Heimskringla - 15.09.1937, Page 1

Heimskringla - 15.09.1937, Page 1
THE PAR-T-DRINK Good Anytlme In the 2-Glass Bottle ^ ® Ll. ÁRGANGUR WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN, 15. SEPT. 1937 NÚMER 50. HELZTU FRETTIR Nyon-fundurinn Á fundinum sem haldinn var í Nyon í Sviss s. 1. viku til þess að ráða fram úr málunum um ó- skundann á Miðjarðarhafinu, var samhykt að allar þjóðirnar, sem þarna eiga hlut að máli, skiftu með sér verkum og annist um að ferðir um hafið séu örugg- ar, og að skip séu óáreitt látin af neðansjávarbátum. — Var hverri þjóða úthlutað nokkurt svæði að líta eftir. En nú voru ítalir ekki á fundinum. Eigi að síður hefir Bretinn hugsað þeim fyrir horni af Miðjarðarhafinu til eftirlits. En nú hefir Mus- solini fundið sig móðgaðan með því hve lítið svæði honum sé ætl- að og krefst að vera í þessu efni ekki settur skör lækra en Bret- land eða Frakkland. Hvernig um það fer, er nú eftir að vita. Mussolini hefir kjark í sér til að bera sig eftir hlutunum. Þar sem hann var ekki á Nyon-fund- inum, virtist sem hann kærði sig ekki stórt um að ferðalög um Miðjarðarhafið yrðu gerð örugg. Og því skyldi hann kæra sig um að hans eigin neðansjávarbátar væru teknir eða þeim sökt ? Það eru þeir sem óskundanum olla. En svona hrætt eða kurteist er Bretland við Mussolini, að það býður honum að taka þátt í verndinni á hafinu, til þess að koma í veg fyrir að á Mussolini sc litið sem ófyrirleitinn sjóræn- ingja og engum detti í hug, að kenna honum um ástandið á Mið- jarðarhafinu. Þetta ber nú að virða, en það versta er að Mus- solini sjálfur gerir það ekki og heimtar nú að ganga framarlega í flokki að því, að taka eða sökkva sínum eigin neðansjávar- bátum! Hvernig um þetta mál fer, er óvíst. Af níu þjóðunum sem skrifuðu undir Nyon-samning- inn, er það víst, að Rússar verða fyrir það fyrsta á móti því, að taka Mussolini frekar til greina. En þjóðirnar eru þessar, er undir samninginn skrifuðu: Bretland, Frakkar, Tyrkland, Egyptaland, Rúmanía, Júgóslavía, Búlgaría, Grikkland og Sovét Rússland. Þessi þjóðlönd ásamt ítalíu hg'g'ja að Miðjarðar eða Svarta hafinu, en aðrar þjóðir voru ekki til Nyon-fundarins boðnar. Bretar hafa nú um 90 herskip á Miðjarðarhafinu, bættu fjöru- tíu við töluna sem áður var að Nyon-fundinum loknum. Frakk- ar sendu þegar um 40 herskip þangað einnig. Er ekki ólíklegt, að Mussolini fari nú varlegar en hann hefir áður gert, fari hann á annað borð á stúfana. Bretar hafa þegar náð í neð- ansjávarbát, er var við ódæðis- verk sitt að sökkva skipum á Mið jarðarhafinu, en nafni og eig- enda skipsins er haldið leyndu. Nægilegt fé til húsa- bygginga í Winnipeg Um miðja s. 1. viku tilkynti Mr. Warriner borgarstjóri í Winnipeg, að nægilegt fé væri fengið til þess að byggja nokkur hús í bænum með ákveðnum og aðgengilegum skilmálum fyrir þá sem kaupa vildu. Húsin sem ráðgert er að reisa, eru lítil, kosta um $3,500. Af- borganir eru $400 í peningum um leið og kaup eru gerð og $30 á mánuði eftir það. f þessari $30 mánaðar greiðslu, er skattur innifalin. — Lánið er veitt kaupenda til 20 ára. Alt kostar þá húsið