Heimskringla - 05.12.1934, Page 5
WINNIPEG, 5. DES. 1934
HEIMSKRINGLA
6. SÍÐA
með Gullfossi 22. þ. m. Hann
hefir starfað í samfleytt seytján
ár sem símaritari í þarfir lands-
símans. Hann er nú settur
stöðvarstjóri við loftskeyta-við-
tökustöðina í Gufunesi.
* * *
Áfengisbruggun í
Afstapahrauni
Hafnarfirði 13. nóv.
1 dag fór lögreglan hér í
Hafnarfirði suður í Afstapa-
hraun, með því að hún hafði
grun um að þar færi fram
hruggun, og fann þar jarðhús
nálega 4X2 metrar að gólffleti.
Inni fundust bruggunartæki og
2 tunnur af áfengi í gerjun, u’m
350 lítrar alls.
Lögreglan ónýtti bruggunar-
tækin og helti niður leginum og
hraut niður jarðhúsið. Óvíst
er um eigendur og er málið í
rannsókn.
* * *
Ný Ijóðabók
Það mun nokkum veginn ein-
róma skoðun allra þeirra, sem
þektu frú Björgu C. Þorláksson,
að hún hafi verið ein hin mesta
gáfukona. Hún var vísindakona
að eðlisfari og hefir ritað bækur
um vísindaleg efni, m. a. dokt-
orsrit sitt, er hún varði við sjálf-
an Parísar-háskóla. Mun hún
vera eini íslendingurinn, sem
doktorsnafnbót hefir hlotið við
þann fræga háskóóla. Hún vann
og mikið og merkilegt starf við
undirbúning og útgáfu orðabók-
ar þeirrar hinnar miklu, sem
Sigfús bókavörður Blöndal hefir
saman tekið og gefið út og hlot-
ið doktorsnafnbót fyrir við Há-
skóla íslands. — Þetta er öllum
kunnugt. Hitt var ekki á vit-
orði margra, að frú Björg heitin
fengist við skáldskap. Hún hafði
að vísu samið eitt leikrit og
gefið út fyrir nokkurum árum,
en ,ekki var þar mikill skáld-
skapu'r á borð borinn, þó að
rnagt væri þar skynsamlegra
athugana um mannlegt líf. —
En nú hefir verið gefin út ljóða-
bók (Ljóðmæli) eftir frú Björgu
að henni látinni. Kvæðin eru
ekki merkileg frá sjónarmiði
braglistarinnar og líklega fá eða
engin galialaus að formi. Kost-
Ur þeirra er sá, að þar birtast.
margar fagrar og merkilegar
hugsanir. Síðast í bókinni er
kvæðaflokkur eða leikrit í ljóð-
um (Jólanóttin. Gömul þjóð-
sögn. Notuð sem táknræn mynd,
*er sýni baráttu andstæðra eig-
inda mannssálarinnar í nútíð
eigi síður en fortíð). — í þess-
um Ijóðaflokki eru ef til vill sum
bestu ljóðin, að því er til forms-
ins tekur. Og margt er þar
spaklegra hugsana. — ísafold-
arprentsmiðja er útgefandi bók-
arinnar og hefir vandað til út-
gáfunnar.
SKÓGRÆKTIN Á ÍSLANDI
OG FRAMTÍÐ HENNAR
Fyrir rúmum 20 árum var
vakinn mikill og almennur á-
hugi á skógrækt. Síðan hefir
sá áhugi dvínað nokkuð. Ber
öiargt til. Talsvert mun hafa
ááið af þeim ungu trjáplöntum,
Sem fluttar höfðu verið frá út-
iöndum og gróðursettar hér og
har. j»á hefir skógræktarstöðin
við Rauðavatn ekki verið til
uppörvunar alt til þessa. Menn
hafa alment ekki gert sér þess
grein fyrirfram, hvílíka þolin-
mæði og nákvæmni þarf við
skógrækt. Og loks var forusta
þessara mála í höndúm manns,
sem að vísu skorti ekki áhuga
sjálfan, en hafði hinsvegar ekki
lag á því, að viðhalda þeim á-
huga sem vakinn var um þessi
mál, né heldur að koma skipu-
lagi á þá sjálfboðavinnu, eink-
um æskufólksins í landinu, á
hverjum tíma, sem þó er nauð-
synlegt atriði, eigi að vinnast
svo um munar í þessu efni.
