Heimskringla - 04.07.1918, Blaðsíða 1
Opfð á kveldin til kl. 8.30
Þ«gar
Tennur
Þurfa
AfSgerðar
Sjáið mig
DR. C. C. JEFFREY
"Hinn varkári tannlæknir”
Cor. L«gaa Ave. og Maln St.
SLÁTTUVÉLA- OG BINDARA-
PARTAR ALLS KONAR
Blndara Segldðkar, hver - - - - - $7.50
SlAttuvéla Hnlfblöö (25) ------- 1.75
Blndara Hnlfblrtb (25)---------- 1.75
SlAttuvéla Hnffar, hver ----- 2.75
Blndara Hnffar, hver ------ 3.25
Sláttuvéla ogr Ðlndara Guarda - - 0.35
Guard Platea (25) - -- -- -- - 1JS0
Sendi5 eftir vorri nýju VertJskrá.—Vér
seljum allskonar verkfæri og vélparta
THE JOHN F. McGEE C0.
79 Henry Ave., WINNIPIO
XXXII. ÁR.
WINNIPEG. MANITOBA, 4. JÚLI 1918
NÚMER 41
Styrjöldin
Frá Vestur-vígstöívum
Ekki verSur meS sanni sagt, aS
hlé hafi veriS á orustum á vestur-
vígstöSvunum síÖustu viku. Stöð-
ug áhlaup áttu sér stað frá báðum
hliðum og yfir heila tekið veitti
bandamönnum að mun betur á
öllum svæðum. Stærstu orustur
vikunnar voru háðar, er banda-
menn á föstudaginn gerðu áhlaup
á all-stórum svæðum, Bretar á
milli Bailleul og Bethune og Frakk-
ar fyrir sunnan Amblemy. Þrátt
fyrir það þótt um 1 00 mílur væru
á milli þeirra ensku og frakknesku
hersveita, sem nú réðust til sókn-
ar, voru bæði þessi áhlaup ger á
sama tíma og sem vottaði'ljós-
lega, að herstjórar bandamanna
hafi fyrirhugao þau vandlega og
haft eitthvert ákveðið markmið
með þeim. Við atrennur þessar
hröktu bandamenn Þjóðverjana
meir og minna aftur á bak á
báðum svæðunum og tóku um
1,500 fanga af liði þeirra. Vörð-
ust þeir þýzku þarna með öllum
þeim krafti, sem þeir áttu völ á og
létu ekki undan síga fyr en í fulla
hnefana. Sagt er að sigur Breta
í þetta sinn muni gera það að
verkum, að Þjóðverjum reynist úr
þessu sóknin gegn hafnarborgun-
um hálfu örðugri en áður; stöðug
áhlaup þeirra á því evæði í seinni
tíð hafa vafalaust verið gerð með
því markmiði, að veikja viðnám
Breta.
Víðar hefir bandamönnum
gengið vel og þeirra tíðu áhlaup
síðustu viku báru þess fyllilega
vott, að þeim sé engan veginn um
megn að sækja ef svo ber undir.
— Fyrir vestan Chateau-Thierry
gerðu Frakkar og Bandaríkja-
menn áhlaup í byrjun þessarar
viku, tóku um 450 fanga og or-
sökuðu stórkostlegt mannfall í liði
óvinanna. Er sagt, að Þjóðverj-
ar hafi mist þarna heila hersveit
(regiment) og fjölda af byssum,
stórum og smáum. Hermenn
Bandaríkjanna geta sér hinn bezta
orðstír við hverja atlögu, sem þeir
taka þátt í, og kemur alt af betur
og betur í ljós hve ágætlega vel
æfðir þeir hafa verið og hve ötul-
ir og hugprúðir þeir yfirleitt eru.
Á þeim svæðum, sem Canada-
menn halda, var með allra kyrr-
látasta móti síðustu viku. Stór-
skotabyssurnar þegja þó aldrei og
sjaldan láta Canada hermennirnir
langan tíma líða áður þeir hefjist
til handa einhvers staðar.
