Heimskringla - 01.07.1925, Síða 7
WINNIPEG, 1. JULI, 1925.
M3IMSKRINGLA
7. BLAÐStÐ'A
Frá Islandi.
Glímumennirnir í Fœreyjum. —
I glaða sólskini og meö “Eldgamla
Isafold” tók Þórshöfn á móti glímtt-
r.tönnunum. Öll borgin “fór á stúf-
ana”. Hin fagra íþrótt og prúð-
mannlega framkoma hinna ungu ís.
kndinga vakti almenna hrifni og aö-
dáun, sem náði hámarki sínu er Jó-
hannes Patursson, eftir sýninguna,
hélt stutta ræðu og benti á, að þótt
Ormur Stórólfsson og Kjartan ÓL
afsson væru liðnir, sæist þó, að enn
væru “kappar” á íslandi, og hrópaði
harn, lengi lifi frændur vorir og ís.
Iar,d. Síðan var spilað ‘,Ó guð vors
lands” og kveðja send frændum vor.
um austan hafs, og hrópað á ný:
“lifi Island”, og héldu svo glímu.
n>ennirnir á stað eftir stutta en
n.'irningarríka dvöl í Þórshöfn.
Prófessor Nordal var fánavörður á
íþróttavellinum.
______________ •
"Leifnr Eiríksson”. — Enda þótt
véiskútan “Leifur Eiriksson”, sem
hcr var i fyrrasumar á vesturleið, sé
talin af af flestum, verður hennar
leitað í sumar. Þrjú skip Hudson’s
Bay félagsins taka þátt í leitinni. Ala
menn veika von um, að þeir hafi kom
ist einhversstaðar á land, og þá helzt
á Baffinsland. Skipin fara af stað 1.
næsta mánaðar.
Jón Ófcigsson, mentaskólakennari,
hefir að undanförnu verið að ferð-
ast um Þýzkaland, til þess að kynna
sér kenslu í hverskonar skólum, svo
sem mentaskólum, verzlunarskólum,
kcennaskólum, iðnskólum, barnaskól.
um o. fl., aðallega i Berlin, Dresden,
Frankfurt a. M., Nurnberg og Munc.
hen, en þaðan ætlaði hann til Bern.
Honum var hvarvetna vel fagnað og
hzfði flutt 11 erindi um Island í
Þýzkalandi, jafnan við mikla aðsókn,
og hefir Vísir séð þýzk blöð, sem
fara mjög lofsamlegum orðum um
fyrirlestra hans.
Kornyrkja á Ishmdi. — 1 tveimur
síðustu blöðum Freys hefir verið rit_
gerð um kornyrkju á íslandi eftir
Kkmens Kr. Kristjánsson, og segir
hann þar frá tilraunum, sem hann
hefir gert um kornyrkju hér, sumr-
in 1923 og 1924. Bygg náði fullum
þroska bæði sumrin i *tilraunastöð
hans, og ætti hver, sem hug hefir á
jarðrækt, að kynna sér þessa rnerki-
legu ritgerð.
Alexanderssaga. — Finnur Jóns.
son prófessor hefir nýverið, af hálfu
Árna Magnússonar nefndarinnar, gef
ið út Alexaderssögu í þýðlngu Brands
Jcnssonar ábóta í Þykkvabæ og síð-
ar biskups á Hólum. Er um alt vand-
að til útgáfunnar og fara á undan
rækileg inngangsorð Finns. Er þessi
þýðing Brands ábóta um margt merki
legast allra þýðinga, sem ti! eru úr
fcrnöld. Ber það fyrst til að þýðing-
in er með afbrigðum vel af hendi
leyst og ber af öllum öðrum. I ann.
an stað er hún nálega eina þýðingin,
sem með fullri vissu verður heim.
færð til ákveðins manns og timabils..
Náði Árni Miagnússon afbragðs góðu
handriti af Alexanderssögu fyrir 235
árum, og ætlaði þá að gefa út, en
varf ekki úr. Er nú farið eftir þvi
handriti.
