Heimskringla - 25.02.1931, Page 1
DYERS & CLEANERS. LTD.
SPECIAL
Men’s Suits Dry 4 n A
Cleaned & Pressed*? I bUU
(Cash and Carry Price)
Delivered, $1.25
Buttons Tightened, Heplaced
and all Minor Reparirs Free
DYERS & CLEANERS, LTD.
SPECIAL
Ladies’ Plain Silk Q 4 AA
Dresses Dry Cleaned^ I «UU
& Finished
(Cash and Carry Pricel
Delivered, $1.25
Minor Repairs Free
,XLV. ARGANGUR.
WINNIPEG MIÐVTKUDAGINN 25■ PEBRtrAR, 1930.
NCrMER 22
VESTURFVLKIN OG
HVEITISAMLAGIÐ
Bankaskuid sú, er Vesturfylkin á-
byrgðust að standa skil á fyrir hönd
Hveitisamlagsins, nemur alls $22,-
455,983. Hæst er ábyrgð Saskatche-
wanfylkis og nemur hún $12,400,000.
í>ar næst er ábyrgð Alberta fylkis
um $6,284,558. En ábyrgð Manitoba-
fylkis er minst og nemur $3,491,611.
Þessar tölur yfir skuldina gaf for-
sætisráðherra John Bracken í þing-
inu sl. föstudag i fjármálaræðu
sinni. Eignirnar, sem Hveitisamlag-
ið i Manitoba á í kornhlöðum og
byggingum, og sem að veði standa
fyrir skuld þess fylkis, eru fyllilega
taldar virði skuldarinnar. Upphæð á-
byrgðarinnar er minni en hún var
fyrir nokkru siðan, vegna þess að
hveiti hefir talsvert hækkað í verði
síðustu tvo mánuðina.
PÓSTFLUTNINGA LOFTSKIP
FERST.
Eitt af loftskipum þeim, er flyt-
ur póst frá Winnipeg vestur um
land, fórst s.l. föstudag skamt frá
bsenum Bagot, sem er 15 milur
vestur af Portage La Prairie. Með
skipinu voru tveir farþegar, Dr. R.
E. Alleyn frá Winnipeg og George E.
Lewls lífsábyrgðar agent frá Re-
gina og dóú báðir. Skipstjórinn, er
H. G. Forrester hét, komst með
naumindum lifs af, en hlaut alvar-
teg meiðsli á höfði og liggur á
sjúkrahúsinu í Portage.
Slys þetta vildi þannig til, að loft-
farið lenti í þoku svo mikilli, að
ekki var auðið að sjá hvert haldið
var. Reyndi skipstjórinn. þá að
lenda, en með því að ekki sást
handa sinna skil, kom hann svo
bratt niður, að loftskipið steyptist
kollhnýs og stóð á sama augnabliki
5 björtu báli af gassprengingu frá
vélinni. Brann skipið þar upp til
agna ásamt öllum póstflutningi. —
Parþegunum varð heldur ekki bjarg-
að.
Loftskipið var eign Western Can-
ada Airways félagsins í Winnipeg.
Slysið vildi til kl. 8.30 að kvöldi.
NIÐINGSVERK.
Þjófar ráfuðu inn í barnaheimili
* St. Albert, sem er bær sex mílur
vestur af Edmonton, s.l. föstudag
°S stálu $215 í peningum, er geymd-
'r voru þar í öryggisherbergi, og
lögðu eld í herbergið að því búnu.
Báðskonur barnaheimilisins urðu
eldsins varar og drifu börnin upp úr
rúrnum sinum, 250 talsins, og út úr
byggingunni kl. 3 um nóttina. Var
eldurinn slöktur eftir þrjá fjórðu
stundar, svo börnin gátu aftur far-
'Ö í rúm sín og þurftu ekki að
atanda lengur hálfnakin úti. Ekkert
af börnunum veiktist, þó orsök væri
Ll þess, enda hlúðu umsjónarkon-
arhar að þeim eftir föngum með
rumteppum og sjölum á meðan þau
Þurftu að vera úti.
