Heimskringla - 01.09.1937, Blaðsíða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 1. SEPT. 1937
Mrs. G. Helgason pianokennari
I og Valdine Condie komu heim
11 frá New York s. 1. viku, en þar
11 hafa þær verið fulla tvo mánuði,
Condie að nota musik námskeið
“ “ sem hún hlaut, en Mrs. Helgason
að kynna sér það nýjasta í
kenslu-aðferðum.
Jón Sigurðsson félagið I. O. D.
i E. heldur fund á heimili Mrs. J.
Thorpe Ste. 2 Bonveens Apts.,
Spence St., þriðjudaginn 7. sept.
kl. 8 að kvöldi.
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
Næstkomandi sunnudag 5 þ.m.
byrja guðsþjónustur í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg á ný
eftir sumarfríið, á ensku kl. 11 f.
h. og á íslenkzu kl. 7 e. h. eins og
áður. Séra Philip M. Pétursson,
prestur safnaðarins messar. —
Annan sunnudag hér frá verður
séra Lawrence Redfern, prestur
Unitara kirkju í Liverpool á
Englandi staddur í Winnipeg,
og messar við morgunguðsþjón-
ustuna.
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni á Gimli, sunnudaginn
5. sept. n. k. kl. 2 e. h.
* * *
Vatnabygðir
Föstudaginn 3. sept. kl. 7.30'
Söngæfing.
Sunnudaginn 5. sept. kl. 11 f. h.:
sunnudagaskóli í Wynyard.
kl. 2 e. h.: Messa í Wynyard.
kl. 4 e. h.: Messa í Mozart
Þriðjud. 7. sept. kl. 8 e. h.: Ung-
mennafélagsfundur í Wynyard
Fimtudaginn 9. sept. kl. 8 e. h.:
Séra Jakob Jónsson flytur fyr-
irlestur í kirkjunni í Wyn-
yard. Efni fyrirlestrarins er
“Auður og örbirgð í íslenzkri
prédikun síðustu 100 árin.” —
Söngflokkur kirkjunnar og
Mrs. S. Thorsteinsson, munu
aðstoða við samkomuna. Inn-
gangseyrir er 25 cent; ágóð-
inn rennur til beggja safnað-
anna í Wynyard.
* * *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
heldur fund miðvikudaginn 8.
sept. að heimili Mrs. ólafur Pét-
ursson, 123 Home St., Winnipeg.
* * *
Ragnar H. Ragnar pianokenn-
ari, sem um tveggja vikna skeið
hefir dvalið norður í Árborg,
kom til baka um helgina og er
tekin til óspiltra mála á kenslu-
starfi. Hann kvað gott hljóð í
bændum nyrðra, heyrði marga
þeirra segja, að þetta væri eitt
þeirra bezta sumar með sprettu
og nýtingu á heyum og korni
og verð á búnaðarafurðum.
KENSLUBÆKUR
Skólar eru nú rétt að
byrja. Eg efi á boðstólum
skólabækur fyrir alla bekki.
Einnig hefi eg til sölu
stórt úrval af bókasafns-
bókum, sem seljast við ó-
heyrilega lágu verði. Þetta
ætti fólk til sveita að nota
sér.
Ágætt Player Piano, fyr-
ir aðeins $40.00 gegn pen-
ingum út í hönd, fæst einn-
ig á staðnum.
The BETTER ’OLE
548 ELLICE AVE •
Ingibjörg Shefley, eigandi
Jónas Stefánsson frá Kaldbak
kom til bæjarins s. 1. mánudag.
Hann kom með systkinunum
Gústa og Miss Ingibjörgu Sig-
urgeirsson frá Mikley. Verður
Miss Ingibjörg í bænum um
skeið. En Jónas 6g Gústi lögðu
af stað heimleiðis samdægurs.
* Hi *
Bílslys
Á þjóðveginum skamt frá
Grafton, N. D. varð bílslys s. 1.
mánudag. Dó einn maður af
slysinu en sex meiddust. Af
fólki þessu voru þrír íslending-
ar, Mrs. Guðm. Gíslason, frá
Seattle, áður í Winnipeg og tvær
dætur hennar Beatrice og Thora.
Meiddust þær eitthvað, en ekki
mikið af fréttinni í Free Press
af þessu að dæma.
* * *
Þakkarorð
Við undirrituð, þökkum af
hjarta öllum sem sýndu okkur
hluttekningu og samúð við lát og
útför eiginmanns og föður okkar
Sigurðar Oddleifssonar, sem lézt
að heimili sínu hér í bæ 15. þ. m.