"Haustrignin ga r”, skopleikurinn,
sem hafið var að leika í haust, hefir
veiið leikinn meira og minna i allan
vetur og alt fram á þenna dag. Hef-
ir orðið vinsælli en “Spánskar næt-
ur”. Nú hefir leikurinn verið gefinn
út á prent, og mun þá óðara berast
um alt land.. Lögin við visurnar munu
fást í nótnabúðunum og er komið út
ísienzka lagið, eftir Emil Þórðarson
Thoroddsen, við fyrstu vísurnar.
Afburða góður affi er nú aftur á
tcgurunum, svo að fyllilega lítur út
fyrir að sömtt uppgrip ætli að verða
í ár sem í fyrra.
l.átinn er á Stað í Súgandafirði
Þorvarður prestur Brynjólfsson. —
Hann var fæddur 1863 á.ísafirði,
scnur Brynjólfs Oddssonar bókb.,
síðar í Reykjavík, og fyrri konu hans
Kannveigar Ólafsdóttur bón'da á
Kaiastöðum Péturssonar. Séra Þor.
vaiður varð stúdent 1888 og lauk
prcfi í guðfræði viði prestaskólann
1892. Var um hríð fríkirkjuprestur
í Suður.Múlasýslu, en fékk stað i
Súgandafirði 1901 og var þar prest-
ur til dauðadags. Kona hans-Iifir
hann, Anna Stefánsdóttir, systir
Pfalldórs alþm. Metúsalems ráðu-
nauts og þeirra mörgu og nterku
systkina. Séra Þorvarður var vand-
aður maður svo að af bai; og vinsæll.
Drcngileg björgun. Fyrir skömmu
hefir Þorleifur GuðmundssoYi í Þor.
lákshöfn verið sæmdur ensku heið-
uismerki fyrir að hafa nú i vetur
sem Ieið bjargað heilli skipshöfn, sem
var komin í opin dauðann.
Það var um kvöld skömmu eftir
áiamót. Dimt var. orðið og hvass.
viðri og mikið brim. Þá verður ein.
hver heimamanna i Þorlákshöfn var
vig að bál er kynt á skipi, sem kom-
ið er rétt upp að landi við höfða
þ.inn er gengur sunnan og vestanvert
við höfnina. Þorleifur bregður skjóít
við»með heimamenn sína. Er þeir
koma fram á höfðann sjá þeir að
skipið er mjög nærri landi, og velt-
i.'t á stórgrýtinu. Framstafninn bar
hátt, og þar var skipshöfnin öll, en
skuturinn var kominn undir sjó. Fyr.
iisjáanlegt var að eftir stutta- stund
yrði skipið liðað sundur á klettun.
um.
Þorleifur í Þorlákshöfn er lágur
að vexti en allra manna sterkastur.
Hann er líka handsterkur með af-
brigðum. Honum tókst að hrópa á
ensku fram til skipverja, að þeir
skyldu fleyja í sjóinn kaðli með
flotholti á endanum. Haan sá að
brimið mundi bera flotholtið upp í
storgrýtisurðina. Skipverjar heyrðu
hróp hans og hlýddu því. Eftir stutta
stund náði Þorleifur linunni. Síðan
tókst honum að ná skipverjum hverj-
um af öðrum eftir kaðlinum, enda
hætti hann sér mjög út í brimgarðinn
á móti þeim, þegar útsogið var. —
Skipverjar voru 20 og björguðust
a'Iir. Þeir voru mjög þrekaðir af
kulda og vosbúð, en Þorleifur og
kona hans tóku þeim af mikilli gest.
risni og héldu þá á heimili sinu ná-
lega viku, unz þeim var fylgt til
Reykjavíkur. Luku skipverjar allir
upp einum rómi, bæði um hreysti Þor
le'fs og snarræði við björgunina, og
gestrisni þeirra hjóna.
(Visir.)
----------x--------1—
Sæluvika Skagfirðinga.
