Heimskringla - 10.02.1932, Qupperneq 8
8. SÍÐA
HclMSKRINGLA
WINNIPEG 10. FEBR. 1932.
GÓÐ HREINSUN Men’s Hats 50c
GOTT VERK Sweaters (light) 0Qq
FLJÓTT VERK Men’s Suits $1.00
LÁGT VERÐ Plain Cloth Dresses $1.00 1
FJÆR OG NÆR.
TIL
HALLDORS JÓHANNES-
SONAR.,
Hjartað kennir klökkva,
er kólna vina mundir.
Það er tómlegt, þegar
þögnin tek,ur undir.
Hugljúf var þó vakan,
vinur! Góðar stundir!
Þar til aftureldar
unaðsrótt þú blundir.
Vinur.
• • •
Spiiafundur (Bridge)
Næstkomandi þriðjudagskv.,
16. febrúar, verður spilafundur
í samkomusal Sambandskirkju
undir umsjón Bazaars deildar
Mrs. P. S. Pálsson. Um borð
verður ekki skift meðan spilað
er. Er því gott fyrir spilakunn-
ingja að hópa sig saman við
hvert borð. Verðlaun verða gef-
in og kaffi veitt sem hver vill,
og alt fyrir aðeins 25 cents.
Nafn forstöðukonunnar mun í
flestra augum mæla með því,
að þarna sé von eins bezta spila
kvöldsins á þessu ári. Fyllið því
salinn.
ROSE
THBATRE
Thur., Frl., Sat., This Week
Febr. 11-12-13
EDIIV CAXTOR In
PALMY DAYS
Added:
Comedj — ('artoon
Mon. Tue., Wed.. Next Week
Febr. 15-16-17
H KLK> TWEIAETREES
in
Women of
Experience
Added:
Comfdj — f’artoon — N»w»
Þreyttur?
Niður dregin?
Öðlastu nýjan
kraft með—
CITY
MILK
hreinni, góðri,
nærandi.
LUf
Sími 87 647
Phone 42 321
Por a Ton
Today
í
“ARCTIC”
Sveinn kaupm. Thorvaldson
frá Riverton, Man. var í bæn-
um s.L fimtudag. Hann sat
fund smjörgerðarmanna í Mani-
toba, er hér stóð yfir um þær
mundir.
• * *
Helgi Bjarnason frá Winnipeg
dó. 31. jan. af slagi, norður í
Flin Flon héruðunum. Var kom-
ið með líkið til Winnipeg í gær.
Jarðarförin fer fram á föstudag-
inn kemur. Helgi var 64 ára
gamall.
• • •
Heimilisiðnaðafél. heldur fund
fimtudagskvöldið 11. febrúar,
að heimili Mrs. Albert Wathne,
700 Banning Street.
• * •
í tilefni af giftingu Mr. og
Mrs. John Bergmann, var þeim
hjónum haldið fagnaðarsam-
sæti s. 1. laugardag að heimili
Mr. og Mrs. J. Johnson, 724
Victor St. Tóku um 50 manns
þátt í því. Samsætið var hið á-
nægjulegasta.
• * *
Falconettes Leap Year Dance
Friday Evening, Feb. 12th, '32.
I. O. G. T. Hall. Neil Bardal’s
Orchestra. Adm. 35c. Comm
8.15.
• * *
Til leigu er herbergi fyrir
stúlku að 604 Maryland St. —
Sími 24 531. |
* * *
Kristján Pétursson frá Mo-
zart, Sask., er andaðist 18. jan.
s.l.. var jarðsunginn 23. jan.
af séra Ragnari E. Kvaran.
• • •
Benedikt Johnson, Wynyard,
Sask., og Miss Esther Gauti, s.
st., voru gefin saman í hjóna-
band af séra R. E. Kvaran á
heimili brúðurinnar 2. febrúar
síðastliðinn.
* * *
Sjónleikur í Wynyard og
Mozart.
Sjónleikurinn “Á Útleið’’, sem
getið var um í síðasta blaði, að
ungmennafélagið í Wynyard
væri að undirbúa, verður sýnd-
ur í Mozart föstudaginn 19. feb.
og í Wynyard mánudaginn 22.
febr, kl. 8 síðdegis á báðum
stöðunum. Inngangur verður
35 cents fyrir fullorðna, 20c
fyrir börn.
* * *
Björn I. Sigvaldason, oddviti
Bifröstsveitar, var staddur í bæn
um s.l. föstudag, í sveitarmála-
erindum við fylkisstjórnina.