Vísast hefir það vakið athygli
margra, þegar prófessor Weis
frá landbúnarðháskólanum dan-
ska, einn hinn lærðasti vísinda-
maður um gróðurfar, felldi þá
dóma eftir dvöl sína hér og jarð-
vegsrannsóknir sem hann fram-
kvæmdi, að íslenzk gróðurmold
sé frjósamari en gróðurmold
Danmerkur, að litlu furutrén í
græðireitnum á Þingvöllum
væru þroskavænlegri en jafn-
gamlar furur á Jótlandsheiðum.
Þessar fregnir mættu verða
til þess, að auka að nýju trú
manna á framtíð íslenzks skóg-
gróðurs.
Framlög ríkissjóðs til skóg-
ræktarmálanna hafa farið
minkandi, og bendir það til
þeirrar hnignunar sem átt hefir
sér stað.
Hér mUn ærin þörf á því að
fá nýja framkvæmdastjóm fyrir
skógræktarmálin. Og svo vel vill
til, að ungur íslendingur hefir
lokið hinu fullkomnasta námi til
þess að vera fær um að takast
forstöðu skógræktarmálanna á
hendur. Jafnframt hefir hann
þegar sýnt óvenjulegan áhuga
og einlægni í störfum fyrir þessi
mál. Þá er hann fær um að
framkvæma jarðvegsrannsóknir,
sem hljóta að vera undirstöðu-
atriði þess, að betur farnist um
trjárækt en einatt hingað til.
Þessi ungi maðUr er Hákon
Bjamason.
Þá verður að koma skipulagi
á þá sjálfboðavinnu, sem unt
yrði að fá í lið með þessum
málum.
Framkvæmdastjórn skóg-
ræktarmálanna á að fá í hendur
einkarétt til innflutnings og
sölu á trjáplöntum, bæði til þess
að verðlag trjáplantna verði sem
sanngjamast og ennfremur til
þess, að aðeins verði keyptar líf-
vænlegar trjáplöntur og loks til
þess, að draga sem verða má úr
þeirri hættu, sem stafar af er-
lendum gróðursjúkdómum, sem
hingað gætu' borist með trjá-
plöntunum.
Þá verður að hefjast handa
um stóraukið uppeldi trjáplanta
í landinu og mætti ekki langt
um líða, að tiltækar yrðu 100
þús. slíkar plöntur árlega ti!
gróðursetningar, en síðan yrði
sú tala að fara síhækkandi, unz
ekki yrðu færri en ein miljón
íslenzkar trjáplöntur gróðursett-
ar árlega í öllu landinu.
Þegar plöntutnar væru nægi-
lega margar fyrir hendi, yrðu
árlegir skógræktardagar alment
upp teknir og jafnvel löghelgað-
ir.
Loks þarf þegar í stað að
auka að nokkru framlög ríkis-
sjóðs til skógræktarmálanna.
Manni þeim, sem undanfarið
hefir haft framkvæmdastjóm
skógræktarmálanna með hönd-
um á að sýna nærgætni. Hann
var svo óheppinn að eiga að
fullnægja miklum stórhug bráð-
huga manna um skjótan árang-
ur skógræktar og það í fram-
andi landi, og áður en fengin
var hagnýt reynsla um það,
hverjum _ tökum framkvæmd I
þessara mála skyldi tekin. |
Kofoed-Hansen hefir efalítið
unnið skógræktarmáluUum eftir
bezta vilja.
Hann á að njóta þess hjá um-
bjóðendum þjóðarinnar, og því
fremur, sem hann reyndist
skygnari á hina brýnu þörf þess, i
að ungir menn og óþreyttir tak- j
ist hér forustu á hendur. A. M.
—Nýja Dagbl.
FRUMSAGA MANNKYNS
OG FRAMSAGA
X SHEAS WINNIPEG BREWERY LIMITED
I.
