Heimskringla - 06.12.1917, Side 8

Heimskringla - 06.12.1917, Side 8
8. BLAÐSiÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 6. DES. 1917 1 " .............. < Halldór Methusalems býr til og selur Swan Weather Strips Swan Furniture Potuh Einnig margar tegundir at MTNDA UMGJ ö RÐUM Selur stækkaðar- ljósmyndir i sporöskju löguSum umgjörð- , um með kúptu gleri fyrir eina $6.00 til $8.00. Alt verk vandað. Póstpant- anir afgreiddar fljótt. SWAN MANUFACTURING Company Tala. Sh. 971. 676 Sargent Ave. j Cr bæ og bygð. -------------------------------- ISergpór Þóröanson, bæjarstjóri á Gimli, var á ferð hér I síðustu viku. Kann sagði >alt gwtt að frétta. Steplhan G. Stephansson, skáldið, hélt iheimleiðis á þriðjudag.skveld- ið var. ífllenzkukenxlu nofnd stúknanna Heklu og Skuld, er beðin að mæta kl. 2 í G. T. húsinu næsta laugar- dag. ----------1---- Sigurjón Sveinswon frá Wynyard, sem >hér hefir verið síðustu viku og fór vestur til Argyle, kom þaðan á föstudag og fór heimleiðis á xnánu- dag í þeífcari viku. Guðmundur Sörensen, farand bóksali, Ihefir logið uim nokkurn tíma hættulega veikur á Almenna spftalanum tiér í bænum og er xnikið veikur enn. Jón Kjernested, lögegludómari frá Winnipog Beaeh, kom hingað tiíl bæjarins á xnánudaginn og hélt heimleiðis aftur isamdægurs. Hann sagði alt hið bezta að frétta. Heimskringla hefir verið beðin að geta þess, að tírninn til iþess að áfría úrskurði undanþágu dómstól- anna, hefir verið farmiengdur uin 10 daga. BÓkin Trú og þekking eftir séra F. J. Bergmann fæst í skrautbandi hjá höfundinum og í bókabúð O. S. Thorgeinssonar, konsúls. Hún kost- ar $2.00. Frú Kristfn Sfmonamon í Reykja- vík á íslandi, auglsir eftir núver- andi áritun Mrs. St. Bentley (hét áður Sigurbjörg Ingiríður Björns- dóttir). SendLst á skritst. Heims- kringiu. Gleymið ekki jólakortunum, seon Jóns Sigurðssonar féiagið hefir til sölu. Aldrei er of mikið gert tfyrir gott máloíni. I>au fá«t ihjá Mrs. G. Búason, 564 Yictor atr., Winnipeg. Stúlkur úr bandalaginu Bjarmi eru að undirbúa samkomu, sem haldast á 18. des. til arðs fyrir Skjaldborgarsöfnuð. Prógram aug- iýsist í næsta blaði. Vakið, Goodtemplarar! Nóg er til að starfa. Stúkan Skuld hefir á- kveðið að hafa skerntanir hvert íundarkvöld, svo sem upplestra, söng og dans. Sækið fundina. — Hagnefndin. NikuLás Otten«on, wm heima á f Riiver Park hér í bænurn, lagði af stað ofan í Nýja fisland á þriðju- daginn og bjóst við að dvelja þar nokkra daga. Hallgrímur Björnason, bóndi í grend við Árborg, koan til bæjarins á mánudagrnin og verður 'hér um kyrt nokkra daga. B. L. Baldwinson fékk nýlega skeyti frá iróstmólastjóra Oanada þeas efni«, að fullnaðar samningar hafi verið gerðir viðvíkjandi því, að póstgöngoir haldis.t milli Hali- fax og f.siands. S. D. B. Stephansson, ráðsmaður