(Mrs.) Guðlaug Oddleifsson
Axel L. Oddleifsson
Edward W. Oddleifsson
* * *
Þakkarávarp
Oft getur hugurinn hugsað,
sem tungan ei fær talað, og á
það hér heima. Eg veit að hönd
mín getur ekki skrifað eins innl
legt þakklæti eins og mér ber
í huga til allra sem á einn og
annan hátt veittu mínum fram-
liðna manni Kristlaugi Ander-
syni hjálpar hönd í hans dauða
stríði og fyrir öll þau gæði sem
næstu nágrannar hans í Árborg
sýndu honum á einverustundum
hans og bið eg góðan guð að
endurgjalda þeim í ríkum mæli,
alt það góða honum auðsýnt frá
fyrstu viðkynningu til þess síð-
asta. Eins þakka eg þær góðu
viðtökur og hluttekningu sem
Árborgar fólk sýndi mér og
börnum mínum, sérstaklega
þakka eg Mrs. Lifman og hennar
fólki sem tóku á móti okkur með
sérstakri alúð. Þetta alt þökk-
um við af hjarta og biðjum al-
góðan guð að endurgjalda í
þeirri mynd sem hann sér hent-
ast.
Ykkar með vinsemd og virðingu,
frá Margréti Anderson
og börnum hennar
19 Emily St.,
Winnipeg, Man.
• * *
Séra K. K. ólafsson flytur
messu í skólanum að Wapah,
Man., laugardaginn 11. sept. kl.
8 að kvöldinu. Sunnudaginn 12.
sept. flytur hann messur sem
fylgir:
Reykjavík, kl. 11 f. h.
Bay End, kl. 3 e. h.
Að Bay End verður prédikun
bæði á ensku og íslenzku.
KORNHLÖÐUR:
Allur viður í réttum lengdum, raftar hefl-
aðir og sniðnir saman sem flýtir verki. Upp-
dráttur fylgir hverri pöntun sem sýnir
hvemig bygt er. Skrifið eða símið eftir verði
á þessum stærðum:
12’ x 14’ — 8’ 1,000 búsjel
12’ x 16’ — 8’ 1,200 búsjel
Verðið er með allri jámvöru og nöglum.
The Empire Sash & Door Co. Ltd.
Henry Ave. and Argyle St.
WINNIPEG, Man.
Sími 95 551
John J. Arklie, optometrist,
specialist on sight testing and
fitting of glasses, will be at:
Riverton Hotel, Riverton,
Thursday sept. 9th
Arborg Hotel, Arborg,
Friday Sept. lOth.
* * *
Próf. Sveinbjörn Johnson flytur
fyrirlestur á alþjóðafundi.
(Það féllu nokkrar setningar
úr þessari frétt í síðasta blaði,
svo fréttin er hér tekin öll upp).
Dr. phil. Sveinbjöm Johnson,
prófessor í lögum við Illinois
ríkishákólann og lögfræðislegur
ráðunautur hans, er um þessar
mundir á ferðalagi í Norðurálfu.
Hann flutti nýlega, 9. eða 10.
ágúst, fyrirlestur um þróun ís-
lenzkra laga (“The Development
j of Icelandic Law”) á alþjóða-
fundi lögfræðinga í Haag á Hol-
landi, Intemational Congress of
Comparative Law. Er prófessor
Johnson, sem kunnugt er, hinn
sérfróðasti í þeim fræðum, og
vinnur að þýðingu fornra ís-
lenzkra laga á enska tungu, með
nauðsynlegum skýringum.
Richard Beck
* * #
Messur í Argyle:
Baldur, kl. 11 f. h.
Grund, kl. 2.30 e. h.
Glenboro, kl. 7 e. h.
Bru, kl. 9 e. h.
Sr. Egill Fáfnis
* * *
Brezkur Únítara prestur
kemur til bæjarins næstkomandi
þriðjudag, 7. þ. m. Hann er á
heimleiðinni eftir að hafa ferð-
ast í kringum hnöttinn og heim-
sótt Unitara söfnuði í Afríku,
Ástralíu og Nýja Sjálandi. Hans
hefir áður verið getið hér í
blaðinu og munu flestir minnast
þess. Hann heitir séra Law-
rence Redfern og er prestur Ullet
Road Chapel, únítara kirkju í
Liverpool á Englandi. Það var
hann, sem prédikaði í dómkirkju
Liverpools biskupasdæmis er
deilumálið reis upp, um það
hvort að leyfilegt væri að úní-
tarar prédikuðu í þjóðkirkjunni
á Englandi.
