Heimskringla - 16.01.1935, Blaðsíða 4
4. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. JANÚAR, 1935
|frctniskrin{ilct
(Sto/nuS 1SS6)
Kemur út i hverjum miSvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
SS3 og SSS Sargent Avenue, Winnipeg
Talsimis 86 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
fyrirfram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
011 vlðakifta bréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manager THE VIKING PRESS LTD.
8SS Sargent Ave' Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstj&rans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
SS3 Sargent Ave., Winnipeg
“Heimskringla" is published
and printed by
THE VIKING PRESS LTD.
SS3-SSS Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 637
WINNIPEG, 16. JANÚAR, 1935
RÆÐUR MR. BENNETTS
í þessu tölublaði Heimskringlu birtist
ein af ræðum þeim, sem forsætisráð-
herra Canada hefir verið að flytja í út-
varpið undanfarið. Er það fyrsta ræðan
en alls voru þær sex.
Ræðurnar hafa vakið mjög mikla eftir-
tekt. Og vafalaust verður mikið rætt og
rifist um þær á næstunni. Og það er nú
þegar orðið ljóst að alla dreymir ekki
jafn vært út af þeim. Alþýða þessa lands
virðist hafa fundið í þeim bergmál sinna
eigin hugsana. En skoðanir hennar
eru og hafa ávalt verið álitnar vargar í
véum í stjórnmálum af stéttum þeim, er
ár sinni hafa svo komið fyrir borð, að þær
sitja að rjómanum af starfi hennar í
þjóðfélaginu.
I ræðum sínum hefir forsætisráðherra
Canada bent á þann heilaga sannleika,
sem almenningi og öllum mannúðlega
hugsandi mönnum hefir verið ljós um
langt skeið, að það er fjármálavaldið og
stóriðjuhöldar landsins, sem ráða hér
lögum og lofum. Þeir hafa ekki aðeins
svo um hnútana búið, að ágóðinn af iðju
almennings lendi í þeirra vasa, heldur
hafa þeir einnig sagt stjórnunum hvernig
þær eigi að sitja og standa. Meðan sam-
tök þeirra voru ekki eins öflug og einráð
og þau nú eru, var afleiðingin og hættan
ekki eins stórkostleg af því og hún er nú
orðin. Nú segir forsætisráðheiTa ekki
auðið að koma nauðsynlegum umbótum
á þjóðfélagsrekstrinum fram, nemar því
aðeins, að stjóm landsins sé veitt umboð
til þess, að hafa umsjón og eftirlit með
rekstri fjármálanna og viðskiftanna. Og
vegna þess að hlunnindin eru að ýmsu
leyti svo trygð fjármálavaldinu að lögum,
verði hann að sækja um umboð sitt til að
veita yfirgangi þess viðnám til kjósenda.
Auðvitað, segir forsætisráðherra, að
þessari kröfu sinni verði andmælt af auð-
valdinu og leppum þess, hvort sem eru
einstaklingar eða stjórnmálaflokkar, á
þeim grundvelli, að með þessu sé verið að
fótum-troða einstaklingsfrelsið. En for-
sætisráðherra á bágt með að skilja, að
þeir verði fleiri, sem sviftir verði sínum
réttindum, þó stjómin hafi valdið til að
líta eftir starfsrekstri þjóðarinnar, en
fjármálavaldið. Og þá grýlu trúir hann
ekki, að þjóðin óttist.
1 fyrstu ræðu sinni lýsir forsætisráð-
herra hag þjóðarinnar og þörfinni á um-
bótum. Næstu fjórar ræður hans lúta að
því að skýra frá hverjar orsakir meinanna
séu og hvemig þær verði upprættar og
bætur á hag þjóðarinnar ráðnar. Þar er
og grein gerð fyrir starfi stjóraarinnar á
undanfömum árum og því sem fyrir
henni vakir. Eru endurbæturnar á stjórn-
arrekstrinum sem ráð er þar gert fyrir,
svo margar og mikilsverðar, að önnur
eins löggjöf hefir aldrei verið fyrir þjóð
þessa lögð af nokkurri stjóra, hvorki fyr
eða síðar. Þarf engan á því að furða, er
þess er gætt, hve stjórnarfarslegar endur-
bætur eru orðnar langt á eftir tímanum
og stjóraarreksturinn illa til þess fallinn,
að verða við sanngjömum kröfum nútíð-
ariinnar. Um þetta ber nú hagur lands og
þjóðar fylsta vott.