Heimskringlu, kom úr ferð sinni um Vatnabygðina á holginni. Segir hann almenna vollíðan þar vestra og yfir höfuð að taia hafi bændur þar nú meiri peningaráð en undan- förnu árin. — Heimskringla þakkar öilum þeim áskrifendum sínum, er Stephanason fan>n að máli, fyrir greiða úrlausn á erindi hans. Elízabet Giliies, kona Jóns G. Gililes, varð bráðkvödd á sunnu- dag9kveldið að heimili sínu, 658 Sherbrooke str. hér í bænum. Var jörðuð á miðvikudaginn í Maple- tan grafreitnum 1 Selkirk. — Þeirr- ar látnu verður nánar getið í næsta blaði. Vér vonum, að tekið verði eftir augiýsingunini um leikinn, Syndir annara, eftir Einar Hjörleifsson, sem sýndur verður á húsi Good Templara 12. og 13. þ. m. Góður sjónleikur er ávalt bezta skemtun og Islendingar leikelskir. Þessi sjónleikur 'hefir aldrei verið sýnd- ur hér í Winnipeg áður og er talið eitt allra bezta leikrit, sem til er á vorri tungu. V. G. Sfmonarson, bóndi í Argyle- bygð, kom til borgarinnar ásamt konu sinni á Iiaugardaginn í mæst- síðustu viku. Komu þau til þess að dvelja hér nokkna daga sér til skamtunar og héldu heimleiðis á miánudaginn í þessari viku. — Hra Símomanson sagði alt hið bezta að frétta frá Argyle, heilsufar gott mianma á meðal og líðan allra góða yfir höfuð að tala. Síðustu viku komu heim frá víg- völlum Frak'klands þeir Hallur E. Magnússon og Ólafur Bardal, báðir héðan frá Winnipeg. Lesendur blaðslras karamast við Hall af bréf- um hans, sem birzt hafa í blaðinu við og við. Hann fékk “shell shock” og varð úr því ófær til víga. Hress í anda er hann þó sem fyr og útiit hans hið bezta. — Herra Bardal höfum vér ekki getað séð. Föstudagskvöldið var, þann 30. nóv., voru gefin sanrnn í hjóna- band að heimili Mr. og Mrs. Gísla Jórassonar, 906 Banning str., Jóhann Helgi Straumfjörð, sonur Jóns E. Straumfjörðs hjá Otto P.O., Man., og ungfrú Anna María Jónsdóttir, systir Gísla Jónssonar prentsmiðju- stjóra. Brúðhjónin voru gefin saroan af séra Rögnv. Péturssyni. Að aflokinni hjónavígslunini fór fram mjög myndarleg veizla. Fram eftir nóttinni skemtu menn sér við söng og ræðuhöld og spil. Gest- komandi var þar skáldið Stephan G. Stephansson og flutti hann þai- undur fagurt kvæði, er hann hafði ort á Islandi í sumiar og kallar: “1 berjamó.” Bæjarstjórnar kosningarnar, sem haldnar voru hér i Winmipeg á föstudaginn var, enduðu þannig, að F. H. Davidson var endurkosinn i borgarstjóri með miklum xneiri | hluta. D. J. Dyson, mótsækjandi hans — og sem stærstar sakir bar á haran — var fyrstur allra til þess að senda honum árnaðar óskir! Controllers voru allir endurkosnir. 