Vafalaust hafa Þjóðverjar stór-
sókn í undirbúningi, því enn hafa
þeir liðsafla mikinn. En þar sem
allar atrennur þeirra hafa mis-
hepnast hingað til, er engin á-
stæða til að halda, að banda-
mönnum muni ekki takast að veita
þeim viðnám. Tíminn er banda-
manna megin og þegar útslita-
orustur stríðsins verða háðar, hve
nær sem slíkt skeður, munu þeir
uppskera ávextina af því hve var-
lega og gætilega þeir hafa farið.
Sú stefna þeirra, að taka sem
minst á varaliði sínu og búa sig
sem bezt undir seinustu orustum-
ar, getur ekki orðið annað en af-
faragóð.
------o------
Sigrar ítala.
Margar stórorustur voru háðar
á hersvæðum Itala síðustu viku
og fóru Austurríkismenn víðast
hvar halloka. Tóku Italir af þeim
mörg öflug varnarvirki í fjöllun-
um og í einni orustunni tóku þeir
yfir tvö þúsund fanga. Þrátt fyr-
ir ófarir þessar allar eru þó Aust-
urríkismenn stöðugt að sækja hér
og þar, en að svo komnu hafa
flest áhlaup þeirra verið brotin á
bak aftur. Haldið er að Þjóð-
verjar muni ef til vill senda sam-
herjum sínum liðstyrk, enda sýnir
reynslan ótvíræðilega, að látnir
einir um hituna standa Austur-
ríkismenn Itölum langt að baki í
hernaðarlistinni. Aðstoð Frakka
og Breta hefir líka komið Itölum
að góðu haldi, stuðlað til að gera
hermenn þeirra öruggari ákveðn-
ari og trygt sigurvissu þjóðarinn-
ar heima fyrir.
Af seinni fréttum að dæma hef-
ir stjórn Austurríkis tekist að bæla
niður allar uppreistir í landi sínu
— í bráðina að minsta kosti. Lítil
bót hefir þó fengist þar á hinum
mikla vistaskorti og yfir höfuð að
tala virðist útlitið þar hið í-
skyggilegasta. Haldið er, að ó-
farir Austurríkismanna á vígvelli
og harðkostir þjóðarinnar heima
fyrir muni ef til vill leiða til þess,
að Austurríki og Ungverjaland
verði innlimuð þýzka ríkinu og
keisari Þýzkalands svo að sjálf-
sögðu gerður einvaldur yfir öllu
samanl
------o-------
Nýir friðarskilmálar.
Margvíslegar fréttir berast nú
frá Þýzkalandi í gegn um hlut-
lausu löndin og eru sumar þeirra
þannig úr garði gerðar, að lítið
mark er á þeim takandi. Ein frétt-
in segir ræðu utanríkisráðherrans,
er skýrt var frá í síðasta blaði,
hafa vakið óhug mikinn hjá þjóð-
inni og muni ef til vill leiða til þess
að Dr. Richard Kuehlmann verði
að segja af sér. önnur frétt segir
keisarann hafa orðið reiðan mjög
og að í bréfi til kanzlara síns hafi
hann farið ómjúkum orðum um
þessa þingræðu utanríkisráðherr-
ans. Jafnaðarmanna flokkurinn á
svo að hafa notað þetta tækifæri
til þess að láta sterka óánægju í
ljós gegn stjórninni fyrir allar
hennar gerðir í sambandi við
stríðið. Samhliða þessu að heita
má kemur sú frétt að greifi einn,
Roon að nafni, hafi samið ritgerð
mikla fyrir eitt þýzka blaðið, og
lagt þar fram þá friðarskilmála,
sem hann álítur að viðunanlegir
séu fyrir Þýzkaland og keisara-
stjórnina. Skilmálarnir eru meðal
annars á þá leið, að bandamenn
gjaldi Þjóðverjum $45,000,000,-
000 skaðabætur, Bretar láti af
höndum flota sinn og þær nýlend-
ur, er aðrar þjóðir hafi meira til-
kall til, og Belgíumenn láti sér vel
lynda að land þeirra sé innlimað
hinu þýzka ríki. Af þessu geta les-
endurnir séð að skilmálar þessir
muni vera all-harðir, svo harðir-—
að ekki er einu sinni víst að
Þýzkalands keisari sjálfur fáist til
að samþykkja þá!
