Heimskringla - 22.05.1935, Side 4

Heimskringla - 22.05.1935, Side 4
4. SflDA. HEIMSKRINGLA ffeitnskrittjjla (StofnuO lttt) Kemur út A hverjum miOvikudegi. Bigandur: THE VTKING PRESS LTD. 853 oq SS5 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimia St 537 Ver8 blaSslns er »3.00 irv»n«urinn borgtot ryrlrfram. Allar borganir sendlat: THE VIKING PRESS LTD. öll Tiðaklfta bréí btaðinu aSlútandl sendlat: Manager THK VIKINO PRKSS LTD. S53 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON UtanAskrift til ritstjórans: EDITOR HKIMSKRINOLA SSS Sargent Ave., Winntpeg •‘Heímskringla” is publlabad and printed by THE VIKIMO PRKSK LTD. SS3-8S5 Sargent Avenue, Winnipeg Man. Telapbane: 86 617 WINNIPEG, 22. MAÍ 1935 ÍSLENZKIR ÞJÓÐHÆTTIR Heimskringla hefir stundum getið nýrra íslenzkra bóka þó henni hafi ekki verið séndar þær. Hún sér ekki neina goðgá með því framda þó það kunni að vera gagnstætt venju blaða. Hitt er henni ljóst, að það hefir stundum orðið til þess að vekja athygli manna hér á góðum bókum og hefir greitit fyrir sölu á þeim. Sennilega hafa bókaútgefendur ekki tap- að á því. En á síðari árum virðist sem það hafi lent mjög í útideyfu fyrir bókaútgefendum í leit sinni eftir markaði, að senda blöð- unum hér vestra sína andlegu vöru. — Hefir oss stundum dottið í hug, hvort það sé af því, er heyra má á mörgum manni nýkomnum að heiman, en það er, að þeir hafi ekki búist við eins ram-ís- lenzku félagslífi hér og raun er á. En á því er þó ekki að furða, þar sem í Can- ada eru um 37 þúsund manns af íslenzku bergi brotið og einar 12 þúsundir í Banda- ríkjunum. Það sýnir talsverða heimila ítölu. Og þau eru íslenzk í orðsins fylstu merkingu að því er til fyrstu og annarar kynslóðarinnar nær. Víðast á þessum heimilum eru íslenzku vikublöðin keypt. Vér efumst um, að önnur íslenzk blöð séu því útbreiddari en þau. Oss virðist það þess vert, að draga athygli bóka útgefenda að þessum sölu möguleikum og sjáum ekki að þeir geti skaðast á því, að gefa blöðunum kost á að vita um og ná í bækumar, svo þau geti frá þeim sagt. Auk þess væru' þeir með því að leggja góðan skerf til þess máls, er bæði Ausitur- og Vestur-íslend- inga varðar svo miklu, en það er andleg samvinna milli þeirra. Ein þeirra bóka, sem víðlesin ætti að verða hér vestra, er hin nýútkomna bók “íslenzkir þjóðhættir’’ eftir séra Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Þann ágæta fræðimann munu flestir læsir íslending- ar kannast við, og þeim mundi ekki síður gagn og skemtun að lestri þessarar bókar hans, en öðru sem hann hefir ritað. — Bókin fjallar um þjóðhætti íslendinga á 18 og 19 öld. Hún lýsir atvinnulífi þeirra og siðum utan húss og innan með gögn- um sínum og gæðum, kirkju og átrúnaði, hindurvitnum og öllu sem nöfnum tjáir að nefna. Við margt af því mun lesand- inn kannast en þó ekki alt og mun vart hafa haft þess not. Prásögnin er látlaus en skemtileg og efnið víða kryddað skop- legustu sögum, en sem þó -eru ekki sagð- ar vegna skopsins í þeim, heldur vegna þess að þær eru sannar, og lifandi mynd þess, sem verið er að lýsa. Bókin er hið fyrsta heildaryfirlit yfir þjóðháttu, siði og þjóðtrú íslendinga á síðari öldum og því sérstakjt og merkilegt rit frá bók- mentalegú sjónarmiði skoðað. Enda þótt bókin sé skrifuð fyrir alt að því 20 árum og ekki gefin út fyr en að séra Jónasi látnum, hefir engin móða sezt á gildi efnisins. Það er eins gott og þeg- ar það var skrifað. Um útgáfuna hefir hinn ágæti fræði- maður Einar 01. Sveinsson séð, og má um það með sanni segja að hann hafi lagt gerva