Heimskringla - 27.01.1937, Qupperneq 8
8. SIÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 27. JANÚAR 1937
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
Næstkomandi sunnudag fara
fram tvær guðsþjónustur í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg, eins
og undanfarið, á ensku kl. 11 f.
h. og á íslenzku kl. 7 e. h. Séra
Philip M. Pétursson messar við
báðar guðsþjónusturnar. Fjöl-
mennið!
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Riverton sunnud. þ.
31. jan. n.k. kl. 2 e. h.
* * *
Útsala á heimatilbúnum mat
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til sölu á heimatilbúnum
mat í samkomusal safnaðarins
laugardaginn 30. jan. kl. 2 e. h.
Verður þar á boðstólum lyfrar-
pylsa, blóðmör, rúllupylsa og ó-
tal tegundir af heimabökuðum
kökum og brauði. Að kvöldinu
verður spilað bridge og ágæt
verðlaun vei'tt. Nefndin vonar
að vinir félagsins komi bæði á
söluna og spilafundinn.
Forstöðunefndin.
* * *
Sveinn Jóhannsson, 157 Nas-
sau St., Norwood, Man. lézt s. I.
laugardag á Victoria spítalanum,
sextugur að aldri.
“Stoðir Samfélagsins”
Sjónleikurinn “Stoðir Samfé-
lagsins”, verður leikinn í sam-
komusal Sambandskirkju næstk.
mánudagskvöld (1. feb.). Þeir
sem ekki hafa enn séð leikinn og
allir sem góðum leiksýningum
unna, ættu að nota þetta tæki-
færi, því það verður eflaust í
síðasta sinni, sem það býðst.
* * *
G. S. Thorvaldson lögfræðing-
ur, hélt ræðu s. 1. viku í Mac-
donald-Cartier klúbbnum um
nauðsyn “Union” stjórnar í
Manitoba undir nýjum leiðtoga.
Ræðan vakti hér athygli og var
hugmyndin að birta hana í þessu
blaði, en dagur var að kveldi
kominn áður en varði, svo það
verður að bíða næsta blaðs.
* * *
Gjafir til fyrirhugaðs sumar-
bústaðar barna:
Frá M. A. Thorfinnsson, Univer-
sity Farm, St. Paul, Minn. —
$5.00.
Frá S. M. Thorfinnsson, For-
man, N. Dak. $5.00.
Innilegt þakklæti fyrir hönd
stjórnarnefndar Kvenfélagasam-
bandsins.
Mrs. G. M. K. Björnsson,
féhirðir.
Leikfélag Sambandssafnaðar.
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 1. FEBRÚAR
verður sýndur í samkomusal Sambandssafnaðar
hinn frægi sjónleikur eftir Henrik Ibsen
Stoðir Samfélagsins
leikur þessi er í 4 þáttum og fer fram í Strandbæ í
Noregi, en gerist að efni til um allan heim.
Sækið leikinn. Njótið skemtunar og
uppbyggingar þetta kvöld.
Þetta er síðasta tækifæri að sjá þenna merka leik.
Leikurinn byrjar kl. 8.15 síðd. Inngangur 50c
ÁTJÁNDA ÁRSÞING
Þjóðræknisfélagsins
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu við Sargent Ave., Winnipeg
22, 23, og 24., febrúar 1637
DAGSKRÁ:—
1. Þingsetning. 8. Útbreiðslumál.
2. Skýrsla forseta. 9. Fjármál.
3. Kosning kjörbréfa- 10. Fræðslumál.
nefndar. 11. Samvinnumál.
4. Kosning dagskrár- 12. Útgáfumál.
nefndar. 13. Bókasafn.
5. Skýrslur embættis- 14. Kosning embættis-
manna. manna.
6. Skýrslur deilda. 15. Ólokin störf.
7. Skýrsla milliþinga- 16. Ný mál.
nefndar. 17. Þingslit.
Samkvæmt 21. gr. laga félagsins er deildum þess
heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja
tuttugu eða færri gildi félaga deildarinnar; gefi þeir full-
trúa skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á
þingi og sé umboð staðfest af forseta og ritara deildar-
innar.