“Ungr vark forðum,
fórk einn saman,
þá vartik vlllur vega;
autiig r þóttumk
er ek annan fann,
maír es manns gaman.”
(Hávamál.)
“Heim að Hólum”, var orðtak
Skagfirðinga um það bil er á Hjói-
um var biskupsstóll og skóli. í tíð
hinna fremstu biskupa, einkum Jóns
ögmttndssonar, voru Hólar sannkall-
að andlegt heimili héraðsbúa. Víða
fór og orðstir hins mikla kennimanns.
“Heim að Hiólum”, var latisnarorð
almúgans í Skagafirði öldunt saman.
Meðan Líkaböng sendi þungar og
lanigdrægar hljóðöldtir um Ihéraðið',
streymdi múgurinn heim, þar sem
heilög ljós brunnti á guðs altari, þar
sem beið lausn og lækning við and-
legfum og likamlegum meinum.
Þannig eignuðust Skagfirðingar
einskonar héraðsarinn, þar sem þeir
vermdust, og sálræna aflstöð, sem
sendi endurnærandi strauma út á
meðal fólksins, inn á heimili fátækra
og ríkra. Því var þeim mikill svift.
ir að, er biskupsstóllinn lagðist nið-
ur. Jafnvel þó Hólar séu aftur
orðnir mentasetur, er það með öðrum
hætti en fyrrum. Orðtakig “heim að
Hólum” lifir enn. En það) er fremur
sem heit og sterk endurminning hér.
aðsins, heldur en lifandi orðtak.
I þessum forna héraðshætti liggur
að líkindum söguleg rót að þvi, sem
nú nefnist “sæluvika Skagfirðinga”.
Héraðsbúar hafa bætt sér upp miss.
inn með því að skapa nýja aflstöð, en
með þeim hætti gerða, að hún sam.
svarar nútíðar ástæðum. Dagur veit
ekki til, að önnur héruð á landinu
fari svipað að. En “Sæluvika Skag-
firðinga” er svo merkileg, að blaðið
vildi vekja athygli á henni meiri, en
áður hefr verið gert.
Um það leyti er sýslufundut- Skag.
firðinga stendur yfir á Sauðárkróki,
strieymir þangaðl m,úgur og |marg.
menni úr héraðinu. Er þá efnt til
allskonar skemtana og nytsamlegra
samkvæma. Þar eru háðir sjónleik.
ir söngskemtanir, þulin kvæði o. fl.,
flutt erindi um héraðs- og lands.
mál og settir málfundir, þar sem mál_
in eru rædd og kapprædd. Á Krókn.
um eru þá samkomur á fleiri stöðum
en einum samtímis. Fyrirlestrar og
málfundir standa fram á nætur.
Einn þáttinn í þessari héraðsgleði
á “Bændakór Skagfírðinga”. Nokkrir
fyrirtaks raddmenn i héraðinu hafa
tim mörg ár haldið úppi æfingum og
kórsöng undir forustu Péturs Sig-
urðisisonar frá Geirmundarstöðúm.
Æfingarnar sjálfar mega teljast
þrekvirki. Bændurnir búa dreifðir i
víðlendu héraði. Sumir þeirra eru
nokkuð við aldur. Þeir láta ekkert
hamla þvi að þeir komi saman til
æfinga. Launin eru þau, sem hinn
ósíngjarni listaáhugi vinnur sér oft.
ast: fremd i listinni, viðfleygt orð-
spor og þakklæti fólksins. í “Sælu.
vikunni” gefst mörgum héraðsbúum
kostur á að njóta þeirrar skemtunar
og andlegu hressingar, sem listamenn
þessir -hafa að bjóða.
I Skagafirði er félag, sem heitir
“Framfarafélag Skagfirðinga”. Starf
semi þess er aðallega vekjandi. Það
hefir til umhugsunar og umræðu al-
menn mál og þó einkufn innanhéraðs.
mál.‘ Þetta félag beitist fyrir þvi að
erindi séu flutt og málin rædd í
“Sæluvikunni”.
