt er að sameina bctur en áður alla krafta þjóðanna, sem í stríðinu standa. Öll sundrung veikir starfs- kraftana, þess vegna er nauðsyn- legt, að útrýma henni sem mest má verða. Samkvæmt þvf stjórnar- íyrirkomulagi, sem viðgengst í hinum enskutalandi heimi, er það vanalega einihver sérsfcakur stjórn- málaflokkur, sem völdin hefir og sem svo ber ábyrgðfct'a. Fljótlega eftir að stríðið hófst, sáu menn, að þetta var ekki heppilegt, heldur var nauðsynlegt að sameina krafta allra leiðandi inanna, hversu óllkar sem skoðanir þeirra í öðrum mál- um kynnu að vera. Þess vegna er nú stjórnin bæði á Englandi og í nýlendum þess ríkis saman sett af miönnum tilheyrandi öllum aðal- stjórnmálaflokkum landsins. Með því að sameina þannig alla beztu krafta þjóðarfcnnar, er auðsætt, að þjóðin getur betur beitt orku sinni en annars, og margt af því, sem miður má eiga sér stað, en sem oft á sér sfcað undir stjórn eins flokks, getur ekki átt sér sfcað undir sam- einaðri stjórn. Af hinum ýmsu ríkjum Brefea- veldis var Oanada seinast tiJ þess að taka upp þessa stefnu. Eflaust kom það til af því, að hér hefir flokksfylgið æbíð verið mjög sterkt í hugum manna. Sú sannfæring hjá ein'staklingnum, að sá pólitíski flokkur, sem hann sjálfur tilheyrði, væri sá eini flokkur, sem völdin ætti að ihafa, hefir verið mjög rót- gróin, og ervifet að útrýma henni. En eftir því sem tíminn leið, komu fram fleiri og fleiri raddir, sem heimtuðu að þessu yrði breytt, að stjórn' yrði mynduð, sem saiman- stæði af mönnum tiltheyrandi ekki öðrum heldur báðum hinna póli- tísku llokka þjóðarinnar. Menn sáu margt, sem þeim fanst miður fara í stjórmarfari landsins undir forystu Sir Robert Bordens. Marg- ar 'af þeim ákærum, som fram komu, voru eflaust á góðum rök- um bygðar. Samt er ekki úr vegi að segja, að eflaust margt af því, sem miður hafði farið, hefði ef- laust gengið alveg eins illa, hvaða sérstakur pólitiskur flokkur, sem við völdin hefði setið. Eins lengi og hagsmunir einhvers pólitisks flokks, en ekki ihagsmunir þjóðar- innar var aðal augnamiðið, var ekki að búast við að veJ gengi. Til þess að hagsmunir þjóðar- innar allrar mæfcti skipa öndvegi, var nauðsynlegt að fá stjórn, sem samanstæði aif leiðandi mönnum beggja hinna pólitisku flokka, og nú loks hefir þetfca tekist. Enginn efi er á því, að margir Ifta hornauga til þessarar nýju stjórnar. Þeir, sem hafa fylgt Jib- eral flokknum að málum^ihafa það aðallega út á hana að setja, að Sir ftobert Borden skuli vera formað- ur hennar. Þeir segja, að hamn verðskuldi ctoki lengur 'tiltrú þjóð- arinnar. Aftur á móti hefði eflaust verið ómögul'egt, að fé fylgismenn lians til þess að sætta sig við nokk- urn annan leiðtóga ihinnar samein- uðu stjórnar. Þeir sem óánægðir eru með Sir Robert Borden sem stjórnarformann, ættu líka að minnast þesis, að margt af þvl sem illa fór undir stjórn hains, var ekki algjörlega hans skuld, heldur sumra samverkamanna hans. Suim- ir þeirra, sem menn höfðu mestan ýmugust á, eru nú úr sögunni, þar á meðal Rogers og Hughes. Eí mönnum finst illa farið af fylgls- mönmim Bordens að vilja halda honum við stýrið, þrátt fyrir alt, þá ættu þelr að gjöra sér f 'hugar- liund, 'hvort ekki hefði öldungis eins farið, ef Sir Wilfrid Laurier hefði verið stjórnarformaður í stað Bordens. Mundu ekki fylgismenn hans ihafa verið öldungis eins á- kveðnir f að hann héldi áfram sem foi’maður hinnar nýju stjómar, þótt margir af andstæðinga flokkn- um væru Ihonum mótsnúnir? Bflaust