Þing sett mánud. morgun 22. febrúar kl. 9.30. Þing-
fundir til kvelds.
Þriðjudagsnforgun þ. 23. kl. 9.30 kemur þing saman
að nýju. Þingfundir til kvelds. Það kveld kl. 8. heldur
deildin Frón sitt árlega íslendingamót. Miðvikudags-
morgun hefjast þingfundir aftur og standa til kvelds. Það
kveld þ. 24. kl. 8.00 fara fram þingslit.
Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum
þingsins verður gerð síðar.
Winnipeg, 26. janúar 1937.
í umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins.
Rögnv. Pétursson (forseti) Gísli Johnson (ritari)
Þessir eru leikendur í sjónleiknum “Stoðir Samfélagsins”
er sýndur verður í samkomusal Sambandssafnaðar mánudags-
kveldið 1. febrúar næstk.:
Konsúll Karsten Bernick.
Konsúlsfrú Betti Bernick...
Ungfrú Marta Bernick....
Lona Hessel.............
Ólafur Bernick..........
Stórkaupmaður Rummel....
Vigeland kaupmaður......
Sandstad kaupmaður......
Kandidat Hilmar Tönnesen
Jóhann Tönnesen.........
Krap ráðsmaður..........
Akjúnkt Rörland.........
Ánn skipasmiður.........
Frú 'Rummel.............
Dina Dorf...............
Frú Holt................
Frú Lynge_______________
Ungfrú Hilda Rummel:....
Ungfrú Netta Holt.......
.......Ragnar Stefánsson
.....Mrs. Kristín Johnson
.....Mrs. Guðrún Eiríksson
...........Miss Elin Hall
.....Friðrik Kristjánsson
_____Tryggvi Friðriksson
.......Parmes Magnússon
...........Jón Ásgeirsson
.......Þorvaldur Pétursson
_______Hafsteinn Jónasson
............Guðm. Jónasson
........Þorleifur Hansson
............Björn Hallsson
...Miss Thora Magnússon
___Miss Fanney Magnússon
Miss Sigurlaug 'Friðriksson
...Miss Margrét Pétursson
...Miss Hrefna Ásgeirsson
.....Miss ólöf Sigmundson
Salman Jóhannes Westman,
772 Home St., Winnipeg lézt s. 1.
föstudag á Grace spítala. Hann
var 81 árs gamall. Hann hafði
verið í þessu landi í 55 ár og af
þeim tíma unnið 40 ár hjá CPR
félaginu; var hann á eftirlaun-
um frá félaginu síðustu árin.
Kona hans dó 1929. Sex synir
þeirra hjóna eru á lífi. Heita
þeir Fríman, Francis, Elliott,
Theodore, Oliver, allir í Winni-
peg og Alfons í Los Angeles. —
Westman var ættaður af fsa-
firði.
* * *
George Long frá Chicago kom
til bæjarins á þriðjudagsmorgun
til þess að sjá um útför föður
síns, Bergsveins M. Long.
* * *
Þriðjudaginn 19. þ. m. lézt að
heimili sínu í Selkirk,-Man.,
Grímur G. Eymann. Hann var
79 ára gamall. Hann yar jarð-
sungínn s. 1. föstudag af séra
Carl Olson. Hinn * látni var
sæmdar maður og vinsæll. Jarð-
arförin var fjölmenn.
* * *
Jón J. Bíldfell kom s. 1. fimtu-
dag vestan frá Wynyard, Sask.,
en þar hefir hann verið nærri
tvær vikur; fór þangað með syni
, sínum dr. J. J. Bíldfell, er við
læknishéraði dr. K. Austmanns
tók, sem áður er getið. Mr. Bíld-
fell sagði skarlatssóttina í bæj-
um þar vestra í rénum; hún
hafði verið talsvert útbreidd, en
væg og engir dáið úr henni, það
hann vissi; skólar voru aftur
teknir til starfa.
* * *
Mrs. Signý Thorsteinsson, 717
Simcoe St., Winnipeg, lézt s. 1.
fimtudag að heimili sínu. Hún
var 69 ára, ættuð af Norðurlandi
á íslandi.