Tiltakanlega gott var erindi
það, sem V. Þ. G. flutti í útvarp-
ið í kvöld (18. okt.) um nokkr-
ar nýjustu frumsögurannsóknir.
Þyrfti slíkt erindi að endurtak-
ast. Er nvér grunur á að vand-
fundinn mundi slíkur maður á
sínu sviði sem V. Þ. G., jafnvel
þó að leitað væri við hin stærri
útvörp. Það sem mig langar til
að vekja eftirtekt á í sambandi
við erindi þetta, er hraðaaukn-
ingin í framfarasögu mannkyns-
ins; framfarirnar hafa verið
meiri síðustu hundrað árin, en
á hundruðum áraþúsunda frum-
sögunnar. En hitt þó fullkom-
lega ljóst, að hér á jörðu hefir
ekki verið um sanna famfara
stefnu að ræða, heldur stefnu
hinna vaxandi þjáningar. Aldrei
hafa í sögu mannkynsins á ein-
Um manns aldri, jafnmargir ver-
ið drepnir eða meiddir eða dáið
úr hungri og þennan síðasta,
aldrei verið eins mikið til af
óánægju, kvíða og kvöl. Nauð-
syn stefnubreytingar er því auð-
sæ, nauðsyn þess, að horfið
verði frá helstefnunni, sem svo
mætti nefna og á leið sannra
framfara.
II.
Það mun verða eins og ár-
roði dags ,sem aldrei mun enda
taka og verður því fegri sem
lengra líður, ef sú breyting
tekst. Og eg hygg að hún muni
takast, af því að glögglega hef-
ir verið séð fram á hvernig hún
geti orðið. En til tíðinda eigum
vér í vændum meðan dráttur
verður á að sú breyting hefjist.
Og ef menn vilja gæta að, munu
þeir sjá, að rás viðburðanna
hefir mjög orðið á þá leið sem
eg hefi sagt að verða mundi. En
takist beytingin ekki, þarf að
vísu ekki að kvíða því að
mannkynið eigi mjög langa
sögu framundan. Þegar eg fyrir
rúmum 20 árum vakti fyrst
máls á nauðsyn slíkrar stefnu-
breytingar, þá varð útundan hjá
mér sú hliðin sem að jarðfræð-
inni snýr. En mér hefir síðan
orðið ljóst, að til meiri tíðinda
dregur nú í jarðsögu' hnattar
vors en orðið hafa um ekki all-
fáar þúsundir ára undanfarið.
Það mætti jafnvel segja, að
jarðbylting, sé í aðsígi, þó að
hægt fari ennþá, hjá því sem
verða mundi síðar. Hér á landi
er farin að verða mjög gerinileg
sú breyting, sem er að verða á
loftslaginu og ýmsar afleiðingar
hennar. Snjólínan er að færast
UPP og jöklarnir bráðminka, en
jurtagróður eykst að því skapi.
Stórfróðlegar eru einnig breyt-
ingamar sem eru að verða á
dýralífinu við strendur landsins.
Loftslagabreytingin er eins og
tilraun til að færa landið suður
á við og gera það byggilegra.
En svo eru' önmur tíðindi mjög
ískyggileg. Á eg þar við jarð-
skjálftana fyrir norðan í sum-
ar, því að þar lifnuðu við jarð-
sprungur, sem að mestu höfðu
hvílt sig um þúsundir ára, og
engin ástæða virtist til að
vænta sér ills af nú. Mundi
landið fljótt verða óbyggilegt
ef nokkurt framhald yrði til
muna í þá átt, því að miklar og
stórkostlegar eru sprungumar í;
öllu bergi landsins, þó að á
flestum þeirra hafi lengi kyrð
verið. Og eitthvað svipað þessu
er mjög viða um allan hnöttinn |
og er óhætt að segja það, að ef
ekki tekst að breyta frá Hel-
stefnunni, þá munu menn farast
í jarðbyltingum miljónum sam-
an, og síðustu leifar mannkyns-
ins líklega verða horfnar af
jörðinni áður aðrar 19 aldir
væm liðnar. En takist breyt-
ingin, þá þarf ekki að hræðast.
