Heimskringla - 14.09.1932, Qupperneq 7
WINNIPEG 14. SEPT. 1932
HEIMSKRINGLA
7 BLAÐSÍÐA
ENDURMINNINGAR.
Frh frá 3. bla.
Mér heyrðist einhverjir hátt-
standandi embættismenn vera
gormæltir, vera metnaðarlausir
um hreinleik íslenzka málsins
og sækja á að ata það í gori.
Hvar sem maður kom í kaup-
stað á landinu, þá rakst maður
á einhvern sem hafði tekið það
að sér, að punta málið með
dönskuslettum, en fram úr
keyrði þegar maður kom til
Reykjavíkur, en átakanlegast af
öllu var að þessar glæringar
skyldu sjást og heyrast á þing-
inu, þar sem þeim mönnum var
áskipað er áttu að hafa afl og
liekkingu til að flokka rétt í
dilka tungumálanna, og halda
hverju þeirra hreinu út af fyrir
sig. f þessum hugarraunum
niínum heyrði eg niðurbældann
hlátur að baki mínu og leit eg
f)á um öxl og sá að mjög mynd-
arlegur ungur maður sat í
næsta bekk við mig, feti aftar
og ofar. Hann hafði líklega séð
vísurnar sem eg skrifaði. En
hvaða sort af manni var nú
f>etta? Það var auðséð á fína
og slétta hörundsfarinu, að
maðurinn hafði ekki unnið og
var einn af hinum hálærðu, og
alt benti mér á það að hann
væri af Stephensens ættinni, og
kannske sonur Magnúsar lands-
höfðingja. Líklega yrði eg þá
tekinn fastur við þinghúsdyrnar,
fyrir að óvirða konunginn, þing-
ið og háyfirvöldin. Eg var far-
Inn að öfunda Jón Ólafsson af
því að hafa sloppið til Alaska,
þegar Jakob stóð á fætur og
sagði að það væri mál fyrir
okkur að fara.
Við vorum rétt ferðbúnir þeg-
ar kallið kom að taka á móti
hestunum, við borguðum með
ólundarsvip eins og upp var sett,
okkur þótti hestarnir illa fullir,
en vissum ekki hverju við ætt-
um að kenna, hirðmanninum
eða högunum í kringum höfuð-
staðinn. Og svo lögðum við af
stað. En hvað hann var þá
líðilegur þessi mismunur að fara
frá bóndabæ upp í sveit, þar
sem alt heimilisfólkið tekur eftir
sýnir nærgætni og virðir það
mikils ef maður fer léttilega á
hak og situr fallega í hnakkn-
um og kann að halda á beizlis-
taumunum og afhenda kveðj-
unar kjarklega og vingjarnelga.
En í Reykjavík, það er eins og
enginn taki eftir því, þó maður
komi og fari, hvað laglega sem
maður leysir af hendi allar kurt-
eysisreglur. Ó, svei, það er
miklu meira gaman að ríða frá
holtunum og hörgunum út af
laglegum bændaheimilum upp í
sveitinni. Þar þarf maður ekki
að vera landshöfðingi til þess
að góðhugur fylgi manni úr
garði.
