Heimskringla - 21.04.1937, Side 8
8. SÍÐA.
HEIMSKR1NGLA
WINNIPEG, 21. APRfL 1937
í
>
FJÆR OG NÆR
Sækið messu í
Sambandskirkjunni _
annaðhvort morgunmessuna
eða kvöldmessuna. Morgunguðs-
þjónustan fer fram á ensku en
kvöldmessan á íslenzku. Um-
ræðuefni prestsins er altaf tíma-
bært og söngur beggja söng-
flokkanna undir stjórn ágætra
manna. — Fjölmennið við guðs-
þjónusturnar í Sambandskirkj-
unni.
* * *
í Sambandskirkjunni í Árnesi
verður messað sunnudaginn 25.
apríl kl. 2. e. h. f Riverton sama
dag kl. 8. að kvöldinu.
* * *
Messur í Yatnabygðum
Laugardags-skemtun
fer fram í samkomusal Sam-
bandssafnaðar næstkomandi tvö
laugardagskvöld, — áður en að
þessum skemtunum verður lok-
ið. Þeir sem enn hafa ekki sótt
þessar skemtanir ættu ómögu-
lega að missa af þessu síðasta
tækifæri til að njóta ánægjulegr-
ar og glaðrar kvöldstundar. —
Skemtunin hefst eins og undan-
farið, kl. 8 með spilasamkepni
og kaffidrykkju. Næst er dregið
um verðlaun og síðan söngvax*,
leikir og gamaldags dans. —
Fjölmennið!
* * *
Söngflokkur Sambandssafnað-
ar hefir verið að undirbúa söng-
skemtun, sem haldin verður 13.
| maí. Nánar auglýst síðar.
* * *
Young People Attention
Mrs. Anna Thorsteinsson frá
Leslie, Sask., var stödd í bænum
um helgina.
* * *
Mrs. Emma Guðmundsson,
kona Guðmundar Guðmundsson-
ar í Mozart andaðist nýlega á
sjúkrahúsinu í Wadena. Veiktist
hún í janúar-mánuði af misling-
um, og fékk upp úr þeim veiki
þá, er varð banamein hennar.
Var hún af norskum ættum, og
aðeins tæpra 25 ára, þegar hún
lézt. Hún lætur eftir sig þrjú
ung börn. Hún var jörðuð ?
Mozart af séra Jakob Jónssyni.
* * *
Helgi Elíasson frá Árnesi,
Man., lagði af stað s. 1. mánu-
dag vestur til Arras, B. C., Býst
hann við að reka þar búskap í
sumar eða árlangt til að byrja
með. Hann hefir áður verið þar
vestra.
Leslie, sunnud. 25. apríl, kl. 2
e. h. (sumarkomuræða).
Kandahar í lút. kirkjunni 2.
maí kl. 11 f. h.
Wynyard 2. maí kl. 2 e. h.
* * *
Spring Tea
Next Tuesday evening, April
27, the Young People will hold a
Scavenger Hunt at the meeting
in the Federated Church. Tho
meeting will start sharp on time,
and those who come late will
miss the fun. Be in the church
Yngri konur Sambandssafnað-
ar efna til skemtana og kaffi-
veitinga í samkomusal safnaðar-
ins laugardaginn 8. maí er hefst
kl. 2 e. h. og stendur til kvelds. '
Samkoma þessi verður nánar
auglýst í næsta blaði.
* * *
Kvenfélagið “Hecla” í Minne-
apolis, heldur árssamkomu sína
föstudaginn 30. apríl að 500 S.
5th St., hefst kl. 6 e. h. Kveld-
verður, góð skemtiskrá og dans.
not a minute later than 8.15. —
That is the scheduled time for
the hunt to start. Bring your
friends, — and be ready for a
good time.
* * *
Dr. Rögnvaldur Pétursson og
frú lögðu af stað í gærkvöldi
vestur til Wynyard. Þau bjugg-
ust við að dvelja vestra fram
yfir helgi.
* * *
Leiðrétting
DIRNDL
Eftir JANE DEE
Þetta er skrítið orð finst yður
ekki ? Vitið þér hvað það þýðir ?
