Heimskringla - 07.07.1937, Side 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
LI. ÁRGANGUR
WINNIPBG. MIÐVIKUDAGINN. 7. JÚLÍ 1937
NÚMER 40.
Mussolini sagður að búa sig út í
bardaga við Breta innan eins árs
í ítölskum blöðum birtust svo
bitrar ritstjórnargreinar s'. 1.
viku um Breta og Frakka, að
fregnritar gátu ekki annað af
því ráðið, en að Mussolini væri
að býa sig undir að leggja út í
bardaga við Breta innan eins
árs á Miðjarðarhafinu.
Bretinn er að vísu ekki eins
auðtrúa á þetta og fregnritarnir
vegna þess, að þeir skoða ítali
illa undir stríð búna á við sig. En
hitt er jafnvel stjórnin farin að
viðurkenna, að svo líti út, sem
Mussolini sé ant um að vekja
deilur.
Fullar líkur eru til að Mussol-
ini skoði nú samvinnu milli sín
og Breta-stjórnar lokið í Spánar-
málunum. Og í raun og veru er
þá ekki eftir betra að bíða, með
framkvæmdina að endurreisa
rómverska ríkið. Ef ekki er nu
þegar neitt hægt við Breta íð
eiga, verður það ekki góðvæn-
legra eftir að þeir hafa lokið við
vopna-framleiðslu áætlun sína.
En bréfin og skeytin, sem
vopnaframleiðendum á ítalíu og
Mussolini fara á milli, þykja þó
bera því fullkomnast vitni, að
Mussolini hugsi sér að ganga á
hólminn við Bretann Innan
skamms.
í öllum skeytum Mussolini til
vopnaframleiðenda, er áherzlan
lögð á það, að hafa alt til taks á
svipstundu, því tíma megi hér
eftir engum tapa.
Á Panelleria-eyj unni, suður
af Sikiley, eru nú nokkrar þús-
undir verkamanna, sem unnið
hafa að því að víggirða eyjuna
ásamt fleiri stöðum. Er þar því
voldugt vígi komið upp. Bæði
þaðan og frá skotvirkjum á
Sikiley, mun ítölum ekki ókleift
að verja þetta stund, beggja
megin frá, en um það þurfa Bret-
ar og öll skip að fara, sem um
Miðjarðarhaf sigla austur fyrir
ftalíu.
Útlitið er því að verða býsna
alvarlegt.
Kosningarnar á íslandi
Vinur vor Richard Beck há-
skólakennari, hefir sent Heims-
kringlu stutta frásögn eftir
Norsk-Ameríska blaðinu “De-
corah Posten”, 29. júní, um
kosningaúrslitin á íslandi. Segir
í fréttinni að þar sé ekki um
fullnaðar-úrslit að ræða, en fyrir
því sem hér segir sé nokkurn
vegin vissa:
Framsóknarflokkurinn hefir
hlotið 19 þingsæti (hafði áður
15) ; Alþýðuflokkurinn hefir 8
(áður 10) ; Sjálfstæðisflokkur-
inn þefir 17 (hafði áður 20). —
Kommúnistar voru 3 kosnir; er
það í fyrsta sinni að sá flokkur á
fulltrúa á alþingi. Nazistar eða
þjóðernissinnar komu engum að.
Þó tölur þessar kunni nú eitt-
hvað að breytast má það út úr
þeim lesa að aðstaða flokkanna
er mjög hin sama og fyrir kosn-
ingar.
Stjórnarflokkurinn vinnur 4
þingsæti meira en hann áður
hafði, sem er að vísu mikill sig-
ur, en Alþýðuflokkurinn tapar
tveimur þingsætum, sem áður,
eins og kunnugt er, háfði sam-
vinnu við stjórnarflokkinn.
