Heimskringla - 25.09.1929, Side 8
S. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGL A
WINNIPEG, 25. SEPT., 1929
Fjær og nær
Séra Ragnar E. Kvaran flytur
guðsþjónustu að Geysi sunnudaginn
29. þ. m. kl. 2 e. h.
G uðsþ'jómtsta á ensku fer fram
í Sambandskirkjunni, á horni Sargent
og Banning stræta, á sunnudaginn 29.
þ. m., á venjulegum tíma, kl. 11 f. h.
Séra Philip M. Pétursson messar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
MiövikudagskveldiS 2. október, kl.
8, verður fundur haldinn í Sambands-
kirkjunni af öllum þeim, er fylgst
hafa með ensku messunum í sumar
með nærveru eða samúð. Er mark-
mið fundarins að kjósa safnaöar-
nefnd og ráðstafa starfsemi á kom-
andi ári. Léttar veitingar verSa
fram reiddar og einnig hugsaS fyrir
skemtunum. Þeir, sem áhuga hafa
fyrir því, aö þessari starfsemi verði
haldið áfram eru hjartanlega boðnir
til þessara samfunda á miövikudag-
inn.
Skemtun á Gimli:
Atliygli Gimlibúa skal vakin á sam-
komu, sem efnt verður til í sam-
komuhúsimi á Gimli jöstudaginn 4.
okt. Aðstoð á skemtiskránni hefir
lofað úrvalsfólk bæði úr byggðarlag-
inu og frá Winnipeg.
Skemtileg Kvöldstund
I gærkveldi tók safnaðarfólk Sam-
bandssafnaöar hús á þeim séra Benja-
mín Kristjánssyni og frú hans bæði
til þess aö minnast komu þeirra hjóna
hingaö fyrir réttu ári siöan og þakka
þeim starfið í þágu safnaðarins á liðnu
ári, og til þess að bjóða þau vel-
komin í prestshús safnaSarins, en
þangað fluttu þau hjón ekki fyr en
í sumar, að margt safnaöarfólk var
komið úr bænum í sumarbústaöi.
HöfSu safnaðarmenn með sér skrif-
borS og standlampa, hina prýöilegustu
munf, er þau hjón voru beSin aS
þiggja í búiö aS gömlum og góSum
amerískum sið, sem vott vinsemdar
og þakklætis. Séra Ragnar E. Kvar-
an hafði orð fyrir safnaöarfólkinu
og þakkaði þeim hjónum fyrir þess
hönd ágætlega unnið starf, og lýsti
ánægju sinni og safnaöarins yfir að
hafa fengiö svo ágætan hæfileikamann
sem séra Benjamín til safnaSarþjón-
ustu. Lýsti hann yfir því um leiS,
aö séra Benjamín myndi jiú á næst-
unni taka viö ritstjórn tímarits, er
yrði boðberi frjálslyndra kirkjumála,
og yrSi gefið út hér. Spáöi hann
ágætum árangri, svo ritfær maSur,
sem séra Benjamín væri, og óskaði
Vestur-íslendingum til hamingju með
þetta fyrirtæki.
Mrs. Th. S. BorgfjörS, forseti
kvenfélags SambandssafnaSar bauð
gestum til veizlu í fundarsal kirkj-
unnar, því svo fjölmennt var, nær 200
manns, aö engin leið var að fram-
reiöa veitingar í prestshúsinu. Fóru
Bjart og stórt herbergi fæst á
leigu að 653 Home Street.
menn þá yfir í fundarsalinn og sett-
ust undir borS. Stóö þá séra Benja-
mtn upp og þakkaði hjartanlega fyrir
hönd þeirra hjóna þessa ánægjulegu
heimsókn, fögru gjafir og þann al-
úöar og vinsemdarhug, er þeim heföi
mætt frá söfnuðinum, er hefSi létt
þeim svo starfiö, og þeint lika veriö
svo nauðsynleg, svo framúrskarandi
fyrirrennara sem þau heföu átt hér.