um $7,600 sem ekki er sem verst, þegar þess er gætt, að í þessu verði er falinn 20 ára skattur á eigninni. Borgarstjóra er þakkað að hafa fengið peningastofnanir til að lána féð. Með húsasmíðinni mun bærinn hafa umsjón. Þetta er nú gott og blessað, ef sá væri ekki galli á að komið er undir vetur nætur og húsasmíði er ekki hagkvæm talin hér að vetrinum; hefir aldrei verið það. Það líkist því að reyna að grípa tækifærið þegar það er úr greip- um gengið, að byrja húsasmíð- ar nú. Hugmyndin reis of seint upp af koddanum. Það hefir tekið hana nærri ár að fæðast. Og þá er komið að kosningum og hver hinn nýji herra verður, eða hvort að henni verður nokkur gaumur gefinn af nýju ráði, er alt saman á huldu. Shanghai í höndum Japana Fréttir frá Kína í morgun eru á þá leið að mestur hluti borgar- innar Shanghai sé kominn í hendur Japana. Kínverski her- inn varð að hörfa til baka úr fremstu skotgröfunum og búast til varnar lengra frá ströndinni. Það gefur Japan umráð megin- hluta borgarinnar. Alþjóðahverfi& er alt í hönd- um Japana. Þó slæmt þyki, er það nú ef til vill öruggara en áður. Skemdir á byggingum í Shanghai kváðu nema tugum miljóna, eftir skothríðina. f brezka hluta borgarinnar kvað mikil eyðilegging hafa orðið. Uppskera 160 miljón mælar Hveiti-uppskera þremur Á norðvestur vígstöðvunum gengur Franco ekki eins vel að taka Gijon og hann bjóst við. Mótstaða stjórnarinnar er þar meiri en hann átti von á; veður hafa einnig verið þar óhagstæð. íslendingar heiðra próf..W. Kirkconnell Skeyti hefir borist hingað vestur um það, að Bókmentafé- lag íslands hafi gert prófessor Watson Kirkconnell að heiðurs- félaga sínum. Þetta er einn sá mesti bókmentaheiður, • sem þjóðin á að bjóða. Heiðurinn er honum veittur fyrir það sem hann hefir skrifað í þágu ís- lenzkra bókmenta. Eins og kunnugt er, hefir próf. W. Kirkconnell lagt sig mjög eft- ir bókmentum útlendra þjóða hér. Auk íslenzkra bókmenta hefir hann gefið sig við að bera saman bókmentir ýmsra þjóða og skrifað verk um það, sem viðurkenningu hafa hlotið af svipuðum lærdóms og bókmenta- stofnunum og Bókmentafélagi íslands í Frakklandi, Englandi, Bandaríkjunum, Póllandi og Ungverjalandi. Vestur-fslendingar fagna heiðrinum og viðurkenningunni sem próf Watson Kirkconnell hefir nú hlotið. Starf hans í þágu íslenzkra bókmenta, hafa þeir fyrir löngu viðurkent með því að gera hann að heiðursfé- laga í Þjóðræknisfélaginu. Roosevelt bannar vopnaútflutning Síðast liðinn þriðjudag lagði Roosevelt forseti bann við því, að nokkur skip stjórnarinnar flyttu vopn eða skotfæri til Kína og Japan. Einstaklingar sem verzlun þessa reka, gera það því hér eft- ir á eigin spýtur. Það var á fundi með blaða- mönnum, sem Roosevelt forseti DR. RÖGNV. PÉTURSSON sextugur í dag Gestur góðra dísa! Gestur sextíu ára! Gestur augans glöggva! Gestur Haga frá: Hér er vorbjört veröld vöku drauma þinna. Megi ósk þín eignast opna himna að sjá. Megi ár þín eignast endurborið þjóðlíf, þar sem íslenzk ástúð æðstu fer með völd, sveipað bræðra böndum beggja megin hafsins. Alls þíns starfs það yrði æfi beztu gjöld. Sittu heill að