------o-------
Hvít brauð úr sögunni.
Samkvæmt nýlega birtri reglu-
gjörð Canadastjórnarinnar verður
tilbúningur brauðs úr eintómu
hveitimjöli bannaður eftir 15. þ.
m. Hvorki í brauðgerðarhúsum
ná heimahúsum má þá baka al-
hvít brauð lengur og verða allir
að setja eitt pund af einhverju
öðru mjöli í hver níu pund af
hveitimjölinu. Varðar sekt ef út
af þessu er brugðið og markmiðið
með þessu er að hveitimjöl sé núl
sparað alt sem mögulegt er.
------o-------
Kola rannsókn.
Á borgarráðsfundi hér í Winni-
peg í lok síðustu viku var afráðið
að senda tvo fultlrúa héðan til
kolanámu héraðanna í Alberta.
Eiga þeir að rannsaka tilhögun
alla við kolavinsluma vestra og
komast eftir réttu verði á hinum
mismunandi kolategundum. Kom
í ljós á fundi þessum, að af þeim
150,000 tonnum af kolum, sem
reiknað er að bærinn þarfnist
næsta vetur, eru að eins 25,000
tonn þegar fengin. Lýsti borgar-
stjórinn óánægju sinni yfir því,
hve treglega kolakaupmönnum
gengi að afla borginni nægilegra
kolabirgða og kvað mikla þörf
bráðrar bótar ó þessu. Nú er svo
komið, að allir, sem mögulega
geta, verða að panta að minsta
kosti helming vetrarkola sinna
sem allra fyrst, eða eiga á hættu
að “frjósa í hel” á komandi vetri.
------O-------
Sjúkraskipi sökt.
Frétt sú barst á þriðjudaginn,
að 27. júní hefði sjúkraskipinut
Llandovery Castle” verið sökt
af þýzkum kafbát, um 70 mílur frá
ströndum Irlands. Skip þetta var
leigt af Canadastjórninni til þess
að flytja særða og sjúka frá Eng-
landi til Halifax og er því haldið,
að flestir eða allir, sem um borð á
því voru er því var sökt, hafi ver-
ið Canadamenn og konur. Voru
farþegarnir og skipverjar í alt í
þetta sinn um 258, þar af 14
hjúkrunarkonur og 80 fyrirliðar í
Army Medical Corps deildinni.
Á skipið var skotið fyrirvaralaust,
I
Tveir bræður í hernum.
Jón Davidson
Leifur Alexander Davidson
Bræður þessir eru báðir frá Argyle- bygðinni. For-
eldrar þeirra eru þau Gunnlaugur Davidson og Margrét kona
hans, sem þar búa. Jón, sá eldri, er nú 26 ára gamall, fædd-
ur 18. apríl 1892. Hann innritaðist í 223. herdeildina hér í
Winnipeg í apríl 1 9 I 7^og fór með henni til Englands rétt á
eftir og 12. sept. sama ár var hann sendur til Frakklands. Hef-
ir hann barist þar síðan og er enn ósærður.—Leifur Alexander
sá yngri, er 21 árs að aldri, fæiddur 2. des. 1897. Hann inn-
ritaðist hér í Winnipeg í 61. herdeildina 28. júní 1915, en
var sendur til Englands með 78. herdeildinni í aprílmánuði
1916 og til Frakklands 10. ágúst það sama ár. Hann hefir
særst tvisvar og seinna sinn í orustunni miklu á Vimy hæðun-
um, sem hafin var 9. apríl 1917. Særðist hann þá af byssu-
skoti í handlegginn og lá um tíma á sjúkrahúsi á Frakklandi.
