Heimskringla - 11.01.1933, Síða 6
6. SlÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 11. JAN. 1933.
JON STRAND
Saga eftir
PAUL TRENT.
Þýdd af
G. P. MAGNÚSSON.
“Cora! — Horfðu á mig, elskan mín.”
Hún sagði ekkert, en hélt áfram að hylja
andlitið í höndum sér. Hann reyndi að taka
hendur hennar frá andlitinu, en hún varnaði
honum þess.
“Cora! Án yðar get eg ekki lifað. Horfðu
í augu mín. Elsku Cora,’’ sagði hann blíðlega.
“Eg bið afsökunar á því Jón, að eg talaði
þessi vanvirðu orð til yðar,’’ sagði hún lágt.
“Vér skulum gleyma því, elskan mín.”
“Og eg bið afsökunar á því, að eg sló yður.
Egtapaði allri sjálfstjórn um stund,” sagði hún.
Enn hafði hún andlit sitt hulið með höndunum.
“Horfðu á mig, Cora.”
“Eg get það ekki. Eg fyrir verð mig, og—”
Hún sleit sig lausa og hljóp þvert yfir gólf-
ið í salnum. Hann fór eftir henni og var rétt
að taka hana í fang sér þegar barið var að dyr-
um. Þau stóðu og horfðu hvort á annað þegj-
andi nokkur augnablik.
“Kom inn!” kallaði Cora.
Gerald Southwold kom inn og lék ánægju
bros um andlit hans.
“Góðann morgun, herra Strand. Mér var
sagt að þér væruð hér. Eg þarf að fá að tala
við yður ofurlitla stund, ef þér hefðuð tíma, svo
eg kom hingað,” sagði hann og reyndi að vera
góðlátlegur og blíður í málrómi og framkomu.
X. Kapítuli.
Gerald Southwold hafði sjaldan brugðist að
geta lesið menn út við fyrstu sjón, og þeim mun
betur, sem hann sá þá oftar og kyntist þeim
meir. Það kom honum því ekkert á óvart er
hann varð þess vís, að Jón lét ekki fallast fynr
þeim freistingum sem á leið hans voru lagðar.
Samt hafði hann vonað að ást Jóns til Coyu
yrði sterkari stjórnmála hugsjónum hans.
Hann hafði hlustað á ræðu Jóns í þinginu
og dáðst að mælsku hans og framkomu. Hann
hafði fyrir löngu tekið eftir því, að hann hafði
óvanalega hæfileika sem stjórnmálamaður, og
alla jafna gert ráð fyrir að hann yrði mikill
maður á því sviði. En eftir því, sem lengra kom
fram í ræðuna, varð hann að viðurkenna, að
menn honum jafnir fyrir finnast naumast nema
einn á hverjum mannsaldri. í ræðu hans kom
í ljós sá kraftur, sem menn virðast verða nauð-
ugir, viljugir að beygja sig undir. Hvert orð
eem hann talaði var svo sannfærandi og virtist
flutt af svo mikilli einlægni, að mönnum fanst
ómögulegt að mótmæla gildi þeirra. Hann var
skapaður andlegur leiðtogi fjöldans.
“Mér skal auðnast að vinna hann yfir á
mína hlið ennþá,” sagði forsætisráðherrann við
sjálfan sið, er hann fan.n sig sigraðann í þing-
inu. Þá næstu nótt lág hann lengi andvaka í
rúmi sínu og hugsaði um það, hvernig hann
gæti sem haganlegast náð Jóni yfir á sitt band.
Honum duldist það ekki að hér varð að ganga
hreinlega og beint að verki, og ef um mútu í
einhverri mynd yrði að ræða, þá yrði að viðhafa
alla mögulega hagsýni í því, að bjóða honum
slíkt. Jón er maður sem ekki mun láta kaupa
sig til neinna athafna mót sannfæringu sinni.