hönd á verkið, ekki aðeins að því er útliti bókarinnar kemur við, heldur og efninu sjálfu, með þeim ágætu skýr- ingum og margvíslega fróðleik er hann hefir aukið og bætt það með. í bókinni er fjöldi mynda. Við lestur þessarar þjóðlegu og fróð- legu bókar, greip oss sama hu'gsunin og við lestur bókar Crúðm. Finnbogasonar “Islendingar”, að það væri viðhaldi ís- lenzks þjóðemis hér mikil stoð, að bókin væri hér á hverju íslenzku heimili. Slfkur fróðleikur og í henni felst um síðustu tvær aldimar, setur lesendann í spor áa vorra og hann skilur meira að segja elztu kyiislóð núlifandi manna hér betur en hann annars mundi gera. Bilið, sem hér er tilfinnanlega að myndast og stækkar óðum milli hinna yngri og eldri og sem óyfirstíganlegt verður, sé það ekki brúað í tíma, minkar eða verður ekki eins ægi- legt að minsta kosti, við lestur þessarar bókar. Þeir einir sem reynt hafa að ala böm sín upp í framandi landi og í fram- andi þjóðlífi, skilja bezt, hvað átt er við með þessu, því þeir og ef til vill þeir einir, hafa kynni af því, hvað það er, að þekkja ekki bömin sín af hugsunarhætti þeirra, en sú er feynsla margra íslenzkra for- eldra hér. “Islenzkir þjóðhættir” eru stór bók um 500 blaðsíður og mun kosta sem næst $5 í góðu bandi. Þeim er þetta ritar hefir verið sagt, að bókin muni vera í bókasafni Fróns í Winnipeg eða verði þar mjög bráðlega. SALA SKATTSKYLDRA HEIMILA iSkrá er birt á hverju ári um sölu á skattskyldum fasteignum í þessum bæ, eignum sem skattur hefir ekki verið greiddur af, eftir guðs og manna lögum, að því er yfirvöldin halda fram. Það skiftir nú ef til vill ekki miklu með sumar af þessum skráðu fasteignum, eins og t. d. þær sem enginn veit um hvort eigand- inn að er ofan jarðar eða neðan. En það eru íbúðarhúsin, heimilin, sem á hverju ári birtast á skattsöluskránni og sem seld eru ofan af höfðum eigenda þeirra, sem ávalt eru fátækir, því annars væri ekki um ógoldin skatt að ræða á þeim, sem harðhnjóskulegt er að sjá seld við hamarshögg. Á skattsöluskránni eru í ár 2,250 fast- eignir. Um 1130 af þeim eru heimili fá- tækra einstaklinga eða illa stæðra, er á þeim búa, en eftir söluna búa ekki á þeim sem sínu heimili, verði þeim ekki blátt áfram vísað á dyr. En hvað er um það að tala. Það virðist ekki neitt nærgöngult mannúðarkend bæjarráðsins, sem meiri hlutinn af er nú skipaður verkamannasinnum, þó veðlánsfélögin taki þessi heimili úr höndum þeirra. Þau greiða skattinn af þeim og það verður auðvitað að sitja í fyrirrúmi. Þó að það minni á kaupmanninn hans Shakespeare, sem pundið af brjósta-kjöti skuldaþrjóts síns heimtaði, þegar ekki var annað að hafa, gerir það bæjarráðinu ekkert til. Heimilið er tekið sem eigandinn hefir lagt alt sitt í sem honum hefir áskotnast um æfina og hann ann öllu öðru meira, af því að hann hefir fórnað sér fyrir það og fundið þar frið og fögnuð, sem annar staðar er ekki að finna í þessu'm heimi. Er það ekki að skera þjós úr brjósti hans, að selja það fyrir skatti? Af 729 heimilum sem seld voru fyrir skatti síðast liðið ár, keyptu veðlánsfé- lögin 551. í höndum þeirra lenda þau. Og það er engu líkara, þetta skattheimtu- fyrirkomulag, sem ríkjandi er, en að það sé til þess gert að leggja spilin þannig, að svo fari. Á síðast liðnu ári nam sala skatt- skyldra eigna helmingi minna en nú. En þá gafst tækifæri að vinna af sér skatt- skuldina og bjarga heimilinu í bráðina við skurðavinnu, sem bærinn hafði með höndum. Yfir 900 heimilum var bjargað á þann hátt. Hvað sem um aðrar skattskyldar eign- ir má segja, er það hróplegt ef