sumbli sólarguðsins dýra úti í Vestur-veröld, vörður frónskri hjörð. Þig í aldar þriðung þekti eg einna fremstan þeirra, er fsland yngja upp í nýrri jörð. Enginn hlýrra hefir Hinztu kveðjur stílað vildar-vinum gengnum — vegfarenda hóp. Fáir ætt og óðal æsku betur munað þeirra, er fsland ekki æfi heima skóp. vestur-fylkjum Canada, er sögð' hefir reglulega, að hann greindi vera 160,329,000 mælar. Skerfur Manitoba af því er 53,123,000 mælar. f 2,872,000 ekrur var sáð, svo uppskeran er að jafnaði 18)4 mælir af ekru. f Saskatchewan er nú uppsker- an aðeins 34,733,000 mælar. — Ekrufjöldinn sem sáð var í var 13,893,000. Meðaltalið af ekrunni verður því 2mælir. Hlutur Alberta-fylkis er 72,- 465,000 mælar. Þar var sáð í 7,834,000 ekrur, sem gerir að jafnaði 9% mælir af ekru. Uppskeran er ein sú minsta er sögur fara af. Stafar það auð- vitað af því að hún má heita að hafi eyðilagst í Saskatchewan- fylki. í Manitoba er hún með betra móti í ein 16 ár, segir í skýrslunni í Free Press. f Al- berta mun ekki meðal uppskera. Við þetta bætist, að hveitið er flokkað lágt. Um númer eitt er varla að tala Ryði og óhag stæðri þreskingartíð, kenna kaupahéðnarnir um. Þó verð á hveiti sé sæmilegt, er því ekki sagt, að það eigi mikið skylt við verðið til bóndans. Bardagi um Zaragoza Síðast liðinn mánudag voru fréttirnar þær frá Spáni, að stjórnarherinn byggist við að gera harða árás -á uppreistar- menn um Zaragoza, á Aragon- vígstöðvunum. Borg þessi er sögð mikilsverð frá hernaðar- Ber þér vestan blærinn bjartar ára minjar, hjartans heilla kveðjur, - - horfnra vina arf. — íslands mæti mögur, morgunlandið brosir enn við tugum ára íslenzks ræktar starfs. Þ. Þ Þ. “NORÐUR-REYKIR” Ljóðmæli eftir Pál S. Pálsson frá þessu. Ekkert var látið í ljós um það, hvort að bann þetta snerti skip- ið “Wichita”, sem lagði af stað í ágúst með 19 flugskip til Kína. Skipið er eign stjórnarinnar, en er starfrækt sem flutningaskip af einstaklingi Bæjarfréttir John Queen var valinn af hálfu verkamannaflokksins í Winnipeg s. 1. föstudagskvöld til þess að sækja um borgarstjóra- stöðu í komandi kosningum. Máttleysi Á sýki þeirri, sem kemur fram í máttleysi í börnum, fór að bera snemma á þessu sumri í Mani- toba-fylki. Byrjaði það úti í sveit. Síðan hafa jafnt og þétt borist fréttir af að veikin sé að stinga sér niður. f Winnipeg fréttist um 6 sjúkdómstilfelli s. 1. mánudag, en 22 börn höfðu hér áður sýkst. Dáið hafa ekki nema þrjú börn í þessum bæ, en það má mikið telja með þeirri miklu varúð og skjótu læknishjálp, sem hér er kostur á. Er sýkin nærri orðin eins slæm nú og síðast lið- ið ár, en þá varð hún hér út- beirddari en nokkurn rak minni til áður. Nú hafa um 135 sýkst í öllu fylkiiiu, en s. I. ár sýktust 167 börn áður en veikinni rénaði með kulda 0g vetri. Eins hættuleg og veikin var s. Langt ér síðan Páll S. Pálsson varð alþektur sefn ljóðskáld með- al Vestur-íslendinga; það eru víst meira en þrjátíu ár síðan kvæði fóru fyrst að birtast eftir hann í blöðunum. Og ennþá lengra er síðan hann byrjaði að yrkja, því að ártalið við elsta kvæðið í bókinni er 1897, og hef- ir