Nú höfðum við afráðið að
fara sveitir til baka, yfir Borg-
arfjarðarsýslu, og Mýrarsýslu
ofanverða og Holtavörðuheiði til
Húnavatnssýslu. Alt þetta til
að sjá nú “landið fríða, þar sem
um grænar grundir líða, skín-
andi ár að ægi blám.” Eins og
mér lá nú á að komast heim til
að fara að heyja, eins finst mér
nú áríðandi að fara fljótt yfir
söguna. Það er farið á bak við
Esjuna á öllum yfirreiðum til
Borgarfjarðar, hún verðskuldar
hitt þó öllu framar, að gerður
væri fagur vegur undir brjóstum
hennar upp í Kjósina. Hún er
sögð að búa yfir gulli, kristalli
og kalki ásamt fleiri gersemum,
og fyirr utan svipinn sem hún
gefur Reykjavík, það ætti því
enginn að vera neyddur til að
fara á bak við hana, enda er
það ljótur vegur. í Kjósinni var
eg öllu ókunnugur. Mér hafðí
enginn bjartari geisli borist það-
an, en að Ýrafellsmóri væri það-
an ættaður og þar uppalin. Þar
sýndist mér að mundi vera feg-
urst í tunglsljósi á heiðríkum
vetramóttum. Við fórum yfir
Ferstiklu og Hvalfjarðarströnd
og skorradal og Dragháls en
það var Guðmundi Magnússyni
að kenna, að eg var svo syfjað-
ur að eg naumast man eftir
þessu og orða það alt í öfugri
röð. En nótt vorum við hjá
Þorkeli á Þyrli, nöfnin svo ein-
kennilega ram íslenzk, og áttum
við þar gott. Húsmóðirin var
yfirsetukona, og var sótt um
nóttina. Var þá uppreisn mikil
á bænum en ekki náði það inn
í skálann til okkar, nema berg-
málið. Við vorum rétt komnir
af stað frá Þyrli um morgunin
þegar tveir prestar náðu okkur
á leið heim til sín frá Reykja-
vík og hétu þeir séra Jóhann
Þorsteinsson, man ekki prests-
setrið í Borgarfirði, og séra
Ólafur Ólafsson á Lundi í
Lundareykjadal. Þeir áttu sam-
leið með okkur og skiftum við
þeim á milli okkar. Kom séra
Jóhann i minn hlut og vorum
við spölkorn á undan. Hann
einstaklega skemtilegur maður,
og var eg með sjálfum mér
sannfærður um að eg hefði betri
prestinn. 1 þá tíð voru prest-
ar hættir að ríða hróka verst,
og fundu þeir nú upp á því að
hvíla hestana dálítið augnablik
í fögrum og kafloðnum gras-
hvammi rétt við veginn. Þá léði
eg Jakobi minn prest á meðan
við stönsuðum, og fór að reyna
að tala ögn við hans prest. En
hann var þá Ijómandi prestur
líka og fór að spyrja mig eftir
nágranna mínum séra Ólafi á
Svalbarði. Þeir voru skólabræð-
ur og margir aðrir séra Ólafar
sem hann taldi upp og kom okk-
ur saman um að hafa það í
annálum þannig: Árið sem allir
Ólafar voru vígðir til prest. Eg
var nú frjálslyndur maður á
þeim árum, en mér þótti nú
þetta samt nokkuð rúmt, því
það var hjá diér vinnumaður
sem hét Ólafur og hann hafði
ekki verið vígður prestur.
Þegar á þjóðveginum er kom-
ið norður á hálsinn þar sem
fyrst sér yfir Borgarfjarðar-
héraðið, þá muh flestum sýnast
á björtum sumardegi sem feg-
urðin opni hurðirnar á heim-
kynnum sínum. Þar er ekkí
þröngt fyrir dryum úti.. Þar
finst manni að það vanti fremur
viðsýn augu en viðfangsefni.
Þar vaknar sálin. Og fyrst að
Snorri Sturluson var nú að
eðlisfari víðsýnn og athuga-
gjarn þá hélt ekki héraðið út-
sýni hans til baka. Honum
þurftu ekki að sárna andlegu
tærnar eða hann að hnjóta á
þröskuldum útsýnisins. Hvílíkt
undra viðfeðmi. Fjórar sýslur
segja til sín, Barðastranda,
Mýra, Snæfells og Borgarfjarð-
arsýslur. Bandaríki náttúrunnar
ogSnæfellsjökull forsetinn. Ekki
skal mig furða þó Norðlinga-
fljót vissi hvert það var að fara
þegar við á leiðinni suður fórum
yfir það upp undir rótum langa-
jökuls, þar sem það er ein aðal
lífæð þessa héraðs. Það er ekki
lengi gert og ekki mikill vandi
að byrja eins og Jón Thorodd-
sen: “Ó, fögur er vor fósturjörð
o. s. frv.”
