Heimskringla - 04.11.1936, Blaðsíða 7
WINNIPBG, 4. NÓV. 1936
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
GULLBORG Á VATNSBOTNI
Frh. frá 5. bls.
ýmsum verðmætum munum
franskra stóreigna manna. Og
þar er samankomið ómetanlegt
demantaskraut frá Arabiskum
höfðingjum og auðkýfingum frá
Asíu og Afríku. Og toargir
Indverskir ríkisbubbar hafa töfr-
ast svo af þessari dularfullu
byggingu, að þeir hafa sent
þangað alt sitt verðmætasta
gull og gimsteina safn.
Sem blaðafregnriti kom eg
þangað nokkrum sinnum, til
þess að leita mér upplýsinga
viðkomandi þessari neðanjarð-
ar víggirðing. í fylgd með mér
var aðal-verkfræðingur og
trúnaðarmaður bankans.
Hvílík voða bygging!
Reynið að hugsa ykkur hvelf-
ingu, sem er tvær og hálf ekra
á stræð. — Hljóð eins og gröf-
in. í hvelfingunni er nýmóð-
ins hitaleiðsla, sem aldri fer upp
eða ofan fyrir vist hitastig. Þar
verður aldrei vart skjálfta frá
þrumandi umferðinni ofanjarð-
ar. Hvelfingin sjálf er 15 fet á
hæð og styrkt með löngum röð-
um af stál og sements súlum,
750 að tölu. Er hver súla 36
þumlungar í þvermál og hefir
400 mæla tons burðarmagn.
Byggingin hvílir öll á bjargi.
Þakið og veggirnir eru 20 fetá
þykkir, af stáli og sements-
steypu og með lögum af vatns-
heldu jarðbiki. Að utan er hún
einnig smurð með jarðbiki til
þess að verja því að steypan
drægi til sín vatn.
En það undursamlegasta er
þó það, að “gullborg” þessi er á
vatnsbotni og er vatnið 40 feta
djúpt, ofan á| henni og útfrá
henni.
Fyrir löngu síðan rann títil
á í gegnum París til Seine. Áin
var kölluð Grange Bateliere og
átti hún upptök sín úr upp-
sprettu í Montmartre um mílu
vegar frá borginni. Nú rennur
þessi á neðanjarðar til sjávar.
Verkfræðingar stífluðu hluta
af þessari á„ og veittu henni í
geysilega stóran hellir, sem að
nokkru leyti var tilbúinn af
náttúrunni, en lagaður og
styrktur af verkfrðingunum. Er
þetta gert til þess að koma í
veg fyrir að uppreisnarmenn og
óvinir geti brotið sig inn að
kastalanum, en þá sér í lagi til
þess að ekki sé unt að bera
gullið og demantana burt.
En ,sökum þess að kastalinn
er umkringdur vatni alla tíð, er
þakið og veggirnir lagðir fínum
sogpípum, sem liggja niður i
gegnum miðjar súlurnar og
draga til sín allan sagga og
vessa úr steininum og er það
pumpað út úr súlunum daglega
árið um kring.
Allar vélar í þessari “gull-
borg” eru sjálifvirkar.
og þó öll borgin, með sínum
4,000,000 íbúa yrði eyðilögð af
eldi eða sprengingum ,lþá getur
fólk lifað í “gullborginni” neð-
anjarðar, svo lengi sem fæðu-
framleiðslan er nægileg. Ei'
um innbyrðis uppreisnir er að
ræða, þá geta, til dæmis 1500
manns af starfsfólki og stjórn-
endum bankans farið niður í
“gullborgina”, lokað öllum stál-
hurðum og haldist þar við ®vo
vikum og jafnvel mánuðum
skiftir, án þess að hafa nokkur
viðskifti eða samband við lif-
endurna ofanjarðar.
Undir “gullborginni” eru
brunnar, og þaðan fæst alt það
neysluvatn, sem þönf er á, hreint
og hressandi, sem úr berglind.
Sjálfvirkar vélar endumýja
loftið í byggingunni svo það er
altaf ferskt.
Rafmagn sitt fær þessi “gull-
borg”, frá tveim aflstöðvum í
borginni. En fari svo að þær
bili, eða geti ekki einhverra or-
saka vegna istarfað, þá er hvelf-
ingin þannig útbúin að sjálf-
hreyfivélar í byggingunni geta
framleitt nægilegt rafmagn til
ljósa og annarar notkunar. Og
jafnvel þó truflun verði á ljós-
um fyrir nokkur augnabilk, þá
er þriðji hver lampi í hvelfing-
unni þannig úr garði gerður að
á þeim deyr aldrei, og þannig
algerlega komið í veg fyri'r að
þar verði dimt.