Þessi allsherjarhátíð héraðsbúa,
stendur mjög djúpum rótum í hugum
þeirra. Alt árið hlakkar fólkið til
“Sæluvikunn^r”. Hvert ár er að
einum þræði undirbúningur þess, er
þar á að fara fram. Svo þegar upp
renna hinir þráðu dagar, er uppi fót.
ur og fit. Allir, sem að heiman kom-
ast, halda ti! Sauðárkróks. Séu ísa.
lög á héraðinu og veður góð, getur
orðið svipmikil för fólksins i löngum
sieðalestum eða á góðhestum Skaga-
fjarðar, Þá gerist mikil glaðværð
í héraði og hugarhrif fólksins.
Hvað er það svo, sem gerist i
“Sæluvikunni”? T fyrsta lagi eru
rædd vandamál héraðsins á fundi
sýslunefndarinnar. í öðru lagi er
skemt gömlum og ungum. I þriðja
lagi eru héraðs. og þjóðmál reifuð
og rædd á almenuum málfundum.
Merkur maður í Skagafirði skrifar
ritstj. Dags um þann þátt síðustu
“Sæluvikunnar”:
“Sýslufundur er nýlega um
garð genginn. Siðara hluta vik-
unnar lét Framfarafélagið að
vanda halda fyrirlestra. Þá fluttu:
Jónas læknir 2, Páll skólastjóri 1,
Sigurður Þórðarson, Nautabúi, 1,
Sigurður Sigurðsson sýstumaður
1, séra Lárus Arnórsson 1, séra
Hallgrimur Thorlacius 1, og Ól-
afur Sigurðsson á Hellulandi 1.
Umræður voru á eftir, og voru
einkum miklar umræður á eftir
fyrirlestri séra Lárusar, er var um
þegnskylduvinnuna. Átti hún á-
gæta formælendur, svo sem Jónas
lækni, séra Hálfdan, sýslumann,
Pétur á Hraunum, Signrgeir Dan
íelsson og fleiri. Meðal andmæl-
endanna voru þeir Pétur Sighvats
son, Sigurður á Veðramóti, séra
Arnór í Hvammi og Margeir á
Ögmundarstöðum. Af 17 ræðu.
mönnum, voru 10 meg en 7 móti og
töluðu margir oft.”
í fjórða lagi verða náin kynni' hér.
aðsbúa, er þeir hafa svo langa dvöl
saman á mörgum samkomum og
skemtunum og þess á milli margvís-
lcg.i samfundi á gistingastöðum. Þar.
hreyfa einstakir menn áhugamálum
sínum og þar getuf orðið undirbúinn
framgangur nauðsynjamála héraðs-
ir.s.
Gildi stórra samkvæma liggur oft-
as: að miklu i kjmningu fólksins,
jaínvel þótt fátt gerist þar annað, en
ag fundum manna beri saman. Al.
þingi íslendinga til forna var slik
n’.enningarstofnun vegna samfunda
höíðingja og almennings viðsvegar
að af landinu. “------auðigur þótt-
umk, er ek annan fann, maðr es
manns gaman”. — Mál skýrast
bezt, hugur skilst gerst og samúð
getur vaxið upp á milli fjarstaddra
manna, þegar rætt er orði til orðs og
undir fjögur augu. Við slík náin
kynni falla niður margir fordómar
og andúg hjaðnar, en skilningur og
velvild glæðist, þar sem áður var
deyfð, kuldi eða þverúð ókunnleik-
ans.
Islendingar þurfa fleiri þesshátt-
ar samkvæmi. Þeir þurfa fjölmennar
samkomur og langvarandi — náms-
skeið, sýningar, héraðshátiðir og
sæiuvikur að hætti Skagfirðinga.
