Heimskringla - 25.09.1929, Blaðsíða 6

Heimskringla - 25.09.1929, Blaðsíða 6
6. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 25. SEPT., 1929 EKKEHARD $ Saga frá 10. öld, eftir I. von Scheffel. Hér um bil tíu dögum eftir að munkarnir í Reichenau höfðu fundið öskuhrúguna í fanga klefanum og rætt það með sér, hvort djöfull- inn hefði sótt heim fangann um miðnættið og brent hann upp til ösku, eða hvort hann hefði sloppið, var maður á ferö upp með Sitter- ánni, og lá leið hans ýmist yfir blómleg engi, eða hann kleif upp hamrana og brekkurnar. Bar hann úlfhéðin yfir munkakufli sínum, og leðurpúss við hlið sér, og í hægri hönd hélt hann á spjóti, er hann notaði fyrir göngustaf. Kyrð og þögn ríkti allstaðar umhverfis. Þoku- slæðingur lá yfir dalsverpinu, þar sem Sitter- áin spratt upp, og fyrir dalbotninum gein við hrikalegur hamar, með grænum grassillum og bar við himinn. Fjallahlíðarnar sem nú eru þétt settar af glaðlyndum hjarðgæzlumönnum, voru þá í eyði og næstum óbyggðar. Niðri í dalnum var bústaðar ábótans frá St. Gall og umhverfis hann stóðu fáeinir kofar. Eftir blóðbaðið við Zulpick, höfðu nokkrir frelsisvinlr, sem ekki gátu beygt sig undir hið franska ok, setzt að í þessum óbyggðum. Afkomendúr þeirra lifðu þar enn í þessum dreifðu húsum, og ráku hjarðir sínar á sumrin upp í Alpafjöllin. Þeir voru að eðli sínu hraustir fjallabúar, gæddir góðum vitsmunum, sem ósnortnir af umheim- inum nutu liins frjálsa og einfalda lífs, er niðjar þeirra tóku í arf. Gatan, sem, ferðamaðurinn gekk varð stöðugt brattari og ósléttari. Á aðra hlið honum risu snarbrattir klettar alveg gróður- lausir. Og stórir vatnsdropar duttu niður á höfuð hans frá kalksteininum. Hann starði rannsakandi upp fyrir sig eins og til að at- huga hvort að þessir kuldalegu hamrar myndu fresta þ\u að falia unz hann var kominn fram- hjá þeim. En hamraveggir náttúrunnar standa lengur þó skáhallir og skakkir séu heldur en þeir sem gerðir eru af mannahönd- tim. Aðeins duttu nokkrir dropar, annars var allt kyrt í sínum skorðum. Hann studdi vinstri hendinni við klettinn til að styðja sig, um leið og hann skrefaði á- fram. Við hvert fótmál varð gatan þrengri, og hið drungalega djúp á hina hlið lionum færðist óðum nær. Að síðustu hvarf gatan alveg og yfir gjána láu tveir furutréstofnar sem hrú. “Það hlýtur að vera búið,” sagði hann og gekk djarflega yfir um. Og þegar hann hafði aftur fastan jarðveg undir fótum varp hann öndinni léttilega og leit til baka yfir hin hættulegu fótmál sem hann hafði stigið. Hann stóð á mjóum höfða, og fyrir ofan og neðan, voru snarbrattir, gulgráir klettaveggirnir. Langt niðri sást fjallalækurinn Sitter renna líkt og silfurband gegnum dalinn. Hinumegin hóf sig upp í loftið, hertýgjaður ís og snjó, hinn stolti foringi fjallarisanna, Kamor, stórfeng- legur og dúlarfullur. Þar gaf einnig að líta hamratinda Boghartenfirst, Sigelalp og Mar- wiese með toppana þakta ilmandi grasi; og því næst trúnaðarmann vatnsins, Öldunginn, með sínar hrukkóttu brýr og hélugráa haus, ráðgjafann og vildarvin hins volduga Sentis. “Þið fjöll drottins lofið hann,’’ sagði vegfarandinn gagntekinn af mikilleik útsýnis- ins. Mörg hundruö af fjallasvölum flögruðu út úr sprungum klettanna. Og þegar þær fljúga út með þeim hætti er það sagður góður fyrirboði. Hinn ókunni maður tók nokkur skref áfram og fyrir framan hann var kletta- veggurinn klofinn í marga parta. Opnaðist þar tvöfaldur