Heimskringla - 10.09.1919, Side 4
HEIMSKRINGLA ( Stotnuö 1S80) Kemur út á hverjum MiSvlkudegl Otsefendur og elgrendur: THE VIKING PRESS, LTD. Ver’Ö blaUsine í Canada og Bandaríkj- unum $2.00 um áriti (fyrirfram borgaí). g'ent til fslands $2.00 (fyrirfram borgat5). Allar borganlr sendist rá’Rsmanni blaTJs- Ins. Póat eða banka avísanir atílist tll The Viking Preas, Ltd. Ritstjóri: GUNNL. TR. JÓNSSON Skrllatofa: 72« SHERBHOOKE STREET, VVINMPEÍÁ P. «. Rox 3171 Talalml Oarry 4110
WINNIPEG, MANITOBA, 10. SEPT., 1919.
Friður á jörðu.
Skáldin hafa kveðið svo undur fallega um
frið á jörðu. Kferkarnir hafa prédikað um
hann af stólunum. Siðmenningarfrömuðirn-
ir hafa hampað honum á lofti. Og sjálfir her-
valdshöfðingjarnir hafa sungið honum ævar-
andi pris. Fnður á jörðu og velþóknun yf-
ir mönnunum , var og er biblíukenningin.
Hún hljómar dýrðlega.
Vaxandi heimsmenning átti að færa ævar-
andi frið. Styrjaldir og hjaðningavíg voru
aðeins skortur á siðmenningu, og 20. öldin,
öld siðmenningarinnar, átti að enda þennan
harmaþátt mannkynssögunnar.
En hvað skeður ? Alheimsstríð, blóðugra
en heimurinn hefir áður þekt, meiri hörmung
ar og siðmenningarleysi en endranær á styrj-
aldartímum. Þetta er þá ávöxtur alls frið-
arhjalisns, siðmennmgarmnar og bróðurkær-
leikans, sem átti að vera orðinn alríkjandi.
Nú vitum við það, og heimsstyrjöfdin hefir
leitt það svo átakanlega í ljós, að hinar ytri
framfarir eða heimsmenning er ekki grund-
völlur til varanlegs friðar. Heimsstyrjöldin
sýnir, að þrátt fyrir hina marglofuðu ytri
menning og hinar glæsilegustu vísindalegu og
verklegu framfarir, bárust helztu menningar-
þjóðirnar á banaspjótum eins og siðleysingjar
forntíma.nna. Og þetta stafar hvorki af af-
vegaleiddri ættjarðarást eða ást á menning-
unni og hugsjónum hennar, heldur hreint og
beint af metnaði og samkepni, eða valda- og
drotnunargirni þjóðanna. Þetta lætur kanske
illa í eyrum, en samt er það satt. Þjóðverjar
og Bretar höfðu kept um heimsveldið svo ár-
um skifti, í sýnilegu bróðerni þó; en þeir, sem
dýpra lásu niður í kjölinn, vissu að þessum
þjóðum hlaut að lenda saman fyr eða síðar.
Og þegar Þjóðverjar héldu að þeir ættu leik á
borði, drógu þeir brandinn úr slíðrum og all-
ur heimurinn lék á reiðiskjálfi.
Nú er friður kominn á að nýju. Verður
hann varanlegur?
Vissulega ekki, ef heimsmenning sú, sem
ríkti fyrir stríðið, verður ríkjandi í framtíð-
inni. Kristindómurinn með boðorðið um að
elska náungann eins og sjálfan sig, hefir nú
verið prédikaður fyrir mönnum í nærfelt
tuttugu aldir. En hvað hefir það stoðað?
Voru það einmitt ekki kristnu þjóðirnar, sem
léku þennan blóðuga hildarleik? Jú. Voru
það ekki mestu menningarþjóðirnar, sem
hjuggu hver annari holundarsár? Jú. Þetta
sýnir ótvíræðilega að það nægir ekki að pré-
dika fagra siði og fagrar hugsjónir, heldur
vcrður beinl'nis að ala menn upp til að rækja
þær. Það verður að kenna þeim tökin á
sjálfum sér og sínum innra manni, og innræta
þeim jafnframt að þjóna æðri markmiðum en
valdafýkn og Mammoni. Verði þetta, er
grundvöllurinn til varanlegs friðar lagður.