1 3. kjördeild hlaut Geo. Fisher kosningu og í 4. kjördeiid Allan Mc- Lean. í skólaráðið voru kosnir þeir D. Oameron (1. kjörd.) og J. T. Haig (4. kjörd.). — Hálfrar miljónar Lántaka til barna.skólabyggimgar var samþykt. A sunnudagskveldið var, þann 2. þ.m„ voru gefin saman í hjónaband af séra Rög^rav. Péturssyni á heimili Mr. og Mrs. Páls S. Daimann, 864 Banning str. hér í bænum, hr. Björn J. Austfjörð, kaupmaður frá Hensel, N. Dak., og ungfrú Thórey Magnúsdóttir Ásgrímsson frá Sleitubjarnarstöðum í Hjaltadal i Skagafirði. Er Thói’ey af hinum beztu ættum norðanlands; í föður- ætt er hún komin af Hólbiskup- um, en móðir hennar er Þorbjörg Friðriksdóttir frá Miklabæ Niel- sens, en kona Friðriks var Guðrún Halldórsd. Kristjánssonar, bróður Kristjáns Austmanns og séra Bene- dikts prófasts Kristjánssonar í Múla. — Þau Mr. og Mrs. Austfjörð dvöldu hér nokkra daga f bænum og héldu svo heimleiðis til Hensel, þar sem Mr. Austfjörð hefir rekið verzlun í mörg ár. .Samkoman í samkomusal Tjald- búðarkirkju, þar sem Stephan G. Stephansson las upp ferðakviðl- inga sína, mátti heita vel eótt. Þótti vLst flestum mikið til kvæð- anna koroa, eins og við mátti bú- ast, en nokkuð örðugt að fylgja með, því flest kvæðin eru fremur þung. Eitt kvæði var í þessum ferðakvæðaflokki, sem engum var ofætlan að skilja. Það kvæði ----------------------- Leikið verður miðvikudag og fimtudag, 12. og 13. des. í húsi Good Templara Qyndir_annara eftir EINAR HJÖRLEIFSSON Sæti 50 og 35 cts. Til sölu hjá O. S. Thorgeirsson og Sigurðason og Thomson. Að tilhlutan félagsins Björk. - / netfndi skáldið Afsökun og var ort tll móður er rétt var búin að missa son sinn úr tæriragu. Kvæðið var viðkvæmt, .fuit þýðleiks, undur hlátt áfram, og að öllu hið fegursta. —■-Skrautmunir þeir, er Stephani skáldi höfðu verið gefnir f heiðurs- skyni á íslandi, voru til sýnis í prentsmiðju O. S. Thorgeirasonar, konsúls, vikuna sem leið. Mest var vert uim málverk Arngríins Jónsson- ar málara, er sýndi eldgos í fjarska og tvo imenn á heiði uppi, sem voru að æja hestum vsínum. En allir voru gripirnir góðir og gerðir af mikliun hagleik. Islenzkir mánaðardagar 1918 eru útkomnir, og er þetta þriðja ár þeirra. Mánaðardagar þossir eru þegar orðnir alþektir og hafa átt 'inikluim vinsældum að fagna. Þeir eru útgefnir að tiLhlutan forstöðu- nefndar Únítarasafnaðarins hér í bæ, en undirbúnir af séra Rögnv. Péturssyni. Þetta ár fiytja þeir myndir af þeim mönnum, er teljast rnega helztir leiðtogar á endur- vakningar tíiraabili þjóðarinnar, á fyrri hluta síðustu aldar. Undir myndunum standa einkunnarorð, er valin eru úr ritverkum þessara iraanna. Myndirnar eru af þessum mönnum og í þeirri röð, sem hér segir: Dr. Hallgrímur Scheving, Bjarni amt. Thorarensen, Árni bisk- up Helgason, Dr. Sveinbjörn Egils- son, Hannes prófastur Stephensen, Baldvin Einarssora, Jón J. Hjalta- lfn landlæknir, Tómas prófastur Sæmundsson, Jónas Hallgrímsson, prófessor Konráð Gfslason, Dr. Pét- ur Pétursson biskup og Jón Sig- urðsson