* * y
Jón Sigurðsson Chapter I. O.
D. E., heldur sinn ársfund að
heimili Mrs. H. G. Nicholson,
557 Agnes St. á þriðjudaginn 2.
feb. n.k. kl. 8 e. h.
Verða þar lagðar fram skýrsl-
ur nefndarmanna og standandi
nefna. Embættismenn kosnir
fyrir næsta ár.
Alderman Margaret McWil-
liams flytur erindi um áhugamál
kvenna.
* * *
Almennur fundur verður hald-
in til að ræða Social Credit mál
að 662 Pacific Ave., rétt við
Sherbrooke St., föstudagskv. 29,
jan. kl. 8. Miss Salome Halldórs-
son flytur erindi. — Allir boðnir
og velkomnir.
* * *
íslenzkuskóli Þjóðræknisfé-
lagsins hóf að nýju starf sitt,
eftir jólafríið, laugardaginn 9.
jan. Gott væri fyrir alla að
minnast þess, að tíminn líður
fljótt. Ef til vill fara sumir að
vakna þegar veturinn er á enda
og tækifærið liðið hjá. Munið, að
allir eru velkomnir, að skólinn
hefst á hverjum laugardags-
morgni kl. hálf tíu. Þar eru á-
gætir kennarar, sem koma stöð-
ugt. Sækið laugardagsskólann.
* * *
Surprise Tea, hefir Ladies’
Guild Jóns Bjarnasonar skóla 3.
feb. n. k. í skólanum. Verður
þar til sölu á gjafverði heimatil-
búinn matur; hefst salan kl. 2.30
e. h. og helzt til kl. 5.30. Kon-
urnar sem fyrir þessu standa
vænta aðstoðar fslendinga og
viðskifta.
HITT OG ÞETTA
Sveitasæla
Enskúr rithöfundur segir: —
Sveitalífið er mönnunum hollast.
f innsta eðli sínu þráir hver
maður að komast út úr skarkala
og ryki bæjanna — út í guðs
græna náttúruna. Hví ekki að
hlýða þessari hvöt, sem bendir
okkur til sveitanna? Þar bíður
okkar heilsusamlegt líf og ónot-
aðar orkulindir. f sveitum Eng-
lands er fólginn eini möguleik-
inn, sem fyrirfinst, til þess að
endurnýja hamingju og farsæld
þjóðar vorrar.
* ¥ *
Hafa trén sál?
Það er eitthvert dularafl fólg-
ið í gömlum trjám, einhver
þokki, sem hrífur suma menn
miklu meira en hið fegursta
blómskrúð. Þannig er það vitað
um þýzka stjórnmálamanninn
Bismarck, að hann flúði oft út í
trjágarð sinn, er hann var orð-
inn þreyttur á umgengni við vini
sína og á stjórnmálaáhyggjum.
Hann og trén hans skildu hvert
annað. Oft var hann vanur að
vera* aleinn meðal trjáanna tím-
unum saman. Þorðu þjónar hans
þá ekki fremur að ónáða hann
heldur en þó að hann hefði verið
í kirkju.
* * *
Gleymum sjálfra okkar vegna
Ensk kona kemst þannig að
orði í tímaritsgrein, sem birtist
nýlega:
— Við getum ekki notað minni
okkar — þessa dýrmætu náðar-
gáfu — á verri hátt en þann, að
muna sífelt eftir öllum mótgerð-
um annara manna .okkur til
handa. Slíkt andlegt jórtur,
sem kallað er langrækni, gerir
okkur sjálf að verri og bölsýnni
mönnum en ella.
Minni mannanna ætti að vera
alt í senn: Málverkasafn, tón-
listarsalur og bókasafn. Þangað
ættum við sífelt að geta flúið,
ekki til þess að hugsa ilt um
aðra, heldur til þess að rifja upp
skemtilegustu atburði, sem á
daga okkar hafa drifið. Við
eigum að læra þá list, að gleyma
því, sem okkur er óholt að muna.