NYTT ORKUVER.
Porsætisráðherra John Bracken
'hintist á það í fjármálaræðu sinni,
að honum hefði dottið í hug að gera
t'Iraun til að virkja Dauphin-ána í
nánd við Sturgeon Bay í Winnipeg-
vatni, til notkunar fyrir Manitoba-
fylki. Þetta er 140 mílur norður
af Winnipeg. Sagðist forsætisráð-
herra ætla að sækja um samþykt
tángsins til þess, að lita frekar inn.
‘ niöguleikana til framkvæmda á
Þessu. Sagði hann auðið að fram-
leiða um 400000 hestöfl þar, og
v*ri tilraunin þvi þess verð að reyna
hana.
100% HVEITISAMLAG.
A þinginu í Saskatchewan var
frumvarp samþykt um það, að al-
menn atkvæðagreiðsla færi fram um
100 prósent Hveitisamlag, eða hvort
skylda ætti alla kornræktarbændur
fylksins að selja Hveitisamlaginu
korn sitt eða ekki.. Var frumvarpið
í þinginu samþykt með 84 atkvæð-
um gegn 5. Er lítill vafi talinn á, að
almenningur verði með 100 prósent
hveitisamlagi, og að það verði þvi
löggilt innan skams í fylkinu.
VERKFALL 1 WINNIPEG.
Fyrir hér um bil þremur vikum
gerðu saumakonur og annað verka-
fólk verkfall, er vann hjá Jacob
Crowley Manufacturing Co., vegna
þess að félagið fór fram á kauplækk
un er nam 10 prósent af launum
þeirra, er hæst var borgað, og 1—2
dölum af Iaunum þeirra, er 14 til 30
dala vikukaup höfðu. Alt var vinnu-
fólk þetta í “Union”, og hafa þeir
er fyrir þessum “Unions” eru, verið
að reyna að komast að samningum
við saumafélagið um að lækka ekki
kaupið og hótað verkfalli í fleiri
greinum, ef að vilja þeirra yrði
ekki farið í því efni. En nú er
saumafélag þetta aftur tekið til
starfa, og hefir ráðið til sín nýtt
fólk. Um 160 manns mistu þarna
vinnu.
HtrSBRUNI I KEEWATIN.
Eldur, sem skyndilega kviknaði
án þess að nokkur vissi hvernig á
því stóð, brendi til kaldra kola heim-
ili þeirra tijóna Thos. Johnstons og
konu hans, á norðurströnd Darlington
fjarðar í Keewatin síðdegis miðviku-
daginn þann 14. janúar.
Mrs. Johnson hafði farið út til
þess að kalla á mann sinn, sem var
að vinnu skamt frá húsinu; en þeg-
ar hún kom aftur, stóð húsið i
björtu báli.
Eldliðið í Keewatin var tafarlaust
kallað, og hepnaðist því að verja
eldinum frá því að berast út til
fleiri húsa, þrátt fyrir afarmikla
erfiðleika.
Húsið var i nokkurri eldsábyrgð,
en mjög lágri.
Nágrannar þeirra Johnsons hjóna
votta þeim samhygð sina. Þau eru
mikils virtir frumbyggjar i hérað-
inu. Sérstaklega samhryggist fólk
þeim sökum þess, að margir dýr-
mætir minjagripir, sem þau höfðu
komið með frá hátíðarförinni í sum-
ar, eyðilögðust í eldinum, þegar
heimili þeirra brann til ösku.
NYTT FÉLAG.
Nýtt félag var nýlega stofnað ný-
lega í Carman, Man., er nefnist Anti
Compulsory Pool League, og hefir
það á stefnuskrá sinni, eins og nafn
ið ber með sér, að sporna við því, að
hér verði að lögum gert að skylda
hveitiframleiðendur til að selja Hveiti
samlaginu hveiti sitt. Er félag þetta
aðgerðamikið og hefir nú samið
bænaskrá, sem verið er að safna
undirskriftum til, er fram á það
fer að fylkisstjórnin í Manitoba skipi
konunglega nefnd til þess að rann-
saka gerðir hveitisamlagsins. Enn-
fremur er farið fram á það við fylk-
isstjórnina, að hún nemi úr lögum
ákvæði þau, er skylda þá, sem und-
ir samning hafa skrifað um að skifta
við Hveitisamlagið, að verzla við
það, fremur en mönnum gott þyki.
