Heimskringla - 11.06.1930, Side 6
46. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
wnsnsriPEG, 11. jítni, 1930.
að Svold, No. Dak., er eig'i mælti mál
hérlendra, en fór þó þann veg með
athafnir sínar, að ættgöfgi og hetju-
lund var raunar jafnan auðsæ.
Annars hjálpar erindi Gríms, kveð-
ið eftir Konráð Gíslason, þeim sem
æskja að átta sig á einkunnum
Guðna Tómassonar.
Eftir slys það er getið var, lifði
Guðni nálega þrjú ár. Böl sitt bar
hann sem hetja. Hann dó 14. des.
1929, og var jarðsunginn þann 19.
s.m.
hafnaði nýrri stefnu,
rataði rétta götu
rekkur, en glapstig ekki.”
J.A.S.
FRÁ WYNYARD
Herra ritstjóri!
Eg hefi grun um, að eg sé ekki sá
eini er langar til að sjá nafn sitt á
prenti, þvi svo margir hafa sent ís-
lenzku blöðunum ritgerðir, fréttabréf
og jafnvel skáldsögur, til birtingar,
sem bera þess óræk merki, að sú hafi
verið hin ráðandi hvöt. Undanteknir
eru auðvitað flestir þeir, sem um
heimferðarmálið hafa ritað. Skrif-
uðu þeir auðsjáanlega af eldlegum
áhuga og óstjórnlegri andagift. Er
hverjum góðum dreng gleðiefni, að
svo skuli þeim Bergman, Brandson,
Johnson og fleirum aftaníossum vera
annt um heiður okkar allra, hvað
sem líður þeirra eigin, að þeir skyldu
leggja svo hart að sér, sem raun
varð á. En merki þess þykist eg sjá,
að af mörgum muni öll þau umbrot
þeirra vera lögð út á hinn verra veg-
inn, og tilgangurinn ekki réttilega
metinn. Mun um þá fara sem mörg
okkar mikilmenni, að viðurkenning-
una fái þeir ekki fyr en dauðir. —
Samt er það betra en ekki.
Eftir langa umhugsun og heilabrot
hefi eg afráðið að hafa þetta ekki
skáldsögu, ekki ritgerð — en “Frétta-
bréf frá Wynyard”. Mun það vanda-
minnst, því þar er skemmst frá að
segja, að héðan er ekkert að frétta.
Wynyard er í hinni svokölluðu
Vatnabyggð, sem kunnugt er, og sem
dregur nafn sitt af vötnum þeim hin-
um miklu, er Quilivötn kalast. Eru
þau tvö, Stóra Quill og hið litla. Illt
vatn og fúlt er í hinu Litla Quill, og
verra í hinu stóra. tJr vötnum þess-
um veiðist sú tegund fiskjar, sem á
ensku máli kallast “sucker”, en ís-
lenzkan á ekkert nafn yfir. Er hann
veiddur af þeim, sem við vötnin búa,
og af sumum étinn. Til þeirra, sem
fisk þann hafa étið, er lýsing á
munntemi hans óþörf, og fyrir þeim,
sem ekki til þekkja, get eg ekki lýst
honum.
Félagslíf byggðarbúa er í daufara
lagi í seinni tíð, en þar má helzt til
nefna kvenfélög mörg, en um athafn-
ir þeirra er mér ekki svo kunnugt
sem skyldi. Eg tiíheyri engu þeirra.
íslenzkir söfnuðir eru hér tveir. Hafa
þeir haft sin nprestinn hvor, sem hafa
leitast við að seðja okkar andlega
hungur, og að halda okkur á sífeldu
andlegu fylliríi; en sökum fátæktar
okkar og nízku, höfum við haft þá í
líkamlegri sveltu. Hefir þeim líklega
þótt það ósjöfn skifti, og er annar
þeirra farinn, en hinn fer bráðlega.
Annars eru menn hér talsvert trú-
aðir, þó hætt sé nú við, að það fari
allt út um þúfur, þegar prestarnir eru
farnir. Hér eru Lútherstrúarmenn,
trnítarar, Spiritualistar, heiðingjar og
fleiri. Spiritualistar trúa á aftur-
göngur, og eru allir meira og minna
vitlausir, eða þá kannske hinir.