er margt hægt að setja út á hina nýju stjórn. Engin stjóm er svo góð að enginn geti neitt fundið að gjörðum hennar. En mér finst, að þessi nýja stjórn sé stórb spor í rétta átt. Eftir því sem tíiriin leiðir í ljós það, sem ábóta- va.A er, þá hefir maður von um, að það verði lagað. Það má búast við, að hér endurbakist sama sag- an og til dæmis á Englandi, þar sem búið er hvað eftir annað að endurskapa hina upphaflegu sam- einuðu stjórn, þar til inú að hún hefir fullkomið traust þjóðarinnar og engum manni kemur nú til hug- ar að snúa sér aftur að þvi flotoks- stjórnar fyrirkomulagi, sem áður átti sér stað. Hér sýnist stjórnin óðum vera að ávinna sér traust fólksins. Þessu til sönnunar vil eg benda á, að nú sem stendur eru sjö fyltoi í Canada, þar sem fylkis- stjórnin tilheyrir liberal flokknum. í öllum þessum fylkjum nema Que- bec er fylkisstjórnin meðmælandi hinni nýju stjórn. í emgum fylkj- um Canada hefir hin núverandi fylkisstjórn áunnið sér traust og velvild manna í ríkari mæli, en stjórniirinar í Manitoba og Saskat- ehewan. Báðar þessar stjórnir hafa fengið viðurtoenningu fyrir að vera í alla sfcaði hollar landi og þjóð. Báðar þessar stjórnir fylgja ein- dregið ihinni nýju sambandsstjórn í Otfcawa. Manm fylgja þessum stjórnum eindregið í fylkismálum vegna þess að reynslan sýnir, að það er óhætt. Er ekki einnig ó- hæbt að fylgja þessum sömu leið- togum í þessum hinum stærri máJum? Eflaust í huga miargra er það herskyldumálið, sem öll önnur mál yfirgnæfir. Vegna þess að hin mú- verandi stjórn er með herskyldu, hafa margir snúist á móti henni. Herskylda er öllum íriðelskandi mönnum ógeðfeld, og vonuðu menn fastlega, að aldrei þyrfti til henin- ar að taka hjá hiinni canadisku þjóð. En þegar einsfcaklingurinn hefir lif og heiður að verja, þá neyðist hann til þess að grípa til þeiirra vopna, sem hann uindir öðr- um kringumstæðum mundi ekki nota. Eins er ástatt fyrir hverri þjóð, sem er að berjast fyrir til- veru sinni. Hún getur ekkert heið- aríegt vopn látið ónotað. Hjá öll- um sbríðsþjóðunum h«fir herskylda verið í lög færð nema Ástralíu, og það er að eiims lítið tímaspursmál þar til slík lög verða samþykt þar. Engin þjóð í heimi er meira frið- elskandi en Bandaríkin, og engin þjóð e< til vill hefir meiri óbeit á herskyldu en hún. Þrátt fyrir það var herskylda í lög leidd þar strax og þjóðin lenti í stríðinu. Fyrirlið- ar þjóðarininar sáu glögglega, að með þeirri aðferð gat þjóðin bezt beifct kröítum sínum. Urndir þess konar lögum, viturlega hagnýttum, opnuðust möguleikar til þess að byrðin félli þar sem hún helzt inátti falla. Raddir þær, sem þar komu fram andstæðar þessum lög- um, eru nú löngu þagnaðar. Jafin- vel margir þeirra, sem andvígir voru f fyrstu, gefa nú lögunum sifct örugt fylgi og viðurkenna það yf- irtsjón, að hafa mótmælt þeim í fyrstu. Eg sagði áðan, að þegar ein þjóð væri að berjast fyrir tilveru sinni, þá yrði hún að nota öll Iheiðarleg vopm. Þannig er ástabt fyrir Oan- ada í dag. Canada er ekki að berj- ast fyrir nei.na aðra þjóð; hún er að heyja stríð upp á líf og dauða vegna sinna eigin hugsjóna, sinnar eigin framtíðar og eigin tilveru. Canada er partur af hinu brezka ríki, og þegar Breblaind er í stríði, þá er Canada það einnig. Margir halda því fram, að Canada sé að berjast fyrir England, þess vegna sé skyldan til að gjöra sltt ítrasta minni en annars. Þetta er hættu- liegur misskilningur, sem á ekki við nein rök að styðjast. Frelsi og framtíð Canada er í veði, og öll ör- lög þjóðarinnar eru undir þvi kom- in, að málefni mannúðar og kristilegrar menningar, sem hinar engiksaxnesku þjóðir nú berjast fyrir, beri sigur úr býfcum. Hvernig er afstaða hinnar nýju sambandsstjórnar gagnvart her- skyldulögunum? Sir Robert Bor- den hafði fyrir löngu síðan lýst því yfir, að Oanada mundi sonda 500,000 hermanna á vígvöll. 