Heimskringla - 11.07.1934, Blaðsíða 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG, 11. JÚLÍ, 1934
Hfetmskrtnjjla
(Stofnuð 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsímis 86 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
fyriríram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
311 viðskifta bréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manager THE VIKING PRESS LTD.
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Vtanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
“Heimskringla” ís published
and printed by
THE VIKING PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
WINNIPBG, 11. JÚLÍ, 1934
UM LÁÐ OG LÖG
Canada
Þjóðhátíðardagur Canada var hátíðleg-
ur haldinn 1. júlí um land alt, eins og lög
. gera ráð fyrir. Síðan veldissambandið
var myndað eru nú 67 ár. í sögu þjóða er
það skammur tími, en þó ber ofurlítið
skýrslu sýnishorn, sem birt er á fyrstu
síðu blaðsins, þess nokkurn vott, að á
iðnaðarvísu og þjóðþrifa, hefir hér nokk-
uð verið aðhafst á þessum árum.
Auðvitað er canadikst þjóðlíf eldra en
þetta. Aldur þess er vanalega talin frá
því er landið hlaut nafn sitt en það var
fyrir 400 árum. Er sögulega frá því
greint á þessa leið:
Nafn Canada er til orðið fyrir tungu-
málamisskilning.
Þegar Jacques Cartier sigldi inn St.
Lawrence-fljótið á annari ferð sinni árið
1535, siteig hann á land í Indíánaþorpi,
sem nefnt var Stadacona; þar er nú borg-
in Quebec.
í tjaldi Donnacana, höfðingja þessa
Iroquis-Indíánahéraðs, spurði Cartier hvað
landið héti.
Indíána-höfðinginn hélt að hann værí
að spyrja hvað héraðið héti og svaraði
“kannata”; merking orðsins er þorp, eðf
nokkur hús (a collection of houses).
Cartier hélt að nafnið ætti við landið í
heild sinni, og í bókum hans varð úr
þessu orði Canada, og það nafn hefir
landið borið. Nákvmælega talið eru því
14. sept. 1935, 400 ár liðin síðan landið
hlaut þetta nafn.
Þrátt fyrir erfiðleikana sem Cartier og
Donnacana áttu með að sklja hvor annan,
urðu þeir mjög góðir vinir og árið 1536
fór Donnacana með Cartier til Frakk-
lands.
Þjóðhátíðardagur Canada er nefndur
“Dominion Day” sem kunnugt er. Þetta
orð “Dominion” var valið til þess að tákna
Canadaveldi er það var stofnað og er þýð-
ing orðsins enda engin önnur en veldi.
En orðið var ekki notað í þessari merk-
ingu áður og þótti fágæft í fyrstu, þó nú
sé notað af öðrum sjálfstjómarnýlendum
Breta. En orðið er sagt að valdið hafi
verið úr kafla í biblíunni um Sakarías,
9—10 versi: “Veldi hans mun ná frá hafi
til hafs og frá Fljótinu til endimarka jarð-
arinnar.” (Á enskunni er þetta orðað
þannig: “and his domain shall be from
sea to sea and from the river to the ends
of the earth”). Þessi lýsing á heldur ekki
illa við þetta land, er frá Atlanzhafi til
Kyrrahafs nær og frá St. Lawrence fljóti
til norðurheimskautsins, sem vissulega
eru “endimörk jarðar” í þá áttina.
Þó þjóðhátíðardagur Canada sé ekki
eldri en þetta, eða væri nú aðeins haldinn
í 67 sinni, má ekki ætla, að hann nái
ekki til sögu lands og þjóðar áður en
veldissambandið var stofnað. Þjóðlíf var
hér til löngu áður en sá sögulegi viðburð-
ur gerðist. Og veldissambandið hvílir á
því. En á þeim degi, 1. júlí, 1867 takast
íbúarnir í hendur um það, að vinna í ein-
ingu og fríði að sameiginlegum hag sín-
um og velferð kjörlands síns og niðja
sinna, þó sinn af hverju þjóðarbergi kunni
að vera brotnir og um Canada megi í því
efni með nokkrum sanni segja, ^eins og
Babel forðum, að drottinn hafi hér rug'
saman öllum tungum heims.
