Heimskringla - 27.06.1918, Síða 3
WINNIPEG, 27. JÚNI 1918
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSIÐA
rignt óaflátanlcga allan daginn, og
þvílíkt Nóaílóð var um jörð alla, að
ekkert utan í örkinni mátti lífs af
koinast eða yfir fara. Bifreiðir
Eords dugðu ekkert, sem rnargir
höfðu })ó, og leiðist inaður til að
halda af ])ví, að Ford ]>urfi ekki, að
framsýni til, að reyna sig við gamla
Nóa, ef til 'slarkfara kefmur. Þegar
fólk hafði vel jafnað sig og aðgætt
alt vandlega, er á diskunum var,
reis séra Jóhann Bjarnason upp úr
sæti og sagði samsætið sett. Er
hann enginn viðvaningur i iþví og
fórst ]>að að. vanda vel. Hann
skýrði frá tilgangi samsætisins, og
afhenti heiðursgestunum muni tvo;
var annað ferðataska, er Dr. Páls-
son átti að hafa með sér á ferðun-
um fyrirhuguðu í urvænislandinu,
en hitt var armbands-sigurverk, er
Mrs. Dr. Pálsson var beðin að bera
á ihandlegg sér “fyrir góða lukku”
á ókomna tímanum. Fyrir báðar
þ'essar gjafir, sem og þann hlýhug,
or heiðursgestirnir töldu sér sýnd-
an með samsæti þessu, þakkaði Dr.
Pál'sson með snjallri ræðu. Mintist
hann þess, að varasamt gæti verið
að halda tmönnum, serri væru að
flytja burtu, isvona rausnarlegar
veizlur, ef fólk vildi losna við þá,
því það gæti orðið til l>ess, að þeir
hættu við að fara. Að þeirri ræðu
lokinni var sezt að snæðingi, því
borð voru þar öll hlaðin miklu lost-
æti. “Og þar gengu kvenfélags kon-
urnar fremst, því kökurnar lögðu
þær tiil,” má vfst þar um segja, eins
oig Stephan G. komst að orði. Þökk
fyrir það alt, konur!
Að lokinni máltíð tók foriseti sam-
komunnar, séra Jóh. Bjarnason, aft-
ur til máls, og ýmsir fleiri, svo sem
Stefán Einarsson, Ingfmar Ingjalds-
son og Jón Runólfsson skáld. Mint-
ust þeir al'lir með hlýjum orðum
samverustundanna með heiðurs-
gestunum á liðnum tíma, sem þvf
miður leit út fyrir að styttast
mundu úr þessu. Yar það óspart
látið í ljós, hve Pálssonar læknis
yrði saknað, sem læknis fyrst og
fremst, og s,ðan sem nýtilegs og
fjörgandi drengs í mannféiaginu.
l>ær bygðir mega hrósa happi sem
hljóta marga slíka menn, en hinar
síður, sem ekki bera lán til þess að
halda í þá. Var líka fundið til
þessa af þeim, er þarna vorp saman
komnir. Menn hér voru sér þess
greinilega meðvitandi, að þarna
voru þöir að sjá á bak manni, sem
þeim var kunnur frá barndómi
hans, og gæddur var þeim hæfileik,
er allir viðurkendu, og gegndi auk
þess stöðu, sem meiri ábyrgð fylgir
en flestiyn öðrum stöðum þjóðfé-
lagsins, en sem þeir þrátt fyrir það
treystu til að ieysa af hendi eins
samvizkusamlega og uut væri. Var
þvi ekki óeð'lilegt, þó því væri
hreyft, í gamni og alvöru, þar eð
þetta eru stríðis og ribbalda tímar
or vér lifum á, og lítið segist á ýmsu,
að setja Dr. Pálsson fastan. Vér
vonum líka að oss verði ekki lagt
það illa út, þó vér hugsuðum svo,
því þegar betur er að öllu gáð, get-
ur þessi ibygð framar öllum öðrum
tileinkað sér Dr. Pálsson. Að vísu
hefir oft verið þröngt í búi og
fóðrið naumt, er ihún hefir getað
veitt, sérstaklega ef un\menn er að
ræða, sem gáfur og gæfu bera til
að skipa vandasamari verk í þjóð-
félaginu; hefir þessi bygð stundum
áður, en einkum þó nú, með burt-
för Dr. Pálssonar, orðið að hlíta í
þeim efnum hörðum kostum. En
sonur þessaVar bygðar er Dr. Páls-
son samt, og þó nú ®é komið svo, að
hann sé fluttur ihéðan, vonast hún
enn þá til, að mega seinna njóta á-
vaxta af ilians góða starfi.
