Heimskringla - 21.07.1937, Side 5
HEIMSKRINCLA
5. SÍÐA
WINNIPEG, 21. JÚLÍ 1937
aðist hann um flestar ísl.-bygð-
irnar í Canada og hélt þar
hljómleika-samkomur, og árið
1930 fór hann heim til íslands og
ferðaðist talsvert um landið, —
dvaldi þar í 6 mánuði og hélt
hljómleika á 30 stöðum. Tryggvi
lætur mjög vel af þeirri ferð, og
segir að hún hafi orðið sér lær-
dómsrík, og ánægjuleg í alla
staði.
Heimili Tryggva hefir verið í
New York síðan hann fór þang-
að í fyrstu og hefir hann mest
af þeim tíma verið við kenslu í'
music. Auk þess hefir hann |
fengist talsvert við tónsmíðar, i
bæði vocal og piano music, og
ennfremur spilað á hljómleika
samkomum (concerts). Tryggvi
er kvongaður konu af hérlendum
ættum, fædd í New Jersey. Hún
er list-dansari, eða máske væri
réttara að kalla það tákndansa,
sem hún dansar; því þeir eiga að
túlka bæði breytilegar árstíðir
og tilfinningu — líf fólks, undir
mismunandi kringumstæðum.
Hún var barn að aldri, þegar
hún byrjaði að læra þessa list.
Hefir dansað í sjónleikum, og
kvikmyndaleikum í New York, j
Philadelphia, Boston og Chi- !
cago. — Þar með töldu hinu i
mikla Roxy-leikhúsi í New York. j
S. 1. 2 ár hafa þau hjónin gef-;
ið “concert” í félagi. T. d. fyrir
hið ameríkanska tónfræðafélag í j
New York, í þeirra samkomusal, |
og fyrir ýms kvenfélög og aðrar i
félagsdeildir. Næsta föstudag,
þann 23 gefst okkur tækifæri að
sjá þau og heyra, leika sínar
listir, undir umsjón kvenna-
stúku Workman-félagsins (De-
gree of Honor) og er ekki að efa
að aðsókn verði góð.
Á miðvikudagskveldið 23. júní
fengum við mátulega mikla rign-
ingu. Aftur aðfaranótt þess 9.
júlí þá mestu rigningu sem kom-
ið hefir hér í mörg ár. — Á
Garðar mældist rúml. 4. þuml.
regnfall. Þá lagðist mikið af
hveiti og byggi, en var þó farið
að réttast furðu mikið við þann
14. þ. m., þegar enn byrjaði að
rigna, með hægð fyrst, en jókst
er áleið kvöldið, og síðan hefir
ringt mest af tímanum, þar til
um miðjan dag í dag (16.), svo
nú eru akrar í slæmu ástandi, al-
staðar þar sem mikill vöxtur er
í kornstönginni, sem er víðast
hvar á láglendi. Ekki er hægt
að segja ennþá hvað miklum
skemdum þetta getur ollað. En
ekki er líklegt að hveiti eða bygg
nái sér að fullu aftur, en mjög
líklegt að ryðið nái sér nú niðri
í svona tíðarfari. — Svona er þá
flest í ríki náttúrunnar: ýmist
of eða van.
Virðingarfylst,
Th. Thorfinnson
Guttormur J. Guttormsson:
SUNNUDAGSÚTVARPIÐ
Agnar Magnússon
flytur ræðu á íslendingadeginum
á Gimli; mælir fyrir Minni ís-
lands.
ISLENDINGADAGUR
f VATNABYGÐUM
Svo sem venja er til, verður
haldinn íslendingadagur í Wyn-
yard 2. ágúst næstkomandi. Til-
högun hátíðahaldsins verður
nánar auglýst í næstu viku. Þess
má geta, að fulltrúar munu koma
þar fram frá öðrum bygðarhlut-
um. Ung stúlka mun lesa upp
kvæði eftir íslenzk skáld, og
verða sömu kvæðin lesin bæði á
frummálinu og á ensku. Söng-
flokkur íslenzku kirkjunnar í
Wynyard mun syngja all-mörg
lög, og annast þau Mrs. S. Thor-
steinsson og Mr. Haraldur Helga-
son einsöngvana. Ekki munu
skáld bygðarinnar liggja á liði
sínu frekar en endranær. Þó að
hér sé aðeins sagt undan og ofan
af og ekki getið um væntanlega
ræðumenn á samkomunni, ættu
menn að fá af'þessu nokkura
hugmynd um það, að ekki verður
alveg fslendingadagslaust í
Vatnabygðum. Raunar má búast
við því að meiri örðugleikar séu
fyrir dyrum hér sökum upp-
skerubrests en nökkurn tímá
fyr, en menn munu tæplega láta
það aftra sér frá því að reyna
að eiga glaðan dag saman til
minningar um gamla landið. —
Forstöðunefndin og aðrir, sem
hlut eiga að máli, munu líka gera
það, sem í þeirra valdi stendur,
til að stilla í hóf inngangseyri
og öðrum útgjöldum í sambandi
við samkomuna. T. d. hefir
kvenfélagið “Framsókn” á hendi
veitingasölu og er ákveðið, að
veitingar kosti ekki meira en
15 cent á mann. Veitt verður í
samkomusal kirkjunnar. Er
enginn vafi á því, að þeir, sem á
hátíðina koma, munu frekar
fara þangað en nokkuð annað
sér til hressingar, því að með
fullri virðingu fyrir því kaffi,
sem “kínarnir” búa til, er það
varla íslenzkara á bragðið en það
sem kvenfélagskonurnar ís-
lenzku hafa á boðstólum. Ung-
mænnafélagið selur kalda drykki
og fl.