* * *
Sú villa slæddist inn í grein
þá í síðasta blaði, sem getur um
nafn Hauks listmálara, að hann
er nefndur Guðmundsson, en
átti að vera Sigurbjörnsson.
Karlakór fslendinga
heldur söngsamkomu í Sam-
bandskirkjunni á Banning St.
miðvikudagskvöldið þann 17.
þ. m. Miss Snjólaug Sigurðsson
píanóleikari aðstoðar. Helming-
ur ágóðans gengur til piltsins,
G. Jóhannessonar, sem slasaðist
fyrir skömmu. Inngangur 50c.
Hefst kl. 8.15.
• . . •
Síðasti fundur Brick Church
Ladies’ Aid Society í Wynyard,
var haldinn að heimili Mrs. O. J.
Jónasson. Fundurinn var skemti
fundur, fagnaðarsamsæti, sem
Mrs. R. E. Kvaran var haldið.
Létu félagskonur með viðeig-
andi orðum í ljós ánægju sína
yfir komu hennar, og kváðust
vonbetri fyrir hið sama um á
rangur starfs síns og félagsins.
Mrs. H. S. Axdal stjórnaði sam
sætinu. Að loknum ræðuhöld-
um voru veitingar' frambornar.
FRA FÁLKUM.
1. febrúar léku Fálkar á móti
Imperials í St. James Inter-
mediate League, og unnu Im-
perials með 2 á móti 1. Drengir
okkar léku allir vel, enda þótt
þeir töpuðu, þegar þess er gætt
að við vorum án aðstoðar 2
okkar beztu manna,' þeirra C.
Benson og C. Munroe, sem
gátu ekki komið út, og veikti
það okkur mikið. Og svo varð
nú Albert okkar Johnson fyrir
því óhappi að ýta .kringlunni
inn sín eigin nöfn, en það gaf
Imperials sigurinn. En það get-
ur nú margan góðan manninn
hent undir svoleiðis kringum-
stæðum.
Þeir sem léku fyrir Fálkana
voru þessir: A. Dalloway, Al-
bert Johnson, Ingi Jóhannes-
son, Matt Jóhannesson, R. Jó-
hannesson, A. Jóhannesson, H.
Gíslason, P. Palmateer, W.
Bjarnason og Ad. Jóhannesson.
Þann 3. febrúar lékum við
okkar á milli á Wesley skauta-
hringnum, og lenti þeim fyrst
saman Canucks og Rangers,
og sigruðu Rangers þar með 8
á móti 6. Var þar hin harðasta
sókn og vörn á báðar hliðar
Halldór Bjarnason var mark-
vörður fyrir Rangers því þeirra
venjulegi markvörður, H. Páls-
son, var veikur. En Halldór stóð
sig vel í sinni stöðu, og varnaði
Canucks oft frá því að skjóta
í mark. Jón Bjarnason var í
marki fyrir Canucks, og var
hann mitt á milli svefns og
vöku fyrri hluta leiksins, en í
síðari partinum varðist hann
eins og víkingur, og gekk þeim
Rangers illa að komast fram
hjá honum.
Því næst lenti þeim saman
Víkingum og Natives, og unnu
Víkingar með 7 á móti 5. Var
það hinn harðasti bardagi, og
mega Víkingar þakka Bob
Helgason fyrir sigur sinn.
Eg vil taka það fram í annað
sinn, að þeir sem vilja keppa
um bikarinn, sem þjóðræknis-
félagið gaf til árlegrar umkepni
fyrir hockey flokka á meðal
íslendinga, eru beðnir um að
senda umsókn sína inn til
Þjóðræknisfélagsins, eins fljótt
og mögulegt er, svo við getum
gert ráðstafanir um skauta-
hring til að leika í, því það
getur orðið erfitt, ef það er
dregið of lengi. Svo ef Selkirk,
Riverton, Gimli og Árborg, ■—
og hverjir aðrir — langar til
þess að þreyta um bikarinn, þá
eru þeir beðnir að senda inn á-
skorun sína þegar í stað, og
vonandi er að sem flestir reyni
sig, því að bikarinn er höfðing-
leg gjöf af hendi Þjóðræknis-
félagsins, og ættu ungu dreng-
irnir að sýna að þeir kynnu að
meta hana , og draga hvergi af
sér í þeirri samkepni.