1 þessu nýja félagi eru bæði menn
er utan og innan Hveitisamlagsins
standa. Segir ritari þess.Frank Bodie,
að full ástæða sé fyrir meðlimi
Hveitisamlagsins, að biðja um að
nema samninga sína úr gildi, þar
sem Hveitisamlagið hafi ekki haft
heimild til að kaupa hveiti á “op-
tions” eins og það hafi þó gert.
RIDDARATIGN.
Kapteinn Malcolm Campbell, sá
er nýtt met setti i hraðakstri í bil
5. febrúar s.l. við Dayton Beach í ^
Florida, með því að aka 245.7 míl-
ur á klukkustund, hefir verið sæmd-
ur riddaratign (Knighthood) af kon-
ungi Breta. Verður hann þvi nefnd-
ur hér eftir Sir Malcolm Campbell.
ISLENDINGAMÓT ÞJÓÐ-
RÆKNISDEILDARINNAR FRÓN
Eins og auglýst var í blöðunum
s.l. viku verður Islendingamót
Fróns næsta fimtudagskvöld (26.
febrúar) i Goodtemplarahúsinu.
Hvergi hafa Islendingar, eldrt
sem yngri, betri tækifæri til að
skemta sér en þar.
Einn bezti islenzki' söngvarinn,
sem nú er uppi, syngur þar.
Einn af okkar beztu íslenzku
ræðumönnum vestaii hafs flytur
þar ræðu.
Eitt af okkar beztu kýmnisskáld-
um flytur þar frumort kvæði.
Ein af okkar ágætustu söngkonum
hér vestra syngur þar.
Ein af okkar ágætustu píanóleik-
urum spilar þar íslenzka söngva.
Ein af okkar beztu fiðluleikurum
spilar.
Þar lætur og blandað kór, undir
stjórn Björgvins Guðmundssonar til
sfn heyra.
Þar verður undursamlegur dans.
Þar verður og hangikjöt og rúllu-
pylsa með öðrum íslenzkum kjör-
mat á borðum.
Þar verða kunningjar ykkar i
hundraða tali.
Þar verða vinir ykkar, bæði langt
að komnir og úr nágrenninu.
Þar verður svo skemtilegt, að
hvergi verður skemtilegra.
Þessa alls er aðeins kostur á að
njóta einu sinni á ári.
Notið tækifærið.
Mótið hefst kl. 8 að kvöldi.
FÆR BLAAN MIÐA.
Samkvæmt hinum nýju aukalög-
um Winnipegborgar, getur enginn
gengið yfir þau stræti bæjarins, er,
ljósamerki hafa ,fyr en ljósamerkið !
gefur það til kynna. Nýlega ætlaði j
maður að þverskallast við þessu og
gekk yfir Portage Ave. á Donald St.
þó rauða Ijósið væri uppi. Lög-
reglumaður, sem þar var viðstaddur,
ætlaði að aftra manninum frá að
fara yfir strætið, en maðurinn sinti
því ekki. Skrifaði þá lögregluþjónn
inn niður nafn hans og fékk honum
bláan miða, sem flestir bílaeigend-
ur munu kannast við, og er skipun
um að svara fyrir gerðir sínar í |
|
dómsalnum. Ættu menn að láta sér
þetta til varnaðar verða, er þeir
þurfa yfir þessi stræti að ganga.
GLÆSILEGUR FJARHAGUR.
I fjármálafréttum sínum nú fyr-
ir skömmu, vakti blaðið Free Press
eftirtekt á mikilleika New York
9 \
lífsábyrgðarfélagsins. Slik frétt er;
tslendingum allmijrið viðkomandi, j
vegna þess hvað meðlimatala þeirra
í þeim félagsskap er orðin há og fer
altaf hækkandi.
