Heimskringla - 16.01.1935, Page 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 16. JANÚAR, 1935
FJÆR OG NÆR
Séra Jakob Jónsson messar í
kirkju Sambandssafnaðar í
Winnipeg næstkomandi sunnu-
dag.
* * *
Messur í Nýja íslandi, flytur
séra E. J. Melan sem hér fylga:
Riverton sunnud, 20. jan. kl. 2.
e. h.
Gimli gunnud. 27. jan. kl. 2. e.h.
* * *
Gleymið ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
♦ * *
Leikfélag sambandssafnaðar
er að undirbúa hinn afar merki-
lega sjónleik er dreginn er út úr
sögunni “Maður og kona”, eftir
Jón sýslumann Thoroddsen. —
Koma fram í leiknum allar hin-
ar þektu persónur í sögunni.
Munu margir hlakka til að fá að
sjá leikinn.
Ákveðið er leikurinn verði
sýndur miðviku- og fimtudag,
6 og 7 febrúar næstkomandi.
* * *
Safnaðarfundur
Almennur fundur Sambands-
safnaðar verður haldinn í kirkj-
unni á gunnudagskveldið kemur
20. þ. m. að aflokinni messu.
Þetta eru hlutaðeigendur beðnir
að hafa hugfast.
Safnaðarnefndin
* * *
Þjóðræknisdeildin Prón held-
ur opinn fund í J. B. skóla næst-
komandi mánudagskvöld. —
Kosningar fara fram á fundin-
um. Jón J. Bíldfell flytur stutt
erindi og Lúðvik Kristjánsson
kvæði. Fjölmennið.
* * *
Þorrablót í Seattle
Öllum íslendingum í Seattle
og grendinni veitist kostur á að
mætast í samkomusal Frjáls-
Tyndu kirkjunnar í Seattle (7706
25th Ave. N. W.), laugardag-
inn 26. jan. 1935 og setjast þar
að al-íslenzkri máltíð, svo sem
hangikjöti, rnllupylsu, slátri,
sviðum, skyri og rjóma og svo
framvegis. Að lokinni máltíð
fer fram fjölbreytt og ágæt
skemtiskrá. Alt þetta kostar
aðeins 60c. Máltíðin hefst kl.
6.30. Hér býðst ágætt tæki-
færi til að endumýja gamlan
kunningsskap og rifja upp forn-
helgar minningar.
Safnaðarnefndin
* * *
Jón Bjarnason Academy
Ladies’ Guild
Þannig nefnist félagsskapu’r,
er nokkrar konur hér í borg
hafa stofnað, undir forystu Mrs.
A. S. Bardal. Tilganurinn er
sá að aðstoða skólann á einn
eða annan hátt eftir því sem
ástæður leyfa. Undirbúnings-
fundir voru haldnir á heimili
Mrs. R. Marteinsson, 493 Lipton
St., 21. nóv. og 9. jan. Á síð-
ara fundinum var félagið full-
stofnað. Embættiskonur eru:
heiðursforseti, Mrs. R. Mar-
teinsson, forseti, Mrs. A. S. Bar-
dal, vara-forseti, Mrs. D. H.
Ross, skrifari, Mrs. C. C. Herald,
vara-skrifari, Mrs. G. M. Bjama-
EIMSKIPAFÉLAG íSLANDS
Hinn árlegi útnefningar fundur í Eimskipafélagi íslands
meðal Vestur-Islendinga verður haldin að heimili herra
Á. P. Jóhannssonar, 910 Palmerston Ave., hér í borg 26.
febrúar 1935, kl. 8. að kvöldi til þess að útnefna tvo
menn til að vera í vali fyrir hönd Vestur-íslendinga á
aðal ársfundi Eimskipafélagsins í Reykjavík á íslandi í
júní mánuði næstkomandi til að skipa sæti í stjómar-
nefnd félagsins með því að kjörtímabil hr. Áma Eggert-
son er þá útrannið.
—Winnipeg, 16. janúar 1935.
Á. P. JÓHANNSSON
ÁRNI EGGERTSON
10 GOOD REASONS
Why You Should Train at
Success Business College - Winnipeg
1.
Through superior service, the Success Business College of Winni-
peg became tfie largest private Commercial College in Westem
Canada.
2.
More than 43,000 young men and women have enrolled for
Success Courses. Hundreds of these are now employers and their
preference for “Success-trained” office help creates an ever
increasing demand for Success Graduates.
3.
The Success is the only Business College in Winnipeg that has
been accredited by the Business Educators’ Association of Canada.
This Association admits only the best Commercial Colleges into
its membership.
4.
Students of the Success Business College are entitled to the
privilege of the B. E. A. examination system. B. E. A. standards
represent the highest degree of efficiency in Canadian Commercial
education.