Hveitirækt er mikil hér i byggð,
og eru flestir bændur meðlimir
Hveitisamlagsins. Allur fjöldi þeirra
er ánægður með gerðir þess og rekst
ur, en sumir ekki. Sem kunnugt er,
borgar Samlagið okkur niður á hveit-
isins u mleið og það er flutt til
markaðar, en kornkaupafélög önnur
borga strax að fullu, og er það hörð
freisting fyrir suma til að smygla
hveiti sínu til þeirra í laumi. Er þvi
ákaft stríð milli holdsins og andans
á hverju hausti og veitir ýmsum
betur. En sem betur fer, gengur
okkar “púll” ekki á öðrum eins tré-
fótum og litli bróðir hans austur við
fiskivötnin gerir, eftir umsögn Ar-
manns að dæma.
trr því eg minntist á Armann
Björnsson fomkunningja minn, lang-
ar mig til að taka lítinn útúrdúr,
sem reyndar ekki getur talist bein-
línis fréttir.
Eins og marga mun reka minni
til, skrifaði A. B. ritgerð nokkra í
Heimskringlu í fyrra, og var sú
grein ádeila á íslenzka ljóðagerð hér
vestra, og tók meðal annars til dæm-
is vísuna þá, er verðlaunin hlaut
“Hvarf þá halur frá starfi,
BED, SPRING MATTRESS COO Cf)
Complete .......................
$1,00 per week or terms as desired, can be arranged.
Only Icelandic Furniture Store in Winnipeg
Gillis Furniture Co., Ltd.
956 MAIN ST., WINNIPEG
;«
B
Phone 53 533
Night Phone 502 321
Every One
an Eight
Eights Only
for Four Years
MARMON
FINE AUTOMOBILES
for twenty-nine years
Lawrence Marmon Motors
~Limited-~
666 Portage Ave. — Phone 33 327
Borgarar af íslenzkum ættum í Cgnada og Bandaríkjunum, sem ætla heim til ættlands síns með
S.S. Montcalm í júní, skifta nú hundruðum. Gætið þess að tryggja yður far tafarlaust. Sjóferðin
ein verður svo aðlaðandi að hún er margfaldlega meira virði en sem svarar andvirðinu í penýigum.
Orvalsfólk annast skemtanir á leiðinni—söng, hljóðfæraslátt, ræður o. s. frv. Undirbúningurinn til
þess að taka á móti ferðamönnunum á Islandi eins fullkominn og kostur er á.
Talið við eða skrifið tU
W. C. Casey, Greneral Agent Can. Pac, Steamships; H, R, Mathewson,
General Passenger Agent C,P,R, eða J, J Bildfell, formann Heimfarar-
nefndar
Canadian Pacific
ISLANDSFERBIN í SUMAR
forðum og fræg er orðin;
“Feðraslóðir fór að sjá,
færðist blóð í kinnar.
Kappinn rjóður kyssti á
kyrtil móður sinnar.”
. ^ i N al fn s Dj iöl Id —- ■" ■
Kveðst Armann ekki skilja, hvers
vegna maðurinn hafi roðnað svona
mjög, en getur þess til að hann hafi
skammast sín fyrir að kyssa á pils-
faldinn móður sinnar. Er slíkt ekki
svo fráleit tilgáta, hefðu margir horft
á, því slíkt eru mjög óvanalegar
kveðjur með oss Islendingum að
minnstá kosti. En aðra skýringu tel
eg líklegri: I þá daga, sem búning-
ur kvenna var miklum mun siðari
en nú tíðkast, hefir maður, sem
nokkuð var úr grasi vaxinn, orðið
að lúta mjög til að geta sýnt nokkr-
um kvenmanni þau óvenjulegu blíðu-
atlot, og veldur það blóðsókn til
höfuðsins. Þegar eg var strákur,
tamdi eg mér þá list að standa á
hausnum. Gekk það all erfiðlega í
fyrstu, mest fyrir þá sök, að blóðið
steig — eða öllu heldur, seig mér
svo til höfuðsins.
Tel eg mig hafa ráðið gátu þessa,
og læt hér staðar numið að sinni.
Knútur í Koti.
Frá Islandi
Skemtibát hefir hátíðamefnd Al-
þingishátíðar keypt frá Lybiku, og
kom báturinn með Selfossi hingað.
Bátinn á að nota á Þingvallavatni.
Hann kostaði 6000 krónur, og er tal-
ið gjafverð. Hann verður dreginn
austur þegar færðin batnar.
Rvik 10. maí.
