Heimskringla - 30.07.1919, Page 4
4. BÁAÐSIÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 30. JÚLI 1919
WINNIPEG, MANITOBA, 30. JÚLl 1919
Friðarhugleiðingar.
Veraldarinnar mesta stríði er nú lokið og
friður að samþykkjast og staðfestast af hin-
um ýmsu stríðslöndum. Allir vona að frið-
ur sá verði varanlegur og þjóðirnar úr þessu
fari að færast á það þroskastig, að blóðugar
allsherjar styrjaldir verði ómögulegar. Stór-
þjóðirnar eru að stofna til bandalags með því
markmiði að viðhalda friði og fyrirbyggja
að nokkur þjóð neyðist til að grípa til vopna.
Markmið það er gott og göfugt, þó engan
vegmn sé víst að svo komnu að það verði
framkværtianlegt.
Þrátt fyrir hinar umfangsmiklu friðartil-
raunir stórþjóðanna, eru horfur víða alt ann-
að en glæsilegar. Smástríð eiga sér enn stað
í tutíugu og þremizr stöðum heims, að stað'
hæft var nýlega af brezkum stjórnmálamanni
og sannað með rökum. Virðist eiga langt
í land að sum af stríðum þeim verði útkljáð,
og á meðan svo er borist á banaspjótum,
verður ekki sagt að alheimsfriður sé fenginn.
Hvergi mun útlitið þó jafn ískyggilegt sem
á Rússlandi. Þar hefir átt sér stað alger
skipulags breyting, öll hin gömlu lög numin
úr gildi og öllum fyrverandi menningarstofn-
unum 'kollsteypt., Nýtt menningar skipulag
þar í smíðum, sem ólíkt er öllu sem áður
þekkist. Og í þágu slíks nir háð blóðug inn-
byrðis styrjöld, sem hvað grimdarverk og
spellvirki snertir ekki stendur stór-styrjöld-
inni nýafstöðnu neitt að baki. Hildarleik-
irnir skoðaðir réttlætanlegir sökum þess mikla
mannréttinda málefnis, sem barist sé fyrir.
Og áhrifin hafa náð til annara Ianda. Enda
hafa núverandi valdhafar Rússlands eigi legið
á liði sínu að birta alheimi gieðiboðskap
þeirra stórkostlegu umbóta og gerbyltingar,
sem náð hafi að ryðja sér til rúms í landi
þeirra. Blöðum og bæklingum hefir verið
útbýtt í allar áttir og erindrekar sendir um
heim allan til að útbreiða kenningar bolshe-
vismans og heilla hugi alþýðu í öðrum lönd-
um.
Við þetta væri ekkert að athuga, ef hér
væri um sannar umbótakenningar að ræða og
sem réttlættar hefðu verið í reyndinni. En
einhverra orsaka vegna kynoka valdhafar
Rússlands sér við að skýra umheiminum frá
hvaða afleiðingar umbyltingin hafi haft í för
með sér og í hverju hennar miklu “umbætur”
séu fólgnar.
Hverjar hafa afleiðingarnar verið?
Um það hefir Maxim Gorky, hinn frægi
rússneski rithöfundur og sem bolshevikar hafa
skipað til forustu með mentamálum þjóðar-
innar, nýlega þetta að segja:
“Það skelfir mig mest að umbyltingin sýn-
ir engan vott andlegrar endurvakningar hjá
þjóðinni. Hún virðist ekki miða að því að
gera menn ráðvandari til orða eða verka,
virðist ekki upphefja þá til meira sjálfstrausts
eða meðvitundar um siðferðilegt gildi verka
þeirra. Að mmsta kosti veitir maður ekki
eftirtekt, að unbyltingin hafi vekið þorra
fó'ksins til gleggri samfélagsmeðvitundar.
Mannslífin eru metin jafn lítils og áður.
Venjur og hættir hins fyrverandi keisaraveld-
is eru ekki að hverfa. “Nýju yfirvöldin” eru
sek að grimdarverkum engu síður en þau
gömlu og öllu hrottalegri og harðvítugri.
Hinir nýjti embættismenn þiggja mútufé alt
eins auðveldlega og eru fúsir að hneppa menn
í varðhald í stórum hópum alveg eins og áður.
Hið ijóta og skuggalega, sem einkendi liðna
tímann, er engan veginn horfið í nútíðinni.