' Hvernig sambándinu er varið
milli “gullborgarinnar” og bank-
ans ofanjarðar, fær enginn að
vita. iSambandið utan talsím-
ans ér leyndardómur. Og lykil-
inn að þessum leyndardóm hafa
aðeins örfáir eiðsvamir menn.
“Franski bankinn á stóra lóð
við hliðina á aðalbyggingunni,
sem nú er, og undir þessari lóð,
liggur “gullborgin”,” sagði leið-
sögumaður minn. “Og munu
stjórnendur bankans hafa í
hyggju að byggja þar þegar frá
líður, aðal-bankann, og ganga
þanníg frá (hönum að honum
geti ekki grandað, gas, eldur
eða sprengikúlur.”
Við gengum niður í þriðja
kjallarann á aðal-byggingunni,
sem nú er; úr honum gengum
við inn all-langan gang, en þar
sem hann endaði varð fyrir
okkur 20 feta þykkur veggur af
sementi og stáli. Á vegg þess-
um er þriggja feta þykk stál-
hurð, sem vigtar níu tonn. —
Hurð þe&sa er aðeins hægt að
opna með því að stilla rétt, kæn-
lega útbúna og falda rafmagns-
fjöður, sem stendur í sambandi
við sjálfhreyfivél í veggnum. —
Aðeins banka-verkfræðingurinn
má opna þessa hurð, og verður
hann að fá alveg sérstakt leyfi
eða skipun um að gera iþað.
Þegar við komum inn fyrir stál-
hurð þesSa varð fyrir okkur stál-
sfvalningur |sem ier 18 fet í
þvermál og 12 fet á hæð. Sams-
konar hreyfivél og áður er getið,
stendur í sambandi við sílvaln-
inginn og opnar hann í 90 gráða
horn. Þá kemur í ljós annar
sívalningur í miðju bins, og
vigtar sá 15 tonn. Sívalningar
þessir falla svo vel saman að
samskeytin eru næstum því ó-
sýnileg. Sjálfhreyfivélin fer aft-
ur í gang, og nú opnast þessi
sívalningur, en þó ekki meira en
svo að- maður getur smogið þar
í gegn. Þegar inn er komið falla
þessar óguríegu stállokur sam-
an aftur og við erum lokaðir
inni.
“Það hefir verið reiknað út,”
sagði fylgdarmaður minn,_“að
verkfræðingar þyrftu tvo mán-
uði til þess að komast þarna í
gegn, þó þeir ynnu að því bæði
nætur og daga. Og þegar þeir
okmast í gegn þá bíður þeirra
hryllilegt.” — En hvað það er
fékk eg ekki að vita.
Hér erum við nú staddir í
öðrum gang, sem höggvin er í
gegn um klett, sem hangir yfir
vatninu. Þetta er leiðin til
“gullborgarinnar”. Eftir nokk-
ur fótmál komum við að holum
steinsteypu sívalning sem liggur
alla leið í gegnum vatnið og nið-
ur í einskonar anddyri í “gull-
borginni”. Veggir ihans eru 20
feta þykkir úr stáli og steypu.
Innan í honum er lyftivél og
stígi. Við gengurn inn í lyfti-
vélina, oghún leið þægilega nið-
ur steinbolinn og staðnæmdist
hljóðlaust í fordyrinu. Þama
urðum við að fara í gegnum
aðrar tvær dyr, og var hurðin
fyrir ytri dyrunum opnuð á tík-
an hátt og hinar. Innri ihurðin
var að vísu einnig opnuð með
sjálfhreyfivél,, en hún er það
mikið meira völundar smíði en
hinar, að engum sérfræðing er
mögulegt að finna út hvemig
læsingin er útbúin.
Og nú vorum við staddir í
sjálfri “gullborginni”, umkringd-
ir glæsilegri ljósadýrð og töfr-
andi fegurð, svo erfitt var í
fyrstu að átta sig á því, að við
værum þarna í raun og sann-
leika 150 Ifet niður í jörðinni.
“Eins og þú getur séð,” sagði
leiðsögumaður minn, “þá höf-
um við skift hvelfingunni í
margar deildir. í einni deildinni
er gull og gimsteina safnið í
hundrað tuttugu og tveimur her-
bergjum, stærri og smærri, sem
öll eru lokuð með tvöföldum
stálhurðum. í annari deildinni
eru 600 fjárhirslu herbergi, sem
tilheyra bankanum og auk
þeirra nokkur smærri, og svo að
sjálfsögðu istór salur fyrir blöð,
bækur og iSkjöl bankans. í
kringum þessar deildir liggur
stræti, þar sem hægt er að kom-
ast að öllum vírum og pípum til
rannsókna og viðgerða.”