hellir, og hjá honum stóð gróf- gerður trékross. Öðrumegin við hellirinn var staflað upp furubútum, og yfir þá var þakið með grenigreinum, með því sniði er helzt líkt- ist víggirðing þeirra tíma. Auðsjáanlega var þar mannabústaður, en þögnin ríkti- órofin af nokkuru hljóði. Gesturinn kraup niður fyrir framan kross- inn og bað lengi. Það var Ekkehard, og staðurinn þar sem hann kraup var Öræfakirkjan. Með skriðunni hafði hann komist heilu og höldnu niður í dalinn, og næsta morgun var hann örmagna og uppgefinn fyrir framan dyr Moengals gamla að Radolfszell. “Ó, að ég ætti dvalarstað vegfarandans í eyðimörkinni þá gæti ég yfirgefið þjóð mína, farið burt frá löndum mínum, serii eru samsafn af svikur- «m,” sagði hann með orðum spámannsins, eftir að hann hafði sagt sóknarprestinum sorgarsögu sína. Gamli maðurinn benti til Sentis. ‘‘Þú hefir á réttu að standa,” sagði Moengal. Jafn- vel St. Gall gerði það. “Út í óbygðina skal ég fara, og bíða þar komu hans, sem lækna mun sál mína af öllum meinum hennar,’’ mælti hann, og ef til vill myndi hann aldrei hafa orðið dýrðlingur, ef hann hefði mælt á aðra lund og farið öðruvísi að.’’ ‘‘Þér ber að vinna bug á þjáningum. Þeg- ar örninn er sjúkur og honum förlast sýn, flýgur hann upp á við, upp eins hátt og’væng- irnir bera hann. Að komast í námunda við sólina, vekur æskuna að nýju. Far þú eins að. Eg get sagt þér frá góðu hæli þar sem þú munt ná að hressast aftur.” Og hann lýsti leiðinni fyrir Ekkehard. “Þú munt hitta mann nokkurn þar efra, sem lifað hefir frásneyddur heiminum síðastliðin tuttugu ár. B.er þú honum kveðju* mína. Vera má að guð hafi fyrirgefið honum syndir hans.” Presturinn skýrði eigi frá því, hvaða synd- ir það voru, sem þessi gamli vinur hans var að reyna að bæta fyrir þar uppi í fjöllunum. Einu sinni í hallæri var hann sendur frá klaustri sínu til ítalíu til að kaupa kom. Kom hann til Verona og var þar vel tekið af Rath- eríusi biskupi hinum þrætugjarna, og baðst þar fyrir í hinni fögru dómkirkju, þar sem leifar hinnar heilögu Anastasíu voru varðveittar í óluktu gullskríni. Enginn var í kirkjunni og freistaði þá djöfullinn Gottskálks til að taka með sér menjar um þessa ferð sína heim til Þýzkalands, sVo hann tók eins mikið með sér af líkama dýrðlingsins og hann gat falið í klæðum. sínum, — handlegg og fót, og nokkra hryggjarliði, og leyndist síðan á brott með þýfið. En frá þeirri stundu var hann frið laus maður. 1 vöku og svefni sá hann dýrðlinginn sækja að sér. Handarvang, og fótlaus staulaðist hann við hækju, og krafðist þess að fá fót sinn og handlegg aftur. Gegn- um gil og hamraskörð elti hún hann ógnandi. alveg heim að klausturdyrunum, þar sem hann varpaði hálfærður og sturlaður frá sér þessum helgileifum og flúði til Sentishæðanna,þar sem hann settist að í einsetukofa til þess að eyða því se meftir var æfinnar í það að afplána hina miklu synd sína. í tvo daga falda Moengal gamli þennan unga" vin sinn í húsi sínu, og réri síðan með hann á náttarþeli eftir vatnið. “Farðu ekki aftur til klaustursins,” sagði hann við hann að skilnaði, “svo að heimskuvaðall þeirra ríði þér ekki að fullu. Spott er þungbærara en nokkur refsing. Þú átt ávítun skilið, og mun hið heiða fjallaloft leiða hana yfir þig. Þar er réttlætið meira en meðal mannanna.” Hann gaff Ekkehard að skilnaði spjót og úlf- héðinn. Ekkehard hélt áfram ferð sinni um nótt- ina, varkár og kvíðafullur, og það var með sáran brodd í