Heimskringla - 10.10.1928, Síða 7
WINNIPEG 10. OKT 1928
KE1MSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
ROYAL
YEAST
CAKES
GERIR
AFBRAGÐ
HEIMATIL-
BÚIÐ
BRAUÐ
ræktaS ár eftir ár í sex ár, og alltaf
fengiö útsæði af eigin akri til næsta
árs. Þetta er Dönnes-bygg aö upp-
runa, en virðist nú þroskalegra á-
sýndum en Dönnes-byg.g það, er
sprottiö befir af útsæði sem fengið
er í ár. Af höfrunum eru Niðar-
hafrar efnilegastir að sjá. Alls
hefir hann níu hafra-brigði.
Gerir Ivlemens sér vonir um að fá
um 20—30 tunnur af korni í sum-
ar.
Klemens hefir nýlega ferðast um
Svíþjóð og Noreg, og heimsótt 18
tilraunastöðvar. Telur hann sig nú
mun öruggari en áður í hinu þýðing-
armikla starfi, er hann hefir valið
sér.. Dugnaður hans og áhugi er
annálsverður, og er vonandi að Bún-
aðarfélag Islands sjái um, að hann
geti notið sin sem bezt í framtíðinni.
Grasfrærækt hans á Mið-Sám-
stöðum er jafn merkileg og jafnvel
þýðingarmeiri fyrir landbúnað vorn,
en kornræktin. Frá henni verður
sagt hér síðar.
—Isafold.
(Frh. frá 3. bls.)
jarðræktinni. F.n þeir verða aðaj-
jcga notaðir til heyja, þótt þeir þrosk
'st fullnustu i hlýjum sumrum.
Tilraunir þær, er Klemens gerir,
með by.ggrækt, miða aðallega að því
Ivennu, að athuga hver áhrif það
e lr á þroska byggsins hvenær því
er sað að vorinu, og hver áburðar-
þörf þess er.
Notar hann hér um bil eingöngu
filbúinn áburð í tilraunaakur sinn.
Sáðtima-tilraun hans með bygg,
er framhald af tilraunum þeim, er
ann Serði hér í nokkur ár í Alda-
'"ótagarðinum. Hefir hann öll
ar,n sað óygginu í fernu lagi, þ. 21.
apri1, T, 10., og 20. maí Hefir
j nuni re>’nst bezt að sá þvi sem
y"St- p'n 1 sumar þroskast jafn-
ast sem sað var f’i se'11"
í áburðatili aunareitunum
ti-oskast bygg hans jafn ye, . ^
•j. /f’ Seni engan áburð hafa feng-
’ . ’ llPI)s*<eran þar verði vitanlega
mjog rýr.
Fjogur afbrigði hefir hann af
yggi, og er Dönnes-bygg enn sem
yr það afbrigði hans, sem nær fljót-
"StUm Þroslra. Hann hefir þarna
>gg af stofni jæim, er hann hefir
Hákarlaveiðar verða stðrgróðafyrir-
tœki.
Skrápurinn útrýmir öllu leðri Ætla
Danir að reisa sútunarverk-
smiðjur á Islandi?
Amerízkur verkfræðingur, dr. Éhr-
enreich, hefir fundið upp aðferð til
þess að súta hákarlsskráp svo að
hann verður eins og fínasta leður
til skógerðar, töskugerðar, o. s. frv.
Hefir nýlega verið stofnað afarfjár-
sterkt hlutafélag í London til að hag-
nýta uppgötvun þessa í stórum stíl.
Er það álit sérfróðra manna, að und-
ireins og hákarlsskrápurinn fer að
koma sútaður á markaðinn, þá muni
gjörbreytast öll leðurverzlun heims-
ins og skrápurinn útrýma skinnum
algerlega í ýmsum iðnigreinum.
Dr. Ehrenreidh gerðii fyrstu til-
raunir sínar suður í Astralíu á skráp
af beinhákörlum, en síðan hann kom
til London, hefir hann sútaS skráp
af þeim hákarli, sem er hér í norður-
höfum, og hefir árangurinn orðið
jafn góður. Alítur hann með þessu
sé opnuð ný veiðináma í Norðurhöf-
um og líklegt að það verði stór-
gróða uppgrip að veiða hákarl. Nú
er hákarl aðeins veiddur vegna lifr-
arinnar, en hér eftir verður skrápur-
inn margfalt meira virði heldur en
lifrin.