hann þá verið kornungur. En þó Páll sé búinn að yrkja lengi og margt hafi birst á prenti eftir hann, þá má óhætt segja, að hingað til hefir hann ekki verið talinn með helztu skáldum Vest- ur-íslendinga. Eg held jafnvel að sumir haldi, að hann sé mjög lítið skáld, að minsta kosti hefi eg heyrt einn mann, sem fékk ljóðabók hans í jólagjöf segja, að öllu aumari Ijóðabók hafi hann aldrei lesið. Og aðrir eru þeir, sem halda að hann geti ekkert orkt vel nema gamankvæði, af því hann hefir orkt nokkur af þeim,' og þau bráðfyndin og skemtileg. Já, svona eru nú dómar „okkar 0g álit um Ijóða- smíðina. Eg skil reyndar ekkert í því hvers vegna hver maður, sem hefir einhvern snefil af viti á Ijóðum, telur ekki Pál með betri íslenzkum skáldum, ekki aðeins hér, heldur yfirleitt. Hann er að vísu ekki altaf að yrkja, og tæki- færisljóð eru fá. En það virð- þegar eitthvða að ráði liggur eftir manninn. Bæði það, að Páll hefir ekki orkt mjög mikið, eð^ réttara sagt, að ekki hefir birst mjög mikið eftir hann á prenti, og eins hitt, að hann er eitt hið látlausasta og náttúrlegasta skáld, sem við eigum, veldur því, að hann hefir hingað tiV ekki notið þess álits, sem hann verð- skuldar, og ekki neitt nálægt því. Það er gott að Páll réðist í það að gefa út þessa ljóðabók sína, þó líklega fái hann útgáfukostn- aðinn aldrei endurgoldinn. Mér er sagt, að sumir hafi ekki viljað kaupa hana, þegar þeir sáu, að það voru engin grínkvæði í henni. Þarna hafa þeir sem unna fallegum ljóðum úrval úr skáld- skap hans, og geta litið í bókina, þegar þá langar til . Kvæðabæk- ur eiga ekki að lesast í einum rykk og vera svo lagðar upp á hillu og aldrei opnaðar framar; þær eiga að lesast aftur og aftur, eitt og eitt kvæði í einu. Aðeins á þann hátt hafa menn full not af þeim. Ekki eru öll kvæðin í þessari bók jafn góð, sem heldur er ekki við að búast. Nokkur þeirra eru frá æskuárum höfundarins, og þó þau séu lagleg eru þau frem- ur veigalítil. En um kvæðin frá síðari árum er alt öðru máli að gegna; í þeim eru tökin á efninu föst og viss, málið fágað og mjög vel frá öllu gengið. Er auðséð að skáldið hefir verið vandlátt með að láta það eitt eftir sig sjást, sem frá listarinnar sjónar- miði væri boðlegt hvar sem er. Um efni kvæðanna má segja, að það sé að vísu ekki mjög fjöl- breytt, en samt séu blæbrigðin mörg og fögur. Að lesa kvæðin er ekki ólíkt því að horfa á skóg að hausti til, þegar laufið er að bregða lit. Grunntónninn í þeim mörgum er einhver saknaðar- blær, eins og hulinn harmur gægist fram. Ef til vill finst einhverjum að of oft sé slegið á þennan streng. Kvæðið “Sum- arlok” er gott sýnishorn. Fyrsta og síðaseta erindið í því eru svona: Yrkisefnin eru oftast frum- læg, það er tilfinningar skálds- ins sjálfs og reynsla, sjaldan hlutlæg. Þó er kvæðið “Fimm í austur, fimm í Vestur”, sem margir kannast við, af því tæi, og er ágætt kvæði. Togstreit- unni um smámuni er þar ágæt- lega lýst, og samlíkingin gerir hana ógleymanlega. Annars eru svo að segja engin ádeilukvæði í bókinni og enginn stefnuskáld- skapur. Líklega á höfundurinn eitthvað af því í fórum sínum, en