Heimskringla - 20.01.1937, Side 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINCLA
VIÐBURÐIR ARSIXS
í BLAINE
Það mun bezt að byrja á veðr-
áttunni því líf vort og lán -r
henni háð. Það er þá skemst frá
að segja að veðráttan hefir verið
með afbrigðum hagstæð okkur
Strandarbúum, þetta síðastliðna
ár. Að vísu gerði óvenjulega
harða frostkviðu í febrúar mán-
uði, komst frostið enda niður
fyrir “zero” en slíkt þykir fyrn-
um sæta á þessum slóðum. Eft-
ir að frostinu létti brá til blíð-
viðris en samt reyndist vorið
fremur svalt og votviðrasamt en
jarðargróðurinn óx og dafnaði,
hefir sjaldan eða aldrei orðið
þvílíkur heyskapur sem síðast
liðið sumar. Þetta var reglu-
legt paradísar sumar þar sem
léttar skúrir og langir sólskins-
dagar unnu í einingu að því að
fegra og frjóvga landið. Engin
tunga fær lýst því sem augað
sér á þvílíkum dögum. Til aust-
urs gnæfa sólroðnir jöklar við
himin sem englar á verði fyrir
bygð og búum; yfir grænum
engjum og angandi aldin-lund-
um; en til vesturs blikandi sund
með bátum á miðum. Þá er nú
björgulegt á blessaðri Strönd-
inni og í þvílíkri paradís ætti
öllum að líða vel en því miður er
gæðum lífsins harla misskift hér
sem víðar. Þrátt fyrir mentun
og messur býr andskotinn ennþá
í paradís; hann situr við allar
hlóðir með kétkrókinn og færir
blessun úr búi öreigans upp í
opið ginið á magaveikum iðju-
leysingjum. Af því ástandi
sprettur angist og óhóf, öfund
og ágirnd, hatur og fyrirlitning,
flokka-dráttur og styrjaldir; —
haldið þið kannske að Kristur
hafi verið að gamna sér er hann
sagði þeim söguna af Lazarus og*
auðmanninum sem fór til and-
skotans. Eg minnist þess líka
að hann sagði “að auðveldara
mundi úlfaldanum að ganga í
gegnum nálaraugað en ríkum að
eignast guðsríkið.” Er eg nú
annars ekki komin út frá efn-
inu? Ekki svo fremi sem allir
séu ekki búnir að tapa allra trú
á að guðsríkið geti þrifist á jörð-
inni, og þá skiljanlega hér í
Blaine sem annarsstaðar; en í
ríki Mammons mun það aldrei
gerast.
Annars var eg að tala um tíð-
arfarið áður en eg gerðist and-
lega sinnaður. Haustið kom með
nætur og sölnuð lauf að Iiðnu
sumri, en blítt var það og rólegt
eins og áhyggjulaus ellinn ætti
að reynast þeim er þrótt sinn
hefir þjálfað við nytsöm störf.
Sólskin og blíðviðri varaði venju
lengur þótt fáeinir þokudagar
mintu menn á að veturinn væri
nálægur. Veturinn er naumast
greinanlegur þar sem hvorki
frost né föl sést á grænu grasi
og betur mundi Santa Kláusi
karlinum henta bifreið en sleði
þegar hann kemur með glingrið
til góðu barnanna á efnuðu heim-
ilunum um jólin.
Yfirleitt má fullyrða að efna-
leg afkoma almennings sé tal3-
vert skárri en á undanfarandi
árum. Blaine-verjar skiftast í
fimm flokka atvinnulega, nefni-
lega: starfsmenn stjórnarinnar,
verzlunarmenn, iðnaðar-menn,
fiskimenn og bændur. Blaine
liggur eins og mörgum er kunn-
ugt, við landamæri Bandaríkj-
anna og Canada. Þessvegna
dvelur hér mesti sægur af toll-
þjónum og öðrum eftirlitsmönn-
um stjórnarinnar. Þessir menn
una við þægileg kjör; létta
vinnu, allgott kaup og áreiðan-
leg eftirlaun er aldurinn færist
yfir þá. Galdurinn er að gera
alt samkvæmt reglunum og
koma sér vel við sína yfirmenn
því ekki þarf nú mikið útaf að
bera svo aumingja mennirnir
missi stöðuna og atvinnuleysið
verði þeirra hlutskifti svo sem
annara. Hefir nokkrum þeirra
orðið hált á því svellinu. Mættu
ferðamenn þessa gjarnan minn-
ast er þessir náungar þykja
næsta spurulir. Um verzlunar-
menn vil eg vera fáorður af því
eg vil helst ekkert misjafnt um
mennina segja. Eitt er víst að
þeir kvarta einatt sjálfir um
litla verzlun og lélega afkomu,
mun það nokkru valda að fjöldi
manna héðan leggur leiðir til
Lyndin og Bellingham í verzlun-
arerindum. Segir slíkt hátta-
lag bezt söguna.