Það mrekir nýtt kjólasnið. — |
Tizkan hefir nú leitað til Tyrol- j
héraðsins, og í hinum einkenni-
legu Alpafjalla þorpum fundið
það sem heita má hreinustu
opinberún í kjólasniði, sem er
Viðvíkjandi ummælum mínum
við ritstjóra Heimskringlu um
heysöluna hér í Árborg, er það
algert ranghermi, að eg hafi
sagt, að kaupmenn hafi boðið 8
dali fyrir tonnið, heldur hitt að
kaupmenn hafi álitið að bændur
gætu ekki selt heyið, sér að skað-
litlu fyrir minna en 5—6—7 dali
tonnið, nr. 1 og 2 og 3.
Ágúst Einarsson
ATHS.: Þó vér birtum “leið-
aiveg nýtt og tæiandi. Bygt á réttingu” þessa, rekur oss ekkert
Dimdl hinum djarftsniðnu sam-
fellum hinna innlendu stáss-
meyja. Tízkan hefir svo full-
komnað þetta Dimdl, og er það
nú í fyrsta sinni til boða, á
þessu vori. Það er yndislegt
snið sem leggur áherzlu á að
leiða í ljós fegurð kvenlegs
vaxtarlags, heiliandi að sýn, ein-
falt og bamslega aðlaðandi. Svo
nú vitið þér, þegar þér sjáið
þetta orð, hvað það þýðir.
Þetta er aðeins ein af hinum
mörgu skemtisögum sem skýra
uppmna ýmsra tizkusniða. Mér
em sendar þær inn á skrifstof-
una frá tízkustöðvum víðsvegar
að út um allan heim.
Eg er í óslitnu sambandi við all-
ar hinar síðustu framfara til-
raunir í kvenfatnaðargerð og er
hér til þess að veita yður þær
upplýsingar sem þér kunnið að
óska. Skrifið og segið mér frá
vandamálum yðar — látið mig
hjálpa yður til þess að ná há-
stigi tízkunnar.
L.
g** f^
EATON'S
minni til að hafa átt ,tal um
“skaðlitla sölu á heyi” við hátt-
virtan höfund. En vilji hann nú
heldur hafa sagt það, skal hon-
um það ekki meinað.
Ritstj. Hkr.
* * *
Nýlega voru gefin saman af
séra Jakob Jónssyni Sigfríður S.
Tómasson frá Mozart og Þorlák-
ur Pétur Wilson Josephson frá
Wynyard.
* * *
I f febrúarmánuði síðastliðnum
voru gefin saman af séra Jakob
Jónssyni, Anna Margrét Inge í
Foám Lake og Sigmundur Helga-
son frá Leslie. Fór athöfnin
fram á heimili brúðarinnar, og
var þar fjölmenni samankomið.
* * *
Mrs. Th. Bjarnason, kona
Thorsteins Bjarnasonar fyrrum
hótelsstjóra í Winnipeg, dó 14.
apríl að heimili þeirra hjón^ í
Los Angeles, Cal. Mrs. Bjarna-
son var fædd að Hnausum, Man.
Hana lifa eiginmaður hennar og
7 börn, uppkomin.
Sumarmála Samkoma
Kvenfélag Sambandssafnaðar minnist sem að undanförnu
sumarkomunnar með skemtisamkomu er haldin
verður í fundarsal kirkjunnar
* * *
Ungfrú Aldís Hördal frá Wyn-
yard, Sask., var stödd í bænum
yfir helgina.
* * *
Tómas Hördal, faðir Egils
Hördal í Wynyard og þeirra
systkyna, er nýlátinn 85 ára að
aldri. Var hann síðustu árin
mjög farinn að heilsu og að lok-
um blindur. Hann lézt að heim-
ili dóttur sinnar norður af Wyn-
yard-bæ. Jarðsunginn var hann
frá lútersku kirkjunni í Wyn-
yard af séra Jakob Jónssyni, en
grafinn við hlið konu sinnar í
Foam Lake kirkjugarði. Tómas
heitinn kom vestur um haf um
þrítugsaldur úr Hörðudal á fs-
landi. Stundaði hann búskap og
járnsmíði, fyrst í Norður-Dak.,
en síðar í Vatnabygðum.