Við þurfum meiri samkynni, meiri
hugblöndun og meiri samræður um
málefni þjóðarinnar. Dagur hefir
hér vakið máls um “Sæluviku Skag.
firðinga”, af því að hann telur hana
harla merkilegan og eftirbreytnisverð-
an héraðshátt. Önnur héruð landsins
eiga að taka hann upp. Hvenær sem
héruðin eignast góða menn, myndu
slik almenn mót verða eins og opin
leið að hugum fólksins. Þau mót
h'ytu að verða að menningarstofnun
í hverju héraði.
“Sæluvika” er vel valið heiti.
AHmjög þykir mönnum bresta á sælu
i lifinu. Heldur þykir lífið i íslenzk_
um sveitum daprast. Mestu skiftir
jafnan að vel sé hagnýtt það, sem
vö! er á. Mannfundir geta átt mik.
inn þátt í að auka birtu í lifinu og
svifta af hugum manna viðjum vana
og hversdagsdeyfðar. Minningar frá
þvílikum leiðamótum almennings geta
orðið sterkar, örfandi og sælar. Nafn_
va! Skagfirðinga er ekki út í hött.
Að baki þess liggja merkileg lífs-c
sar.nindi. Öll héruð landsins þurfa
að eignast slíkar “Sæluvikur” á vetr.
um og “sæludaga” á vorin á héraðs.
mótum undir berum himni.
(Dagur.)
----------x-----------
Þýzki
vísindaleiðangurimi.
Islendingur býst við, að mönnum
leiki hugur á að fá einhverja vit-
neskju um það, hver sé tilgangur
þýzka visindaleiðangursins, sem get-
ið var hér i blaðinu um daginn, og
tekig hefir sér dvöl hér í sumar. —
Ritstj. fór því á fund foringja leið-
angursins, frk. dr. Rose Stoppel, sem
privat-docent við háskólann í Ham.
borg, og bað hana upplýsinga.
Brázt hún vel við þesum tilmælum
vorum, þótt hún léti þesa getið, að
á þessu stigi málsins væri ekki hægt
að gefa nákvæmar upplýsingar. —
Framkvæmd rannsóknanna er stjórn
að af vísindamönnum Hamborgar.
háskóla. Þær hvila á eldri rannsókn.
um, sem frk. dr. Stoppel hefir gert
á sviði jurtaliffræðinnar, en þær ná
einnig inn á svið lifeðlifræði manns.
ins, og fara þá fram undir stjórn
dr. med. Voelker, aðstoðarmanns við
lyfjarannsóknardeild háskólans. Auk
þess eru þeir stud. rer. nat. Holm og
Unna aðstoðarmenn þeirra.
Rannsóknirnar snerta aðallega at-
huganir á mismunandi áhrifum dags
og nætur á jurtir og dýr. Er sérstakt
tillit tekið til ásigkomulags loftsins,
einkum að því> er snertir móttækileika
þess fyrir leiðslu rafstrauma, og eru
því gerðar sérstakar rannsóknir ,á
daglegum “rhytmus” í svefni og vaxt
arfj rirbrigðum, og á svefni og efna-
skiftum mannlegs líkama. Samskon.
ar rannsóknir hafa nú um lengri
tíma verið gerðar i Hamborg.
Akureyri hefir nú verið valin sem
rannsóknarstaður, ef verða skyldi
vart einhvers mismunar vegna hnatt-
arafstöðunnar.
Leiðangurinn biður oss að láta
þakklæti sitt í ljós fyrir frábærar við
‘tökur og hjálpfýsi hér á Akureyri,
sem hefir gert þeim fært að koma
vel fyrir hinum margbrotnu áhöld-
um, er með þurfa við rannsóknirnar.
(Islendingur.)
Amaranth..........
Ashem............
Antler............
Árborg ......... ,
Baldur...........
Beckville.......
Bifröst.........
Brendenbury .. ..
Brown ...........
Churchbridge ... ..
Cypress River ..
Ebor Station .. ..
Elfros............
Framnes.........
Foam Lake .. ..
Gimli............
Glenboro ........
Geysir...........
Hayland...........
Hecla............
Howardville .. ..
Húsavík.........
Hove..............
Icelandic River ..