I Danmörku er nú verið að stofna
voldugt hlutafélag til hákarlaveiða og
ætlar það félag að haignýta sér upp-
götvun Ehrenreichs. — Segir “Morg-
enavisen” norska, að búist sé við að
félagið láti reisa sútunarverksmiðjur
á Grænlandi, Islandi og Færeyjum.
Að félaginu standa margir helztu at-
kvæðamenn Dana í fjármálum og
iðnaði, og félagið mun hafa stórfé
yfir að ráða.
Væri ekki reynandi fyrir Islendinga
að kynna sér þetta mál áður en jafn-
réttisbræður okkar við Eyrarsund
hafa komið sér svo fyrir hér á landi.
að þeir geti makáð krókinn í ró og
næði á okkar kostnað ?
Dr. Hannes Þorsteinsson
þjóðskjalavörður varð 68 ára þann
30. ágúst s. 1. Mættu nokkrir af
vinum hans og vandamiinnum heima
hjá honum um kveldið og mælti þá
einn þeirra, séra Guðlaugur Guð-
mundsson stökur Jressar af rrrunni
fram, um leið og hann mælti fyrir
minni afmælisbarnsins.
Þinn mun ’tróðurs skreyttan skjöld
skoða þjóðin siðar.
Þú hefir fróðleik fluttan öld
fram úr móðu tíðar.
Gleði — lýsi lífs um stig
ljós, í sölum þinum.
Hamingjudísir hlýjjar þig
höndum vermi sínum.
Skeyti barst hingað fyrir nokkrum
d,ögum austan úr Rangárvallasýsllu
þess efnis, að skepnu eina ferlega
hefði rekið á fjöru i Landeyjum ná-
lægt Þverá. Fylgdi það sögunni
að vöxtur skepnunnar og útlit allt
væri með fádæmum. Giskuðu ýms-
ir á, að hér væri kominn “Þverár-
skatan” nafntogaða, sem munnmæli
segja að hafist við í ánni. En að
athuguðu máli reyndist þetta “tún-
fiskur” svonefndur, sem aðallega á
heima suður í Miðjarðarhafi, en
flækist þó stundum norður á bóginn
og hefir a. m. k. einu sinni veiðst í
botnvörpu hér við land.
Reykjavik 8. sept.
Dráttarvél “tractor” keypti Bún-
aðarsamband Borgarfjarðar í sumar.
Var byrjað að vinna með henni 4.
júlí, og hefir síðan verið unnið
hvern virkan dag, oft 14—18 stund-
ir sólarhring. Með vélina hafa far-
ið til skiftis Magnús búfræðingur
Símonarson frá Brjánslæk og norsk-
ur maður sem dvalið hefir á Hvann
eyri. Fyrir hálfri annari viku sið-
an var búið að vinna ca. 60 dag-
sláttur. Rúmlega helmingurinn er
bæði plægður og heríaður, hitt að-
eins plægt. Hafði þá verið unnið
á 15 bæjum alls; 12 í Reykholtsdal,
2 í Andakílshreppi og einum í
Skorradal. Mest var unnið á 2
bæjum, Skáney og Varmalæk. Þar
sem bezt hefir gengið að þesu voru
plægðar og herfaðar 4 dagslátt. á
36 tímum. En vinnan er óvenju
erfið í sumar vegna þurka. Olíu-
eyðsla dráttarvélarinnar er 5 litrar á
klst. að meðaltali. Kostnaði er enn
eigi jafnað niður. Haldið verður
áfram vinnu fram eftir haustinu.
Síldaraflinn
A öllu landinu var 1. september s.l.
Saltsíld 90852 tunnur, kryddsíld 26
648 tunnur ag bræðslusíld 442567
hektolitrar.
Canadian National Railways
JÁRNBRAUTA OG GUFUSKIPA FARBREF
TIL ALLRA STAÐA Á JARÐARHNETTINUM
Sérstakar perðir tii I I eimalandsins
Ef þú ert að ráðgera að ferðast til ættlandsins á þessum vetri, þá láttu
ekki bregðast að ráðfæra þig við farbréfa^ala Canadian National
Railways. Það borgar sig fyrir þig. Farbréfasalar Canadian Nat-
ional Railways eru fúsir að aðstoða þig á allan hátt. Aukaferðir verða
margar á þessu hausti og vetri til heimalandsins og
Canadian National Railways selja farbréf á allar gufuskipalínur á Atlanzhafi og gera
allar ráðstafanir með aðbúnað á skipunum.
Fargjöld ódýr yfir Desembermánuð til hafnstaða
Átt j>ú vinj á Hejmalandinu sem
langar til að komast til Canada?
FERÐIST ÁVALT MEÐ
CANADIAN
NATIONAL
RAlLWAYS
EF SVO ER, og þig langar til að hjálpa þeim til að
komast hingað til þessa lands, þá komdu við hjá
okkur. Við ráðstöfum öllu.
ALLOWAY & CHAMPION, Farbréfasalar.
umboðsmenn allra línuskipafélaga
««7 MAIJÍ STREET AVIJVNIPRG SÍMI 20 861
Þúfnabaninn á Eyrarbakka
hefir í sumar brotið til nýræktar um
80 dagsláttur lands í Arnessýslu. Af
því eru 36 dagsl. á 9 bæjum í Gríms
nesi, 26 á tveimur bæjum íÖlfusi ag
18 á tveimur jörðum í Biskupstung-
um. Mun vélin taka að nýju til
starfa eftir helgina og vinna fram
eftir haustinu. Brýtur hún 2 dág--
sláttur lands á 10 klst. ef jörð er lág-
þýfð og. fer þrjár umferðir áður full
tætt sé og valtað. Fyrir nokkru
tar þess getið hér í blaðinu að vél-
in væri eign jarðræktarfélags Eyrar-
bakka. Var það á missögnum
bygt. Vélin er eign mannsins, sem
með hana fer, Sveins Jónssonar í
Halakoti.
Robert L. Ripley
blaðamaður frá New York var
staddur hér í sumar, þegar Islend-
ingaglíman var þreytt. Hefir hann
lýst henni í blaðinu “New ork Even-
ing Post,” og er greinin með mynd-
um, sem höf. hefir teiknað. Þar
eru myndir af Jóhannesi Jósefssyni,
Þorgeiri Jónssyni, Ben. G. Waage,
og auk þess tvær glimumyndir til
skýringar efninu. Höf. þekti Jó-
hannes Jósefsson að vestan og lýkur
maklegu lofi á íþróttir hans. Síðan
lýsir hann Islandsglímunni ag birtir
nokkurar glímureglur, sem Ben. G.
Waage lét honum í té. Frásöginin
af glímunni er fjörlega rituð og
greinin öll hin vjnsamlegasta í Is-
lands garð.
—Vísir.
FORD COKE
-All Sizes—
Western Gem Coal
Lump, Stove and Nut Pea
THE
WINNIPEG SUPPLY
& FUEL CO. LTD.
Tel. 876 15 — 2Í4 Ave.Bldg.
Ari Guðnason
mág. art. hefir verið settur kennari
við Ungmennaskólann í Reykjavík.
A samkv. lögum að vera einn fastur
kennari við skólann, auk skólastjór-
ans.
Asgeir Olafsson
er settur dýralæknir á Vesturlandi.
Jafnframt er aðsetur dýralæknisins
flutt frá Stykkishólmi til Borgar-
ness.
Blaðamönnum
var í síðastliðinni viku boðið að
skoða umbætur þær, er Thor Jensen
útgerðarmaður hefir látið fram-
kvæma á jörðum sínum Korpúlfs-
stöðum og Lagafelli í Mosfellssveit.
Þar var byrjað að brjóta Iand með
þúfnabana árið 1922. Nú er 150
hektara tún á Korpúlfsstöðum og
25 ha. á Lagafelli. Töðufengur hjá
Thor Jensen mun á þessu sumri vera
um 7500 hestar alls. Mýrarnar eru
ræstar fram að haustinu en tættar
sundur með þúfnabananum á næsta
vori og sáð í þær höfrum jafnskjótt
og landbrotinu er lokið. — Thor
Jensen hefir nú á jörðum sínum
nokkuð á þriðja hundrað kúa mjólk-
andi. A Korpúlfsstöðum hefir
hann í smíðum bæ all reisulegan, sem
á að vera allt í senn: Ibúð starfs-
fólks, fjós, hlaða og haughús.