* * *
f kauptúni einu hafði verið
komið upp slökkvistöð. — Hvaða
áletrun haldið þið, að við ættum
að láta setja á stöðina? spurði
lökkviliðsstjórinn aðstoðarmenn
sína. Eftir nokkra umhugsun
mælti einn af mönnunum:
— Eg sting upp á því, að þessi
áletrun verði sett á húsið: Von-
andi líkist þessi stöð piparmeyj-
unum hér í borginni að því leyti,
að hún verður jafnan reiðubúin,
en aldrei ónáðuð. —Samtíðin.
* * *
öll hús í ítalíu verða bygð
með skýli gegn loftárásum
Ný tilskipun, sem gefin var út
á ítalíu nýlega, skyldar alla þá,
er framvegis byggja sér hús, að
byggja um leið skýli til varnar
gegn loftárásum. Skýlið á að
vera úr járnbentri steinsteypu,
6 þumlunga þykkri, að minsta
kosti sex fet á hæð, og á að ætla
15 fermetra gólfsvæði fyrir
hvern mann, sem á að nota skýl-
ið.
Bílstjóri, við gangandi mann
—Sumir ganga þannig á götu, að
það er eins og þeir eigi götuna!
Vegfarandinn: — Og sumir
bílstjórar aka þannig á götu, að
það er eins og þeir eigi bílana,
sem þeir eru í!
Nýja IjóSabókin
“Norður-Reykir”
eftir Pál. S. Pálsson er til sölu
hjá eftirfylgjandi útsölumönn-
um:
Árborg: G. O. Einarsson
Foam Lake: John Janusson
Gimli: Kr. W Kemested
Geysir: T. Böðvarsson
Glenboro: G. J. Oleson
Kandahar: S. S. Anderson
Keewatin: S. Björnsson
Leslie: Th. Guðmundsson
Piney: S. S. Anderson
Selkirk: K. S. Pálsson
Steep Rock: F. E. Snidal
Winnipegosis: Ingi Anderson
Blaine, Washi, Rev. H. E. John
son
Cavalier, N. Dak.: J. K. Einars-
son
Chicago, III.: Geo. F. Long
Garðar, N. D.: J. S. Bergmann
Mountain, N. D.: Th. Thorfinns-
son
Winnipeg:
Magnus Peterson
313 Horace St., Norwood
Viking Press Ltd.
Sargent Ave.
P. S. Pálsson
796 Banning Street
Bókin kostar $1.50 í kápu —
$2.00 í skrautbandi.
ÚR DAGBÓK
BÚÐARSTÚLKUNNAR
Frh. frá 7 bls.
segir hann í þýðari rómi: — Það
er ekki hægt að kaupa alt. Þau
verða líka að bíða betri tíma.
Hann tekur böggulinn undir
höndina og virðir mig ekki þess
að kveðja. Hún þar á móti kink-
ar kolli vingjarnlega til mín og
trítlar svo á eftir fram búðina.
Göngulagið er þreytulegt, og
þessi auðnuleysissvipur, sem
ekki er hægt að benda á, hvar
eða í hverju liggur, finst mér
einkenna baksvipinn.
Eg stend lengi hugsi og horfi
á eftir þeim út úr dyrunum. Eg
hefi séð glæsilega dúka hér úr
búðinni verða óþekkjanlega eft-
ir lítinn tíma, vegna trassalegr-
ar meðferðar. Eg hefi séð dýr-
um og mjög góðum silkiefnum
hent innan um annað rusl. Þau
hafa að síðustu mist gljáan og
sína upprunalegu fallegu áferð,
— orðið svo gersamlega eyði-
lögð, að það hefði ekki verið á
neinna færi að meta hin upp-
runalegu gæði þeirra.
Konan sú arna líktist þessum
útþvældu dúkum, íþrátt fyrir
fríðleikann, sem var svo eftir-
tektarverður, og hljóðleikann,
sem yfir henni hvíldi, nú eins
og í fyrra skiftið.
Hvar var nú líðandi lækjarnið-
urinn, sem suðaði fyrir eyrum
mér, fyrst þegar eg sá hana?
Eða grasilmurinn, sem mér fanst
eins og leggja af fötum hennar?
Eg hrekk við — því að klukk-
an slær.