* * *
“Tvær flugur
í einu höggi”
Þann 29. þ. m. (annan fimtu-
dag) verður flutt fróðlegt erindi
og fjörugt í Goodtemplarahús-
inu. Gunnlaugur kaupmaður Jó-
hannsson flytur þar þá 50 ára
endurminningar. Verður það
lýsing á mönnum og málefnum,
háttum og högum, landi og lýð
bæði hér í álfu og á íslandi; eins
og það alt hefir litið út fyrir
hans athugulu sjón.
Þeir sem þekkja Gunnlaug ef-
ast ekki um að han flytji óhikað
bæði lof og last, lýsi bæði því
sem ljótt er og fagurt, ílt og gott
hlífðarlaust og án nokkurs tiilits
til þess hver í hlut á.
Gunnlaugur sér ýmislegt með
öðrum augum en flestir aðrir og
getur látið aðra sjá hlutina með
sér 1 öðru Ijósi en þeir gerðu áð-
ur.
Þessi samkoma verður ókeyp-
is, en samskot ^ekin til arðs fyr-
ir sjúkrasjóð stúknanna. úr
þeim sjóði hafa margir sjúkir og
sæluvana notið liðs og líknar.
Hér er því hægt að slá tvær flug-
ur í einu höggi: njóta ágætis
skemtunar við hláturskapandi
fyndni og styrkja ágætt málefni,
sem alla snertir.
Gleðin og Gunnlaugur eiga alt-
af samleið; hvar sem hann er
staddur og lætur til sín heyra
þar er gleðin í hásæti.
Munið eftir kvöldinu 29. þ. m.
fyllið fundarsalinn og hressið
ykkur á heilnæmum hlátri, hann
hefir samskonar áhrif á sálina
og sólskinið á líkamslíðanina.
Sig. Júl. Jóhannesson
* * *
Til leiðbeiningar
FIMTUDAGSKVELDIÐ 22. þ. m.
(Sumarkveldið fyrsta) kl. 8. e. h.
SKEMTISKRÁ =
1. Ávarp forseta
2. Vocaí Solo...................Mrs. K. Jóhannesson
3. Upplestur..........................P. S. Pálsson
4. Violin Duet.......Pálmi Pálmason, Fred Woodard
5. Ræða.......................Thorvaldur Pétursson
6. Vocal Solo............................P. Magnus
7. Piano Solo...................Ragnar H. Ragnar
8. Veitingar.
Inngangur verður ekki seldur en samskota verður
leitað meðan á skemtiskránni stendur.
Fjölmennið og fagnið sumri!
Forstöðunefndin
Samkvæmt ný út gefinni til -
skipun utanríkisdeildarinnar í
Ottawa verða allar beiðnir um
vegabréf (Passports) til Evrópu
að ransakast nákvæmlega, áður
en vegabréf er gefið út. Afleið-
ingarnar eru því óumflýjanlega
þær, að það tekur miklu lengri
tíma en áður, fyrir þá sem til
Evórpulandanna ferðast að fá
vegabréf. Það er því nauðsyn-
legt fyrir þá sem til þeirra landa
ætla að ferðast að taka þessa
breytingu til greina og sjá um
að beiðnir um vegabréf séu
sendar til utanríkisdeildarinnar í
Ottawa í tæka tíð. Frekari upp-
lýsingar um þetta og alt annað-
sem að Evrópuferðum lýtur geta
menn fengið með því að skrifa
eða síma til J. J. Bíldfell, 238 A
■ lington St., Winnipeg. — Sími
72 740.
* * *
Gott og bjart framherbergi til
leigu án húsagagna. 591 Sher-
burn St., Sími 35 909.
* * *
Gott heimili til sölu
með sumareldhúsi í bænum
Lundar, Man., nægu og góðu
vatni, tveim ekrum af landi,
góðu hænsnahúsi fyrir 150
hænsni, íshúsi, verkfærasmiðju,
fjósi, hlöðu og fóðurgeymslu-
kofa, öllu vel viðhaldið. Sölu-
skilmálar $885 í peningum. Enn-
fremur ef æskt er 160 ekrur'af
góðu landi 2 mílur.frá Lundar.
Se.mja má um skilmála á því. —
Þessi niðursetta sala stafar af
veikindum eiganda, er í annað
loftslag verður að flytja. Snúið
yður til J. E. Straumfjörðs,
Lundar, Man.