ekk- ert verður gert af hálfu bæjarins til að bjarga einhverju af þessum 1130 heim- ilum. Ef þessu heldur áfram og fleiri heimili verða seld fyrir skatti á næsta ári en nú, verður þess skamt að bíða, að bær þessi verði eign veðlánsfélaganna og íbú- arnir leiguliðar. Það hefir verið lagt til, að reynt sé að innheimta skattinn mánaðarlega. Sú greiðsluaðferð á skuldum er að fara í vöxt og það getur vel verið, að hún yrði affarasælli. En eigi að síður virðist erfitt að sjá, hvar mánaðargreiðsluna á að taka, þegar engin er vinnan. NOKKRAR VÍSUR Eftir Pál Ólafsson Sá er þetta ritar hitti að máli nýlega íslending hér vestra, er var nábúi Páls skáld Ólafssonar og bjó á jörð er Páll veitti honum ábúð á. Sýndi hann mér ábúðar leyfisbréfið ritað með eiginhönd og undirskrift Páls til sannindamerkis um þetta. Barst talið brátt að kveðskap Páls og kunni maðurinn urmul af vísum eftir hann, er ekki eru í bók hans og fæstar munu annarstaðar hafa verið birtar. Kunni þulur þessi frá tildrögum vísnanná vel að skýra. Er nú nokkuð af þéssum vísum hér birt í von um að lesendur Heimskringlu hafi skemtun af að lesa þær. Á Nesi í Lioðmundarfirði bjó Páll nokk- ur ár, sem kunnugt er. Fer hann eitt sinn til fiskjar með syni sínum Bimi. En þeir munu heldur lítinn hluit hafa fengið, sem vísa þessi ber með sér: Það er ekki þorsk að fá í þessum firði, þurru landi eru þeir á, en einskis virði. Eitt haustið lógaði Páll kú, en keypti aftur reiðhest. Þótti nágrönnum hans það ekki sýna búmanns-hæfileika mikla. Hesturinn var nú samt gersemi mesta og hafði unnið í veðhlaúpum á 1000 ára minningarhátíð Helga magra í Eyjafirði 1890. Hann hafði og um skeið verið eign Grtönvolds kaupmanns. Þá gerði Páll þessa vísu: Nú hefi eg skorið koll af kú, keyptur er Grönvoldsblesi. Vísast er eg verði nú vellríkur á Nesi. Þegar prestkosning um Hróarstungu- prestkall eða Kirkjubæ, fór fram (um 1890) og séra Eggert Pálsson og séra Halldór Bjönssron, mágur Páls Ólafssonar sóttu um það, veitti Páll auðvitað mági sínum að málúm. Var sagt að hann hefði haft vel í staupinu á kosningadaginn og veitt óspart sínum liðsmönnum. Einar Sigfússon á Stórabakka var gamall bóndi, vinur Páls og nágranni, en var ófús að greiða séra Halldóri atkvæði sitt. Hins- vegar vildi hann ekki snúast á móti Páli og sat því heima kosningadaginn. Hann frétti að Páll hefði haft í staupinu og þá kom þessi vísa á gang frá honum: Flaska ein kom fundinn á, flegtir kusu Halldór þá; en aðrir vildu í Eggert ná sem engum þeirra skyldi lá, en flokkurinn þessi flöskuna ekki fékk að sjá Einar, höfundur þessarar vísu, hafði að máltæki: “Ó-já, nú er heima.” Þegar vísan berst Páli til eyrna kveður hann: Einar minn ójá ekki þorði á fundinn; ■heima í rúmi lágt lág líkt sem væri hann bundinn. Flösku hefði þurft þá —því að smeik var lundin— að hella on-í hundinn! Hallur bóndi Einarsson á Rangá, Eirík- ur Eiríksson oddviti í Bót og Snorri Rafnsson hómópati í Dagverðargerði voru allir móti Páli í áður nefndri prest- kosningu. Þeir fylgdu séra Eggert að máli en voru móti séra Halldóri. Þá komu margar vísur á gang frá Hallfreðarstöð- um (frá Páli) og eru á meðal þeirra þessar: Hallur varð í roði rýr r..... við inn á palli. Eg hefi betur einn, en þrír í kosninga bralli. Eiríkur í Bót sem býr, berst hann um með Halli. Eg hefi betur einn, en þrír í kosninga bralli. iSnorri þegar á borðið breitt, breiðir forskriftir meðalanna, vísdóm og gáfu sína að sanna, sem að þó ekki gengur greitt. Ef Eiríkur gönguseðla sína samhliða þessu léti skína Framtungu leiðarljósin skær lýst