Heimskringla - 20.01.1937, Qupperneq 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 20. JANÚAR 1937
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
Tvær guðsþjónustur fara
fram í Sambandskirkjunni næst-
komandi sunnudag eins og und-
anfarið — á ensku kl. 11 f. h. og
á íslenzku kl. 7 e. h. Séra Philip
M. Pétursson messar við báðar
guðþ j ónusturnar.
¥ ¥ *
“Stoðir Samfélagsins”
Þess var getið í síðasta blaði
að Leikfélag Sambandssafnaðar
hefði ákveðið að sýna leik þenna
að nýju, við þessi mánaðamót
(2. febrúar). Ráðstöfunum
þessum hefir verið lítillega
breytt. Leikurinn verður sýnd-
ur þriðjudagskveldið 1. febrúar
á sama stað og tíma og áður, í
fundarsal Sambandskirkju kl.
8.15. Inngangur verður hinn
sami — 50c. Um leikinn þýðir
ekki að ræða að þessu sinni, því
það er þegar búið að gera svo
glöggva grein fyrir honum í báð-
um blöðunum, er sammála eru
um það að hann sé að efni til með
þeim beztu er hér hefir verið
sýndur.
* * * *
Sigurbjörn S. Hofteig, Minne-
ota, Minn., lézt 5. jan„ að heim-
ili dóttur sinnar Mrs. A. 0. Kope-
lein. Sigurbjörn var 95 ára,
fæddur á Breiðumýri í Vopna-
firði 31. des. 1841. Til Vestur-
heims kom hann ásamt konu
sinni, Steinunni Magnúsdóttur
frá Skeggjastöðum á Jökuldal,
árið 1878 og festu þau bygð í
grend við bæinn Minneota og
hafa búið þar síðan. Kona hans
dó 1933. Sigurbjörn var einn
hinna dugandi og drenglunduðu
íslenzku frumherja.
Almanakið 1937
43. ár.
•
INNIHALD :
Almanaksmánuðimir, um tímatalið,
veðurathuganir og fleira.
Samkoman í Sambandskirkju
s. 1. mánudag var furðu vel sótt,
þrátt fyrir nístingsfrost og kulda
það kvöld. Að kappræðu þeirra
séra Guðm. Árnasonar og dr.
Sig. Júl. Jóhannessonar var og
hin bezta skemtun; og þá var
upplestur Mr. Tait ekki síður vel
lagaður til að koma mönnum í
gott skap.
* * *
Eimskipafélag íslands varð 23
ára síðastl. sunnudag 17. þ. m.
f tilefni af því sendi stjórn þess
og framkvæmdastjóri þeim A.
P. Jóhannssyni og Árna Eggerts-
syni eftirfylgjandi símskeyti:
“Stjórn og framkvæmdarstóri
Eimskip senda yður hugheilar
kveðjur; tilefni dagsins.”
Skeytinu svöruðu þeir á þessa
leið:
“Hamingjuóskir Eimskip.
Jóhannsson, Eggertsson”
* * ¥
Laugardaginn 2. jan., lézt á
Borgarsjúkrahúsinu í Saskatoon,
Mrs. Sigurveig J. M. Robinson,
34 ára að aldri. Hún var dóttir
Björns Josephssonar og Guðnýj-
ar Helgadóttur, er lengi bjuggu
I við Kandahar, Sask. Hún var
; greftruð í grafreit Ágústínus-
safnaðar við Kandahar, þar sem
iættfólk hennar hvílir.
* * *
Richard Beck, háskólakennari
frá Grand Forks, N. D„ var
I staddur í bænum þrjá daga fyrir
helgina. Hann mun hafa komið
til að taka þátt í störfum með
j stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags-
[ ins, sem nú er í óða önn að und-
j irbúa alt fyrir ársþingið.
* * *
Séra Guðm. Árnason frá Lun-
I dar, Man., var staddur í bænum
í í byrjun vikunnar; hann kom til
j að taka þátt í kappræðu, er fram
Ifór á samkomu í Sambands-
jkirkju s. 1. mánudagskvöld.
* * *
I
Önundur Brandsson, Swan
River, Man„ kom til bæjarins
um helgina. Hann kom með son
sinn til lækninga. f fréttum
sagði hann fátt utan bærilega
líðan fslendinga í sinni bygð.
Safn til landnámssögu Islendinga við
Brown, Manitoba, með myndum,
Eftir Jóhannes H. Húnfjörð
Drög til landnámssögu Isl. við norð-
urhluta Manitobavatns, — með
myndum. Eftir Guðmund Jóns-
son.