Þessu líkt hugsaði Gerald um nóttina, og hafa
hugrenningar hans efalaust átt aðal þátt í and-
vöku hans. Morguninn eftir ákvað hann, að
heimsækja Coru frænku sína, og komast eftir
hvert Jón hefði komið að sjá hana.
“Jón er ástheitur maður og mun ekki
strax hætta við það, sem hann hefir eitt sinn á-
sett sér að ná í. Cora er hans veika hlið. Eg
veit það,” hugsaði hann er hann gekk niður
Downing götu til Berkeley Square, þar sem
jarlinn bróðir hans tók vel og vingjarnlega mót
honum.
“Hvernig líður Coru?” var það fyrsta sem
hann spurði eftir.
“Hún er nú inni að tala við herra Strand.
Eg verð að segja, að henni leið ekkert vel í
gærkvöld og í nótt. Eg hefi haft talsverðar á-
hyggjur út af líðan hennar.”
“Það þarft þú alls ekki að hafa. Hún er
fullkomlega fær um að passa sjálfa sig í öllum
skilningi. Hvernig varð henni um framkomu
Jóns í gær? Hefir fylst gremju býst eg við,
sem eðlilegt er?”
“Hún læsti sig inn í herbergjum sínum er
hún kom heim í gærkvöldi og neitaði að sjá mig
eða nokkurn annan. Svo kom hún ofan til
morgunverðar í morgun og virtist þá sem henni
liði betur. Mig langaði til að tala við hana, en
vissi ekki hvernig eg ætti að haga orðum mín-
um. Eg skil hana ekki vel/ og móðir hennar
gat eg aldrei skilið,” sagði jarlinn.
“Já, það er stundum nokkuð erfitt að skilja
kvenfólk. Eg hefi aðeins kynst einni, og —
hún —” Gerald rak upp skelli hlátur en þagn-
aði svo snögglega. Jarlinn starði á hann und-
randi. Hann hafði oft hugsað um það, hvers-
vegna bróðir sinn hefði aldrei kvongast um
æfina, en hafði aldrei kunnað við að spyrja
hann neitt út í það. Þótt jarlinn væri eldri
bróðirinn hafði hann alla jafna haft hálfgerð-
ann beig af bróður sínum og verið honum und-
irgefinn. Lundarfar Geralds var þannig, að
tunga hans var oft svo bitoir, að náinn kunning-
skapur við hann var ómögulegur.
“Hvar eru þau, Strand og Cora?” spurði
Gerald.
“Þau eru í daglegu stofunni hennar. Ætti
eg að senda boð til hennar um að þú sért kom-
inn?”
“Eg held það væri heppilegast, að eg færi
sjálfur með þau boð,” sagði hann og gekk af
stað í áttina til stofunnar. “Nei, — þú þarft
ekki að koma með eða vísa mér leið, eg rata.
En farðu samt ekki burt úr húsinu því ske
kann að eg þurfi að tala við þig áður en eg fer.”
Að svo mæltu hélt hann áfram til þeirra Jóns og
Coru.
Þegar hann kom inn í stofuna og sá þau,
eins og fyr er um getið, horfði hann fyrst á
hana og svo á Jón. Hann sá það strax að hún
I hafði grátið, en hann gat ekki séð, að það væri
nein óánægja milli þeirra. Það gerði hann
strax vonbetri um að hans erindi fengi góðann
enda.
“Cora!” sagði hann vingjamlega er hann
hafði heilsað þeim. “Eg þarf að tala við hr.
Strand, helst einslega. Ef til vill vilt þú lofa
okkur að vera einum hér í stofunni um stund?”
“Herra Strand skal finna þig inn í lestrar-
salinn eftir litla stund og tala við þig, frændí,”
sagði hún í mildum en lágum róm.