brjósti sem hann læddist fram hjá gamla klaustrinu, sem ennþá bar ummerki um hryðjuverk Húnanna. Ljósbirtu lagði 'vingjarnlega' frá gluggunum út í náttmyrkrið. og hraðaði hann för er hann varð þess var. Sömuleiðis gekk hann framhjá Appenzell lengra uppi í dalnum án þess að knýja dyra. Hann óskaðí þess eigi að neitt af klaustur- fólkinu bæri kensl á sig. Skyndilega nam hann staðar, hætti að biðjast fyrir og horfði með eftirvæntingu á hellismunnann, þar sem hann bjóst við að sjá einbúann, Gottskálk, koma út og heilsa komu- manni. En enga hreyfingu var að sjá og hell irinn var tómur. “St. Anastasia ignosce raptore!” (Heilaga Anastasia fyrirgef ræningja þínum!) var ritað á klettavegginn með einhverskonar jurtasafa. Ofurlítil steinþró tók við vatninu, sem seitlaði fram á berginu, og var hún svo full að allstað- ar vatninu út af börmum. Hann gekk nú inn í’» Mellirinn og nokkrir leirdiskar voru þar hjá steinahrúgu, sem að öllum líkindum höfðu verið notaðir fyrir hlóðir. 'Gróft veiði net lá þar í hominu ásamt hamar og reku, og viðgerðri exi og hrúgu af höggnum við. Stráð hafði verið hálmi á viðarbjálka nokkra, og myndi það hafa verið notað fyrir legubekk. Allt var þetta moldugt og bar fúasvip. Þegar Ekkehard kom inn skutust tvær rottur inn í holu á gólfinu. Ekkehard bar hendina upp að munninum og hrópaði: “Gottskálk;” og síðan kveðju þá sem fjallabúar eru vanir að ávarpa hver annan með, en enginn lét á sér bæra. Þegar hann hugði nánar að, sá hann að hellirinn hafði staðið auður um nokkurh tíma. í brúsanum, þar sem eitt sinn hafði verið mjólk, var nú skán. Ekkehrd gekk út aftur dapur í bragði, út á hrygginn sem lá milli hellisins og hengiflugsins fyrir neðan. Langt til vinstri sá hann glampa á blátt Con- stanzvatnið milli fjallanna. En þrátt fyrir þessa mikilfenglegu útsýn fékk hann eigi hrakið úr huga sér hina óumræðilegu örvænt- ingu sem að honum sótti. Einn og yfirgef- inn af guði stóð hann á brún þverhnýpisins, og lagði hlustir við, í þeirri von að heyrk ein- hverja mannlega rödd; en eina hljóðið sem barst honum til eyrna var lágt og tilbreytinga- laust ýlfur vindsins o§ skrjáf. Augu hans fylltust tárum. Það var orðið áliðið dagsins. Hvert átti hanh að fara? Sár sultartilfinning dró huga hans frá ástandinu sem hann var í. 1 leður- pússi sínu hafði hann nesti til þriggja daga, og hann sfettist fyrir framan hellirinn og borðaði þar kveldmat. Fjallið sem hann sat undir, kastaði löngum bláleitum skuggum yfir á klettana hinu megin, en efsti tindur þess laugaðist í kveldsólinni. “Svo lengi sem krossinn stendur framan við kletta þessa mun ég aldrei yfirgef- inn að fullu,’’ sagði hann við sjálfan sig, og varð hug- hægra., Síðan reitti hann saman svolítið af grasi í fjallabrekkunni, _ og bjo út handa sér hægan hvílubeð, þar sem hinn gamli hafði áð- ur verið. Hann vafði sig í úlfhéðinn sinn til að verja sig kveldsvalanum, og lagð- ist til hvíldar. Svefnin er gott læknislyf við öllum meinum æskunnar, og þrátt fyrir hug arkvöl sína og einstæðings- skap féll Ekkehard brátt í fasta svefnj Dagsbirtan var að teygja sig upp yfir toppinn á Kam- or þegar Ekkehard vaknaði, enda þótt skin morgunstjörn unnar væri ennþá skært. Honum virtist hann heyÆ létt og glaðvært* fjárhirðis- kall, og þegar hann opnaði augun sá hann ljós innst inni í hellinum. Hann hélt sig væri að dreyma, þar sem hann væri aftur staddur í fangeílsisklefanum og Prax- edis að koma honum til hjálp