Heimskringla - 14.02.1918, Side 1

Heimskringla - 14.02.1918, Side 1
A* Mr. Merchant: 1P YOU have anything to sell to the Icelandic speaking element in this Western Country, you can addresr this entire field more effectively and economically through the adver- tising: pa&es of the weekly Heims- kringla than in any other way. Has gone into the Icelandic homes of West- ern Canada for 32 years. This Space For Sa/e How About It ? How would your Ad. Iook here? For terms and other informatio* PhoneG. 4110. The Viking Press, Ltd. 729 Sherbrooke St. This Space For Sa/e XXXU. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA, 14. FEBROAR 1918 j - - NÚMER 21 Styrjöldin Frá vestur-vígstöðvum. Sfðustu viku ihugðist krónprinz- inn þýzki að iáta til skarar skríða með að taka borgina Verdun og tók að gera gegn 'henni áhiaup mörg ■og stór. Ruddi hann liði sfnu fram á vígvöllinn f .þúsunda tali og beið : þess svo í tjaldi sínu (í nokkurra naflna fjarlœgð) að eitthvað sögu- ! legt gerðist. Stórakotaiiðinu sendi hann þær skipanir, að láta Frakk- ana nú ‘hafa það” og draga ekki af. Loftvélar margar sendi hann í geim- inn upp og áttu þær bæði að njósna um hagi óvinanna og eins að dreifa sprengikúlutm yfir borgma, hvenær sem færi gæfist. Nú var ekki neitt sparað, sem koma mætti að liði við sóknina gegn þessari því nær ó- vinnandi borg og sem búin er að kiosta Þjóðverja svo mörg mannslff. Krónprinzinn beið því rólcgur f tjaldi sínu og hugði sigurinn vera á næstu grösum. En hann varð fyrir vonbrigðum «ins og fyrri. Erakkar voru þarna vel við búnir og veitti létt að brjóta hin tíðu áhlaup hinna á bak aftur. Ekki vildu þeir þýaku þó uppgefast og alla vikuna voru þeir að sækja. Hvergi komust þeir þó nær borg- inni og suma daga er sagt að stón kostlegt mannfall hafi orðið f liði þeirra. Gerðu þeir sjö áhlaupin f ■alt og við hvert áhlaup urðu þeir undan að hörfa við meira og minna mannfall. Þó Erakkar mistu marga menn, var mannfallið þó mikið minna f þeirra liði. Á hensvæðum Breta hefir lítið sögulegt gerst í seinni tíð. Þjóð- verjar virðast eitthvað trogir að hefja hina miklu sókn, sem þeir hafa verið að augiýsa svo lengi og f»em herforingjar þeirra margir segja, að muni sigra Breta fyrir fult og alt á ve®tursi\7æðunum. Við og við eru þeir eins og að þreifa fyrir sér með smlá éhlaupum hér og þar— og fara þá oftast nær halloka! Sá eini sigur, sem nokkru munar, er hjóðverjar hafa unnið gegn Bretum nú í marga miánuði, «r við Cambrai og þó hafa þeir ekki enn þá náð öllu því svæði, sem tekið var frá þeim f fyrsta síagnum. Á svæðinu fyrir suðvestan Oambrai áttu sér stað töluverðar orustur rétt eftir miðja síðustu viku og er sagt að Bretar hafi tekið þar nokkra fanga. Víðar áttu sér stað Smáslagir, en ongir þelrra virðast hafa borið þýðingamikinn árangur. -------o------- Frá ítalíu. Ef til vill bíða ítalir mestan hnekkir við friðarsamninga Riiissa og Miðveldanna. Austurrfkismienn íá nú lausan öflugan her, sem þeir geta fært gegn ítalfu, sem verður vafalaust gert. Alls konar