Það er sýnt þar, að sinna ferða
fari félagið alt að einu, hvernig sem
flest annað er alt í kring að hrynja.
Það hafði jafnvel á síðastliðnu ári
skrifað inn í reikninga meðlimanna
sjötíu og tveggja miljón dollara
gróða, eða rúmum tveim miljónum
meira en næsta ár á undan, sem
þó hafði ekki átt neinn sinn líka
fram að þeim tíma.
Meðal Islendinga þru þeir vafa-
laust bezt að sér í þeim fræðum, hr,
Kristján ölafsson og séra Jóhann P.
Sólmundsson, og eru þeir sjálfsagt
fúsir að veita mönnum þær upplýs-
ingar í þessum efnum, sem óskað
er eftir.
TEKJUR SAMBANDS-
STJÓRNARINNAR LÆKKA.
Tekjur sambandsstjórnarinnar hafa
lækkað á siðastliðnu ári um alt að
því hundrað miljónir dala. Er sagt
að stjórnin ætli að reyna að færa
starfsreksturskostnað sinn niður um
fimtíu miljónir dala, til þess að
mæta að hálfu leyti þessum tekju-
missi, en að hinu leytinu muni hon-
um verða mætt með auknu póst-
gjaldi á anng.rs flokks pósti, eða
blöðum og tímaritum. Hefir burð-
argjald á þeiitt pósti verið svo lágt.
að póstmáladeildin þykist hafa tap-
að stórum á þeim flutningi.
Sigurður Jóhannsson
Attræður.
Afmælishugvekja.
Þú hefir aldrei segrg þann séti,
sem at5 á þig sneri.
Attatíu árum meS
enginn betur reri.
öndvert útnyrðingi
áttugæring rær ’ann.
Þótt að stundum styrmi
— stæri sjó inn — hlær ’ann;
og á ytri miðum
öngli björtum veiðir.
Góðan hlut og háan
heim að landi reiðir.
Allir eru að róa;
ýmsir lenda í strandi.
Sumir hljóta háan
hlut á þurru landi.
Æ var þrautln þyngri,
þeim sem ekki kunni;
þurfti því að vera
— þræll á galeiðunni.
Margir skríða í ströngu,
að stafla málmi ljósum;
sumir sita og gráta;
sumir baða i rósum.
Þó er öllu óhætt,
— eins þó skorti trúna.
Leið er öllum opin
yfir Gjallarbrúna.
Helja heldur sínu;
handföst reynir jafnast
sleppa engu aftur,
er til hennar safnast.
Þó — með kærleiksþrá og
þolinmæði og elju,
gæti skeð menn gætu
grátið sig úr Helju.
Islendingur alinn
ættjörð þinni fjærri.
Oft í öngum þínum,
útlægð finst þú nærri.
Líttu á glösin glóa.
— Gunnlöð situr hjá þér! —
Súptu á Suttúngs myði,
svo að vel liggi’ á þér.
Láttu á ljósum vængjum
ljóðadúfu þina
stefna að sól og stjörnum,
— styrkja vængi sina;
og ef stöku örfar
und í hjarta gera,
láttu ekki andvörp
óðs-hrynjandan vera.
Helicon og Hekla '
halda uppi Bifröst.
Studd af undra stólpum
stendur brúin jarðföst.
Vængjaða fáknum fráa
fljúgðu himinbogann,
gegnum himingrindur,
gegnum vafurlogann.
Brynhildur á beði
Blundar sætt í Glaðheim;
bærast bros á vörum,
brúðir vaknar sanndreym.
Sigurð sér og þekkir,
Sjafnar draumar rætast.
I unaðs-sælu-algleymd
eilífðirnar mætast.
• • •
Steig eg stefja skammél
með stuttu millibili;
hleypti hræl með viftu,
hart í vefjarskili.
Enga heila hugrós
hef því kljáð i vefinn;
annars hefðu orðið
innleitnari stefin. .