Upplýsingar óskast.
Heimskringla þarf að fá að vita um núverandi
heimilsíang eftirtaldra manna:
Th. Johnson, síöasta áritan Port. Ia Prairie, Man.
Jón Sigurðsson, áður að Manchester, Wash.
E. O. Hallgrímsson, áður að Juneberry, Minn.
Miss Arnason, áður að Wroxton, Sask.
S. Davidson, áður að 1147 Dominion str., Wpg.
Mrs. W. L. Thomas, áður að Kimberley, Idaho.
Hjörtur Brandsson, áður 9318 Olarke St. Edmonton.
Steindór Arnason, áður að Wild Oak, Man.
Lárus Bjarnason, áður Cortland, Nebrasca.
Þeir sem vita kynnu um rétta árltun eins eða fleiri af
þessu fólki, eru vinsamlega beðnir að tilkynna það á
skrifstofu Heimskringlu.
THE VIKING PRESS, LTD.
hljóðfæri og var góður rómur gerð-
ur að hvorutveggju.
Síðasta atriðið á skemtiskránni
var dans. Þegar að þeim lið kom,
fanst það á, að forse-ti samsætisins
hafði alt í einu skift ium skap, og
hvesti hann dálítið róminn á móti
dansinum. Hann minti á eymdar-
ástandið á vígvöllunum, og kvað í-
hugunarvert að skemta eér úr hófi
fram við dans, þegar svo stæði á;
þótti honum tilhlýðilegt, að dansa
ekki lengur en tvo k'hikkutíma. Eg
skal ekki segja imikið um iþað, hvort
“móðureyrað muni þunt”, á unga
fólkinu eða ekki. En svo mikið er
víst, að borð og bekkir voru á loft
komnir um ieið og forseti slepti
orðinu og gólfið var í bezta ástand
komið til að dansa á því; þá kvað
og við fiðlan og fólkið leið í hring á
gólfinu, glatt og djanflegt og eigi ó-
svipað og það segði: Nú syndum
við, fiskarnir. Að því er það snert-
ir, ihve lengi dansað var, hygg eg að
gleymiSt hafi að 'líta á klukkuna, og
það 'hafi verið því að kenna, að
haldið var áfrain að dansa alla
nóttina, þar tH dagsljósið sindraði
inn á gólf og upp um rjáfur sam-
komusalsins.
Ferðalangur.
-------o-------
—
BRÉF ÚR BYGÐUM
ISLENDINGA.
Ólafur Pétur Guðmundur Björns-
son og ungfnú Kristjana Guðrún
Sigríður Kristjánsson voru gefin
saman í hjónaband þann 10. þ.m. af
Rev. Wm. Irvine að heimiii stjúp-
systur brúðgumans, Mrs. Thos.
Thorpe í Calgary, Alta. Brúðgum-
inn er sonur Jóhanns Björnssonar
fyrrum póstmeistara á Tindastól,
og eins af elztu landnemum ísl.
bygðarinnar í Alberta, og miðkonu
hans Margrétar Jónsdóttur, sem
St. G. Stephanson skáld kvað um
snildarkvæðið “Landnámskonan”.
Brúðurin er dóttir Geirhjörts sál.
Kristjánsisonar og konu hans Guð-
finnu Jónsdóttur, sem lengi bjuggu
að Gardar, Norður Dakota, en sein-
ast í New Hill, Alta. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna Verður í
New Hill. Vinir og vandamenn
óska þeim góðrar og .happasællar
framtfðar.
Oalgary, 15. júní 1918.
G. S. Grímsson.
Blaine, Wasli., 2. júnf 1918.
brúðarinnar, að viðstöddum nokkr-
um ættingjum og vinum beggja.
Ferðuðust ungu hjónin þegar til
Portland, Ore. Skömmu eftir heim-
komu þeirra gjörðu vinir og frænd-
ur þeim aðsúg og færðu góðar gjaf-
ir og heiliaóskir.
í stríðið ihafa farið þessir menn,
síðan eg skrifaði síðast:
óli Theodor Peterson, 22 ára gam-
all, 'sjálfboði í sjóher Bandar. Hann
lagði af stað 1. apr. s.l. á æfingar-
stöðina. óli átti að eins eftir eitt
ár til að útskrifast af ríkisháskólan-
um í Seattle (Washington Univer-
sity). Foreldrar hans eru þóra og
Bjarni Peterson, forðum búandi ná-
lægt Hensel N. Dak, en sfðustu árin
í Blaine.