í sjöttu ræðu sinni mintist forosætis-
ráðherra fyrst á flokksmálin. Lýsti hann
stefnu' liberal-flokksins sem kyrstöðu og
aðgerðarleysisstefnu. Á þeirri stefnu
hefði enginn breyting verið gerð á síðast-
liðnum mannsaldri. Hún væri í því fólg-
in, að láta fjármálavaldið og stóriðjuhöld-
ana ráða og stjóma öllum athöfnum í
þjóðfélaginu. Á þingum síðustu ára hefði
leiðtogi þeirra ekkert haft til þjóðmálanna
að leggja annað en aðfinslur við stjómina.
Enda þótt um minnihluta flokk væri að
ræða, kvaðst forsætisráðherra gera ráð
fyrip að fylgismenn þess flokks gerðu
kröfu til einhverrar stefnu hjá honum,
annarar en þeirrar, að komast sem skjót-
ast til náða í valdasessinum. Um nokkrar
umbætur á stjómarfarinu, svo að það
væri í meira samræmi við hugsjónir nú-
tímans, væri þar ekki að ræða. Liberal-
flokkurinn væri rótgrónasti afturhalds-
flokkur þessa lands.
Var Kingstjórnin að nokkru leyti völd
að kreppunni? Spurning þessi mun
mörgum þykja fjarstæða. En er hún
nokkuð fjarri, en sú að reikna núverandi
stjóm hana til skuldar? Og það gerir þó
margur, sem ekki heldur sig viti skropp -
inn. Það skal ekki seilst hér til að gera
kreppuna að flokksmáli, því hún virðist
hafa haldið innreið sína um allan heim og
hvaða stjórn sem við völd var í hinu eða
þessu landi. En stjórnimar sem við völd
voru á árunum 1920-1930 bjuggu í pott-
inn fyrir hana. Því verður ekki neitað.
Kingstjórnina bar upp á sker hennar,
alveg eins og aðrar stjómir, þó fleiri
væru skilyiði hér en annar staðar að af-
stýra strandinu. Til þess gerði hún ekk-
ert. Það dettur auðvitað engum í hug
að halda að hjá henni hefði landið að öllu
leyti komist. En innan lands mátti margt
gera til að draga úr henni, ef stjómina
hefði ekki með öllu brostið framsýni til
þess. Að sökkva landinu í 100 miljón
dlolara skuld við önnur lönd árlega, eftir
að botninn var dottinn úr utanlands-
verluninni, eins og sýndi sig bezt á því,
að árið 1929 var minna hveiti selt út úr
landinu heldur en nokkurt kreppu árið
lýsti ekki einungis skammsýni, heldur
jafnframt ófyrirgefanlegu skeytingarleysi,
að reyna enga rönd að reisa við því. Að
öðru leyti bætti það ekki úr skák, er
King-stjórnin, í stað að leggja hömlur á
athafnir og framferði peningavaldsins og
stóriðjuhöldanna, breytir lögunum um
rekstur þeirra, svo að þau gætu fyrir-
hafnarminna en áður sölsað arðinn af
erfiði almennings, eins og Stevens t. d.
hefir veriö að sýna fram á, og tekið þjóð-
ina því kverkataki, að hún mun lengi bera
þess menjar.
Liberal blöð hér minnast oft á krepp-
una. Og þau gera það með það eitt í
huga, að festa það í meðvitund almenn-
ings, að hún sé Bennettstjórninni að
kenna. Sú stjórn, sem þyngsta ábyrgð á
orsök hennar ber að svo miklu’ leyti sem
nokkra eina stjóm áhrærir er King-
stjórnin. Það skal betur verða sýnt fram
á, með tíð og tíma. Sannleikurinn er sá,
að Bennettstjómin á ekki fremur þátt í
orsökum hennar hér en Rooseveltsstjóm-
in í kreppunni í Bandaríkjunum.
