Heimskringla - 14.02.1918, Page 4

Heimskringla - 14.02.1918, Page 4
4. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 14. FEBRÚAR 191S WINNIPEG, MANITOBA, 14. FEB. 1918 Yistastjórinn nýi. Margir spáðu vel um, er fyrverandi vista- stjóri Canada, W. J. Hanna, lagði niður völdin og H. H. Thomson frá British Colum- bia fylki var settur í hans stað. Var þá al- menn skoðun manna, að æðsta vistastjórnin hefði verið falin manni duglegum og at- kvæðamiklum, er tafarlaust léti eitthvað mikið til sín taka. Allir hugðu þær breyt- ingar í vændum á allri vistastjóminni, sem hnekja myndi dýrtíðinni í landinu að mikl- um mun og þar með gera fátækiingum og verkalýð auðveldara að draga fram lífið. En að svo komnu hafa allir orðið hér fyrir vonbrigðum. Þó all-langur tími sé liðinn síðan vistastjórinn nýi tók um stjórn- völinn, hefir hann enga tilraun gert að breyta um stefnu. Hann hefir í einu og öllu látið sér nægja að sigla í kjölfar fyrirrennara síns og hefir ekki gert minstu tilraun að breyta neinu. Dýrtíðin helzt því söm og áður, nema þegar verðið á einhverri mat- vörutegund er—ögn hækkað. Bæklingar J>ó sendir í allar áttir frá skrifstofum vista- stjórans og undirmanna hans og hver ein- asti þeirra áminnandi þjóðina um sparnað og fyrirhyggju og leiðbeinandi henni með ýmsum fróðleik og upplýsingum. Er þetta bókstaflega séuna aðferðin og á meðan Hanna var við stýrið og er eftirmaður hans auðsýnilega þeirrar skoðunar, að þetta sé heppilegasta og bezta vistastjórnin. En þetta er eins og löggjöf án fram- kvæmdarvalds; lög samin eins góð og full- komin og framast má verða, en engin lög- regla til, sem sjái um að þeim sé fram- fylgt. Leiðbeiningar og reglugjörðir vista- stjóranna hér hafa því ekki komið meiru til leiðar, en lögin fengju afrekað—ef engin lögregla væri til í landinu. Og þess vegna er öll vistastjórn hér í Canada langt á eftir því, sem á sér stað í Bandaríkjunum, á Eng- landi og víðar, að vistastjórana hér hefir skort alt þrek til framkvæmda. Þeir hafa leiðbeint, gefið góð og heppileg ráð og við og við samið strangar reglugjörðir — en ætíð hefir þá eins og skort vald til þess að sjá um, að reglugjörðum þeirra væri hlýtt. Hafi þeim verið veitt þetta vald, hefir þá skort þrek og áræði til þess að beita því. Þeir hafa báðir jafnt skoðað það helg- ustu skyldu sína, að áminna alþýðuna og tala í hana kjarkinn, en hafa gefið sig minna við verzlunum eða auðfélögum landsins. Er því engu líkara, en þeir hafi skoðað alþýð- una aðallega orsök ríkjandi dýrtíðar! Með því að eggja hana til sparnaðar og meiri framleiðslu, hefir þeim eins og fundist þeir vera að koma í veg fyrir það, að dýrtíðin fari vaxandi og auðfélögin fái sogið úr þjóð- inni merg og blóð. Hörmulegri vistastjórn en þetta er ekki hægt að ímynda sér að geti verið til. Engum hugsandi manni dylst, að pen- ingagræðgi auðfélaga og einstaklinga er aðal orsök núverandi dýrtíðar, bæði hér í Canada og annars staðar. Græðgi þessari verður heldur ekki hnekt með öðru en lögum og lögreglu. Eintómt orðaglamur hefir enga þýðingu; það hefir reynslan sýnt hér í Canada, svo ekki er um að villast. Sá vistastjóri, sem ekki hefir lögreglu landsins sér að baki, er ekki annað en nafnið