Karl A. Dalsted, 21 árs að aldri,
gekk í Canada herinn og lagði af
'Sfað til Englands 13. apríl s.l. Móð-
ir hanis er Solveig Anderson, nú til
heimilis í Vaneouver, B.C., en faðir
Karls var Jón kafteinn Dalsted
(fyrri maður Solveigar), vel þektur
f Seikirk og þar um slóðir, góður
drengur og vel látinn. Hann drukn-
aði í Winnipegvatni fyrir mörgutn
árum. Seinni maður Solveigar og
stjúpi karls er Eriendur Anderson,
Þorsteins Anderssonar fyrruin í
Argyle.
Walter Oddson frá Blaine, f land-
her Bandar.; nýlega kominn til
Camp Lewis, Wash., 24 ára eða þar
um bi'l. Foreldrar hans, Ingibjörg
og 'Eyjólfur Oddson, hafa verið
lengi í Blaine (Ingibjörg er nú iát-
in fyrir þrem árum).
Gísii Gíslason er og farinn til
Camp Lewis, rúmlega tvítugur;
foreldrar hanis um mörg ár búandi
iiér við Blaine, komu hingað frá
Seikirk.
Frá Marietta, Wá.sh., er og nýfar-
inn til C. Lewis Kolbeinn Hoff, fóst-
ursonur þeirra Bergvins Hoff og
konu lians. Munu ]iau hafa komið
til Marietta frá Minnesota; Kol-
beinn er um hálfþrítugt.
Á síðastl. liausti gekk í lofther
Bandar. Hrígur Laxdal 22 ára gam-
all og sjálfboði; móðir hans Guðríð-
ur Laxdal, býr í Belilingham með
þremur dætrum sínum. — Þessa get
eg nú, þvi eg minnist eigi að hafa
iséð þesis getið í blöðunum fyr
Frá Salt Lake City, Utah, gekk og
í sjóher Bandar. (Ú-boat chasers d.)
unglingurinn Jbhn Árnason, 19 ára
gamall og sjálfboði. Móðir ihans er
Mrs. Katrín Hoilm, nú til heimilis í
Blaine; biður hún mig geta þessa
nú, þar eð það er ókomið í sunnan-
fréttum til blaðanna, að því er hún
bezt veit.
Eitthvað svipað þessu sýndist
andinn vera, sem ráðandi var, í
þessu samsæti. Þegar ræðuhöldun-
um linti, voru margar fallegar vísur
sungnar af öllum, meir og minna
viðeigandi við svona tækifæri. Mrs.
Bourd, kona agentslns á C.P.R. stöð-
inni hér, söng tvo einsöngva, og
Miss Ottenson frá Winnipeg lék á
Sýra í maganum
orsakar melting-
arleysi.
Framleiðir gas og vindverki.
Hvernig lækna skal.
liæknum ber saman um ab nfu tf-
undu af magakvillum, meltingarleysl,
sýru, vindgangl, uppþembu, óglebi o.s.
frv. orsakist af of mikilli framleiSslu
af ‘hydrochloric’ sýru í maganum, —
en ekki eins og sumir halda fyrir skort
á. magavökvum. Hinar vi15kvœmu
magahimnur erjast, meltlngin sljófgast
og fseöan súrnar, orsakandi hinar sáru
tilkenningar er allir sem þannig þjást
þekkja svo yel.
Meltingar flýtandi mehul œtti ekki
aS brúka, því þau gjöra oft meira ilt
en gott. Reyndu heldur aö fá þér hjá
lyfsalanum ráeinar únzur af Bisurated
Magnesia, og taktu teskeiö af því I
kvartglasi af vatni á eftir máltíö. —
petta gjörir magann hraustann, ver
myndun sýrunnar og þú hefir enga ö-
þægllega verki. Blsurated Magnesia (i
duft eöa plötu formi—aldrei lögur eöa
mjólk) er algjörlega ósaknæmt fyrlr
magann, ódýrt og bezta tegund af
magnesíu fyrir meltlnguna. Þafi er
brúkaö af þúsundum fólks, sem nú
boröa mat sinn meö engrl áhyggju um
eftirköstin.