* * *
Óskírlífismálið í Alberta
í síðasta blaði var frá aðalaitriðum
þessa máls skýrt, og því einnig, að Ives
dómari mundi ekki fallast á úrskurð kvið-
dómsnefndar. En af kviðdómsnefnd var
forsætisráðherra J. E. Brownlee fundinn
sekur um að hafa táldrekið Miss Vivian
MacMillan og sektaður um $15,000; áttu
$10,000 af því að greiðast henni, en
$5,000 föður hennar.
Sekt þessa hefir Ives dómari nú neitað
að staðfesta og kastar máiinu út úr rétti.
Leiðir af því, að málskostnaður fellur á
stúlkuna, auk þess sem hún fær engar
skaðabætur.
í málinu virðist því liggja þannig, að
Ives dómari viðurkenni að forsætsráð-
herra hafi táldregið stúlkuna, en sekt geti
ekki nein verið því samfara.
Þykir þessi málsúrskurður dómarans
svo sérstakur, að undrun sætir. í augum
leikmanna er hann svo einkennilegur að
hann krefst fullkominnar skýringar.
Þess finnast ekki nokkur síðari tíma
dæmi, að dómari hafi hafnað úrskurði
kviðdómsnefndar í brezku réttarfari.
Og um álit dómstóla á því að táldraga
stúlkur vaða menn í villu og svima eftir
þennan úrskurð Ives dómara.
Gerningurinn er viðurkendur að hafa
átt sé stað, en samkvæmt þessum dómi á
hann að líðast bótalaust.
Fregnirnar af máli þessu, er það va^
fyrir rétti, voru alment skoðaðar of
hneykslisverðar til þess, að því sé eftir sex
daga réttanhald kastað út, sem of lítils-
verðu til þess, að gera sér rellur út af.
Öðru máli gat verið að gegna, ef það
hefði verið gert áður en réttarhaldið fór
fram.
Ives dómari kveður líkamlega heilsu
stúlkunnar ekki hafa sakað, en báðir aðil-
ar hafa álitslega liðið skipbrot af mál-
inu. Það á ekkert að saka?
Mál þetta þarf ferkari skýringar til þess
að komist verði að fullnægjandi niður-
stöðu í því, í augum leikmanna, enda mun
nú víst, að því verði áfríað.
Féleg er nefnir sig Civil Liberties Pro-
tective Assocation og stofnað hefir verið
í Canada til þess að vernda frelsi og rétt-
indi einstaklingsins, eins og nafnið ber
með sér, er sagt að sé að gangast fyrir
fjársöfnun til þess að halda málinu f
fram. Deild af þessu félagi er í Alberta-
fylki og það er hún, sem af stað fer. Ekk'
var þó starfi hennar langt komið, er sá
þröskuldur var á veg hennar lagður, ar
deildin hefði ekki leyfi til að byrja þessa
fjársöfnun, án þess að það mál hefði verið
tekið upp á fundi alaðráðs félagsins. Og
úr deildinni sögðu sig tveir háskólakenn-
arar í Alberta-fylki, er fjársöfnunarstarfið
var hafið og kváðust ekki við þetta
mál fýsa að vera bendlaða. En deildin
í Alberta-fylki, virðist ekki ætla að láta
þessar torfærur verða ásetningi sínum að
fótakefli, og heldur fjársöfnuninni áfram.
kveður sig hafa rétt til þess, er skjótra
framkvæmda er þörf, eins og eigi sér stað
í þesgu máli.
Aðal-ástæða félagsins fyrir að hefjast
handa í þessu máli, er sú, eftir því sem
það sjálft segir, að vita vissu sína um
það, hvort dómarar geti neitað úrskurði
kviðdómsnefndar í einum og sama rétt-
inum, sem kviðdóm skipar í máli. Ef svo
er yfirleitt, fer kviðdómur að verða lítil-
vægt atriði í löggjöfinni.