Fór hann fögrum oröuni um fram-
tíðarvonir sínar um samstarf sitt og
safnaðarins og um sívaxandi víögrip
frjálslyndis í andlegum efnum meðal
Vestur-lslendinga.
Eftir aö hafa notið ágætra veitinga
skemtu menn sér með söng og öörum
gleðskap fram undir miönætti.
I fyrrakveld fóru þau systkin ung-
' frú Margrét Pétursson, B.A., og hr.
Þorvaldur Pétursson, M.A., ráösmaS-
ur Heimskringlu í orlof sitt vestur til
ættfólks síns í Saskatchewan, Mr. og
Mrs. Gunnlaugs Gíslasonar í Wyny-
ard. Bjuggust þau viö aS dvelja þar
vestra um hálfsmánaöartíma.
HingaS kom í gærkveldi frá íslandi
hr Finnur Jónsson frá Sayreville, N.
J. Fór hann heim til Islands 2. maí
í vor, um Noreg, til ættstööva sinna
í Arnessýslu og dvaldi þar og í
Reykjavík aö mestu leyti í þrjá mán-
uði. SagSi hann allt hið bezta að
frétta að heiman. Væru þau svo stór-
kostlegar framfarir auösæjar bæöi til
lands og sjávar, að dæmalaust myndi
vera í Evrópu. Væri til dæmis
auðsætt aö framförum til sveita skilaöi
drjúgum betur áfram en í Noregi eða
nágrannalöndunum og væri enginn
efi, að islenzkur landbúnaöur ætti nú
rifrildis uppgangstíma fyrir hönd-
um. Enga borg í Noröurálfu kvaö
hann myndi jafn bílauBga og Reykja-
vík hlutfallslega. YrSi maöur aö
fara til Bandaríkjanna til þess aö fá
þar til jafnaS. Finnur Jónsson, sem
um margra ára skeiö hefir verið bú-
settur í Sayreville, mun hafa í hyggju
aö staSnæmast hér fyrir norðan
landamærin; vera hér aö minnsta kosti
í vetur.
Líknarfélagiö Harpa efnir til
“Whist Drive” í Goodtemplarahúsinu,
15. október næstkomandi. VerSur
nánar auglýst um þetta síðar.
Séra Jóhann Bjarnason flytur guðs
þjónustu að Poplar Park næsta sunnu
dag.
The Rose Theatre Managment takes
great pleasure in announcing that our
Western Electric Movetone Equipment
has arrived and is now being installed
The same equipments are installed in
the Metropolitan and R. K. O. Capi-
tol Theatres. Watch for opening
date.
Ánægjulegur Staður að Verzla í
Nýr Haust
Klæðnaður
$29.50
Þeir sem eru að leita
eftir góðum fatnaöi
hljóta aö finna til á-
nægju er þeir skoSa hiS
óviöjafnanlega upplag
vort af haustklæSnaöi.
$35.00
AS sniSi og saumaskap
úr ullardúkum — og
aS verðlagi líka og
móS, standa þessi föt
öllu ofar.
$45.00
Sniöin við allra vöxt.
Vægir skilmálar
KING’S LIMITED
“The House of Credit’’
394 PORTAGE AVE.
(Næst Boyd Byggingunni) OpiS á laugardögum til kl. 10 e. h.
Goodman Thorvaldson, 256 Brook-
lyn str., St. James, maður um fert-
ugt, er unniö hefir hjá J. McDiar-
mid Co. Ltd., varS fyrir þvi slysi í
gærmorgun, aö festa aSra hendina í
steinlímsstrokk, og lestist hún svo
illa, að samstundis varS að fara meö
hann á sjúkrahús. Búast læknarnir
viS aS því miSur verði aö taka alla
fingurna af hendinni.—
Þakkarkveðja
Við undirrituS, sem nú erum kom-
in til Seattle, Wash., gátum ekki vel
komiö því viö að kveSja okkar mörgu
og góðu vini í Los Angeles áður en
við lögSum af stað. Viljum við
því nú kveöjá þá alla meS innilegustu
alúSaróskum og hjartans þakklæti fyr
ir þeirra vinaþel, ástúS og hluttekn-
ingu í sorgum okkar, þá guði þókn-
aöist að taka til sín okkar' ástúölega
hjartkæra son Bennie Johannson.