hefðu betur þá í gær. Nú fór prestkosningin þannig, að séra Halldór hlaut eitt atkvæði umfram séra Eggert. En séra Sigurður Gunnarsson prófastur á Valþjófsstað, sendi biskupi úrslit kosninganna, en biskup dæmdi kosningúna ógilda og veitti brauðið séra Einari Jónssyni, áður presti á Miklabæ í Skagafirði og síðar á Hofi í Vopnafirði, annálúðum manni, sem allir voru ánægðir með. En nokkru síðar var séra Sigurður Gunnarsson kosinn alþingismaður í Norð- ur-Múlasýslu. Þá gerði Páll þessa vísu (og mun hún áður prentuð) : Sendið ekki hann Sigga á þing, sem að laug í biskupinn! Sýslunni er það svívirðing; svo er hann líka frændi minn. Páll Ólafsson var talinn atkvæðalítill þingmaður. Sagði svo einhver andstæð- ingur hans, að hann hefði haldið eina ræðu á þingi og hún hefði verið þannig: “Eg er á sama máli og síðasti ræðumaður.” En þebta er nú hætt við að séu ýkjur. Tveir alnafnar bjuggu í sömu sveitinni: Sigurbjörn Bjömsson á Litlabakka og Sigurbjörn Björnsson á Su'rtsstöðum. — Þeir voru andstæðingar í flest- um málum og undra ólíkir í skapi, annar mejrr í lund, al- vörugefinn og einlægur, en hinn kátur og glensfullur. Þeir áttu' oft í orða sennum. Um þá gerði Páll þessa vísu við eitthvent sérstakt tækifæri: Báðir fengu nafnar nóg, nefum brýndu saman. Annar grét en annar hló, ekki var þeim gaman. Áður en Páll fór alfarinn til Reykjavíkur kom hann upp í Hróarstungu í Síðasta sinni. Kvað hann þá þessa vísu: Hlógu við mér holt og sund, hvellan spóar sungu; ennþá fæ eg yndisstund í henni Hróarstungu. Eitt sinn var Páll á ferð frá Vopnafirði austur í Jökulsár- hlíð, yfir Hellisheiði. Kemur að Eyvindarstöðum, sem er næsti bær við heiðina í rytju- veðri. Finnur Friðrik bónda i Eyvindarstöðum, sem hvorki þótti greiðvikinn né gestrisinn. Páll biður hann að lána sér fylgdarmann eða hýsa sig ella yfir nóttina. — Karl tekur því lítt og vísar honum út í Böðvarsdal. Páll kveðst ekki hafa verið að spyrjast til vegar þangað, kveður í stytt- ingi og heldur út í Böðvarsdal. Jón bóndi sem þar bjó (og var faðir Josephs byggingamanns, sem dó í Winnipeg fyrir nokkr- um árum) tekur Páli ágætlega. Ræður hann honum til að vera hjá sér yfir nóttina, þvf veður fór versnandi og langt liðið á dag. Næsta dag var ófært veð- ur. Á þriðja degi birtir loks upp og fylgir Jón Páli þá yfir Hellis- heiði. Að skilnað afhenti Páll Jóni blað og biður hann að koma því til Friðriks á Eyvind- arstöðum. Var þar á þessi vísa: Bóndann Jón í Böðvarsdal bezta mann eg halda skal og alla hans. En nágranni hans, Friðrik, fer fyr en varir—trúðu mér—- til andskotans! Er sagt að Friðrik hafi þótt vísan ill og bragðvond, enda fékk hann stundum að heyra hana hjá þeim, sem sömu út- reið höfðu fengið, og iðraðist eftir að hafa úthýst Páli. Við þetta skal nú sitja. KRAFTURINN AF HÆÐUM í GÖMLUM OG NÝJUM FARVEGI Ræ&a eftir séra Jakob Jónsson Texti: Lúk. 24, 49. Ef þú ferð inn með Berufirði sunnanverðum, liggur leið þín undir háum hömum og hrika- legum klettaborgum. Endur fyr- ir löngu' hafa fimbulkraftar náttúrunnar háð þar trylta leiki, sem mannshuganum er ofurefli að gera sér sannar myndir af. Á einum stað fellur hvítur foss fram af hömrunum. Ef þú beinir augum þínum upp á við, sérðu hann koma ofan úr hæðunum, mjúkan, hvítan og glitrandi í geislum sólarinnar. Þannjg heldur hann áfram að koma, krafturinn af hæðunum, dag eftir dag, ár eftir ár, með sama þunga og sama styrk. Hugur þinn fyllist ósjálfrátt angurværri lotning og þú hlust- ar hugfanginn á nið hins mikla máttar — kraftarins af hæðum ,— sem fellur niður úr klungr- unum