Þegar maður á heima í miðju
þessu héraði, eða þegar maður
sér upp í dalina, Lundareykja-
dal, Flókadal, • Reykholtsdal og
Hvítársíðu, að byrja eins og
Jón: “í fögrum dal hjá fjalla-
bláum straumi, eg fríða meyju
leit í sælum draumi, o. s. frv.”
Eg hefi alt af haldið það, að
landið skapaði mennina að
miklum mun andlega, eins og
þungur smiðjuhamar skapar afl-
vöðvana í hendurnar, og nú gat
eg skilið það, hvernig litla stór-
mennið Jón á Hóli Þingvalla
fundarfulltrúi Mýramanna, bjó
yfir stærri og bróðurlegri anda
en við, höfði hærri samverka-
menn hans á Þingvöllum. Nú
mistum við prestana, fyrst ann-
an, svo hinn, þá langaði ekki til
að fara lengra, og þeir þektu
vegamótin heim til sín. Við
Jakob komum að Varmalæk, en
það var bæjarnafn með rentu.
Þar var ekki kalt að koma, hús-
bóndinn Jakob að nafni var i
kaupstað, en konan þeim mun
fullkomnari heima. Þá tekur
annað augað að sér að sjá eins
vel og bæði, ef hins missir við.
Konan var ekki ein, með henni
var móðir hennar eða tengda-
móðir, og þær voru til samans
eins og ein koma með fjórar
hendur, og helmingi meiri nær-
gætni en ein. Hvert sem þær
eru liðnar eða lifandi ennþá
hér, þá tel eg þær með ástvin-
um mínum, þær voru einmitt
eins og konur þurfa að vera upp
í sveit. Þær báðu ekki fyrir-
gefningar á því, sem þær fram-
reiddu fullkomið og vel, af því
þær vildu láta kjassa sig, og
þær gleymdu heldur ekki því
sem þær lofuðu, að vekja okk-
ur eftir tvo klukkutíma, sem viö
kusum að hvílast í góðu rúmi.
Það lá nú samt við að eg for-
nemaðist, ekki við konumar, en
náttúruna, þegar þær færðu
okkur eins þykka sauðarsíðu,
eins og eg hefði vanist bezt á
Hólsfjöllum. Mér fanst að aðr-
ar sveitir ættu naumast með að
tjalda svo þykkum síðum, nema
fá leyfi hjá mér eða Kristjáni
Jóhannssyni á Hólsseli, ríkasta
bóndanum á Fjöllum. Eg má
einsvel segja það að eg kysti
báðar konurnar þegar eg fór,
og þær kunnu þó að taka þátt
í áhuga okkar og framkepni að
heima önnum. Þegar eg er nú
að flýta mér heim í sláttinn, þá
geta allir menn skilið það að eg
má ekki vera að því að grubla
það upp sem eg á veginum
hugsaði um þá öldungana Egil
á Borg og Snorra á Reykjum,
og var mér þó vel við þá báða.
En þegar eg fór fyrir minnið á
Reykholtsdal, þá var mér sem
eg sæi Snorra á öldum aflvakans
hátt yfir miðjum dalnum, sitj-
andi á konunglegum gullskýja-
stól og skrifa ljósstafi á loftið
fyrir framan sig, með gyldustu
fjöðrinni úr væng þess svana-
konungs er fegurst hefir sung-
ið út á miðju Arnarvatni upp á
Borgarfjarðar afrétti við aftur-
elding á heiðskýrri sumarnótt.
Hann var sjáanlega vanur öldu-
rótinu, eins og lifæða ólgu, skil-
yrðum þroskans og framhalds-
ins. Á öldumæninum leit hann
upp og sá fyrirmyndina á vegg-
tjöldum háskólans og hélt þá á-
fram að skrifa. Eg var svo and-
lega takmarkaður og bundinn
við hestinn og veginn að fæst
af því gat eg lesið er hann reit.