FRÚ MARIE CURIE
Frú Marie Curie, sú er uppgötvaði
radium, og eflaust ein mesta vísindakona,
sem uppi hefir verið, lézt 3. júlí í Valence
á Frakklandi.
Hún var pólsk að ætt. Faðir hennar,
prófessor Sklodowski, var stærðfræðis-
kennari í háskólanum í Warsaw á Pól-
landi.
Seytján ára gömul byrjaði hún að vinna
sem kennari. í tómstundum sínum las
hún eðlisfræði og stærðfræði. Litlu síðar
hélt hún til Frakklands, félítil, en ákveðin
í að stunda þessar námsgreinar til hlítar.
Og eftir fimm ár tók hún doktorsstigið.
Átti hún þau ár við meiri fátækt að búa,
en margur mundi ímynda sér. Vistarvera
hennar var þakherbergi og bar hún kolin
til að hita hana með upp fimm stiga.
Máltíðir sínar matreiddi hún sjálf.
Árð 1895 giftist hún frakkneskum
manni, Pierre Curie að nafni. Annaðist
hún heimilisstörfin, ól honum börn, og
starfaði með honum að vísindum í litlum
viðarkumbalda, sem bæði var heimilð og
vísindarannsóknarstofan.
Árið 1898 uppgötvuðu þau efni, sem
þau nefndu poloníum, eftir ættjörð frú
Curie. Árið eftir uppgötvaðuðu þau radí-
um og árið 1903 hlutu þau Nobelsverð-
launin í efnafræði.
Árið 1905 dó maður hennar af slysi;
var vagni ekið yfir hann og lézt hann
samstundis.
Frú Curie hélt áfram vísindastarfinu
eftir sem áður. Aðstoðaði eldri dóttir
þeirra hana við það og rekur nú starfið
að móður sinni látinni. Yngri dóttirin er
píanóleikari og talsvert viðurkend.
Nobels verðlaunin hlaut frú Curie aftur
árið 1922. Háskólinn í París kom og
upp Radíum stofnun árið 1912, en seigt
og fast er sagt að það gengi.
Frú Curie átti aldrei ögn af radíum
sjálf fyr en konur í Bandaríkjunum árið
1921 gáfu henni eitt gramm af því, það
kostaði $100,000. Áhugi kvenna að gang-
ast fyrir þessu, var vakinn með fregninni
um það, að 50,000 mannslífum hefði verið
bjargað með radíum lækningum í stríð-
inu mikla.
Þó frú Curie væri heiðruð af stjórn-
um og óteljandi félögum út um allan
heim, lét hún aldrei mikið á sér bera, en
kaus að vinna öllum stundum í kyrþey
að starfi sínu .
Verkið sem frú Curie hefir af hend:
leyst, er svo stórt og heillaríkt, að þess
mun minst svo lengi sem mannkyn er
uppi.
ÞÁTTTAKENDUR f ÞÝZKU ÓEIRÐUNUM
Fjórír póli'tískir herflokkar voru miklir
þátttakendur í óeirðunum síðustu á
Þýzkalandi. Skal þeirra hér getið.
1. Stormliðið (Sturm Abteilung). Liði
þessu smalaði Nazi-kanzlarinn, Hitler,
saman, og flokkur sá efldist svo, að
hann kom Hitler til valda. Honum var
gefin einkennisbúningur og ábyrgstar
þrjár máltíðir á dag. Nazi flokkurinn
þjónaði foringja sínum vel og var honum
trúr, þar til nýverið. Raunar er sagt, ar
óánægja hefði verið að grafa um sig
innan flokksins nokkra undanfarna mán-
uði, en út á við var hennar ekki vart.
2. Schutz Staffel herinn. Þessi her-
flokkur er eiginlega lífvörður Hitlers.
Þeir er hann fyila ,eru úr Storm-liðinu,
er hann klæddur svörtum skyrtum og
ragður herskár.