“En sú deildin, sem hrífur
mést, er starfsherbergi eða véla-
rúmin, sem liggja utan við
strætið”, sagði leiðsögumaður
minn um leið og hann opnaði
hverja hurðina etftir aðra, inn í
véla og geymsluherbergin, þar
sem vélar af öllum upphugsan-
legum tegundum ströfuðu. Á
M
chi<2Vemcnt~
Q63
!ve
"A PERFECT BLEND OF N/fALT AND RICE'7
DREWRYS special beer is a new rice brew which we believe to be the
cröwning achievement of half a„century’s effort to produce “something better.”
You will more than appreciate this latest and greatest production of DREWRYS
CLUxy STANDARD LAGER — OLD CABIN ALE — OLD STOCK ALE
This advertisement is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The Commission is not responsible for
statements made as to quality of products advertised.
annari hlið utan við hið rétt-
, hirnda stræti, voru svetfnher-
bergi fyrir meira en 1500 manng
Eldhús eins stórt og fullkomið
| sem í stærstu nýmóðins gesta-
| húsum (hotels). Þar er glfur-
lega stór rafmagnseldavél ásamt
öðrum fyrsta flokks þægindum.
Og einnig er þar geymsluher
bergi með meira en tíu þúsund
könnum og dósum af allskonar
niðursuðu vörum. í öðru her-
bergi er heljar mikill rafmagns
kæliskápur á hjólum. Og eg
ætlaði ekki að trúa mínum eig-
in augum þegar hann opnaði
hann, því þar taldi eg 30—40
tylftir af hálfum nauts-skrokk-
um, og auk þess voru ;þar ókjör-
in öll af kinda og káífsskrokk-
um. Hann opnaði annan kæli-
skáp. Þar voru staflar af
smjöri og ost og ýmsu fleiru. t
geymsluherberginu voru allar
mögulegar tegundir af verk-
smiðju kökum og kexi. Og eg
var ekki í efa um að þarna væru
allskonar fæðutegundir í svo
stórum birgðum að nógar væru
handa heilum þerskara i marga
mánuði.
“Fran'ski bankinn er altaf við-
búinn að mæta öllu því versta,”
sagði leiösögumaður minn, og
brosti dularfullu brosi.
O^g nú er á enda ferðaasgan
til “gullborgarinnar”. Eg fékk
ekki um nema fiátt eitt að fræð-
ast í sambandi við hana. En
aðal leyndarmálið er, hvernig
sambandinu við “gullborgina”
og ráðendurna ofanjarðar er
varið.
Síðan 1930 hafa ótal tilraunir
verið gerðar í þá átt, að finna
leyniþráðinn þar á milli, en eng-
um hefir lukkast það enn. Það
hafa einnig verið gerðar marg-
ar tilraunir til að finna menn-
ina sem að því störfuðu. En
það hefir ekki heldur lukkast.
Og sökuni þess að það voru að-
eins 70 menn valdir úr og látnir
vinna þetta trúnaðarstarf, þá
gengu sögur fjöllunum hærra
um að þeir hafi ekki verið lok-
aðir inni.í hvelfingunni, eins og
sögusagnir hermdu að oft hetfði
verið gert fil tforna, en að þeir
hefðu blátt áfram verið allir
drepnir, til þess að koma í veg
fyrir að leyndarmáiið yrði upp-
víst.
Ennfremur er það fullyrt að
50 fet fyrir neðan “gullborgina”
eða 200 fet niðri í jörðunni, sé
annar útgangur höggvin gegn-
um klappir og klettabelti. En
hvar útgangurinn úr þeim jarð-
göngum er, er annar leyndar-
dómur, sem engum hefir ennþá
lukkast að leysa.
Með þessari grein, sem hér
birtist í íslenzkri þýðing, er
brugðið upp aðeins einni smá-
mynd af því, sem hefir verið að
gerast frá því síðasta stríði lauk
1918, og til þessa dags. Og þó
er þetta ekki nema ófullkomin
skuggsjá, hjá því, sem framtíð-
in felur í skauti sínu, ef stefnt
verður fram sem hortfir.
Á meðan miljónir manna eru
ativnnulausir í heiminum og
fóðraðir af fylkjum og stjórn-
um eins og útigangshjörð í jarð-
bönn, er miljónum dollara varið
til þess að undirbúa styrjaldir í
þeim tilgangi að slátra þessum
þurfalingum, sem orðnir eru
eins og viljalaust verkfæri f
höndum þeirra, sem með völdin
fara.