E. A. A.
FJÆR OG NÆR
Séra Ragnar E. Kvaran flytur
guðsþjónustu að Arnesi næstkomandi
sunnudag, kl. 2 e. h., og að Árborg
8. marz kl. 2 e. h. Arsfundir safn-
aðanna haldnir á báðum stöðunum
að afloknum guðsþjónustunum.
• • •
Frú Þórstína Jackson Walters flyt
ur fyrirlestur á islenzku i Good-
templarahúsinu, Sargent og McGee,
fimtudaginn 12. marz, kl. g.30 e.h.
Verða sýndar hreyfimyndir og lit-
aðar myndir frá Islandi.
• • •
FALKAFLUG
Eftir því sem á veturinn hefir lið-
ið, eftir þvi hefir kappið orðið meira
í Hockey leikjunum yfirleitt. Eru
nú aðeins tveir leikir eftir til úr-
slitaleikjanna, sem háðir verða að
öllum likindum á Olympic skauta-
svellinu hér í borginni. Er nú full-
vissa fengin fyrir þvi að Fálkar og
Natives há þar orustu. Þvi að hvorki
Geysir né Víkingar geta náð svo
langt, þótt þeir ynnu báða tvo leik-
ina sem eftir eru. Má búast við þvi,
að þeir Islendingar, sem enn hafa
ekki gerspilst af maurahyggju eða
mentagorgeir, muni sjá bjarmann af
islenzku hreinlyndi, djörfung og karl
mensku, hreyfi sig til framkvæmda
þessum drengjum til stuðnings.
Afstaða Hockeyflokka íþróttafé-
lagsins er þessi:
Fálkar hafa 13 mörk; Natives 13:
Víkingar 7; Geysir 7.
Natives 4 — Geysir 3
Natives sigra eftir hina snörpustu
orustu er þeir hafa lent í á vetrin-
um. Geysismenn verja hvern þuml-
ung af svellinu, og langt fram eftir
leiknum máti lítt í milli sjá. Connie
Paulson ver höfn sina prýðilega, en
fyrir Geysismenn varðist Sverrir
Hjartarson sem hetja, og Skúli An-
derson var mjög áberandi á mið-
svelli. En þrátt fyrir alt gátu þeir
ekki yfirbugað hina leiknu Natives,
er gerðu snarpar árásir með fljót-
úthugsuðu samspili, er Geysismönn-
um varð að falli. Voru það þeir
Wally Bjarnason og Arni Jóhannes-
son er mest bar á fyrir Natives og
gáfu Geysismönnum enga hvild. —
Gengu þeir þvl sigri hrósandi af
svelli og jafnir Fálkunum i samband
inu.
Fálkar 2 — Víkingar 0
Fálkar halda óslitinni árás í 60
mínútur og gefa Vikingum litið tæki
færi til þess að kasta mæðinni, er
liðfærri voru. Ingi Ingimundarson
varðist sem berserkur fyrir Víkinga,
sem og gerði John Peterson; en
sóknarlið Víkinga var tæplega eins
traust, og stóðst það eigi þessa ó-
slitnu árás Fálkanna. Ingi, Matti og
og Robert Jóhannessynir og Albert
Johnson, voru líkt og harðsnúnir
Kósakkar í hildarleik, og hefði það
verið eitthvað annað en Vikingar
sem að þeim sneri, hefði eflaust illa
fyrir þeim farið. Og þá var heldur
ekki við lambið að leika sér, þegar
að vörn kom, því að Eggert Bjarna-
son og Kjartan Johnson voru þar
til taks. Eggert ruddist í gegnum
lið Víkinga einn saman og skaut i
höfn. En sjaldan komust þó Fálk-
arnir svo langt, því Ingi Ingimund-
arson var harður í horn að taka,
og kendu margir á búkvörn hans.
Yfirleitt var yndi að horfa á þenna
leik, sem var eflaust sá allra bezti
er þessir flokkar hafa sýnt á vetr-
inum.
A. G. M.
Sjónleikurinn “Astir og miljón-
ir’’ verðr sýndur í samkomuhúsinu
að Hnausum föstudaginn 6 . marz,
kl. 8.30 síðdegis.