Var þá sem hann veitti mér eft-
irtekt og stækkaði leturgerð
sína, mátti eg þá gjörla sjá þessi
orð ,eins og stíluð til mín, eða
mín vegna: “Alfaðir Óðinn, var
mér það til lífs og þrár og
þroska, sem almáttarins og vís-
dómsins guð er ykkur frændum
mínum. Mér var Óðinn skilj-
anlegri en ykkur er guð, af því
eg lagaði hann eftir mínum
þörfum og ástæðum tímans, en
þá hafði eg ekki gert mér grein
fyrir því að til hlaut að vera
annar og æðri guð, sem bjó í
hugsun minni, og hafði því
fremur en eg gert Óðinn úr
garði, til þess að eg og mínir
trúbræður hneigðust áleiðis til
sín, í von um ódauðleikajin.’’
Frh.
DÝRALfF
Tilefni þess að eg skrifa þess-
ar línur er það, að eg hefi ekki
getað lagt sama dóm á tófuna
og ýmsir sem hafa átt heima hér
á Suðurlandi. Þeir hafa haldið
því fram, að hún sé blóðþyrst
og vilji helzt kjöt og blóð, en
mín reynsla er það, að hún byrji
ekki á að bíta fé nema út
af hungri. Hún á sér í holu
jóð, hvað eiga þau að éta? Eg
ólst upp norðan til í Stranda-
sýslu. Þar er mikið af tófu. Eg
fór ungur að smala, og sá oft
tófur og hafði mjög mikið gam-
an af þeim, því ekki glettust
þær við smálömbin, hvað þá við
fullorðna féð. En margar sög-
ur gæti eg sagt af þeim og þeira
miklu vitsmunum. Þegar eg
var orðinn fullorðinn og fór að
stunda tófu-veiðar, þá léku þær
oft mjög illa á mig og sluppu
óskemdar, þegar eg hélt að eg
hefði líf þeirra í hendi minni.
Nafnspjöld
1 Strandasýslu eru afréttirn-
ar ekki eins víðáttumiklar eins
og á Suðurlandi og er því stutt
frá þeim til sjávarins, en þar
hafa tófurnar nóga björg.
Þegar eg átti heima í Ófeigs-
firði, þá kyntist eg þeirra hátt-
um mest, þau þrjú ár, sem eg
átti þar heima. Þá áttu þær
greni í Hrúteyjanesinu beint
upp ef Eyjum. Þar hefir þeim
fundist gott til fanga, því ekki
var nema tíu mínútna gangur
niður að sjó, þar sem var krögt
af æðarungum, og ekki skal eg
fortaka að hún hafi verið sek
við æðarfuglalögin.
Þarna var þeim lofað að leita
út, en ekki mundi Guðmundur
Pétursson hafa látið þær hafa
friðland þar hefði hann verið
hræddur um fénað sinn fyrir
þeim, þar sem hann var skytta
og allir karlmenn á þeim árum.
Selskér eru þar skamt íyrir
framan landið og vorum við þar
við veiðar og sáum vel upp í nes-
ið. Á kvöldin fór tófa á stað að
draga í búið. Lambféð var þar
um ströndina. Hún gekk fram
hjá smálömbunum, sem voru á
leið hennar, og hélt niður í
fjöru að fá sér fuglsræfla og fór
síðan heim. Þar sem eg hefi
margsinnis staðið hana að slíkri
ráðvendni, þá verð eg að mót-
mæla því að hún leggist á fé ef
annað er fáanlegt. Þá ætla eg
að segja frá þegar við vorum í
landi um flóðið, þá fórum við
upp á grenið. Þetta var um
jónsmessuleitið og yrðlingarnir
farnir að geta leikið sér úti, en
þá er faðirinn lítið farinn að
vera heima við. Þeir léku sér
við að rífa holur í jörðina, en
móðir þeirra lá upp á háum
steini ofar í hlíðinni og gætti
þeirra. Vanalega rak hún upp
hátt hljóð þegar við áttum eftir
sem svaraði fimm föðmum að
greninu, og hættu yrðlingarnir
fljótlega að leika sér og hlupu
inn, en þeir voru vanalega 6.