“Þá verður jörðin yrkt af ótal höndum,
áður sem til að myrða voru dæmdar,
blóm verða grædd á berum eyðisöndum,
búið í hag til þjóðnytja’ og sæmdar;
ógrynni fjár, sem eyddi gæfu’ og friði,
alt verður heill og menning þá að liði.
Vísindi’ og listir fá sín fyrst að njóta
friðarins undir björtum hlífiskildi, —
þá mun þeim fjölga’, er brautir nýjar brjóta,
bágindum eyða samúð, rækt og mildi. —
Heill þeim, er alheimsfriðar fánann hvíta
fyrstir á jörð við himinn blakta líta!”
Kveður góðskáldið Guðm. Guðmundsson!
En hætt er við að þjóðir þær, sem halloka
hafa farið í þessum ófriði, fari ekki að inn-
ræta ungu kynslóðinni friðarboðorðið og
bróðurkærleikann til sigurvegaranna. Lík-
indi frekar til að hatri og hefnd verði sáð í
hjörtu og huga ungdómsins, og uppskeran
verði, sem áður — stríð.
Herguðinn er ennþá við völdin í heiminum,
og hann brosir þegar klerkurinn endurtekur
gamla hjalið um frið á jörðu.
Dómsmálaráðg j af inn
og dýrtíðin.
Flestum mun hafa komið á óvart svarið,
sem dómsmálaráðgjafi fylkisins, Hon. Thos.
H. Johnson gaf við samvinnubeiðni formanns
cýrtíðar rannsóknarinnar, Hon. Hugh A.
Robsons, í síðustu viku — samvinnu, sem
mi3a átti að því að lækka verð á lífsnauð-
synjum hér í fylkinu og draga fyrir lög og
dóm þá er sekir fyndust um ránverð og okur.
Eins og hljóðið hefir verið í fylkisbúum
undanfarið, og eins og dýrtíðin hefir verið af-
skapleg, mundi flestum hafa fundist það sjálf-
sagt að dómsmálaráðgjafinn tæki tveim hönd-
um við samvinnutilboðinu og léti alla þá
krafta, sem hann hefði yfir að segja, til að
vinna í þá áttina sem um var beðið, og það
undireins og óhikað. Framkvæmdavald lag-
anna er í hans höndum og á hans herðum hvíl-
ir það að líta eftir lögum og rétti í Manitoba
fylki.
Hér mátti engan dráttur á verða — hver
stundin var dýrmæt.
En dómsmálaráðgjafinn leit öðruvísi á mál
in en aðrir menn. Hann fór undan í flæm-
ingi, kvaðst ekki hafa séð lagasamþykt þá,
er hér ræddi um, og væri bezt að tala um
þetta síðar meir. Fulltrúar hinna ýmsu fvlk-
isstjórna yrðu í Ottawa um miðjan mánuðinn
— þá mætti ræða þetta nánar — ekkert
lægi á.
Þegar þess er gætt að hér lá mesta áhuga-
mál fylkisins fyrir — dýrtíðin, sem allir bölva
og dómsmálaráðgjafinn líka, hefði mátt búast
- við að jafn lítilfjörlegt atriði og það, að hafa
ekki séð lagasamþyktina, stæði ekki í vegin-
um fyrir framkvæmdum. Lagasamþyktin
hefði getað verið símuð til hans samdægurs
eða komið með pósti á þriðja degi.
1 sannleika bágborin afsökun.
Beiðni Robsons var eins sanngjörn og hún
gat verið. Hann bað um að fylkislögreglan
yrði látin rannsaka matvælabirgðir og draga
þá fyrir lög og dóm, sem grunsamlegir þættu
um ránverð eða valdandi væru á óleyfilegan
hátt að dýrtíðinni, og að saksóknari væri
skipaður, er flytti málin fyrir rétti. Viðtöl
og fundi kvaðst Robson fús að hafa við fylkis
yfirvöldin hvenær er óskað væri. Svo ekki gat
það verið til fyrirstöðu að samráð stæði ekki
til boða. Nei, dómsmálaráðgjafinn hefir
enga gilda afsökun að færa fyrir afstöðu sinni
í þessu máli.
