Heimskringla - 29.01.1930, Page 5

Heimskringla - 29.01.1930, Page 5
WINNIPEG, 29. JAN., 1930 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSÍÐA Heiður þeim sem heiður ber Nýkga var ég á ferð vestur á Kyrra hafsströnd og kom þá í borigina Los Angeles, auk annara borga í því sólarlandi. Menn halda ef til vill aö ég ætli að fara aö segja ferðasögu, en þaö er ekki ætlun mín, þó margt mætti segja um fólkiö, landið, borgjrnar og kafið. Eg vil að þessu sinni aðeins minnast á atvik eitt sem fyrir mig kom þar, því það er þess eðlis, að það varðar alla íslendinga. Eg var staddur kveld eitt á heimili 'herra Halldórs HaHdórssonar og konu hans sem bæði sýndu mér staka velvild, þegar hrimgt er í síma og ég 1>eðinn að tala við konu, að nafni Mary Carr Moore. Eg kannaðist ekki við það nafn í svipinn, en svo eru það nú svo mörg konunöfn og konur sem ég get sagt hið sama um. En svo gerði það ekki mikið til því kon- an skýrði sjálf hver hún var, sagð- ist heita Mary Carr Moore og vera kennari í hljómlistafræði við Caili- fornia Christian College. Spurði hún mig livort ég þekkti íslenzka stúlku sem Þórdís héti Ottenson þar í Los Angeles. Kvað ég já við því. Hún sagði að Þórdís hefði vakið eftir tekt listrænna manna þar um slóðir a sér, í þeirri fræði|grein og að sig langaði til að tala frekar um hana við mig ef ég vildi vera svo góður að koma til sín á skólann daginn eft- ir og lofaði ég því. Daginn eftir fór ég ásamt Mr. Halldórsson til viðtals við konuna á tilteknum tíma. Hún tók okkur vel Og alúðlega og snéri sér strax að málefni því sem lá henni á hjarta. “Mig langar til að minnast á Þórdísi Ottenson við ykkur,” sagði hún. “M|ér finnst að íslendingar ættu að vita, að hjá henni er um að ræða ó- vanaleiga mikla hæfiileika, á sumum sviðum hljómlistarinnar. Sjálf er hún listræn og sérstaklega hneigð til að frunisemja lög, enda hafa gáfur hennar komið hvað skýrast fram á því sviði og sum af lögum þeim sem hún hefir samið við íslenzka texta eru hreint fyrirtak, og við þessa hæfi- leika hennar bætist einbeittur vilji og óbilandi staðfesta til að brjótast áfram á tónlistabrautinni, eins erfið og sú braut þó er, ekki síst fyrir þá sem verða að vinna fyrir sér að meiru og minna leyti meðfram náminu.” Eg gladdist við að heyra þennan vitnisburð og gleðst æfinlega þelgar einhverjum af okkar þjóð tekst að vekja eftirtekt sérfræðinga á sér fyrir gáfur, hugvit, eða aðra gjörfi'leika á meðal samferðarmannanna, hvort heldur að er hér í landi eða annars- staðar. Hér var um islenzka stúlku að ræða — stúlku frá Winnipeg — sem farin var út i heiminn til að leita gæfunnar og sýna hvað í henni bjó, og þarna var kennari hennar — kenn- ari, sem þekt er um alla Norður Am- eríku og víða í Evrópu fyrir þroska og listfengi á sviði hljómlistarinnar, að segja frá því að hún bæri þar lanlgt af öðrum í list iþeirri sem hún hafði valið sér til framsóknar i og var að keppa við svo hundruðum skifti af annara þjóða fólki i. Þegar um slika atburði sem þenn- an er að ræða, er það ekki ósjaldan að þjóðarmetnaðurinn blindi svo augu manna að þeir taki allt sem þeim er sagt í þessa átt, trúanlegt. Við, sem þarna vorum staddir, vild- um ekki verða sekir í þeirri villu, en sökum þess að sá sem þetta ritar, er enginn fagmaður í hljómlistar- fræðinni og gat því eigi dæmt um ilögin sem hér er um að ræða, né heldur þekkingu Þórdisar, þá varð honurn að taka það ráð sem fyrst var fyrir liendi, en það var að spyrja Mrs. Moore hvort hér væri um að ræða vanalegt vinahjal, eða óhlut- ; drægan dóm á hæfileikum þeirrar sem i um væri að ræða. Hún kvað það fjarri sér að vera með nokkurt láta- VISS MERKI um nýrnaveiki eru bakverkir, þvag- teppa og þvag'steinar. GIN PILLS lækna nýrnaveiki, með því að deyfa og græða sjúka parta. — 50c askjan hjá öllum lyfsölum. 131 pDprf T?U F j\JO/JD. JT r l JL/ JLs ♦ ♦ 50 Victor Records Victor Itecord Albums uud Album-Ends ivith this new Orthophonic Victrola This offer is autliorized by Victor Talking Machine Company o£ Canada, Limited HERE is the most amazing offer in the history of the new Orthophonic Yictrola. You pur- chase the instrument at its regular price of $175 — and we actually give you genuine Victor products to the value of $62.25 ... 