En svo aftur sé vikið að útvarpsræðum
forsætisráðherra, fjalla þær eins og áður
er sagt um þau mál, sem menn veita yfir-
leitt mikla athygli um þessar mundir, en
það er hvernig stjómarfyrirkomulagið
verði sem bezt sniðið eftir þörfum nútím-
ans. Og það mál mun ekki sízt vekja
eftirtekt, vegna þess að það er flutt þjóð-
inni af forsætisráðherra landsins. Því
rúmi blaðsins er þær fylla, ætlum vér því
vel varið.
VÖRUGÆÐI NAUÐSYNLEG
Brezkur kaupmaður, sem heimsóttti
Winnipeg nýlega, kvaðst hafa keypt mikið
af vörum frá Canada, en hann hafði getað
keypt fimmfalt meira, ef varan hefði verið
fáanleg, þ. e. a. s. vara, sem að gæðum til
uppfylti þær kröfur er gerðar væru á
markaðinum í Englandi. i
í Canada eru miklar birgðir af ýmis-
konar matvöru fyrirliggjandi sem næg
sala væri fyrir í Englandi, ef gæði var-
anna væri eins og æskt er þar.
Síðast liðið ár seldi Canada svínakjöt
til Englands svo að nam $20,000,000. En
Bretland hefði keypt hér svínakjöt fyrir
alt að því $100,000,000, ef gæði vörunnar
hefðu verið eins og krafist var. En það
gerði gæfumuninn að hún var það ekki.
Ýms sláturhús sendu héðan svínakjöt,
sem flokkað var númer 3, en það var ekki
fyr komið til Englands, en það var út-
hrópað, ekki aðeins af Bretanum, sem
það er alvörumál hvernig morgunverður-
inn hans er, heldur einnig öllum sem vör-
una seldu og að raun komust um það, að
viðskiftamaður sinn er ekki lengi að snúa
sér frá honum, ef varan er ekki að gæð-
um til eins og hann vill að hún sé.
Vöruvöndun er hér bráðnauðsynleg. Á
komandi árum eru allar líkur til að það
velti á henni, hvað framleiðandinn hefir
í aðra hönd. Það kemur að litlum notum
hvað birgðimar eru miklar, ef þær eru
óseljanlegar.
Ef við hefðum nú í staðinn óseljanlegu
hveitibirgðanna svo sem þrjátíu til fjöm-
tíu miljón mæla af góðu’ malt byggi, væri
vandræðalaust að selja það. Og þetta eitt.
út af fyrir sig mundi hafa farið langt með
að losa okkur við óseljanlegu hveitibirgð-
irnar á árinu.
Á Bretlandi er markaður fyrir margfalt
meira af svínakjöti og hænsnum, en
sent var þangað síðast liðið ár. Ef mark-
aður sá væri notaður til fullnustu', hefði
með góðum hagnaði verið hægt að losma
við talsvert af hveitibirgðunum, sem það
eitt gera nú, að halda niður verði á því
litla sem selt er.
Það gekk lengi vel illa fyrir verk-
smiðju framleiðendum á Bretlandi, að
framleiða vöru, spm seldist greiðlega í
Canada. En nú hafa þeir lært það. Can-
adamenn eiga eftir að læra að framleiða
fyrir markaðinn á Bretlandi.
Enn sem komið er virðist kylfa hafa
ráðiS kasti með framleiðslu hér fyrir
brezka markaðinn. Bíður þar þó meiri
og betri sala fyrir afurðir héðan en annar
staðar er nokkur kostur á. Að kynna sér
hvernig varan þanf að vera, sem seljast á
til Englands, er eitt af því nauðsynlegasta
og arðvænlegasta sem framleiðandinn hér
getur gert. Og maður er hálf hissa á að
ekki skuli hafa verið gengist fyrir því að
fræða menn meira um það, en gert hefir
verið.—Þýtt úr Tribune.