Hann kemur hingað frá Van-
couver þar sem hann prédikaði í
únítara kirkjunni s. 1. sunnudag.
Hér messar hann í Sambands-
kirkjunni sunnudaginn 12. þ. m.
kl. 11 f. h. En á miðvikudaginn,
þar á undan, — 8. þ. m. flytur
hann fyrirlestur í kirkjunni um
efnið “Freedom and Tolerance
in the Modern World.”
Héðan frá Winnipeg ferðast
hann til Hamilton, Toronto, Ot-
tawa og Montreal og heimsækir
únítara kirkjumar í þeim borg-
um og heldur síðan heimleiðis til
Englands um næstu mánaðamót.
Menn eru vinsamlega beðnir
að minnast fyrirlestursins og
messunnar og fjölmenna. Eng-
inn inngangur verður settur við
fyrirlesturinn en samskota verð-
ur leitað.
VIÐVÖRUN
TIL ALLRA SEM f HUGA HAFA AÐ FLYTJA TIL
WINNIPEG f VINNULEIT EÐA TIL AÐ
KOMAST Á FRAMFÆRSLUSTYRK
1. Bærinn hefir ótal marga atvinnulausa íbúa, sem
hvaða atvinnu geta tekið sem býðst.
2. Enginn framfærslustyrkur verður veittur fjöl-
skyldum eða einstökum mönnum, sem í bænum
eru, en eru ekki reglulegir bæjarbúar.
3. Enginn framfærslustyrkur verður veittur þeim,
hvort sem giftir eru eða ógiftir, sem til bæjarins
flytja eftir að tilkynning þessi hefir verið birt.
By order
CITY OF WINNIPEG UNEMPLOYMENT
RELIEF COMMITTEE
24 ág. 1937
MESSUR og FUNDIR
t kirkju SambandssafnaDar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundlr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyraea
mánudagskveld 1 hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn &
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÍSLENZKA BAKARIIÐ
702 SARGENT AVE., Winnipeg
Einasta íslenzka bakaríið í
borginnd
Islenzk bakning af allri tegund.
Pantanir utan af landi afgreiddar
fljótt og vel.
Sími 37 652
Dreng nokkum í Svíþjóð lang-
aði mjög mikið til þess að eign-
ast Tennisspaða. Hann vissi sem
var, að Gútsav Svíakonungur
iðkar þá íþrótt mikið, og datt
því það heillaráð í hug að skrifa
honum og spyrja, hvort hann
ætti ekki notaðan spaða, sem
hann gæti fengið.
Daginn eftir var honum send-
ur spánýr spaði með kveðju frá
Gústav konungi.
Nýjar bækur
Auk þeirra íslenkzu bóka, sem
eg hefi áður auglýst, hefi eg nú
fengið til sölu þessar bækur:
Ljóðmæli séra Matthíasar
Jochumssonar. Er þetta hin
nýja útgáfa er Magnús, sonur
skáldsins, hefir gefið út. Eru
þar öll frumkveðin ljóð séra
Matthíasar, og einnig mikið af
þýðingum. Er þar fjöldi af
ljóðum sem eigi hafa áður verið
prentuð. Bókin er nær því 900
bls., prentuð á næfur þunnan en
ágætann pappír (Indian paper)
og baridið er hálfskinn, prýðilega
gylt og litað í sniðinu. Ágæt
teiknuð mynd af skáldinu er
framan við bókina og sýnishorn
af eigin skrift hans. Verðið hér
er $8, þar í talið póstgjald til
kaupenda. Þessi bók er hin dýr-
mætasta vinargjöf sem kosin
verður fyrir þetta verð.
Friðþjófssaga. Þetta er hin
snildarlega þýðing séra Matthí-
asar af hinni frægu ljóðsögu
Esiasar Tegnérs um Friðþjóf
hinn frækna. Munu fá eða eng-
in útlend ljóð hafa verið jafn-
mikið sungin á íslenzku. Þau
“læstu sig inn í líf og sál” fólks-
ins “sem ljósið í gegnum myrk-
ur”. Framan * við bókina er
stutt æfiágrip skáldsins Tegnérs
og á eftir ljóðsögunni er hið
meistaralega “Ávarp” séra M.
til íslendinga, sem fylgdi fyrstu
útgáfunni. Magnús Matthíasson
hefir gefið bókina út, sér til
sóma, því að hún er prýðileg að
öllu leyti, — 220 bls. í ágætasta
alskinni og fagurlega gylt. Fjöldi
af teiknuðum myndum, eftir
svenskan ljstamann, prýða bók-
ina afar mikið. Verðið hér er
$4.25, póstgjald meðtalið.