3. Stál hjálmarnir (Stahl-helm). Þeir
eru í einkennisbúningi og eru hinir einr
eiginlegu keisara sinnar. Þeir sameinuð-
ust að nefninu til Nazi flokknum er
Hitler tók fyrst við völdum. í þessum
flokki er mikið af gömlum hermönnum.
4. Ríkisherinn (Richwehr). Þetta er
þjóðherinn. í honum eru um 100,000
manns, og var Þýzkalandi leyft í Versala-
samningunum að hafa hann.
Af þessu sézt, að her þjóðverja, er æð:
marglttur og engin furða, þó þeirrar ein-
ingar gæti ekki innan hans, sem hers
annara þjóða. Enda er nú í Ijós komið
að hann er að verða stjórn Hitlers hættu-
legur, og sá hluti hans ekki sízt, er hon-
um ruddi brautina til valda.
ENN UM “HEIMINN”
“Himininn hætti um spámenn
Að hlutast á jörð —
Kirkjan vor telgdi sér trjámenn
Að titta þau skörð.”
St. G. S't.
Svo margt ber á góma í blöðum og
tímaritum, að fátt kemur á óvart, hve
fáranlegt sem það kann að vera. Mörg
eru þau endemi er þyrla upp hugsanaryki
cg trylla menn og konur. Sjálfráð, ein-
beitt skynsemi er því miður ekki algeng-
asti ráðgjafi og leiðtogi í þeim vandræð-
um er að oss steðja. Allskonar hindur-
vitni ganga ljósum logum bygð úr bygð,
borg úr borg, land úr landi. Og það sem
verra er, þessi nútíma hjátrú, í mörgum
tilfellum, hefir á sér yfirskin kærleikans
og svíkist að fólki með grímu sannleiks
og vísinda, en þekkir hvorugt.
Hjátrúin tekur sér mörg og dásamleg
gerfi frá bollalestri, kristilegum vísind-
um að trúnni á tilveru Djöfulsins í Hel-
víti. Að dómi margra er Andskotinn aðal
frumkvöðull og stjórnandi allra vorra
hörmunga. Og mörgum finst, að Djöfsa
vegna svo mikið — mikið betur í viður-
eigninni við 'Jehova, að nú þurfi aiveg
sérstakra ráðstafana við ef veröldin eigi
ekki aö fá öll sín ráð og boð og bann
beina leið frá Helvíti. En það furðuleg-
asta er þó það, að þessar umkvartanir um
vald þess illa og velgengni anti-krists,
ásamt hræðslunni um að Guð allsherjar
sé alveg að missa tök á heiminum, e:
lang — lang mest áberandi hjá þeim ei
fimbulfamba mest um kærleika og al-
mætti Drottins. Slíkt er nú heldur engin
smáræðis traustsyfirlýsing á guði þeim er
þeir tilbiðja, því ef trúa mætti orðum
þeirra vildi hann ekkert fremur en binda
skjótan enda á vald Helvítis og afmá
hvern púka af jörðu og í undirheimum.
Ef þetta fólk tryði í raun og veru svona
einlæglega, og þeir láta í veðri vaka, á
almætti og kærleika guðs síns og vilja
bans að bæta úr hverri þraut, því þá alt
þetta óp og væl og vantraust á sigur
hans.
En þá kemur alt í einu upp
úr kafinu að Jehova almáttug-
ur þarfnast hjálpar, almættið:
sjálft. Þessir postular Guðs-
ríkis, eða ef svo mætti að
orði kveða, þessir útvöldu
“storm troopers” hans í þess-
ari langdregnu og ógurlegu
styrjöld gegn Fjandanum, virð-
ast alvarlega hræddir um að
skolli sé að snúa á Drottinn og
máta hann. Það virðist ekki
þurfa mikinn skilning til að sjá
í gegn um kenningar, er inni-
halda jafn barnalegar mótsagn-
ir. Eg efa að nokkur vantrúar-
maður hafi samið taiagnaðrí
vantrausts yfirlýsingu á tilveru
og almætti Guðs en þessir sjálf-
stíluðu einkavinir hans.