Hér er naumast um iðnað að
ræða. Alt slíkt dregst til stór-
bæjanna af því þeir hafa efni á
að bjóða iðjuhöldunum ýms
hlunnindi. Þrátt fyrir alt gortið
um stjálfstæði byggja amerískir
verkgefendur yfirleitt effici sín-
ar verksmiðjur nema með opin-
berum styrk í einni mynd eða
annari. Hafa þau fríðindi enda
stundum verið svo rífleg að sum
stórgróða fyrirtækin, eins og til
dæmis nokkrar járnbrautir, hafa
komist á laggirnar frömuðum
þeirra að kostnaðarlausu. Hér í
Blaine er alt í mjög smáum stíl,
eins og nærri má geta. Af einka
fyrirtækjum er ekki um annað
að gera en ofurlítið smérgerðar-
hús, er að vísu veitir enga eða
litla atvinnu en er samt til mik-
illa þæginda fyrir bæjarbúa sem
margir hverjir eiga eina kú eða
fleiri. Hér er ennfremur ofur-
lítil niðursuðuverksmiðja fyrir
skelfisk en á víst fremur erfitt
uppdráttar og veitir aðeins litla
og stopula atvinnu. Tveir land-
ar, Steve Dalman og H. T. John-
son starfrækja dálitla vélaverk-
smiðju. Þessir piltar eru mestu
hagleiksmenn og eiga vonandi
eftir að byggja sér arðvænlega
atvinnu.
Hér var mikið um sögunar-
myllur og þakspónaverkstæði á
uppgangs árunum enda landið
alþakið skógum. Hvergi getur
að líta geigvænlegri merki um
glæpsamlega sóun en á mörkinni
þar sem hver einasti stofn var
Have the Business
POINT OF VIEW
?
•
Dominion Business College students have the advantagi
of individual guidance in the all-important factors of
business personality, conduct, and approach.
No matter how thoroughly you know the details of
office work, you must be able to sell your services,
and this is now just as much a part of Dominion
training as Shorthand, Typewriting, Bookkeeping, or
any of the other courses in which Dominion leader-
ship has been recognized for over twenty-five years.
Business is better! Employment is increasing!
Prepare for it.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On The Mall
and at Elmwood, St. James, SL John’s
WIKNIPEG, 20. JANÚAR 1937
2.
stífður, er líklegur virtist til að
þyngja pýngju fjárplógsmanns-
ins; en ungviðið, kurlað í ham-
förunum svo öll þessi dauða og
deyjandi þelamörk varð ófær
flækja af visnuðu laufi og þurru
limi er skógareldarnir æddu svo
yfir svo jafnvel jarðvegurinn
eyðilagðist. Árangurinn af at-
orku slíkra arðránsmanna urðu
fáeinar fagrar hallir þar sem
ungdómurinn daðrar og dansar
sér til dómsáfellis og svartar
sviðamerkur er verða skal arf-
leifð komandi kynslóða. Okkur
hérna í Blaine er nú ekki annað
eftirskilið en tvær litlar þak-
spóna verksmiðjur. Þær eru
báðar samvinnu fyrirtæki og
nýtur önnur þeirra stjórnar-
styrks. Þær berjast í bökkum
og getur hvorug goldið viðun-
andi verkalaun, enda naumast
við því að búast þar sem þær
þurfa að kaupa allan efnivið frá
Canada.