herbún- aður, stórbyssur, flugvélar og fleira, sem einnig verður nú laust, mun sömuleiðis koma óvinunum að á- gætu haldi. útlitið hve ítalfu snert- ir, er því ískyggilegra nú en nokkru sinni áður síðan þeir hófu þátttöku í stríðinu. Fái stjórn Austurríkis haldið áfram að ráða við her sinn, sem sumar fróttirnar segja að sé að verða henni mjög örðugt í seinni tfð, eru ftalir nú staddir í mestu hættu. Aftur á móti, sé sá óhugur bominn í lið Austurrfkismanna, að það sé lítt viðráðanlegt með köfl- wm, dregur þetta úr hættunni. Séu þassar fréttir sannar, getur svo far- ið. að ftalir fái haldið sínu þangað til úrslita-orustur þessa stríðs verða háðar—4 vfgvöllum Frakklands. Rfðusfu viku og í byrjun þessarar voru Austurríkismenn hér og þar að gera sf6r áhlaup. Hvergi fengu þeir þó brotist í gegn um hergarð ftala og á sumurn stöðum voru þeir hraktir aftur á bak við ógurlegt mannfall. Var mannfallið þeirra megin einna mest við áhlaup þeirra fyrir vestan Brenta ána og með fram Frenzaia dalnum. ftalir halda enn öllum fjailavirkjunum, er þeir tóku f byrjun þessa mánaðar og hafa náð nokkrum fieiri virkjum frá sfnum mannmörgu óvinum. -------o----- Seinustu fréttir. Haft er eftir föngum, sem nýlega hafa verið teknir á Frakklandi, að hin væntanlega sókn Þjóðverja á vestursvæðum muni eiga sér stað einhvern tfma í næsta mánuði. Eru þeir nú að búa sig undir þetta með öllu móti og virðast telja það full- vfst, að nú muni þeir loksins fá borið aigeran sigur úr býtuin. Ekki eru bandamenn á Frakk- landi sturlaðir yfir friðarsamning- um Rússa og Miðveldanna. Er langt 9Íðan þeir hættu með öllu að reikna upp á aðstoð Riissa í stríði þessu og hafa hagað öllum undirbúningi samkvæmt þessu. Þegar Þjóðverj- ar ihefja sfna marg umtöluðu sókn, munu þeir brátt verða þess vísvit- andi, að bandamenn liafi ekki verið iðjulausir á Frakklandi vsíðast lið- inn vetur. Þjóðin á Þýzkalandi gleðst mikið ylfir úrsJitum friðarstefnunnar í Brest-Litovsk. Er þetta haldið há- tíðiegt um alt landið með samkomu- höldum og bænafundum. Blöðin þar sum virðast iþó vantrúuð á, að þessl friður við Rússland hafi þýð- ingarmikll áhrif á stríðið. Segja þau Trotzky hafa fylfilega sýnt sig óvin- veittan stjórn Þýzkalands og frið þenna samþykki hann með hang- andi hendi — bendi þetta alt til þess, að Þjóðverjar og Riissar verði, þrátt 'fyrir það þóiþessi þráði friður sé fenginn, jafn óskyldir og áður í hugsun og steifnu og ihafið jafn- breitt á mifli þeirra. Áhlaupin á báðar hliðar á vestur- vígstöðvunum hafa verið með tíð- ara móti þessa síðustu daga og bendir þetta til þess, að herifylking- arnar þar séu nú óðum að færast í ásmegin og spenna sig megingjörð- um. úrslita-orustur þesáa stríðs, sem vafalaust verða háðar á Frakk- landi, eiga nú ef til vill ekki langt f land. -------0----i-- Stóru hermanna flutningsskipi sökt viS Irland. Þann 1G. þ.m. söktu þýzkir kaf- bátar nálægt ströndum írlands skipinu ‘Tuscania”, sem hafði um 2,397 Bandaríkja hermenn um borð. Er þetta í fyrsta sinni, að Þjóðverj- ar fá grandað hermanna