Heimskringla - 31.12.1930, Side 4

Heimskringla - 31.12.1930, Side 4
4. BLAÐSIÐA HtlMSKRINGLA WINNIPEG 31. DESEMBER, 1930. ^icimskringlci • (Stofnuð 1886) Kemur út á hverjum miOvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS. LTD. SS3 og 8S5 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86537 VerS blaðsins er $3.00 árgangurinn borglst fyrlríram. Allar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD. Utanáskrift til 'blaOsins: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. Utanáskrift til riistfórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent A je., Winnipeg. "Heimskringla" is published by tnd printed by The Viking Press Ltd. 853-855 Sn/rgent Avenue, Winnipeg, Man. Telephone: 89 994 WINNIPEG 31. DESEMBER, 1930. GAMLA ÁRIÐ OG HIÐ NÝJA. Árið 1930 er liðið. Liðið eins og elfur í úthaf eilífðarinn- ar, eins og öll hin fyrri ár. Liðið og kemur aldrei aftur. Það er horfið með auðnutækifærunum og óhöppunum, sigrum sínum og von- brigðum, sorg og gleði. Það eina sem eftir lifir af því, er endur- minningin um það. En henni hlýtur við og við að skjóta upp í meðvitund vorri á hinu nýbyrjaða ári. Og sú endurminning verður ýmist ljúf og geðfeld, eða dimm og skuggaleg, eftir því sem vonirnar hafa ræzt eða brugðist. Og um leið vaknar þá eðlilega sú spurn ing, hvort að vér höfum notað öll tæki- færin, sem liðna árið bar í skauti sínu, eins vel og vér hefðum getað? Höfum vér gert allt, sem í voru valdi stóð til þess, að vera öðrum til heilla og hamingju? Er ekki margt góðverkið óunnið, sem hefði getað verið gert? Er ekki margt uppörvunar- og huggunarorðið ótalað, sem hefði átt að vera sagt. Höfum vér ekki látið neitt tækifæri ónotað, er á liðnu ári bauðst til þess að vera sjálfum oss og öðrum til farsældar? f»ó að allt þetta þyki nú nokkuð nærgöngult, er það í raun og veru skylda hvers manns, að vaka yfir þessu. Vér hljótum að gera upp þann reikning við samvizku vora, þó vér sting- um því fram af oss opinberlega. Og kom- umst vér að þeirri niðurstöðu við þá grein argerð, að vonirnar hafi ekki ávalt ræzt, getum vér að líkinduni ekki hjá því kom- ist að kenna sjálfum óss um það, að hafa látið eitthvað af tækifærum liðna. ársins oss úr greipum ganga ónotuð. Hið liðna ár var í vissum skilningi far- sældar- og auðnuár í Canada, sem víða annarsstaðar. Veðráttan var hér eins mild og hagstæð og auðið var að hugsa sér. Skaut náttúrunnar eins örlátt og gjöfult og nokkru sinni fyr. Frá því sjón- armiði skoðað, mætti hér búast við, að árið liðna hefði verið mönnum mesta hag sældarár. En nú er öðru nær en svo sé. Það hefir víðast reynst erfiðleika- og •þrautaár, sneytt allri þeirri sælu og vel- gengni sem við hefði mátt búast. Og meira en það. Menn hafa h'klegast aldrei örvænt meira út af hag sínum en einmitt nú, þegar landið svo að segja flýtur í hun- angi og auðlegð íbúnuum til handa. Sýnir nokkuð betur en þetta, að menn hafa ekki gegnt þeim þjóðfélagslegu skyld- um, sem þeim bar að gegna? Er ekki nugljóst á því, að menn liafa ekki í at- höfnum sínum stjórnast af hugsjónum þeim, er til hamingju leiða fyrir fjöldann? Er ekki augljós af