Heimskringla - 01.07.1925, Side 5
WINNIPEG, 1. JULÍ, 1925.
5. BLAÐSlÐA
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMlTED
BirgSir: Henry Ave. East. Phone A 6356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆCJA.
legar hafa verið öllu öiannkyni
um þúsundir ára. En jafnvel þó
þeir kæmu ófullkomlegar út-
búnir í heinl þenna, heldur en
fj'rirrennarar þeirra, þá gætu
þeir samt lifað fullkomnara lífi.
Eg las nýlega ritgerð eftir einn
af beztu mannfræðingum Eng-
lands. Hann er nærri því viss
um, að mennirnir, sem bezt hafi
verið útbúnir frá náttúrunnar
hendi, með hraustasta líkama
og stærst heilabú, hafi verið
þeir, sem lifðu mörg þúsund ár-
. um áður en eiginlegar sögur
hefjast — Cro-Magnonmennirn
ir, sem svo eru nefndir. Samt
lifum við ólíkt fjölbreyttara og
væntanlega fullkomnara lífi nú.
Hvað sannar þetta? Það sann-
ar það, að ef við gætum eitt
slnn komið nýrri kynslóð á aðr-
ar leiðir, heldur en við höfum
yíirleitt fetað, þá standa ekki
ófullkomleikar hennar í vegin-
um fyrir því, að lifa því full-
komnasta lífi, sem nokkurt
mannlegt ímyndunarafl getur
hugsað upp. Það er ekki erfða-
synd mannanna, né vitsmuna-
skortur, né skortur á siðferðis-
þieki, sem því veldur, hvað
guðsríki dregst, heldur blátt ál-
fram það, að við veitum ekki
nógu mikla athygli lífstré okkar
eigin barna. Við tökum ekki
eftir, þegar greinin er orðin
mjúk og fer að skjóta laufum.
Við hlynnum aldrei það að þeim,
að þau fái nokkurntíma borið
þá ávexti, sem þau eðli sínu
samkvæimt geta gert.
Eg ætlaði mér ekki að tala
langt mál hér í dag. Eg get
þcss vegna ekki hætt mér út í
að hugleiða, hvað felst í hinni
djúpskygnu setningu, að ef
mennirnir verði ekki eins og lít-
il börn, þá komist þeir aldrei inn
í guðsríki. En þessi setning er
enginn hugarburður, fremur en
nokkuð annað, sem mannkyns-
ins háleitasti andi hefir eftir-
skilið okkur til þess að hug-
ltiða. En eg verð að segja fyrir
mitt leyti, að mín börn kenna
mér meira, heldur pn etg get
nokkru sinni kent þeim. Börn-
in eru einu spekingarnir, sem
nokkuð vita. Þau sjá æfintýr-
ití í því hversdagslega, þau fylla
það með anda og lífi, sem við
sjáum ekkert í nema fátækleg-
an veruleika; þau taka með opn-
um huga og trúnaðartrausti við
öilu því, sem að þeim er rétt
fagurt — hvort sem það eru
hugsanir eða hlutir. Þau eru
svo þyrst eftir hugsjónaríku lífi
— þó þau viti það ekki -r- að
maður hlýtur að fyrirverða sig,
hvað mikið hefir sorfist af
manni af þeim eiginleikum, á
þeim fáu árum, sem liðin eru
frá því, að maður sjálfur var
barn. Með hverri einustu nýrri
kynslóð, sem fæðist, þá eru um
leið nýir möguleikar fyrir því
að skapa guðsríki á jörðu. Af
h\erju mistekst það? Af því að
við trúum aldrei nógu mikið á
börnin, og af því að við teymum
börnin með okkur í okkar hug-
sjónaleysi bg trúleysi á lífið.