hefir sjálfsagt ekki þótt tími Frh. frá 5. bls. SIGFÚS JÓELSSON f gær var sléttan græn. f gær var sólin hlý. í dag er grasið grátt og grimm í lofti ský. f gær bjó gleði í sál. f gær var alt svo bjart. f dag er hrygð í hug. í hjarta myrkur svart. Af þessum sama toga eru spunnar hinar fallegu og við kvæmu endurminningar frá æskuárunum, sem koma svo víða í ljós, Má í því sambandi nefna kvæðin “íslenzki smaladrengur- inn” og “Vorvísur til íslands”. f síðara kvæðinu er þetta erindi: Arfi íslands hljóður Andans Berurjóður þráir látlaust ár og öld. Kýs þar helzt að heyja hinstu þraut—og deyja— þegar loksins kemur kvöld. En sundum er líka hreinn gleði- og fagnaðar-blær í kvæð- unum eins og í þessum línum: ist vera helzti vegur til frama fyrir íslenzk skáld, að yrkja án Hver sólgeisli verður að söng í legu sjónarmiði. Franco hefir 1. ár er hún nú ekki talin, enda þegar tapað þar miklu liði; síð- hefir varnarlyf mikið verið not- ast liðna viku særðust eða dóu að gegn henni, með góðum á- 10,000 og 3,000 voru herteknir af rangri hafi sýkin ekki verið orð- hans mönnum. in slæm, þegar íspíta var gerð. afláts og helzt við öll möguleg tækifæri. Fólk er hrifið af stór- framleiðslu (mass production) í ljóðagerð, einkum ef mest af því er annaðhvort erfiljóð eða grín- vísur. Það er þó alténd munur dag, því sumarið færir mér nýjan brag, og andvarinn syngur sitt ljúfl- ings lag um ljósið og daginn. Hann var fæddur 31. október 1868 að Sauðakoti á Upsaströnd Eyjafirði. Foreldrar hans voru þau: Jóel Jónasson og Dórótea Loftsdóttir. Vfóðir Sigfúsar var ættuð frá íólum í Hjaltadal, en hann var sjötti maður frá Finni biskupi Jónssyni í Skálholti. Til Vesturheims fluttist hann árið 1888, staðnæmdist í Winni- peg og átti þar heima til dauða- dags. Sigfús var vel gefinn maður, glaðvær í félagsskap og léttur í lund. Hann var fslendingur í húð og hár, og þrátt fyrir það að hann var skapstiltur með afbrigð um stóðst hann það ekki að heyra íslandi hallmælt eða lítið gert úr íslendingum. Sigfús vann alla æfi að tré- smíðum; hafði hann lært þá iðn heima og var ágætis smiður. Fyrir rúmum þrjátíu árum kyntist hann önnu dóttur þeirra Eiríks Bjarnasonar bónda í Churchbridge, Sask., og konu hans Oddnýjar ljósmóður Mag- núsdóttur. Höfðu þau flutt hingað vestur frá Seyðisfirði. Er Anna hin mesta myndarkona, hagsýn og dugleg, enda fann Sigfús það glögt og mintist þess oft. Þau hjón eignuðust fimm börn sem öll eru á lífi. Þau eru þessi: 1. Eiríkur, stundar lífsá- byrgðarstörf hér í Winnipeg. 2. Dorothy, gift Gísla Eyj- ólfssyni í Churchbridge. 3. Oddný, gift hérlendum manni, er Root heitir í Edmon- ton, Alta. 4. Magnús, 17 ára í heima- húsum. 5. Vemon, 14 ára, einnig heima. Eg gat þess að Sigfús sál. hefði verið íslenzkur í lund; lýsti það sér við mörg tækifæri, t. d. Jmætti geta þess að við vinnu sína raulaði hann oftast fyrir munni sér íslenzkar vísur og erindi. Sigfús var fríður maður sýn- um og glæsimenni á yngri árum. Hann dó 2. ágúst síðastliðinn og fór jarðarförin fram frá Sam- bandskirkjunni. S. J. J.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.