Oft var það, að sá síðasti sneri
við í opinu og var að líta á
gestina, en móðirin hringsólaði
í kringum okkur og kom mjög
nálægt okkur. Læt eg þetta
nægja til að sýna, að það eru
mikil rök fyrir því sem eg segi
í upphafi greinar þessarar.
Þá get eg ekki látið ógert að
minnast á annað dýralíf við Ó-
feigsfjarðarströndina, sem er
mjög fjölskrúðugt, bæði af sel
og æðarfugli. Selurinn skríður
upp á skerin þegar fellur út, til
að láta kópana sjúga, en þeir
festust í netunum í hundraða
tali, og gerðu mæðurnar stund-
um svo mikið til að aftra þeim
frá þessum gildrum að þær
festust líka.
Veiðibjallan gerði okkur oft
ógagn. Hún vakti svo oft selinn
sem svaf á skerjunum, sem við
ætluðum að slá upp í. En ekki
vantaði að við hefndum þess,
því við tókum undan henni egg-
in og suðum þau í kaffikatlin-
um.
Það var mjög gaman að vera
í þessum útilegum og minnist
eg margra glaðra stunda með
þeim félögum, mínum, sem þá
voru þeim bræðrunum Pétri og
Ásgeiri. Þessar björtu vornæt-
ur, sem eru mun bjartari þar en
á Suðurlandi. —Alþb.
Stefán J. Björnsson.
“PÓLÁRS”-RANNSÓKNIR
á fslandi.
Næstu 13 mánuði — ágúst
1932 — ágúst 1933 — verða
framkvæmdar vísindalegar rann
sóknir á norðlægum slóðum, í
veðurfræði, segulmagnsrann-
sóknir, rannsóknir á norðurljós-
unum o. s. frv. Standa að rann-
sóknum þessum mörg ríki og
vísindafélög. Alþjóðanefnd hef-
ir stjórn rannsóknanna á hendi,
og er La Cour, forstjóri Veður-
stofunnar dönsku, formaður
hennar. Er þetta rannsóknar-
tímabil nefnt “Pólár”.
Alþýðublaðið hefir snúið sér til
Þorkels Þorkelssonar, forstjóra
Veðurstofunnar, og fengið hjá
honum upplýsingar þær, er nú
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldff.
Skrifstofusíml: 23674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er aTJ flnna á skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talnfmii 33158
DR A. BLONDAL
<02 Medlcal Arts Bldg.
Talsíml: 22 296
Stundar sérstaklega kvensjúkdóma
og barnasjúkdóma. — Ab hitta:
kl. 10—12 « h. 0g 8—6 e. h.
Helmlll: 806 Vlctor 8t. 8Imi 28 180
Dr. J. Stefansson
21Q HEDICAL AHTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stnndflr elngónau aniCna- eyrna
neí- og kverka-njdkdóma
Er aS hitta trá kl. 11—12 f. h.
og kl. 3—6 e. h.
TnlMfmli 21834
Heimill: 638 McMlllan Ave. 42691
DR. L. A. SIGURDSON
218-220 Medical Arts Bldg.
Phone 21 834 Office timar 2-4
- Heimili: 104 Home St.
Phone 72 409
Dr. A. B. INGIMUNDSON
Tannlæknir
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sími: 28 840 Heimilis: 46 054
skal greina.