Fáeinir fiskimenn eiga hér að-
setur og er vonandi að þeim
fjölgi því það sýndi sig á síðast
liðnu sumri að smábáta útvegur-
inn getur borgað sig. Stórgróða
félögin voru í þann vegin að
eyðileggja alla veiði en loks tók
fólkið sig til og greiddi atkvæði
móti laxagildrunum er girtu fyr-
ir sundin svo fiskurinn fékk ekki
hrygningar svæðin. Nú er ver-
ið að byggja bátahöfn í Blaine,
er vonandi verður til þess að
menn fái sér báta og taki að
stunda veiðar. Höfn þessi má
stórvirki kallast fyrir smábæinn
Blaine, mun hún kosta um 120,-
000 dollara. Mestan hluta fjár-
ins leggur sambandsstjórnin í
Washington fram, en auk þess
kemur nokkurt fé frá bænum og
hafnarsjóði þessa héraðs. Byrj-
að var á þessari vinnu í júlímán-
uði og oftast verið þar að vinnu
um hundrað manns. Flest af
verkamönnunum eru skráðir at-
vinnuleysingjar er stjórnin veit-
ir atvinnu. Lægsta kaupið, fyr-
ir algenga verkamenn, eru 48
dollarar á mánuði fyrir 96 klst.
vinnu. Fyrir alslausa fjölskyldu-
. menn er slíkt kaup að vísu harla
lágt, þar sem allar nauðþurftir
hækka stöðugt í verði, en samt
munu flestir kjörin vilja heldur
en iðjuleysið og matgjafirnar;
því þótt einstöku mönnum verði
skrafdrjúgt um slæpingjana hér
á ströndinni verð eg þeirra lítið
var; meðfram máske af því eg
hefi öðru að sinna en gefa mig í
félagsskap með þvílíkum land-
eyðum ef nokkrar væru. Eg á
heldur ekki þá kvikindis lund er
jlætur menn skríða flata að fót-
| um auðkýfingsins er finnur
mesta ánægju í því að kasta
skarni í öreigann.
Víst mun bændum vegna skár
en á kreppu árunum en samt er
afkoma þeirra engan vegin í
samræmi við framlag þeirra til
þjóðþrifa né afköst þeirra er
vinna langa daga svo þjóðin
megi þrífast. Ekkert sýnir
rangsleitni aldarfarsins öllu
greinilegra en sú ömurlega stað-
(reynd að þeir sem mest iðja
• hljóta minstan arð og aðal fram-
leiðendurnir njóta minstra þæg-
inda. En svo eg snúi mér að
bændum í Blaine þá er hér aðal-
lega um tvennskonar búskap að
ræða, nefnilega mjólkur fram-
leiðslu og hænsnarækt. Afurða-
söluna annast samvinnufélag
bændanna að mestu, eru eggin
vandlega flokkuð og seljast aðal-
lega í New York og öðrum stór-
bæjum. Hljóta þau þar jafnan
hæsta verð en flutnings kostnað-
urinn verður eðlilega hár svo
hlutur bænda reynist tíðum smár
Síðast liðin tvö ár hefir eggja-
verðið verið fremur lágt og verzl-
unar jöfnuðurinn bændum óhag-
stæður einkum síðari hluta hins
umliðna árs, þar sem fóðrið fór
stöðugt hækkandi, en hér er það
alt aðkeypt. Sú var tíðin að
hænan gaf um tvo dollara á ári
í hreinan ágóða, til jafnaðar. Eg
hygg að þeir bændur séu nú
færri, sem kreista einn almáttug-
an úr hænunni. Kúabúendur
farnast 'betur, sem stendur. —
Smérfitan var í hærra verði en
á sex árunum síðustu og komst
upp í 40 cent. Má það allgott
heita og gefur talsverðan ágóða
þeim er kunna lagið á kúnum;
en það krefur meiri hugsun en
útlegging ritninganna eftir regl-
unum. Sem dæmi vil eg geta
þess að bóndi hér í bygðinni, er
mjólkar 11 kýr, hafði 175 dollar.i
á mánuði yfir sumarmánuðina;
en þess verður jafnframt að
geta að sami bóndi borgaði alt
að 50 dollara fyrir kraft-fóður.