5.
„ The Success Business College employs only teachers of advanced
Scholarship and long successful teaching experience. The Success
system of individual and group instruction insures quick and
thorough results.
6.
The Employment Department of the Success Business College
places more office help than any other Employment Agency in
the City of Winnipeg. The service of this Department is available
only to Success students.
7.
son, fáhirðir, Mrs. J. S. Snidal,
vara-féhirðir, Mrs. H. C. Mc-
Caw. Um 25 konur hafa þegar
gengið í félagið, og eru það að-
allega mæður fyrverandi og nú-
verandi nemenda skólans. Held-
ur félagið fundi sína annan
miðvikudag hvers mánaðar. —
Þær hafa ákveðið að halda sam-
komu í skólanum 15. febrúar.
Einlæg velvild til skólans er
hreyfiaflið í þessu félagi. Menn
muni eftir samkomudegirtum.
HREINSKILIN ÁSKORUN
Það er nú komið framyfir
vegamót og árið 1935, kalt og
hvítt, hefir hafið göngu sína.
Eins og sumir mu'nu hafa fregn-
að, hefi eg nú í nær 13 mánuði
legið í lamasessi og eigi getað
sint neinum störfum. En eg hefi
samt, með aðstoð aryiara, séð
um útbreiðslu íslenzku tímarit-
anna, sem eg hefi um allmörg
ár haft með höndum. Hafa nú
kaupendur fengið það sem af
þeim er komið hingað vestur
fyrir síðasta ár, en það er: Fyrri
helmingur Iðunnar, 9 hefti af
Kvöldvökum og Eimreiðin fullur
árgangur. En þó er sá galli,
að nokkur eintök af síðasta
hefti Eimreiðar höfðu tapast í
póstflutningi, svo að eg hafði
eigi nægilega mörg eintök fyrir
alla kaupendur. Hefi eg gert
útgefandanum aðvart um þetta,
og verður úr því bætt svo fljótt
sem unt er, svo að hver einasti
kaupandi fái fullan árgang.
En nú verð eg að biðja alla
þá er skulda fyrir þessi rit eða
aðrar bækur, að gera mér greið
skil, svo að eg geti staðið ær-
lega í skilum við útgefendur á
íslandi. Eins og sakir standa
nú, get eg ekki borið á herðum
skuldir manna hér, er nema
samtals svo hundmðum dollara
skiftir, og jafnframt goldið öðr-
um það er þeim ber. Og þessar
skuldir eru flestar smáar hjá
hverjum einum, og því ekki til-
finnanlegt að borga þér í tæka
tíð. Hver einn veit hvað hann
skuldar og ætti ekki að þurfa
frekari aðvömn frá mér. —
Drengir góðir, reynið nú af
fremsta megni að senda mér
þessar smáu upphæðir fyrir
þann 15. næsta mánaðar.
Viðvíkjandi hinni nýju bók
eftir séra Jakob Jónsson, —
“Framhaldslíf og nútíma þekk-
ing”, sem auglýst var að eg
myndi selja hér vestra,, þá vil
eg taka það fram, að það er alls
ekki nauðsynlegt að senda borg-
un fyrir hana nú þegar. Sendið
bara pöntun og svo verður
reikningur sendur með þegar
bókin er afgreidd. Eg hefi þeg-
ar fengið allmargar pantanir,
og er best fyrir alla þá er vilja
eignast þessa bók að senda
pöntun sem fyrst, því fyrsta
TAXI? Phone us—
PHONE 34 555
SARGENT TAXI
Day og Night Service
“If you we satisfy,
Others please notify”
Minimum by-law rates
sending hennar hingað vestur
verður mjög takmörkuð að ein-
taka fjölda.
Og að endingu: — Mér voru
send nokkur eintök af kveri er
nefnist “Stjömuspádómsbók”
fyrir 1935, eftir Jón Árnason.
Er þar mörgum tíðindum spáð á
þessu' ári. Kverið kostar 30
cent.
15. janúar 1935.
Magnus Peterson
313 Horace St., Norwood, Man.
“Á FERÐ OG FLUGI”
Frh. frá 7 bls.
Þetta var nú góð byrjun og
einmitt það sem eg bjóst við. —
Nei, svara eg, eg er ekkert
hræddur um það. Drottinn og
djöfullin eru að vísu altaf að
togast á um mig, en eg er alveg
sannfærður um, að guð beri
sigur úr býtum á endanum: Þar
að auki trúi eg ekki að nokkuð
helvíti eða djöfull séu til, það sé
bara gríla, sem kaþólska kirkjan
hefði búið til í öndverðu til
þess að hræða fáfróða alþýðu
til hlýðni og fjárútláta. “Bíddu,
bíddu.” Og eg er alveg viss
um, að eg verð kominn í himna-
ríki á undan þér, því eg er 79
ára gamall, og þá skal eg leggja
þér liðsyrði, því eg efast um, að
menn af þínu tæi mu'ni eiga
greiðgengt þangað.