flutnings- skipi fyrir Bandaríkjunum, þó búið sé að senda um 200,000 Bandaríkja- hermenn til Frakklands. Brezk her- skip, sem voru í fylgd með skipi þessu, komu til hjálpar og björguðu mönnunum. Fórust að eins rúmir hundrað manns, svo ekki er hægt að sogja, að manntjóijið sé tilfinn- anlegt. Samt er þjóðin heima fyrir sár og gröm engu að síður og er haldið að þýzkir njósnararþar hafi tilkynt stjórn Þýzkalands livar skipið myndi sfgla og séu þannig valdir að spellvirki þessu. Segja blöðin hengingu of væga fyrir slfka borgara Bandaríkjanna. — Síðan þotta kom fyrir hafa hálfu fletri imenn þar en áður boðist sjálfvilj- uglega fram, bæði í sjóherinn og landherinn. --------------- Roosevelt við dauÖans dyr. Theodore Roosevelt, fyrv. forseti Bandaríkjanna, var skorinn upp við eymasjúkdómi í byrjun síðustu viku. Varð hann afar þungt hald- inn eftir uppskurðinn og honum ekki ætlað líf um tfma. En eftir síð'istu fréttum að dæma er hann nú úr allri hættu og óðum að hress- as(: aftur. -------0—1----- Kafbátunum smátt og smátt grandað. John R. Jellieoe, fyrverandi æðsti sjóliðsforingi Breta, hélt nýlega ræðu í bænum Hull á Englandi, sem vakið hefir mikla etftirtekt. Fjallaði ræðan aðallega um um kaf- bátahernaðinn þýzka og þar sem Jellicoe var við æðstu stjóm í sjóiiði Breta frá þvf í stríðsbyrjun og þar til fyrir til þess að gera stuttu síð- anð er mikið mark takandi á orð- um hans. Hann spáði því, að kaf- bátamir myndu fá orsakað mikið tjón í langan tfma enniþá, en kvaðst geta fulivissað éheyrcndur sfna um það, að f lok næsta sumars yrðu bandamenn búnir með ýmsu móti að iskerða svo tölu þeirra, að úr því myndu þeir fá litlu éorkað. — Jelll- ooe er mjög gætinn maður og orð- var, og þess vegna ólíklegur til að láta sér annað um munn fara en >að, sem hann hefir fulla vissu fyrir að sé sannliekur. -------o—------ Tollur afnuminn. Sambandstjórnin hefir nýlega numið tollinn af dráttvélum (trac- tors) bænda og nautgripum. Er >etta istríðsráðstöfun og giidir f RUSSAR 0G MIÐVELDIN SEMJA FRIÐ. FULLTRÚAR UKRAINÍU-RÍKIS, HINS NÝJA LÝÐVELDIS Á , RÚSSLANDI, STÍGA FYRSTA SP0RIÐ Á FRIÐAR RÁÐSTEFN- UNNI 1 BREST-LITOVSK MEÐ ÞVÍ AÐ UNDIRRITA FRIÐAR- SAMNINGA VIÐ MIÐVELDIN. BOLSHEVIKI STJÓRNIN SÉR ÞVISITT ÓVÆNNA 0G LÆTUR UNDAN. SAMÞYKKIR FRIÐ- INN, EN NEITAR ÞÓ AÐ SV0 K0MNU AÐ UNDIRRITA FRID- ARSAMNINGANA F0RMLEGA. Báðstefnunni í Brest-Litovsk er nú lokið þannig, að Rússar og Miðveldin hafa samið frið. Þar með cr stríðinu á mllii þessai'a þjóða al- veg lokið. Hei-menninir verða taf- arlaust kallaðir heim frá hinum ýmwu hersvæðum og allir fangar, sem þjóðir þessar hafa haldið hver fyrir annari, verða létnir lausir. Er mikið um dýrðir bæði á Þýzkalandi og í Austurríki yfir þessum úrslit- um tfriðairáðstefnunnar ofannefndu og þessu íagnað sem dýrmœtum sigri. Lengi var Bolsheviki stjórnin treg nð ganga að kostum Miðveldanna oý var því alment haldið, að ráð- stefnan í Brest-Litovsk myndi bera lí fnn árangur. En Ukrainia, nýtt lýðveidi á Rússlandi og sem alveg er Óháð Boisheviki stjórninni, reyndist