Heimskringla - 30.04.1930, Page 1

Heimskringla - 30.04.1930, Page 1
H. Vétu^clT*- St. DYERS & CLEANERS, LTD. Sendit5 fötin yðar með pósti. Sendingum utan af landi sýnd sömu skil og úr bænum og á sama verði. W. E. THURBER, Mgr. 324 Young Str., Winnipeg. DYERS & CLEANERS, LTD. Er fyrstir komu upp n <( að afgreiða verkið sama dagínn. Lita og hreinsa fyrir þá sem eru vandlátir. W. E. THURBER, Mgr. Sími 37061 XLIV. ARGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUIDAGINN, 30. APRÍL, 1930. NtrMER 31 Stefán J. Scheving Það er myndarlegt andlit er þið sjáið hér, en með dálitlum kýmnis- hrukkum millum augnanna. Og allur «r maðurinn þéttur á velli og þéttur i lund. Stefán J. Scheving mun vera fædd- Ur einhverntima það herrans ár 1865. Er hann Múlsýslingur að ætt og upp- runa, eins og svo margir aðrir nýtir <irengir sem fest hafa rætur hér fyrir handan haf. Ekki man ég nú i svip hvaða ár hann kom hingað til lands, en það munu vera um 40 ár síðan. Um allmörg ár vann hann hér við verzlanir í Winnipeg og Selkirk, enda hafði hann verið við slík störf á Seyðisfirði á Islandi áður en hann hvarf hingað vestur. Svo um nokk- úrt skeið hafði hann rakarastofu hér I borg og varð þá mörgum lubba- skalla kunnur. En svo fyrir réttum 25 árum síðan innritaðist hann í herdeild þá er Win- nipeg borg heldur úti til þess að sjá um að heilbrigðisreglum borgarinnar Se framfylgt. A hérlendu máli er Þessi sveit nefnd “Sanitary Inspec- tors,” en ég vildi kalla þá "Göngu- hrólfa.” Þeir eru sífelt og æfinlega é- vaðbergi, hver á sínu afmarkaða sviði, nær því alla ársins daga, og niá nærri geta að mörgu kynnast þeir & þeim sífeldu umferðum. Enda hefir “Stebbi” margar ágætar kýmnissög- Ur að segja um það, og sérstaklega nf viðkynning hans af “Drottins út- völdu þjóð” hérna norður í Litlu- Jerúsalem. Reglugjörð Winnipeg borgar er nú Þannig, að allir þjónar bæjarráðsins Verða að víkja úr stöðu er þeir hafa starfað þar samfleytt 25 ár, eða er þeir hafa náð 65 ára aldri. Og nú vildi svo til að 23. þessa mánaðar var Stefán kominn að báðum þessum vegamótum, svo hann varð að leggja sér Gönguþrólfs embættið. Og Þann dag notuðu yfirboðarar hans °S samverkamenn tækifærið til að faera honum gjöf að skilnaði. Var það ferðataska, hinn vandaðasti grip- Ur- Dr. Douglas, sem er yfirlæknir ^orgarinnar, ávarpaði hann um leið °S hann afhenti gjöfina, og þakkaði honum fyrir vel og drengilega afrek- að aldarfjórðungs starf. . Jeg hefi kynst Stefáni Scheving htjög vel nú um nær því þriðjung úr og hefi ég persónulegar mætur á honum. Hann er glaðlyndur og skemt- inn með afbrigðum, vel greindur og viða heima, prýðilega vel hagorður glettinn og fyndinn í stökum. Hann y^kir að visu ekki mikið, og dettur ekki í hug að hreykja sér sem stór- skáldi, en þó er hann mikið betur hagorður en margir þeir sem hafa látið á þrykk út ganga langar ljóða- syrpur eftir sig. En það sem sérstaklega einkennir Stefán er skapfesta, og kemur það einkum fram í óbilandi vinfestu við menn og málefni. Hann er ekki eitt í dag 0g annað á