Mannkyn, sem komið er á rétta
leið, mun stýra eldgosum, j
stöðva jarðskjálfta og laga til
f jöllin eftir því, sem fegurst i
þykir og hentugast. Það mun:
vnina þessi stórvirki með til-
styrk guðanna, er gersamlega
hafa náð tökum á öflum hnatt-
anna, sem þeir byggja.
III.
Mannkyn framtíðarinnar mun
sækja fram einhuga, og öllum
verða ljóst hvert stefna ber. Oss
virðist sem von er, býsna löng
þróunarleið lífsins frá hinum
örsmáu fyrstlingum (prótist-
um), forfeðrum mannkynsins
fyrir 100 miljónum ára, og hing-
að, sem vér nú erum; en þó er
þessi óralanga leið aðeins ör-
lítill kafli vegarins alls. Tak-
markið er fullkomin samstilling
alls lífs í alheimi til fullkom-
innar stjórnar á öllum öflum
tilverunnar.
Hversu lengi á enn að drag-
ast, að hafin verði stefnubreyt-
ingin. Og hversvegna vilja menn
bíða ennþá verri tíðinda, en
þeirra, sem þegar eru orðin.
Tuttugu ár eru liðin síðan
mannkynið með styrjöldinni
miklu tók spor í alveg öfuga
átt, og ætla mætti að ekki þyrfti
enn að verða löng bið á því, að
úr verði bætt. En þó er margt
til fyirrstöðu. Og versta fyrir-
stðan sú, að menn eru á Hel-
vegi svo ófúsir á að taka sann-
leikanum, eins og rétt er, en
meta meir hégóma, lýgi og
villu.
Helgi Pjeturss.
—Mbl.
rjúfa heitorð við sig. Áður hafði
hin sama jungfrú unnið 1,000
dala bætur af konu nefnds auð-
manns, fyrir að hún sló hana
sitt undir hvort og gaf henni
glóðarauga. Þessi firn eru sögð
vestan af Kyrrahafsströnd.
Lindbergh
flugkappi er í þann veginn að
setjast að á Long Island, N. Y.,
að því er amerísk blöð herma.
— Hefir hann keypt sér hús á
Sands Point, en þaðan eru að-
eins sjö mílur vegar á Roosevelt
Field, þar sem er einhver mesta
flugstöð í Bandaríkjunum.
SKRÍTLUR
Kaupm.: Hvað ætlið þér að
gera við öll þessi málverk?
Málarinn: Selja þau.
Kaupm.: Segið mér hvaða
kaup þér vilduð fá. Að slíkum
sölumanni hefi eg verið að leita
alla æfi.
Jakob og Ingu hefir verið gef-
ið epli, sem þau eiga að skifta
á milli sín. Jakob segir:
— Eigum við að leika Adam
og Evu? Þú gefur mér eplið og
eg skal borða það.
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Blrgðir: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifntofa:
Hrnry og Argyle
VERÐ - GÆÐI . ÁNÆGJA
ig gerð, að hægt er að nota
þau til þess að ganga á vatni.
Eru stígvél Walthers lík bátum
í lögun, en hvernig þau eru
útbúin hefir hann ekki látið í
ítarlegar upplýsingar um. Hann
notar tvær stengur, sem hann
heldur á sinni í hvorri hendi, til
þess að halda jafnvægi. Á enda
hvorrar stangarinnar eru loft
þétt hylki.
Hinn trúi og æruverðugi
skrifstofustjóri var nýlátinn og
einn morguninn kom einn af
skrifstofuþjónunum inn til for-
stjórans og sagði:
— Ja, nú er hr. Jepsen dauð-
ur og eg vildi gjarnan koma í
staðinn fyrir hann.
Forstjórinn horfði fremur ó-
vingjarnlega á unga manninn
og sagði:
— Jú, þér megið það mín
vegna, en það er mál sem ekki
heyrir undir mig, heldur kirkju-
garðsvörðinn.
HITT OG ÞETTA
Alþekt blað í Yugoslavíu kær-
ir Ungverja um, að þar í landi sé
skálkum og illmennum af öllum
löndum veitt, ekki einungis at-
hvarf, heldur fémunir.