“Bíddu, bíddu.”
“Eg er 78 ára og eg veit hvað
eg er að tala um.” Eg hefi
talað við guð, og eg veit að
engin getur komist til himna-
ríkis nema svo aðeins, að hann
endurfæðist og bæti ráð sitt.”
“Svo, þú hefir talað við guð,”
sagði eg. “Það er sannarlega
nýlunda fyrir mig, að kynnast
manni, sem hefir gert það. Og
hvað sagði hann þér nú að
gera?
“Hann sagði mér að fara til
konu og snúa henni á rétta leið,
og eg gerði það.” Eg sagðist
ekki trúa því, að hann, eða
nokkur annar maður hefði
nokkurn tíma talað við guð. —
Þeir bara ímýnduðu sér, að þeir
væru að tala við hann þegar
þeir væru að tala við sjálfan sig.
“Bíddu, bíddu.”
Eg sagðist heldur ekki trúa
því, sem sagt væri um hann í
ritningunni, það væri svo mikil
mótsö^n í því, að hver maður
sem beitti skynsemi sinni að
því, hlyti að sjá það.
“Bíddu, bíddu.”
Taka til dæmis sköpunarsög-
una, eins og hún er skráð í
Móses bókunum. Þar er sagt,
að hann hafi skaþað fyrsta
mannin úr mold, en þá hafði
hann ekki efni til í konuna, svo
hann þurfti að svæfa manninn,
taka rif úr honum og búa kon-
una til úr því. Svo er hann
látin skrökva að þeim þegar
hann segir þeim, að þau muni
deyja ef þau éti af skilnings-
trénu góðs og ills. En eins og
hann viti, þá hafi þau lifað lengi
og fjölgað mannkyninu á jörð-
inni.
“Bíddu, bíddu, bíddu”.
Svo þegar mönnunum fjölg-
aði, þá urðu þeír þrjóskir og ó-
hlýðnir og gerðu þvert á móti
vilja drottins, svo að hann réði
ekkert við þá og iðraðist eftir,
að hafa skapað þá. Hvernig
The Success Business College admits only students of advanced
education and favorable personal characteristics.
8.
The Success Business College premises are well equipped and
comfortable. The College is located in the heart of the busines3
section of Winnipeg, where employers can conveniently step into
our office and employ “Success Graduates.”
9.
The Success Business College has no branches; it operates one
efficient Coliege in which the principal and his staff devote their
best efforts and all their time to thorough instruction and careful
supervision of students.
10.
The majority of Commercial teachers in Winnipeg received their
business training at the Success Business College. It pays to at-
tend the College that is known as “The Teacher of Teachers.” Our
high standards attract the best young people in Westem Canada.
Write For Free Prospectus
Individual ^ ^1 "* Home
Instruction V—y Study
At Courses
The BUSINESS COLLEGE By
College Portage Ave. at Edmonton St. Mail
WINNIPEG
Brennið kol og sparið
Premier Cobble (Sask. Lignite) ..........$6.50 perton
Dominion Cobble (Sask. Lignite) ......... 5.90 “
Wildfire Lump (Dmmheller) ...............11.35 “
Western Gem Lump (Drumheller) ...........11.35 “
Foothills Lump ..........................12.75
Bighorn Lump (Saunders Creek) ...........13.25 “
Michel Koppers Coke .....................14.00 “
Semet-Solvay Coke .......................14.50 “
All coal stored in Weatherproof sheds and
delivered by our own trucks
Phones: 94 309—94 300
McCurdy Supply Co. Ltd.
Builders’ Supplies and Coal
49 NOTRE DAME AVE. E,
ætti alvitur vera, að iðrast
gerða sinna? Svo er hann látinn
drekkja öllu mannkyninu' nema
einni fjölskyldu, sem var hon-
um hlýðin. Svo þegar mann-
kyninu fór nú aftur að fjölga
á jörðinni fór alt á sömu leið
og áður. Þá er hann látinn taka
það til bragðs, að fómfæra sak-
lausum syni sínum fyrir syndir
mannanna af því hann “elskaði
heiminn svo mikið”. Og þú og
þín kirkja segir, að ef við trú-
um því, að þessi maður hafi dá-
ið fyrir syndir okkar, þá séum
við hólpnir eilíflega. En eg hefi
mikið háleitari hugmynd um
guðdóminn heldur en svo, að
ætla honum að hafa gert öll
þessi glappaskot.