forseti. Mánaðardagarnir eru prentaðir í þremrur litum á ljósum gljáspjöldum og kosta 35c. Pantanir má senda til séra Rögnv. Pétunsosnar, 650 Maryland str., til blaðanna, og þess utan verða þeir til söiu víðsvegar um bygðir íslendinga. Frá FrakklandL Séra M. J. Skaptason fékk nýiega þessar lfnur frá Ama Thorlaeíusi frænda sínum, sem nú er á yíg- öllum Frakklands: “Beztu þökk fyrir tilskrifið. Eg ligg nú á spítala, allur brotinn og bramlaður. Þrjú rifin sprungu og hnóskelin á vinstri fæti. Vinstra læri og leggur bundinn við spýtur cða spelkur. Eg ligg í rúminU og get lftt sofið fyrir verk og óþægind- uin. Hefi heiirasótt Jósep frænda— fékk ágætis viðtökur, regluJega veizlu. Viltu biðja Guðrúnu Skaptason að passa vel hjálminn minn. Mér var boðið f hann 100 dollarar >af Bandaríkjaxraanni. Ann- an sept. var mér dæmd (avvarded) “Good Conduct Badge” og ber eg það á vinstri ermi. Bið að heilsa Guðrúnu og fleiri kunningjum.— Meira næst.” --------o------- Óeir'ðir eystra. Víða í Quebec fyiki eiga sér stað Óeirðir miklar nú á dögum. Frakk- ar snúast andvígir gegn þing- iraannaefnum bandalagstjórnarinn- ar og gera oft aðsúg að þeim, er þeir reyna að flytja ræður. Kvað einna mest að þessu í bænum Sherbrooke nýlega. Fundur banda- lagstjórnar manna stóð yfir í einu leikhúsinu og hópaðist þá múgur og marginenni utan um leikhúisið og bru u alla glugga þess með grjótkasti. Spyrrt þetta illa fyrir og hlýtur að hnekkja áhrifum Lauriers á meðal allra hugsandi manna — jafnvcl f Quebec fylki sjálfu. Vfðar hafa Frakkar þar látið iilum látum og í austurhér- uðunum er megn óhugur að vakna þar á milli enskra og franskra í- búa. Major a. G. Andrews, þingmanns- efni Samsteypustjórnarinnar í Mið-Winnipeg. Greiðið atkv. með Union Governm. LMENNUR KJÓSENDA FUND-' UR VERÐUR HALDINN Á FIMTUDAGSKVELDIÐ í ÞESS- ARI VIKU í GOOD TEMPLARS’; HALL Á SARGENT AVE. og BYR- JAR KL. 8. — Meðal ræðumanna verða B. L. Baldwinson og Principal Riddell (frá WesLey College). For- seti fundarins Dr. O. Björnsson. Embættismenn f stúk. Heklu fyrir yfirstandandi ársfjórðung eru þcsisr meðlimir: ÆT.: Guðm. Th. Gfslasou V.T.: Inga Johnson F.Æ.T.: Hjálmar Gíslason Rit.: Árni Sigurðson, A.R.: Magnús Magnússon F. R.: Ó. Bjarnason 754 Pine str. G. ialdk.: Sveinbj. Gíslason. Kap.: Guðbjörg Patrick G.U.T : Mrs. G. Búason, 564 Vict D.: Ágústa Johnson • A.D : Hólmfr. Sivurðsson V.: Jóhann Vigfflsson Ú.V.: Eyvindur Sigurðson. Vöruverðið á Þýzkalandi. ELtt Winipegblaðið er nú að birta ritgerðir eftir frægan fregn- rita, Herbert Corey að nafni, um ástandið á Þýzkalandi og hefir hann leitast við að a£La sér upplýs- ingar uim þetta eftir beztu föngum í gegn um hlutlausu LöndLn. Segir 'hann mesta xraatanskort vera þar í landi, en að svo komnu enginn hungurs dauði. Fóðurbirgðir séu þar nægilogar til