því skorturinn á sönnu bræðraþeli hjá oss? En þetta er nú allt liðið, og við því verð- ur ekki gert, kunna einhverjir að segja. Það er satt. Yfir athöfnum vorum á liðnu ári höfum vér nú engin ráð. Þær eru ó- umbreytanlegar. En yfir komandi tíð ráðum vér ennþá og framtíðarathöfnum vorum. Á þessu nýbyrjaða ári gefst að einhverju leyti tækifæri til þess, að bæta úr yfirsjónum vorum, ef vér færum oss þau tækifæri í nyt. Og nú er meiri nauð- syn en nokkru sinni fyr, að gera sér sem glöggasta grein fyrir því, er ógæfunni veldur, og ganga með óskiftum hug að verki með að bæta úr misfellunum. f Ijósi endurminninganna frá liðnu ári getum vér rekið oss úr skugga um það, hvar oss hefir skjátlast, hvar vér höfum sem sannir menn vanrækt skyldur vorar — látið tækifærin til góðs oss úr greipum ganga. Með þá reynslu að leiðarsteini í stafni, getum vér öruggari en ella hafið gönguna fram á nýja árið. í>að er oss einnig hvöt til þess, að rækja skyldur vor- ar betur en áður á nýbyrjaða árinu, að hugsa með meiri samúð um vorn sameig- inlega hag, og gleyma því ekki, að vér erum bræður, sem yfir óþrotlegum mögu- leikum búum til þess að vera hverjir öðr- um til gleði og gæfu, ef vér aðeins vilj- um. Með þeim hugsunum kveðjum vér gamla árið, og heilsum öruggir og von- góðir hinu nýja. HRAÐI OG ANDLEG ÞROSKUN. Þegar Li Huang Chang var á ferðalagi sínu um Ameríku, var honum haldin veizla af þeirra tíma stóriðjuhöldum New York borgar. Honum var sagt það í frétt um af einum járnbrautarkónginum, að honum hefði nú heppnast að auka svo hraða járnbrautarlesta sinna, að það spar aði mönnum sex klukkustundir að ferðast milli New Yorkborgar og Chicago. “En,’’ spurði hinn austurlenzki heimspekingur, “hvað gera menn við þessar sex klukku- stundir, eftir að til Chicago er komið?’’ Allir góðir bílasalar leggja nú aðal- áherzluna á það, hve hratt bílamir geti farið, sem þeir eru að reyna að selja. Má af því ráða að það séu beztu meðmælin með þeim. Það er nú ef til vill ekkert út á það að setja, þó ekið sé með sextíu mílna hraða í bíl, ef þörfin krefst þess. En hvers vegna eiga menn að aka svo hratt, ef engin þörf er á því? Það var einn þennan inndæla október- dag í Nýja Englandi, sem eg ók einu sinni heim með vini mínum af samkomu úti í sveit. Bílstjóranum var skipað, eftir að við vorum komnir inn í bílinn, að fara dalbrautina, því það sparaði okkur allt að því tuttugú mínútur. Jurtagróðurinn var í sínum fegursta haustskrúða og geisl- ar kvöldsólarinnar ljómuðu um fjallahlíð- arnar. Fram með veginum, sem við ók- um eftir, stóðu há tré á nokkrum stöðum er skugga lagði af yfir brautina. Kvöld- ið var dýrðlegt og það seiddi sál mína. En til þess að slíta mig frá unaðssemd þess tuttugu mínútum fyr en nauðsynlegt var, varð að fara styztu leið og aka fimintíu til sextíu mílur á klukkustundinni. Eg skildi vin minn — Þrír syst- kinasynir mínir, sem stunda nám í miðskólunum, hafa þessa sömu skoðun og hann. Þeir miða allt við hraða vél- anna. Það er engin sú vél til í bíl eða Vagni, sem þeir vita ekki um hraðann á. Og þeir geta talað um hina einstöku hluta bflanna, kosti þeirra og galla, svo