Heimskringla - 19.10.1927, Blaðsíða 1
XLII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MAN., MIÐVIKUDAGINN 19. OKTÓBER 1927.
NÚMER3
SCCOðOOðSO&eOQCCQOSCCOOOOSOSOSOCCOðOSeOSOSOOCOSCOCOOOS.
I CANADA 1
Formaður Hveitisamlags Can
ada, A. J. McPhail, skýrði frá
því í morgun, að þá hefði verið
greidd síðasta afborgun til
Uænda, rúmir 19 miljón dálír,
fyrir uppskeruna í fyrrasumar.
Uar af fær Saskatchewan sam-
lagið 12,929,207, Alberta sam-
lagið $4,198.587 og Manitoba
samlagið $2,085.575. Verðflokk
unin hefir þá orðið þannig, eft-
ir þessa loltaborgun: — No. 1
Northern, $1.42; No. 1. Durum,
$1.45; No. 2 Northern, $1.37J;
No. 3 Northern, $1.31; No. 4
Northern, $1.21 J; No. 5, $1.09;
No. 6, 974c.
Mr. McPhail skýrði frá því,
að kostnaður við starfrækslu
fylkjasamlaganna hefði veriö
dreginn frá lokaborguninni. Að
auki drógu fylkjasamlögin frá
fyrir verzlunar- og varasjóði,
það sem til tekna færist með-
limum. Samlagsfélagar fá vexti
af þeim peningum, sem þeir
hafa lánað samlaginu til korn-
lyftu varasjóðs (elevator re-
serve), sem nota skal til endur-
bóta á starfrækslu kornlyftanna.
Eftir |því sem Mr. McPrhail
segist, hefir kostnaður við aðal
sölustöðvarinnar fyrir uppskeru
árið 1926—27, ekki numið full-
um einum fimta úr centi á mæl
irinn. — Og með þessum rúm-
um 19 mlijón dölum, er nú voru
greiddir síðast, hafa samlögin
greitt alls meðlimum sínum, frá
því Alberta samlagið var stofn-
sett 1921, rúma sex hundruð
sjötíu og fjóra miljón dali. —
Hinu mikla allsherjarþingi
conservatíva lauk á miðviku-
dagskvöldið er var, eftir að hafa
Atvinnuleysi í ýmsum
löndum.
staðið yfir í þrjá daga eins og til
stóð.
Ekkert sögulegt gerðist á
þinginu , annað en flokksfor-
ingjakosrtingin, eftir brýnuna,
er þeir slógu Meighen og Fergu-
son. Var það efni látið falla
niður jafnharðan, og tók enginn
upp þráðinn aftur, með því að
almennt var viðurkennt að það
væri íkveikur tundurþráður, er
leitt gæti til bókstaflegrar
sprengingar. Ríkti sátt og sam
lyndi milli þingmanna um öll
aðalatriði, það er eftir var fund
arins.
Flokksleiðtogi var kosinn síð-
asta daginn og voru 6 í kjöri:
Bennett, Cahan, Drayton, Guth-
rie, Manion og Rogers. Hlaut
Bennett við fyrstu atkvæða-
greiðslu 594 atkvæði, Cahan
310, Drayton 31, Guthrie 345,
Manion 170, Rogers 114. Við
næstu atkvæðagreiðslu fékk
Bennett 780 atkvæði og var það
rétt rúmlega helmingur allra
greiddra atkvæða, og hann því
rétt kosinn flokksforingi. Vann
hann mest frá Cahan, Drayton
og Rogers. Var samþykkt til-
laga frá Guthrie, er allir hinir
umsækjendurnir studdu, að
kjósa Mr. Bennett í einu hljóði
og var svo gert. Síðan þakkaði
hinn nýi flokksforingi kosning-
una.
Yfirleitt var ekki annað að
heyra á þinginu, en að fundar-
menn væru mjög ánægðir með
kosninguna og teldu — eins og
flest blöð gera — að flokkurinn
hefði sjálfsagt ekki átt völ á
hæfari manni, að minnsta kosti
ekki úr því hvorki Meighen eða
Ferguson gáfu kost á sér.
fjórðung þessa árs 10,609 at-
vinnulausir að öllu leyti, en 2l,-
306 höfðu mjög stopula vinnu.
vitað hafa fæstir þeirar er at-
vinnulausir voru, fengið styrk.