Þeir fullorðnu ættu og að
styrkja þá til þess, því með því
móti getum við komið upp og
haldið uppi nafni gömlu Fáik
anna, sem frægir urðu um all
an heim. Við höfum drengina
og það vantar ekkert nema
framkvæmdina og viljann.
Þann 6. febrúar fóru Fálkar
til Letellier og léku þar á móti
flokk, sem kallar sig Flying
Frenchmen, og endaði sá leik-
ur svo, að þeir skildu jafnir, 6
á móti 6. Það var ekki fyrir þá
ástæðu, að við gætum ekki unn
ið þá, heldur til þess að forð-
ast illindi, því Frakkar verða
heitir ef þeir tapa, og ekki að
vita, hvað hefði komið fyrir, ef
drengir okkar hefðu ekki lofað
þeim að jafna leikinn seinustu
mínúturnar. En fyrir það skildu
allir í góðu skapi, og Frakkar
voru ánægðir og var það betra
en að vinna og eiga það á
hættu, að eitthvað af drengj-
unum okkar hef$u meiðst. Við
förum þangað líklega ekki aft-
ur. — Þeir sem léku fyrir Fálk-
ana, voru þessir: A. Dalloway
markvörður, A. Johnson. Ingi
Jóhannesson, Palmateer, C.
Munroe, Matt Jóhannesson, Mc
Lean, Ad Jóhannesson, H.
Gíslason.
Fálkar hafa Whist Drive og
dans á hverju laugardagskvöldi
neðri sal G. T. hússins. Kom-
ið og styrkið okkur.
Pete Sigurðsson.
kallaður “boðunardagur Maríu’’
og er þess þá minst er Gabríel
erkiengill vitjaði hennar.
Föstutíminn endar með hinni
“kyrru viku’’, sem hefst með
“pálmasunnudegi’", og þá er
minst innreiðar Jesú Krists í
Jerúsalem. “Skírdagur” var
seinasti dagurinn, sem hann
var með lærisveinum sínum og
neytti páskalambsins og stofn-
aði hið heílaga sakramenti. Á
föstudaginn langa leið frelsar-
inn og dó á krossinum, og laug-
ardaginn fyrir páska Iá hann
í gröfinni. Þessir þrír seinustu
dagar í hinni kyrlátu viku, eru
kallaðir “krossins páskar’’, því
að 1. páskadag reis Jesús upp
frá dauðum og á annan í pásk-
um birtist hann lærisveinum
sínum.
Eftirfarandi sunnudagar kall
ast sunnudagar eftir páska. —
Fimtudagurinn í sjöttu viku
eftir páska er kallaður upp-
stigningardagur, og tíu dögum
seinna er seinasta stórhátíðin
á kirkjuárinu, “Hvitasunna’’,
sem haldin ér hátíðleg í minn-
ingu þess, að heilagur andi var
sendur postulunum eins og
Jesú hafði lofað.
Hinar þrjár stórhátíðir minna
á hina þrjá liði í túarjátningu
vorri, hinn þrieina guð: föður-
inn, sem sendi son sinn í heim-
inn (jólin), soninn, sem upp
reis frá dauðum (páskarnir),
og heilagan anda (hvítasunnu).
Hátíðahelmingur ársins endar
svo með hátíð hins þríeina
guðs, “Þrenningarhátíð’’, sem
er sunnudaginn eftir hvíta-
sunnu.
Allir sunnudagar í hinum
helmingi kirkjuársins, draga
nafn sitt af þrenningarhátíðinni
(Trinitatis). Það geta verið 27
MESSUR 0G FUNDIR
i ktrkju SambandssafiULðar
Messur: — á hverjum sunnudegl
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 3 að
kveldinu.
Söngfiokkurinn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
sunnudagar en eru sjaldan
fleiri en 25, og stundum ekki
fleiri en 22. Þenna helming árs
ins höfum vér “bænadaga”,
og safnast þá kristnir söfnuðir
saman í kirkjunum til þess að
játa syndir sínar og biðja fyr-
irgefningar á þeim. Þar af
kemur nafnið bænadagur. Eru
þeir mjög gamlir í kirkjusög-
unni.
í kirkjuárinu hefir hver dag-
ur nafn og er kendur við ein-
hvern píslarvott eða dýrlng. —
Dagarnr, sem kendir eru við
píslarvottana, og dauða þeirra
fyrir trúna minst, eru kallaðir
“afmælisdagar’’. En þar sem
píslarvottar og dýrlingar voru
miklu fleiri heldur en dagar árs-
ins, og menn vissu ekki nöfn
á mörgum þeirra, var þeim
helgaður einn sameiginlegur
minningardagur, “Allra heil-
agra messa”, sem er nú fyrsta
sunnudag í nóvember, en var
áður 4. sunnudag eftir páska.