Við komum hingað til þess að
skemta okkur í dag. En af því
að börnunum er dagurinn helg-
aður, þá finst mér að við ættum
ac$ tengja við hann eina hugs-
un. Það er að einsetja okkur
að hafa meira vakandi auga á
því, að láta það ekki verða alt
ckkur að kenna, ef lítið verður
úr því, að guðsríki birtist í lífi
þeirra manna og kvenna, sem
nú eru okkar lítil börn. Foreldr-
ar og aðstandendur eiga miklu
meiri þátt í, þegar ógæfusam-
lega tekst með tíf barna þeirra,
heldur en þeir gera sér að jafn-
aði grein fyrir. Þeir hafa ekki
haft ilt fyrir þeim, þeir hafa
ekki kent þeim það sem ilt valr,
en þeir hafa ekki vafið um þau
því andrúmslofti ástarinnar á
andlegleika lífsins og dreng-
skaparins við hugsjónir, sem
skapar mikla menn. Við ætlum
skólunum, sunnudagaskólunum,
kirkjunum og allskonar ytri
stofnunum, að hafa þau áhrif,
sem ekkert geur haft, nema hin
persónulegu afskifti þeirra, sem
nánastir eru. Uppeldi á barni
og unglingi er langsamlega
var.damesti verkið, sem nokkur
getur sint. Við köstum til þess
höndunum, eins og það skifti
engu máli. Og þó Jiefir engin
móðir og fáir feður virt svo fyr-
ir sér einhverntíma börn sín, að
þeir hafi komist hjá að sjá, að
þeir voru að horfa á heilaga
veru — veru með möguleika til
þess að lifa lífinu sem væru þau
systkini og nánustu- ættingjar
Krists. Sumar guðsríkis er ekki
komið enn, en við erum altaf að
sjá mjúkar greinar og vísira að
laufum. Eigum við ekki að
vona, að þeir vísirar verði að
laufkrónum á- þessara barna
lífstré? Væri nokkuð eftir sér
teljandi, ef við gætum hjálpað
til að þetta mætti fakast?
R. E. Kvaran.
---------x-----:--
Ritfregn.
Bjarni Jónsson: “Vor-
menn íslands”. 304 bls.
8vo. Rvík 1924; bóka-
verzlunin “Emaus”.
\
Bjarni Jónsson: Saga
Abrahams Lincolns. 468
bls. 8vo, Rvík 1923.
Bókaverzlunin “Ema-
us”.
Báðar þessar bækur eru eft-
ir sama höfund, Bjarna Jónsson
kennara í Reykjavík (ekki
Bjarna frá Vogi). Og báðar
eru þær aðallega ætlaðar æsku
lýðnum.
Það er heppilega valið, því
engar bækur eru gildari að
verðmæti fyrir börn og ung-
linga, en æfisögur góðra, dug-
andi og göfugra manna.
“Vormenn íslands” segir frá
æfistárfi fimm ágætismanna ís-
lenzkra, sem' allir lifðu og
störfuðu á endurreisnartímabili
íslands; voru endurreisnin sjálf,
eins og titill bókarinnar bend-
ir á. Þessir menn eru Skúli fó-
geti Magnússon; Jón Eiríksson
konferenzráð; Eggert Ólafsson;
Bjarni landlæknir Pálsson, og
Biörn prófastur Hálldórsson í
Sauðlauksdal. Æfisaga Skúla
er algerlega tekin eftir Jóni
heitnum Aðils, en f^á«saga hans
er stytt, svo að hún sé algerlega
við alþýðuhæfi.
Æfisaga Abraham Lincolns
er samin eftir ýmsum æfiágrip-
um. Engin skáldsaga getur
verið skemtilegri en saga þessa
einstaka mikilmennis, allra
handa járnsins með aðalslund-
ina og barnshjartað, sé hún vel
sögð.
Meðferð höfundarins á efn-
inu er allgóð, þegar litið er til
þcss, að bækurnar eru ritaðar
fyrir unglinga.
Þó er það mjög óviðkunnan-
lcgt, hve víða eru undirstrikað-
ar setningar í “Vormenn ís-
lands”, algerlega að þarflausu.
Það er oft góð og nauðsynleg
aðferð í blaðagreinum og flug-
ritum; dægurflugum, sem ann-
ars mýndu marka lítið spor eða
ekki, þar sem þær færu. En í
bók, sem betur er vandað til, er
þetta þarfleysa og smekkleysa,
og gerir þroskuðum lesanda oft
ákaflega gramt í geði.