Herra ritstjóri:—
Hér er ait fre-mur kyrt nú um
stundir. Vortíðin var venju frem-
ur þur og köld—ifrost á nóttum til
skammis tíma, þó tæplega merkjan-
legt nema sérlega árrisulu fólki, og
ekki nema stöku sinnum, en þó svo,
að vart hefir orðið skemda í görð-
um ihér um slóðir og töluvert af á-
vaxta vonum glatast, n.l. frosið
blóm af trjám hér ifyrir sunnan, og
fram að þessum tíuia hefir eigi veitt
af <að hita upp hús kveld og
morgna.
Síðasta júnf flutti alfarinn til
Bellingham, ásamt fjölskyldu sinni,
lierra Þorgils Ásmundsson, eftir 17
ára dvöl 1 Blain'e. Var þeim hjón-
um haldið kveðjugildi allmikið að
heimili hr. Jóns og Josy Stevenson
(Josy er systir Þorgilsar) og gefið
vandað matborð að skiinaði. Mæltu
þar ýmsir vingjarnloga í garð þeirra
hjóna og þökkuðu þoim félagslyndi
og framkomu góða í hvívctna. Var
það góð kveldstund og vel varið.
Nýlega er látin Jólianna Þórðar-
son, kona Magnúsar Þórðarsonar
(frá Hattardal) verzlunarmanns í
Blaine, ágæt kona; lætur eftir sig.
sjö börn og mann.
1 apríl (27) voru þau ungfrú Guð-
rún Kristín Sigurðsson og Lárus B.
Lindal gefin saman í hjónaband of
séra Sigurði ólafssyni að heimill
Eigi man eg eftir fleirum a"5 þeissu
sinni, sem tfarnir eru, en á síðustu
skrá yfir nöfn lögaldra manna eru
nokkrir landar, sem væntanlega
verða kallaðir síðar.
Ýmsir hafa spurt mig hvað kost-
aði að hafa myndir af hermönnum
í blaðinu; og þar eð eg veit það
ekki, sný eg spurningunni til ráðs-
manns blaðsins í þeirri von - að
henni verði svo svarað, að allir hafi
gagn af.
Lát séra Friðriks Bergmannis kom
eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Sakna hans nú, er hann er farinn,
fleiri en segja, og.fleiri miklu, en
gjörðu sér grein fyrir því, hver
hann var og hvað hann gjörðl, er
hann var enn á veginum með þeim.
fen si\ er æ sama sagan um öll mik-
ilmenni.
Ekki meira að sinni.
Virðingarfylst,
M. J. Benedictsson.
Aths.—Eins og skýrt hefir ver-
iS frá áóur, eru æfiminningar fall-
inna hermanna birtar ókeypis —
utan um sérstakan staS sé beSið í
blaðinu. Þeir sem myndir senda,
verða að eins að borga mynda-
mótin (cuts), er kosta nú $1.75
á einum dálki, en $3.00 á tveimur
dálkum.—Ritst.
Stolin krækiber
(Úr Iðunni.)
Til frú Helgu Gröndal,
frændkonu skáldsin's:
Það hafa sagt að foru fari flökku-
gestir:
frændur eru frændum verstir,
frú!—en mér þeir reyndust beztir!
St. G. St.
Gamanvísur
eftir ónefnida konu:
Eg hefi beðið uppdubbuð
allan þenna vetur
og beðið þess að góður guð
gæfi mér hann Pétur.
Svo fékk hún Pétur; en ári síðar
yrkir hún af rælni:
Það er ei lygi, það eg sver,
— þótt eg eigi Pétur —
það veit góður guð, að mér
geðjaðist ann.ar betur.
Ofraun.
Oft er mínum unga strák
ofraun þar af sprottin,
áð í mér tefla altaf skák
andskotinm og drottinn.
Úr vísnabók ungrar stúlku.
Vissulega valt l>að er,
þótt virðist létt í draumi,
að láta hepni hossa sér
á hendinganna straumi.
St. Þ.
Aldrei fá menn af þvf nóg,
alt þogar snýst í haginn,
hér í logni á lifsims sjó
að ieika allan dagiinn.
Ó. A.
Að lífið sé fríðara langt úti’ í heim
Við látum oss tíðum dreyma,
en komust þó síðar að sannleika
þeim:
það sælasta bíður heima.
Þorgils.
-------o-------
Ný pappírstegund.
í Amerískum blöðum er þess get-
i, að ein af nýjustu uppfundningum
Edisons sé, að nota niáltriþynnur í
stað pappírs.
Með rafmagni hefir hann unnið
þunnar plöþur úr stáli, kopar og
niekel, som eru móttækilegar fyrir
prentsvertu eins og pappír
Tilraunir hans kváðu sýna, að
nickel reynist bezt; úr því má gera
næfuirþunnar plötur, sem bæði eru
ódýrari, seigari og boygjamlegri en
vanalegur pappír.