Ein af þessum nútíma glám-
sýnum er, að það megi á fám
árum með kristinni trú innræta
mönnum svo mikinn kærleik,
að ójöfnuður og sér í lagi styrj-
aldir hverfi úr heiminum. í
seinasta stríði sveik kirkjan um
nær gjörvallan heim frelsara
sinn og otaði mönnum til mann-
drápa og hermdarverka. Munu
formenn þessara nýju kenninga
reynast hóti betri? Sannfæring
mín er að svo muni ekki reyn-
ast. Friður og jöfnuður ef slíkt
má nokkurntíma ske, munu
koma úr annari átt. Kirkju-
menn um víða veröld sitja sem
fastast í sama fari og áður.
Þeir sviku friðarhöfðingjann,
en höfðu ekki þá blygðun til
að bera er kom Júdasi til að
hengja sig.
Allskonar kreddur og kreddu-
deildir þróast hér í Ameríku.
Flest eru þetta brot úr eldri
kirkjudeildum. Sumir flokkarn-
ir þykjast hafa fundið ný, en
aðrir endurfundið gömul sann-
indi.. Aðeins eitt sammerkir þá
alla —- nefnilega vissan um að
hver og einn hafi fundið æðstu
sannindi lífsins og tilverunnar.
En það er galli á gjöf Njarðar^
það sem einn telur lífsins veg
dæma hinir fals og tál. Sumir
prédika um djöfulinn og það
skaðræði er af honum stafi,
aðrir fullyrða að hann sé ekki
til og sjá ekkert annað en “Uni-
versal Mind”, anda, sem að mér
skilst, sé jafnt í góðu og illu.
Eg hefi. heyrt lýsingar á ríki
djöfsa svo nákvæmar að ætla
mætti að þeir er frá sögðu væru
honum svo að segja handgegn-
ir, aðra líka tala um að alt væri
ást, guð, fullkomnun og fyrir-
gefning. Og eftir að hafa hug-
leitt allar þessar ósamstæður,
og rent grun í að þetta væri
hvort sem er aðeins atvinna
sumra manna, þá lái eg ekki
manninum er vildi engar af
þessum nýjungum þýðast því
eins og hann komst að orði —
“The Hell of my fathers is good
enough for me.”
íslendingar hafa sem betur
fer, lítið til málanna lagt. Flestir
þeirra virðast lítinn gaum hafa
gefið anti kristi “með beljandi
hausinn” og alveg láðst að
athuga að: “Hann þroskast með
hverjum degi”. Eins hafa flest-
ir látið sér nægja, ef þeir hafa
skift sér af trúmálum, að taka
fremur daufan þátt í öðru hvoru
kirkjufélaginu og rífast um
kirkjupólitík á mjög svo jarð-
neskan máta. En á “frelsun”,
“sáluhjálp” og launsátur og á-
rásir Andskotans hafa sára-fáh
nokkuð minst á svo mér sé
kunnugt um. Fleiri munu þeir
er hafa hugsað um hvort Jap-
anar gætu ekki gert árás á
landið heldur en að Fjandi gamli
færi að leggja það undir sig.
Vestur-ísl. hafa hjálpað sér
sjálfir og svo hver öðrum og
engin yfirnáttúrleg kraftaverk
hafa gerst í nýlendum þeirra,
svo orð fari af a. m. k. Sú trú
er þeir hafa haft hefir dugað
þeim og eg sé alls enga ástæðu
að fara sérstaklega að hervæða
þá gegn Anti-kristi núna. —
Barnalegt þvaður um, að “lofa”
almáttugum Guði að “ráða nið-
urstöðum”, hefir ekki látið á
sér bera því þeir hafa hingað
til haft skynsemi til að sjá að;
“almætti” mundi ekki hlýða
boði né banni né þurfa mikilla
ráðlegginga með.
Eg lærði sem drengur að
Guð hjálpaði þeim er hjálpa sér
sjálfir sem er nokkurnvegin það
sania sem að segja að hann
taki ekki eins mikinn beinan
þátt í kjörum vorum og sumir
nútíma postular vilja vera láta.