HEIMSKRINGLA
En unglingarnir taka ekki eft
ir þessum smíðagalla, sökum
þess hve efnið er hrífandi. Ef
einstaklingar yngri kynslóðar-
innar hér vestra eru ennþá læsir
á íslenzku, þá verja þeir sjálfir
eða foreldrar þeirra vel þeim
peningum, sem greiddir verða
fjTir þessar bækur.
-------X-------—
Kristín Björnsdóttir
Þann 25. júlí s.l. andaðist að
Clanwilliam, Man., að Jieimití
tengdasonar síns og yngstu
dóttur sinnar, Guðmundar og
Ingibjargar Þorsteinsson, Krist-
ín Björnsdóttir, 83 ára að aldri.
Kristín sá-1. var fædd á
Hrafanbjörgum í Hjaltastaðar-
þinghá í Norður-Múlasýslu á
íslandi, árið 1842. Fluttist hún ■
tveggja ára gömul með for-
eldrum sínum að Steinboga í
sömu sveit, og nokkru síðar að
l'íðastöðum, einnig í sömu
sveit.
Kristín var.dóttir Björns Jóns.
sonar og konu hans Guðlaugar
Stefánsdóttur. ‘
Árið 1863 giftist hún Jóni
Þórarinssyni. Þau hjón, Jón og
Kristín, bjuggu allan sinn bú-
skap, að undanteknum 4 síð-
ustu árunum, sem hún var á
íslandi, á Viðastöðum.
Kristín sál. misti mann sinn
árið 1893, um veturinn, þegar
inflúenzan geisaði um alt ís-
land. Það sama vor fluttist
hún til Ameríku með fjórum
yngstu börnum sínum. Tvö
börn hennar voru komin vestur
á undan henni.
Kristín og Jón eignuðust alls
10 börn, og eru fimm enn á lífi.
Björn giftur Stefaníu Sigurðs-
son, bjuggu þau íehgi í Grunna-
vatnsbygð í Manitoba; Guð-
mundur ekkjumaður í sömu
bygð; Stefán, að Gimli, Man.;
Jórunn, kona Torfa Jónssonar
í Foam Lakebygð, g Kristbjörg,
ekkja Sigfúsar sá-1. Magnússon-
ar, er lifir nú í Los Angeles, Cal.
Kristín var rúm fjögur ár í
Shoal Lake bygðinni hjá Birni
syni sínum. Síðar fluttist hún
til Ingibjargar dóttur sinnar,
þar sem hún lifði hin síðustu 25
árin. Hún var fremur heilsu-
góð alla æfina, nema síðasta
árið.
Kristín sál. var góð eiginkona,
hafði ánægju af að hjálpa þeim,
sem bágt áttu, enda átti hún
marga góða vini. Hún var ást-
rík og skyldurækin móðir, á-
vaxtaði gína krístilegu trú til
binstu stundar, óg allar reynslu
stundir í lífinu baí* húm með
stillingu og þolinmæði.
Blessuð sé minning hennar.
X.
----------x--------
Hugþrá.
Herra ritstjóri,
Sigfús Hailðórs frá Höfnum.
Mín er von aö mannorí þitt
meiöist ei né springt,
þótt þú gæfir gullit5 mitt
greinðum almenningi.
MeS vinsemð og virCingu,
SigurtSur Jóhannsson.
Að það græði hvert sár, þetta
óliðna ár,
það er alt sem að hugur minn
þráir;
08' það læknist hver synd í svo
margfaldri mynd,
sem að meira af hörmung oss
spáir.
Að það komi sú stund, að við
finnum þann fund,
að við finnum það heilaga,
sanna;
að það aukist sú þrá hverjum
einstökum hjá:
falslaus elskan til guðs og til
manna.
Að vor himinsins sól megi hlýja
hvert skjól,
og alt hatur úr lífinu þíða;
megi guðsríki fá þenna fögnuð
að sjá,
sem að fjölmargar þúsundir
bíða.
' •' ■ ’ i
Megi hungur og neyð hverfa á
Ijósbjartri leið,
ti! hins lifandi, sanha og rétta;
megi ágirhdin köld missa voða-
leg völd
og í valinn að eilífu detta.
Megi ljósgeisla fans byggja
blómskrúða krans,
sem sig breiði um gervallar
sveitir;
megi helgast hver stund, megi
lýsast hver lund,
sem að lífinu í guðsríki breytir.
Eins og vorblómin smá breiða
blaðkrónur frá.
raóti blíðasta lífgjafa sínum;
eins og ómálga barn út um
eyðilegt hjarn
eg sný, guð minn, að kærleika
þínum.
Sigurður Jóhannsson.
---------x---------
Vísur eftir K. N.
, BREYTTIR TÍMAR.
Stirðnar tunga, dvínar dáð,
dregst að nóttin kalda;
horfið alt, sem hef eg þráð;
hvers á eg að gjalda?
*
Stefið margt, sem frá mér flaug
fyr til ungra svanna,
gref eg upp^ úr öskuhaug
endurminninganna.
Mörg ein snótin böl mér bjó,
bara gegnir furðu,
hvað mér vænt um þykir þó
þessar “drottins smurðu”.
VANTAR ÞAÐ SEM VIÐ Á
AÐ JETA.
í trúmálin vantar oss tælandi
íyí,
og tuskurnar vantar á fljóðin;
heiðarleik vantar í Heimskringlu
skrif
og hrynjandi vantar í ljóðin.
(Kveðið frá sjónarmiði hinna
sannkristnu.)
Þinn hundheiðni,
K. N.
---------x---------
Frá íslandi.
ÆFISAGA JÓNS SIGURÐS-
SONAR FORSETA.
Háskólaráðið hefir samþykt
nýskeð, að gr^iða alt að 5000
kr. ritlaun fyrir æfisögu Jóns
Sigurðssonar. Ætlast er til að
rit þetta sé ítarlegt og sé þar
sagt frá æifiatriðum, stjórnmála
baráttu og vísindastarfsemi
Jóns Sigurðssonar, eftir beztu
heimildum og með nægum til-
vitnunum í rit hans, bæði prent-
uo og óprentuð. Ritinu skal
lokið og handritið afhent í árs-
byrjun 1930. Stærð þess skal
ekki fara fram úr 33 örkum
(528 bls. í 8 blaða broti), en rit-
laun 150 kr. fyrir hverja örk.
Svo er gert ráð fýrir, að Bók-
mentafélagið gefi ritið út, og
að einn eða fleiri menn geti tek-
ið þátt í samningu þess. Há-
skólaráðið tilnefnir menn, er
sjái um samræmi og skiplag á
öllum köflum ritsins, ef fleiri
vihná verkið. Þeir, sem kynnu
að hafa í hyggju að rita um
þetta efni, geta fengið nánari
upplýsingar hjá Háskólaráðinu.
NOREGSFÖR GLÍMU-
MANNANNA.
Glímusýningin og viðtökurnar
í Björgvin.
Glímumennirnir komu til
Björgvinar seint á þriðjudags-
kvöld í fyrri viku. Fyrstu
glímusýninguna héldu þeir á
miðvikudagskvöld.
ísafold hefir fengið tækifæri
til að kynnast ummælum Björg-
vinarblaðanna um glímuna og
eru þau öll á einu máíi um það,
að áhorfendurnir hafi haft hina
mestu gleði og ánægju af glím-
unni.
Glímusýningin var í “Turn-
liallen”, sem er æfinga- og sam-
komuhús leikfimisfélaganna í
Björgvin. Var þar hvert sæti
skipað. Jón Þorsteinsson út-
skýrði og sýndí helztu brögðin,
áður en glímur hófust. Studd-
ist hann við leiðarvísirinn, sem
prentaður var hér áður en þeir
fóru að heiman. Var hann seld
ur áhorfendunum með aðgöngu
miðunum.
Glímdar voru 30 glímur.
Lófaklappið jókst því lengur
sem glímt var. Norðmennirnir
undruðust og dáðust jafnt að
fimleikanum, snarræðinu og
karlmensku glímumanna.
Að aflokinni glímunni hélt
Johan Blytt, nafnkunnur kaup-
maður, snjalla ræðu fyrir minni
íslands.
Veizla á Gimli.
Að glímusýningunni lokinni
var gengið til veizlu á Gimli. Er
það stærsta samkomuhús ung-
mennafélaganna í Björgvin.