Söguágrip Isl. í Suður-Cypress sveit-
inni i Manitoba. Eftir G. J. Ole-
son, með myndum.
Landnámssaga mín eftir Martein
Jónsson, með myndum, skrifuð af
honum sjálfum.
Með byssu og boga. — Eftir Grím
Eyford.
Ungfrú Hulda Hermann,
hjúkrunarkona til heimilis í
þessum bæ, fór til Montreal s. i.
fimtudag. Tekur hún þar Post
Graduate Course í 6 mánuði í
Royal Victorian Hospital, í
námsgrein sinni.
* * *
Bjarni Sveinsson frá Keewat-
in, Ont., var staddur í bænum
fyrri hluta þessarar viku. Hann
kom norðan frá Lundar; hafði
verið að heimsækja þar kunn-
ingja.
hugarburðarins víðlendur, fjör-
ugur og pennafær umfram flesta
aðra. Ennfremur framhald sög-
unnar um Bjart í Nýbýli, á Eyr-
inni og í Urðarkoti, dóttir hans
Ástu Sóllilju (sem var þó ekki
dóttir hans) og' þeirra skrítna
samferðafólk. Ein nýja bókin er
um náttúrufræði, fróðleg og auð-
veld “fyrir hverja manneskju
með öllu viti, sem vill auka vit
sitt.” Kvæði eru einnig meðal
hinna nýkomnu bóka, þýddar
sögur og tímarit.
Meðlimir Fróns nota safnið ó-
keypis, utanfélagsmenn gegn
sama gjaldi og árstillaginu nem-
ur.
* * *
TVÆR GÓÐAR
SKÁLDSÖGUR
Sunnefurnar þrjár
Eins og allar hinar
Höfundurinn er frú Margit
Raven, sem nú er eitt hið fræg-
asta söguskáld Norðmanna og
hafa bækur hennar verið gefnar
út á mörgum tungumálum. —
Munu þessar sögur vera ein-
hverjar hennar beztu. Þær eru
mjög vel gefnar út, á vandaðan
pappír og í sterkri kápu. Verðið
er $1.75 hver bók. Aðeins fáein
eintök til sölu hjá mér.
Magnus Peterson
313 Horace St„ Norwood, Man.
* * *
Frónsfundur
Þjóðræknisdeildin ‘Frón’ held-
ur skemtifund fimtudaginn 21.
jan 1937, kl. 8 e. h. í neðri sal G.
T. hússins. Fráfarandi stjómar-
nefnd skilar af sér reikningum
og nýja nefndin tekur við. Pró-
fessor J. G. Jóhannesson flytur
ræðu, frú Alma Gíslason syngur
tvo flokka af einsöngvum. Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson les upp og
getur um hina nýútkomnu ljóða-
bók P. S. Pálssonar. Enginn
inngangseyrir eða samskot. —
Allir velkomnir.
HITT OG ÞETTA
Piparkerlingar hafa sérstakan
frambjóðanda í þingkosningum
Aukakosning fer fram innan
skamms í Preston kjördæmi í
Englandi. Verður þá í fyrsta
skifti í kjöri fulltrúi fyrir Sam-
band ógiftra kvenna í Englandi,
en félag þetta var stofnað ný-
lega, til þess að krefjast elli-
styrks fyrir ógift kvenfólk, er
það næði vissum aldri. Heitir
sú, er sækir, Miss Florenee
White.
* ¥ ¥
Einveran er engin byrði fyrir
þann, sem er noðursokkin í við-
fangsefni sín.
Cicero
Leiðréttingar við landnámssöguþátt
Isl. í Keewatin í Almanakinu
1936. Eftir B. Sveinsson.
Helztu viðburðir og mannalát meðal
Isl. í Vesturheimi.
Almanakið alls 120 bls.
•
Kostar 50 cents
Til sölu föstud. 8. jan. 1937
•
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON
674 Sargent Ave. Winnipeg
* * *
Bókasafn Þjóðræknisdeildar-
innar Frón hefir margar nýjar
bækur til útlána. Sumt fræði-
bækur, um merkilega menn ís-
lenzka, um stóra viðburði í sögu
fslands, og um landið nú á dög-
um. Þar á meðal stór bók sem
lýsir landslagi í hverri bygð á
landinu, atvinnu og ýmsum stað-
háttum. önnur stór bók, ný-
komin, inniheldur bréf til margra
• nafnkendra manna frá einu stór-
skáldinu, sem var hvatfær um
Kjósendur í Annari Kjördeild
GREIÐIÐ FYRSTA (1)
ATKVÆÐI MEÐ
BECK
fyrir SKÓLARÁÐIÐ
Kostnaður við skólahald í Win-
nípeg er á ári hverju þrjár miljónir
doilara.