Háfjallastöð verður starfrækt
á Snæfellsjökli. Eru það danska
ríkið og Svisslendingar, sem
efna til þeirra rannsókna. “Pól-
árs ’-nefnd í Sviss sér um fram-
kvæmdirnar af Sv^sslendinga
hálfu. Rannsóknir þessar byrj-
uðu í s. 1. mánuði, og verður
stöðin á hájöklinum. Verður
þar rannsakað veðurfarið, gerð-
ar venjulegar veðurathuganir
með sjálfvirkum verkfærum,
eftir því, sem unt er að koma
slíkum verkfærum við. Athug-
unum mun verða haldið á-
fram til loka ágústmánaðar
næsta ár.
Hér í Reykjavík verða Holl-
enzkir flugmenn, sem ætla að
fljúga upp í loftið og rannsaka
aðallega hita og raka loftins.
Er foringi leiðangursins hér á
landi, von Giessen flugforingi,
kominn hingað. Kom hann með
“Lyru’’ á mánudagnn var . Sér
hann um byggingu flugvélaskýl-
is, og á henni að vera lokið þeg-
ar flugvélarnar koma, en það
verður upp úr rniðjum ágúst-
mánuði. Flugvöllurinn fyrir
þær verður á túni Sturlu Jóns-
sonar kaupmanns, í Vatnsmýr-
inni. Þessar rannsóknir munu
byrja seint í ágústmánuði. Aðal-
foringi fyrir þessum rannsókn-
um er dr. Cannegieter, er kem-
ur hingað snöggvast í næsta
mánuði.
í þriðja lagi mun Þorkell Þor-
kelsson Veðurstofustjóri gera
segulmagnsrannsóknir. Byrja
þær einnig í ágústmánuði og
verða framkvæmdar í nágrenni
Reykjavíkur. Hefir Menningar-
sjóður veitt fé til starfrækslunn-
ar, og verður því varið til að
greiða kaup fyrir vinnu, sem
aðrir en Þorkell þurfa að fram-
k'væma, og annan kostnað við
rannsóknirnar, en íslenzka ríkið
lánar hús undir rannsóknar-
verkfærin. Er það steinsteypu-
skúr, sem verið er að byggja
uppi við Elliðaár. Verkfærin ein
sjálfvirk og verða gerðar með
þeim ýmiskonar athuganir á
segulmagnbreytingum.
Tilgangur rannsóknanna í
heild sinni er að fá heildaryfir-
lit yfir veðráttufarið í nágrenni
heimskautanna og áhrifa þess á
veðrið annar staðar á hnettin-
um, enn fremur um samband á
milli segulmagns jarðar, norð-
urljósa, sólbletta o. fl.
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfræðingur
702 Confederation Life Bldf.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLEN ZKIR LOGFRÆÐINOAK
á oðru gólfi
325 Maln Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnig skrifstofur «8
Lundar og Gimli og eru þar
a8 hitta, fyrsta miðvikudag I
hverjum mánuSi.
Telephone: 21613
J. Christopherson.
tslenskur Lögfræfiingur
845 SOMERSBT BLK.
Winnipeg, :: Manitob*.
A. S. BARDAL
selur likkistur og ann&st um útf&r-
ir. Allur útbúnaóur sá bestL
Ennfremur selur h&nn allskon&r
minnisvarTJa og legsteina.
843 SHEEBROOKE ST.
Phonei 86 607 WINNIPTO
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DR. S. G. SIMPSOIV, N.D.. D.O., D.O.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
I
I
MARGARET DALMANI
TEACHEIl OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Dr. A. V. Johnson
íslenzkur Tannlæknir.
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúsinu.
Síml: 96 210. HelmUis: 83328
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Bmate »d FnrnltDK Moylia
762 VTCTOR ST.
SIMI 24.500
Annast allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K. C.
lalenzkur IðgfrætHngur
Skrifstofa: 411 PARIS BLDO.
Sími: 96 933
I
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
Tnlnfml i 28 889
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
614 Someriet Block
Portage Avcnne W1NNIPI6
BRYNJ THORLAKSSON
Söngstjóri
StlUlr Pianos og Orgel
Simi 38 345. 594 Alverstone St.