Var þar margt manna saman
komið auk glímumannanna, í-
þróttamenn og ungmennafélag-t
ar. íslendingar nokkrir, sem bú-
settir eru í Björgvin, o. fl.
Þar hélt Johannes Lavik rit-
stjóri ræðu fyrir minni felands.
Hann mintist meðal anpars á
glímuíþróttina, óg skýrði frá
því, að hennar gætti nokkuð í
ýmsum brögðum og leikjum, er
enn tíðkast í sveitum Noregs.
Þvx' næst flutti Johan Blytt
kvæði til glímumannanna. —
FJeiri ræður voru haldnar. —
Þakkaði Sigurður Greipsson
viðtökurnar með stuttu á'varpi.
A fimtudagskvöldið var á-
formað að halda glímusýningu
undir berum himni, en það fórst
fyrir vegna þess, að veður var
vont þann dag. Var sýningin
því endurtekin í “Turnhallen”.
1 gær munu glímumennirnir
hafa vdTið á Storð og í dag eru
þeir væntanlegir til Hauga-
sunds. ^>aðan fara þeir til Foss
og síðan til Oslo.
(Isafold.)
----------x---------
Til hinna lútersku.
(Sbr. S. Sigurjónsson í Lögbergi.)
I ljóöabók Gríms Thomsens er
kvæöi, sem nefnt er: Stjörnu-Odda.
draumur hinn nýrri, og í því stendur
þetta erindi:
Ein er þar kirkja undrahá,
sem öliur býöur rúm,
kærleiks aö hliöa kenning á,
komnum af ýmsum trúm.
Frá hverri tíö og úr hverjum staö,
hver sem hann vera kann;
engum er þaöan útskúfaö,
eiski hann sannleikann.
Og kemur þetta býsna vel heim viö
orð Lúthers, er hann mælti: Sérhver
kristinn maöur á rétt á að afla sér
skiinings á sannleikanum og dæma
um hann; já, á svo mikinn rétt á
þvi, aö hver sá er skeröir þann rétt
agnarögn, hann veri bölvaöur”. Þessi
orö Lúthers má finna í Skirni 1908,
bls. 225, í ritgerö eftir prófessor Har_
ald Nielsson: “Trúarjátningarnar og
kenningafrelsi presta”.
Meö viröingu,
S. Magnússon.
| Swedish American Line I
J
f
f
f
HALIFAX eða NEW YORK
TIL
I
'i
,E/S STOCKHOLM ^
♦♦♦ E/S DROTTNINGHOLM ---------*
♦-•■♦ Cabin og þriðja pláss ijLAINUo 2. og 3. pláss
ÞRIÐJA PLÁSS $122.50
:
♦>
X ____________
♦♦♦ y
♦|> KAUPIÐ FARBREF FRÁ NÆSTA UMBOÐSMANNI EÐA V
X SWEDISH AMERICAN LINE f
í ♦♦♦ 470 MAIN STREET, V
♦♦♦ ' ❖
Kaupið ekki Tires
án þess að sjá þœr.
Vér bjóðum Partridge “Quality” Tires ái svo lágu
verði, að það er alveg óviðjafnanlegt, þegar miðað er
við gæði. Þér getið keypt þessar tires í yðar eigin bæ.
Það er engin óvissa — enginn dráttur. Þér sjáið á?ður
en þér kaupið.
Komið og skoðið birgðirnar. Kaupið hjá
oss. Þá eigið þér ekki á hættu að verða fyrir
vonbrigðunl.
TIL SÖLU HJÁ
Fabrlc Tlre 30x3%
Cord Tlre 30x3%
$6.95
Cord Tlre 30x3%
$8.05
XGuaranteed)
Tube - - _ 30x3%
$1.50
Tube - - _ 30x3%
$2-00
(Guaranteed)
Equally low pric-
es on all sizes
15
PARTRIDCE OUALITY líre-Sfiop
W. C. KILGOUR, Baldur; ANDERSON BROS., Glenboro; T. OLAFSSON, Arborg;K. OLAFSSON,
Rivertón; H. SIGURDSON, Arnes; J. M. TESSIER, Cypr. River; LUNDAR TRADING CO. Lundar