f þrjá áratugi hafa íslending-
ar í Vatnabygðum haldið fs-
lendingadag. Sú samkoma hefir
verið sótt af fólki úr bygðunum
endanna á milli og stundum
lengra að. Þessu mun verða
haldið áfram næstu hundrað ár-
in að minsta kosti, svo framar-
lega sem íslendingar og þeirra
niðja halda áfram að búa á þess-
um slóðum. Það er engin hætta
á því að samkoman verði ekki
eins vel sótt í þetta sinn og tök
eru á.
Takið eftir auglýsingunum í
næstu viku.
Jakob Jónsson
Dr. B. J. Brandson
flytur ræðu á fslendingadeginum á Hnausum 31. júlí;
hann mælir fyrir Minni íslands.
:ar.
*v>
>1' ^
rtfi V ■ •.
'i '-.litLr .
. .£
'-1
Hljóðin þau særir sjálfur
Satan, af falskri list,
Og saxagjalla glaumur
Gengur aftur fyrst.
Enda þótt yfir þyrmi
Aflagis hljóða draug,
Situr hann við að saga
Sundur í manni taug.
Heyri eg í helgidómi
Hafin er messugjörð,
Lesið er óspart yfir
Andvaralausri hjörð.
Held eg menn hljóti að vakna
Hressir við prestsins raust.
— í kirkjunni karlmenn sofa
Hjá konum sínum laust.
Orgels hljóðpípur æpa,
Upphaf, og þaðan frá
Sunginn er langur sálmur,
Síðan halelújá.
Kölski hann kveður Undir
Klámið, en miður snjalt,
Auglýsing kemur á eftir
Um ágætt laxersalt.
‘THESE BONES WERE WAGES
Hundurinn og ’ans herra
Hungraðir, jafnt í neyð,
Voru og annað verra:
ViJtir af sinni leið.
Settist í sorgarskuggann
Seggurinn ringlaði,
Rakkinn að reyna að hugga ’ann
Rófunni dinglaði.
Þá flaug í herrans huga
Hjálpráð, sem nú varð bezt,
Skar hann, til skamms að duga,
Skottið í sundur þvert.
Hráætið honum veikti,
Hák frekum, matarlyst,
Stirnaða svo hann steikti
Stirtluna, hengda á kvist.
Þannig var gróðinn goldin:
Gnagaði herrann af
Hundsrófu þeirri holdin,
Hundinum beinið gaf.
“Á DÖGUM DICTATORANNA”
Við auðvaldið æði reiður
Og alt þess háttalag,
Á lífinu orðinn leiður
Hann langaði helzt í slag.
Að stytta sér stundir — það var
Hans stefna og augnamið
— Það um að flýja sem að var —
Og engu að skirrast við.
Það varð honum örðugt vikið
Að veita sér raunabót,
Því svo var nú eitrið svikið:
Það sakaði ’ann ekki hót.
Hann keypti sér snæri í snöru
Og snöruna um hálsinn fékk
Og svikinni svikinn vöru,
Hann settist en ekki hékk.
Frá skoðun ’ann hlaut að hverfa
Að hægt væri að granda sér;
Og eilífa lífið erfa
Hann ætlaði á jörðu hér.
Og hátíð ’ann hélt um daginn,
Sem hamingju sinnar vott;
Hann mundi að það var maginn,
Sem mest átti skilið gott.
Hann keypti sér málsverð mikinn
Og mun hafa fengið nóg,
Því maturinn svo var svikinn
Að sérhver, sem át hann, dó.
FR. C(R)OOK
Það verður mikil hátíð, er við
heimtum ’ann til baka,
Og honum veizlu gerum við,
á Chateau Laurier.
— Er hugðum við hann leita
að nýju landi, á hafísjaka,
Þá lá hann inni í tjaldi sínu
kyr við Humbug Bay.