Adam BECK heldur því fram að
heimta verði fylsta virði hvers
dollars sem að út er borgaður fyrir
alþýðuskóla mentun en þó jafn-
framt veita bömunum þá beztu
uppfræðslu sem unt er, fyrir þessa
peninga skattgjaldandans.
GREIÐIÐ ATKVÆÐI
Föstudaginn 22. janúar
CIVIC ELECTION
203 CtJRBY BLDG.
ADAM BECK
hefir búið í annari kjördeild
í meir en 20 ár. Hann fór
yfrum í stríðinu. Hann hefir
ávalt tekið drjúgan þátt i
bæjar og héraðsmálum; hann
hefir töluverða reynslu í f jár-
málum.
COMMITTEE
TEL. 97 933
¥ ¥ ¥
Framfarir á sviði flugmálanna
London í des.
Árið 1919 fóru skipulags-
bundnar flugferðir fram á flug-
leiðum, sem voru samtals 3000
enskar mílur á lengd, í ár um það
bil 300,000 enskar mílur. Þar af
innan Bretaveldis 53,291, í
Bandaríkjunum 52,461, en næst
koma Frakkland með 24,457 og
Þýzkaland með 22,291 e. m. Flug-
málaframfarir í Bretlandi og
milli hinna ýmsu hluta Breta-
veldis má þakka að miklu leyti
flugfélaginu “Imperial Airways”
Eftirfarandi tölur sýna framför-
ina. Tólf mánuðina sem enduði^
31. marz 1925 flugu flugvélar
félagsins 853,042 e. m., fluttu
11,305 farþega og 218,383 bréf.
En tólf mánuðina, sem enduðu
31. marz s.l., flugu þær 8,560,718
e. m„ fluttu 68,372 farþega og
30,997,575 bréf.
* * *
Kaupir Játvarður VIII
herragarð í Danmörku?
Dönsk blöð flytja þær fréttir,
að heyrs.t hafi, að Játvarður
konungur ætli að kaupa herra-
garð í Danmörku og setjast þar
að.—Vísir.
* ¥ ¥
Það er aðeins eitt í þessum
heimi, sem er verra en að um
mann sé talað, og það er að ekki
sé um mann talað.
Oscar Wilde
Mrs. James Roosevelt, móðir
Roosevelts forseta, er orðin 82
ára gömul. Um það leyti sem
forsetakosningarnar stóðu yfir,
var oft minst á hana í dagblöð-
unum. En gamla konan lýsti
yfir því, að sér væri það mjög á
móti skapi, að um sig væri talað
í blöðunum. Hún er þeirrar skoð-
unar, að eingöngu þær konur,
sem eitthvað hafa af sér brotið,
vinni til þess að “komast í dag-
blöðin”.
* * ¥
Maður einn ,sem hafði verið
tekinn fastur, fékk skipun um að
fara í bað, áður en hann var
settur inn.
— Á vatnið að vera heitt?
spurði hann skelkaður.
— Já, sagði fangavörðurinn,
en hvað er eiginlega langt síðan
þér hafið baðað yður?
— Langt síðan — eg hefi
aldrei lent í fangelsi fyr!
* * *
Skáldið: Hvernig finst yður
nýjasta kvæðasafn mitt?
Ungfrúin: Það er ljómandi —
við ljósgrænan leslampann fer
það prýðisvel í þessu blóðrauða
skinnbandi!
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Nýr rithöfundur
í dag kemur á markaðinn bók
eftir nýjan rithöfund, Hjört
Halldórsson. Bókin er' safn af
sögum, og heitir “Hraun og mal-
bik.” Eru sögurnar allar skrif-
aðar erlendis og hafa birst áður
í dönskum tímaritum og viku-
blöðum.
“Um hvað fjalla sögurnar?”—
spurði Alþýðublaðið Hjört Hall-
dórsson.
“Þær fjalla um hitt og annað
í sveit og borg, eins og nafnið
bendir til.”
“Hvað kom til að þú byrjaðir
að skrifa?”
“Otta Geldsted rithöfundur
sagði að eg mundi geta skrifað
sögu, og Guðmundur Hagalín
stakk upp á, að eitthvað af þeim
kæmi út í bókarformi á íslenzku.
Þessir eru því meðsekir!”
Hjörtur Halldórsson er fjöl-
hæfur listamaður. Hann er út-
skrifaður píanóleikari frá músik-
háskólanum í Kaupmannahöfn,
og hefir seinna stundað nám við
listháskólann í Vínarborg.