klukku stundum _ skiftir. Þeir vita jafnvel um hvert handtak, sem til þess þarf að hefja loftförin til flugs. Undraverð þekking, veit eg að þið segið. En samt vita þeir ekki það, sem við vissum á þeirra aldri. Þeir vita ekki hvar heiðblá fjólan grær, eða hvað kvak froskanna þýðir, eða hvort gullþrösturinn og rauðbrystingurinn eru skyldir. Menn hafa lítinn tíma til lesturs nú orð- ið. Hverja stund, sem þeir eru ekki í vinnu eða sofa, eru þeir annaðhvort á hreyfimyndahúsunum, eða akandi út í bíl. Eg grennslaðist nýlega eftir því á fundi einum, þar sem saman voru komn- ir um sex hundruð manns, er annaðhvort voru viðskiftahöldar eða menn lærðu stéttanna, hve margir hefðu lesið hina al- þýðlegu og skemtilegu bók H. G. Wells “Outline of History” (Ágrip veraldarsög- unnar). Eg komst að raun um það, að aðeins fimm af þeim höfðu lesið hana. — Slíkt er eg viss um að hefði ekki getað átt sér stað fyrir þrjátíu árum. Á hverjum sunnudegi streyma bílarnir út úr bæjunum. Og hver keppist við að komast fram fyrir annan. Hornablástur- inn ætlar að æra mann. Kyrðinni og friðinum, sem yfir sveitunum umhverfis bæinn hvílir að jafnaði, er þá lokið. Og flestir eru þessir bílar eiginlega ekki að fara neitt. Það er bara verið að aka eitt- hvað, án þess að hafa nokkurn ákveðinn stað í huga og án nokkurs erindis. Menn hafa auðsjáanlega þegar gleymt að njóta unaðarins af að horfa á laufþrunginn skóg eða blómum stráða grund. Gas- brennsludaunninn í bílunum er sætari í þeffærum þeirra en ilmur fjólanna. Litur blómanna og söngur fuglanna hefir held- ur engin áhrif á þá. Að því er fegurð og unað sveitanáttúrunnar snertir er þetta ferðalag þeirra þeim til einskis. Þeir njóta þess ekki frekar en þó þeir væru að aka eftir rykugum bílabrautum sýningargarð- anna. \ Yfirleitt er fólk vort mjög heillað orðið af hraðanum. Og það er farið að hafa sín áhrif á andlegan þroska þess. Oss virðist fólk nú orðið hvorki hafa þolin- mæði, né hæfileika er eg hræddur um — til þess að hugsa hlutina niður í kjölinn, eða skapa sér sjálfstæða skoðun á hinni verulegu þýðingu þeirra. Af hraðanum leiðir það, að það sér aldrei nema yfir- borð hlutanna. Og nú er það hætt að grafast eftir meiru. Þetta er jafnvel nú farið að koma átakanlega fram í bók- menntunum. Þeir sem rita nú mest fimb- ulfamb um efnið, án þess að segja nokkuð ákveðið eða ábyggilegt um það, eru nú víðlesnastir. Höfundarnir dita, að les- endurnir eru hættir að krefjast nokkurrar fræðslu af þeim og taka jöfnum höndum við því, sem við engin rök hefir að styðj- ast, og hinu, sem sannara er. Af þessu leiðir svo þetta almenna skoðanaleysi, er aldrei hefir borið meira á en nú, og sem í raun og veru stendur öllum andlegum framförum og þroska fyrir þrifum. Það er því aðeins hægt að hugsa skýrt og rökrétt, að menn flýti sér ekki of mik- ið. Sá sem einhverja dulda rún eða ráð- gátu ætlar sér að ráða, getur reitt sig á að hún er ekki mikils verð, ef hann ekki þarf að hugsa um hana og athuga svo vikum eða mánuðum skiftir. Yfirborðs- eða augnabliksathuganir nægja ekki til þess. En til þess að skilja störf og verknað véla, býst eg við að einhverjir