Finnland.
í maílok vqru 1239 atvinnu-
lausir í bæjum, en 1737 voru at-
vinnulausir í apríllok. (Skýrsl-
ur sem þetta er tekið eftir, ná|
ekki nema til lítils hluta verka-
lýðsins).
Holland.
Eftir því sem sem skýrslur
frá atvinnuleysissjóði rlkfsins,
er nær til 196,188 verkamanna,
herma, voru 20,993 þeírra at-
vinnulausir í apríllok.
ítalía.
Af þeim, sem, sem skrásettir
höfðu verið í ítalíu, voru alger-
lega atvinnulausir frá 1. janúar
til 1. apríl þ. á., 227,947, en 61,-
599 höfðu mjög stopula vinnu.
írland.
Af 246,134 atvinnuleysis-
tryggðum verkamönnum voru í
apríllok 25,939 atvinnulausir.
Noregur.
16. maí í vor voru 23,811 at-
vinnulausir. (Tala atvinnu-
lausra steig mikið þegar á leið
sumarið.)
Pólland.
í apríllok voru atvfnnulaus-
ir 195,363, en í marzlok 208,-
267.
Sviss.
Þar voru í apríllok 13,568 skrá-
settir atvinnuleysingjar.
SvíþjóS.
Samkvæmt skýrslum frá
verkalýðssamböndum, er hafa
258.333 félaga, voru í apríllok
31,882 atvinnulausir, eða 12,3%
En allra nýjustu skýrslur herma
að um 60,000 verkamenn séu
atvinnulausir í öllu landinu.
Ástralía.
Eftir því sem opinberar skýrsl
ur frá verkalýðsfélögum í Ást-
ralíu herma, hefir atvinnuleysið
verið þar ?em hér segir: Af
442,000 verkamönnum, ’s'em létu
skrásetja sig, voru fyrsta árs-
fjórðung þessa árs 3,9% at-
vinjnulausir allan átsfjórðung-
inn. Síðasta ársfjórðung fyrra
árs voru 5,7% skrásettra at-
vinnulausir, en fyrsta ársfjórð-
unginn f. á. 6,7%.
Belgía.
Eftir því sem skýrslur at-
vinnuleysissjóða, sem 608,250
verkamenn eiga, voru fyrsta árs
Danmörk.
Skýrslur frá sambandi verka-
lýðsfélaga, er í eru 274,428 félag
ar, telja 20,1% af þeim atvinnu-
lausa allan fyrsta ársfjórðung
þessa árs. En um miðjan júní
voru í öllu landinu 53 557 at-
vinnulausir.
Þýzkaland.
Á tímabilinu 15. maí til 15.
júní var tala atvinnulausra frá
806,000—969,000.
Frakkland.
Tala þeirra er höfðu fengið
atvinnuleysisstyrk frá 1. janúar
þ. á. til 1. júní, var 47,827. Auð-
Ungverjaland.
Samkvæmt skýrslum frá verk
lýðssamböndum, er ná yfir 154,-
000 verkamenn, voru í apríl 17,-
120 þeirra1 atvinnulausir.
Tékkóslóvakía.
Samkvæmt skýrslum frá op-
inberum atvinnuskrifstofum
voru í maíbyrjun 60,260 atvinnu
lausir; þar af nutu styrks tæp
22,400 verkamenn.
Bandaríkin.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um, sem eru byggðar á tilkynn-
ingum frá 10,537 atvinnurekend
um, voru í marzlok 3,091,873
atvinnulausir, en í apríllok 3,-
071,884.
Austurríki.
Atvinnulausir verkamenn, er
urðu styrks aðnjótandi í maí,
voru 158,332 að tölu. Þar við
bætast 21,000 atvinnuleysingjar,
er urðu einskis styrks aðnjót-
andi, vegna þess að þeir áttu
ekkert fast heimili (!).
England.