¥ * *
“Ljós heimsins”
Extrabladet í Kaupmannahöfn
birtir viðtal við Halldór Kiljan
Laxness, þar sem skýrt er frá
því, að hin nýja bók hans eigi að
heita “Ljós heimsins” og muní
hún koma út á íslandi eftir fáar
vikur. Þau ummæli hefir blaðið
eftir Laxness, að fslendingasög-
urnar séu svo vel ritaðar, að ó-
þarft sé að rita þær upp að nýju,
og ætti aðal-verkefni íslenzkra
rithöfunda að vera það, að skrifa
um ísland vorra tíma.
Þá skýrir Halldór frá því í við-
talinu, að á meðan hann dvald-
ist í Strassbourg í Þýzka-
landi(?) hafi hann verið sakað-
ur um að hafa komið af stað
kommúnistiskum upphlaupum.
—Alþbl. 9. des.
¥ ¥ ¥
Nýr “HólastóIF
í Skagafirði
Skagfirðingafundur var hald-
inn að Hótel Borg í fyrrad. kl. 5.
Boðaði Árni Hafstað bóndi í Vík-
um til fundarins, en hann sóttu
30—40 manns.
Á fundinum var stofnuð deild
úr Skagfirðingafélaginu, sem
ætlað sér að vinna að því að gera
fjölbreytta menningarstöð við
hverina á Reykjarhóli í Skaga-
firði. Þar er ætlunin að byggja
barnaskóla, héraðsskóla, sund-
laug,1 almenna íþróttastöð fyrir
héraðið og gróðrarskála. Aðal-
deild félagsins var stofnuð í
ákagafirði í sumar, en gert er
ráð fyrir, að deildir úr félaginu
verði síðar stofnaðar á Akur-
eyri, meðal landa í Vesturheimi
og ef til vill víðar.
f stjórn Reykjavíkurdeildar-
innar voru kosnir: Hermann
Jónasson, forsætisráðherra; —
Steingrímur Steinþórsson, bún-
aðarmálastjóri; Magnús Guð-
mundsson, alþingismaður; Pétur
Jónss, bókhaldari frá Brúnastöð
um; Pálmi Hannesson, rektor.
Mun stjórn þessa félags vafa-
laust leita síðar eftir þátttöku
fleiri Skagfirðinga í Reykjavík
og nágrenni, þótt þeir mættu
ekki á stofnfundinum í fyrra-
dag.
Nýja Dabl. 8. des.
¥ * *
Matthíasar-ljóðin
í einni bók
Heildarútgáfa af ljóðmælum
Matthíasar Jochumssonar er nú
komin út í einu bindi á nál. 1000
baðslíðum. útgefandi þessa
merka ljóðasafns er Magnús
Matthíasson. En Þorsteinn
Gíslason ritstjóri hefir undirbú-
ið undir prentun.
Þarna eru saman komin öll
frumsamin ljóð Matthíasar og
ljóðaþýðingar, sem til hefir
náðst, að undanteknum heildar-
verkum af þýðingum, og er þar
allmikið af Ijóðum, sem aldrei
hafa verði prentuð áður.
Er frágangur allur á útgáfu
þessari mjög vandaður, samboð-
inn efninu.
Munu allir ljóðelskir fslending-
ar fagna útgáfu þessari.
—Mbl. 16. des.
* * *
ólafur Jóh- Sigurðsson
rithöfundur var meðal far-
þega með Brúarfossi síðast á
leið til Kaupmannahafnar. Mun
hann dvelja þar um óákveðinn
tíma og kynna sér bókmentir o.
fl.—15. des. N. Dagbl.
* ¥ ¥
Maður druknar
í Lagarfljóti
Það slys vildi til í fyrrakvöld,
að Baldur Sigurbjörnsson frá
Ekkjufelli druknaði í Lagar-
fljóti.
Varð það með þeim atvikum,
að Baldur og tveir menn aðrir,
Sigfús Kristjánsson frá Meðal-
nesi og Jón Jónsson frá Skeggja-
stöðum, ætluðu yfir fljótið að
Égilsstöðum.
Gengu þeir út á nýlagðan ál,
sem liggur upp með landinu, en
annars var góður ís á þessum
slóðum.
Sigfús féll fyrstur í vökina,
en þá var svo mikil ferð á hin-
um, að þeir, gátu ekki stöðvað
sig, og hentust fram af skörinni.
Jóni og Sigfúsi skaut þegar upp
og komust þeir nauðuglega upp
úr. Baldur sáu þeir aldrei. —
Hans var leitað í fyrrakvöld á-
rangurslaust, en í gær fanst lík
hans. Baldur var 22 ára gam-
all.—Mbl. 13. des.