Hann hefir fengið heiðörsmedalíu fyrir hrausta framgöngu á
vígvelli og aðra medalíu fyrir góða hegðan í hernum. Fyrir
nokkru síðan var hann gerður að “Lance Corporal” í vél-
byssudeildinni.
þó það væri vel lýst og með öllum
merkjum, er slík skip hafa. Hald-
ið er að flestir af farþegunum hafi
komist í bátana, en að eins 24
hafa komist í land þegar þetta er
skrifað. Hafði þetta fólk verið
að hrekjast í 36 klukkustundir,
matarlaust að heita mátti og
klæðlítið, þegar loksins brezkt
tundurskip kom því til bjargar.
-------o------
Verkföll í Winnipeg.
Verkfalli vélasmiða og málm-
vinslumanna á verkstæðum C.P.
R. félagsins hér í borginni, er nú
lokið. Fulltrúar iðnfélags þeirra
og ýmsir embætismenn brautar-
innar mættu á Táðstefnu í lok
vikunnar og úrsltin urðu þau, að
verkfallinu var sagt slitið og mönn
unum sagt að taka til starfa aftur.
Maður sá, sem þeir vildu fá rek-
inn, h ddur áfram að vinna hjá C.
P. R. félaginu eftir sem áður.
-------O—‘----
Prentarar gera verkfall.
Um 300 prentarar gerðu hér
verkfall í byrjun vikunnar. Kröfð-
ust þeir kauphækkunar, sem nem-
um $5 á viku — höfðu áður $25,
en vilja nú fá $30. Engir af prent-
urum dagblaðanna hættu þó
vinnu, því um langan tíma hefir
þeim verið goldið það kaup, sem
aðrir prentarar nú biðja um.
------O-------
Kerensky á Elnglandi.
Alexander F. Kerensky, fyrver-
andi stjómarformaður Rússlands,
var staddur á Englandi um miðja
síðustu viku. Lét hann lítið á sér
bera og veitti fregnritum blaðanna
örðugt að ná tali af honum. Mátti
heita að hann kæmi öllum á óvart
og gerði hann fyrst vart við sig á
verkamannafundi — var þar gerð-
ur kunnugur af Arthur Henderson
sjálfum, leiðtoga verkamanna-
flokksins á Englandi. Hélt hann
ræðu á fundi þessum og skýrði frá
núverandi neyðarástandi hinnar
rússnesku þjóðar. Kvað hann Bol-
sheviki stjómina þar hafa leitt
hina mestu ógæfu yfir þjóðina og
hélt því fram, að eina von Rússa
væri, eins og nú væri komið, að
bandaþjóðirnar skærust í le-kinn
þeim til hjálpar. — Haldið er, að
Kerensky muni halda frá Englandi
til Frakklands og svo þaðan til
Bandaríkjanna, og er ekki ólíklegt
að hann eigi eftir að koma hingað
til Canada.
-------O------
Framtíð fslands.
Frá Kristjaníu í Noregi kemur
þessi fregn 1 1. apríl: “Vélafræð-
ingurinn Sætersmoen hélt í gær-
kveldi fyrirlestur um notkun foss-
aflsins í Þjórsá á Islandi af hluta-
félaginu “Titan.” Hann hefir ver-
ið á Islandi í sumar að reikna út
hvað gjöra mætti við þessa
stærstu á landsins; hugmyndin er,
að byggja sex aflstöðvar, sem að
samanlögðu gætu gefið 697,000
hestafla kraft, jafnvel þá mánuð-
ina, sem þjórsá er vatnsminst. Þá
er og áformað að byrja á járn-
brautarlagningu frá Reykjavík til
einhverrar af aflstöðum félagsins.