BRÉF TIL HKR.
Árborg, Man.,
17. apríl, 1937
Hr. ritstj. Hkr.:
f fréttagrein sem birtist í Hkr.
-14. apríl er þess getið að sveitai--
ráð Bifröstsveitar hafi keypt hey
af bændum fyrir $5.00 tonnið
en kaupmenn hafi áður boðið
$8.00 fyrir tonnið.
Sannleikurinn í þessu máli er
sá að í haust fór eg til Regina í
því augnamiði að útvega markað
fyrir hey héðan úr sveitinni. —
Árangur af þeirri ferð og ítrek-
aðar tilraunir bréflega í sömu átt
af hendi sveitarskrifarans varð
sá, að í febr. mánuði fengum við
tilboð um að senda nokkur “kör”
fyrir ákveðið verð sem var $3.00
fyrir nr. 3; $4.00 fyrir nr. 2 og
$5.00 fyrir nr. 1. Við létum þetta
tilboð /Vestan að berast sam-
stundis út til bænda og urðu und-
irtektirnar þær að okkur bauðst
mikið meira hey en þessi pöntun
innibatt.
Nokkru seinna fengum við
aðra pöntun en okkur þótti verð-
ið lágt og gerðum tilraun til að
fá það hækkað um $1.00 tonnið
en fengum því ekki framgengt.
Eftir nokkurt þjark um þetta
urðu úrslitin þannig að við feng-
um $5.00 fyrir nr. 2. Með þessu
var krafa okkar nokkurnvegin
uppfylt. Þar sem við gerðum
ráð fyrir að langmestur hluti af
heyi mundi verða flokkað nr. 2.
(Það hefir sýnt sig að vera um
90%.)
Viðvíkjandi þessu $8.00 verði
sem fréttin segir að kaupmenn
hafi boðið fyrir hey er það að
segja að Red Top hey var selt
hér í sumum tilfellum sem eg
veit um á $4.75 tonnið og í einni
búð hér í sveitinni var Timothy
og Red Top “mixed” boðið til
sölu fyrir $6.00 tonnið. • ‘
f Free Press Prairie Farmex’
stóð auglýsing í febr frá bænda
búðinni í Árborg um tilboð
heyi $5.50 tonnið af Midland og
$6.00 fyrir Red Top. Fékk
bændabúðin fáar eða engar pant-
anir á þetta verð. f janúar var
Sask. stjórnin að kaupa hey í
Reaburn, Marquette og Rath-
well fyrir sama verð og hún
bauð okkur fyrst.
Ætti þetta sem eg hefi tilfært
hér að framan að vera fullnæg
sönnun þess að Hkr. fréttin er
ekki af þeim toga spunnin sem
fréttir ættu að vera.
Virðingarfylst,
B. J. Lifmán
oddviti Bifröstsveitar
ATHS.: Enda þótt Mr. Lifman
og Heimskringla séu sammála
um flest, getur að vísu út áf því
brugðið er um það er að ræða,
hvaða fréttir eigi að birta.
Ritstj. Hkr.
DÁNARFREGN
Á heimili Mr. og Mrs. Jóhanns
Ólafsson í Selkirk andaðist,
föstudaginn 9. apríl öldungurinn
Eggert Sigurðsson, nærri 81 árs.
Fyrir 2 mánuðum fékk hann inn-
flúenzu, sem snerist upp í
lungnabólgu. Var hann lengst
af mikið veikur allan þennan
tíma.
Eggert var fæddur á Álftanesi
í Mýrasýslu á íslandi 29. júní
1856. Foreldrar hans voru þau
hjónin Sigurður Jónsson og Guð-
ríður Þórðardóttir. Mjög ungur
misti hann föður sinn en móður
sína þegar hann var 11 ára.
Fyrir nokkuð meira en 50 ár-
um giftist Eggert Þorbjörgu
Böðvarsdóttur, er ættuð var úr
sömu sýslu. Þan komu til Can-
ada 1887, bjuggu í Winnipeg,
Nýja-íslandi og síðast 29 ár í
Selkirk. Þau áttu mörg ár heim i
á Gimli. Þau eignuðust 5 börn.
