Heimskringla - 11.06.1930, Side 5
WINNIPEG, U. JÚNl, 1930.
HEIMSKRINGLA
45. BLAÐSIÐA
ferðamennirnir. Um það er hann laa
og hugsaði, var fátt sagt . Og um
trúarlif sitt var hann ekki margorð-
ur. En djúpa lotningu bar hann fyr-
ir Drottni sínum og treysti forsjón
Guðs í meðlæti og mótlæti.
Præðaþulurinn alkunni, Gísli Kon-
ráðsson, segir Guðna kominn í föð-
urætt af Hrafnistumönnum. Var G.
26 maður frá Agli Skallaglímssyni,
1 kominn af Þorgerði Egilsdóttur, Þor-
björgu digru og hinni ágætu ætt
Vatnsfirðinga. Er margt viturra
og vaskra manna í þeim áttbálki.
Þúsund ár líða, oft við örðugan
hag, frá því er Kveldúlfur og Skalla-
grímur flytja byggð sína, 878, af
Noregi til Islands, þangað til afkom-
andi þeirra, Guðni Tómasson, reisir
bú í Norður Dakota, 1878. En ein-
hver góður ættararfur fylgir honum
sýnilega. Táp feðranna, ýmsir ætt-
arkostir frá hinum gildustu mönnum
fyrir sunnan og vestan land, frá Agli
á Borg, ólafi pá, Birni Jórsalafara,
Vatnsfjarðar-Kristínu dóttur hans,
frá Birni á Hifi, er enskir vógu, en
ólöf Loftsdóttir, ekkjan kom hefnd-
um fram gegn, duldust tæpast þeim,
er bezt þekktu hinn útlenda bónda
SMART SHOP FOR WOMEN
MEL VIN’S Limited
369 Portage Ave.
Winnipeg
Hjá oss finnið þér fegurstu kvenfatnaði á Injög sanngjörnu
verði.
• t
YFiRHAFNIR og FATNAÐUR
20 prócent afsláttur
Vér liöfum enn úr miklum birgðum að velja af vor- og sum-
arfatnaði og yfirhöfnum. Og nú er tíminn að vera í þeim.
Þér getið valið úr hinum miklu birgðum með 20% afslætti.
KJÖLAR
Úr liundruðum að velja. Og litirnir eru fjölbreyttir. Þar
eru kjólar, sem yður mun furða á verðinu á. Megum vér
sýna yður þá?
$12.75 — $16.75 — $19.75
og þar yfir.
FÖGUR ÚTLITS, EN ÞÓ ÓDÝR.
MELVIN’S Limited
369 Portage Avenue
ÍS fyrir ÍSLENDINGA
Hreinasta ís, sem hægt er að fá......
Hin greiðasta, reglulegasta og kurteislegasta afgreiðsla.
Gefur mestan ís fyrir peningana.
Bezti verndari heilsunnar í heitu veðri.
Bezti fæðu- og peningasparnaðarvegur.
Einfaldasti, ódýrasti og fullkomnasti vegurinn til kælingar
er
ARCTICICE
Arctic Ref rigerator
Hvorutveggja á góðum skilmálum.
Komið inn til vor að 439 Portage Ave., á móti H. B. Co., eða
símið eftir upplýsingum.
The Arctic Ice & Fuel Co. Ltd.
Head Office — 156 Bell Ave., Wpg.
Phone 42 321
^cesososðeeoðGeeosoeeððsosa
8
1
asososcoosooðoecosooocooo
MANITOBA -FYLKI
(Hon. W. R. CLUBB, ráðherra opinberra verka)
BUREAU OF LABOR
AND
FIRE PREVENTION BRANCH
f
Skrifstofa: 332 Legislative Building. Tals. 840 252
Þessi skrifstofa er stofnuð til að eiga samvinnu við verkveitendur og verkamenn og
aðra, og á að sjá um að eftirfylgjandi lögum sé hlýtt:
“The
“The
“The
“The
“The
“The
“The
“The
Bureau of Labor Act.”
Manitoba Factories Act.”
Bake Shops Act.”
Building Trades Protection
Act.”
Fair Wage Act.”
Electricians’ License Act.”
Elevator and Hoist Act”
Shops Regulation Act.”
“The Public Buildings Act.”
“The Minimum Wage Act.”
“The Stearn Boiler Act.”
The Licensing of Cinematograph
Projectionists under “T h e
Public Amusements Act-”
“The Fires Prevention Act.”
“The One Day of Rest in Seven Act
for Certain Emplovees.”
Fái skrifstofan upplýsingar um að einhverjar greinar þessara laga hafi verið brotn-
ar, er því þegar sint.
Skrifstofan skorar einnig á alla einstaklinga og starfsmenn Manitobafylkis sam-
eiginlega, að gera það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr hinum mörgu1 slysum,
ír?
sem alltaf fara fjölgandi.
Aðstoðið skrifstofuna í því að koma í veg fyrir slys, með því ,að sjá um að aðvar-
anir og leiðbeiningar séu þannig festar upp, að allir taki eftir þeim.
VERIÐ VARFÆRNIR—ÞAÐ BORGAR SIG
Standið jafnan á verði gegn óvininum
ELDINUM!
SEM ALDREI SEFUR
Góður þjónn :: Ófær húsbóndi
Eldshættan er málefni, sem viðkemur allri þjóðinni, en að því leyti
ólík almennum málum flestum, að henni verður að vera sinnt á hverjum
stað út af fyrir sig. Ef hvert bæjarfélag og sveitarfélag getur dregið úr
manntjóninu og eignatjóninu innan sinna takmarka, þá minnkar það tjón
þjóðfélagsins. Fólk í hverju héraði um sig ætti að vera hvatt til aðgæzlu-
semi á alla liugsanlegan hátt. Þó það sé nauðsynlegt að verjast eldum,
eins vel og framast má verða, þá ætti hitt þó engu síður að vera rækt
samvizkusamlega, að fyrirbyggja eldsvoða á sem allra flestum sviðum.
HAFIÐ ÞAÐ HUGFAST, að varúðin er eldinum yfirsterkari.
E. McGRATH,
Secretary, Bureau of Labor
and Fire Commissioner.