ar. Ljósið kom nær og nær, og sýndist vera furuviðarkyndill, sem ung stuttklædd stúlka bar( í höndum sér. Ekkehard stökk upp. En óskelfd stóð hún fyrir fram- an hann og sagði: “Vertu velkominn í nafni guðs.” Hún var djarfleg, ung og óbæld, með dökkan hörundslit og titrandi augu. Hinar dökku stóru hárfléttur sínar hafði hún vafið upp og fest saman með fallegum silfurprjón. Tágkarfan, sem hún bar á bakinu; og staf- urinn í hendi hennar bar þess vott að hún átti heima í þessu fjallalandi. “St. Gall frelsi mig frá nýrfi freistingu!” hugsaði Ekkehard, en stúlkan sagði glaðlega: ‘‘Eg endurtek það að þú ert velkominn; faðir minn mun verða sannarlega glaður yfir því, að við höfum eignast nýjan fjallabróður. Hann segir æfinlega að maður geti séð það á mjólk- inni, að gamli Gottskálk sé dauður.” Röddin hljómaði ekki þesslega að hér væri um kvennskass að ræða. Ekkehard var enn hálf sofandi og geispaði mikið, svo að andlitið varð í bili næstum því allt að gini. “Guð launi þér,” mælti stúlkan.” “Hvers vegna?” spurði hann. “Vegna þess að þú gleyptir mig ekki undir eins!” sagði hún hlægjandi, og áður en hann gat spurt hana frekar, var hún lilaup- in burt með kyndilinn og horfin inn í hellinn. En innan stundar kom hún aftur, og með henni gráhærður hjarðmaður klæddur í lamb- skinnsúlpu. ‘‘Faðir minn trúir því ekki,” kallaði hún til Ekkehards. Hjarðmaðurinn skoðaði að- komumanninn mjög grandgæfilega með aug- unum. Ilann var hraustlegur náungi, sem að líkindum á sínum yngri árum, hafði varpað hundrað punda steini tuttugu skref, án þess að hreyfa sig úr sporum sínum. Og hinir sterku andlitsdrættir hans, og beru sinamiklu armar, sýndu greinilega að hinn forni kraftur var enn að mestu ólamaður. “Ætlar þú að verða nýji fjallapresturinn okkar?" sagði hann vingjarnlega við Ekke- hard, og rétti honufn höndina. ‘‘Það er á- gætt!’’ Ekkehard varð undrandi og vand- ræðalegur á svipinn. ‘‘Eg hafði hugsað mér að heimsækja bróðir Gottskálk,” svaraði hann. “Þú kemur of seint til þess,” mælti hjarðmaður inn. Hann dó síðastliðið haust. Það er sorgleg saga. Sjáðh þarna!” — og hann benti á þverhnýpta klettasnös fyrir neðan í hengifluginu — hann fór til að safna þar sam- an þurrúm blöðum. Eg var þar sjálfur að hjálpa honum. Allt í einu reisti hann sig upp eins og bitinn af liöggormi, benti yfir til Ho- henkrahen og kallaði: “St. Anastasia! Þú ert aftur heil, standandi á tveimur fótum og bendir með örmum þínum. í sömu svipan stökk hann fram af þverhnýpinu, líkt og milli hans og Hohenkrahen væri hvorki dalur né hengiflug. Með ‘drottinn miskunna þú mér,’ á vörunum féll niður í hið ægilega afgrúnn. Guð vertu honum líknsamur! Líkama hans fundum við ekki fyr en í vor. Hann var klemdur milli tveggja kletta, og gammamir höfðu borið burtu annan handlegginn og fót- inn, en enginn veit hvert.’’ ‘‘Gerðu hann ekki hræddann,’’ sagði stúlk- an, og hnippti í föður sinn. “Svo þú hyggst að dvelja hér,” mælti hjarðmaðurinn. ‘‘Þú skalt fá allt það sama sem við létum Gottskálk í té, mjólk og ost og þrjár geitur, og mega þær vera á beit hvar sem þær vilja. Konur sem bakið brauð. Athugið! ROBIN HOOp VINNUR HVARVETNA SIGUR! V erðlauna Gullpening Verðlauna Silfurpening 75 Fyrstu verðlaun Alls 164 Verðlaun Þessi verðlaun hafa brauðtegundir er búnar hafa veriö til úr Robin Hood hveitimjöli, unnið við sýn- ingar er nýlega hafa verið haldnar í Calgary, Ed- monton, Saskatoon, Regina, Prince Albert, North