tómt. Hanna var óþreytandi að tala og rita. Vilji hans var góður, en kom ekki í ljós í öðru en orðunum einum. Verk þessa manns í vistastjórastöðunni voru sáralítil. Og á meðan eftirmaður hans tekur hann sér til fyrirmyndar og lætur sér nægja að feta í fótspor hans, er ekki við neinum breyting- um að búast til hins betra. Sú spurning hlýtur því að vakna hjá flestum, hvort ekki muni hægt að finna ein- hvem mann annan, sem hæfari sé til að skipa stöðu þessa. Er enginn maður til í Canada, sem sé nógu mikilhæfur til þess að geta tekið við æðstu vistastjóm landsins og íátið sér farast eins vel úr hendi og vista- , stjórum annara landa, t.d. í Bandaríkjunum og á Englandi? Augu margra hér munu hvíla á einum manni sérstaklega, þegar slíkt er tekið til í- hugunar—það er W. F. O’Connor, lífskostn- aðar eftirlitsmaður (cost of living com- missioner). Flestum mun koma saman um að hann hafi staðið snildarlega vel í stöðu sinni. Skýrslur hans bera þess ótvíræðan vott, að honum sé gjarnara að sýna eitthvað í verkinu en glamra með orðum. Stefnu sína velur hann hiklaust og óttast ekki þó stórir menn, auðugir og voldugir, eigi hlut að máli. Hvað eftir annað hefir hann tek- ið stór auðfélög í hnakkann og flett ofan af ýmsum fjárglæfrabrögðum þeirra og ekki óttast afleiðingarnar hið minsta. Allar skýrslur hans votta að hann er vakandi yfir starfi sínu og að hann brestur ekki andans þrek til þess að birta þjóðinni sannleikann, þó við stærstu auðfélög landsins sé að etja og þá mótspyrnu, sem mörgum hefir koll- varpað. Auðsýnilega metur hann meir skyldu sína gagnvart þjóðinni, en fylgi þeirra einstaklinga, sem mestan auðinn hafa á milli handa. Og að þessu hefir auðfélögunum ekki hepnast, að fá hann hrakinn úr stöð- unni og má það þó gegna furðu. Hann hefir áunnið sér tiltrú samverka- manna sinna og tiltrú þjóðarinnar. Skýrsl- ur hans sýna víðtækan skilning á öllu, sem að stöðu hans lýtur—og staða hans er ná- skild vistastjórastöðunni. Enginn maður, virðist því heppilegri en hann til þess að verða næsti vistastjóri Canada. Ljótt ef satt er. Margvíslegar sögur berast um núverandi stjórn Rússlands. Vafalaust er lítið mark takandi á sumum þeirrá. En yfir höfuð að tala virðast þó sögur þessar votta, að enn sem komið er hafi stjórn þessi sáralitlu af- kastað til góðs fyrir þjóðina. Aðal þrek- virki hennar er að hnekkja með öllu þátt- töku rússnesku þjóðarinnar í stríðinu, en ferill þessarar stjórnar frá því fyrst hún hóf göngu er þó roðinn blóði. Mótspyrna þeirra manna, sem annarar skoðunar voru, hefir verið brotin á bak aftur með herafla og þetta leitt til ógurlegra manndrápa í landinu. Ef til vill væri slíkt réttlætanlegt, ef það leiddi til stjórnar og skipulags, en ekki til verstu óstjórnar, eins og nú virðist ríkja á Rússlandi. Því er ekki að neita, að stefna Bolsheviki- stjórnarinnar er að mörgu leyti all-glæsileg á yfirborðinu. Allri stjórnarskipun landsins á að gerbreyta alþýðunni í vil, allur stétta- munur á að hverfa og auðvaldið á að vera þar úr sögunni áður langt líður. Stórar landeignir vissra einstaklinga tekur stjómin undir sig með því markmiði að skifta þeim á milli bændanna — eða þeirra manna, sem viljugir eru að færa þær til