* * •
Drukknun
Tveir menn á Hellisandi, þeir
Þorvarður Þorvarðarson, Skuld,
og Gísli Þorstinesson, Hlíð,
druknuðu s. 1. miðvikudag. Fóru
þeir um kl. 16 út í Krossavík til
þess að vitja um vélbát, er lá
þar á víkinni, en hvassviðri var,
og sjógangur mikill. Tóku þeir
kænu og settu á flot með aðstoð
nokkurra drengja, er þar voru
staddir, og vildu róa fram í vél-
bátinn “Melsted”, er Þorvarður
átti, og fella siglutréð. Var þá
meira en hálffallinn sjór og mjög
stutt út í bátinn. Þegar þeir
voru komnir skamt frá landi tók
straumur bátinn og fengu þeir
MESSUR og FUNDIR
I kirkfu SambandttafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaOarnefndin: Fundlr 1. fftsfcu-
de^hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
KvenfélagiS: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl# 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki song-
flokkurinn á hverju fimtu-
dag'skvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskóltnn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ekki við neitt ráðið.
Þegar drengirnir sáu bátinn
berast út úr hafnarmynninu
urðu þeir óttaslegnir og hlupu
heim, og sögðu tíðindin. Komu
þá menn á vettvang og hrundu
fram björgunarbátum. Þá var
tekið að skyggja, og sást hvorki
báturinn né bátverjar.
Um kveldið var gengið með
sjónum og leitað langt fram á
nótt, og fanst þá kænan brotin
í spón uppi í klettum. Á fimtu-
dagsmorgun var leit hafin að
nýju, og fanst þá lík Gísla, en
lík Þorvarðs var ófundið, er síð-
ast fréttist.
Þorvarður var ókvæntur, en
Gísli lætur eftir sig ekkju og 6
börn í ómegð.—Vísir, 11. des.
Nýja IjóSabókin
“Norður-Reykir”
eftir Pál. S. Pálsson er til sölu
hjá eftirfylgjandi útsölumönn-
um:
Árborg: G. O. Einarsson
Foam Lake: John Janusson
Gimli: Kr. W Kernested
Geysir: T. Böðvarsson
Glenboro: G. J. Oleson
Kandahar: S. S. Anderson
Keewatin: S. Björnsson
Leslie: Th. Guðmundsson
Piney: S. S. Anderson
Selkirk: K. S. Pálsson
Steep Rock: F. E. Snidal
Winnipegosis: Ingi Anderson
Blaine, Washi, Rev. H. E. John
son
Cavalier, N. Dak.: J. K. Einars-
son
Chicago, 111.: Geo. F. Long
Garðar, N. D.: J. S. Bergmann
Mountain, N. D.: Th. Thorfinns-
son
Winnipeg:
Magnus Peterson
313 Horace St., Norwood
Viking Press Ltd.
Sarg&nt Ave.
P. S. Pálsson
796 Banning Street
Bókin kostar $1.50 í kápu —
$2.00 í skrautbandi.
VERZLUNARNÁMSKEIÐ
Þjóðræknisfélag Islendinga í
Vesturheimi hefir til isölu nám-
skeið við alla höfuö verzlunar-
skóla bæjarins með vægum
kjörum. Ungt fólk er hefir i
huga að leggja fyrir sig verzl-
unarnám ætti að leita upplýs-
inga um iþetta. Talið við eða
símið: Á. P. Jóhannsson, 910
Pialmerston Ave., sími 71177.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
WELLINGTON BAKARÍIÐ
764 Wellington Ave. Sími 25 502
Hið einasta íslenzka bakarí í Winnipeg borg
Kringlur og tvíbökur af beztu tegund og lagað úr
bezta efni, ásamt fjölda, bæði íslenzkum og canadiskum
brauð og köku tegundum, sem seljast ný úr ofninum á
hverjum degi.Brúðarkökur bezt lagaðar og ljómandi vel
puntaðar einnig áskrifaðar hamingjuóskir. Kringlur á
15c í heildsölu og Tvíbökur á 20c þá keypt eru 10 pd. eða
meira. íslenzk Rúgbrauð 20 oz. 2 fyrir 15c og 6c þá tekin
eru 10 brauð minst, (geymast vel, og mjög góð til neyzlu,
löguð af bezta rúgmjöli, (fine rye).
Gleymið ekki að okkar nýja símanúmer er 25 502.
Bakaríið hefir ennfremur sett upp búð að 701 SAR-
GENT AVE„ þar sem allar ofantaldar brauðtegundir
verða til sölu.