þess að þjóðin geti dregið fram lifið næstu 12 mán- uði, eða fram yfir næstu uppskeru. Matarbirgðir era þar meiri en um þetta leyti síðasta ár, en þjóðin nú meir niðurdregin en áður og meir farin að Láta ásjá cftlr sína þröngu kosti. Vöruverðið er íeikilega hátt á öillum nauðsynjum. Egg eru t.d. $1.00 tylftin, eftir hérlendum gjald- eyrir. Kálfskjöt er $1.00 pundið og oftast ófáanlegt Niðursoðin mjólk er 50c. smáaskjan og sápa 50c. pund- ið. Aðrar vörur eru eftir þessu.— Og þetta er á Þýzkalandl, landinu fræga—þar sem leikið á að vera á aJLs oddi við verkafólkið. Þetta er paradísin mikla á jörðu, þar sem verkalýðnum á að vera hossað og hann verndaður gegn öllu illu. Hér á ekki “auðvaldið” í Oanada hJut að máJi — sem skýli sér á bak við Borden stjórnina. I • /1 Prýddu Liður 3.0 joium nft1tneiöa þinna með íslenzku myndunum: Jón Sigurösson, og Gullfoss. Verð: $1.60 hver, póstfrítt. Ef útsölumað- ur nær ekki í þig, né þú í hann, þá pantaðu frá Þorsteini Þ. Þorsteins- syni, 732 McGee St., Winnipeg. Keonara atvinna. KENNARA vantar við Diana S. D. No. 1355 (Manitoba) frá 15. Jan. næstk. til 1. Júlí, og ef um semst eftir skólafríið til ársloka. Kenn- arinn verður að hafa 2. eða 3. flokks “professional certificate” og hafa haft nokkra æfingu í kennara- stöðu. Umsækjendur tiltaki kaup það sem óskað er eftir og sendi “testimonial” frá eftirlitsmanni eða skólaráði. — Undirritaður tekur á móti tilboðum til 27. DesemÞer, að }>eim degi meðtöldum. — Magnús Tait, Sec.-Treas., P. O. Box 145, Antler, Snnk. 9—13. EINMITT NÚ er bezti tími að gerast kaupandi að Heims- kringlu. Sjá auglýsingu vora á öðrum stað í blaðinu. Encyclopedia Britannica I 29 biudum.—11. útgáfa Mesta alfræðibók heims. Ómissandi fyrir alla stú- denta og þá, sem fræðast vilja um alt, sem gerst hef- ir í sögu mannsandans. — Umboðsmaður útgáfufé- iagsins í New York verður f bænum í fjórar vikur, og er reiðubúinn að sýna og útskýra nytsemi þessarar alfræðíbókar. — Sérstakir kaupskilmálar og sérstakt verð þessar vikur. FLnnið, skrlfið eða sfmið Thos. Caff- rey, Manor Hotel, Winni- peg. 9-11 Pd. GISLl GOODMAN TINSMIÐUR. VorkatæTJl:—Hornl Toronto It. oi Notre Dame Ave. Phone íimrrj ‘ZHHH HelmllU Gmrrr HM Office Phone: Garry 6071 Um nætur: Gary 1227 The Lightfoot Transfer Húsbúnaður og Pianos pakkað og Sent. STÓRIR VAGNAR — AREIÐ- ANLEGIR MENN Office: 644 Elgin Ave. 9-16 Winnipeg Manitoba Stores Ltd. 346 Cumberland Ave. Talsími: Garry 3062 og 3063 MatvörubúíSin, sem enginn íslendingur má gleyma. Komið og sannfærist um að þlð getið fengið betri vörur með lægra verði en annans staðar. Gigtveiki Vér læknum aC mlnsta kosti 90 prct. af öllum glgtveikum gjúk- lingum, sem til vor koma. Vér lofumst tll aö lækna öll gigtar- tllfelli—ef llöirnir eru ekkl ailla relöu eyddir. Sjúkdómar Kvenna