réttra afnota fyrir þjóðina. Ríkið og kirkjuna er þegar búið að aðskilja, sem teljast má stór við- burður á Rússlandi, og hér eftir fá prestarnir þar ekki önnur laun en söfnuðir þeirra geta goldið þeim. Aðrar fyrirhugaðar endur- bætur Bolsheviki stjórnarinnar eru eftir þessu, þó vitanlega séu þær flestar að eins á pappírnum enn sem komið er. En sérstaklega er athugavert, að endur- bótum þessum á að ryðja leið með örgustu harðstjórn og blóðsúthellingum. Hingað til hefir Bolsheviki stjórnin ekki hikað við nein manndráp til þess að koma fram vilja sínum. Þessu til sönnunar má tilfæra afskifti þessarar stjórnar, ef stjórn skyldi nefna, af málum Finnlands. Finnar segja skilið við Rússland og mynda sjálfstjórn. Töluverðr- ar sundrungar verður þar vart, því rússnesk áhrif virðast enn mega sín þar mikils. Bol- sheviki stjómin kemur svo til sögunnar und- ir því yfirskyni, að vilji hennar sé að frelsa lægri stéttirnar undan yfirráðum æðri stétt- anna. Alt fer í bál og brand. Borgara- styrjöld er hafin og ægilegt tímabil í sögu Finna byrjar. Áður langt líður taka “Rauðu hersveitirnar” svo nefndu, sem vafalaust hljóta fylgi Bolsheviki stjórnarinnar, að fremja skelfilegustu hryðjuverk, að brytja niður saklausa íbúa landsins í hundraða tali og myrða konur og börn—og ef nokkuð er að marka fréttirnar, sem af þessu hafa bor- ist, þá hefir Bolsheviki stjórnin fremur blás- ið að uppreistareldinum á Finnlandi en hún hafi reynt að stilla þar- til friðar. Ljótasta sagan af gerðum þessarar stjórn- ar er þó sögð nýlega í blaðinu The Literary Digest, og virðist bygð á góðum heimildum. Er þar skýrt frá því, að þeir Lenine og Trot- zky hafi látið drepa alla þá fyrirliða við rússneska landherinn og sjóherinn, sem ekki voru alveg á þeirra bandi, því þeir hafi ótt- ast, að menn þessir myndu örva til mót- spyrnu gegn stjórn þeirra er frá liði. Þann- ig eiga allir fyrirliðarnir við sumar herdeild- irnar að hafa verið líflátnir, og á þetta að hafa viðgengist á öllum þeim hersvæðum, sem Bolsheviki stjórnin hafði umráð yfir. Fyrirliðarnir rússnesku eru flestir menn vel mentaðir. Þeir hafa margir getið sér ódauð- legan orstír í stríðinu fyrir hugprýði og hreystilega framgöngu. Kjör þeirra hafa oft verið þau verstu, því rússnesku hermenn- irnir eru oft og tíðum lítt viðráðanlegir. En með því að ganga á undan í öllu og vera þar sem hættan var mest, fengu þeir þó oftast nær áunnið sér hylli manna sinna. Þessir rússnesku fyrirliðar hafa vafalaust veriö þjóðarinnar vöskustu synir. Þó hafa þeir verið myrtir í þúsunda tali af stjórn þeirra eigin lands, af þeirri ástæðu eingöngu, þeir voru á annnari skoðun í stjórnmálum en valdhafar þessarar stjórnar. Ef frétt þessi er sönn, sem líkur benda ti að sé, þá verður þetta sá blettur á Bolshe- viki stjórninni, sem til eilífðar verður ekki af máður. Endurminningar um Jack London. Flestir Islendingar hér í landi munu kannast við enska rithöfundinn Jack Lon- don. Enginn af enskum rithöfundum er betur þektur en hann á meðal alþýðunnar. Þó honum entist ekki líf lengi, hefir hann grafið nafn sitt óafmáanlegum stöfum á meðvitund þjóðar sinnar. Allir minnast þess, að hann var sjálfur lifandi eftirmync af söguhetjum