Nú var mannaumingin orðin
svo æstur af trúarofsa, að aug-
un tindruðu og mér fanst þau
ætla alveg út úr höfðinu á hon-
um. Fólkið starði á okkur,
sumt brosti og sumt hristi höf-
uöið. Og nú vildi eg sjálfur
losast við hann. Eg sagði hon-
um þá, að hann ætti að fara og
tala við tvær nunnur, sem voru
aftar í vagninum, þær væru í
meira samræmi við 'hans trú-
arskoðanir en eg. “Þær eru í
þjónustu djöfulsins”.
Frh.
Ungfrúin (ástleitin) — Segið
mér skipstjóri, hversvegna
kvenkennið þið sjómennimir
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Samband.8safna0ar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Funtiir 1. fftatu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fjnrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
altaf skipin ykkar? Er það af
því hvað þau líða mjúklega á
sænum?
Skipstjórinn — Nei, það er af
því hvað þau eru dýr í rekstri.
* * *
Lloyd George, hinn frægi for-
ingi frjálslynda flokksins í Eng-
landi er mjög orðheppinn og
skjótur til svars, eins og eftir-
farandi smásögur sýna:
Einu sinni var Lloyd George
að halda ræðu og mæltist hon-
um svo:
— Eg vil að Skotland fái
heimastjóra, og einnig Írland og
Wales . . .
— Og Helvíti, kallaði einn á-
heyrandi fram í.
— Það er eðlilegt að hver
hugsi um sitt föðurland, svaraði
Lloyd George.
"DOWN THE ICE"
(EFTIR SVELLINUM)
höfundur Foster Hewitt
Útvarpið—og Foster Hewitt—hafa gert alla hockey-
trylta—jafnvel ömmu gömlu sem aldrei fer út meðan
kuldatíðin helzt. Bók Foster Hewitts sem er nýkomin
út, er rit sem öll fjölskyldan vill lesa og eiga. Hún er
þannig skrifuð að allir geta skilið hana og haft ánægju
af henni jafnt áhorfendur sem leikendur.
Kaflar eru í henni um hockey útvarp, leikskilyrði á fyrri
tímum, og ýms atriði sem eigi eru alment kunn um nú-
tíma leikendur. Sennilega læturðu þér eigi nægja að
lesa hana, heldur muntu STÚDERA hana—og þar af
leiðandi finna til enn meiri hrifningar en áður, þegar
þá heyrir: “Hann skaut! Hann VANN!” $1.50.
<*T. EATON
SEXTÁNDA ÁRSÞING
Þjóðræknisfélagsins
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu við Sargent Ave., Winnipeg
25., 26., og 27. febrúar 1935.
DAGSKRÁ:—
1. Þingsetning 8. Útbreiðslumál
2. Skýrsla forseta 9. Fjármál
3. Kosning kjörbréfa- nefndar 10. Fræðslumál
4. Kosning dagskrár- 11. Samvinnumál
nefndar 12. Ú.tgáfa Tímarits
5. Skýrslur embættis- 13. Bókasafn
manna 14. Kosning embættis-
6. Skýrslur deilda manna
7. Skýrsla milliþinga- 15. Lagabreytingar
nefnda 16. Ný mál
Samkvæmt 21. gr. laga félagsins er deildum þess
heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja
tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar; gefi þeir
fulltrúa skriflegt urnboð til þess að fara með atkvæði
sitt á þingi og sé umboðið staðfest af forseta og ritara
deildarinnar.
Samkomur þingsins hefjast með almennri skemti-
samkomu og íþróttasýningu á mánudagskveld þ. 25 er
sambandsdeildin Fálkamir standa fyrir. Þar flytur séra
Jakob Jónsson erindi. Þriðjudagsmorgun þ 26. kl. 9.30
fer þingsetningin fram. Þingfundir til kvélds. Engin
samkoma það kveld. Miðvikudagsmorgun hefjast þing-
fundir að nýju og standa til kvelds. Það kveld þ. 27, kl.
8.00 heldur deildin Frón sitt árlega íslendingamót. —
Fimtudagsmorgun hefjast þingfundir aftur og standa til
kvelds. Það kvöld kl. 8.00 flytur hinn heimsfrægi ræðu-
skörungur, Dr. Preston Bradley frá Chicágo fyrirlestur
um tímabær efni, í kirkju Fyrsta lút. safnaðar. Það
kvöld hefir í þetta sínn verið sérstaklega helgað Banda-
ríkjaborgurum, (American night).
Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum
verður gerð síðar.
Winnipeg, 16. janúar 1935.
í umboði stjórnamefndar Þjóðræknisfélagsins.
Jón J. Bíldfell (forseti) B. E. Johnson, (ritari)