Alt þetta er ills jyiti. —”
Þannig kemst þessi víðfrægi rithÖfundur
að orði um imbyltinguna rússnesku, og engir
munu efa hann tali af góðri þekkingu. Og
har sem bolshevisminn hefir reynst þannig í
Rússlandi, eru lítil líkindi til hann reynist bet-
ur í öðrum löndum.
Alhr rétthugsandi menn þrá sannar umbæt-
ur og Ijá fúslega öllu fylgi, sem líklegt er að
leiða t:l meiri framfara fyrir mannfélagið og
æðri ancflegrar þroskunar. En framsóknar- I
þrá þeirra er miðuð við þá sannreynd, að ekk-
ert gott geti leitt af að lagt sé út í það ómögu'
Iega og óframkvæmanlega.
Allar umbætur, af hvaða tagi sem eru,
verða að miðast við það, að hér á jörðinni
verða mennirnir jafnan menn en ekki engiar.
+*— - —-—i— - ... ...4
Sjálfstæðis íslands
minst á Kúba.
1 blaðinu “La Noche”, sem gefið er út í
Havanna á Kuba, stóð fyrir nokkru ritstjórn-
argrein, sem heitir: “Nýtt ríki: Island”.
Segir meðal annars svo í þeirri grein:
“Konsúll Dana í Havanna hefir alveg ný-
skeð tilkynt að danska stjórnin hafi viður-
kent ísland sem fullvalda ríki, samkvæmt
lögum, er þing beggja ríkja, Islands og Dan-
merkur, hafa samþykt.
Margir af lesendum vorum hafa sennilega
eigi veitt þessari tilkynningu neina athygli, en
mörgum öðrum mun þykja þetta stórmerk
tíðindi og glögg merki um það, að nú sé að
renna upp hin mikla öld frelsis og lýðstjórnar
um allan heim.”-----
Síðan minnist blaðið á hinar 14 greinar
Wilso.n og telur það alveg í samræmi við þær
að Island skuli nú hafa fengið fullveldi.
“En heimuriníi hefir sjaldan eða aldrei
þekt neitt dæmi þessu líkt, að lítils metin ný-
lenda, þar sem að eins eru nokkrir bændur,
skuli vera sjálfstætt og fullvalda ríki með
samþykki stórveldanna. Og það, sem kem-
ur oss þó allra einkennilegast fyrir sjónir,
þegar þess er gætt hvernig ástandið var fyrir
, stríðið, er það, að lýðveldið ísland vill eigi
hafa neinn gunnfána og sýnir með því, að
hið nýja Iýðveldi hatar styrjaldir sem hinn
versta óvin mannkynsins og menningarinnar,
sem heimurinn stærir sig af. <
Vér samgleðjumst Islandi, hinni frjálsu
þjóð, sem eigi þekkir bölvun kúgunarinnar.
Og vér færum dönsku stjórninni og dönsku
þjóðinni heillaósk fyrir hinar heilbrigðu skoð-
anir og frjálslyndi þeirra.”
Morgunbl.
+•----------------------- ■+
Fáfræði rússneskrar
alþýðu.
Eitt enska blaðið hér birtir nýlega all-ítar-
lega grein um ástandið í Síberíu. Grein sú er
samin af presti, sem um langan tíma dvaldi
þar í Iandi með hersveitum bandamanna og
var sjálfur sjónarvottur að öllu, er hann
skrifar um. — Einn kafii g:einar hans hljóðar
sem fylgir:
“Hafa verður þrent í huga til þess að geta
skilið Rússland. Fyrst og fremst hina miklu
fáfræði stórs þorra þjóðarinnar, þar frá sjö-
tíu til áttatíu hverra hundrað íbúa eru með
öllu óupplýstir; í öðru lagi hið langvarandi
fyrirkomulag bygt á ránum og prettvísi, og í
þriðja lagi hina miklu niðurhrörnun og eymd,
sem stjórnarbyltingin hafði í för með sér.
Tötralegur hermaður stóð á verði fyrir
framan skotfærabúr í Vladivostok. Stutt
samræða við hann leiddi í ljós, að hann hélt
England og Frakkland vera samföst lönd.
Tyrkland hélt hann í þriggja daga vegalengd
“fyrir handan hæðirnar” og sannfæring hans
var að Rússar hefðu borið sigur úr býtum í
stríðinu við Japana. Þannig eru fhugmyndir
hvers algengs rússnesks bónda um það, sem
liggur langt fyrir utan takmörk hans eigin
þorps. I annað sinn kom einn manna okkar
inn fyrir svæði það, er vörður þessi átti að
gæta, og nam þar staðar til að taka upp
spítu. Á sama augnabliki réðist vörðurinn
að honum með brugðnu byssuspjóti og skip-
aði honum að sleppa spítunni og hafa sig all-
an á brott. Virtist sem vörður þessi væri
hinn skylduræknasti við störf sín. — Fyrir 10
rúblur var þessi sami maður þó fús að snúa
að þér baki og leyfa þér að hafa á brott
maskínubyssu, stórbyssu eða hvað annað sem
væri.
Einn af fyrirliðum okkar kom að rússnesk-
um hermanni sofandi á verði, tók riffil hans
og lagði svo leið sína inn í skotfærabúrið.
Þegar hann hafði séð alt er hann fýsti að sjá,
kom hann út aftur og skilaði riflinum án þess
að raska ró varðarins hið minsta. Fékk þá
ekki stilt sig um að vekja hann og segja hon-
um “ögn til syndanna”. — Allur agi nú
svo stórkostlega niðurbældur að nærri mátti
ótrúlegt heita. Með stjórnarbyltingunni
hafði fengist frelsi, um stundar sakir að
minsta kosti; skifti engu hvaða flokkur komst
ti! valda, hverjum einum Ieyfðist að Maga
framferði sínu eftir eigin geðþótta. Leiddi
þetta til víðtækrar siðspillingar og niður-
hrörnunar. Hvemig sem skipulag kemst á
aftur, mun útheimta langan tíma að menta
þjóðina til viðurkenningar á sky'dum sínum
og ábyrgð.
Fákunnandi og lítt þroskuðu fólki er jafnan
gjamt til að láta heillast af þeim, sem síðasta
hefir orðið, þetta gerir grein fyrir hinum
mörgu og oftast sfcyndilegu umskiftum á
Rússlandi, sem óskiljanleg hafa verið Vestur-
heimsþjóðum — þegar íbúarnir með skríls-
legu æði hafa snúist gegn einhverjum einstak-
ling aðra stundina og hina stundina svo felt
! höfug tár yfir öliu saman. Þetta gerir grein
fyrir hinum miklu áhrifum og góða gengi
“gutlarans” Kerensky, er uppbyggilega hug-
mynd átti ekki til og skorti alt hugrekki —
fékk þó um tíma hafist til hárra valda með
eintómum krafti mælsku sinnar.
Enskur verkfræðingur, sem dvaiið hefir í
Síberíu í síðas^ liðin Lmtán ár og haft þar
umsjón með tveimur eirnámum skamt frá að-
aí-járnbrautinni, varð tilneyddur að loka ann-
ari þeirra þegar stríðið skall á. Verki við
j aðra námuna hafi hann þó getað haldið á-
! fram og þrátt fyrir allar by;tingar síðustu
tveggja ára. EnT>að útheimti mikla áreynslu
og aðaliega varð honum þetta mögulegt af því
að verkamenn hans þektu hann. Mánuð eft-
ir mánuð varð hann að halda yfir þeim ræður,
stundum tvisvar á viku. Hvað eftir annað
voru þeir reiðubúnir að fara, lögðu fram allar
mögulegar kröfur og höfðu í hótunum að
hrifsa námuna á sitt vald, eftir að hafa verið
heillaðir af einhverjum æsingamanni og post-
ula Bolshevismans. En verkveitandi þeirra
stefndi þeim saman, ræddi ágreiningsefnið við
j þá frá öllum híiðum og með mestu þolinmæði
i sem væri hann að tala við hálfþroskaða ung-
j linga. Þannig fékk hann haldið þeim kyrr-
um og verkið við námu þessa hélt áfram í
lok síðasta aprílmánaðar. Dæmi þetta nægir
að sanna, hve aíar örðug úrlausnar öll vanda-
mál Rússlands verða, þangað til ábyggileg
stjórn kemst þar til valda er þjóðin finnur sig
knúða að hiýða.
Það var sökum valdaskorts að stjórn Lvoff
prinz og Kerensky hrundi til agna. Eins og
“litla amma stjórnarbyltingarinnar” sagði:
j “Ef bandaþjóðirnar hefðu sent 50 þúsund
j hermenn undir eins í byrjun, hefði þjóðstjórn
j á Rússlandi aldrei verið' koilsteypt”. Vafa-
| Iaust hefir hún þar alveg rétt fyrir sér, því ein-
j göngu sökum liðsskorts, sökum vöntunar á
nægilegum herafla varð fall rússneskrar þjóð-
stjórnar óumflýjanlegt. Á pappírnum var
stefnuskráin hin æskilegasta, en ekkert afl til
á bak við svo hægt væri að framfylgja henni.
Má með sanni segja að engin “yfirvöld”
hafi þá verið til í landinu.
Landeignamálið var helzta tilefni hinna
miklu vandræða. Það var enn umfangs-
meira en kröfurnar eftir borgarlegu frelsi,
frelsi til þingstjórnar, málfrelsi og ritfrelsi o.
fl. — Landeignamálið var bóndans mestsv á-
hugamál, því það fékk hann sfdlið. Hvað
Síberíu snerti var þar þó töluvéít á annan veg
háttað en í öðrum pörtum Rússlands. Sí-
beríu bóndinn átti jörð sína sjálfur. Hann
hafði grætt fé á meðan stríðið stóð yfir. Vart
mun finnast í Síberíu sá bóndi, sem ekki á í
kistuhandraðanum nokkrar fornar rúblur.
Skipanirnar frá Petrograd voru þar ekki eins
strangar. Síbería var í meiri íjarlægð frá
höfuðborginni. íbúarnir þar höfðu meira
frelsi.” •
Næst Iýsir greinarhöfundurinn Síberíu all-
ítarlega og sýnir með samanburði fram á að
öllu sé þar á mjög ólíkan veg háttað og þeim
hluta Rússlands, sem Evrópu tilheyrir. Efna-
legt sjálfstæði þar almennara og alþýðan yfir-
leitt á hærra þroskastigi, þó mörgu sé þar á-
bótavant enn þá. Þess vegna hefir bolshe-
visminn ekki náð að festa þar eins djúpar
rætur.
Eftir þessu að dæma þróast bolshevisminn
bezt í þeim löndum, þar sem fáfræði ríkir og
alþýðan er á sem lægstu þroskastigi.
Hvað skyldu íslenzkir Bolshevikar hér í
Canada, sem hylla gerbyltinga kenningarnar
rússnesku eins og háfleygar og göfugar
“hugsjónir”, segja um slíkt?
4----------------—-----------------—-*
Vængjaðir vagnar.
sjá vísindamanna. Einu sinni var
vegalengdm milli stúlknanna við-
lika og frá Seyðisfirði til Færeyja,
og í þessari fjarlægð gat önnur
stú'kan fengið hina til að sjá það
sama, sem hún sá. Önnur sá “eins
og í huga sínum” það sem hiri
hafði fyrir augum. Það eru 11 at-
huganir, sem gera það mjög líklegt
að samskynjun manna geti átt sér
stað, þó að annar sé á Englandi en
hinn á Nýja Sjálandi. En það er'
nálægt því, sem Iengst getur orðiðj
manna á milli á jörðu hér. Yfir-j
leitt virðist fjarlægðin ekki koma
hér svo mjög til greina, og sam-
skynjun getur komist á, jafnvel þó
fjarlægðir himingeimsins séu áí
milli. Þegar Swedenborg hyggur, |
að hann sé staddur “á hæð nokk-i
urri í andaheimnum, og sjái “en»'
,1” í u *___: i * °
Dodd’s Kidney P.IL, 50c askjan.,
eða sex öskjur fyrir $2.50, hjá öll—
um lyísöium eða irá
The DODD’S MEDICLNE Co.
Torcnto, Ont.
il” svífa í loftinu, þá er sú skýring, j na 8 til Danxncrkuh Menn mó>
að þetta sé ekki annað en hugar- ! mæItu og senclu Þænars'krár, en a!t
burður spekingsins, svo langt frá! kmn fyrir ekki. 1889 var danska af-
L , '-íi ® ; numin sem namsgrem og eftir urðu
Þm ao vera vismdaleg, að hún einar ]>rjár—fjórar stundir á viku
styðst í rauninni ekki við neitt í kristinfræði, þar sem dönskunni
annað en hugarburð. Hin vís- var haldið sem kenslumáli. Lands-
indalega skýring er sú, að þarna!!nenn reyndu prásinnis að fá stjóm
hafi samskynjun átt sér stað> !na til a« breyta ],essu fyrirkomu-
c i i , ,. . ’ ,lagi. Þeir sendu ávorp og bænar-
bwedenborg hafi seð i huga ser ,jskrár inn í ríkisþing, landsþing og
það sem maður á öðrum hnetti! fylkisþing og kirkjuþing, þar sem
leit augum. Og alveg sama máli j beðið var um tvær kenslustundir i
er að gegna, þegar gríski speking-1 dönsku' Pa® væri ómögulegt að
í l , ,, 7 i ken?'« kris'tin fræði á dönsku, ef eng-
urinn ser í huga smum Zeus vera . ... , , , . : _
, c , r _ . m donskukensla væri. Enda varð
a tero i vængjuðum vagni. Slíkt iika a?j Verja miklu af kristinfræðis—
verður fyrir skynjunarsámband við kensluVini í dönskukenslu. Stjórnin
einhvern á öðrum hnetti, þar sem ■ daufheyrðist alveg við þessum rétt-
eiga heima þessar verur, sem Grikk- mætu og aíar h'tilþægu tilmíelum;
ir kölluðu guði. jliau ur®u ?* ,dns tfl Þef' að J?n
, _ ° . , | gerði alt til þess að utryma hka
Pao er talsvert þýðingarmikill dönsku kristinfræðis kensiunni.
fróðleikur, sem hér ræðir um. \ Enda varð henni víða ágengt í því
Þegar menn vita þessi sannindi efni-
saman, munu þeir geta fært sér í
nyt afi, sem verður mjög mörgum'
sinnum áhrifameira en rafmagn. j
Er þetta ekki sagt, af því eg búist lag”, sem ekthvað 6000 féiagar voru
svo mjög við þvf, að menn muni 1 fyrir stríðið. bað hefir stofnað
hyggja það rétt vera. En þó vil um 160 /‘önsk hók:|SÖfn víðsvegar
eg biðja menn ao íhuga svohtið; 1(10 000 j)in(ii. í>að hefir lítbýtt 210,-
sögu þekkingarinnar á jörðu hér. 000 hókum og smáritum til heimi!-
Það er varla of sagt, að öllu öðru anna, þ. e. a. s. 8800 bókum á hverju
hafi menn verið fljótari til að trúa.j ári ásaTnt ^6-000 landsuppdráttum og
heldur en einmitt því sem sannast myndum' .St6rtJ1?1al:™k“8rfn_e:r f
i X11 . . fnndarhusinu Folkehjem í Opin-
var og merkilegast. Ollum oor-
um hefir verið auðveldara að fá
menn í lið með sér, heldur en þeim,
Til varðveiziu móðurmálinu, sem
var svo mikil hætta búín af öllum
þessum árásum, stoftiuðu Suður-Jót-
ar 1880 “Hið danska málverndarfé-
eyri. 1892 var ennfremur “Skólafé-
lagið” stofnað (i því voru 9000 félag-
ar fyrir 'stríðið), og hefir það stutt
sem fundið höfðu hin merkilegustu um ’6000 un^a Suður-Jóta t!i naTns 1
sannindi. Og fram á vora daga er Danmorku’ eink.um á Iyðsk<51um ogr
j alt annað start betur þakkað og er tekið franii bannað að senda í út-
i Iaunað, heldur en það sem vand- lenda skóla. En foreidrar hafa marg-
fengnastir eru menn til að vinna. j
En í dag þarf ekki annað en upp-
ir sjálfir veitt bömum sfnum tilsögn
í móðurmáilinu — eftír föngum.
• *. , | Ekki allir gátu þó iþetta, og öðrum
gotvanirnar, sem gerðar eru, seu' w bannaB'að kenna börmmum. 1>6
nogu storkostlegar, til þess að vitr- þeir gerðu það ókeypis. JafnveT
ingurinn fái að heyra þetta hið kensla í leikfimi og vefoaði var
fornkveðna gagnvart slíkum bönnuð Dönum.
Eyrstu árin eftir 1864 voro almarg-.
danskir prestar og kennarar f
Þú ert vitlaus, þú ferð
mcTnnum:
með rugl.
var það sagt við Anaxagoras, þeg
Langt aftur 1 fornold Norður-Sljesvfk, en þeim fækkaðí
_ _ óðum. Flestir prestar eru nú I>jóð-
ar hann leitaðist við að kenna1 verjar, og eru fæstir þeirra vel fær-
mönnunum að sólin væri ekki guð, iir f dönskunni, þó að þeir séu skyld-
heldur glóandi efni. Hér um bil1 ir ti! þess að prédika á donsku ^ast
onnn - , ,* , i h var. Margir þeirra hafa einnig-
arum siðar var^það sagt ^af j Htett sár frarn j stjórnmál, svo sem
1 hinn illræmdi séra Chr- Jcohsent
(áður í Skeíhekk). Einkum lögðu
margir þeirra sig í líma til þess að'
koma á þýzkri guðisþjónustu í sem
flestum kirkjum og jafnframt að
fækka dönsku guðsþjónustunum.