ofan á jafnsléttuna og virðist eiga það erindi eitt að svala þorsta lávaxinna grasa og baða lítil blóm í köldum úða. En ef þú rennir augunum skamman spöl eftir hamrabrún- WINNIPEG, 22. MAÍ 1935 inni, hvað sérðu þá? Þar er djúp rás í bergið, slípaðir klett- ar, íhvolfar skálir og drangar með mjúkum línum. Hver hefir rist þessa rás? Hver hefir meitl- að hið harða og hnefótta grjót unz það varð hált og slétit. Hver hefir skafið og heflað það, unz það tók á sig þatta fagra form? — Það var fossinn. Það var krafturinn af hæðunum, sem þetta hafði gert endur fyrir löngu. Þá hafði hann fallið um þennan farveg, sem nú var yfir- gefinn, auður og tómur. Þar sem eitt sinn harður steinninn stundi undan átökum streym- andi vatnsins, þar skein nú sól- in á þurra klöpp. Þar seitlaði ekki svo mikið sem örlítill læk- ur — þar var ekkert, sem sval- aði grösum eða baðaði lítil blóm. Reyndu að setja þér fyrir hugskotssjónir þá byltingu, sem hér hefir orðið. Hugsaðu þér, að þú hefðir fengið að horfa á, þegar farvegurinn gamli slípað- ist og fossinn féll í dreifðum kvíslum fyrst í stað fram • af ýmsum stöðum á brún hamr- anna, unz hann sameinaðist á ný með auknu afli. Ef til vill hefðir þá um tíma farið að ör- vænta um það, að krafturinn á hæðunum fengi að njóta sín aftur í nýjum farvegi. Þú hefðir horft með söknuði á rás- ina, sem hann eitt sinn lagði leið sína um. Ef til vill hefðu augu þín verið svo haldin af hinni gömlu leið, að þú sást ekki þá nýju myndast. En fyr eða síðar mundu þau þó hafa opnast fyrir því að enn var krafturinn til og hið gamla varð að sætta sig við örlög sín, að vera minnismerki þess, sem einu sinni var. Því að þó að maður hefði gengið undir mannshönd að hreinsa hina gömlu rás eða ryðja steinum úr vegi, þá var alt árangurslaust. Uppi í fjallinu er örðug aðstaða til slíks Krafturinn af hæðun- um hafði mótað sér form, en yfirgefið þaú síðan, ekki til að hverfa úr sögunni, heldur til að ibrjóta nýjar leiðir. Trúmálaástandið, sem ríkti í Miðjarðarhafslöndunum, þegar Kristur kom í heiminn, minti 1 gamlan farveg, sem krafturinn hefir yfirgefið. Hinar fornu fórnarguðsþjónustur fóru fram í musterum og hofum, flóknar helgivenjur og gamlir siðir voru viðhafðir með stökustú ná- kvæmni, lögmálsboðorðunum, á 7. hundrað að tölu, og erfi- kenningu feðranna fylgt af hinni mestu smámunasemi, bæði um hreinsanir, mataræði, daglega vinnu, bænargerðir og föstur. En samt vantaði eititihvað. — Hinn þyrstu strá fundu enga svölun í öllu þessu og engan hressandi regnúða lagði af því til blómanna, sem spruttu í hugarreitum mannanna. Fólkið fann ekki lengur þann innra eld, sem logað hafði undir hjartarótum spámannanna horfnu. Það fann ekki gagn- taka sig kraftinn, sem knúði bæði ferlegar refsiræður og fögur fyrirheit fram á varir horfinna guðsmanna. Það varð ekki framar vart við innblástur- inn, sem stjórnaði itungu Amor- ar eða andann, sem braut sér hin fögru form í orðum Jesaja og Jeremía. Hinar háfleygu hvatningar snillinganna voru orðnar að þurrum reglum, sýn- ir guðsmananna að andlaus- um lærdómsgreinum og orð hins horfna leiðtoga, Móse, mannsins, sem frelsaði þjóð sína undan ánauðarokinu — orð hans var búið að gera að lamandi byrði og ánuðaroki á samvizkúm manna. Trú — guðsdýrkun — siðaboð — alt var á valdi hins dauða, and- lausa vana, ófrjó form, sem engum svöluðu og engum gáfu líf. Þröngsýnt íhald drap í dróma hverja frjálsa hugsun, ofsótti hvem vott um innblást- ur andans og krossfesti og grýtti þá, sem báru vitni um

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.