Sr. Jón Þorsteinsson fyrrum prest-
ur að Möðruvallaklaustri andaðist 7.
þ.m. að heimili sínu á Möðmvöllum.
Hann var fæddur árið 1849 að Hálsi
í Fnjóskadal, sonur séra Þorsteins
Pálssonar og fyrri konu hans Val-
gerðar Jónsdóttur, prests Þorsteins-
sonar. — Hann lauk stúdentsprófi
1869 og guðfræðiprófi 1873, vígðist
til Mývatnsþings 1874, fékk Húsavík
1877, þjónaði síðan Lundarbrekku og
Skeggjastöðum á Langanesströndum,
og fékk loks Möðruvelli í Hörgárdal
1907. Hann lét af prestsskap fyrir
fáum árum og hafði þá verið þjón-
andi prestur meira en hálfa öld. —
Kvæntur var hann Helgu, dóttur
Kristjáns Möller gestgjafa í Reykja-
vík.
Séra Jón heitinn var vinsæll mað-
ur, kennimaður bezti og vinsæll af
öllum ,er honum kjmntust.
(Mbl.)
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldf?.
Skrifstofu«ími: 23674
Stundar sérstakl«g,a lungnasjúk-
dóma.
Er at5 finna á skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Tnlsími: 3315H
DR A. BLONDAL
602 Medical Arts Bldg.
Talsími: 22 296
Stundar sérstakiega kvensjúkdóma
og barnasjúkdóma. — Aó hitta:
kl. 10—12 * h. og 3—6 e. h.
Heimill: |06 Victor St. Simi 28 130
DR. B. H. OLSON
ti 8-220 Medieal Arts Bldg.
Cor. Graham and Kennedy St.
Phone: 21834
Vititalstími: 11—12 og 1_5.30
Heimili: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Dr. J. Stefansson
21« MGDICAL ARTS DLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar elniíOnffii aiiidna- eyma-
nef- o( kverka-ajúkdöma
Er a« hltta frá kl. 11—12 f. h.
og kl. 3—6 e. h.
Talafmi: 21S34
Heimili: 688 McMillan Ave. 42691
Talsfmlt 2.K SS9
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
614 Somerset Block
Portmre Avenue WINNIPEG
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 24 587
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islenxkir lögfrceðingar
709 MINING BXCHANGB Bldg
Sími: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstofur að Lundar,
Piney, Gimli, og Riverton, Man.
Telephone: 21613
J. Christopherson,
Islenskur Lógfrœðingur
845 SOMERSBT BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
Mrs. 6. H. Olson
TEACHER OF SINGING
5 St. James Place Tel. 35076
Bjömvin Guðmundson
A. R. C. M.
Teacher of Muisíc, Composition,
Theory, Counterpoint, Orchei-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St.
SIMI 71821
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Samstarf er lausnin
Á þelm sex árum sem Samlögin
I hafa verið starfandi í gresjufylkjun-
j um þremur, hefir uppskera og mark-
I aðsástand verið mjög misjafnt. Á
fyrstu starfsárunum var verðlag
hækkandi og uppskera góð. Á hin-
um síðustu árum aftur á móti lak-
ari. En hvort sem blásið hefir með
eða móti, hafa allan tímann verið
æðimargir meðal manna í Vestur-
Canada, sem hafa verið óánægðir
I með samlögin og litið þau andúðar-
og útásetningaraugum. Og ef að
menn ekki vissu betur, mætti maður
halda að bændur gengju með ólækn-
andi óánægjusýki. Enda er það sí-
fellt viðkvæðið hjá fólki, sem ekkert
þekkir til búnaðarmála. Þeir þekkja
ekkert til þess, hvað landbúnaðurinn
hefir mikla áhættu í för með sér,
hve verðlag er óstöðugt, og þar af
leiðandi afkoma bænda óviss. Til-
fellið er, að bændur eru ekki haldnir
neinni óánægjusýki, en ástæðan er
sú, að þeir hafa ekki haft nein sam-
tök sér til hjálpar, og haft þess
vegna allt aðra aðstöðu en t. d. dag-
launamenn eða iðnrekendur, til að
nefna tvær samtakastéttir.
Bændastéttin er alltof fjölmenn
til þess að þeir geti starfað sem ein-
stklingur, hver í sínu horni, að fram-
leiðslu og afsetningu afurðanna. Með
því lagi vinna þeir hver gegn öðrum
á forsjárlausan hátt.