Mið- vcldunuim auðveldari viðureignar. Fulltrúa þess ríkis var hægt að sannfæra og án mikillar fyrirhalfnar. að fá l>á til þess að undirskrifa frið- arsamniniga. í saimningum þessmn er ‘slept öllu tilkalli til skaðabóta. Landamæri verða nærri söm og áður, en sökum eftirlátssemi Mið- veldanna fær Ukrainia þó að færa ögn út kvíar! Tilhliðrunarsemi þos'sa vinna MiðveJdin vafalaust upp með því að vera ekki eins etft- irgefanleg við Bolsheviki stjórnina og ná sér niðri á henni. Þegar Ukrainia var búin að semja friðinn virðist BolShevikingum hafa farið að verða dimmra fyrir augum en áður. Fór svo að lokumi, að þeir sáu sér ekki annað fært en samJþykkja friðinn og vera með á yfirborðinu—en að svo komnu hiafa þeir þó neitað að undirrita friðar- samningana. Ekki batnar liagur Rumaníu- manna við friðarsamninga þessa, þvf Miðveklim setja þeim nú harða kosti og hóta þeim öllu illu ef þeir fari ekki að dæmi Rússa og semji frið það bráðasta. Vopnahlé það, er Rúmaníumenn sömdu um ásamt Rússum, er útrunnið þann 18. þ.m. og er þá haldið, að þeir muni taka til vopna aftur. Engin vissa er þó cnn tfengin að svo verði. Rúmaníu- menn hafa öflugan og harðsnúinn her, en standa nú illa að vígi, þar sem þeir eru nú alveg éinangraðir fré bandaþjóðum sínum. eitt ár, sem talið er frá 7. þ.m. All- ar dráttvélar, sem kosta fyrir neðair $1,400 ihver, miega á þessu tímabili sendast tollfrítt inn í Canada. Vatfa- laust eru þetta stór ihlunnindi fyrir bændurna eins og nú er ástatt í landinu. -------lo—*—•— Vistastjórn breytt. Vér getum fært lesendunum þær góðu fréttir, að eambandsetjórnin hefir ákveðið að gera imiklar breyt- imgar á tilhögun í sam'bandi við vfstastjóm landsins. Stafar þetta að sjálfsögðu af því, live ihörmulega illa bæði núverandi og tfyrverandi vistastjórum fórst verkið úr bendi. Valdtaumar æðstu vistastjórnar hafa iþví verið teknir úr höndum núverandi vistastjóra og hann gerð- ur meðlimur f vistastjórnarnefnd, á samt þreonur mönnum öðrum, sem hér eftir é að hatfa alla unrsjón með matvælum og vistum þjóðarinnar. Allir meðlimir þessarar vistastjórn- ar nefndar eru frá vesturfylkjunum, og eru þetta þeir H. H. Thomson, núverandi vistastjóri Canada, J. D. McGregor, núverandi vistastj. vest- urfýlkjanna, Hon. C. A. Dunning, þingmaður í Saskatchewan fylki, og Percy B. Tustin, frá Wýinipeg. Vistastjórnar nefnd þessi kemur undir landbúnaðardeild samibands- stjórmarinnar, sem Hon, T. A. Cre- rar landbúmaðaráðhera er tfyrir, og þar af leiðandi er það hann, secm nú hefir æðstu umsjón með vista- stjórn landsins. Flastlr munu fallast á, að þetta sé stór breyting til þe<9s betra. Núven | andi landbúnaðarráðherria heíir j verið við miál bænda riðinn svo, lengi, að honum er treystandi til | þess að bera hag bændanna og | verkalýðsins fyrir brjósti. Hann er[ ötull og afkastamikill að hverju sem 'hann gengur og því mönnum óhætt að trúa, að bráðlega gerl einhverjar breytingar vart við sig hér í Oanada hve vistastjómina snertir. -------o-------- Frægur hnefaleikskappi látinn. John