Ætli mér sé nú ekki bezt að
biðja afsökunar á þeirri dæma-
lausu ósvífni að fara með góð-
fúsan og heiðraðan lesara út í
fjós. Við íslendingar erum ald-
ir upp á hugvekjum og sálmum
og velgir við öllu veraldlegu, á
prenti — “en bíddu nú”. “Það
kvað liggja vegur til hjartans
gegnum magann”, og ekki ó-
hugsandi að orsaka sambönd
finnist milli efnalegrar afkomu
og andlegs þroska. Sannast að
segja var það kúarjóminn úr
Flóanum, skagfirska sauðasmér-
ið, ísfirskur ryklingur og bless-
aður þorskurinn er borguðu höf-
uðstaðarvist hinna háskólalærðu
landa. Jafnvel guðfræðanámið
reyndist kostnaðarsamt og veitt-
ist yfirleitt þeim einum er áttu
atorkusama feður og drógu há-
karl um dimmar nætur, mokuðu
klakan svo kindin mætti nærast
og kunnu lagið á kúnum sínum.
Prestur sagði eitt sinn í minni
áheyrn að hann gæti aldrei gert
góðar ræður af því hann bæri
ævarandi áhyggjur út af ómegð
sinni og eignaleysi. Stefán G.
sagði: annirnar (þær) “styggja
upp léttfleygu ljóðin mín öll svo
líða þau sönglaust frá mér”. —
Skal ekki mörgum svo farið að
þeir geta hvorki ort né numið
af því þeir eru minnugir bágind-
anna. Það eru 120 manns við
vinnu með mér og fyrir forvitnis
sakir reyndi eg að komast eftir
hvert nokkur þeirra hlustaði á
Wagner söngvana eða New York
hljómleikana, sem á undanfar-
andi vikum hefir verið víðvarp-
að. Engin hafði um slíkt heyrt
né kærði sig um það að vita og
þó eru þetta ekkert illa gefnir
menn, svona upp og ofan, heldur
hefir tækifæraleysið og langvint
strit lokað þá út úr heimi list-
anna. Aðeins bjargálnamenn
hafa hugsun á því að njóta þeirr-
ar fegurðar sem fáanleg er og
þessvegna geta blessaðar belj-
urnar haft upplyftandi áhrif á
vort auma líf. Eg vona fastlega
að bæði þær og vor móðurmold
gefi hverjum iðjumanni auð í
mund, bæði í Blaine og um víða
veröld, svo mæðurnar megi á-
byggjulausar sofa og mennirnir
megni að njóta þess besta sem
þessi jarðneski gróðrarreitur
hefir að bjóða. Hvaða gagn
mundu annars sáluhólpnar sálir
hafa af himneskum hörpuslætti
ef þær hafa aldrei lært að meta
fegurð hljómanna?
Með þessum inngangi finst
mér réttast að snúa mér að fé-
lagsmálum okkar Blaine-verja.
Þau virðast í afturför eins og
við er að búast því fullorðnir eld-
ast og lýjast en unglingarnir
fljúga frá hreiðrinu. Aumingja
litla Blaine hefir framgjörnum
unglingum svo fátt að bjóða. —
Kirkjurnar hafa lengstum verið
hornsteinar hins íslenzka félags-
lífs í Vesturheimi en þeim hrörn-
ar óðum eins og við er að búast,
bæði af því að íslenzka nýlendu
fólkið dreifist og af því að yngru
fólkið fylgir straumnum út úr
kirkjunni. f mig hefir verið
hnjóðað fyrir fjandskap við
kirkjuna, — svo bæta þeir þessu
við, uppblásnir í andanum, að í
rapn og veru geri þetta ekki sv .)
mikið þar sem hér sé um ekkert
stórmenni að ræða er fráleitt
gæfi meir en fáein cent á ári í
guðskistuna. — Hum — svo eft-
ir því er kirkjunni engin þægð í
fylgi alþýðumannsins ? Hvað
um það; eg er hvorki með henni
eða móti. í mínum augum er
hún aðeins mannleg stofnun er
verðskuldar heiður fyrir hvað-
eina sem hún hefir gert mann-
kyninu til gangs og gæfu en
verður að sætta sig við það, með
kristilegri hógværð, þótt athafn-
ir hennar og markmið séu gagn-
rýnd með sanngirni. — Jæja,
hvernig sem eg kann nú að mæl-
ast hjá einum sem öðrum, lang-
ar mig til að sannfæra lesandan
um að eg fari sízt með staðlausa
stafi.