' Morgunn. útgefendur þessa
tímarits hafa nú beðið mig að
selja það hér vestra. Kemur
Morgunn út tvö hefti á ári, alls
um 250 bls. Verðið hér er $3.
Einar H. Kvaran er ritstjóri
Morguns, og þó að hann hefði
ekkert annað skrifað, þá myndi
það eitt halda uppi minnjing
hans um langan aldur. Fyrra
heftið þetta ár er nú komið til
mín, en síðara heftið kemur um
eða fyrir áramót.
MAGNUS PETERSON
313 Horace St. Norwood, Man.
JÓNS BJARNASONAR SKÓLI
Ekki hræddur við lögregluna
Klukkan tvö að næturlagi
kemur piltur á reiðhjóli ofdn
Hverfisgötu og ingólfsstrætis
með ljóslausa luktina. Á horni
Hverfisgötu og Ingólfsstrætis
stendur lögregluþjónn og kallar
skipandi:
—Kveiktu á luktinni, dreng-
ur.
— Vertu ekki svona myrk-
fælinn, væni minn, sagði snáð-
inn.—Alþbl.
Hið 25. starfsár skólans er nú í
aðsígi. Síðastliðið ár var farsælt:
nemendur 77, fjárhagur eftir
vonum, og árangur í heild sæmi-
legur.
Tvö bréf eru birt hér sem sýna
hvernig þeir líta á skólann sem
hafa reynt hann. Hið fyrra frá
móður námsmeyjar í 12. bekk,
en hitt er frá annari námsmey í
sama bekk.
“B” Cambridge Apts.,
Winnipeg, May 27-37
Dear Mr. Marteinsson,
The enclosed $5.00 completes
the instalments towards Mo-
rag’s fees, and I regert delay.
Your school has been a very
pleasant home for Morag, and
she ha^ enjoyed all its associa-
tionö immensely.
Please accept for yourself and
convey to your staff my best
thanks and deep appreciation of
all kindnesses and efforts on be-
half of my daughter.
With kindest regards,
Sincerely yours,
Mary A. Little
Ridgeville, Man.,
July 26, 1937
Dear Mr. Marteinson:
It gives me great pleasure to
be able to inform you that I
have succefully passed my Grade
XII. examinations. You can per-
haps imagine my happiness
when I received my certificate,
for I must confess that I was
doubtful about some of the
exams. However, now all my
worries and fears are over.
I want to thank you very
much, Mr. Marteinsson, for your
invaluable help and the kind
consideration and guidance
which you have given me dur-
ing the past year. I also wish
to thank the rest of the staff.
Truly I am unable to express in
words the happiness that I ex-
perienced during the past year
while at your academy. Whén-
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMTJRNAR ERU 20 MIUUR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
I.AKE OF THE WOODS‘
FélagiO hefir umráð á 400
ekrum i námulandi við Andrew
Bay, Uake of the Woods í Ken-
ora-umdæmi.
Sýnishom af handahófi í nám-
unni hafa reynst frá 50c upp í
$40,000 úr tonninu og í Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
í tonnlnu.
KAUPIÐ NtJ—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutlr f Unlt)
Thor Gold Mlnlng Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKtrLJ BENJAMTNSON
Whittier St., St. Charles, Man.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrhtar
reynið nýju umbúðimar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
ever the opportunity occurs
when I can be of service to you
by recommending your school I
will certainly do so, but I am
afraid that such a small service
will not be sufficient to reþay
you for all you have done. My
parents, too, wish to thank you
and join with me in their grati-
tude. Thanking you again, I
remain,
Your grateful pupil,
Ruth I. Jack
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustof a:
518 Dominion St.
Phone 36 312
J0N BJARNASON ACADAMY
652 HOME ST.
TALSÍMI 31 208
Fjórir bekkir: 9—12
Fjórir íslenzkir kennarar
Tækifæri til að nema íslenzku.
Tuttugasta og fimta starfsár skólans, með skrásetning
nemenda fimtudaginn 16. sept. Gerið þetta ár
hátíðlegt með mikilli aðsókn
íslenzkra nemenda.
R. MARTEINSSON, skólastjóri
493 Lipton St. Talsími 33 293