sínum—hraustmenni mesta, leikinn í öllum helztu íþróttum, þrunginn af æfintýralöngun og gæddur þeirri hugprýði, sem ekkert óttast í jörðu eða á. Það mátti með sanni segja, að hann lifði sögur sínar sjálfur—þó stórfengilegar séu Á útkjálk- um veraldar barðist hann við þrautir þung- ar og sigraði. I viðbót við atgerfið Iíkam- lega var hann gæddur góðum gáfum, skarp- skygni og auðugu ímyndunarafli. Sög- ur hans sýna þetta, svo ekki er um að villast. Ritfær var hann með afbrigðum. Ekki kom ritsnild hans þó í ljós í því, að hann væri listfengur að skapa stórar og miklar umbúð- ir með lítið efni; heldur í því, hve miklu efni hann gat komið fyrir í fáum orðum. Stefnufastur er hann; velur stefnu sína ungur og heldur henni til síðustu stundar. Hann er ekki eitt í dag og annað á morgun —ekki að rífa niður seinni ár æfi sinnar það, sem hartn var að byggja þau fyrri. Þó hann rísi öndverður ýmsu skipulagi mannfé- lagsins, kirkjulegu og stjórnarfarslegu, verð- ur hann ekki oft sagður gjarn til stóryrða og hjá honum verður ekki vart minsta mentun- arhroka. Hann stærir sig aldrei af þekk- ingu eða mentun — dylst ekki, hve þetta hvorttveggja er takmarkað og ófullkomið, þó oft sé mikið af látið. Lífsskoðun sína öðlast hann við frjálsa gagnrýni, rannsókn og eftirtekt á því smáa. Hann grefur sig ekki ofan í skruddur og skræður, eins og hent hefir margan gáfumanninn, og gleymir svo öllu í kring um sig. Hversdags lífið er hon- um skóli, og þar er hann alt af að Iæra. Ef fleiri færu hér að dæmi hans, stæðu einstak- lingar þjóðanna á hærra þroskastigi en nú á sér stað og þá væri bjartara yfir öllum framtíðarvonum mannkynsins. Eftirfylgjandi grein er tekin úr blaðinu San Francisco Examiner, og af því hún bregður upp svo ljósri mynd af heimilislífi skáldsins, finst oss hún verðskulda að koma fyrir augu íslenzkra lesenda. Fyrirsögn greinarinnar er “Endurminningar um Jack London,” og höfundur hennar heitir Edgar Lucien Larkin:—- “Þann 13. sept. 1906 dvaldi eg nætur- langt á heimili Jacks London í Sonoma. Húsið var fult af gestum. Þegar leið að háttatíma leiddi Jack mig sjálfur til her- bergis þess, sem hann hafði valið handa mér. Sökum rúmleysis í húsinu tók hann mig til hinnar afskektu skrifstofu sinnar. Hann lauk upp hurðinni og bað mig ganga inn og benti mér svo á hægindastól. Síðan kveikti hann á Ijósunum og lét sér mörg spaugsyrði um munn fara á meðan. Opnaði hann svo aðrar dyr og sýndi mér inn í svefnherbergi sitt; eftir það bauð hann mér góða nótt. Þegar eg var orðinn einn, umhverfði eg brátt öllu, er eg var að skoða alt og rann- saka. Eg vissi að nú væri eg staddur í rétt- nefndri bókmenta-miðstöð veraldarinnar. Skrifborðið var breitt og langt og þakið pappír af öllu tagi og pennum í tugatali; blýantar — ekki einn þeirra vel skerptur — lágu hér og þar; stórar blekbyttur voru á skrifborðinu miðju og hrúgur af frímerkj- um. Auðsýnilega var skáldinu lítið um það gefið, að tekið væri til á skrifborðinu hans. Enn stendur alt þetta mér skýrt fyrir hugskotssjónum. Þarna gat að líta mörg handrit—hálfnaðar sögur og sögur neerri kláraðar; þéttrituð handrit, með stór-skáld- legum tilþrifum á hverri síðu og þær mannlýsingar, sem seint fyrn- ast. Líka