SPURNING OG SVAR
Hver var það sem lofaðist til að bæta
úr atvinnuleysi þessa lands á einum sólar-
hring eða jafnvel einu dægri í sambands-
kosningunum 1930?
Það mundi ekki standa lengi á svarinu
við þessari spurningu. Og henni mundi
undantekningar lítið verða svarað á einn
veg. Blaðið Free Press og almenningur
sem það les hér, hefir jafnvel svarað
henni á hverjum degi, og ef til vill oft á
dag, síðast liðin fjögur ár. Samkvæmt
því getur enginn annar hafa lofað þessu
en R. B. Bennett, forsætisráðherra Can-
ada. Og hann hefir meira segja verið
hundbeittur af nefndu blaði og þeim, sem
af drafi þess nærast, fyrir að hafa svikið
þetta loforð sitt.
En þetta svar við spurningunni er al-
rangt. Það var ekki Bennett, sem loforð
þetta gaf, heldur sjálfur leiðtogi liberala,
Mr. King.
Sannanir! sannanir! munu nú ýmsir
hrópa og ekki sízt þeir, sem munnleðrið
skæla mest, en aldrei bera ábyrgð orða
sinna. En máli Hkr til sönnunar, skal
bent á þetta:
Eins og gefur að skilja, gat Mr. King
ekki leitt atvinnuleysismálið hjá sér í
kosningunum 1930. Að gera enga grein
fyrir hvað hann ætlaði að gera því við-
víkjandi, hefði verið að kveða sjálfur upp
dauðadóm sinnar stjórnar. Enda gerði
King ekkert slíkt. Hann kvaðst ætla að
gefa atvinnuleysinu gaum og benti á,
hve dauðsföll væru nú tíð orðin þar sem
þjóðvegir lægju þvert yfir járnbrautir. Að
gera undirgöng á verstu vegamótunum
væri ákjósanlegt. Kvaðst hann því fús,
að leggja fram helming fjár á við fylkin
og sveitirnar og afla með því öllum at-
vinnulausum atvinnu. Og í því sambandi
lýsti hann þessu yfir:
“Stjórn vor (þ. e. Kingstjómin) er
reiðubúin í kvöld til þess að veita þennan
styrk og verði það boð þegið (af fylkjun-
um) skal enginn maður verða atvinriu-
laus á morgun.”
Á ensku eru ummæli hans þessi:
, “My government stands ready to-night
to extend this aid and no man need be
unemployed to-morrow, if this offer is
accepted.”
Þessi orð eru eftir Mr. King höfð í
dagblöðu'num “Free Press” og “Tribune”
í þessum bæ 16. júlí 1930. Flutti hann
þau í ræðu er hann hélt í Winnipeg kvöld-
ið áður. Vóru þeim er þetta ritar þau
minnisstæð vegna þess að hann hlýddi á
ræðuna, en þótti sámt vissara að hyggja
að því í nefndum blöðum til þess að rétt
væri með þau farið. Þeim er þetta
rengja, vísar hann á nefnd blöð, málinu
til sönnunar.
Mjög vafasamt er, að King hefði gert
meira í atvinnuleysismálinu, þó hann
hefði komist til valda, en Bennettstjóm-
in hefir gert, ekki sízt þegar þess er
gætt, að flest fylkin töldu sér ókleift
strax upp úr árinu 1931, að leggja neitt fé
fram til atvinnubóta, hefir alt féð til
þeirra síðan verið veitt af sambands-
stjórninni einni, þó sumpart hafi verið
látið heita sem lán til fylkjanna.
En hvað sem því líður, þá tóku nú fylk-
in þessu boði Kings, en bæði morgun-
dagurinn og allir þeir dagar sem hann
var eftir það við völd liðu svo
að hann gerði ekkert í atvinnu-
leysismálnu.
Auðvitað lofaði Bennett einnig
að reyna að bæta úr atvinnu-
leysinu. Hann lofaði að gera
alt sem kostur væri á, eða liggja
dauður ella. En hann lét sér
ekki detta í hug, að það yrði
gert á einum sólarhring. Það
voru loforð Kings, en ekki hans.