Hvað gera stjórnir hinna fylkjanna? Sjö
þeirra hafa orðið við tilmælum Robsons og
heitið honum öllu því fylgi, sem í þeirra valdi
stæði. Engin hefir komið með viðbárur lík-
ar því, sem dómsmálaráðgjafi vor kom með,
ekki einu sinni stjórnin á Prince Edward Is-
land.
Nei, dómsmálaráðgjafi Manitoba fylkis er
öðruvísi en aðrir. Hann er svo sem ekki að
flana að neinu óðslega — ekkert liggur á! !
En á sambandsþingi heyrist annað hljóð í
strokknum. Þar skammaði D. D. McKenzie
stjórnina nýlega fyrir hvað seint gengi með
dýrtíðarrannsóknma, kvað þjóðina vera að
sligast undir klifjum dýrtíðarinnar, og heimt-
aði að rannsókninni yrði hraðað sem mest að
hægt væri. En ætli að hann hafi vitað að
flokksbræður hans, er skipa sljórn Manitoba
fylkis, er einn þröskuldurinn í veginum?
Vafalaust ekki.
Vér höfum til þessa haldið að Hon. Thos.
H. Johnson væri atkvæðamesti og nýtasti
maðurinn í Norris stjórninni, en vér förum að
efast um það, jafnvel þó hinir ráðgjafarnir
séu ekki upp á marga fiska. Enn getur hann
þó bætt fyrir sér. Robson er nú kominn hing-
að til borgarinnar og byrjaður hannsóknir sín-
ar hér. Gangi nú dómsmálaráðgjafinn án
frekari vífilengja í lið með honum og veiti
honum alt það fulltingi, sem í hans valdi
stendur, verður fyrirgefin fyrri framkoma
hans, og hann ávinnur sér þakklæti almenn-
ings.
Sjálfs sín vegna vonum vér hann geri það.
-------------------------------------*
MacKenzie King.
MacKenzie King hefir loksins náð útnefn-
ingu til sambandsþingsins. En löng varð hon-
um leitin og vesælt er kjördæmið og á út-
kjálka landsins. I Ontario, heimafylki sínu,
gat hann hvergi náð sér í kjördæmi, sem var
honum sigurvænlegt. I Quchee gat hann
komist að en þorði það ekki, vegna þess að
hann óttaðist að sér yrði brígslað um að hann
væri kosinn af náð Frakka. I New Bruns-
wick hafði hann augastað á hinu auða sæti
Frank B. Carvells, en taldi sér tvíiýnt um sig-
urinn, og hætti því við. En úti á Prince Ed-
ward eyju hafði gamall skröggur hrokkið upp
af, sem þingsæti hafði haldið undir merkj-
um Liberala. Og í það sæti hugðist nú nýi
leiðtoginn að hlamma sér, því eyjarskeggjar
höfðu nýlega hrundið conservativum af stóli
þar á eynni, og hin nýmyndaða liberal stjórn
mundi auðvitað reynast honum haukur í
horni svona á tímum neýðarinnar. Hann af-
réð því að velja þetta kjördæmi sem framtíð-
ar óðal sitt; bað því um útnefningu og hlaut
hana, og má því gera ráð fyrir að í október-
lok slagi svo höfðinginn inn þingsalinn í Ott-
awa sem réttkjörinn fulltrúi Prince kjör-
dæmisins á Prince Edward eyju.
Annað, sem MacKenzie King hefir afrekað
þessa síðustu dagana, er að senda út ávarp til
allra herskyldu-liberala og bjóða þeim undir
merki sitt, mannsins sem manna mest barðist
á móti herskyldunni og sem sat heima þá
landið þurfti hans mest með, og það þó hann
væri einhleypur og á bezta aldri og heilsu
hraustur. Hann sat heima og beið meðan
öðrum biæddi.
En þetta ávarp hans virðist ætla að hafa
sára lítinn árangur, engu frekar en flokks-
þingið hafði í sameiningaráttina. Ennþá eru
helztu blöð flokksins honum andvíg, og enn-
þá eru Union-liberalar þingsins ósnortnir af
boði hans, að tveimur eða þremur undan-
skildum, og þeir höfðu flutt sig búferlum úr
Union-herbúðunum löngu áður en King var
valinn leiðtogi, svo ekki er afturkoma þeirra
árangur af orðum hans.