Hið elzta dó ungt á fslandi og hið
yngsta, Halldór, dó á Gimli. Á
lífi eru: Jóhanna gift Thorkeli
Sveinsson í Selkirk; Sigurðui’.
kvæntur Margréti Sólmundsson
í Winnipeg; og Jóna gift Jóhanni
Ólafsson í Selkirk. Síðastliðið
sumar, 19. júní, misti Eggert
konu sína.
Á-fslandi var Eggert sjómaður
og þegar hingað kom stundaði
fiskiveiðar á Winnipeg-vatni í
40 sumur. Hann rak það starf
með mikilli eljusemi og þraut-
seigju og lét ekki af því fyr en
ellin hafði að fullu lamað kraft-
ana. Þetta reyndist honum eink-
ar farsælt starf, því hyggindi og
hirðusemi voru samfara dugn-
aðinum. Hann var í öllum skiln-
ingi góður ráðsmaður yfir því
sem lífið trúði honum fyrir:
tækifærum, fjármunum, gáfum
og ekki sízt ástvinum. Æfidags-
verk hans var honum til sóma og
Lútersku kirkjunni tilheyrði
hann alla æfi og átti þar heima
af sannfæringu.
Hann var stiltur og blíður í
lund og frábærlega tryggur og
vinfastur. Hann var glaðlyndur
og kýminn, þessvegna hressandi
og fjörgandi að hitta. Það var
bjart og hlýtt yfir viðmóti hans.
ÞesSum einkennum hélt hann þó
ellin færðist yfir.
Hann var jarðsunginn af séra
Carli J. Olson og séra Rúnólfi
Marteinssyni, sunnudaginn 11.
apríl, áð viðstöddu fjölmenni.
Athöfnin fór fram í kirkju og
grafreit Selkirk-safnaðar.
R. M.
MESSTIR off FUNDIR
( kirkUt SaitibandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funolr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hfálparnefndin: — Fundir fyrsita
mánudagskveld 1 hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfing-ar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMURNAR EKTT 20 MIL.UK
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FI.ÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
ekrum f námulandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods í Ken-
ora-umdæmi.
Sýnishom af handahófi í nám-
unni hafa reýnst frá 50c upp í
$40,000 úr tonninu og í Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
f tonninu.
KAUPIÐ NÚ—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutir f Unit)
Thor Gold Mining Syndicate
Head Office: 505 Union Tmst
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKtrLJ BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
“THERMIQUE HEATERLESS
PERMANENTS”
THE ERICKSON’S
BEAUTY PARLOR
950 Garfieid St.
Open 9—6 p.m. Phone 89 521
ÍSLENZKA BAKARÍIÐ
702 SARGENT AVE., Winnipeg
Einasta íslenzka bakaríið í
borginni
Islenzk bakning af allri tegund.
Pantanir utan af landi afgreiddar
fljótt og vel. *
Sími 37 652
Bækur óskast til kaups
Eftirfylgjandi bækur verða
keyptar sanngjörnu verði á
“Heimskringlu”.
1. Sagan af Fastusi og Ermenu
Gimli, Man., G. M. Thomp-
son, 1892.
2. Hellismannasaga: Winnipeg
Prentfélag Heimskringlu
1889.
3. Krókarefssaga: útg. Sigur-
björn Jónsson. — Selkirk
Prentsmiðja Freyja 1900.
4. Parmes Loðinbjörn: Gimli.
G. P. Magnússon 1910.
5. Sagan af Nikulási konungi
leikara. Wpg. — Prentfélag
Heimskringlu 1891.
6. Almanak O. S. Thorgeirsson-
ar‘1895. Wpg. — Prentsm.
Lögberg 1894 (Þetta er
fyrsta ár Almanaksins).
Þeir sem kynni að vilja selja
tiltaki verð og skrifi ráðsmanni
Hkr.
DO YOU PLAY
0 BRIDGE? 0
The Junior Women of the First
Icelandic Federated Church cordi-
ally invite you and your friends to
play Bridge Saturday nights, start-
ing February 20th in the Church Pariors, Sargent and Banning.
Unusual prizes being offered.
Refreshments served, followed by sing-song and dancing. Come and
enjoy a real sociable evening with your friends.
ADMISSION 25c Bridge starts 8:15 sharp
y
/
J