Eftir því sem trúarbragða
tímaritið, “The Missionary Re-
view” hermir gengur aðeins einn
unglingur af tuttugu á sunnu-
dagaskóla, meðal Gyðinga; einn
af hverjum fjórum hjá kaþólsk-
um og einn af hverjujm þremur
meðal mótmælenda. Hlutföllin
verða nokkuð svipuð hér í Blaine,
að því er löndum viðkemur, en
um aðra er mér miður kunnugt.
Hvað veldur? Eg hygg að or-
sakirnar séu aðallega þrjár;
skortur á jákvæðri trúarleið-
sögn, álitshnekkir sem kirkjan
alment beið í heimsstyrjöldinni
og síðast en ekki sízt auðhyggja
aldarfarsins.
Kirkjan fullnægir ekki fram-
ar trúarþörf þjóðanna af því all-
ir hugsandi menn vita að kenni-
lýðurinn veit nákvæmlega jafn-
mikið um þau efni sem aðrir. Sú
var tíðin að almenningur trúði
bóksatflega að biblían geymdi á-
reiðanlegan vísdóm í þeim efn-
um; en nýja guðfræðin svokall-
aða gróf undirstöðuna undan
þeirri trú. Með þessu er eg sízt
að víta þá fræðimenn er frjáls
mannlega gengu til rækilegrar
rannsóknar á ritningunum því,
að minni hyggju, verður guði
aldrei betur þjónað en með því
að leita sannleikans. En að hinu
leytinu verður því ekki neitað
að með því að eyðileggja alla trú
á ábyggilega og sérstaka opin-
berun hafa þeir kippt fótunum
undan allri jákvæðri trúfræði.
Þar með þó engan vegin sagt að
eilífðarvonin hverfi. Hún vakir
síkvik og sjálflýsandi í brjóst-
um þúsundanna. En að hverju
yrði hún bætt þótt eg gengi í
allar kirkjur þessa þorps til að
heyra ellefu mismunandi og ó-
samhljóða getgátur um eilífðar
málin ?
Heimurinn breyttist mjög við
heimsstríðið og náði sú breyting
ekki hvað sízt til trúarbragð-
anna. — Með hugsunarlausu
skvaldri má að vísu drepa hugs-
unum mannanna á dreif, um
stundarsakir, en þar kemur þó
að þrálátar spurningar þarfnast
úrlausnar. úr því andskotinn var
alveg úr sögunni mátti honum
ekki um kenna. Helvíti þeirra
hryllinga komu frá manninum
sjálfum. í sundurtættum líköm-
um er rotnuðu í blóðleðjunni sáu
menn heimsmynd þá er menning
vor hefir skapað. Svona mikið
af helvíti var þó ennþá eftir í
okkur öllum eftir átján aldir af
prédikunum sem kirkjurnar
nefndu kristilegar. Yfir þessari
blóðugu jörð blöktu krossfánar
hinnna kristnu þjóða meðan
flestir söfnuðir sungu um heilagt
stríð og ótal prestar hvöttu
menn til að duga nú drengilega
til dráps og rána. Þetta er ógur-
leg mynd og engan vegin til þess
fallin að auka álit manna á hinni
svokölluðu kristnu siðmenningu
en að mínu áliti sýnir þetta fyrst
og fremst vanmátt og úrræða-
leysi kirkjunnar, sýnir hversu
heimurinn hefir afkristnað
kirkjuna í staðin fyrir að kirkj-
an átti að kristna heiminn.