Leyfi og réttindi eru fengin á hæfi-
legu verði. Vélafræðingur Bam-
er, sem hefir unnið við ríkisbraut-
irnar í Noregi, hefir einnig verið
á (slandi að mæla út legu járn-
brautarinnar. Ræðumaður tók
það fram, að líkur væru til að
Island ætti glæsilega framtíð fyrir
höndum, efnalega. Hann sagði
einnig, að Norðmenn kynnu vel
við sig á Islandi og norskir bænd-
ur mundu hafa þar' nóg að gjöra.
-----—o-------
Fágæt fyrirmynd.
—.... /
Þess er nýlega getið í “Guð-
brandsdalen” að um þær mundir
hafi fyrverandi timbursölumaður
Paul Lundeby komið snögga ferð
til Lillehammer; aðal erindi hans
þangað var að borga skuldir, sem
hann samkvæmt lögum var alls
ekki skyldur að greiða. Fyr-
ir 1 7 árum síðan keypti herra
Lundeby jörðina Efri Randklev í
Ringibu og bygði sögunarmylnu í
Volibru, sem ýmsir keyptu hluti í.
En vegna ýmsra óhappa neyddist
Lundeby til að hætta árið 1904;
komst hann þá að samningum yið
hlutaeigendur, að gæti hann greitt
þeim 30 af hundraði af innstæð-
unni, væri hann laus allra mála í
þessu efni, sem hann og gerði
skilvíslega. En nú er Lundeby
orðinn vel standandi efnalega; og
nú fer hann um kring og borgar
þeim, er áttu hjá honum þessa 70
af hundraði með rentum og rentu-
rentum. Hann hafði með sér litla
bók, vel innbundna. Þar voru inn-
færð nöfn þeirra er áttu hjá hon-
um, ásamt upphæð skuldarinnar,
og svo var eyða við hvers manns
nafn, ætluð fyrir viðurkenningu
hlutaðeiganda nær skuldin var
greidd að fullu. Fólk sem fékk
þá ánægju að rita nafn sitt í bók-
ina, segir svo frá, að þar hafi ver-
ið ýmsar eftirtektaverðar athuga-
semdir frá þeim, er svo óvænt
fengu sér goldna þá skuld, sem
þeir töldu sér tapaða fyrir 1 3 ár-
um. Anthon B. Nilsen hafði bætt
við sína viðurkenningu í bókinni:
“Það væri gleðilegt, ef margir
breyttu eins og eigandi þessarar
bókar.” Nykvist stórkaupmaður
frá Mass, sagði: “Að í þau 50 ár,
sem hann væri búinn að vera við
verzlun, hefði hann ekki þekt
neitt þessu líkt.” Lundeby hafði
gefið það í skyn, að það væri að
nokkru leyti vegna mannorðs síns,
að hann gjörði þetta, en einkum
'var það til þess, að börn hans
gætu verið fullviss um, að hann
hefði verið sannur heiðursmaður,
sem engum vildi gera rangt til
S. M. Long þýddi.
------------------o-------
Úr bréfi.
“Gullíoss fór frá New York þann
19. júnf og beina leið. Með bonuin
fóru eftirfylgjandi far]vegar: Árni
Eggert.sson og dóttir hans Thelma;
Guðm. Vilhjálmsson, erindreki Sam-
vinnufélaganna íslenzku; Stef. Stef-
ánsson, erindreki Sláturféliags Suð-
urlands o.sfrv.; raffræðingarnir þrír
Halldór Guðmundsson, Sigurður
Kjartansson (frá Reykjayfk) og Ei-
ríkur Hjartarson (frá Winnipeg)
með konu og þrjú hönn; kaupmenn-
irnir Jónatan l>orsteinsson með
konu sína, Jón Björnsson (Kristj-
ánssonar), Einar Péturson og K.