Heimskringla hefir ekki orðið
þess vör, að hann ákvæði neinn
tíma. Loforða-lyf Kings vom
það sterkari, í atvinnubótamál-
inu, að þau áttu að vinna eins
snögt og búkhreinsunarlyf.
Ef loforð í atvinnubótamál-
inu unnu kosningarnar 1930,
eins og blöð liberala halda fram,
þá hefði Kingstjórnin vissulega
átt að vera endurkosin.
Á þetta mál er hér sérstak-
lega ástæða að minnast vegna
þess, að köngurváfur liberala
hafa spunnið út úr því þann
rógsvef um kosninga-loforða-
svik Bennettstjóraarinnar, að
margan góðan dreng hefir leitt
út á villigötur ósannsöglinnar.
Á önnur kosninga-loforða-svik
er þó sjaldan bent, en þessi í
atvinnubótamálinu. Til þess að
gera höfundi þess blekkingavefs
ekki skóna verri en ástæða er
til, er hugsanlegt, að hann hafi
mismint hver höfundur orðanna
var árið 1930, er lutu að því,
að atvinnuleysi skyldi bætt á
einni nóttu. En almenningur á
heimtingu á að heyra sannleik-
ann um það og þessvegna er
hér á það drepið.
Vér höfum iðulega átt orða-
stað við menn um það, að
King hafi látið sér þessi orð um
munn fara. í eitt skifta fyrir
öll, skal nú biðja þá menn, að
mótmæla því opinberalega að
hann hafi það gert. Meðan þeir
ekki gera það, standa svohljóð-
andi ummæli hans óhögguð: —
“My government stands ready
to-night to extend this aid and
no man need be unemployed
to-morrow”.
ÚTVARSRÆÐA
FTh. frá 1 bls.
hvemig sem þeim er háttað, þá
hnekkja þær allar hinni gömlu
skoðun, að stjórnin skuli láta
viðskiftin eiga sig, vera frjáls og
einráð, án íhlutunar. Sú gamla
kenning er sumum kunn með
nafninu “laissez fiare,” og kom
upp, þegar viðskiftin (eins og
vér þekkjum þau nú) voru á
unga aldri og væntanlega mjög
saklaus.
Þörf til umbóta vanséð
Vitanlega skyldi ráðstafanir
til umbóta hefja og framkvæma
helzt þá, þegar all vel árar en
ekki meðan hallæri stendur yfir.
Þetta er augljóst. Að vísu styð
eg það, að hugsjónalegar og
tímabærar ráðstafanir geti af-
stýrt hallæri, með því að kippa
burtu orsökum hallæris. En
vér höfum aldrei hagað störfum
eftir hugsjónum og munum lík-
lega aldrei gera svo. Því er
það, að ef hallæri kemur af því,
að umbætur skortir, þá er að
taka þann kostinn, þó ekki sé
hinn bezti, að hefja urmbætur
jafnskjótt og þeim verður við
komið.
Eg átti ekki kost á, að setja
ráð til umbóta, áður en kreppan
skall á. Eg skal segja alveg
eins og er, að í þá daga mun
varla hafa fundist sá maður, er
sæi greinilega, að þörf væri á
umbótum. Sannarlega vildi eg
óska, að þá hefði fundist maður
í þessu landi eða einhversstaðar
í víðri veröld, með nógu hvassa
sjón til að sjá það dyldýpi, sem
vér brunnuðum að, og með
nógu mikilli orku til að stöðva
þá brunandi ferð. Eg segi: Eg
átti ekki kostinn áður en krepp-
an kom. Þetta er fyrsta tæki-
færið sem mér býðst.
Eg er ráðinn til að taka það.
Satt að segja hefi eg gripið
færið, sem eg skal bráðum sýna
yður.