MeS hjartans vinsemd og virðingu,
Gunnlaugur Jóhannsson
Ragnhildur Jóhannsson.
2357-W 70th St.,
Seattle, Wash.
WONDERLAND
“Square Shoulders,” heröabreiöur,
er myndin sem sýnd er nú þessa viku
á leikhúsinu, ástaræfintýri óviSjafn-
anlegt, er sagt er aS muni snerta
huga og hjörtu allra áhorfenda.
Leikurinn sýnir tvo feSga, og sá yngri,
er eigi þekkti föður sinn, verSur þeini
eldri stöðugt til hjálpar og frelsun-
ar út úr allskonar vandræöum. I
byrjun næstu viku veröur sýnd mynd-
in “1 Singapore” áhrifamikil austur-
landasýning.
Fólksútflutningur frá
Islandi vestur um haf
. Áriö 1928 er taliS aS 71 Islend-
ingur hafi flutt til Bandaríkjanna, en
þar munu vera meStaldir þeir, sem
fluttu frá Kanada og settust aS í
Bandaríkjunum. — Frá Islandi eru
nú sama sem engir útflutningar til
Kanada og litlir til Bandaríkjanna.
Nokkrir sjómenn ihafa fariö til Bos-
ton. — Fólksflutningar frá íslandi
til Vestufheims eru því aö kalla liætt
ir og líkur litlar fyrir því aö þeir
aukist til nokkurra muna í framtíS-
inni, því þaS veröur ekki sagt með
sanni, aS skilyrðin til að komast á-
fram í Vesturheimi séu yfirleitt betri
en hér á landi nú. Allmargir V.-
íslendingar koma hingað að ári meS
þaS jafnframt fyrir aug-
um að setjast að hér á landi, og
kann það aS leiða til þess, að tals-
verðir fólksflutningar hefjist hingaS
til lands aö vestan. YrSi þaS ólíkt
afarasælla fyrir Island, ef fólk af ísT
lenzku bergi brotið færi aftur aS
Þér munið finna nýjasta
fatasnið og sanngjarnt
verð hjá
MARTIN & C0.
Easy Payment Ltd.
í Kvenna og Karl.
manna al-klæðnaði
—með—
$5.00
niðurborgun og afgang-
inn með vikulegum eða
mánaðarlegum afborgun-
um meðan á þessari 9ndu
útsölu félagsins stendur.
Undra kjörkaup
Búðin opin til kl. 10 e. h.
á laugardögum
MARTIN & C0.
Easy Payments Ltd.
á 2. gólfi Winnipeg Piano
Bldg.
Portage og Hargrave
flytja hingað, heldur en aS leyfa inn-
flutning verkalýös frá öðrum löndum
í stórum stíl.—Alþ.-blaðið.
Frá Islandi.
(Framh. frá 5r síðuj.
legt og villandi, því þaS sem menn
almennt nefndu “mold” hér á landi,
sem sé fokmoldin, harðveldismoldin
væri ónothæf með öllu í byggingar
þessar.- Réttara væri að nefna þetta
leirsteypu.
Lieng heldur fyrirlestur um feröir
sínar og athuganir í kveld í kaup-
þingssalnum og skýrir þá frá niSur-
stöSum þeim, er hann hefir komist
að.
Hann lenti í talsverSum snúningum
við aS ná í nothæft byggingarefni í i
FljótshlíSinni — því þar er lítiS um |
leirlög og djúpt á þeim.
Móhellan dugar ekki óblönduS. En j
aöalefniS, sem hann hefir fundiS í
byggingar þessar, er smiöjumórinn,
þegar hann er hæfilega blandaSur
leir, sandi og möl.