“En erindi mitt er brýnt og eg þarf að
afljúka því strax. Hann getur talað við þig
eins lengi sem hann vantar, er eg hefi lokið
mínu erindi við hann,” sagði Gerald í einbeitt-
um róm, og Cora hafði ekki kjark til að mót-
mæla frekar.
Það voru stór vonbrigði fyrir hann, er hún
sá á eftir Jóni fara út úr stofunni með frænda
sínum. Hún þráði, að elskhugi hennar kysti sig
að skilnaði, og þráði að heyra hann segja henni,
að hann fyrirgæfi henni öll Ijótu orðin, sem hún
hafði talað til hans, og — kinn hestinn. En nu
gat hún eins vel búist við, að hann færi rak-
leiðis heim til sín er hann hafði lokið viðtalinu
við frænda hennar, og kæmi ekki inn þangað í
stofuna aftur.
Er þeir Jón og Gerald höfðu tekið sér sæti
inn í lestrarstofunni, dregur Gerald vindlaveski
upp úr vasa sínum og réttir að Jóni.
“Eg hlýt að dáðst að hinni snjöllu ræðu
yðar í þinginu í gær,” byrjaði Gerald.
“Eg hefi ástæðu til að láta mér finnast
mikið til ‘um aðdáun yðar, hr. Southwold, ef þér
hefðuð dáð ræðu mína í svari yðar í gær. Býsna
snögg breyting á áliti yðar á málum. Finst
yður það ekki sjáifum?” sagði Jón þurlega en í
ertnis róm.
“Þegar þér hafið fengist lengur við stjórn-
mál en þér hafið nú, þá lærið þér að draga
skýrar línur milli skoðanna manna í stjórnmál-
um og skoðanna þeirra í prívat lífi þeirra. Sem
stjórnmálamanni líkaði mér ræða yðar mjög
illa, en sem prívat manni álít eg hún hafa verið
hreinasta fyrirtak — reglulegur gimsteinn.”
“Eg fer að halda að eg sé ekki góður leik-
ari. í mínum augum er hluturinn annaðhvort
góður eða slæmur. Annað hvort eru menn með
mér eða á móti mér, annað hvort er maðrinn
heiðarlegur eða óheiðarlegur. Eg þekki ekki
neinar milligötur milli sannleika og lýgi. Stjórn-
mál eru ekki neinir gamanleikir, sem hægt er
að kasta milli sín eins og hnetti. Þau eru það
sama inn í þingsalnum sem þau eru fyrir utan
hann. Sá maður, sem þykist geta klæðst í og
úr stjórnmálaskoðunum sínum eins og eins-
konar flýk, hann er ranghugsandi tvískinnung-
ur, sem ekki er treystandi fyrír málum lands
og lýðs. Svoleiðis mönnum vil eg halda mig
sem lengst frá, eins og sóttnæmum sjúkdómi.
“Þegar árin færast yfir yður, herra Strand,
mun vður lærast að hugsa á annan veg,” sagði
Gerald og var að reyna að vera góðlegur á
svipinn.
“Eg yona ekki!” sagði Jón. En má eg
spyrja, hvað var það, sem yður vantaði að tala
við mig?”
“Það er nú bæði margt og mikilsvarðandi.
En fyrst af öllu verð eg að biðja yður að kasta
beirri hugmynd frá yður, að það sem kom fyrir
f gærdag hafi orsakað nokkurn kala Jhjá mér
til yðar. Eg vona að eg sé nógu mikill maður
til þess, að taka ósigri minum eins og manni
sæmir, og að láta þann ósigur ekki verða til
þess, að spilla vináttu okkar. Auðvitað hlýtur
stiórnin að seg.ja af sér. Svona milli mín og
yðar. — Það þarf ekki að fara neitt lengra nú í
bili — þó hefi eg hugsað mér að hætta alveg
við að leggja þetta frumvarp, sem varð til á-
stuðnines í gær, fyrir þingið.”
“Það gleður mig stórlega að heyra það,”
sagði Jón, og var auðheyrt að honum var sönn
alvara.