Stofnað 1882.
Löggilt 1914.
D.D. Wood& Sons, Ltd.
KOLA KAUPMENN
Vér þorum að hætta mannorði voru og* velgengni
á viðskiftjn
SOURIS—DRUMHELLER
FOOTHILLS, SAUNDERS CREEK
POCAHONTAS, STEINKOL,
KOPPERS, SOLWAY EÐA FORD KÓK
ALLAR TEGUNDIR ELDIVIÐAR.
Not - Gæði - Sparnaður
Þetta þrent hafið þér upp úr því að skifta við oss
SÍMI: 87 308 Ross Ave. and Arlington Str.
Vér færum yðuir kolin hvenær sem þér viljið
Séra Þo-rsteinn Jóhannesson
á stað er löglega kosinn prestur i
Vatnsfirði. Hlaut hann 128 atkv.,
en Sigurður Haukdal cand. theol. 30.
Þér þurfið að láta hreinsa strompinn hjá yður, áður en
þér farið að nota hitunarvélina!
WOODS COAL COMPANY, LTD.
Pembina við Weatherdon
bjóða yður að gera þetta ókevpis, með því skilyrði að þér
kaupið af þeim eitt eða fleiri tonn af kolum, innan sextíu daga
þar frá.
Símið 45262 og vér sendum lögskipaðann sótara.
S K I F T I D
YÐAR FORNFÁLEGU HÚSGÖGNUM
Skiftið óþörfum og úr sér gengnum húsbúnaði upp í
nýjan. Símið eftir matsmanni vorum. F'áið hæsta verð
fyTir, Þér getið látið gömlu húsgögnin ganga upp í
þau nýju.
Viðskiftatimi
8:30 a.ai.
til 6 p.m.
Laugardögum
opið til
kl. 10 p.m.
SÍMI 86 667
J.A.Banfield
LIMITED
492 Main Street-
Húsgögn
tekin í
skiftum *eld i
sérstakri deild
með góðum
kjörum.
Flugvélarhjól
rak við Skaftárós fyrir nokkru síð-
an. Vegna einkenna, sem á því
eru hafa menn komist að raun um,
að það muni vera af þýzkri flug-
vél, sem lagði af stað í Atlanzhafs
flug 31. ágúst í fyrrasumar, en kom
aldrei fram.
. Gunnlaugur Clacssen, lakmr
j er nýfarinn utan til þess að verja
| doktorsritgerð sína í Stokkhólmi.
Þingtíðindi stórstúkunnar
eru nýkominn út. Hér á landi eru
nú rúmlega 80 stkur fullorðinna
' manna og rúinlega 50 barnastúkur.
í Templarar eru alls um 11500.
FARÞEGUM MÆTT VIÐ LENDINGU OG FYLGT TIL ÁFANGASTAÐAR
Breytingar á Hólaskóla
Það varð að ráði á síðasta þingi,
að verklegt nám i bændaskólanum á
Hólum skyldi aukið til miuna, en
jafnframt stofnuð sérstök deild nieð
kenslu í almennum fræðum. Vænta
flestir góðs af þeim breytingum, þvi
að löngum hefir verið að því fundið,
að verklega námið væri of lítið.
Skólastjóri á hólum er nú Steingrim-
ur Steinþórsson frá Litlu Strönd
við Mývatn.
ÞAÐ ERU TIL ÓTAL
PIAN0S
En það er yður bezt
að velja þag bezta
Anægjan og hrifningin er hafa má
út úr Piano og eigi verður annars-
staðar fundin, er fullkomnari við
Heintzman, Weber eða Gerard-
Heintzman en önnur. Þau eru þjóð
kunn og með þeim er mælt af
heilum herskara listamanna fyrir
hljómfegurð þeirra og endingu.
Hagsýnir kaupendur kannast við
jafnan borgi sig bezt að kaupa það
sem vandaðast er. Kaupskilmálar
hentugir.
Heintzman
Weber
Grand-Heintzman
J.J.H.MÍLEAN50
LTtt
329 PORTAGE AVE.
“Elzta hljóðfærabúð í Vesturlandinu’’