1 nafni þjóð- arinnar lýsti hann því yfir, að Can- ada hefði wett sér þetta hámark. Ef söfnun liðs hefði gengið jafn vel um alt Canada ríki, þá hefði þessu marki auðveldlega verið náð, án þess að grfpa til herskyldu. En hið franska Quebec fylki skarst nær algjörlega úr leik. Þar sem það er annað fólksflesta fylki Cainada, var þetta tilfinnanlegt skarð. Yfir 400,000 sjálfboðar liafa nú komið fram. Af þeim að eins um 14,000 af frönsku bergi brobnir. Hvers vegna hinir frönsku Canada- menn skáruist þannig úr leik, er örðugt í fljótu bragði að skilja. Samt er engimn efi á því, að kat- ólska kirkjan á þar stóran hlut að máli. Menin hafa verið hræddir um, að engin stjórn í Canada mundi hafa kjark í sér til þess að beita herskyldulögunum í Quebec. En orð Sir Robert Bordens í ræðu, sem hann hélt í Haldimand nú ný- skeð, baka hér af öll tvímæli. Hanm segir, að Quebec verði að gjöra sinn fulía skerf og engin sérstök undan- þága skuli þar notuð. Nú er óð- um verið að vítoja úr sessi dóms- nefndum þeim I því fylki, sem hlut- drægar sýnasfc vera, og sætin skip- uð öðrum. Einnig hafa menn ótt- ast, að ef margir ungir menn, sem vinna við bændavinnu, væru fcekn- ir í herþjónustu fram yfir það, sem nú þegar á sér stað, mundi það stór-hnekkja allri framleiðslu í landinu, og það einmifct frarn- leiðslu þeirna hluta, sem nauðsyn- legastir eru. En nú hefir Mewburn, hinn nýi hermálaráðgjafi, auglýst, að engir bændasynir eða aðrir, sem við akuryrkju vinna, skuli teknir í herþjónustu, ef burtfcaka þeirra verði til að hnekkja framleiðslu. Þefcta sýnir að hin nýja stjórn vill gjöra sitt ítraista til þess að beifca þessum lögum á sem viturlegastan og hagkvæmasfcan hátt og án allrar hlutdrægni. En ihver er afstaða Sir Wilfrids Lauriers f þessu máli? Hann hefir auglýst það aftur og aftur, að haun sé á móti herskyldu, on segist skuli láfca gauga til atkvæða um málið. Hann segist vilja gjöra enn frekari tilraun með liðsöfnun án her- skyldu. Fylgismenn hans láta mik- ið yfir þvf, 'hve mikið hann mundi geta gjört í Quebec með frjálsri liðsöfnun, ef hann fengi að ráða. En ef maður afchugar, að svo að segja hver einasti maður f Quebec af frönskum uppruna, biðst und- aniþágu frá herskyldu, er lítolegt að þessir sömu menn fcaki snögglega simnaskiftum og komi fram sem sjálfboðar? Mikið er glamrað um, að fólkið eigi að ráða, og er það að vissu leyti rétt. En oft vill það til, að fólkið þarf langan tíma til þess að átta sig á því, hver er rétt af- sfcaða f ei'nihverju máli. Ef það á að skera úr einhverjum vanda án umlhugsunar, þá getur sá úrskurð- ur orðið þannig, að menn stofni sinni eigin velferð í hættu og sjái um seinan yfirsjón slna. Laurier lof- ar að hætta allri tilraun til að fram t fylgja núverandi lögum þar til eft- ir að afckvæðagreiðsla hcfir farið fram. En eins og nú sbanda sakir, er allra brýnasba þörfin einmitt á hinuim næstu isex'mánuðum. Það er öllum augljóst að þýztoa her- valdið reynir aitt ítraisfca að Iáfca til skarar skríða á næstu átta mán- uðum, því ef það tetost ekki, er sigur alilsendis ómögulegur. Næsta sumar eða haust verða Bandaríktn