50 new Victor V.E. Records, Red Seal and Black Label . . . four Record Al- bums . . . and a pair of Album- Ends. A complete musical library FREE ! — but for a limited time only. Come in TODAY ! gargent Ave. at gherbroolo lætis-hjal í sambandi við Þórdísi. Heldur væri um að ræða hjá henni stórmikla hæfiileika, sem þroskast þyrftu og ættu sér þá mikla og gagn- lega framtíð. Þórdís Ottenson kyntist Mrs. Mary CarrvMoore á þann hátt að hún sendi henni til umsagnar nokkur lög sem hún hafði samið við islenzka texta. Þegar Mrs. Moore hafði kynt sér lögin skrifaði hún : “Eg iheld að Þór- dís Ottenson sé gædd stórmiklum og frumlegum tónskálds-hæfileikum,” og svo viss var hún um yfir.burða hæfi- leika hjá Þórdisi, að hún veitti henni námstyrk (scholarshipj til harmony- náms við Olga Stub hljómlistarskól- ann í Los Angeles, og hefir á alJan hátt sýnt hæfileikum Þórdísar sóma síðan. Nokkur lög Þórdísar hafa verið sungin og leikin á hljóðfæri op- inberlega í tónlistafélögum og opin- berum samkomum þar vestra . Eg set hér ummæli eins af þektum ritdómur um um þau efni er hann hafði verið á samkomu þar sem lög eftir Þór- dísi voru höfð um hönd: “Þórdís Ottenson, ung íslenzk stúlka, er verið hefir til lærdóms hjá Mary Carr Moore sem er nafnkunn- ur tónlistarfræðingur og tónskáld í Ámeríku hefir sýnt sérstaklega mikla tónskálds-hæfileika. Nokkur af lög- um hennar við íslenzka texta, eru óneitanlega viðbót við söng-bókmennt- ir þeirrar þjóðar.” Eins og ég hefi oft tekið fram áð- ur, þá er ég eniginn tónlistafræðing- ur, né heldur skrifa ég þessar línur til að leggja dóm á listræni Þórdísar, því mín orð í þeim efnum eru áhrifa- lítil í samanburði við umsögn Mrs. Mary Carr Mbore og hennar líka. En ég geri það til að vekja eftirtekt íslendinga á Þórdisi, og að hjá henni er óefað um hæfileika að ræða, sem ættu að fá að njóta sín og sem að hún sjálf hefir sýnt svo mikinn dug'n- að í viljafestu í að þroska. —Jón J. BildfeU. Heill og Hraustur Góð lyst byggir upp hraust an og heilbrigðan líkama. City Mjólk er sú ákjósanlegasta fæða er fullnægir neyzlu, þörf og heilsukröfum líkamans. PHONE: 87 647 Föstudaginn 17. janúar lézt að St. Boniface sjúúkrahúsinu eftir stutta legu í lungnabólgu Jón Oddson Berg- son, 72 Humboldt St., 73 ára að aldri. Hann var fæddur í Eyjafirði á ís- landi, Og kom til Winnipeg fyrir 41 ári síðan og bjó hér það sem eftir var æfinnar, að undanskildum fimm árum, er hann bjó í Seattle. Kona hans, Margrét, lifir hann; ein dóttir: Mrs. P. Bardal, og tveir synir: Stef- án og Guðberg. Jarðarförin fór fram 18. janúar, frá útfararstofu Bardals og jarðsöng séra B. B. Jóns- son.—Heimskringla vottar aðstand- endum hluttekningu sína.— kj«OðOOS0OðOSOOOOSOOQOeOSSOOdOOðOOQeCOCOSOOOððOSCO0( •>■« ( B u s i ne s s Educati o n P ay s ESPECIALLY “SUCCESS TRAINING” Scientifically directed individual instruction and a high standard of thoroughness have resulted in our Place- ment Department annually receiving more than 2,700 • calls—a record unequalled in Canada. Write for free prospectus of courses. Train in Winnipeg, Western Canada’s largest employment centre SUCCESS BUSINESS COLLEGE PORTAGE AVE., at Edmonton St. Winnipeg, Manitoba. (Owners of Reliance School of Comtnerce, Regina) NEALS STORES “WHERE ECONOMY RULES” BLUE RIBBON TE, 1 pd. pakki ... SPANISH ONIONS, Firm and Mild 3 ibs..................... BUTTER, Pride of the West, Fancy Creamery, 1-lb. Brick 56c ......10c ......42e ...... ......29s BLUE RIBBON BAKING POWDER 1 pd. baukur .... 20c anm— MATCHES, Eddy’s Blue Ribbon, 400’s, 3 Boxes ..................... PRUNES, Sun Maid, Santa Clara, Medium Size, 2-lb. Packet _ Raisens Choice Thompsons Seetíiess 2 lbs. 28c 3 Ibs 29c. Big lc Sale POTATOES, Green Mountain, Canada No. 1, 7 lbs.............23C EGGS, B. C. Large Fresh Extras (Not Pullet Extras), Dozen Cgg AND MANY OTHERS 733 Wellington (við Beverley) 717 Sargent Ave. 759 Notre Dame Ave. 666 Sargent (horni Agnes St.) Krefjist Winnipeg Electric YÐUR MEST I HAG Betra En Innflutt Coke STYÐJIÐ HEIMAIBNAÐ FORT WILLIAM COAL DOCK CO., LTD. Tals. 27606 400 Winnipeg Electric Chambers

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.