Nú er svo komið að enda þótt
að kirkjan væri nákvæmlega það
sem eg eitt sinn í barnslegri
bjartsýni, hélt að hún væri,
nefnilega stofnun er kendi í orð-
um og sýndi í verki hinar mann-
úðlegu og djúpuðgu kenningar
Krists; mundi hún engu að síður
eiga mjög erfitt uppdráttar og
mæta hinni megnustu mót-
spyrnu. Paradisar hugsjón frum-
kristninnar kemur illa heim við
hugðarefni samtíðarinnar. —
Æðsta ákvörðun flestra ungl-
inga er sem stendur að eignast
bíl, búa í stórhýsi, græða fé svo
þeir geti sótt samkomur hinna
útvöldu -og vera taldir í hópi
heldri manna. Fyrirmynd þeirra
er sjaldnast fátækur, heimilis-
laus farandprédikari suður í
Palestínu heldur slungin fjára
aflamaður í Ameríku, sem blöð-
in básúna og höfðingja sleikjurn-
ar hylla. Það verður engin tími
til að hugsa um alsælu annars
heims meðan tækifærin gefast
til að græða og fyrir þann gróða
eignast algleymis fögnuð þessa
lífs. Sem félagsheild þarf kirkj-
an á fé að halda og hún fær það
því að eins að hún samsami sig
sem mest aldarandanum en vilji
hún í einlægni fylgja Jesú að
málum verður kennilýðurinn að
ganga með honum á eyðimerkur
og éta þurt; eins og St. G. kemst
að orði: “Það eru engin kosta-
kjör að koma af slíku strandi”.
Útskúfaður guðsmaður verður
oftast sjálfum sér og öðrum til
hinna mestu vandræða. Fjöl-
skylda hans kemst á vonarvöl en
hann sjálfur álitin úrþvætti er
brást í trúnaði, því þjónustan
við félagsþarfir kirkjunnar er
alstaðar tekin framyfir hollust-
una við hugsjónirnar. Með öðr-
um orðum kirkjan er hvorki
verri né betri en við er að búast
undir kringumstæðunum og hún
breytist varla fyr en stormþytur
nýrra og kröftugra hugsjóna fer
með ógnandi krafti yfir veröld
vora. Mörg veðurmerki benda
nú til breytinga og því verður
ekki neitað að sum þeirra sjást í
sjálfri kirkjunni einkum meðal
meþodista, en hún hefir altaf
verið einna alþýðlegasta kirkjan
í Amerku. Svo er að sjá sem
mikill hluti, máske meirihluti
fólksins innan þeirrar kirkju-
deildar vilji nú afdráttarlaust
gera orð Krists að alvörumáli.
Mótmælalaust gengur það auð-
vitað ekki fyrir sig. Á kirkju-
þingi þeirra, síðastliðið sumar,
var alvarlega um málið deilt
og hjá klofning komist aðeins
með tilslökun frá báðum hliðum.
Ekkert sýnir ef til vill betur á-
standið en uppástunga Mr.
Chantlers, ritstjóra í Los Angel-
es, að bæjarráðið veiti engum
Meþodista vinnu af því þeir séu
hættulegir gjörbyltingarmenn
að innræti (Eg hefi gerst svona
margorður um kirkjumál Banda-
ríkjanna yfirleitt svo eg þurfi
ekki aftur að því að víkja ef eg
skyldi skrifa almennar fréttir
frá Bandaríkjunum síðarmeir).
Eg get aðeins bætt því við að
trúarbragðaástandið hér er ná-
kvæmlega hið sama og hvar-
vetna annarstaðar í kjörlandinu.
Þótt heilsufar fólks hafi yfir-
leitt verið gott hér í blíðviðrinu
hafa talsvert margir látist á ár-
inu. Skulu þeir nú taldir:
1. Fred B. Peterson, sonur
Bjarna sál. Péturssonar varð
bráðkvaddur skömmu eftir ný--
árið. Fred var karlmenni að
burðum, víkingur til vinnu en
viðkvæmur í lund og drengur
hinn bezti í mörgu. Hann var
giftur Rósu Baker frá Marietta.
Áttu þau þrjú börn á uppvaxtar-
árum; öll hin efnilegustu.
2. Ingibjörg kona Brynjólfs
Johnsonar bónda hjá Blaine. —
Hún var valkvendi hið mesta,
fyrirmyndar eiginkona og móð-
KIEWELS
Wkite JScoÉ'
KIEWEL BREWING
COMPANY LIMITED
ST ÍOSEPH and DUMOULIN STS
ST. BONIFACE
Phone 96 361