Tala atvinnulausra á Eng-
landi var um miðjan maí 1.-
015,000 — ein miljón og fimtán
þúsund. 1 Englandi búa um 40
miljónir manna. Til samanburð-
ar má geta þess, að í öllu Rúss-
landi voru í maíbyrjun 1,428,000
sem höfðu stopula atvinnu.
Flestir þeirra fengu atvinnuleys-
Kaupendur Heimskringlu!
Lesið Þetta!
Þeir íslendingar hér vestra sem hefðu í hyggju að
minnast frændfólks síns eða vina heima á gamla land-
inu, um eða fyrir jólin, gætu það á mjög tilhlýðilegan
hátt með því að senda þeim Heimskringlu í jólagjöf. Til
allra nýrra kaupenda, er skrifa sig fyrir blaðinu fyrir
1. desember þessa árs, eða allra þeirra sem skuldlausir
eru um áramót, býðst þeim blaðið, sent heim til Is-
lands í heilt ár, fyrir eina tvo dollara, ásamt mjög smekk-
legu jólakorti. Ef þið kaupið ekki Heimskrnglu, þá send
ið fimm dollara fyrir ykkar eigið blað og blað til kunn-
ingja ykkar á íslandi.
MANAGER VIKING PRESS LTD. ^ 's i
« ^ [ ^853 Sargent Ave., Winnipeg.
Stephan G. Stephansson.
(Ort þegar fregnin kom um lát hans)
w
I
i
í
Þú varst hæstur meðal manna,
meistari allra konunganna.
Ódauðleikans undrasál
allra tíma skildir mál.
Hver vdl vaka yfir eldi?
Andinn stærsti í Bretaveldi
horfinn er af hæstu brún,
hefir dregið segl að hún. —
Alþjóð sýnir enga lotning; ,
aðeins göfug mannvits drottning
beygir höfuð há og fríð,
harmar fyrir blindan lýð.
I
Norrænn varstu að eðli og ættum; 5
íslenzkur í sorg og hættum. j
Spekin eins og úthaf stór,
eins vel skildir Krist sem Þór. j
Hervíkinga hugdirfð barstu. j
Hákristnastur allra varstu.
Kirkjunni og klerkum þú j
kennt gazt hina sönnu trú. 4 ’
I
Aldirnar þér aldrei gleyma.
Inn í nýja sólarheima • *?: j
ljóð þín ætíð leiða hann —
sem leitar uppi sannleikann. ’ j
Jónas Stefánsson
frá Kaldbak. • |
3
isstyrk. En í Rússlandi búa um
130 miljónir manna.
Þetta eru dökkar skýrslur.
Þær sýna betur en nokkuð ann-
að, að eitthvað er bogið við
þjóðfélagsskipunina, sem bygg-
ist á “einstaklingsframtakf' og
“frjálsri samkeppni”.
(Alþýðublaðið.)
---------x--------
Fjcer og nær,
Mr. Helgi Johnson knattstofu
eigandi, fór vestur til Sakatche-
van á föstudagskvöldið var, að
heimsækja bróður sinn, er legið
hefir allþungt haldinn á sjúkra-
húsi vestur þar; en mun nú vera
á batavegi. Mr. Johnson kom
aftur í gærmorgun.
Skemtikvöldið, sem getið
var um í síðasta blaði og aug-
lýst er enn í blaðinu í dag, verð-
ur haldið á mánudagskvöldið
kemur. og ættu menn að muna
bæði daginn, stundina og stað-
inn, en það er 24. október, kl.
7.30 e. h. í fundarsal Sambands
kirkju. — Það er áreiðanlega ó-
hætt að segja að menn muni
skemta sér vel þar, þó ekki
verði dans, það er að segja þeir
sem annars kunna að skemta
sér.
Fjölmennið því.
Hér vaf staddur eftir Helg-
inaa Mr. Kr. B. Snæfeld frá
Hnausaþorpi í Nýja Islandi. —
Sagði hann gott eitt neðan að.
---------x--------
Frá Islandi.
Rvík. 17. sept.