komin með svo mikinn kraft á víg- völlinn, að um munar. Með hverj- um mánuði eftir það fer sá herafli óðuim vaxandi þar til sá mann- fjöldi verður ekki talinn í þúsund- um heldur í miljóna tali. Allir, sem kunnugir eru, Jjúka upp sama munni um það, að einmitt nú sé mest þörfin; þörf svo brýn, að ef menn alment vissu hana, mundi ekkert til sparað úr henni að bæta. Eins og nú sfcanda sakir, er það óumllýjanleg niðurstaða allna hugsaudi manna, að ef Laurier og hans fylgismenn bera hærra hlufc við hinar í hönd farandi kosniug- ar, þýðir það, að Canada sé uæo það bil að geíast upp í þessa stríði. Ef ganga þarf til atkvæða fólks áður en hinum sárþjökuðu hermönnum vorum er veibt lið, sýnir það meiri heigulskap og hálf- velgju en nokkurri frjálsri þjóð er samboðið. Slfk úrslit munda vekja ihrygð og undrum allra sannra frelsisvina, en um leið gleði óumræðilega í herbúðnim ó- vinanna. Þeir mundu þar sjá mik- inm ávöxt af því sæði sundurlyndis O'g tortrygni, sem er eibfc af öflug- ustu vopnum Þjóðverjans. Sutnir af Þýzkalands hátt sfcandandi mönnum viðurkienna það fúslega, að sundurlyndið meðal mófcstöðu- manna sinna sé það, sem íþeir skoði eitt af sínum öflugustu vopnum, og það sundurlyndi reyni þeir að autoa og glæða eftir megni. Þessu vopni hefir verið beitt með mikilli snild á Rússlandi. Við vitum alj- ir hverjar afleiðingamar eru þar. Á Oanada eftir að íalla úr sögunni, falla fyrir sömu vopnum og Rúss- land? Ef svo er, þá væru það hörmuleg afdrif. Þótt ekki færi það svo, að Oanada yrði annað Rúss- land, 'þar sem menn berjast inn- byrðis um völdin meðan ræninginn rænir og eyðileggur, þá væri það samt nægilegt hrygðarefni ef þessi unga þjóð með framkomu sinni auglýsti sig óverðuga að tilheyra þeim þjóðfloktoi, sem bezt og harð- ast hefir barist fyrir freisis- ©g mannúðar hugsjónum mannanna í nær þúsund ár. Enginn útlendur þjóðflokkur í þessu landi á eins marga hermenn á vígrvellinum að tiltölu við fólks- fjölda, eins og íslendingar. Með framkomu sinni hafa vorir ungu menn sýnt, að þeir skilja afstöðu sfna og skyldur gagnvart landi og þjóð. Framkomia þeirra hefir verið þjóðflokki vorum til sóma og saim- fært fólk alrnent betur en áður uim að íslendingar væru eftirsóknar- verðir borgarar þessa Jands. Æbt- um við, sem heima erum, að bregð- ast þessum ungu mönmum þjóðar vorrar, þegar þeir biðja um hjálp? Ætlum við að sýna það með at- kvæðum vorum, að við metum ekki það, som þeir hafa lagt í sölurnar. meim en það, að við leggjum örlög þeirra í hendur þeirm munna, sem eru svo hálfvoigir, að þeir vilja ganga til atkvæða um það, hvorfc veita skuli þeim lið eða ektoi? Bágt á eg mieð að trúa því, að fólk vort hugsi þannig, og stór von- brigði verða það fyrir mig, ei reynslan sýnir, að ihugsunarháttur fólks vors er þannig. Ef menn vilja sýna, að þeir mieti það, sem vorir ungu menn hafa gjört til þesa að Iheiðra nafn íslendinga í þessu landi, um leið og þeir sýna, að þeir bera velferð lands og þjóðar fyrlr brjósti, þá ber þeim að greiða afc- kvæði fyrir þá stjóm, sem ófcví- rætt lofar «ð styrkja málefni þeirm eftir fremista megni. Spyrjið yður sjálfa: “Hvemig munu hinir í«- lonzku hermenn greiða atkvæði?” og hagið ykkur eftir því. Þá er enginn efi á, að þið greiðið atkvæði ykkur til sóma og þjóðinni til gagns. Gleymið allri pólitík og pólitiskri flokkaskiftingu, en hugs- ið að eins um þjóðina og velfer* hennar. Virðingarfylst, B. J. Brandson.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.