Sú staðreynd, að bændum séu sam-
tök nauðsynleg, hefir aldrei verið
eins augljós eins og á tveim siðast-
liðnum árum, sem hafa sýnt greini-
legar en nokkru sinni áður, hversu
náið afleiðingasamband er á milli á-
standsins í Canada og annara hveiti-
framleiðandi ríkja heimsins. Það er
ómögulegt samtimis, bæði að hafa
hveitisamlög og að vera laus við
þau, en það er framkvæmandi að
bera saman ástandið fyrir stofnun
þeirra, og eftir að þau tóku til
starfa. Og enginn, sem skynbær er
á þá hluti, og gætir sanngimi, getur
komist fram hjá að játa, að bændur
hafi haft hag af tilveru samlaganna.
Og enda þó að ástand landbúnaðarins
í Canada sé slæmt, myndi það þó vera
ennþá verra, ef aðstoðar Samlaganna
hefði ekki notið við, til að draga úr
snöggum verðhröpum. Ennfremur
er ekki hægt að kenna verðfallinu nú-
verandi ástand, að öllu leyti. Fjöldi
bænda hefði getað verið í betri efn-
um, ef þeir hefðu ekki leiðst út í
fjárbrall á framtíðarverði hveitis-
I»vi a» ganga undlr nppakurti vi»
botnlniiKahólpru, cnllnteinnm,
inagra- o( lifrarveiki?
Hepatola hefir gefist þúsundum
manna vel víósvegar í Canada, á
hlnum síCastliönu 26 árum. Kostar
$6.75 meö pósti. Bæklingur ef um
er betiits.
Mrs. Geo. S. Almas,
Box 1073—14 Saskntoon. Sngk.
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DR. 8. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNTPEG —MAN.
A. S. BARDAL
selur líkkistur og: ann&st um útfar-
ir. Allur útbúnatSur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnievarba og legstelna.
843 SHERBROOKE ST.
Phonet 86 607 WINNIPEG
TIL SÖLU
A ÖDfRU VERÐI
“Í'URNACE" —bætSi vltiar og
kola “furnace” lítitS brúkati, er
tii sölu hjá undlrrttutSum.
Gott tæklfæri fyrir fófk út á
landi er bæta vilja hitunar-
áhöld á heimillnu.
GOODMAN & CO.
788 Toronto St. Slml 28847
ins. En slíku gleyma menn oftast
nær í þessu sambandi.
Núverandi ástand akuryrkjubænda
er ekkert einsdæmi. Komið hafa
áður tímar jafnvel verri en nú. Mun-
urinn er aðeins sá, að nú skilja bænd
ur í meðferð hveitis og markaðsáhrif
um, þar sem vaninn var fyrir daga
samlaganna, að selja hveitið í blindni
til næsta “elevator”, og taka þegj-
andi og skilningslaust við þvi verði,
sem þeim var boðið. Nú á dögum
eru bændur farnir að skilja og at-
huga kostnað á framleiðslu, mark-
aðsmöguleika, gæðastig upskeru, og
aðra þýðingarmestu liði í afkomu
hveitibænda. Þessi aukni skilning-
ur er mestmegnis að þakka þeirra
eigin stofnun, hveitisamlögunum og
starfsemi þeirra. Án þessara stofn-
ana myndu hveitibændur Canada
fljóta í hafi ennþá meiri fjárhags-
vandræða, en nú á sér stað, og vera
þess utan blindir og óvitandi um or-
sakirnár til vandræðanna.
Ragnar H. Ragnar
Pianokennari
Phone 34 785
—Kennslustofa—
693 Banning Street
Gunnar Erlendson
Pianokennari
Kennslustofa: Talsími
684 Simcoe St. 26293
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Baggage and Fnrnitare JHovIngr
668 ALVERSTONE 8T.
SIMI 71898
Eg útvegra kol, eldivitJ meí
sanngjörnu vertSi, annast flutn-
ing fram og aftur um bæinn.
100 herberg;! met5 et5a An baT5»
SEYMOUR HOTEL
vert5 sanngjarnt
Slml 28 411
C. G. H UTCHISON, elgandl
Market and King St.,
Winnipeg —:— Man.
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
SafnaSarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuíSi.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkuri~n: Æfingar á hverju *
fimtudagsKveldi.
Sunnudagaskólinn:— A hverjurn »
sunnudegi kl. 2,30—3.30 e. r*- •
I