Mótmælendur minnast aðallega
Marteins Lúters þenna dag og
siðbótar hans.
MbL
Oh
KIRKJUÁRIÐ.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
J. A.
JOHANNSON
Garage and Repair Service
Banning and Sargent
Slml 33573
Heima eíml 87136
Kxpert Repavr and Complet*
Garafe Service
Gaa, Oil», Extras, Tirea,
B«tterie», Etc.
Í^m^u-^^-it-^^-it-mmmommií-^mm-ommmnmmmo-^^ommmitmmo-^mm- o«bO
I
EF ÞÚ HEFIR EKKI ENN KEYPT RADÍÓ,
| ÞÁ BORGAR SIG AÐ SJÁ OG HEYRA *
| GENERAL ELECTRIC I
| SÍÐASTA 1932 Model S-42 |
| Fullkomið með 8 Tubes, Screen Grid, |
{ Super-Heterodyne, New Type Dynamic Speaker j
StbaSO I
(Frh. frá 5 síðu)
119
Fást á góðum skilmálum.
3
I
i
*■ ?
‘THE ELEVTRíC SHOP" el'&M j
íieeiieeoeeiitmueeiieeiiwiiaxiaaiitMowiwo
heiðingjar er tilbáðu frelsar-
ann. — Þess vegna minnast
kristnir menn þessa dags með
heiðingjatrúboðinu.
Sjötugasti dagur fyrir páska
heitir Septuagesima og sex-
tugasti dagurinn Sexagesima.
Þá minnumst vér Jesú sem spá
manns, sem var kröftugur í
orði og verki. — Næsti sunnu-
dagur er “föstusunnudagur’’.
Á þeim. sunnudegi er frásögn
um skírn Jesú.
Pálskarnir eru elzta hátíðin
í hinni kristnu kirkju, og hafa
frá upphafi verið haldnir til
minningar um upprisu Jesú
Krists frá dauðum. Eins og að-
ventan er á undan jólunum,
svo hafa og páskamir sinn und-
irbúningstíma með “föstunni”.
Hún svarar til fjörutíu daga, er
Jesú fastaði í eyðimörkinni.
Til minningar um það neita
kaþóiskir menn sér um ýmsa
fæðu þá, einkum kjöt og egg,
en í þjóðkirkjunni íslenzku er
nú ekki neitt eftir af þeirri sið-
venju.
Fimti sunnudagur í föstu er
^éeieímitu ^l'joncert -Jertea
Direction
FKED M. GEE
PLAYHOUSE
Monday, February 15th
Tuesday, February 16th
SIGRID
ONEGIN
j|| The Incomþarable Contralto
Í Seats at Winnipeg- Piano-Co., Ltd. — Ph. 88 693. $2.00, $2.50, $3.00
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
j
►(O
Eimskipafélag Islands
Hinn árlegi útnefningarfundur í Eimskipafélagi Islands meðal
Vestur Islendinga verður haldinn í húsi herra Ásmundar P.
Jóhannssonar, 910 Palmerston Avenue, hér í borg mánudaginn 29.
febrúar 1932, kl. 7.30 að kveldi, til þess að útnefna tvo menn til
að vera i vali fyrir hönd Vestur Islendinga á aðal ársfundi Eim-
skipafélagsins, sem haldin verður í Reykjavik á Islandi í júní
mánuði næstkomandi til að skipa sæti í stjómamefnd félagsins
með því að kjörtímabil herra Asmundar P. Jóhannessonar er þá
útrunnið.
Winnipeg, 5. febrúar 1932.
B. L. BALDWTNSON, ritari.
Oh
I
Ársfundur
Sambandssafnaðar
(s Aðalfundur Sambandssafnaðar verður haldinn í
kirkju safnaðarins sunnudagana 7. og 14. febrúar n. k.
5 að aflokinni guðsþjónustu.
| Á fundunum verða lagðar fram skýrslur og reikn-
s ingar safnaðarins og embættismenn kosnir.
| Áríðandi að fólk fjölmenni.
| Winnipeg 26. jan. 1932.
IM. 6. HALLDÓRSSON,
forseti. |
i
Í«W()«»0««»()^()»«»l)«»(>««»(>4«»()«»(>«»(l«»(l»M»()«»(a