A NorSurlandi, þaS er í basalthér-
uðunum — er mikið meira af not-
hæfum byggingarefnum, eftir því,
sem hann hefir komist næst.
En um þetta fá menn fullkomnar
upplýsingar hjá Lieng sjálfum i
kveld.—Mbl.
Islensk nefnd er tekur þátt í sam-
tókum þessum
I Þj óöbandalaginu er nefnd ein sem
starfar aö alþjóöasamvinnu í mennta
málum. I París er stofnun ein, sem
nefnd þessi hefir yfir aS ráða, og
starfar stofnunin í þágu samvinnu
þessarar.
Kosnar hafa veriS nefndir manna
í fjölmörgum löndum, til þess aS taka
þátt í þessu umfangsmikla samstarfi.
Vinna nefndir þessar í sambandi við
nefndina í París og nefnd ÞjóSbanda
lagsins.
Þorsteinn Þorsteinsson hagstofustj.
Dagana 18.—20. júlí var fundur
haldinn í Genf og þangað boðiS fund
armönnum allra þjóönefndanna. Sat
GuSm. Finnbogason fund þenna. Tók
hann þar til máls og bar fram tillögu,
er hann mun síðar skýra frá hér í
blaðinu.
Akuryrkjan í Fljótshlíð.
(Frh. frá 7. bls.J
300 kg. á hektara. En reynslan á
SámsstöSum er, að með svo miklum
köfnunarefnisáburöi legst kornið í
legur. Þar er þessi skammtur hæfi-
legur.
ÚtsæSið á ha. eru tvær tunnur, er
ég reikna á 80 kr.
Meðalvetíð byggtunnunnar r^eikna
ég þó ekki hærra en 25 krónur. Fæst
þá upp úr byggi af hektara kr. 25
sinnufn 25 eða 625. Hálminn reikna
ég á 40. kr. tonniö, eöa 160 kr. af
hektara.
Afraksturinn af byggakurs hekt-
ara ætti þá að geta orðiS kr. 785.
KostnaSurinn var reiknaður kr. 410.
ÁgóSi kr. 375 af hektara, eða yff*
kr. 100 af dagsláttunni.
Er hér allt varlega reiknað, og
byggt á reynslu minni undanfarin ár.
En þó mér hafi gengið byggræktin
vel, þá er ég viss um, aS hún verð-
ur mun auðveldari í framtíöinni. Eg
er ekki í neinum efa um, að við fá-
um hér byggstofn, sem eigi þarf
nema 90 daga til fullþroskunar frá
sáningu. Byggstofn sá, sem ég hef
nú, og mest er bráSþroska, þarf
þetta 110—120 daga.
Þó allt sé þetta enn í smáum stil
hjá mér á SámsstöSum, segir Klem-
ens ennfremur, þá eru kornræktar-
tilraunir mínar orðnar nokkuS yfir-
gripsmiklar.
Viö veröum aö leggja kapp á að I
ná sem fyrst praktiskum árangri af j
tilraunum okkar. Legg ég aðal-
kapp á það.
Kornyrkjutilraunum mínum skifti
ég þannig:
Tilraunir með ýms afbrigöi teg-
undanna. Hefi ég fengiö ýms af-
brigSi víðsvegar aS úr norSlægum
löndum, er ég ber Saman viS Dön-
nes-byggiS mitt, sem ég byrjaSi með.
Sent hefi ég bygg, sem ég hefi
ræktaS, í allmarga staði erlendis, i
skiftum fyrir tilraunabygg, er ég hefi
fengið.
Auk þess hefi ég tilraunir meS sáð-
tíma, sáðmagn og sáSskifti.
Alls hefi ég meS höndum 15 af-
brigði af höfrum og 13 af byggi.
MeS ræktun vetrarrúgs er ég kom-
inn stytzt. Býst ég viS aS fá um
2 tunnur af rúgi í haust. Er þaS í
fyrsta skifti sem ég fæ nokkra upp-
skeru af rúg sem heitir.