YSIRFLJÓT
Sjá þá ungu, stungna stingjum,
Stara, mæna eftir friði,
Iik um völlin liggja í dyngjum
— Líf með þeim og sum á iði —
Limlest, þembd og þrútin tárum,
Þakin druslum, skít og sárum.
Ekta gull fyrir auðvalds lýðinn
Atalt malað hafði gróttinn.
Af var staðin æga hríðin,
Eftir skyldi rekinn flóttinn,
Herinn yfir fljót í flokkum
Fara á brú úr mannaskrokkum.
Undan þyngslum, enn til víga
ösnum fluttra vítis bákna,
Altaf lægra og lægra síga
Líkin niður í aur, sem tákna
Mun, að sökkva í sínum drotni
Seinast niður úr grafarbotni.
Út með löngum Ysirbökkum
Æðir vatnið rautt af blóði.
Undir skuggum alda, blökkum,
Eilífð geymir það í sjóði;
Lengra og lengra fljótið flæðir,
Fram í rúm og tíma blæðir.
TESTAMENT
Er lengur ekki hrifið hafa dropar
Úr hómópata glösum a og b,
Þá látið ekki klappa mig úr kopar,
— Það kostar landsmenn alt of mikið fé—
Og látið þið úr leir mig ekki hnoða
Né litlu skáldin um mig kveða rugl.
En, ef þið viljið, upp þið megið troða
Mig allan líkt og stóran hvítan fugl.
Gutt. J. Guttormsson
Tryggvi Oleson, M.A.
fiytur ræðu á fslendingadeginum
á Hnausum 31. júlí fyrir Minni
Canada.
FJÆR OG NÆR
Jóhannes Gestsson og kona
hans frá Garðar, N. D., og Steve
Indriðason og kona hans frá
Mountain, N. D., komu til bæj-
arins í gær í heimsókn til vina
og kunningja.
* * *
Séra Guðm. Árnason frá Lun-
dar, Man., var staddur í bænum
fyrir helgina.
* * *
Úr bréfi úr Framnesbygð
Laugardagskveldið 3. júlí var
þeim hjónum Sigurði Vopnfjörð
bónda í Framnesbygð og konu
hans, Helgu (áður Johnson frá
North Dakota) haldið veglegt
samsæti í samkomuhúsi Fram-
nesbygðar í tilefni af nýafstað-
inni giftingu þeirra.
Samsætinu stýrði Mr. Snæ-
björn S. Johnson bóndi í Fram-
nesbygð. — Mrs. Herman von
Rennesse frá Árborg mælti fyrir
minni brúðurinnar og Mr. Gunn-
ar Sæmundson frá Geysir fyrir
minni brúðgumans. Ennfremur
töluðu við þetta tækifæri þeir
Mr. P. K. Bjamason frá Árborg,
Mr. Gunnlaugur Holm frá Víðir,
Mr. Einar Benjamínsson frá
Geysir, Mr. B. J. Sigvaldason frá
Árborg og Mr. G. O. Einarson
frá Árborg.
Milli ræðuhalda voru sungnir
íslenzkir söngvar; spilaði Mrs.
E. L. Vigfússon undir. Einnig
skemtu systurnar Miss Olga og
Dora Sigurðsson með pianó duet.
Og karlakór bygðarinnar söng
nokkur lög. Að afstaðinni kaffi-
drykkju, þakkaði Mr. Vopnfjörð
fyrir hönd þeirra hjóna, vinum
og vandamönnum fyrir veizlu
þessa, var síðan sungið og dans-
að fram undir morgun.
E. B. Olson
flj^tur ræðu á íslendingadegin-
um á Gimli 2. ágúst fyrir Minni
Canada.
Sérstök kjörkaup á gúmmí slöng-
um til að vökva garða með
50 feta langar — með hólkum tilheyrandi
Hér er tækifæri að
eignast vökvunarslöngu
með miklum kjörkaup-
um.
Allar slöngur 50 feta
langar og úr góðu efni
gerðar. Með hólkum. —
Kjörkaup.
$2.35
EATON C?M™
FERÐIST TIL UTLANDA í ÁR
íslendingar sem ferðast hafa að mun hafa sannfærst um að
þægindi, þjónusta og viðurgerningur á öUum skipum
Canadian Pacific er langt fram yfir það sem þeir hefðu
getað gert sér hinar glæsUegustu vonir með.
BEINT SAMBAND VIÐ ÍSLAND
Hin stóru og hraðskreiðu skip Canadian Pacific félagsins
veita ágæta ferð beint til Keykjavíkur yfir Skotland.
, ' Fastar siglmgar frá Montreal í hverri viku.
Fáið yður fullkomnar upplýsingar hjá næsta umboðsmanni eða
W. C. CASEY, Steamship General Passenger Agemt, C. P. R. Bldg.,
Winnipeg. Símar 92 456—7.
Qomjo&xom. Quífrc SOeoMti&úfui