1 Ontario er svo mikið ræktað
af rófum til sykurgerðár, að
þeir bændur sem eiga rófugarða
í héruðunum kringum Chatham
bæ, fengu $830,000 útborgaða
s. 1. viku. Félagið sem keypti,
heitir Dominion Sugar Co. Ltd.
í Edmonton sóttu margir um
borgarstjóra embættið, sá heitir
J. A. Clarke, sem fékk flest at-
kvæði, fulltrúi á þingi Alberta-
búa.
Bernhard var að læra undir
fermingu hjá prestinum og ein-
hverju sinni spurði presturinn
hann:
— Hversvegna biðjum við
daglega: Gef oss í dag vort dag-
legt bauð? Er ekki nóg að
biðja um það vikulega eða mán-
aðarlega?
Bernhard þegir dálitla stund
og íhugar málið spekingslega:
— Það er líklega til þess, að
við getum fengið það nýbakað.
-—Dvöl.
Til kaupenda
Heimskringlu
Nú líSur óðum að áramótum,
gleymið ekki að senda áskiftar-
gjöld yðar inn á skrifstofuna
fyrir hátíðarnar, því biaðið hefir
stórum útgjöldum að svara.
Fótgangandi yfir Ermarsund
Emil Walther, frá Windsor,
Canada, ætlar bráðlega að gera
tilraun til þess að komast fót-
gangandi yfi rErmarsund. Hann
hefir fundið upp “stígvél” þann-
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu með af-
falls verði, námsskeið við helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
tal af ráðsmanni blaðsins.
* * *
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundimum við Mo-
zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
Fróðleg og skemtileg bók og
afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25,
* * *
JÓLAKORT
í all fjölbreyttu úrvali — íslenzk
og ensk. Skrautprentuð með
nafni og heimilisfangi fyrir
$1.00 dúsínið og þar yfir. Komið
og lítið á þau. Pantanir lengra
að afgreiddar samdægurs og
berast.
O. S. Thorgeirsson
674 Sargent Ave., Winnipeg
Lesið Heimskringlu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Kaldara var í Toronto undan-
farna daga, heldur en hér í Win-
nipeg. iEna nóttina þoldu þeir
ekki mátið, sem skulfu af kulda,
brutu upp fatnaðar búð og
tóku þaðan 200 alklæðnaði og
yfirhafnir, alls 3500 dala virði.
í þeim velþekta bæ Leth-
bridge, byrjaði gæs að verpa í
haust, hefir nú verpt 18 eggjum
og hélt áfram uppteknum hætti
þegar seinast fréttist. Marken
heitir sá, sem á þessa gæsar
gersemi.
BÚJARÐIR til sölu
í Arborg bygðarlagi
Hin nýja stjórn í Ontario hef-
ir samþykt að verja 16 miljón-
um til vegagerða innan fylkis-
ins og leitar samþykkis og sam-
vinnu Dominion stjórnar um
það efni, og verðu bráðum til
lykta leitt.
Leikmær nokkur, Miss Cav-
alier, hefir höfðað skaðabóta
mál á hendur auðugum manni,
Wilson að nafni, heimtar af
honum 200,000 dali fyrir að
AUSTUR
SE 17-22-3
SE 18-23-3
SW 9-23-2
RL 50-22-2
SE 15 and
NW 9-23-2
NW 23-22-3
SW 21-23^2
NW 16-22-3
NE 5-22-3
Pt. 28-22-3
NE 30-22-1
NE 35-22-1
SE 21-23-2
VESTUR
NE 36-23-2
NE 27-24-1
SE 3-24-2
SE 24-24-1
NE 15-25-3
SW 36-23-2
SW 3-24-1
NW 12-25-2
NW 35-23-2
NW 13-25-2
N>/2 36-24 and
SW 3-25-3
SW 34-25-1
NW 28-25-2
NW 36-24-2
SW 30-23-1
NW 13-24-1
NE 14-25-2
í sambandi við verð og greiðsluskilmála skrifið til:
The Manitoba Farm Loans Association
166 Portage Ave. East, Winnipeg
§