morgun, og það skyldi meira en lítinn ódrengskap til hrekja hann frá þeim félagsskap, er hann hefir eitt sinn bundið trygð við. Það er haft fyrir satt að fjöldi manna lendi ekki á sína réttu braut í hfinu, svo að náttúru hæfileikar Þeirra fái aldrei að fullu notið sín. Sannast þettað óefað á vini mínum Scheving, því ef hann hefði fengið hauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar a úngdóms árum, þá hefði hann efa- iaust orðið listfengur málari. Flest- nin tómstundum sínum hefir hann varið til þess að mála myndir og hefi ög þó nokkrar slíkar að gjöf frá HEIMFORIN I SUMAR Enginn nema sá er séð hefir, veit hversu mikil prýði er að tjörninni í Reykjavík. Hún liggur inn í hjarta bæjarins á milli hafnarinnar að norð- an og Skerjafjarðar að sunnan. Hún er alt að enskri mílu á lengd, og Vi á breidd. Beggja megin við hana liggja breiðir vel hirtie stigir og upp frá henni i hæðunum standa raðir af tilkomumiklum íveruhúsum. Tjömin í Reykjavík. Eg hefi séð tjörnina i Reykjavík þegar hún hefir verið slétt eins og spegilflötur og speglað húsaraðirnar beggja vegna við sig í hinni rólegu kyrð sinni, og rafljósin í gluggum húsanna hafa verið eins og logandi stjörnur i djúpi hennar. Eg hefi séð hana þegar öldurnar hafa risið úfnar og hryssingslegar og hossað svönum og sundfuglum á kömbum sér. Og j eg hefi séð hana þegar Norðri hefir andað á hana svo hún hefir verið leikvöllur hugprúðra sveina og æsku- rjóða meyja og get vottað um, að hún í öllum þessum myndum er fögur og hrífandi og líka um það, að þeirri fegurð verður ekki með þenna lýst, heldur verða menn að sjá hana ,til að geta metið hana. J. J. B. Þetta er ekki aðeins sú fyrsta stein, eða steinsteypu brú sem byggð var á Isiandi heldur mun það vera fyrsta brú af þessari gerð í Evrópu. Fnjóská gat orðið ægilegt vatns- fall í leysingum svo að ófært var að Brúin yfir Fnjóská i Þingeyjarsýslu fara nema fuglinum fljúgjandi áður en brúin kom. Hér var því um hið þarfasta verk að ræða. Brúin á ánni er skamt frá Prest- setrinu Hálsi í Fnjóskadal. Fríður birki skógur klæðir dalinn, árbakk- ana og hlíðina upp frá ánni. Brúin stendur á bergstöplum sitt hvoru megin árinnar þar sem hún rennur í djúpum farvegi. Enginn miðstöpull styður hana, heldur tekur boginn við öllum þunga sem á hana kemur og ber hann á baki sér. J. J. B. ÞAÐ SEM MENN ÞURFA AÐ VITA I SAMBANDI VIÐ HEIM FÖRINA 1 SUMAR. 1. Það verður bein ferð vestur með skipinu Minnedosa frá Reykjavík, 4 águst. Með því að taka þá ferð geta menn verið komnir til Winnipeg 14 ágúst. 2. Menn geta ráðið sjálfir, hvort þeir þiggja vist hjá heimfarar nefnd- inni á meðan þeir eru í Reykjavík, og á Þingvöllum, eða ekki. 3. Allir sem ætla sér að ferðast utan breska ríkisins verða að hafa vegabréf 4. Allur farangur sem fólk hefir með sér verður að vera skýrt merkt- ur. 5. Hver farþegi getur haft 150 pund með sér, í farl sínu, auk þess, töskur sem hægt er að halda á 6. Börn innan 5 ára fá frítt far á járnbrautinni, en verða að borga 1 far á skipinu. Börn innan eins árs fá frítt far. 7. Skipið fer kl. 10 að morgni 14 Júni n.k. og bíður ekki eftir neinum. 8. Þeir sem frá Winnipeg fara með járnbraut verða að vera komnir þang- að, ekki seinna en 31 mai. 9. Men eru beðnir að segja til sem fyrst hvort þeir ætla sér að kaupa Pullman svefnvagn frá Winnipeg og austur sem kostar $12.80, eða Tour- ist á $6.40. 10. Þeir sem fara vilja vestur með C.P.R. skipinu Minnedosa 4 ágúst frá Reykjavík, eru beðnir að láta vita það sem allra fyrst. 11. Far á þriðja pláss heim til Is- lands, með skipinu Montcalm, að meðtöldu jámbrautarfari frá Winni- peg báðar leiðir $244.25. Aðra leið- ina $149.50. 12. Tollur verður lagður á alt tó- bak sem menn hafa með sér þegar til Islands kemur, og engin tegund þess undan skilin hvort um er að ræða lítið, eða mikið. 13. Enga tegund af víni mega menn flytja með sér í land á Islandi. Broti gegn því ákvæði, verður refsað harð- iega. 14. Fimhundruð bifreiðar verða til taks að flytja hátíða gestina frá Reykjavík og til Þingvalla. Farið fyrir manninn verður um 7.50 kr. hvora leið, aðrar ferðir kosta vana- lega um 1.50 kr. á hverja tíu kilo- metra, fyrir hvern mann 15.00 kr. fyrir 100 kilometra, eða austur að Hlíðarenda. 15. Texti á húsnæði og fæði á gisti húsum í Reykjavík undir vanalegum kringumstæðum er nú rúm handa einum frá 5—10 kr. á dag. Fæði frá 5—10. I prívat húsum frá 3—4 kr. á dag. Búist er við að þessi taxti verði nokkuð hærri í sumar. 16. Þeir sem eru á báðum áttum, ráði tafarlaust við sig að fara. Símið, skrifið, eða talið við um- boðsmann C.P.R. No. 34 C.P.R. Build- ing cor Portage and Main Strs. Phone 843 410 CANADA Frá Ottawa er símað 25, þ. m., að jafnskjótt sem þingmenn hafi tínst aftur til borgarinnar, hafi margir og miklir samtalsfundir verið háðir, til þess að ráðgast um það, hvort ganga skyldi til sambandskosninga í sumar eða ekki. Er sagt að margir þing- menn hafi látið á sér skiljast, að þær myndu verða haldnar í júlí eða snemma í ágúst í sumar. En fréttin hermir þó eftir ráð- herrum þeim er náðst hefir til, að mjög ósennilegt sé, að nokkuð verði úr kosningum í sumar, heldur muni stjómin fresta þeim til næsta sum- ars, nema einhverja algjörlega knýj- andi, en nú ófyrirséða, ástæðu beri að höndum. Eru allir ráðherrarnir sammála um það, að ef kosningar eigi að að fara fram í sumar, verði að klippa af þingtímanum, sem sé mjög ólíklsgt að verði á enda fyr um 15. júní. En það myndl aftur hlaða þeim feikna störfum á stjórn- ina, sem verður að búa sig undir samveldafundinn í Lundúnum í haust, að hún muni ómögulega treysta sér til þess að ljúka þeim í tima. Sam- kvæmt kosningalögunum verða 60 dagar að líða frá þingslitum til kosn- inga. Yrði þá ekki mögulegt að halda kosningar fyr en seinni hluta ágústmánuðar í sumar og gæfi3t stjórninni þá enginn undirbúnings tími fyrir samveldafundinn, er settur verður í septembermánuði. Yfirmaður ensku kirkjunnar í Canada, Samuei Pritchard Matheson erkibiskup í Rupert’s Land biskups- dæmi, verður 78 ára 20. september næstkomandi. Hefir hann lýst því yfir, að hann muni þá segja af sér embætti sinu, er hann hefir þá gegnt í 21 ár, eða síðan 1909. Fjármálanefnd Winnipegborgar hefir samþykkt að skatttaxti borgar- innar fyrir árið 1930 skuli vera 33 5 mills af hverjum dal. Með því lagi eru skatttekjur borgarirmar áætlað- ar $7,926,592 á árinu. honum, sem ég í minni fávisku kalla prýðilega fallegar. Má ég þar sér- staklega nefna eina mynd er hann kallar: “Sumarkveld við Alftavatnið bjarta” Ekki mun Stefán hafa afráðið hvað hann tekur sér nú fyrir hendur, en iðjulaus verður hann aldrei lengi, því það er fjarri hans upplagi. Eg óska þér, vinur, góðs gengis og glaðra stunda hvar sem leiðir þínar liggja og hvernig sem stormur kann að gnauða. Og ég vona að fallegu silfurdósirnar þínar verði æfinlega fullar af góðu neftóbaki frá hans konunglegu hátign á Baunverjalandi. Magnús Peterson * * * Heimskringla tekur innilega undir þessar hamingjuóskir. Bandaríkin Eitthvert ógurlegasta slys, sem sögur fara af lengi, kom fyrir á mánudaginn í vikunni sem leið, í ríkisfangelsinu í Columbus, í Ohio- ríki. Kom upp eldur í fangelsinu, og er sagt að einhverjir fangar muni hafa kveikt í af ásettu ráði. Brunnu þar inni og köfnuðu 319 fangar, mest, eða eingöngu fyrir handvömm, að því er séð verður, því fréttinni fylgir, að einn gæzlumaðurinn, Thomas Wat- kinson, hafi neitað að láta af hendi iykla að nokkrum hluta fangelsisins, unz crðið var um seinan að bjarga. Er sagt, að hann kenni þvi um, að sér hafi verið bannað það, af yfir- fangaverðinum, P. E. Thomas. Hefir rannsókn verið hafin í málinu, en um úrslit hennar er enn ekkert víst orð- ið. Lýsingarnar á angist þessara vesal- inga, er þarna sáu sig dauðadæmda, lokaða inni, sem melrakka í greni, kvalaópunum, æðinu; bænum og for- mælingum kafnandi og stiknandi manna, eru svo yfirgengilegar að varla er lesandi, þótt vitanlega geti þar eigi verið nema um svip hjá sjón að ræða, samanborið við veru- leikann. Hið óskaplegasta éstand er sagt að hafiátt sér stað til margra ára í fangelsinu, án þess að líklegt sé að yfirfangavörðurinn eigi þar i raun réttri mikla sök á, þar eð fang- elsið var upprunalega byggt fyrir 1,600 fanga, en hafi orðið að hýsa 4,300. ALÞJÖÐAFRÉTTIR Stórveldafundurinn í Lundúnum, er settist á rökstóla í janúar, eins og les- endum er kunnugt, er nú loks á enda. Til skálda íslend- inga í Vesturheiml Heimfararnefndin hefir beðið Heimskringlu fyrir orðsendingu þá til skáldmæltra manna íslenzkra í Vesturheimi, er hér fer á eftir. öllum góðum Islendingum vor á meðal er það nokkuð kappsmál að þess sjái glögg merki við heimsókn Vestur-Islendinga til ættlandsins í sumar að hér séu enn menn, sem kveðið geti á tungu vorri. Enda Ekki gátu Frakkar og Italir orðið sammála Bietum, Bandaríkjamönn- um og Japönum, en þó herma síð- ustu fréttir eftir Ramsay MacDon- ald, forsetisráðherra Breta, að mikið hafi áunnist. Nákvæmt heildaryfirlit um afrek fundarins, er enn ekki kom- ið í ljós, en sannleikurinn mun flest- um óvilhöllum og óbrjáluðum mönn- um virðast sá, að í raun og veru hafi alls ekkert áunnist. Má í þvi sambandi geta þess, að i Bandaríkj- unum hefir farið sívaxandi óánægjan yfir aðgerðum, eða réttara sagt að- gerðaleysi, fundarins. Verður nánar skýrt frá málalokum á næstunni. væri mjög illa farið ef þetta rættist ekki, þegar alkunna er að hér eru ekki svo fáir menn, sem sóma sér hvarvetna á bekki Braga. Fyrir þá sök eru það vinsamleg tilmæli Heim- fararnefndarinnar að íslenzk skáld í Vesturheimi sendi henni innan loka maí-mánuðar kvæði eða kvæðaflokka, sem ortir séu í tilefni af hátíðinni á Islandi í sumar. Þau kvæði eða kvæðaflokkar, sem af þykja bera, verða fluttir á Islandi, ef til vill sumir heimfarendum í hafi einnig — en síðar birtir á prenti á þann hátt, sem bezt þykir viðeig- andi. Þau skáld Vestur-Islendinga, sem þessum tilmælum vildu sinna, eru beðin að líta ekki á þetta rem inn- byrðis samkepni fyrst og fremst. Vitaskuld hvílir úrskurðurinn að síð- ustu hjá almenningi og framtíðinni um samanburð og ágæti skáldverk- anna. En hins er vænst, að skáld- mæltir menn vorir vilji á sinn hátt stuðla að því að Vestur-Islendingar fengju túlkað hugsanir sínar og til- finningar við þetta tækifæri. Og enginn vegur er til þess betur fall- inn en vegur ljóðanna. Væntir nefndin þess fastlega að þetta áhuga- mál hennar og margra annara fái sem beztar undirtektir. Samkvæmt fréttum hvaðanæva úr sléttufylkjunum, er álitið að sáningu verði lokið nú um helgina. Tilrauna- stöðvar hins opinbera í Saskatchewan eru sammála um það, að jafn mikið ekrutal muni verða lagt undir hveiti þar i fylkinu nú í sumar eins og i fyrra, en Saskatchewanfylki fram- leiðir um 60% af öllu hveiti, sem ræktað er í Canada. Meira svæði verður þar lagt undir hörkorn, að þvi er sama frétt hermir. Svo mikið hefir rignt þar í fylkinu, að undan- teknum suðvestur-hlutanum, ef til vill að talið er allt útlit fyrir mjög góða uppskeru. — Fréttir úr Manitoba- fylki herma að sáning sé þvi nær allstaðar mjög langt komin, og i Douglas héraðinu, nálægt Brandon, er þegar farið að örla á hveitibrodd- inum. Hér í fylkinu virðist einnig allt útlit fyrir góða uppskeru, nema ef til vill í Morden héraðinu, þar sem mjög lítið hefir rignt ennþá, þótt þvi nær fullsáið sé þar víðast. Að því er stórblaðið “Tribune” í Winnipeg hermir á laugardaginn var, er talið að húsastæði í Winnipeg- borg hafi lækkað i verði um $86,000,- 000 á 16 árum, síðan 1914. Þá voru þau metin til $199,082,890, og hafa þau því lækkað í verði því nær um helming. Er það gífurleg lækkun, ekki sízt er tillit tekið til þess, að húsastæði í Torontoborg hafa á sama tíma hækkað um $112,489,910, og er ekki einkennilegt þótt ýmsir fasteign- amenn hér hafi átt um sárt að binda, eftir það geysilega fasteigna “boom,” er hér var siðustu árin fyrir ófriðinn mikla. Sagt er, að tiltölulega munl verða mjög lítið um byggingar hér í Winni- peg í sumar. Þó hefir nýlega frétzt um eitt fjölhýsi, sem í ráði er að byggja á Smith stræti. Verða þar 39 íbúðir, og á að kosta $150,000. Peter McDiarmid og J. A. Fraser byggja.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.