segi, að einnig þurfi rökrétta og skýra hugsun. Og það er að vísu satt. En hugsunin um hið líflausa og lifandi er þó sitt hvað. Vélin er óumbreytanleg og eins og hún var upp- runalega smíðuð. Um hið lífræna er allt öðru máli að gegna. Það þroskast og breytist í hið óendanlega. Afleiðingin af því er sú, að þeirrar hrifningar og hinna dýpri hugsana og viðkvæmari tilfinn- inga, sem vakna hjá hverjum þeim, sem náið samband á við blóm Vallarins, nið lækjarins og klið fuglanna, verður aldrei vart hjá ökuvitfirringnum (motor man iac). Hann hugsar og lítur allt öðrum augum á hlutina. Söngur þrastarins er ekki meira virði til hans en skrölt bílsins, skin Orions ekki eins mikið og stjörnu- glitrið á kjólum hreyfimyndastúlknanna. Þetta æði eftir að komast sem hraðast yfir og festa ekki sjónir á neinu til hlítar, hefir í för með sér skerðingu á andlegum þroska vorum. Við skulum hægja ofurh't- ið á okkur og gefa sálinni ráðrúm til þess að vaxa. (Þýtt.) Endurminningar Eftir Fr. Guðmundsson. HJÁLP! HJÁLP! í ávarpi í lendinga í því, sem Þjóðræknisfélag ís- Vesturheimi sendi meðlimum sínum á þessu ári, stendur þessi setning “Hvað gerum vér til að láta ungu kyn- slóðinni í té gullið, sem oss var fengið í hendur?” Sannarlega er ekki hægt að beina þess- ari spurningu til deildarinnar Frón hér í Winnipeg, því að hún gerir sitt ítrasta til að útbýta þessu gulli. Og það má ó- hætt fullyrða að frúin, sem hefir stundað þetta göfuga verk nú í mörg ár, liggur ekki á liði sínu til að láta tilraunir Fróns verða að sem mestum notum. En þá kemur röðin að mér, og get eg sagt það með sanni, að eg vil líka að kennslan beri góðan ávöxt og hefi fullan vilja til þess að gera alt, sem í rnínu valdi stendur að svo verði. En þó þarf eg hjálp, og sú hjálp þarf að koma frá fólki, sem á börn og vill láta þau læra að lesa og skrifa íslenzka tungu Ástæðan er þessi: Eg er ókunugur hér í borginni, og veit þar af leiðandi ekki hvar landar búa, svo eg geti farið heim til þeirra og boðið þjónustu niína. Hjálpin, sem eg bið um, er því innifalin í því, að biðja þetta fólk, þessa foreldra, að snúa sér til mín, og gefa mér nöfn þess og heimilis- fang, og mun err þá koma og gera ráð- stöfun, .hvernig kennslunni yrði hagað. Þenna fyrsta mánuð fyrir jólin, sem kennslan stóð, hefði eg getað kennt fleiri börnum en eg hafði; en eg vona, kæru for- eldrar, að þið lagið það eftir nýárið, svo eg hafi heldur of mikið en of lítið að gera. Mig langar til að geta þess hér, að nokkur af þeim börnum, sem eg er að seS.Ía til nú, sýna svo frábæra löngun til að læra og skilja íslenzku, að eg hélt að slíkt væri ekki til hér, og yfirleitt má segja að öll börnin sýni góðan vilja, og eg vildi að eldra fólkinu væri eins mikið á- hugamál, að börnin lærðu íslenzku, eins og börnunum sjálfum. Að endingu óska eg öllum íslendingum góðs og hagsæls nýárs, hvar sem eru, og eg vona að foreldrar hér í winnipeg, gefi mér gott ár með því að leyfa mér að kenna börnum þeirra nokkur orð í ís- lenzku, gefa þeim dálítið af gullinu. Virðingarfyllst, Guðjón S. Friðriksson. 