• • •
Leikfólk það, er lék “Snurður
Hjónbandsins” hefir gert það rausn-
arlega boð að leika á ný fyrir sunnu
dagaskóla Sambandssafnaðar. Eng-
inn inngangur verður seldur og er
börnum sunnudagaskólans boðið að
koma og að koma með vini sína og
foreldra, ef þau óska. Sem flest börn
og unglingar ættu að nota sér þetta
myndarlega boð og fylla salinn mánu
dagskvöldið þann 2. marz.
• • •
Hingað til bæjarins kom fyrra
þriðjudag, hr. Joseph J. Myres frá
Mountain, N. D., aðal umboðsmaður
Workman lífsábyrgðarreglunnar inn-
an Dakota rikis. ök hann I bil alla
leið að sunnan. Sagði hann vegi á-
gæta og að heita mætti snjólaust t
Dakota. Með honum var frændi hans
r. Vatnsdal.
• • •
Guðmundur Grimsson dómari og
kona hans komu hingað til bæjar á
föstudagskVöldið var. ókú þau alla
leið í bíl frá Rugby til Pembina. —
Dómarinn sat hér á fundi Heimfar-
arnefndarinnar, er haldinn var á
lagardaginn.
• • c
Hr. W. H. Paulson þingmaður frá
Leslie, Sask., kom hingað til bæjar-
ins á föstudaginn, til þes sað sitja
fund heimfararnefndarinnar.
• • •
Gunnar B. Björnsson skattamála-
stjóri Minnesotaríkis, var staddur t
bænum yfir helgina. Sat hann fund
Heimfararnefndar Þjóðræknisfélags-
ins s. 1. laugardag og hélt heimleiðis
á mánudag.
• • •
Söngæfingar Brynjólfs Þorláksson-
ar verða hér eftir I Sambandskirkju
á þriðjudags- og föstudagskvöldum,
kl. 7. Þetta eru böm og foreldrar
beðin að festa íhuga.
• • •
Sérstakra orsaka vegna er Heims-
kringla minni þessa viku en vana-
lega. Eru lesendur beðnir að afsaka
það og verður seinna reynt að bæta
það upp.
• • •
Páll S. Johnson frá Baldur, Man.,
er staddur í bænum um þessar mund-
ir. Hann situr á skólaráðsfundi, sem
stendur yfir fyri-i hluta þessarar viku.
• • •
Gullmedaliu samkepni i framsögn
hefir Þjóðræknisfélagið n.k. miífviku
dagskvöld. Þátttakendur eru beðnir
að gefa þessu gaúm.
• • •
“Fálkinn” hefir Whist Drive og
Dance í Goodtemplarahúsinu n.k.
laugardag, i stað Asb. Eggertsson-
ar. — Góðir prisar.
• • •
Þriðjudagskvöldið þann 3. marz
og fimtudagskvöldið þann 5. marz
gefst Islendingum i Winnipeg tæki-
færi til þess að heyra í fyrsta skifti
hið stórkostlega hljómsmiði Björg-
vins Guðmundssonar “Islands þúsund
ár”, hátíðar kantötuna við hinn und-
urfagra ljóðaflokk Daviðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi.
“The Icelandic Choral Society” er
í allan vetur hefir verið að æfa kan-
tötuna undir stjóm tónskáldsins,
syngur hana þessi tvö áminstu kvöld.
Leikið verður undir á Píanó of Mrs.
Björgu Isfeld, sem hefir verið “ac-
companist” fyrir söngflokkinn frá
því að hann var stofnaður, og af
fiðlufolkk, sem samanstendur af
nokkrum nemendum John Water-
house, fremsta fiðlukennara hér 1
borginni. Spilar Mr. Waterhouse
sjálfur með þeim við þetta tækifæri.
Sólóistar verða Mrs. B. H. Olson,
Sigurður Skagfield og Paul Bardal.
Einnig syngur Mrs. K. Jóhannesson
i tvisöng með Mrs. Olson.