Öreigalýðurinn heyrir og
horfir á, hvernig ógrynni af fé
er varið til þess að reisa alls-
konar varnarvirki ofanjarðar og
neðanjarðar til að safna í gulli
og gimsteinum verðmætinu, sem
grafið er upp úr jörðinni á öðr-
um stöðum. Og öreiga lýður-
inn heyrir og horfir á miljónir á
miljónir ofan renna í undra
byggingar og fyrirtæki ofan
jarðar og neðan, sem eiga að
vera griða staðir þeirra sem
með völdin fara og auðlindun-
um ráða á meðan þeir eru að
taka ráð sín saman um hvemig
þeir geti bezt komið vélabrögð-
NAFNSPJÖLD
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrlístoíusimi: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finni á skrifstofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsími: 33 158
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
Phone: 26 420
Dr. 0. BJORNSSON
764 Victor St.
OFFICE & RESÍDENCE
Phone 27 586
um sínum á framfæri og morð-
hugsjónum sínum í framkvæmd.
Og á alt þetta heyrir öreiga
lýðurinn og horfir á. Hann
finnur ranglætið og óheilindin
og langar að rétta hönd til
varnar ósómanum, en megnar
ekkert, jafnvel þó hann hafi
aflið til að ihindra þessa hel-
stefnu sem er á leiðinni að
leggja undir sig veröldina og
tortíma mannkyninu. Megnar
ekkert sökum þess að hann er
sjáltfum sér sundurþykkur og
þorir ekki að horfast í augu
yið veruleikann.
En að hinu leitimu er það á-
nægjulegt og aðdáunarvert, að
virða fyrir sér öll þau undur
sem mannsandinn hefir fundið
upp og í framkvæmd hrundið í
iðnaði og á vélrænu sviði, þenn-
an þriðja hluta sem af er tutt-
ugustu öldinni. Það eitt fyrir
sig er aðeinfe ofiurlítið brot af
hugviti því, sem maðurinn get-
ur ráðið yfir ef hann leggur
rækt við að glæða það.
Og mitt í dásemdunum og
mikilleikanum, er sorglegt að
hugsa til þess að afkvæmum
hugvitsins, skuli vera snúið
gegn því sjálfu til tortímingar.
Eins og dr. Helgi Pétursson
segir, þá stendur hvíta þjóðin
með öllu sína mikla ihugviti,
framförum og menning, á barmi
glötunarinnar, og er eyðilegg-
ingdn vís, eí hún gengur öllu
lengra þá braut, sem hún þræð-
ir nú.
í sama strenginn tekur dr.
Alexander Cannon og hinn
heimstfrægi vísinda frömuður
dr. Alexis Carrel, að mannkynið
standi mjög hættulega hölluru
fæti og rnuni áður langt líður
verða ver farið en dauðadæmt,
ef ekki verði fundin einhver ráð
til að bjarga því.
Og þannig væri hægt að telja
marga framsýna andans menn,
sem ræða, rita og starfa í sam-
ræmi við núttúrulögmálin og
guð í sjálfum sér, og leitast við
á marga vegu, að opna augu
lýðsins og fá hann til að gera
það sama. En þessir andans
menn eru því miður í miklum
minnihluta enn. —
Davíð Björnsson
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnig skrifstofur að Lundar og Gimli oe eru þar að hítta, fyrsta miðvikudag 1 hverjum mánuði.
M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lastur ÚU meðöl i viðlögum Viðtalstímar kl. 2—4 e. h. 7—8 atS kveldinu Simi 80 857 665 Vlctor St.
A. S. BARDAL selur likkistur og annaat um útfar- lr. AUur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG
Dr. S. J. Johannesion 218 Sherburn Street Taisimi 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e. h.
Rovatzos Floral Shop 206 Notre Dame Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandlc spoken
THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Dlamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Áve.
Dr. A. V. JOHNSON ISLENZKUR TANNLÆKNIR 312 Curry Bldg., Wlnnipe* Gegnt pósthúslnu Simi: 96 216 Heimilis: 33 328
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, tnsurance and Financial Agents Sími: 94 221 800 PARIS BLDG.—Winnipeg
Office Phone Res. Phone 21 834 72 740 DR. J. A. BILDFELL 216 MEDICAL ARTS BT.no Office Hours 4 P.M.—6 P.M. and by appointment Residence: 238 Arlington St.
Orrici Phoni Rks. Phoni 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MKDICAL ARTS BUILDING Ornci Hoths: 12 - 1 4 ».m. - 6 r.M. *nd by APPOINTMINT
J. WALTER JOHANNSON U mboðsmaður New York Life Insurance Company