Battleford og Brandon. Verðlaunin voru veitt fyrir 35 tegundir brauða, þar á meðal voru kökur, ger- braúð, og smá bakstur, er lagðar voru fram, gegn samskonar tegundum er bakaðar voru úr öllum hin- um öðrum hveitimjölstegundum. Með hverjum degi fréttist um nýjar sigurvinningar fyrir Robin Hood Mjölið, við hinar smærri sýningar. RobinHood FLOdR For BETTER BREAD, CAKES and PASTRY Ef þörf krefst getur þú beðið um meira, því við hér uppi erum engar smásálir eða svíð- ingar En til endurgjalds skalt þú prédika yfir okkur livern sunnudag, og blessa bæði beit- hagann og engið, svo stormar og snjóflóð geri þar ekkert tjón. Og þú verður einnig að hringja bjöllunni, svo við vitum hvað tímanum líður.” Ekkehard leit í kringum sig í hellinum og bar augnaráð lians vott um einhvern efa. Hann varð liinsvegar mjög glaður að mannlegar ver- ur skyldu byggja þetta umhverfi hans, en hvaðan þær hefðu komið var honum ekki unnt að gizka á. “Eru beitilöndin hér uppi í háfjöllum,” spurði hann brosandi. “Hann veit ekki hvar Ebenalpar eru,” mælti stúlkan mjög góðlátlega. “Eg skal sýna þér þá.” Furukyndillinn hennar logaði ennþá. Og hún snéfi sér við og fór til baka inneftir hell- inum, ásamt báðum mönnunum, sem fylgdu á eftir henni. Þau fóru í gegnum þröng hvelfd göng, er virtust liggja inn í iður fjalls- ins. Á leið þeirra urðu stór björg annað slag- ið, sem töfðu ferðina, og oft þurftu þau að beygja sig niður og skríða undir slútandi kletta. Rauðleitur bjarmi frá kyndlinum lék um steinveggina og við og við gægðist dags- birtan inn. En allt í einu tóku göngin stefnu upp í mót, og stórt op kom í ljós Hjarðmær- in sló kyndlinum sínum við einkennilega lag- aða dropasteina, sem héngu niður í göngin og slökkti hann með því. Og eftir nokkur skref stóðu þau í breiðri og fagurri Alpahlíð. Angandi ilmur fyllti loftið og hin fegurstu Alpablóm þöktu jörðina svo sem brönugrös og feiknin öll af bláum verbenum. Yfir þessari blómbreiðu flögruðu hin skraut- legu alpafiðrildi. Apollo, með rauða depla á vængjunum, sem glampa og glitra líkt og gimsteinar í sólskininu. Þetta morgunsár lá þykkt og þunglama- legt mistur yfir dölunum líkt og ládautt haf. Fjallatopparnir skjöguðu upp í loftið, og báru við hinn bláa himinn — sem einskonar risaeyj- ar risu þeir upp úr þessu mikla misturhafi. Constanzvatnið var einnig þakið rakamóðu; og fjallabrýr hins fjarlæga Rhætian, hinir himinháu tindar þeirra, sem gnæfðu hver yfir annan, sáust aðeins gegnum misturslæðuna er um þá lá. Spektarfullt glamur frá hjarð- bjöllum barst frá hinum hærri hlíðum. Og til Ekkehards hljómaði það ekki ólíkt morg- unbæn, sem var hvorutvéggja í senn, auðmjúk og stolt. “Þú vilt vera hér hjá okkur,” sagði hjarð- maðurinn. “Eg sé það í augum þíniim.’’ “Eg er heimilislaus vegfarandi,” svaraði Ekkehard raunalega. “Ábótinn sendi mig ekki hingað.’’ “Það gerir ekkert til fyrir okkur,’’ ansaði gamli maðurinn. “Ef við og gamli Sentis þarna yfir frá eru ánægð, þá hefir enginn neinn rétt til að ræða það mál nokkuð frekar. Við erum ekki neinir undirsátar Ábótans. Þegar ráðsmenn hans koma hingað, til þess að skoða mjólkina og mjólkurbúin okkar, borgum við honum tíundina vegna þess að það er gam- all siður; en hvað allt annað snertir þá er um það gamallt máltak svohljóðandi: ‘Við ræktum ekki hans jörð, og eftir hans pípu dönsum við heldur ekki.’ Sjáðu þarna,” ha*in benti á grá

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.