“Og þar sem eg hefi hugsað mér að gera
þetta, þá skulum við láta alt umtal um það,
vera gleyrnt. Þegar gengið verður til kosninga
sem óumflýjanlegt verður eftir að stjórnin seg-
ir af sér, þá er eg ekki í neinum vafa um, að
stjórin kemst til valda aftur, og það með mikl-
um, auknum kröftum. Stjórn-
mála stefna vor er alþýðleg,
og------”
“Nærri því um of alþýð-
leg. Það er gallinn við hana,”
greip Jón fram í.
“Yðar sæti er yður auð-
vitað ugglaust aftur. Þér ná-
ið endurkosningu. En þegar
þér komið aftur á þing, þá
vona eg að þér komið þangað
ekki margar ferðir, sem rétt-
ur og sléttur þingmaður að-
eins.”
Hann þagnaði og athug-
aði hvaða áhrif orð hans
höfðu á Jón. Svo hélt hann á- ________________
fram: ■"=
“Það verða einhverjar breytingar í ráðu-
neytinu, og þó svo geti farið, að mér verði ekki
mögulegt að gefa yður sæti í því strax, þá hefi
eg þó aðstoðarríkisritara sætið til boða, og eg
vona-----”
“Þér eruð vissulega mjög góður, hr. South
wold. Mig hefir aldrei. svo mikið sem dreymt
um svo virðulega stöðu. En sannleikurinn er,
að eg er alls ekki svo viss um, að--”
“Eg viðurkenni yðar miklu hæfileika.
Þetta embætti yrði aðeins sem spor í áttina að
öðru meiru. — Nei, svarið þér ekki fyr en þér
hafið heyrt hvað eg hefi að segja. Eg hefi auð-
vitað engann rétt til þess, að spyrja yður neins
í sambapdi við frænku mína, Coru. En eins og
yður gefur að skilja læt eg mér ant um hennar
velferð. Mér koma hlutimir þannig fyrir sjónir,
sem hún haldi meir af yður, en eg hugsaði að
hún gæti haldið af nokkrum karlmanni. Hún
hefir haft óteljandi tækifæri til að fá góða
gifting, en hún hefir hafnað þeim öllum hispurs
laust. Þarna er til dæmis hr. Sylvester yngri.
Hann er sérlega myndarlegur maður og kemur
til með að verða stórauðugur og með góða og
bjarta framtíð á. stjórnmálasviðinu. — Hon-
um neitar hún einnig og virðist ekki vilja neinn
annan en — Jón Strand. Eg hefi nú ekki sagt
neinum það ennþá, en einhver verður að verða
hinn fyrsti til að heyra það, og því má það þá
ekki eins vel verða þér, eins og einhver annar,
að eg hefi ákveðið, að ánefna henni þessar litlu
reitur sem kunna að finnast eftir mig þegar eg
fell frá. Gerið það nú fyrir mig, hr. Strand, að
taka ekki fram í fyrir mér, svo eg ruglist ekki í
því, sem eg ætlaði að segja. Eg hefi einsett
mér að tala við yður nú um mín einkamál —
það er þó ekki siður minn að tala um þau við
óviðkomandi menn. Persónulega kann eg sér-
lega vel við yður, fyrir einhverja þá ástæðu,
sem eg get ekki gert mér grein fyrir. Eg segi
yður það alveg satt, að í nótt sem leið, lá eg
vakandi í rúmi mínu svo klukkustundum skift-
ir, og var að hugsa um yður. Yður að segja
svona undir fjögur augu, er eg ekki viss um
nema yðar skoðun á frumvarpinu sé rétt.”
Jón hafði ekki haft augun af Gerald allann
tímann sem hann talaði, og er hann hafði lokið
máli sínu, varp Jón öndinni mæðulega.
“Yður hefir tekist að draga upp mynd af
glæsilegri framtíð.”