fann eg þarna efnisyfir- Iit óritaðra sagna og skýringar með myndum, einnig nýmeðtekin bréf frá öllum pörtum veraldar og mörg þeirra frá útgefendum. Vitanlega varð mér til mestu gleði, að fá að dvelja næturlangt í öðrum eins stað. Heyr! Sætur og angurblíður bjölluhljómur barst mér til eyrna; bjöllur þessar hringdu hver á eftir annari með mismunandi nótum — en þó eins og stiltar í aðdáanlegt samræmi eftir reglum fullkomnustu hljómfræði. Þetta vpru þrjár af hinum helgu klukkum musteris eins í Koreu, og hafði Jack London eignast þær er hann var fregnriti í stríði Japana og Rússa. Þær voru hengdar á greinar trjánna þarna fyrir utan og hæg hafgloan, sem svo oft lék um hinn yndisfagra “Mánadal”, þar sem Jack London bjó, hringdi þeim hægt og þýtt og ómuðu þær í samanstiltum og un- aðsríkum nótum út í umhverfið. Frá mér numinn hlýddi eg á þær, því eg hafði ekki vitað af nærveru þeirra. Eg gekk út að glugganum. Þá gekk eg ekki lengur í neinum skugga um, hvaðan hringingin kæmi, því ein bjallan var svo nærri glugganum, að hún nærri snerti rúður hans, er hún bærðist til í vindinum. Þá sá eg fyrsta sinni þessar fornhelgu bjllur—fornhelg- ar vissulega, því saga þeirra er rakin margar aldir aftur í liðna tímann. Á hyllu í einu horn i stofunnar sá eg þrettán bækur. Eg stóð á fætur og skoðaði þær. Þær voru allar ritaðar af herra London sjálfum á síðastliðnum fimm árum. Hann var fæddur 12. jan. 1876— og nú var eg að athuga allar þessar bækur eftir hann 13. sept 1906. Hver sem afkastar jafnmiklu verki á ekki lengri tíma, veit hvað það er að starfa bæði nætur og daga. Þarna í stofunni voru margvís- legir hlutir frá Klondyke-ferðum skáldsins, sömuleiðis fágtæir hlutir er hann hafði haft með sér frá Asíu. — Mér varð starsýnt á ýms- an útbúnað, sem hann hafði við- haft til að verja sleðahunda sína fyrir vetrarkuldanum. Hvar sem þú ert á hnettinum, lesari góður, er þér stór ávinningur og heiður að taka Jack London þér til fyrirmyndar og vera dýrunum jafn-góður og hann var. Hann var mesti dýravinur. Kærleikur hans til meðbræðranna var mikill, en dýrin, sem undir hann voru gefin, fór heldur ekki varhluta af þess- um kærleika. — Eg var hér stadd- ur í sann-nefndri bókmenta veröld —veröld sagna og sjónleika, sem heillar sálu manns og togar hana frá jafnsléttu upp í heiðbláan geim- inn. Eg varð nú svo gagntekinn, að eg réði ekki sjálfum mér leng- ur — greip einn af pennum skálds- ins og tók að rita, þó klukkan væri nú langt gengin tvö. Hætti eg ekki fyr en eg hafði skrifað grein fyrir blað mitt, The Examiner, og sem birtist skömmu síðar. Til hvílu gekk eg þegar klukkan var fimtán mínútur eftir þrjú. Eftir að hafa snætt morgunverð að mun fyr en eg átti að venjast, gaf eg mig á tal við verkamennina á búgarðinum. Voru þeir allir á- nægðir mjög, að vinna hjá manni eins og Jack London, sem svo góð- ur væri bæði við menn og skepn- ur. Á veggsvölunum fyrir framan húsið var skáldið að skemta mörg- um af gestum sínum og hélt eg Dangað. Samtalið ar hið fjörug- asta og lögðu allir orð í belg. Þá kom “Charmian” út á sval- irnar, kona skáldsins, og rauf gleðisamsætið án minstu tafar og dó án þess að segja orð af munni. Jún leit að eins þegjandi frcunan í mann sinn og svo til okkar gest- anna. Við skildum hana og höfð- um okkur á brott.