Dagsverki mínu er lokið að
þessu sinni. Eg sveipa kápunni
þétt að mér. Veðrið er dimt og
hrásalagalegt, eins og vond sam-
vizka mannanna.
MESSUR og FUNDIR
1 kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaSarnefndin: Fundlr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrnta
mánudagskveld I hverjum
mánuði.
KvenfélagiS: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki NÖng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Inni í herberginu mínu er hlýtt
og vistlegt. Hér bíður mín þessi
helga kyrð, sem viðheldur lífi
mínu. En í kvöld er engin kyrð
í huga mér, þrátt fyrir einver-
una. Þessi hjón hafa raskað
hugarró minni og komið geði
mínu í óeðlilegar sveiflur. Eg
get sem sé ekki hrundið þeim úr
hug mér, hvorki honum né henni,
og þó koma þau mér ekkert við.
Þessi mæðulegi svipur konunn-
ar fylgir mér eins og svartur
skuggi. Hann hefir Iæðst alla
leið upp stigann með mér og inn
í herbergið mitt — alveg óboð-
inn. Eg vil helzt vera laus við
hann. Hann er einn af þessum
skuggamyndum lífsins,.sem lifa
í bakhúsum fátækrahverfanna,
og hefir ekkert leyfi til þess að
læðast inn í notalegar íbúðir ann-
ara manna.
Slitlegar og horaðar hendur
konunnar eru að þvælast fyrir
mér, óstyrkar og skjálfandi af
eftirvæntingu þess, hvað nú sé
framundan. Og nú tek eg fyrst
eftir því, hvað hún er lítil innan
í gatslitinni kápunni. Varla
annað en beinin og skinnið —
og svo þetta eitthvað, sem á að
lifa eftir dauðann, lifa, þroskast
og stækka í grindhoruðum lík-
ama, sem hefst við í skuggum
bakhúsanna og sér hvorki sól né
stjörnur himinsins.
Mér verður hrollkalt.
Hversvegna að vera að hugsa
um það, sem mér kemur ekkert
við, — manneskjur, sem eg þekki
ekki, hefi ekkert saman við að
sælda og veit ekkert um annað
en það, að þær lifa og eru til?
Eg sezt við ofninn, þó að sjóð-
heitt sé í herberginu, og skara í
glæðurnar með skörungnum.
Það hefir margt borið fyrir
augu mín og eyru við búðarborð-
ið. Sumt af því er svo furðulegt,
að mennirnir myndu telja það
ýkjur einar, ef allir atburðirnir
væru skráðir með svörtu letri á
hvítan pappír.
Og þó eru þeir raunverulegir,
eins og lífið sjálft.
Eg sit hljóð og hugsi og fletti
blaði og blaði í dagbók minni, ef
ske kynni að eitthvaðv-yrði fyrir
mér, sem eg réði við að skilja.
En hvað skyldi það svo sem
vera að lokum, sem mannlegur
skilningur kryfur til hlítar?
Dagbók mannlífsins verður
mér æ torskildari, eftir því sem
eg lifi lengur og sé fleira.
—Eimreiðin.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
IDept. 160, Preston, Ont.
WELLINGT0N BAKARÍIÐ
764 Wellington Ave. Sími 25 502
Hið einasta íslenzka bakarí í Winnipeg borg
Kringlur og tvíbökur af beztu tegund og lagað úr
bezta efni, ásamt fjölda, bæði íslenzkum og canadiskum
brauð og köku tegundum, sem seljast ný úr ofninum á
hverjum degi.Brúðarkökur bezt lagaðar og Ijómandi vel
puntaðar einnig áskrifaðar hamingjuóskir. Kringlur á
15c í heildsölu og Tvíbökur á 20c þá keypt eru 10 pd. eða
meira. íslenzk Rúgbrauð 20 oz. 2 fyrir 15c og 6c þá tekin
eru 10 brauð minst, (geymast vel, og mjög góð til neyzlu,
löguð af bezta rúgmjöli, (fine rye).
Gleymið ekki að okkar nýja símanúmer er 25 502.
Bakaríið hefir ennfremur sett upp búð að 701 SAR-
GENT AVE., þar sem allar ofantaldar brauðtegundir
verða til sölu.