Vér höfum verlö sérstaklega hepntr metS Iækningu kvensjúk- dóma. Vér höfum fært gleöi lnn á mörg; helmill meö því atS senda þeim aftur áatvinl sina hella hellsu. Mörg af þeim sjúk- dóms tllfellum hafa veriö állt- ln vonlaus, en oss hefir hepn- ast aö bæta þeim helisuna aö fullu og veita þelm þannig mörg fleiri ár til þrlfa landlnu og sjálfum þeim tli gleöi og hamlngju. Gylliniæð. Vér lofum «0 lækn frylllnlæV An HbKi eVa iwflnKir. SKRIFA KFTIR LPPLtSINGUM MINERAL springs SANITARIUM WINNIPEG ,MAST. Mynd af öræfajðkli eftir Ásgrhn Jónsson máLara fæst hjá Hjálmari Gíslasyni, 506 Newton ave., Winni- peg. Mynd þessi er veggjarprýði hverju íslenzku heimili. Kostar að eins 75 oent. 8-llPd. Ljómandi Failegar Siikipjötlor. til að búa til úr rúmábreiður — “Crazy Patflhwork”. — Stórt úrval af stórum silki-afklippum, hentuæ ar í ábreiður, kodda, semur og 4 —Stór “i»akki" á 25c., flmm fyrir $t PEOPLE’S SPECIALTIES Ca Dept 17. P.O. Box 1836 WINNIPEG The Domln/on Bank BOKZl IOT1E DAM8 AVB. •«! 8UERBROOKB ST. H»f«*.<ftil, arik. .......« Varaajftttnr .............« 7«##.#•• Allar elgalr ...............S7K,IINM* Vér ðskum eftir vitSsklftum verzl- unarmanna og ábyrgjurast aö gefa þeim fullnægju. Sparisjóösdeild vor er sú stærsta sem nokkur baakl hefir í borginnl. fbúéndur þessa hluta borgarlnaar ðska aö sklfta viö stofnun. sem þeir vita að er algerlega trygg. Nafa vort er full trygglng fyrir sjálfa yöur, kenu og börn. W. M. HAMILTON, Ráðsmaður FHOItB GARRT S4S* Góð Tannlœkning á verði sem léttir ekki vas- ann of mikið—og endist þó Gjörið ráðstafanir að koma til vor bráðlega. Sérstök hvílustofa fyrir kvenfólk. Dr. G. R. CLARKE 1 to 10 Deminion Truzt Bldg Regina, Saskatchewan Tilbúið úr JURTUM or JURTASEYÐI The Proprietory or Patenk Medlcine Act No. 2305 VERÐ: $1.00 FLASKAN Burðargj. og stríðask. 30«. The SANOL MANUFACTUR- ING CO. OF CANADA 614 Portage Ave. Dept. “H” WINNIPEG, Man. Látið oss búa til fyr- ir yður vetrarfötin Besta efni. Vandað verk og sann- gjarnt verð. H. Gunn & Co. nýtízku skraddarar 370 PORTAGE Ave., Winnlpeg Phone M. 7404 North Star Co. CORNER BEWDNEY AND ARMOUR STREETS Regina, : Sctttk. SANOL NÝRNAMEÐAL HIN EINA AREIÐANLEGA UEKNING VIÐ OALL STEINUM, NÝRNA OG BLÖÐRUSTXINUM OG ÖLLUM SLÍKUM OG ÞVX- LlKUM SJUKDÓMUM. Agentar í Canada fyrir Gus Pech Foundry Co. og Monitor Brunnborunar áhöld. FARIÐ AUSTUR! Veldu nm TVÆR DAGLEGAR LESTIR Hinar beztu IMPERIAL LIMITED— TRANS - CANADA og vagnar allir af nýjustu gerð. með BEZTA ÚTBONAÐI Útsýnisvagnar, Herbergis og Stofuvagnar Standard og Ferðamanna Svefnvagnar Borðsalir — Matur seldur A la Carte SKEMTIFERÐIR AUSTUR Desember 1. til 31. 1917 Upplýsingar, ferðaáætlanir o.s.frv. fást hjá CANADIAN PACIFIC RAILWAY “Mesta Járnbraut Heimsins”

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.