Framsóknarflokkurinn fer því
með völd eftir sem áður. For-
sætisráðherra verður og hinn
sami, Hermann Jónasson og f jár-
málaráðherra Eysteinn Jónsson
Um þriðja ráðherran er óvíst þar
til framsóknarflokkurinn hefir
fengið einhvern hinna flokkanna
í samvinnu við sig. Verður það
að líkindum Alþýðuflokkurinn,
en þó er það ekki víst; Sjálf-
stæðisflokkurinn mun einnig
geta komið til greina.
Lítið ágrip
Kirk j uþingsf rétta
Fimfánda þing Hins Samein-
aða Kirkjufélags íslendinga í
Vesturheimi hófst á laugardag-
inn 26. júní í Árborg og stóð yfir
í þrjá daga. Messað var í öllum
kirkjum Nýja-fslands á sunnu-
daginn. Séra Jakob Jónsson
messaði á tveimur stöðum, Ár-
borg kl. 2 e. h., en í Riverton kl.
8. Séra Guðmundur Árnason
messaði í Árnesi en séra Philip
M. Pétursson á Gimli. Auk þess
voru haldnar samkomur, sem
voru hinar ágætustu, og fyrir-
lestrar sem hlutu alment lof, —
eins og t. d. erindi Miss Sellu
Johnson, Mrs. Andreu Johnson
og Miss I. Sigurgeirson. Vonast
er eftir að þessar konur láti birta
erindi sín í Heimskringlu áður
en langt liður. Auk þess flutti
heiðursgestur Vestur-fslendinga,
frk. Halldóra Bjarnadóttir fyrir-
lestur um samvinnu íslenzkra
kvenna og var honum ágætlega
tekið. Séra Jakob Jónsson flutti
erindi á laugardagskveldið sem
hann nefndi: “Auður og örbirgð
í íslenzkri prédikun”, og var mál
haps einnig vel rómað. Eftir
hádegi á sunnudaginn komu allir
fulltrúarnir saman á nýja barna-
heimilinu á Hnausum, sem verið
er að byggja, og voru menn mjög
svo ánægðir með hviað smíðin
að þeir hafi útvegað Pólverjum
upplýsingar, sem þeim kæmu að
haldi, ef til stríðs kæmí milli
Pólverja og Rússa.
Leynilögreglan kvaðst hafa
fundið sprengjur í fórum þeirra
frá Pólverjum, sem skjóta hefði
átt við tækifæri á þá helztu í
stjóm Rússlands.
Sjötíu af þessum mönnum er
ætlað að búið sé að drepa nú.
Síðan í ágúst 1936, að stjórn-
in byrjaði á þessari ofsókn á
hendur svonefndum Trotzky-
sinnum, hafa auk þessara síðast
töldu verið af lífi teknir 188
manns.
“Hell Drivers”
Svo voru menn nefndir frá
Bandaríkjunum, er s. 1. föstudag
auglýstu í River Park, Wpg., bíla
frá Chrysler-verksmiðjunni og
sönnuðu ágæti í smíði þeirra
og styrkleika með því, að
aka þeim á fullri ferð, eða
35—40 mílur á kl.st., og steypa
þeim svo um.
Þessir ógautans hétu Tommy
Mantle og Warren Lapierre. Um
10,000 manns er mælt að sótt
hafi sýninguna.
Bílunum óku þeir á fleygi-
ferð, sneru þá snögt framhjólun-
um og bílarnir ultu um einu sinni
eða tvisvar í byltu.
í bílnum var aldrei nema einn.
Mennina sakaði ekki; ætla
sumir lað þeir hafi verið bundnir
í sæti sín. En það er þó ekki
víst að svo hafi verið. Bílarnir
döluðust í toppinn og slettuhlíf- skiftum
Emu kvað vera meinlaus fugl,
en geta slegið með löppunum eins
og hestur ef reittur er til reiði.
Að liggja á eggjunum og unga
þeim út, kvað algerlega vera
starf karlfuglsins.
Dr. Peter Manteifel, sem er
yfirmaður í vísindadeild Moskva-
dýragarðsins, holdur því fram,
að þess verði elvki langt að bíða,
að emu verði eins algengur ali-
fugl á Rússlandi og hænsni nú
eru.