Ráðstafanir
Leyfið mér nú að segja nokk-
ur orð um ráðstafanir stjórn-
arinnar til að hjálpa þjóðinni í
kreppu'nni, og þeim öllum, sem
erindi yðar reka. Og hér má eg
játa þá yfirsjón, að eg hefi ekki
talað við yður um þær ráð-
stafanir, fyr en nú. Það hefði ef
til vill verið sanngjarnara og
réttara, vegna vorra trúu fylg-
ismanna, að bregða þögninni
fyr. Gagnvart því hefi eg ekki
aðra viðbáru en þá, að eg var
önnum kafinn við dagleg störf
og við ráðagerðir um framtíð
yðar, svo að mér gafst ekki
tóm, til að tala um unnin afrek.
Þau segja til sín sjálf, hvort sem
er.
Undanfarin stórvirki
Á þeirri voðalegu tíð, sem nú
hefir gengið yfir um hríð, höf-
um vér stundað yðar hag eins
vel og nokkur önnur stjóm í
heiminum hefir unnið það sem
hún lofaðist til. Þetta segi eg,
til að vera sanngjam í garð
stjómar minnar og þeirra sem
hana hafa stutt. Þetta segi eg
afdráttarlaust; eg veit vel, að
því verður ekki móti mælt með
sanni. Ráðstafanir vorar til
viðreisnar hafa reynst öflugur
vamarmúr gegn hafróti krepp-
unnar.
Yður má sjón verða sögu rík-
ari, ef þér spyrjið yður sjálf,
hvar nú væri komið hag þessa
lands, ef ekki hefði notið til-
sagnar, atbeina og þess stuðn-
ings sem .við þurfti, af hálfu
stjórnarinnar. Ef þér viljið að-
gæta, hvernig komið er fyrir
sumum öðrum löndum, þá mun
yður auðvelt að svara þeirri
spumingu.
Mun inna full skil
Ráð og aðgerðir stjómarinn-
ar, segi eg, til hjálpar í viðlög-
um, standa engum á baki, hvar
sem leitað er í víðri veröld. Það
er sanilast að segja, að þau ráð
og aðgerðir hafa orkað svo á
kreppuna, að þau hafa fleytt oss
gegnum vandræðin og unnið
oss svo miklar hagsbætur, að
vér getum skift um og snúið á
aðra leið.
Eg mun bráðum lýsa fyrir
yður nákvæmlega, bæði með
ræðum og ritum, öllum stjóm-
arinnar athöfnum. Vér skulum
inna full skil og standa reikn-
ingsskap vorrar ráðmennsku.
Sannlega gerum vér það fegnir
og þykjumst meiri menn af. En
nú vil eg tala um það sem, yfir
stendur og fram mun koma.
Flestum af okkur mun vera
svo farið, að vér höfum ekki
gefið góðar gætur að hagráð-
um, eða fyrirkomulagi voru á
fjárreiðum og viðskiftum.
Fyrir stríðið var lítil ástæða
til þess. En eftir stríðið geys-
aði það lag óviðráðanlega til
undirdjúpsins 1929, og þá ætla
eg ^ að fáir hafi látið sig það
miklu skifta. Nú er svo kom-
ið, og því er nú ver, að oss er
I órótt og höfum fulla ástæðu til
þess, og þar af leiðandi ennþá
frekari ástæðu til, að gera hvað
vér getum, til að taka fyrir þá
óró og vanda, og leysa huga
vorn undan því oki, svo hann
mái til Ijúfari viðfangsefna.
Það er óhamingja þessara
tíma, að karlar og konur, piltar
og stúlkur, sem ættu að gefa
sig við uppbyggilegum störfum,
hrekjast og mæðast af fallvelti
lífsins og hindrast af kvíða og
þrá þess sem nú gengur yfir,
svo að þau mega ekki gefa sitt
hið bezta því sem mætast er.
MiSar hagsmunakerfið
til gagns
En nú verður ekki hjá því
komist, að vér íhugum sem ná-
kvæmast hvernig viðskifta kerfi
voru er háttað ,svo að vér get-
um sem bezt notið þess, oss til
gagns, eins og nú stendur á.
Vér munum athuga það hleypi
dómalaust. Vér gerum hvorki
að elska það né hata. Það er
hér komið til að vera yður til
gagns. Til þess er það sett og