Hvað er um Dr. Clark frá Red Deer, helzta
forvígismann liberal-stefnunnar í Vestur-
Canada til margra ára? Er hann hlaupinn
undir merki Kings? Ó-nei, og virðist hafa
litla Iöngun til þess. Dr. Clark er fríverzlun-
arpostuli og vill afnám allra tolla. En hann
segir, sem er, að liberalar hafi svikið öll sín
fögru tollmálaloforð og þeim sé ekki trúandi
að nýju, og sú tollalækkun, sem lögleidd hafi
verið, hafi komið frá conservativum eða Un-
iomstum. Doktorinn vil því ekki bíta á krók-
inn að nýju og er honum naumast láandi.
Hvað er um ráðgjafana, Hon. J. A. Calder,
Hon. A. L. Sifton, Hon. N. W. Rovell, Hon.
McLean og Hon. Dr. Tolmie? Allir eru þeir
liberalar af gamla skólanum, og ekki hyggja
þeir að skipa sér undir merki Kings.
Hvað er um vin vorn R. L. Richardson,
helzta forkólf frjálslyndra skoðana hér í vest-
urfylkjunum og einlægan lagtollamann? Ætl-
ar hann sér að fylgja King? Ó-nei ekki
mikið.
Hvað er um hina 50 eða 60 Union-liberala
á þinginu? Þeir ætla ser að sitja þar sem
þeir eru, jafnvel hinir svo kölluðu óháðu
sem flesta greindi á við stjórnina útaf toll
málunum, hafa enga löngun, hvað þá ásetn
ing, að hlaupa á náðir nýja leiðtogans.
Hvað um heimkomnu hermennina? Hverj-
um ættu þeir að fylgja, King, sem en ga hjálp
vildi senda þeim þegar mest lé á, eða Sir Ro-
bert L. Borden, sem gerði alt sem mannlegur
máttur gat áorkað til að halda uppi heiðri og
sóma þjóðarinnar með hermálastefnu sinni.
Hvað er um þjóðina í heild sinni? Hvor-
um mun hun fylgja, MacKenzie King eða Sir
R. L. Borden, fjandmanni herskyldunnar eða
forvígismanni hennar ?
Vér spáum engu, en bíðum og sjáum hvað
setur.
Aftur bendir hin mikla fjölgun
sláturgripanna á það að gróðavæn-
legur þykir sá atvinnuvegur. Hið
háa verð á kjötinu og hinn litli til-
kostnaður, sem þess kyns gripa-
rækt hefir í för með sér, gefur góð-
an arð, svo góðann að jafnvel
hveitibóndin hefir all-víða breytt
ökrum sínum í haglendi fyrir gripi,
og það mundi hann trauðla gera,
ef gróðinn væri ekki sæmilegur af
þesskonar griparækt.
Canada hefir verið og er annað
helzta hveitiland heimsms. Nú eru
horfurnar að naugriparækt lands- DqJJ’s Kidney Pills, 50c askjan,
ins komi því í fremstu röð í þeim e3a sex ö$k f $ öU_
;fnum lika, og að Canada verði , . ... , ,
helzti kjötmarkaður heims- , um !>'fsmum eða fra
I The DODD’S MEDICINE Co.
Toronto, Ont.
annar
rns.
Kjötmarkaður
heimsins.
Canada og Bandaríkin hafa hin síðari árin
verið helztu stoðir Evrópulandanna hvað lífs-
nauðsynjar snertir, sérstaklega þó hvað korn-
vöru og kjöt ahrærir. Ma svo að orði kom-
ast að þessi tvö lönd hafi verið forðabúr Ev-
rópu á tímum neyðarinnar.
Maður skyldi nú ætla að bæði hin vaxandi
kjötsala landsins og eins hitt, hvað vinnu-
kraftur bóndans fór rénandi meðan á stríð-
inu stóð, hefði leitt til þess að gripum hefði
fækkað að mun í löndunum. En svo hefir
ekki orðið, heldur þvert á móti hið gagnstæða
orðið ofan á. Af nýútkomnum skýrslum
sést að á árunum 1915—1918 hefir naut-
gripum fjölgað í Canada um tæpar 4 miljónir
og í Bandaríkjunum um 9Vl miljón.
Þessi fjölgun gripanna hér í Canada á mest
við sláturgripi — * Beef Cattle . Mjólkur-
hjörðin hefir líka aukist en ekki nærri eins
mikið. Árið 1915 voru færri mjólkurkýr í
Canada en verið hafði fimm undangengin ár.
Nú aftur á móti eru þær 870.000 fleiri en ár-
ið 1914, en sláturgripum hefir fjölgað um
3,144,000 á sama tíma.
Einkennilegt er það, en samt er það svo,
að ef dæma skal eftir tölum þessum,, virðist
sem mjólkurframleiðsla sé ekki ábatasöm í
landi voru, að minsta kosti ekki að sama skapi
og kjötsalan. Hvort þetta stafar af þvi, að
kostnaðurinn við mjolkurframleiðsluna og
aðrar afurðir þaðan frá stafandi, se svo mik-
ið meiri, vitum vér ekki, en líklegt er það.
Aftur vitum vér hitt, að furðu dyrar hafa af-
urðir mjólkurmnar þótt hin síðari árin, jafn-
vel dýrari að tiltölu en kjötið.
BRETLAND
Sir Edward Carson hélt nýlega
ræSu í Ulster-Unionista klúbbnum
Belfast og skoraði á Ulstermenn
að endurvekja félög þau og sam-
bönd, sem þeir hefðu haft fyrir j ágúst.
stríSiS til þess aS vinna gegn j
heimastjórn Irlands og öSrum
kúgunarlögum. Var ekki aS heyraj
á herranum aS stríSiS hefSi mikiS
breytt skoSunum hans á lrlands-
málum. Nokkrum dögum áSurJ
hafSi Joseph Devilin, helzti maS-j
ur Nationalista, haldiS ræSu í Bel-
fast^ þar sem hann skoraSi á Ira
aS ýfirgefa Sinn Fein stefnuna og
fylkja sér undir merki National-
ista í kröfunum um algerSa heima-
stjórn, og núna seinast hafa Sinn
Feiners endurtekiS kröfur sínar
um algerSan skilnaS. Vesalings
Irland.
varpiS um ríiksborgararétt er enn-
þá fyrir neSri deild og á ekki
greiSa siglingu aS því er virSist.
Stjórnarskrárfrumvarpinu var vís-
aS til 3. umræSu í neSri deild ! 0.
FriSun vals og amar.
Sveinn Ólafsson og Benedikt
Sveinsson flytja frumvarp um þá
breytingu á lögum frá 1913 um
friSun fugla og eggja, aS emir
skuli alfriSaSir til 1940 og valir til
1930, en síSan skuli hvorttveggja
þessar fuglategundir ófriSaSar.
Ennfremur aS fyrir hvern fugl,
sem friSlýstur er í lögum þessum,
skuli sá, er brotlegur verSur,
gjalda 1 0 kr. sekt, sem tvöfaldast
viS ítrekun brotsins, alt aS 80 kr.
(áSur 2 kr. upp í 32 kr.) nema
fyrir erni. Þar er sektin færS upp
í 500 kr. (úr 25 kr.) og sektin fyr-
ASmíráll Charles Beresford lá-^ jr ag taka arnaregg sömuleiSis sett
500 kr. (áSur 10 kr.).
GreinargerS: “Konungur fugl-
anna, örninn, er nær aldauSa hér
á landi, og valurinn orSinn fágæt-
ur í mörgum héruSum.
Hvorttveggi þessara fugla eru
varSur varS bráSkvaddur 7. þ. m.
74 ára gamall. Hinn látni var
þjóSkunnur maSur fyrir þingstarf-
semi sína. Var hann til margra
ára helzti flotamálagagnrýnari
andstæSinganna og þótti löngum
maSur var hann og vissi
hann fór. Sem aSmíráll þótti
hann stjórnsamur og atkvæSamik- er
ill.
óvæginn og opinskár, en stórhæfur ná ófriSaSir og eftirsóttir mjög af
hvaS j þeim, sem fuglahömum safna.
Þótt báSir sé þeir ránfuglar, þá
“rán” þeirra búendum eigi sér-
{ lega bagalegt. Þeir lifa mest-
megnis af sjófangi og rjúpum.
Fuglategundir þessar eru ein-
kennilegar fyrir Island, og aS
■ nokkru leyti prýði þess, einkum
valurinn, sem skreytt hefir skjald-
armerki vort um langan tíma og er
aS fornu frægasta konungsger-
semi. VirSist dýralíf landsins ekki
svo auSugt, aS rétt sé aS leyfa
drápgirni mannanna aS eySa þess-
um frægu, háfleygu og harSvítugu
fuglum.”
Brezkt herskip (destroyer)
rakst á rússneska tundurnámu í
Finska flóanum 4. þ. m. og sökk
samstundis; fórust þar 25 menn en
90 björguSust.
Stjórn Breta hefir boSiS 300,-
00 dollara verSlaun fyrir loftfar
sem traustast er og öruggast í ferS-
um undir öllum kringumstæSum
og mönnum óhultast.
Til aS mæta fyrir Breta hönd á
verkamannaþinginu í Washington
í október hafa veriS valdir: Rt.
Hon. George Bornes verkamanna-
fulltrúi í Lloyd George stjórninni
og Sir Malcom Delevigne.
Sir Horace A. Byatt hefir veriS
útnefndur landstjóri í nýlendum
þeim, sem Bretar tóku af ÞjóS-
verjum í SuSur-Afríku.
Verkamannaþing stendur yfir í
Glasgow þessa dagana og er þaS
hiS
Rvík 10. ág.
Kvikmyndararnir fara héSan í
hinn mikla leiSangur sinn austur í
sveitir og upp í BorgarfjörS í
fyrramáliS. Alls er gert ráS fyrir
aS 22—23 menn verSi í ferSinni.
Er henni fyrst heitiS austur Hellis-
heiSi, alla leiS til ÆgissíSu. Þar
verSur fyrsta kvikmyndin líklega
tekin. SíSan verSur haldiS aust'
ur aS Keldum á Rangárvöllum og
tekin önnur mynd. Þá aS
..... , c r . | þar tekin önnur
fjolsottasta er sogur fara af a1 r . .
„ . ,. aoc 1 'iv • . Gullfossi um Geysi niSur a Ping-
Bretlandi. ASal mal þmgsins er
aS tala um þjóSeign allra náma £
löndunum. Vilja hinir svæsnari
verkamannaleiStogarf svo sem
Robert Smillie og Robert Williams
aS allar námur verSi starfræktar
af þjóSinni, en Arthur Henderson,
John R. Clynes og James Henry
Thomas vilja núverandi fyrir-
komulagi. Er mikiS rifist um
þetta og áséS fyrir endann á því
ennþá.
ISLAND
Frá Alþingi.
Fátt hefir boriS viS, sem tíS-
indi geta kallast, síSaP stjórnin
sagSi af sér. Nokkur frumvörp
hafa fluzt á milli deildanna og ör-
fá veriS afgreidd frá þinginu sem
lög.
HæstaréttarfrumvarpiS slapp aS
heita mátti óbreytt gegnum neSri
deild og er nú komiS á dagskrá
efri deildar og er búist viS aS þaS
verSi samþykt þar óbreytt. Frum-
völl og þar d"valiS nokkra daga.
SíSan norSur Kaldadal og upp á
HvítársíSu. Búast þeir viS aS
verSa alls 4—5 vikur í þessari
ferS, dvelja svo nokkurn tíma hér
í bænum og leika nokkur atriSi
myndarinnar og aS því loknu
verSur ef til vill fariS aftur austur.
Þessi ferS verSur bæSi löng og
ströng, einkum erfiS fyrir dönsku
leikendurna, sem vitanlega eru
meS öllu óvanir slíku ferSalagi.
Farangur er mjög mikill. ög-
mundur SigurSsson, sem er aSal-
fylgdarmaSur í ferSinni, bjóst viS
því í gær aS þurfa 30 áburSar-
hesta.
ÞaS er mikiS lagt á sig af þeim,
sem stjórna þessu, einkum Gunn-
ari Sommerfeldt, til þess aS mynd-
in og útbúnaSur allur hepnist vel.
Er óskandi aS vonir hans rætist í
því efni, eigi sízt vegna höfundar
sögunnar, Gunnars skálds Gunn-
arssonar.
Þessir leikarar fara meS dönsku
kvikmyndaleikurunum héSan úr
bæ: Frúrnar Stefanía GuSmunds-