SHdarbræSslustöS á NorSur-
landi. — Á síðasta þingi var sam
þykkt svohljóðandi þingsálykt-
unartillaga frá M. Kristjánssyni:
“Sameinað Alþingi ályktar að
skora á ríkisstjórnina: 1. að láta
á næsta sumri rannsaka hvað
síldarbræðslustöð á Norðurlandi
em gæti unnið úr allt að 2000
tunnum á sólarhring. 2. að gera
ráðstafanir til þess, að nægilegt j
land með fulltryggum lóðarrétt-
indum verði fyrir hendi, þegar
til byggingar slíkrar stöðvar
kemur”. — Nú hefir atvinnu-
málaráðherrann skipað Jón al-
þingismann Þorláksson til þess
að framkvæma rannsóknina. og
er hann farinn norður í þeim er
indum.
Heyskapur er nú alstáðar að
enda. Hefir hann yfirleitt geng
ið ágætlega. Heyfengur er sum-
staðar í meðallagi, en viðar með
bezta móti. Nýting er alstaðar
góð.
Uppskera úr görðum er ág£t,
einkum kartöflur. Má telja víst
að aldrei tyr hafi fengist jafn-
mikið af kartöflum hér á landi
og í haust.
Síldveiði er nú að hætta. Hef-
ir aldrei veiðst jafnmikið og í
sumar, en langmest af aflanum
hefir verið sett í bræðslu. Þorsk
afli er víða góður.
Útflutningur á íslenzkum af-
urðum í ágúst nam 8,612,690
kr. Allur útflutningur fyrstu 8
mánuði ársins hefir orðið 30,-
109,890 krónur og er það rúm-
lega fjórum miljónum meira en
á sama tíma í fyrra.
(Tíminn.)
---------x--------—
Hilda Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir Krist-
jansson.
f. 24. jan. 1922—d. 22. maí 1927
Hilda Sigurbjörg var aðeins
fimm ára og fjögra mánaða er
hún dó. Æfin varð ekki löng;
æfisagan verður það ekki held-
ur. En þeir sem urðu henni
samferða þessa stuttu lífsleið,
hafa þó svo margs að minnast
i og margt um hana að segja. Og
ljúft er þeim er þetta ritar að
geta varpað yfir hug lesandans
nú eða síðar, örléttum, hlýjum
andblæ veru hennar og lífs.
Hún fæddist að Kristnesi,
Sask., 24. janúar 1922. Foreldr-
ar hennar eru hjónin Guðmund-
ur Kristjánsson Stefánssonar
frá Þorvaldsstöðum í Vopna-
firði og Emma, Sigurðardóttir
Stefánssonar. Af fimm dætr-
um sínum hafa þau nú misst
tvær. Hallfríður dó 1921. Hilda
Sigurbjörg var hin þriðja í röð-
inni. Hún var löngum hraust,
fjörmikil og glaðsinna. En á
útmánuðum síðastliðinn vetut*
sýktist hún af liðagigt, er síðar
veiklaði hjarta hennar. Hún
andaðist árla morguns 22. maí,
og var jarðsungin með aðstoð
undirritaðs 24. s. m.
Hún var, að sögn, sérlega skýr
og greind, eftirtekt og næmi og
minni hafði hún svo trútt, að þá
furðaði á er til þekktu.
Hýr og sviflétt sólskinsvera;
svolítill lífsglaður ljósálfur; efni
legt, bráðvaxta barn, — það var
Hilda litla Sigurbjörg — ðllum
ástvinunum og samferðamönn-
unum. Húp var von og yndi for
eldra sinna og augasteinn afa
og ömmu.
FriSrik A. Friðriksson,
0M
S SKEMTIKVÖLD
TOMBOLA - SPIL
KAFFIYEITINGAR
í SAMKOMUSAL SAMBANDSSAFNAÐAR
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 24. OKTÓBER 1927. Kl. 7.30
Að tilhlutun og undir umsjá nokkurra félagslyndra með-
lima Sambandsafnaðar. Aðeins fáir drættir en góðir;
svo sem eitt tonn af kolum,hveitisekkir o. fl.. — Spila-
borð og spil verða á takteinum; og kaffi verður selt með
bakningum — lummum, pönnukökum og fleiru góð-
gæti.
Aðgangur aðeins 25c og fá menn einn tombólu-
drátt með honum.
ft