Um þessa kenningu kvað skáld-
ið okkar K. N.:
“Það hafa sumir þenna hjákát-
lega sið,
að hjálpa þeim sem ekki þurfa
neinnar hjálpar við.”
i Enda sýnir og sannar rejmsl-
an að mennirnir verða að ráða
sínum eigin siðum, hvað svo
sem er rétt eða rangt um eigin-
leika Drottins og stjórn hans á
heiminum og kirkja hans er
ekki líkleg að láta mikið til sín
taka utan dauða ríkisins hinu-
megin grafar enda er sáluhjálp
hennar verksvið en ekki jarð-
nesk pólitík. Af Anti-kristi og
legiónum Helvítis hafa jafn-
vel kirkjurnar flestar mjög ó-
ljósar fregnir í seinni tíð svo
hættan þaðan er nú e. t. v.
ekki alveg eins alvarleg og
sumir álíta vera.
i Það er satt að við lifum á
alvörutímum. Því meiri ástæða
til að nota vitið og stillinguna
og hjálpa sér þannig sjálfir. Og
það er fals og tál að skella
skuldinni á yfimáttúrleg yöld,
! vandræðin eru af mannavöldum,
úrlausn verður einnig að koma
frá okkur sjálfum. í tvö þus-
und ár hafa menn hrópað til
himins um hjálp, í tvö þúsund
ár hafa þjónar Guðs og átrún-
aðarmenn hans beðið um hjálp
frá himni, árangurinn af því er
öllum ljós. Þessi tvö þúsund
ár hafa. hendur og heili unnið
starfið, ræktað akra og engi,
klætt og fætt börn jarðar, bygt,
sáð og uppskorið, hugvit hefir
fætt nútíma menninguna, og
vitsmunir hafa hingað til verið
það eina er nokkru hefir til
vegar komið og verið besti post-
| uli kærleikans, besti læknirinn
og besta hjúkrunarkona allra
andlega og líkamlegra meina.
Meiri skilngur er vegurinn til
framtíðar landsns. Að blanda
trúmálum inn í það er bara bein
helber vitleysa.
íslendingar hafa eins og eg
gat um áður furðu lítið yfir-
1 gefið kirkjufélög sín fyrir þessar
'nýju trúr. Bæði Únítarar og
lúterskir hafa haldið sönsum
; og hingað til lítið blandað sam-
an því andlega og veraldlega.
' Hvorugir virðast hafa falið Guði
Iá hendur að ráða fyrir sér í
atvinnumálum né pólitík, ein-
1 hvernvegin vist haldið að skyn-
semin ein væri besti leiðsögu-
| maðurinn, í veraldlegu málun-
um. En nú eru óvanalegir tím-
! ar, eins og druknandi maður
þrífur í hálmstrá þá má vel
j vera að fólk hendi vitinu út um
gluggan og setji í hásætið hind-
j urvitni, og hjátrúna. Þegar illa
gengur og margt amar að þá
j gleymist svo oft aö annað en
sorgr og þjáningar sé hlutskifti
J vort. Og auðvitað er það
mannlegur veikleiki að kenna
j Bennett eða Fjandanum um það
sem nú er að, það er svo auð-
veld leið. En bláköld yfirvegun
fellir ekki slíka dóma. Það er
líka fljótgripið ráð að ákalla
King og Guð í neyð vorri til að
kippa öllu í lag, aðeins sá hæng-
ur er á því ráði að — það gæti
brugðist.
R. H. Ragnar
Kona nokkur keyrði bíl aust-
an af Þingvöllum. Þegar hún
kom niður í Mosfellssveitina, sá
hún hvar símamenn voru að
klifra upp símastaur, sem stóð
við veginn.
— En þeir asnar! segir hún
þá við fólkiö, sem í bílnum var.
Þeir halda víst, að eg hafi aldrei
stýrt bíl fyrrí en nú. — Dvöl.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU