Heimskringla - 15.11.1933, Blaðsíða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEXJ, 15. NÓV. 1933
FJÆR OG NÆR.
Messa í Sambandskirkjunni á
sunnudaginn kemur, á venju-
legum tíma. ..Séra Eyjólfur J.
Melan prédikar. Sunnudags-
skóli kl. 11. f. h.
* * *
Messuboð í Wynyard
Messað verður í kirkju Quill
Lake safnaðar á sunnudaginn
kemur 19. þ. m. Séra Rögnv.
Pétursson prédikar. Samtals-
fundur á eftir messu.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar
á Lundar sunnudaginn 19. þ.
m. — kl. 2 e. h.
* * *
Messur í Sambandskirkjum
Nýja íslands:
Riverton, 26 nóv. kl. 2. e. h.
* * *
Spilsamkepni
Kvenfélag Sambandsafnaðar
efnir til spilasamkepni í sam-
komusal kirkjunnar annað hvert
mándagskveld í allan vetur.
Fyrsta samkepni fór fram
mánudagin var þ. 30. okt. kl.
8.30 e. h. Verðlaun í pen-
ingum gefin hvert kvöld og
einnig há verðlaun þeim sem
hæðstu mörk fær til jóla. Spilað
verður “Contract-Progressive
Bridge.” Kaffi ókeypis á eftir í
hvert sinn. — Kom^ð stundvís-
lega. Aðgangur 25c.
. Næsta samkepnin, 20. nóv.
Nefndin.
* * *
Dr. S. E. Björnsson flytur er-
indi í Sambandskirkjunni í Ár-
borg sunnudaginn 19. nóv. kl. 2.
e. h.
* * *
Prófessor A. E. Zimmern frá
Oxford háskóla heldur fyrir-
lestur um fjármál og stjórnmál
í háskóla Manitoba fjóra fyrstu
dagana í næstkomandi viku.
Fyrirlestrarnir eru fluttir kl.
8.30 að kvöldinu. Prófessor
Zimmern er á vegum menta-
málaráðs Canada.
Þriðjdaginn, 7. nóv. voru þau
Perry Delores Whitesell og
Caroline Elisa Fredrickson, bæði
til heimilis í Winnipeg, gefin
saman í hjónaband af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton
St. Heimili þeirra verður í Win-
nipeg.
* * *
Winnipeg Symphony Orchestra
—heldur fyrsta hljómleik sinn
sunnudaginn 26. þ. m. í Winni-
peg Auditorium. Er flokkur
þessi orðin velþektur hér í bæ
fyrir ágæta hæfileika á sviði tón
listarinnar. Stendur Winnipeg
Symponhy Orchestra í fremstu
röð meðal hljómleika flokka í
þessari álfu. Eru meðlimir þess
valinkunnir spilarar, margir
þeirra hafa starfað með fræg-
um hljómleika flokkum hér í
álfu. John Waterhouse og Phil
Letvak, þektir fiðlu-spilarar
er verið hafa hjá Minneapolis
Symphony Orchestra um langt
skeið taka mikin þátt í hljóm-
leikum Winnipeg Sympliony Or-
chestra.
Aðgöngumiðar að hljómleik-
unum eru afar ódýrir, og er
hægt að kaupa aðgang að öll-
um samkomunum í einu, með
afslætti sem um munar.
Mr. Bernard Naylor er for-
stjóri Winnipeg Symphony Or-
chestra, verða samkomur auk á-
minstrar á eftirfylgjandi dögum:
des. 17., jan. 14., febr. 4 og febr.
25. í Winnipeg Auditorium .
* * *
Jóns Bjarnasonar skóli hefir
át'ormað að halda “Silver Tea”
í samkomusal Fyrstu lút. kirkju
fiintudagskvöldið, 30. nóv. Ná-
kvæmar sagt frá þessu síðar.
* * *
Föstudaginn ,10. nóv. voru
þau John Valdimar Halldórson
frá Winnipeg og Júlíana Val-
gerður Vogen frá Selkirk, Man.,
gefin saman í hjónaband af
séra Rúnólfi Martinessyni, að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður í Winnipeg.
* * *
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
PHONE 37 464
Þar hittast Islendingar, utan
sem innanbæjar, við máltíðirog
hið nafntogaða Þjóðrækniskaffi.
Soffia Schliem
Thura Jónasson
k
594 Alverstone St., Phone 38 345
UNCLAIMED CLOTHES
AII New—Not Worn
Men’s Suits & Overcoats
479 PORTAGE AVE.
I. H. TURNER, Prop.
Telephone 34 585
“WEST OF THE MALL—BEST
OF THEM ALL”
Gunnar Erlendsson
Teacher of Plano
J. J. SWANSON & Co. Ltd.
REALTORS
Rentai, Insurance and Flnanclal
Agents
Sími 94 221
600 PARIS BLDO. — Wlnnipeg
KAUPIR GAMLA GULL-
MUNI FYRIR PENINGA
ÚT f HÖND
CARL THORLAKSON
Úrsmiður
699 Sargent Ave., Winnipeg
| íslenzka gull- og silfur-
smiða stofan
John J. Arklie, R.O., sérfræð-
ingur við sjónmælingu og gler-
augna forskriftir verður á:
Eriksdale Hotel,
Fimtudaginn 23. nóv.
Lundar Hotel,
Föstudaginn 24. nóv.
♦ * *
Dánarfregn
Þann 31. október síðast lið-
in andaðist að Lundan, Man., að
heimili sonar síns, Guðjóns,
Jón Þorkelsson, 77 ára að aldri.
Hafði hann átt við langvarandi
heilsuleysi að stríða, en var
framúrskarandi þrekmaður og
vel látinn af öllum. Hann var
jarðsunginn þann 7. þ. m. af
séra Guðm. Árnasyni að við-
stöddum fjölda vina og ná-
granna. Æfiminning birtist síð-
ar.
* * *
Dánarfregn
Þann 3. þ. m. andaðist að
Lundar, Man., Kristíana Sig-
urðsson, kona Daníels Sigurðs-
sonar, 88 ára gömul. Kristíana
var fædd árið 1845 á Hólm-
látri á Skógaströnd í Snæfells-
nessýslu, dóttir Jörundar Guð-
brandssonar, bónda þar og konu
hans Herdísar Guðbrandsdóttur.
Þau Daníel og Kristíana flutt-
ust til Canada árið 1894 og
sefctust að í Grunnavatnsbygð-
inni, ekkj langt frá Otto póst-
húsi. Þar bjuggu þau nær-
felt tuttugu ár, en brugðu þá
búi, og hafa síðan dvalið hjá
börnum sínum á Lundar og í
grendinni. Þau hjón áttu níu
böm á lífi og alls munu af-
komendur þeirra vera hátt á sjö
unda tug. Tveir bræður Kristí-
önu eru enn á lífi, Guðbrandur,
til heimilis á Lundar og Kristján
á íslandi.
Kristíana sál. var einkar vin-
sæl og vel látin kona; enda var
hún hin mesta ágætiskona í öll-
um greinum. Var heimili þeirra
hjóna fyrirmyndarheimili að
gestrisni og velvild við alla.
Fyrir fjórum árum var haldið
60 ára brúðkaupsafmæli þeirra
R. H. WEBB
núverandi borgarstjóri í Win-
nipeg, sækir um endurkosningu
næstkomandi 24 nóvember.
á Lundar. Var þar margt manna
og var þess atburðar minst í
íslenzku blöðunum.
Kristíana var jarðsungin þ. 8.
þ. m. af séra Guðm. Ámassyni.
Fjöldi skyldmenna og vina
fylgdu henni til grafar.
* * *
Von á góðri skemtun
Áöðrum stað í blaðinu er
auglýst samkoma. Þess er þar
getið að Arinbjörn Bardal, stór-
templar segi ferðasögu sína um
ísland og önnur lönd og sýnir
myndir; einnig að hann skemti
með nýjum hljómplötum.
Arinbjörn var á hástúkuþingi
í Hollandi, fór til íslands og
víðar síðastliðið sumar; hefir
hann frá mörgu að segja og má
búast við góðri skemtun.
Myndirnar eru víðsvegar að
af landinu, úr öllum landsfjórð-
unum og flestum sýslum. Ná-
lega allir íslendingar eru þann-
ig skapi farnir að þeim þykir
vænt um að sjá myndir af
æskustöðvum sínum; má því
búast við að þessi samkoma
verði fjölsótt. Hvort sem þang-
að koma Sunnlendingar eða
Norðlendingar, Austfirðingar
eða Vestfirðingar; hvort sem
þar verða Borgfirðingar, Hún-
vetningar, Skaftfellingar eða
| Árnesingar eða eitthvað annað
þá mega þeir eiga von á að
' ferðast í anda heim til átthaga
I sinna og bernskustöðva.
Munið eftir þessu og sækið
samkomuna 22. þ. m.
* * *
Prófessor Richard Beck, flyt-
ur erindi á þriðjudagskvöldið
kemur hjá The Men’s Club, í
Fyrstu lýtersku, 21. þ. m. Efni
fyrirlestursins: Norse Philoso-
phy of Life. Fundurinn byrjar
með kveldverði kl. 6.30 e. h.
* * *
G. T. Spil og Dans
á hverjum þriðjudegi og föstu-
degi í I. O. G. T. húsinu, Sar-
gent Ave. Byrjar stundvíslega
kl. 8.30 að kvöldinu. $23.00 í
verðlaunum. — Gowler’s Or-
chestra.
HITT OG ÞETTA
Smyglarar í Finnlandi
í maímánuði í vor náði finskt
strandvarnaskip smyglaraskipi,
er heitir “Angela”. Sigldi það
undir Panamafána og hafði inn-
anborðs 62,000 lítra af spiritus,
sem það ætlaði að koma í land.
Við rannsóknir út af máli
þessu kom { ljós að þarna höfðu
yfirvöldin náð í hina stærstu
smyglara, sem enn hafa orðið
uppvísir. Voru þeir fjórir sam-
an í féiagi og var aðalmaðurinn
Nepman að nafni, og gengur
hann undir nafninu “spirttkeis-
ari”. Þessir menn höfðu félag
við smyglara í Eistlandi og
stofnuðu sérstakt útgerðarfélag
til þess að smygla áfengi til
Finnlands og Svíþjóðar. Höfðu
þeir fjögur skip í förum.
* * *
Brennuvargar f Englandi
Fyrir nokkru síðan komst upp
um brennuvargafélag í Englandi
— félag, sem tók það að sér
fyrir of fjár, að kveikja í hús-
um þeirra manna, sem voru
fjárhagslega illa stæðir, en gátu
komið undir sig fótunum aftur
með því að fá greiddar háar
brunatryggingar. Vakti þetta
mál hina mestu athygli og um-
FERÐASAGA
MESSUR OG FUNDIR
f klrkju Sambandssafnaflar
Arinbjöm Bardal segir ferðasögu sína um Island og önnur lönd
s Evrópu, miðvikudaginn 22. þ. m. kl. 8. e. h. í Goodtemplarahúsinu
Hann sýnir nýjar myndir frá ýmsum héruðuin Islands;
Hefir einnig nýjar hljómplötur með úrvalslögum.
Messur: — á hverjum sunnudegt
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndln: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld I hverjum
Aðgangur að þessari skemtim aðeins 25 cents
mánuðl.
Agóðinn fer til líknarstarfs
tal. Aðalmaður brennu varg-
anna, Leopold Harris, var
dæmdur í 14 ára fangelsi.
Nú hefir hann boðist til þess
að gefa lögreglunni upplýsing-
ar um fleiri og stærri brennu-
vargafélög, ef hún vilji stytta
fangelsistíma sinn um fimm ár.
— Félag mitt var vel skipu-
lagt, segir Harris, og nú eru
margir háttsettir menn, bæði
innan lögreglunnar og vátrygg-
ingarfélaganna með lífið í lúk-
unum út af því hvernig eg get
flett ofan af þeim. Félag mitt
varði stórfé í mútur. En það er
ekki eina félagið, sem hefir
grætt of fjár á íkveikjum. Það
eru til önnur og miklu stærri
félög og ef ljóstað væri upp
um þau myndu margir merkir
menn komast í klípu.
Keppinautar mínir reka í-
kveikju starfsemi sína á vís-
indalegan hátt. Við notuðum
■eingöngu celluloid við íkveikj-
urnar, en þeir nota eitthvert
duft, sem hefir þann eiginleika
að í því kviknar af sjálfu sér,
þegar loft hefir leikið um það í
nokkrar klukkustundir.—Þessu
dufti koma þeir fyrir í húsun-
úm, sem eiga að brenna, og
það er alveg óhugsandi að hægt
sé að komast fyrir eldsupptök-
in. — Brennuvargarnir geta
verið komnir langar leiðir burtu
þegar eldurinn brýst út og þann
ig “sannað”, það, að þeir hafi
ekki getað kveikt í.
* * *
Hvar er Skandinavia?
Söngvaforlag Jac. Boesens í
Kaupmannahöfn skrifaði í sum-
ar til Harms söngvaforlags í
New York og spurðist fyrir um
það hvort það gæti fengið einka
útgáfurétt fyrir Skandinaviu á
amerísku sönglagi, sem hafði
orðið mjög vinsælt í “Helsingör-
revyen” í sumar. Forlagið hefir
nú fengið svar. En hverju hald-
ið þið að Harms hafi svarað.
Jú, hann kvaðst ekki geta sagt
neitt um þetta að svo stöddu.
vegna þess að hann vissi ekki
hvar Skandinavia væri. Hann
hefði að vísu heyrt nafnið ein-
hvern tíma, en gæti alls ekki
komið því fyrir sig hvar þetta
land væri.
* * *
Virðing fyrir yfirvöldunum!
í Eistlandi var nýlega gefin
út reglugerð, sem bannar mönn-
um stranglega að fara óvirðu-
legum orðum um stjórnskipun-
ina, þingið, rkisstjórann og
stjórnina. Brotum gegn þessu
má refsa með þriggja daga
fangelsi, eða 3000 króna sekt.
ENDURMINNINGAR.
Frh. frá 7. bls.
ar ökrum, yfir mjólkurdöllum
og grútugum vélum, ætla sér að
klæðast hvítir og stífaðir, eins
og í brauðgerðarstofum, eða á
skrifstofum og á uppskurðar-
stofum. Bændumir voru að
vísu frjálslegir, eins og komnir
úr ofurlitlu konungsríki, þar
sem útsjón og framkvæmdar-
semi teflir við sól og regn.
Margir af þeim voru hálf ergi-
legir, var þó auðséð að þeim
tilheyrði það ekki, þeir voru það
aðeins í borginni. Eg vildi vita
hvað gengi að þeim, og komst
að því að þeim þótti óráðvand-
lega áhaldið, og óþarflega
margir stolsa yfir krásunum.
Þeir voru hissa hvað brauðið
cg kjötið og smjörið og eggin,
alt var dýrt. Þeir ætluðu ekki
að stanza lengi og það tók
ekki mikið frá þeim en þeir
urðu fyrir vonbrigðum og
skyldu ekki hversvegna fólkið,
neytendurnir þurftu að gefa
svona mikið fyrir þessar vörur,
tveimur þriðju pötrum meira
en þeir sáu fyrir vörur þessar,
héldu þó að þeir' hefði mest
fyrir haft. Það var eins og
þeim dytti fyrst í hug að reita
háríð af Sir Wilfred Laurier, en
þá mundu þeir að hann var
sköllóttur, svo hafði þeim öll-
um verið vel við hann, en hann
hlaut að vera miklu eftirlits-
lausari ráðsmaður en þeir höfðu
hugsað. Einhverjir stórþjófar
voru á leiðinni. Því voru þeir
ekki fundnir og þeim refsað að
maklegleikum? — Þeir voru
komnir til þess inn í borgina að
fá hjálp út á landinu, en unga
fólkið í borginni var alt brjálað.
Það var eins og hundi væri boð-
in heil kaka, að bjóða því heim
ti lsín, fyrir sama kaup og það
fengi í borginni. Þá urðu þeir
snöggvast allir montni af kon-
unum sínum, struku á sér lífið
og sögðust þó geta borið vitni
um það að þær kynnu að mat-
reiða,. og þvo úr lepp. Eg var
staddur í búð hjá Árna Frið-
r ikssyni lengst niðri á Ross Ave.
Þar inni var íslenzkur bóndi
utan frá Manitobavatni. Eg
liafði aldrei séð hann fyr og
þekti engin deili á honum, en
sann sá víst á mér að eg var
ennþá emigranti, en það var í
þá tíð niðrunar orð í Canada.
Hitt fólkið var svo miklu full-
komnara sem lengi var búið að
gista landið. Ekki hreyfði bónd-
inn samt þeim ónotupi við mig,
en sneri sér að mér og spurði
hvert eg hefði ekki stálpaðann
Hjálptirnefndin. Fundir fyrsta
mánudagskveld 1 hverjum
mánuðl.
Kvenfélaglð: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurlnn. Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjun
sunnudegi, kl. 11 f. h.
dreng eða stúlku, sem eg gæti
léð sér til snúnittga og smærri
vika að" minsta kosti til hausts-
ins, þangað til skólar byrjuðu.
Bóndi þessi var hetjulegur og
þó var hann svo lamaöur að
nærri lá vð að hann tárfeldi
.
j vfir þeirri útreið sem hafði
gengið yfir höfuð honum á ótal
heimilum í borginni, þar sem
hann liafði skimað eftir hjálp út
á sitt heimili. Sagði hann að
sveitabændum væru bornar all-
ar vammir og skammir á hrýn.
Þeir létu unglingana sofa í lús-
ugum íúmum og gæfu þeim
hráann mat að eta með meiru
og fleiru. Þá fyltist hann rétt-
látri reiði og sagði að sinni
konu væri það nýr vitnisburður
og ekki fagur.
Framh.
BRENNIÐ KOLUM EÐA
KÓK TIL ÞESS AÐ FÁ
GÓÐAN HITA
Per
DOMINION (Lignite) Ton
Lump .$ 6.25
Cobble . 6.25
MURR A Y (Drumheller)
Std. Lump .$10.50
Stove . 10.25
FOOTHILLS
Lump $12.75
Stove .-. 12.25
MICHEL KOPPERS COKE
Stove $13.50
Nut . 13.50
McCurdy Supply
Co., Ltd.
49 NOTRE DAME Ave. E.
Símar: 94 309—94 300
BifreiðarFerðir
Afsláttar fargjöld til allra
staða. Ferðist með hinum
nýju hituðu ‘Sedan’ bílum.
Farþegjar allir vátrygðir.
Æfðir bílstjórar.
Sýnishorn farjíjalda:
Wpg til Regina.... $ 7.00
Wpg til Calgary .... 14.00
Wpg til Saskatoon .. 9.50
Wpg til Toronto ... 18.75
Wpk til New York .. 23.50
Spyrjið eftir fargjöldum til
allra staða
THE
Drivers, Syndicate
439 MAIN St.
Sími 93 255 Winnipeg
Extra Miles With
Little Extra Cost
Because They Last Longer
Seiberling Air Cooled Tires
Not to Forget the Seiberling “Special Service,, Tire
Seiberling Sales & Service
575 Portage Avenue Phone 35 398