Eins tældu þeir mörg fermingarbörn
til að láta ferma sig á þýzku. Margt
af þessu tókst þeim. Ekki var feng-
ist um það, þó að þýzku guðsþjón-
usturmar yrðu illa sóttar, þó að
margir þeir, sem fengnir voru til a<V
“biðja” um þýzka guðsþjónustu,.
kæmu aldrei í kirkjuna, enda vonr
sumir þeirra henni fráhverfir.
(Framh.)
-------o-------
Brúnó, þegar hann lét í Ijós þá
stórmerkilegu hugsun, að það væri
ekki einungis til ein sól, heldur ó-
endanlega margar sólir og sólkerfi.
Og enn á vorum dögum fær sá
maður að heyra þetta ár eftir ár,
sem fært hefir út á stórkostlegan
hátt þekkinguna á $tjörnunum (ein-
mitt á þann hátt sem búast mátti
við af jarðfræðingi), og fundið þá
leið, sem liggur til fullkomins sig<-
urs fyrir vísindin og lífið.
Helgi Péturss.
------o------
Suður-Jótland
The Gods of Asgard and Oiymps,
> and the spirits of spiritists, are in-
habitants of other planets.
Forn spekingur segir Zeus (hinn gríski guð)
knýi fram vængjaðan vagn (ptenon harma
elaunon). Menn hafa haldið að slíkt væri
nokkurskonar Iíkingatal, og fram á 19. öld
var slík vanþekking afsakanleg. En nú á 20.
öldinni, þegar menn eru farnir að knýja
“vængjaða vagna”, yf;r Atlantshafið, virðist
tími kominn til að fara að skilja það rétt
hvað það er, sem um ræðir. Einnig Sweden-
borg talar um engil á ferð í vængjuðum vagni
í andaheimnum, og í eitt skifti kveðst hann
jafnvel hafa séð í andaheiminum loftskip með
seplum (7 minnir mig).
Til þess að skilia hvernig slíkar sögur eru
til komnar, þarf ekki annað en að íhuga nógu
vel samskynjunartilraunir eins og þær, sem
eg hefi sagt frá í Lögréttu einu sinni. Stúlk-
ur tvær gerðu þess konar tilraunir með um-
V.
Eftir 1870 fóru Þjóðverjar að
“þýzka skótana í Suður-Jótlandi.
Fyrst framan af voru það einstakir
þýzkir kennarar, er leituðust við að
lauma þýzkukenslunni inn, og á
stöku stöðum háðu þýzklundaðir
Suður-Jótar, — hinir svo kölluðu
“Heima-Þjóðverjar” — um þýzku-
kenslu og þýzka guðsþjónustu. Fyrst
var stjórnin nokkuð treg, en 1871 var
þýzkukenslu komið á í öliub alþýðu-
skólum í Norður-Sljesvík, og fjölgaði
stjórnin þýzkustundunum jafnt og
þétt, þrátt fyrir megna mótstöðu i
flestra landsmanna. Lftið gagr
varð þó að þessarfkenslu, enda vorr
kennararnir fæstur svo vel að sér í
þýzku, að þeir gætu kent hana. En
samt sem áður hélt stjórnin áfram
að fjölga þýzkustundunum og
fækka þeim dönsku. Jafnframt var
öllum skólum einstakra manna og
lýðskólanum í Rödding lokað, og
það var bannað að senda börnin til
v Mannfallið í Heims-
styrjöldinni
Einn af yfirhershöfSingjunr
Bandaríkjanna, March, hefir nú
lokiS rannsóknum um hve margir
hafi falliS í heimsstyrjöldinni.
NiÖurstacSan hjá honum er þessi:
Alls hafi falliS nálægt 7,354,,000
manns. Af þeim eru 1,100,000
ÞjóSverjar, 1,305.000 Frakkar,
706,000 Eno-lendingar , 460,000
ítalir og 50,000 Ameríkumenn.
Brjóstmyndin. af Sir Wirlfid Laur-
ier, eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson,
kostar $1.00. Myndin fæst keypt í
Winnipeg hjá útgefanda, 732 McGee
St., Finni Johnson, 698 Sargent Ave-
og Hjálmari Gíslasyni, 506 Newton
Ave. — Einnig hjá útsölumönnum
í bygðum Islendinga.