L. Sullivan, fyrverandi hnefa- leiks kappi Bandaríkjanna, andað- ist 2. þ.m. að heimili sínu í Abbing- ton, Mass. Hann var hnefaleiks-| kappi frá 1882 til 1892 og á þcim tíma fanst ekki jafningi lians og voru margir farnir að halda hann moð öllu ósigrandi. Komst hann yfir auð fjár á þessu tímabili, en varð ekki við höndur fast. Árið 1908 var hann orðinn öreigi og héldu vinir hans þá í honum lífinu. Eftir þetta fór hann að ferðast með leikflokki einum um landið og úr því tók efna- hagur hans að batna. Þegar hann ’lézt átti hann stórt hús í Abbing- ton, Mass., og um $50,000 í sparisjóði. Þessi breyting á kjörum hans or- sakaðist af því, að síöari ár æfi sinnar gerðist hann strangur reglu- maður. Áður var 'hann drykkfeldur mjög og sóaði þá fé sínu á allar lundir. Eldar í Winnipeg. Stórir eldar eru nú all-tíðir hér í Winnipeg og í ekki svo íáum tiltfell- um kemst aldrei upp bvernig þeir hafa orsakast. Þann 1. þ.m. brann Caldwell stóthýsið á horninu á Main og McDermot strætum og er skaðinn af bruna þessum metinn að vera um $300,000. Er þetta eitt af elztu stórhýsum þessarar borgar og mun hafa verið bygt fyrir rúmum 40 árum síðan. Kínverji einn fórst í eldinum, en öllum öðrum var bjargað. Næsta bygging við slór- hýsi þetta var “BláaJbúðin” svo nefnda og brann hún einnig til kaldra kola. — Á þriðjudagsmorg- uninn í þessari viku kom upp eld- ur í “Riverview” gististöðinni tf Elm- wood og áður eldur þessi varð slöktur hafði hann gert $150,000 tjón. Heimkominn hermaður, sem hélt til é gististöðinni, beið bana í eldinum, og einnig roskin kona, er unnið hafði þar um tíma. Abdul Hamid dauSur. AbduJ Hamid, fyrverandi Tyrkja soldén og eina tíð víðfrægur sökum ilsku sinnar og harðstjórnar, er nú ekki lengur í lifandi manna tölu. Lézt hann á sunnudaginn var og var lungnabólga banamein hans. Verður hann greftraður á kostnað ríkisins og að líkindutm með lítilli viðhöfn,—Hann var soldán Tyrkja- veldis á árunum frá 1876 til 1909, og þó harðstjórn hans væri mikil og níðingisvork mörg framin í hans nafni, tókst honum að auka veldi lands síns og að koma af stað tölu- verðum framförum hjá þjóð sinni. Skólar landsins voru endurbættir, landherinn aukinn og verzlun þjóð- arinnar margfaldaðist frá því sem áður var. En þó margt gott megi segja um stjórnartíð hans, vegur l>etta lítið á móti því illa. Abdul H-amid var ósvífinn harðstjóri af versta tagi, sem ekki hikaði við nein grimdarverk. Misti hatin völd- in í stjórnabyltingunni 1909, er hinn svo netfndi flokkur Ung-Tyrkja í landinu brauzt til valda og tók ráðin í hendur sfnar. Var soldán- inn þá hrakinn úr sinni keisaralegu höll við Bosphorus sundið og litlu síðar settur í varðhald og í því i métti hann dúsa það som eftir var æfinnar. Yngri bróðir ihans Miaho- roed V., var skipaður soldán í hans stað. Kvennabúr hans var uppleyst ‘og soldist giimsteina safn hans fyrir $1,000,000. Fé þessu var varið til efiingar sjóflota þeim, er Ung- Tyrkir komu upp. Alvarfeg aðvörun. Lesendur íslenzku blaðanna hafa vafaluast tekið eftir því, að