Jónsson (Brynjólfssonar); ögmund-
ur iskólastjóri Sigurðsson og þær
mæðgur J. Stefánsdóttir og S. Gísda-
son frá Winnipeg. Er Mrs. J. Stef-
ánsdóttir móðir Þorsteins Gíslason-
ar, ritstjóra Lögréttu og Hjálmars
Gísliasonar í Winnipeg, o. tl. Enn-
fremur fór ungfrú Sigríður Siigurð-
ardóttir, sem dvaldi í Wimnipeg
nokkur ár, og nú síðast f New York.
En hún er systir Geirs skipstjóra
Sigurðssonar í Rvík.— Hér mi tald-
ir allir farþegar, held eg, en kona
skiptjóra varog með honum í þess-
ari ferð.
Stirt gekk eitthvað með ieyfin og
skelfilega rekistefnu tekur það, að
fá að ferðast liieð skipum héðan nú,
og næstum eins mikia að fá að fara
út í skip sem snöggrvast. En það
lakasta var, að ekki fékst leyfi til
að iflytja neina kornvöru, að heit-a
mætti að þessu sinni. En það bætti
talsvert úr skák, að það lestramim,
sem sparaðist við þetta, varð fylt
með þifreiðum, en sem líklega yrðu
þó harðar undir tönnum fátækling-
ana. Er ekki laust við, að manni
finnist það líka liálf-skringilegt að
frétta það að iheiman, að einmitt
nú skulu vera samþykt lög um að-
flutningsbann á mjög mörgu, þegar
ómögulegt er að fá flutt inn nægi-
legt af neinu. — Ekki virtust far-
þegar né skipshöfn neitt sérlega
skelkuð við kafibáta, sem hér hafa
þó orðið skeinuhættir / á næstu
gröisum, enda vonandi að alt hafi
farið með feldu. Þó munu ýmsar
sérstakar varúðarreglur hafa verið
teknar fyrstu dagana.
Lagarfoss rétt að eins ókominn,
farinn frá Halifax.—Man ekki fleira
í svipinn.”
Sigurður Magnússon.
t------------------------
Fréttir frá Islandi.
Eftir “Vísi” 4,—12. júní)
1 danska blaðinu “National Tid-
ende”er sagt frá því, að íslendingur
einn ihafi tekið fiugmannspróf á
flugskóla danska hersins í vetur.
Maðurinn heitir Rolf Zimsen og er
sonur N. Zimsens konsúls, sem hér
var í Reykjavík. Er R. fæddur hér
í bænum og var hér fyrstu ár æfi
sinnar en danskur er hann í báðar
ættir. Hann er 28 ára, gekk í danska
herinn 1910 og varð premier-lauten-
ant 1916. — Blaðið segir, að hann sé
fyrsti íslendingurinn, sem ílug-
miannspróf hafi tekið.
Eiskur var svo mikill ihér inni á
höfninni í gærkveldi, að smáhátar
voru hlaðnir fyrir innan garðana.
Fiskurinn hafði elt síld inn á höfn-
ima og var alveg uppi í yfirborðinu,
svo að það nmátti ausa honum upp.
í mongun (5.) var 9.4 stiga hiti hér
í bænum, 8.5 á ísafirði, 9 á Akureyri,
12 á Grfmsstöðum og Seyðisfirði.
Útflutningsnefnd, til þess að ann-
ast um sölu á íslenzkum afurðum
til útflutnings, samkvæmt samning-
unum við bandamenn, hefir nú
verið sikipuð af stjórnarráðinu. í
nefndinni eru; Thor Jensen, fram-
krvæmdarstjóri; ólafur Benjamíns-
son kaupmaður og Pétur Jónsson
alþingismaður. Nefndarskipun þessi
var auglýst í Lögbirtingarblaðinu í
gær. En auk þess er sagt að á
döfinni sé skipun annarar nefndar
til að annast um innflutning á vör-
um og í ihana tilnefndir: L. Kaaber
konsúll, Eggert Briem frá Viðey og
Carl Poppé kaupmaður.