— En ekki er sagan sem trúlegust,
—og hver veit þó? — K.
-------o-------
Þakkarorð.
Mig langar til með línum þessum
að ^biðja blað þitt að færa kvenfél.
Geysis-bygðar, “Freyju”, mitt inni-
legasta þakklæti fyrir gjöf þá, $25,
sem mér var aflfent af féhirði þess
félags, Mrs. Agnesi Pálsson. Þetta
sýnir mér ihlýleik og hluttekning í
kringumstæðum mínum, þar sem eg
hefi legið veik síðan eg fékk áfallið
í vetur í brunanum í Riverview Ho-
tel í Winnipeg, og ekki enn búin að
ná svo heilsu, að eg geti unnið. Kom
mér þessi igjöf svo vel, sem nærri má
geta, þó eg lýsi þvf ekki frekar hér.
Bið eg gjafarann allra góðra hluta
að launa fyrir ibróður og systurkær-
leikann hjá þessu félagi, við þá sem
bágt eiga, sem svo oft kemur fyrir.
Jónína Guðmundsdóttir.
Geysir, Man.. 12. júní 1918.
Þakkarorð.
Eg undirskrifaður finn mér skylt
að votta hér með mitt innilegt
þakklæti til allra þeirra, sem tóku
þátt í að leggja fram fé fyrir mitt
"automobile”, sem mér var íært
heim til mín þann 16. júní 1918, að
gjöf fná fólkinu hér í bygðinni. —
Þar sein eg hefi svo lítið getað gert
fyrir fólkið, ])á finn eg nú innilegar
hið mikla vinarþel, sem mér er sýnt
með þessari höfðinglegu gjöf, og er
eg hér ineð af alhug og innileik
þakka fyrir.
Jóhannes Jónasson.
Mountain, N. D.
Hvort er þitt
Þak? ——
Er það þakið með vel máluðum spæni,
vel útlítandi og vatnshelt — sómi fyrir
þig og nágrennið, eða eins og neðri
myndin, orpið og skorpið af vindi og
sól — farvalaust og bert fyrir öllum
veðrum?
Gleymdu ekki þakinu á húsi þínu —
það borgar sig ekki. Strax og seinasti
naglinn er rekinn í spóninn, þá brúk-
aðu umsvifalaust
SHINGLE STAIN
og bættu mörgum árum við endingu
hússins.
STEPHENS’ Shingle Stain er bú-
ið til úr Creosote og olíum sem
sökkva i viðinn og verja hann
fúa. Þú getur valið úr 17 fögr-
um litum. Spurðu harðvörukaup-
manninn hvað það kostar.
G. F. Stephens & Co., Limited
Paint and Varnish Makers
WINNIPEG - CANADA
KAUPIÐ
Heimskringlu
Blað FÓLKSINS og FRJALSRA skoðana og elsta fréttablað Vestur-Islendmga
Þrjár Sögur!
og einn árgangur af blaðinu fá nýir kaupendur. sem senda
oss fyrirfram eins árs andvirði blaðsins. — Fyr eða sfðar
kaupa flestir Islendingar Heismkringlu. — Hví ekki að
bregða við nú og nota bezta tækifærið? — Nú geta nýir
kaupendur valið þrjár af eftirfylgjandi sögum:
“SYLVIA.” “HIN UEYNDARDÓMSFULLU SKJÖL.” “DOLORES.”
“JÓN OG LARA.” “ÆTTAREINKENNIÐ.” “HVER VAR HON?”
“LARA.” “LJÓSVÖRÐURINN.” “KYNJAGULL” “BRÖÐUR-
DÓTTIR AMTMANNSINS.”
Sögusafn Heimskringlu
ÞeMnr baekur fást
keyptar í skrifstofu
Heimskringtn, raetSan
nppUgit hrekknr.
Enginn sdu
koitniðv vitJ póst-
gjtld, vér borgum
þann kostnatS.
Sylvía ............................. $0.30
Bróðurdóttir amtmannsins ............ 0.30
Ðolores ............................. 0.30
Hin leyndardómsfullu skjöl___________ 0.40
Jón og Lára ......................... 0.40
Ættareinkennið....................... 0.30
Ljósvörðurínn...................... 0.45
Hver var hún?....................... 0.50
Kynjagull............................ 0.35
Mórauða músin ...............]..... 0.50
Spellvirkjamir ..................... 0.50