ísafold.........t
Innisfail.......
Kandahar .........
Kristnes........
Keewatin.........
Leslie...........
Langruth..........
Lillesve..........
Lonley Lake .. ..
Lundar ...........
Mary Hill .. .. ..
Mozart...........
Markerville .. ..
Nes..............
Oak Point........
Oak View..........
Otto............
Ocean Falls, B. C,
Poplar Park .. ..
Piney............
Red Deer.........
Reykjavlk .. .. ,
Swan River .. ..
Stony Hill........
Selkirk...........
Siglunes.........
Steep Rock .. ..
Tantallon.........
Thornhill........
Víðir............
Vancouver .......
Vogar ...........
Winnipegosis .. ..
Winnipeg Beach .
Wynyard...........
Narrows.........
.. .. Ólafur Thorleifsson
.. .. Sigurður Sigfússon
...........Magnús Tait
........G. O. Einarsson
.......Sigtr. Sigvaldason
.......Björn Þórðarson
. .. Eiríkur Jóhannsson
.. .. Hjálmar Ó. Lofsson
.. Thorsteinn J. Gíslason
.. ... Magnús Hinriksson
..........Páll Anderson
..............Mag. Tait
.. .. J. H. Goodmundsson
.. .. Guðm. Magnússon
...........John Janusson
............B. B. ólson
...........G. J. Oleson
.......Tím. Böðvarsson
.......Sig. B. Helgason
.. .. Jóhann K. Johnson
. .. Thorv. Thorarinsson
x.......John Kemested
.......Aiidrés Skagfeld
........Sv. Thorvaldsson
.............Ámi Jónsson
.. 4. Jónas J. Húnfjörð
. .. ,. .. A. Hjelgason
............J. Janusson
..........Sam Magnússon
......Th. Guðmundsson
.. .. ólafur Thorleifsson
........Philip Johnson
........Nikulás Snædal
........... Dan. Lindal
.. Eiríkur Guömundsson
........Jónas Stephensen
.. .. Jónas J. Húnfjörö
...........Páll E. Isfeld
.........Andrés Skagfeld
.. .. Sigurður Sigfússon
........Philip Johnson
........J. F. Leifsson
.. .. .. Sig. Sigurðsson
........S. S. Anderson
........Jónas J. Húnfjörö
.......Nikuláfi Snædal
........Halldór Egilsson
.........Philip Johnson
. .. Sigurgeir Stefánsson
........Guðm. Jónsson
........Nikulás Snædal
........Guðm. ólafsson
.. .. Thorst. J. Gíslason
........Jón Sigurðsson
Mrs. Valgerður Jósephson
.........Guðm. Jónsson
........August Johnson
........John Kernested
........F. Kristjánsson
.. .. Sigurður Sigfússon
f BANDARIKJUNUM:
Akra, Cavalier og Hensel
Blaine..................
Bantry.................
Edinburg................
Garðar..................
Grafton...............
Hallson...............
Ivanhoe .............. ,
Los Angeles.............
Miltor.................
Mountain...............
Minneota................
Minneapolis............
Pembina.................
Point Roberts...........
Spanish Fork...........
Seattle.................
Svold..................
Upham.................
.. .. Guðm. Einarsson
.. .. St. O. Eiríksson
,. ,. Sigurður Jónsson
.. Hannes Bjömsson
.. .. S. M. Breiðfjörð
. .. Mrs. E. Eastman
. .. Jón K. Einarsson
.. .. G. A. DalmaúB
.. G. J. Goodmundsson
......F. G. Vatnsdal
.. Hannes Björnsson
.. .. G. A. Dalmann
........H. Lárusson
.. Þorbjörn Bjömsson
.. Sigurður Thordarson
.. Guðm. Þorsteinsson
Mrs. Jakobína Johnson
.. .. Bjöm Sveinsson
. .. Sigurður Jónsson
The Viking Press, Limited
Winnipeg, Manitoba.
p. o. BOX 3105
853 SARGENT AVE.