Stefán Stefánsson —— um stundar- sakir til heimilis að 656 Toronto stræti hér í borg, hefir í nokkrum síðustu blöðum Heimskringlu og Lögbergs auglýst, að hann óskaði að kaupa hluti í Eimskipafélagi Is- lands. Auglýsing þessi hefir frá upphafi litið einkar sakleysislega út, enda var nauðsynlegt, að svo væri, ef hún átti að ná sínum rétta, en leynda tilgangi. Nafn auglýs- andans er t.d. al-íslenzkt, svo að þeir af vestur-íslenzkum hluthöf- um, sem einhverra orsaka vegna hafa viljað—eða verið fáanlegir til þess að losast við hlutaeign sína í Eimskipafélaginu, hafa sennilega ekki verið að grenslast um, hver Stefán þessi Stefánsson væri, né af hverjum ástæðum hann óskaði að kaupa hlutabréfin, held- ur mun þeim eingöngu hafa það í hug komið, að auglýsingin veitti þeim réttmætt tækifæri til þess að vinna það tvent í einu, að losna við eign sína í félaginu og að þóknast ósk auglýsandans að ger- ast hluthafi þess í þeirra stað. Hins vegar teljum vér það mjög tvísýnt, að auglýsingin hefði ork- að eigendaskiftum á nokkrum I þeirra félagshluta, sem við nú vit- um með vissu, að Stefáni hafa ver- ið seldir, ef hinir fyrri eigendur þeirra hefðu haft nokkurt hugboð um hinn leynda tilgang kaupend- anna, eða gert sér grein fyrir að- ferðinni, sem beitt er við kaupin. Vér teljum því rétt að leiða at- hygli Vestur-Islendinga að eftir- töldum atriðum: 1. Stefán þessi Stefánsson er fyrir tiltölulega stuttum tíma kom- inn hingað til lands, og dvelur hér í fylkinu að eins um stundarsakir. Til Manitoba er ekki að svo stöddu sýnilegt að hann hafi átt nokkurt annað erindi en það, að kaupa hér undir eigin umsjón eins marga Eimskipafélags hluti og honum gæfist kostur á að kaupa fyrir á- hrif auglýsingarinnar áður áminstu og starfsemi þeirra Islendinga, sem hann hefir fengið tibþess að lokka hluti út úr bónþægum hluthöfum. 2. Hann hefir í þessu hluta- kaupsstarfi sínu algerlega gengið fram hjá okkur tveimur Vestur- Islendingum, sem skipum sæti í stjórnarnefnd Eimskipafélagsins, með því sérstaka augnamiði að annast með áhrifum okkar þar um hagsmuni vestur-íslenzkra hluthafa. 3. Hann hefir verið ófáanlegur til þess að gera okkur nokkra grein fyrir því, í hvers eða hverra um- boði hann kaupi Eimskipafélags- hluti Vestur-Islendinga sérstaklega og geri sér beina ferð hingað vest- ur til þess, alla leið frá Islandi, í stað þess að auðga höfuðstól fé- lagsins á Islandi, með því að kaupa þar nýja hluti af félagsstjórninni, eða, úr því hann er hingað kom- inn, af okkur félagsstjórnendum, sem höfum fult hlutasölu umboð frá meðstjórnendum okkar á Is- landi. Við höfum getið þessara fram- angreindu atriða til þess að benda lesendum á, að hlutakaupa-aðferð Stefáns er í fylsta máta lævísleg og að okkar áliti alls ósamboðin nokkrum þeim manni, sem teljast vildi vinur félagsins. Nú með því að vér Vestur-Is- lendingar tókum upphaflega að oss að styrkja félagsstofnun þessa með því að leggja til 200 þúsund krónur í höfuðstól hennar, gegn hlutaútgáfu til vor fyrir samsvar- andi ákvæðrs upphæð. Og með því