518 Sherbrook St., Sími 30 289. Frh. í kaupstaðnum sá eg og lærði lítið eitt að þekkja ýmsa menn, sem mér þykir vert að geta um einmitt nú, af því að ekki er víst að það eigi betur við seinna, enda var það löngum öll sú við- kynning, sem fjarlægir menn nutu hvor við annan oft og tíð- um einmitt þessar stundir, þá er þeir rákust á í kaupstaðar- ferðum. Tiltölulega voru það mest Vopnfirðingar, sem eg kynntist þarna í fyrsta sinni, og langar mig til að minnast ögn á þá í heild sinni. í hverjum einasta hreþp á landinu, eða öllu heldur í hverri kirkjusókn, voru skipaðir tveir sáttasemjarar eða svokallaðir “forlíkunarmenn”, og var presturinn ávalt til þess kjörinn eða jafnvel sjálfkjör- inn, nema hann væri þá sér- stakur óeirðarmaður sjálfur, en ætíð var af amtinu skipaður ein- hver vel metínn bóndi prestin- um til aðstoðar í því starfi. Það gefur því að skilja, að víðasthvar í sveitum var það mest undir prestinum komið, hva'ð friðsamt var í sveitunum. Á orði var það haft, að aldrei færu misklíðar- mál í Vopnafirði lengra en upp að Hofi til séra Halldórs Jóns- sonar, og að sáttabók presta- kallsins væri endingargóð og ó- vanalega hreyfð. Ekki svo að 1 fullan aldarfjórðung hafa Dodds nýrna pillur verið hin viðurkenndu meðul við bak- verk, gigt og blöðru sjúkdóm- um, og hinna mörgu kvilla, er stafa frá veikluðum nýrum. — Þær eru til sölu í öllum lyfja- búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur fyrir $2.50. Panta má þær beint frá Dodds Medicine Company, Ltd., Toronto, Ont., og senda andvirðið þangað. sagan ekki lengri. I Þórðar rímum hreðu er sagt þannig frá Þórdísi húsfreyju á Miklabæ í Óslandshlíð: Hún gat séð af hundsfylli, hún gat léð eitt rúmhæli. Hún var svona >ress við veg, hún var kona rausnarleg. Það er líka hægt að minna á uppistöðuna, þegar Unnur lét byggja gestaskála um götu þvera, til þess að tapa engum skilja, að Vopnfirðingar Væru j framhjá. En það var á seinni gungur, en þeim hafði innræzt j hluta nítjándu aldar, að Þórdís afdráttarlaust, að allur ófriður, á Skjöldólfsstöðum sendi Sveini stríddi á móti kirkjunni þeirra á Hákonarstöðum beztu kúna prestinum, safnaðarsamfélaginu sína, ekki í hjúkrunarvana lífs- heimilisfriði velliðun. og allri efnalegri Þarna í kaupstaðnum hitti eg hjón sem mér eru minnisstæð, Jón og Þórdís frá Skjöldólfs- nauðsyn, heldur af meðfæddri mannúð. Þeir liggja lengi faldir neistarnir í gömlum glóðum, og það er sízt að neita því, að vér * kunnum ennj>á að líkjast eitt- stöðum á Jökuldal. Þau þóttu _ hvað landnámsmönnunum ís- lenzku, eins í því fegursta og bezta eins og í bardagahug. — Ekkert veit eg um ættir þeirra Skjöldólfsstaða hjóna, en ekki er ólíklegt að Jón bóndi hafi veriö kominn af eínuðu fólki, því að hann-hafði verið settur í skóla, og heyrði eg að hann hefði ver- ið kominn í þriðja bekk latínu- skólans, þegar hann sjálfur átt- mér framúrskarandi myndarleg, einkum konan. Ekkert gerðist sögulegt í sambandi við þau í þessari ferð minni nema hvað mér blöskraði hve mikið konan tók út úr búðinni og vissi eg þó vel að þau voru forsjál og reistu sér ekki hurðarás um öxl, þann er þau ekki skiluðu á réttum sta'ð. En fjáreignin hlaut að vera Brot úr ferðasögu (Frh. frá 1. bls.) mikil. En þá var í tilefni af því aði sig á því, hvað var verið að sem eg hafði heyrt af þessum ' leiða liann, og þvertók* fyrir að hjónum að eg veitti þeim sér- sitja lengur við skruddur þær. staka eftirtekt, og skal eg nú | Vildi hafa eitthvað hugðnæmara geta um þáð, því af því verður aö fást við. Höfðu þeir Benedikt nokkuð lært um eiginleika sum- Sveinsson sýslumaður verið ra þeirra manna, sem annars er skólabræður. . hvergi getið og voru þó andlegir * Frh. aðalsmenn, jafnt konur sem karlar. Sveinn hét bóndi á Hákonarstöðum á Jökuldal, vel efnaður rausnarbóndi og bezti nágranni. Hann verður fyrir því óhappi snemma á vetri að missa nýborna ágætis mjólkurkú, en það eign sem ekki var þægilega hægt að komast yfir þó nógir peningar væru í aðra hönd, því fæztir höfðu þær aflögu á vetur- nóttum, enda skildist öllum það, að góðar mjólkurkýr voru hag- feldasta heilbrigðisráðið á hverju heimili. Það lá einsog í loftinu sú regla, að telja kýrnar fremur eign húsfreyjunnar en húsbónd- ans, enda er sagt svo frá, að Þórdís á Skjöldólfsstöðum lét leysa út unga og góða mjólkur- kú er hún hugði að geta án veriö og sefidi hana Sveini á Hákon- stöðum er hún frétti hverja út- reið hann hlaut með kussu sína. r# Þórdís átti vel uppalinn traustan og fallegum reiðhest, þótti það miklu varða þá er konur brugðu sér bæjarleið að minstakosti frá betri heimilum, að hesturinn skilaði þeim heim aftur, þó þær færu ekki fáklæddar. Þessi reið- hestur Þórdísar stingur sér ofan í pitt eða deyr af einhverjum ó- viðráðanlegum ástæðum. Þetta frétti Sveinn á Hákonarstöðum einsog aðrir. • Han átti kannske fleiri reiðhesta, en þó einn gæð- ing sem bar af öllum hinum að flýti kostum og fegurð. Þenna sendi hann þegar Þórdísi á Skjöldólfsstöðum og þá er sagan horfs að vetrarlagi. En alt er lands- lagið stórhrikalegt og svipmikið og- ólíkt öllu því, sem sést hér 4 slétt- lendinu í Mið-Canada. Ymislegt kynlegt ber fyrir augu á langri leið. Þegar við vorum komin upp úr verstu giljunum, sáum við karlmann og kvenmann við veginn, með mótorhjól. Hvernig þau höfðu farið að þvi að komast þangað upp með hjólið, held eg hafi verið okkur öllum óskiljanlegt- Það var að minnsta kosti hið ólíklegasta farar- tæki til þess að koma að nokkru haldi á þeim slóðum. * * * Austur yfir fjall — svo er það kall- að í Reykjavík og þar í kring, þegar ■ farið er austur yfir Helisheiði aust- ur í Árnessýslu. Eg var svo hepp- inn að geta farið þangað þrisvar, og átti eg það að þakka velvild bróður míns og mágs og annara manna, er lánuðu bíla — allir voru fúsir að gera allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að gera okkur Vestur-Islendingum dvölina heima sem ánægjulegasta. Eg hl8.kkaði mikið til þess að sjá austur yfir sveitirnar af Kambabrún, enda höfðu margir sagt mér að það- an væri hin fegursta útsýn í fögru veðri. Maður stendur á brúninni og horfir yfir Suðurlandsundirlendið, stærsta sléttlendisflákann, sem er til á öllu lslandi. ölfusið, Flóinn, Holtin og Rangárvellirnir blasa þarna við, sígræn slétta, nema þar sem holt

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.