Kornrœktin breiðist út
—Eru nokkrir bændur eystra byrj-
aöir á byggrækt?
—Eg hefi sáð byggi hjá tveim
bændum í FljótshlíS í sumar, séra
Sveinbirni á BreiSabólstaö og Arna
á SámstöSum. Auk þess hefi ég
Iátið nokkuð af útsæöisbyggi til
bænda í Holtum. Er mér ekki kunn
ugt um var sáð hefir verið.
Hefi ég og heyrt, aö GuSmundur
bóndi á Hvítárvöllum hafi sáS byggi
til þroskunar. Um fleiri staSi er
mér ekki kunnugt.
I framtíöinni vonast ég eftir því,
aS Fljótshlíðin verði miðstöS ís-
lenzkrar akuryrkju. — Þar eru þroska
skilyröi igóö. Þar ætti aS rækta út-
saaðiskorn handa bændum í öSrum
sveitum.
—-MorgunblaSiS.
WONDERLAND
Cor. Sargent & Sherbrooke
THUR.—FRI.—SAT. (Thls Week)
DOUBLE BILL
TIM McCOY
---XN--
“THE
DESERT RIDER”
Junior Coughlin
“Square Shoulders”
MON.—TUES.—WED., Next Week
Phyllis Haver
’ —IN—
“Sal. of Singapore”
LINA BASQUETTE IN
“COME ACROSS”
HEITT VATN Á
SVIPSTUNDU
—með—
Sjálfstarfandi Gas vatnshitun ,
ROSE
T H E A T R E
Sargent at Arlington
The West End’s Pinést Theatre
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
LAUGHS GALORE!
BUSTER KEATON
—in—
“SPITE MARRIAGE”
A Vitaphone Picture with
Dorothy Sebastian
—ADDED—
100% Talking, Singing, Dancing
Review
100% Talking Screen Snapshots
COMEDY FABLE
Kiddies! Look! Free!
20 passes to the Rose Theatre
given at the Saturday Matinee
Also a Special Western Picture
“Taking a Chance”
MON,—TUE,—WED. (Next Week)
LON CHANEY
—in—
“WHERE
EAST IS EAST”
—ADDED—
) 100% TALKING FEATURETTE
“Falling Stars”
COMEDY NEWS
íbúð til leigu, 3 verelsi með
gasstó. $20 á mánuði upphituð
að — 637 Alverstone Str.
Hin nýja Optional Gas
vatnshitun, færir að mikl.
um mun niður vatnshitun
með gasi.
Símið 846 712 eða 846 775
eftir upplýsingum
MRS. M. W. DALMAN
Teacher of Pianoforte
778 VICTOR ST.
Phone 22 168 Winnipeg
Til sýnis. í húsmunadeild í
Sýningarskálanum
POWER BUILDING
Til sölu
með vægum borgunarskilmálum
Winnipeg Electric
Company
"Your Guarantee of Good Service”
Gunnar Erlendson
Pianokennari
Kennslustofa:
684 Simcoe St.
Talsími
26293
Ragnar II. Ragnar
Pianokennari
Phone 34 785
—Kennslustofa—
693 Banning Street
...A Demand for Secretaries and Stenographers...
There is a keen demand for young women qualified to assume steno-
graphic and secreterial duties. Our instruction develops the extra skill
required for the higher positions, and assures you rapid advancement.
It gives you the prestige of real college training, and the advantage of
facilities no other institution can duplicate.
Shorthand for Young Men
Por young men who can write shorthand and do typewriting accurately
and rapidly, there is a greater demand than we can supply. Male steno-
graphers come directly in touch with managers and, through this personai
contact, they soon acquire a knowledge of business details, Which lay the
foundation of their rapid advancement to higher positions. We strongly *
urge boys of High School education to study Shorthand and Typewriting.
Male stenographers are scarce. There is also a splendid demand for
Bookkeepers and Accountants.
ENROLL AT ANY TIME Day and Night Classes
CORNER PORTAGE AVE. AND EDMONTON St. WINNIPEG MANITOBA