Franco heimtar vopn og her
frá Þjóðverjuin og ítölum
Frá skeytastöð stjórnarinnar
á Spáni, kemur sú frétt, að upp-
rei’starforingi Franco, hafi kraf-
ist 125,000 hermanna, 500 loft-
skipa, 50 fallbyssna og margra
skriðdreka frá Mussolini og Hitl-
er, ef hann eigi að taka borgina
Madrid.
Franco tlikynti ítölum og
Þjóðverjum ,að hann hefði tapað
20,000 hermönnum og 20% af
vopnabirgðum sínum við að taka
borgina Bilbao.
Ef alt á nú ekki að verða ó-
nýtt og nokkuð á að verða af því
að Franco taki Madrid, verður
ítalía og Þýkzaland að hjálpa
upp á sakirnar. Byltingunni er
með öðrum orðum lokið; Franco
er sigraður. En þá fer hann til
útlendra þjóða eftir her að lemja
á löndum sínum með.
Bretai^er sagt að keypt hafi
málm af Böskum, en að þeir
muníi nú eftir að Bilbao féll
Franco í hendur tapa þeim við-
Erlendsson og fararstjórinn
ólafur Þorsteinsson.
fslenzku ræðararnir munu fá
sérstaklega góð tækifæri til að
kynna sér kappróðra á meðan
þeir dveljast ytra, þar sem sýnd-
ir verða á mótunum 30 tegundir
Frh. á 8. bls.
ÁVARP FORSETA
Flutt á þingi Sambands íslenzkra
frjálstrúar kvenfélaga að
Árborg 28. júní 1937
arnar (fenders) lögðust saman.
Að öðru leyti skemdust þeir ekki.
Veggur var rekinn saman úr'að ósk Breta.
Þjóðverjar hafa kallað öll her-
skip sín heim frá Spáni, ef til vill
eins þumlungs þykkjum borð-
um og gasolíu steypt á hann. Svo
kom Chrysler-bíll og rendi með
gríðarhraða á vegginn og í gegn-
gekk vel á húsinu og með stað- um hann £n þess ag þninn sak-
mn.
Mánudagskveldið var haldin
fundur og tók almenningur þar
til máls. Þar fóru fram opinber-
ar umræður um eitt mikilsvarð-
andi mál: “Eiga kirkjur að taka
þátt í stjórnmálum?” Séra
Guðm. Árnason stýrði fundinum,
en séra Eyjólfur Melan hóf um-
ræðurnar. Því næst tóku margir
til máls, og var kvöldið hið
skemtilegasta og fræðandi.
Síðasta kvöld þingsins hélt
Samband Kvenfélaga Sambands-
safnaða samkomu sem ágæt var
og fór prýðilega fram.
Þinginu var slitið á þriðju-
dagskveldið og héldu fulltrúarnir
heimleiðis næsta dag. Viðtök-
urnar í Árborg voru hinar
rausnarlegustu og á Sambands-
söfnuðurinn í Árborg, og þó
helzt Kvenfélag Sambandssafn-
aðarins, hina innilegustu þakkir
skilið fyrir þeirra ágætu viðtök-
ur; þær máttu heita óviðjafnan-
legar.
Nánari þingfréttir birtir rit-
ari í næsta blaði og væntanlega
birtast allir eða flestir fyrir-
lestrarnir sem fluttir voru á
þinginu, í næstu tölublöðum
Heimskringlu.
aði, en veggurinn stóð í bjcrtu
báli.
Það er mörg atvinnan sem nú
er rekin. Þessir “Hell-Drivers”
kváðu fá hátt kaup. Slysfarirn-
ar eru einnig sagðar margar og
tíðar. Það lætur að líkum að það
sé ekki hættulaus leikur, að
steypa bílum um á hraðri ferð.
Hvað ítalía og Þýzkaland gera
nú með að senda Franco pöntun
sína, er eftir að vita. Á því mun
ekki standa, ef þeir fá því ráðið.
Og ef til vill hafa þeir í því ó-
bundnar hendur sem fyr fyrir
Bretum og Frökkum. Það líkti
blað fyrir ,skömmu framkomu
Breta og Frakka í Spánarmál-
unum við fiðluspil Nerós meðan
Róm var að brenna, sem mun
nærri láta.
120 handteknir á ný
í Rússlandi
Síðast liðinn laugardag kom
frétt um að 120 manns hafi ver-
ið handteknir á ný í Rússlandi.
Það var á norðvestur landa-
mærum Rússlands, sem leyni-
lögreglan uppgötvaði þessa land-
ráðamenn. Þeir eru úr öllum
stéttum þjóðfélagsins, ríkir
bændur, vélfræðingar, menn úr
rauða hernum, prestar, munkar
og byltingagjörn æska.
Sök þeirra er sögð fólgin í því,
Emu-rækt í Rússlandi
Ef þú hefir ekki átt neitt við
að ráða krossgátur, getur vel
verið, að þú hafir aldrei orðið
var þessa nafns fyrri, en Emu er
heiti á fugli í Ástralíu, sem Rúss-
ar eru að gera tilraunir með að
temja og kenna bændum í Sí-
beríu að fara með sem aðra ali-
fugla. Takist það, óttast Rússar
ekki hallæri í Síberíu.
Fugl þessi er hlaupfugl, næst-
ur strútnum að stærð. Hann er
5 fet á hæð og engu skrokkminni
en nýborinn kálfur. f Ástralíu
er hann ótaminn og ekki étinn af
öðrum en villimönnum. Hann
verpir mörgum eggjum í sar.d-
inn og eru þau 5 til 6 þuml. á
lengd.
Það góða við þennan fugl er,
að hann er ekki vandfæddur. —
Hann étur a!t sem að kjafti kem-
ur, gras, lauf af trjám, rætur,
hræ dýra, matarrusl af borði,
sem út er borið, fisk, kjöt o. s.
frv.
Kjötið af þessum fugli segja
vísindamenn Rússa vel hægt að
gera ætilegt og eggin einnig. En
einhverja sérstaka matreiðslu
þarf það með og í það þarf að
láta ýms efni til þess að gera
bragðið þolanlegt. Af eggjunum
kvað vera vond lykt.Hvert þeirra
er svo stórt, að talið er að ætti
að gera næga máltiíð handa
fimm manna fjölskyldu.
8 MANNA SVEIT SÆKIR
ERLENT KAPPRÓÐR-
ARMÓT
Rvík. 12. júní
Nýja Dagbl. komst á snoðir
um, að í ráði væri að senda ís-
lenzka ræðara á kappróðramót
ytra í sumar. Leitaði blaðið sér
upplýsinga um þetta hjá Jens
Guðbjörnssyni formanni Glímu-
félagsins Ármann.
Kæru þingfulltrúar og gestir.
Um leið og eg set þetta ellefta
ársþing hinna Sameinuðu fs-
lenzku Frjálstrúar Kvenfélaga í
Vesturheimi vil eg bjóða alla
fulltrúa og gesti velkomna
hingað. Þá vil eg leitast við að
skýra fyrir ykkur í fáum orðum
frá því sem gerst hefir á liðnv
ári innan okkar félags, og einn-
ig gefa stutt yfirlit yfir afstöðu
okkar gagnvart sumum þeim
málum, sem aðallega vaka fyrir
félagi af þessari tegund. Vil eg
benda á að þó að framkvæmdir
sé ekki miklar, þá höfum við
reynt að vera vakandi fyrir þeim
hugmyndum sem helzt hafa látið
á sér bera á undanförnum þing-
um. Þó að vísu stjórnarnefndin
hafi aðeins tvo fundi á árinu, þá
hefir samband nefndarinnar sí-
felt verið starfandi að sínum á-
hugamálum. Auk þeirra tveggja
nefndarfunda var mjög ánægju-
legur skemtifundur haldin í Ár-
nesi síðast liðið vor, og fluttu
þar erindi þrjár mikilhæfar kon-
ur sem allar tilheyra félaginu.
Voru það þær Mrs. Gísli Jónsson
frá Winnipeg, Mrs. G. M. K.
Björnsson frá Riverton og And-
rea Johnson frá Árborg. Hefir
ein af þessum ræðum verið birt
í Heimskringlu og hinar vona
eg að komi út síðar. Var sú
samkoma mjög rómuð af áheyr-
endum þeim sem til máls tóku
um þau atriði er rædd voru. Get
eg þess sérstaklega hér vegna
þess að mér finst að gerðabók
þingsins eigi að geyma umgetn-
ing um alt sem þannig er vel
gert innan félagsins.
Gleðifrétt má telja það að a
þessu þingi biður Wynyard kven
félagið, sem er annað stærsta
kvenfléag kirkjufélagsins um
inntöku í okkar kvensamband.
Veit eg að sú beiðni verður fús-
lega veitt, og tneð fögnuði við
tekin. Vita þeir sem til þekkja
að frá því félagi má búast við
ómetanlegum styrk á allan hátt
í framtíðinni. Vil eg því leyfa
mér sem forseti sambandsins að
Jens skýrði svo frá, að í júlí íjbjóða kvenfélag Wynyard-safn-
sumar yrði í Danmörku haldið
hátíðlegt hálfrar aldar afmæli
félagsskapar, sem nefnir sig For
ening for Rosport, og í sam-
bandi við þau hátíðahöld mundi
daga 17. og 18. júlí fara fram
Norðurlandakepni í róðri. En
alls mun við hátíðahöldin koma
fram ræðarar frá 11 þjóðum,
Eistlendingum, Lettlendingum,
Þjóðverjum, Ungvejrum, Hjol-
lendingum. og Englendingum,
auk Norðurlandaþjóðanna fimm
Hingað barst sérstakt boð um
þátttöku í kepninni og hefir ver
ið ákveðið að héðan fari 8 manna
sveit úr Ármanni og verða Ár-
menningarnir gestir ræðarafé-
lagsins í Kaupmannahöfn um
hálfs mánaðar skeið áður en
mótið hefst og meðan það stend-
ur yfir. í sveit Ármanns verða
Ásgeir Jónáson, Max Jeppesen,
Axel Grímsson, óskar Péturs-
son og Guðmundur Pálsson
' stýrimaður og varta-mennirnir
Sigurfinnur ólafsson og Loftur
aðar hjartanlega velkomið sem
meðlim sambandsins.
Nöfn þeirra kvenfélaga sem
tilheyra sambandinu þarf eg
ekki að gefa í þessu ávarpi. En
skýrslur frá þeim öllum verða
lesnar upp og bókaðar hjá ritara
félagsins á þessu þingi.
Um Sumarheimilismálið vil eg
fara fáum orðum til þess að
skýra fyrir þinginu hvað hefir
verið gert á liðnu ári. Eins og
kunnugt er, þá var á síðasta
kirkjuþingi kosin þriggja manna
nefnd til að vinna að því máli á-
samt nefnd frá Kvennasamband-
inu. Var málið þannig tekið inn
á dagskrá kirkjufélagsins til
framkvæmdar og verður því
Sumarheimilið í framtíðinni
undir umsjón kirkjufélagsins í
heild sinni. Að loknu kirkju-
þingi tók svo þessi nefnd til
starfa en í henni eru frá kirkju-
félaginu: Svein Thorvaldson, sr.
Eyjólfur Melan og Ólafur Pét-
ursson, en af hálfu kvennasam-
bandsisn: Mrs. P. S. Pálsson,
Mrs. Eyjólfur J. Melan, Mrs. G.