—Nú var klukk- DOBDS KIDNEYí É P1LLS M mh-A, ^ »«•■»£ 4. W. DODD'3 NÝRNA FZLLtTR, góSn lyrir allsko**r nýrnaveiki. LsekHa gigt, bakverk og syknrveiki. Dodcfa Kidmcy Pilis, 60c. askjan, sex öskj- ur fyrir $2.60, hjá öllum lyísölum eöa frá Dodd’s Medicine Oo.p Ltd, Toronto, Ont an 8.30 f.h. og tími kominn fyrir herra London að fara til skrifstofu sinnar og taka til starfa. Engir gestir, enginn kraftur á jarðríki fékk að hindra hann frá að starfa. Kona hans sá um það. Sjálfum var honum starfið ljúft og skrif- stofan litla dróg hann til sín með ómótstæðilegu afli. Hús þetta var ekki stórt, Að eins 16 fet um- máls á hvern veg og 9 feta hátt, og svo innibyrgt var það af skógi og vafningsviði, að það sást ekki úr tuttugu skrefa fjarlægð. Herra London lét ekki gefa sér til kynna tvisvar, að nú yrði hann. að byrja að skrifa. Þetta eina augnatillit konu hans var honum nóg og hypjaði hann sig í áttina til skrifstofu sinnar með það sama. Dróg hann stóra vafningsviðar- bendu til hliðar og hvarf. — Rétt á eftir fann eg hrúgu af próförk- um, sem nýlega höfðu verið send- ar skáldinu af útgefendum hans. og allan fyrri hluta dagsins var eg sokkinn niður í að lesa þær. Þetta var undursamleg bók—“Mennirn- ir á undan Adam.” Svo gagntekinn varð eg af per- sónu Jack London, að eg er nú önnum kafinn að semja bók um hann. Verður bók sú að minsta kosti hjartfólgin einum manni — höfundinum. Hefi eg aflað mér allra beztu upplýsinga um skáldið og vona að mér ratist viðeigandi orð á munn er eg reyni að Iýsa ögn bókrtientastarfi þessa víðfræga rithöfundar.------ Og nú eru fréttablöðin um allan heim að skýra frá hinu sviplega láti hans. Á bezta skeiði lífsins hlaut hann að falla og leggjast tií hinstu hvílu í hinu yndislega Son- oma héraði og hans heittelskaða “Mánadal.” Og greftrun hans var haldin samkvæmt siðvenjum trúaðra manna. Kona hans stóð fyrir út- förinni og stráði blómum í kring um krukkuna, er geymdi ösku hans. Þetta er siður trúaðs fólks.’* Mount Lowe, Cal., 28. nóv. 1916. ------o------- Almanak 0. S. Th. Almanak Ó. S. Thorgeirssonar fyrir 1918 er komið út fyrir nokkru síðan, og verður ekki ann- að um það sagt, en að það sé eftir föngum vandað að efni og mjög vel vandað að öllum frágangi. Almanak þetta er sá árlegur gestur Vestur-Isl., sem vafalaust er mörgum kærkominn. Mun óhætt að fullyrða, að það sé keypt af flestum íslenzkum heimilum hér í landi. Innihald þess þetta ár hefir ver- ið auglýst í blaðinu áður Heim- ferðar skáldsins Stephans G. Steph- anssonar til íslands síðastliðið ár er minst á viðeigandi máta með því að birt er safn þess helzta, sem sagt var við hann heima, bæði í bundnu og óbundnu máli. Tvær myndir flytur Almanakið af skáld- inu; önnur tekin af brjóstlíkan, er gert hefir Ríkarður Jónsson, hin af lágmynd eftir sama. Framhald af sögu Vatnabygða. eftir Friðrik Guðmundsson, birtist nú og er mjög skilmerkilega og vel frá þessu gengið af höfundarins hálfu. Næst er ágrip af sögu Þing- vallabygðar, eftir Helga Árnason og þar sömuleiðis vel og ítarlega frá sagt, og fylgja safni því marg-

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.