“Já, eg hefi óbilandi traust á yður og hæfi-
leikum yðar, og veit að þér eigið skilið að fram-
tíð yðar verði björt og fögur.”
“En þrátt fyrir alt yðar óbilandi traust á
mér, segir mér svo hugur um að þér séuð að
rétta að mér, á þennan hátt, serrt yður er venja,
nokkuð það, sem kallað er í daglegu tali, mút-
ur.” 1
“Hvað segið þér maður? Hversvegna ætti
eg að reyna að múta yður? Eg hefi ekkert á
því að græða,” sagði Gerald og hló gremju hlát
ur, að því, sem hann vildi láta líta út sem fjar-
stæðu. ,
“Herra Southwold! Þér eruð mjög slung-
inn maður og skörungur. Eg þykist vita að þér
rennið grunur í hvað hefir verið að brjótast um
í huga mínum.” •
“Nei, alls ekki. Eg get ekki lesið hugs-
anir manna."
“Nokkurn undanfarinn tíma,” hélt Jón á-
fram, “hefi eg verið háður yður, sem leiðtoga
stjórnmálaflokks þess, sem við völd hefir setið.
Þetta frumvarp sem þér talið um er aðeins lítil-
fjörlegt atriði hjá ýmsu öðru. Þér virðist hafa
verið mjög einlægur við mig í dag, og vil eg nú
vera jafn einlægur við yður, og þér megið ekki
móðgast af því, sem eg kann að segja. Okkar
skoðanir á stjórnmálum eru svo gjör-ólíkar, að
eg álít það með Öllu óhugsandi, að vér getum
unnið saman til lengdar. Og þrátt fyrir það ó-
bilandi traust sem þér segist bera til mín, þá
verð eg að segja sannleikann, sem er að eg ber
alls ekki óbilandi traust til yðar.”
“Hver er svo skoðana munur vor á stjórn-
málunum?”
“Þér eruð reiðubúnir til að leggja fyrir
þing til samþyktar frumvarp, sem þér vitið
sjálfur að er illt og óhafandi, einungis af þeirri
ástæðu, að þér lítið þannig á, að flokkur yðar
hafi hagnað af því ef það yrði samþykt.”
Gerald varð svart-rauður í andlitið af reiði,
en reyndi að tapa ekki stjórn á tilfinningum
sínum.
Byrjið Nýárið með heilbrigðis ráðstöfun
Auðveld og einhver skjótasta leiðin til
heilbrigðis er að drekka mikið áf—
MODERN
Gerilsneyddri Mjólk
—rífan skamt með hverri máltíð og
á “milli mata”, er heldur við heilsu
og vellíðan.
MODERN DAIRIES LIMITED
SÍMI 201 101
“Þér getið slegið rjómann en ekki skekið mjólkina”
“Eg gæti ekki greitt mitt atkvæði með
neinu því, sem eg væri ekki algerlega sann-
færður um að væri landinu í heild tll blessunar
og ábata,” bætti Jón við.
“Gerið þér yður fulla grein fyrir hvað þér
eruð að segja? Vitið þér ekki, að þér eruð að
bera á mig kærur?” spurði Gerald, og var auð-
séfe, að hann átti bágt með að stilla sig.
Jón sinti engu orðum hans en hélt áfram:
“Eg get ekki léð mitt fylgi neinu því, sem
bersýnilega er vanhugsað frá upphafi, eða hugs
að til þess að auðga einstaklinga, eður sérstak-
an stjórnmálaflokk. Er eg tók sæti mitt í
þinginu, vann eg eið að því að vinna hlutdrægn-
islaust og jafnt að allra hagsmunum — vinna
fyrir landið. Slíkann eið hafið þér einnig unn-
ið. Ef að frumvarp yðar hefði verið gott og
gagnlegt fyrir ríkið í heild sinni, þá hefði eg
hiklaust greitt atkvæði með því, og talað með
því. Nú var það sjáanlega þvert á móti landi og
lýð til ógagns og skaða, og þess vegna var eg á
móti því.”