M. K. Björnsson og eg. En til
þess að verða ekki of margorð
um þetta skal eg skýra frá í fá-
um orðum því sem nú er búið að
gera. Fyrst var mikið haft fyr-
ir því að leita að hentugum stað
þar sem væri góður baðstaður
einkanlega. Höfðu Pétursson’s
bræður á Gimli boðist til að gefa
ekru af landi skamt fyrir norðan
Gimli. Fór svo nefndin til að
athuga þennan stað, en vegna
þess að ströndin var of grýtt
fyrir baðstað sá nefndin sér ekki
fært að taka þessu tilboði. Leit-
aði nefndin alla leið frá Gimli og
norður með ströndinni en engin
staður var hentugur eða nothæf-
ur þangað til við fundum blett
hliðstæðan við Hnausa skemti-
garðinn. Kom nefndinni því
saman um að kaupa þar og
byggj a á þessu ári, ef unt væri.
Var því lóðin keypt og höfum
við fengið eignarbréf fyrir henni
og er þegar búið að reisa bygg-
ingu á lóðinni. Hefir séra E. J.
Melan góðfúslega tekið að sér
formensku á verkinu og megum
við því vera öruggar um að
það verði vel af hendi leyst, og
er eg honum persónlega þakklát
fyrir hversu vel hann hefir unn-
ið að þessu máli. Einnig á Mr.
Sveinn Thorvaldson mikið þakk-
læti skilið fyrir áhugasemi og
dugnað í þessu máli. En margir
aðrir eiga einnig þakklæti skilið
og ekki sízt þeir sem lagt hafa
fram fé til fyrirtækisins. En þeir
eru nú orðnir svo margir að hér
er ekki tími né rúm til að minn-
ast neins persónulega, enda verð-
ur kvittað fyrir allar gjafir í
blöðunum ásamt þakklæti frá
nefndinni. En á þetta atriði
verður síðar minst á þessu þingi.
Þá ber okkur að minnast á-
gætra félagssystra, sem urðu að
hverfa úr hópnum á árinu liðna,
Mrs. Árni Sigurðsson í Wynyard
á þakklæti okkar fyrir ágætar
viðtökur á heimili þeirra hjóna
á síðasta kirkjuþingi sem haldið
var í Wynyard, er þeim sem þar
voru, enn í fersku minni. Við
söknum hennar einlæglega og
vottum eftirlifandi manni henn-
ar og ættingjum hluttekningu í
hans þungbæru sorg.
Við höfum einnig orðið á bak
að sjá annari mætri félagssystur
sem frá byrjun okkar félags-
skapar var með okkur og studdi
okkar áhugamál eftir mætti. Á
eg þar við Mrs. M. B. Halldórs-
son, sem lézt á síðastliðnu vori.
Er okkur ljúft að minnast henn-
ar með þakklætishuga og einnig
að votta eftirlifandi manni henn-
ar og ættingjum okkar alúðar-
fylstu hluttekningu í sorginni.
En ein af allra elztu félagssystr-
um er nú einnig horfin úr hópn-
um Ingibjörg Pétursson sem
lézt á Gimli fyrir nokkrum vik-
um síðan. Var hún kona vel máli
farin og áhugasöm. Lét hún
mikið til sín taka í okkar félags-
málum. Nú söknum við hennar
úr hópnum og vottum börnum
hennar og ættmönnum innilega
hluttekningu okkar allra.
Að endingu vil eg votta þakk-
læti mitt öllum þeim setn áhuga
og dugnað hafa sýnt í starfinu á
liðnu ári; öllum þeim sem stutt
hafa okkar félagsskap og þar
með okkar áhugamál í orði og
verki. Framtíðin ein sker úr þvi
hversu mikið okkur verður á-
gengt, en á meðan unnið er af
eins miklum áhuga og gert hefir
verið hið síðastliðna ár er óhætt
um það að okkar félagsskapur á
batnandi framtíð fyrir höndum.
Marja Björnsson