Stóra-Núps prestakail hefir verið
veitt séra Ólafi V. Briem, sem hefir
verið þar aðstoðarprestur hjá föður
sínum í möi’g ár. Hann var einn
umsækjandi um prestakallið.
Prestskosningin á Sauðanesi fór
þannig, að séra Þórður Olgeirsson
fékk 58 atkv., séra Hermann Hjart-
arson 35 og séra Jósef Jónsson 35.
Kosntngin er ólögmæt og ræður því
veitngarvaldið hvér fær emhættið.
í morgun (8.) var 4.9 tiga hiti í
Vestmannaeyjum 5.5 í Rvík, 6 á ísa-
firði, 4 á Akureyri 5.5 á Grímsstöð-
um og 6.5 á Seyðisfirði.
Á tundurdufli í Kattegat hafði
þrímastrað seglskip eétt farist ný-
lega, sem var á leið hingað til lands,
að því er sagt er í símskeyti, sem
bart hingað í fyrradag.
Finnibogi Jóhannsson lögreglu-
þjónn í Hafnarfirði ihefir tekið upp
ættarnafnið Ardal (dregið af Arn-
arf j arðardölum,).
l>að er ofurlftið að hlýna í veðr-
inu aftur. í morgun (10.) var 6.8 st.
hiti í Vestm.eyjum, 8 í Rvík, 7.6 á
fsafirði, 11 á Akureyri, 7.5 á Gríms-
stöðum og 11 á Seyðisfirði.
Þess hefir orðið vart í Noregi og
Svdþjóð, að eftirspurn eftir útiend-
um peningum hefir vaxið þar mjög
mikið í seinni tíð, og er talið að
það valdi því, að Þjóðverjar séu að
iáta kaupa þá upp. Þykjast menn
vita, ,að þeir ætli að nota þessa pen-
inga handa njósnurum sínum í
Ameríku. Þó halda aðrir því fram,
að þessi eftirspurn stafi af ferða-
manna straumnum til Norðurlanda,
en í ófriðarlöndunum er bannað>ur
útflutningur á peningum (seðlum)
eins og öðrum vörum og því eðli-
legt að það sem til er af mynt
þeirra landa í öðrum löndum, hverfi
þaðan smátt og smátt, — Alveg sér-
staklega er ástatt um rúbluseðlana
rússnesku frá dögum keisarans.
Þeir hafa verið í mjög háu verði, en
eftirspurn eftir þeim hefir aukist
talsvert f seinni tíð, vegna þess að
menn hyggja að að því muni reka,
að rússneska ríkið fyr eða síðar
verði að innleysa þá og er það þá
vís gróðavegur að kaupa seðlana
nú.
Kolaskip kom til landsverzlunar-
innar í gær. Það er stónt barkskip,
sem her fullar 1500 smálestir.
Guðrún Þórðardóttir kona Lárus-
ar Pálssonar læknis andaðist að
heimili sínu hér í bænum í síðustu
viku.
Ragnhildur Björnsdóttir, ekkja
Páls Olaf.ssonar skálds, en systir
séra Halldórs á Presthólum og
þeirra systkina, andaðist síðastlið-
inn fimtudag á Presthólum. Hafði
hún dvalið þar síðasta árið. Hún
var orðin hálf áttræð að aldri og
heilsuveil hin síðari árin. En hana
meinið var heilablóðfall.
Séra Gísli Jónsson frá Mosfelli í
Grímsnesi druknaði í Þverá í Rang-
árvallasýslu í fyrradag.a Hann var
á leið á uppboð í Odda og ætlaði
að ríða ána hjá Hemlu en hafði far-
ið út af vaðinu, lent f ál niðri í ánni
og losnað þar \nð hestinn. Maður
var með honum, en gat enga hjálp
veitt honum.