“Eftir þessu að dæma, hefði velgengi
flokksins sem þér tilheyrið enga þýðing til yðar
fyr en öllu öðru væri fullnægt? Svo vil eg þá
minna yður á það, að það eru margir strang-
heiðarlegir menn innan míns stjórnmálaflokks
— jafnvel menn, sem gætu mælst á sama mæli-
kvarða og þér sjálfir. Þeir, einnig, hafa mikl-
um hæfileikum á að skipa og dómgreind
þeirra veldur engum tvímælum — gæti nú ekki
skeð, að þessir menn hefðu á réttu að standa
en þér á röngu? Eg hefi haft við stjórnmál að
sýsla í fleiri ár, en þér aðeins í nokkrar vikur,
og get eg fullvissað yður um það, að ekkert
stjórnarfyrirkomulag er jafn heppilegt fyrir
land og lýð, sem það, er vér höfum þann dag í
dag. En svo er þýðingarlaust að tala frekar um
það nú. Mætti eg spyrja yður hvað þér hafið
hugsað yður að gera? — Ef til vill er heppileg-
ast að þér hugsið yður betur um, og svarið ekki
strax. Hafið nokkrar klukkustundir til að í-
huga málið,” sagði Gerald.
Jón stóð hljóður og hnykklaði brýrnar.
“Hver sögðuð þér, að væri faðir yðar?”
spurði svo Gerald hæðnislegur á svipinn.
“Eg hefi ekkert sagt um það, mér vitan-
lega.”
“Já, það er satt. Eg man nú, en fyrirgefið
spurninguna. Eg vil leggja til að vér hittumst
síðar, áður langt urn líður, segjum á morgun,
hr. Strand. En áður en eg fer, vantar mig að
þér trúið því, að það er mín hjartans þrá, að
við getum unnið saman og verið vinir.”
Þeir gengu svo saman fram ganginn, og
Jón var rétt að beygja inn í herbergið til Coru,
þegar Gerald lagði hendina á öxl hans og sagði:
“NeL, ekki í dag, hr. Strand. Mig vantar
ekki að þér verðið fyrir neinum áhrifum frá
Tienni, á neinn hátt.”
“En ungfrú Cora á von á mér,” svaraði
Jón.
“Eg skal gefa henni allar nauðsynlegar
skýringar á því, af hverju þér gátuð ekki séð
hana. Kallaðu mig upp yfir símann á morg-
un. Farvel.”
Jóni fanst hann ekki geta séð Coru nú eftir
það, sem Gerald hafði sagt. Svo hann fór.
Gerald Southwold sneri til baka inn í lestr-
arsalinn. Settist þar í hægindastól og var strax
sokkinn niður í þungar hugsanir. Þannig hafði'
hann setið um heila stund er hann stóð upp og
gekk inn í herbergi frænku sinnar.
“Hvar er Jón?” spurði Cora er frændi
hennar kom inn og hún sá að Jón var ekki með
honum. Vonbrigðis ský breiddi sig yfir andlit
hennar.
“Hann er farinn. Samtal okkar hafði ekki
sem heppilegastan enda, svo mér hugkvæmd-
ist að gefa honum nokkurn umhugsunar tíma.”
\“En mig vantaði að ,finna hann. Þú hafð-
ir engann rétt til að blanda þér þar inn í,” sagði
hún með talsverðri þykkju í röddinni.
“Það er heppilegra fyrir þig, Cora, að fara
ögn eftir mínum ráðum. Jón verður óefað á-
gætis eiginmaður, þegar búið er að slétta ögn
af honum agnúana.”
“Eg hata þessa fjárans stjórnmála þvælu
þína. Það er þér og engum öðrum að kenna,
að okkur Jóni sinnaðist.”