enn fremur, að þetta var gert samkvæmt skrif- legri bón fjölmargra háttvirtra þjóðvina þar úti á íslandi. Og með því enn fremur, að enginn þessara þjóðfrömuða hefir með einu orði látið þess getið, að þeir óskuðu að Iosast við vestur- íslénzka þátttöku í félaginu. Og með því enn fremur, að enginn af Eimskipafélags stjórn- endunum, sem búsettir eru á Is- landi, né heldur nokkur einn af öll- um þeim þúsundum hluthafa, sem félagsheildina mynda, hafa nokkru sinni látið þá ósk í ljós, að hlutafé Vestur-Islendinga komist í hendur Austur-Islendinga, þá virðist okk- ur rétt að vestur-íslenzkir hluthaf- ar seldu ekki hluti sína í félaginu sér alls óþektum mönnum, þótt ís- lenzkt nafn beri, og það því síður, sem við höfum verið og erum enn fúsir til þess að annast um sölu á hlutum þeirra vestur-íslenzku hlut- hafa, sem kunna að vilja losast við þá. Það er alls vegna viðeigandi, heppilegt og nauðsynlegt, að við fáum að vita um eigendaskifti, sem verða á hlutum félagsins, svo að bækur okkar hér geti á öllum tímum sýnt rétt og áreiðanlegt' yf- irlit yfir nöfn og áritan hluthaf- anna. Það er Ijóst af fyrirfarandi starf- semi félagsins, að hlutaeign í því er arðberandi, og þess vegna eng- in sýnileg ástæða fyrir hluthafana að kasta hlutum sínum frá sér fyr- ir minna en sannvirði, og í eigi alls óþektra manna. Hins vegar ‘virðist oss rétt að taka það fram, að eins og vér tók- um að oss að styrkja þetta fyrir tilmæli Austur - Islendinga, eins mundum vér nú verða fúsir til að selja í þeirra hendur alla vora hluti, ef stjórnarnefnd félagsins á Islandi, eftir auglýsta ósk hluthaf- anna þar á ársfundi félagsins, til- kynti okkur, að þeir þar heima vildu losast við Vestur-Islendinga úr félaginu. En engin slík ósk hef- ir okkur verið tilkynt. Austur-Is- lendingum er ant um framhald hluttöku Vestur-Islendinga í félag- inu. Þess vegna vörum við hlut- hafana hér vestra við því, að selja hluti sína sér óþektum kaupendum. En óskum þar á móti, að allir þeir hluthafar, ef nokkrir eru, sem vilja selja eign sína í félaginu, sendi okkur bréflega tilkynningu um það, og skulum vér þá taka að okkur að annast um söluna, með því augnamiði að tryggja jöfnum höndum hagsmuni hluthafanna og félagsins. Winnieg, 7. febrúar 1918. Arni Eggertsson. Jón J. Bíldfell. ÚR BÆ OG BYGÐ Blaðið Minneota Mascot segir frá láti Elizabetar Slgurðsson, konu Einars Siigurðssonar, sem síðaet liðin 15 ár hefir búið í Minnoota- héraði. Banamein hennar var krabbamein í maganum. Var húa skorin upp við því fyrir rúmu ári síðan, en bataðist aldrei til fulls eftir uppskurðinn og lá rúmföst mest af tímanum. Hún var rúm- lega háltf-sjötug að aldi er hún lézt. Komu þau hjón frá íslandi hing- að til þessa lands árið 1879. Bjuggu fyrst í Alta Vista sveit í Lincolm héraði, fluttu svo þaðan til Minno- ota. Sú látna var vel skýr kona, glaðlynd og hjálpfús, umhyggju- söm móðir og ástrík eiginkona. Hennar er sárt saknað áf eftirlif- andi eiginmanni og tveimur so»- um fullorðnum.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.